1 minute read
Gamla myndin: Mót verður til
Fyrsta Unglingalandsmót UMFÍ var haldið á Dalvík dagana 10.–12. júlí árið 1992. Árið áður hafði sú hugmynd komið upp hjá Ungmennasambandi Eyjafjarðar (UMSE) að halda landsmót fyrir unglinga innan ungmennafélagshreyfingarinnar. Þessi hugmynd skaut upp kollinum þegar UMSE sá um Íslandsmeistaramót 14 ára og yngri í frjálsíþróttum á Akureyri sumarið 1991. Þar varð til sú hugmynd að gaman væri að halda stórt mót með mörgum greinum fyrir krakka. Stjórn UMSE kannaði áhugann fyrir slíku móti og þurfti ekki að leita lengi. Félögum og samböndum innan UMFÍ bauðst að vera með og upp úr því var farið að tala um Unglingalandsmót UMFÍ.
Upphafsmaður þessarar hugmyndar er Jón Sævar Þórðarson, en hann var framkvæmdastjóri UMSE á þessum tíma.
Advertisement
Strax í upphafi var ákveðið að á mótinu ætti ekki að einblína á góðan árangur í þeim greinum sem í boði voru heldur var skemmtanagildið í fyrsta sæti. Í boði skyldi vera þátttaka í ýmsum íþróttagreinum, kvöldvökur, skemmtun og útivist. Lagt var til að mótið yrði þriggja daga fjölskylduhátíð og haldið þriðja hvert ár. Á mótinu skyldi vera fjölbreytt skemmtidagskrá fyrir alla aldurshópa en keppendur skyldu vera 16 ára og yngri. Fjöldi keppenda í keppnisgreinum skipti engu máli og engin stigakeppni skyldi vera haldin. Þrír efstu í hverri grein skyldu þó fá verðlaun. Keppnisgreinarnar á mótinu áttu alltaf að vera frjálsíþróttir, knattspyrna, sund og skák en síðan máttu mótshaldarar velja aðrar greinar til viðbótar.
Á fyrsta unglingalandsmótinu voru 1.078 keppendur skráðir til leiks og voru mótsgreinarnar átta talsins: frjálsíþróttir, knattspyrna, sund, skák, glíma, golf, hestaíþróttir og borðtennis. Þetta var því flott byrjun á viðburði sem átti eftir að festa sig í hjartarætur marga manna.
Unglingalandsmótið var sett formlega á föstudagskvöldinu með skrúðgöngu keppenda inn á leikvanginn sem Hafsteinn Þorvaldsson stjórnaði. Jóhann Ólafsson, þáverandi formaður unglingalandsmótsnefndar, bauð keppendur og aðra velkomna; Kristján Þór Júlíusson, þá bæjarstjóri Dalvíkur, hélt ávarp og Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, setti mótið við mikinn fögnuð. Á föstudagskvöldinu spreyttu ungir mótsgestir sig í karókí sem fór fram í stóru tjaldi og kvöldið eftir var haldið ball fyrir alla þátttakendur þar sem hljómsveitin 1000 andlit hélt fjörinu uppi. Keppendur og aðrir sem voru viðstaddir mótið fóru því sáttir og sælir heim eftir vel heppnað fyrsta Unglingalandsmóti UMFÍ á Dalvík.