2 minute read

Hafnfirðingar bætast við UMFÍ

1. spurning: Fyrst og fremst viljum við benda á að erfitt er að mynda sér skoðun á meðan útfærslan er ekki á hreinu. Það skortir upplýsingar um hvaða útfærslu er verið að skoða og hvernig staðan er á umræðum um skiptingu lottósins. Stjórn HSV er sammála um að fækka þurfi samböndum og efla þau. Landfræðilega erum við ekki með tillögu að útfærslu eða hvaða leið sé best. Með sameiningu sveitarfélaga í Ísafjarðarbæ sameinuðust fjöldi ungmennafélaga og héraðssambanda í HSV, það tókst og ætti að vera hægt að sameina enn frekar. 2. spurning: Þessi ákvörðun á ekki að snúast um pólitík eða peninga, mikilvægt er að horft sé til þess að búa til öflug sambönd til að styrkja íþróttahreyfinguna. 3. spurning: Við sjáum fyrir okkDagný Finnbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri HSV. (Svörin eru frá stjórn HSV).

ur að íþróttafélögin í kringum okkur myndu hafa hag að því að vera undir einu héraðssambandi með starfsmann sem sér um t.d. fræðslumál, styrkjamál, úthlutanir, samskipti við UMFÍ og ÍSÍ o.s.frv.

Advertisement

Undir lok nóvember samþykkti stjórn UMFÍ umsókn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar að UMFÍ. Þetta er stórt skref í sögu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. Sambandsaðilum UMFÍ fjölgaði um einn og er þá allt höfuðborgarsvæðið innan hreyfingarinnar. „Ég fagna þessu skrefi og trúi því og treysti að samvinna muni aukast innan íþróttahreyfingarinnar,“ segir Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH, í kjölfar tímamótanna. Undir það tók Elísabet Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBH. Þau leiddu umsóknarferlið saman fyrir hönd íþróttabandalagsins.

Yfirleitt eru nýir sambandsaðilar samþykktir á þingum UMFÍ. Á 52. sambandsþingi UMFÍ, sem haldið var á Húsavík árið 2021, var stjórn veitt heimild til þess að samþykkja aðild íþróttahéraða á milli þinga. ÍBH varð þar með fjórða íþróttabandalagið til að bætast við í UMFÍ. Þrjú bandalög eru þar fyrir; Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalag Akraness (ÍA).

Öll fengu þau aðild að UMFÍ á sambandsþingi UMFÍ haustið 2019. 1. spurning: Við höfum ekki tekið umræðuna um breytingu á íþróttahéruðum en á sínum tíma börðumst við fyrir því að hafa tvö íþróttahéruð á Reykjanesinu, ÍRB og ÍS. 2. spurning: Ég held að þetta snúist um fjármagnið og hversu öflugt það gæti orðið ef skaginn yrði eitt íþróttahérað. 3. spurning: Eins og ég segi í svari við fyrstu spurningunni höfum við ekki tekið umræðuna og ÍRB hefur ekki verið mjög virkt, þar sem það er enginn launaður starfsmaður. En það horfir vonandi til betri vegar. Persónulega sé ég ekki Reykjanesið sem eitt íþróttahérað. Hef spurt sjálfan mig að því hvort við þurfum yfir höfuð að vera með íþróttahéruð en ekki komist að niðurstöðu. Ef breytingar verða gerðar þarf Einar Haraldsson, formaður og framkvæmdastjóri Keflavíkur, íþrótta- og ungmennafélags.

það að vera skýrt hvert hlutverk íþróttahéraða er og því þarf þá að fylgja fjármagn ef þetta á að virka. Alvöru skrifstofa með launaða starfsmenn.

Tímamótaskref í sögu ungmennafélagshreyfingarinnar.

Hrafnkell Marinósson, formaður ÍBH.

Félögin innan ÍBH

Innan ÍBH eru skráðar um 15.000 iðkanir (sumir einstaklingar æfa fleiri en eina grein) hjá 25 aðildarfélögum í Hafnarfirði undir merkjum ÍBH. Innan ÍBH eru félög eins og FH, Haukar, Sundfélag Hafnarfjarðar, Kvartmíluklúbburinn, Badmintonfélag Hafnarfjarðar, golfklúbbar, hestamannafélög og mörg fleiri. • Badmintonfélag Hafnarfjarðar • Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar • Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar • Hjólreiðafélagið Bjartur • Íþróttafélag Hafnarfjarðar • Brettafélag Hafnarfjarðar • Bogfimifélagið Hrói Höttur • Bílakúbbur Hafnarfjarðar • Blakfélag Hafnarfjarðar • Tennisfélag Hafnarfjarðar • Siglingafélagið Hafliði • Sambo 80

Hér eru félögin innan ÍBH:

• Fimleikafélag Hafnarfjarðar (FH) • Knattspyrnufélagið Haukar (Haukar) • Siglingaklúbburinn Þytur • Íþróttafélagið Fjörður • Sundfélag Hafnarfjarðar • Fimleikafélagið Björk • Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar • Kvartmíluklúbburinn • Golfklúbburinn Keilir • Golfklúbburinn Setberg • Hestamannafélagið Sörli • Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar

This article is from: