6 minute read

Vill gera peysurnar verðmætari

Vill gera peysurnar verðmætari

GREIN Katla Ársælsdóttir

Advertisement

MYNDIR Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Ýr Jóhannsdóttir er textílhönnuður sem þekkist gjarnan undir listamannsnafninu Ýrúrarí. Prjónaskapurinn var lengi eitt helsta áhugamál Ýrar en þar sem það er nú orðið að vinnu segir hún að áhugamálin sín séu fremur venjuleg. Hún segir að áhugi sinn á fatahönnun hafi orðið viðvarandi snemma og segist alltaf hafa fundist skrýtin föt áhugaverð. „Þegar ég var unglingur fór ég í MH en áður en ég byrjaði þar þá fór ég oft í vinnuna með mömmu sem vann í skólanum og man eftir því að hafa verið að fylgjast svolítið með fólkinu þar, í alls konar fötum,“ segir Ýr.

GERIR EITTHVAÐ SKRÝTIÐ ÚR ÞVÍ VENJULEGA

Aðspurð hvað veiti henni innblástur í hönnun sinni segist hún gera eitthvað venjulegt að einhverju skrýtnu, en segir að ferlið sé mismunandi. „Núna hef ég verið að fá peysur frá Rauða krossinum og það sem ég geri gjarnan er að hengja peysu upp sem mig langar að vinna með og virði hana fyrir mér, stundum finn ég ekki neitt, stundum finn ég eitthvað. En ég geri það langoftast út frá peysunum sjálfum. Ef það er gat eða fastur blettur á peysunni þá þarf ég að vinna út frá því hvar gatið eða bletturinn er staðsettur. Það leiðir líka ferlið áfram. Núna er ég að vinna að tilraun fyrir Hönnunarmars, sem verður reyndar núna í maí. Ég fékk til dæmis vin minn sem skrifar til að skrifa smásögu um eina peysu. Svo ætla ég að vinna peysuna út frá þeirri sögu. Ég er mjög spennt að sjá hvernig það verður. Þetta gæti verið áhugaverð nálgun á hvernig hægt sé að laga þessar peysur, að ímynda sér einhverjar sögur,“ segir Ýr og bætir við að þannig verði þær líka verðmætari.

ÚR SVÖRTUM RUSLAPOKA Á SVIÐ Í LOS ANGELES

Ein af fyrstu peysunum sem Ýr fékk frá Rauða krossinum var frá Zöru, þó nokkuð blettótt og skreytti hún hana fremur mikið. Tónlistarkona hélt síðan tónleika á hátíð í Los Angeles þar sem hún klæddist peysunni hennar Ýrar. „Það er svo æðislegt að sjá peysur sem voru á leiðinni á einhverja ruslahauga eða landfyllingu einhvers staðar fá meiri líftíma og gera þær verðmætari. Þær áttu einhverja sögu áður en ég fékk þær sem ég veit ekki um en ég framlengdi þann tíma og gerði þær að einhverju merkilegu,“ segir hún.

„Í grunninn er þetta mikið betri lausn heldur en að vera alltaf að gera peysur frá grunni. Hönnunin mín hefur nokkurn veginn þróast út frá því. Síðan hefur þetta þróast út í verkefnið Peysur með öllu. Þá fæ ég peysur frá Rauða krossinum sem eru ónýtar og er að vinna með þær en annars hefðu þessar peysur lent í ruslinu. Þetta þróast alltaf í umhverfisvænni átt hjá mér,“ segir Ýr og bætir við að með því að læra um hönnun og fataiðnaðinn hafi henni orðið ljóst að þessi iðnaður er ekki í lagi.

Hún lítur þó jákvæðum augum á þróunina sem er að eiga sér stað innan tískubransans og telur fleiri og fleiri veita málefninu eftirtekt og reyna að finna umhverfisvænni framleiðsluleiðir. „Upcycle hefur verið í gangi hér á Íslandi í smá tíma, fólk er að sækjast eftir því að vita meira og meira um um framleiðsluferli þess fatnaðar sem þau eru að kaupa, hvaðan hann kemur og hvernig hann sé búinn til,“ segir hún.

EKKI NÓG AÐ SEFA EITTHVAÐ SAMVISKUBIT

Ýr telur að sú grundvallarbreyting sem hefur átt sér stað er að frekari fræðsla, sérstaklega meðal ungmenna. Hún segist ekki muna eftir að hafa fengið slíka fræðslu þegar hún var í grunnskóla. „Síðan fara krakkarnir heim og fræða foreldra sína og þannig breiðist boðskapurinn enn frekar,“ segir hún.

„Það verður að vera sjálfsagður hlutur að kaupa notuð föt,“ segir Ýr og bætir við að það skipti miklu máli að fólk sé meðvitað um neysluhegðun sína. „Það eru ótrúlega margir sem fara með föt í Rauða Krossinn eða selja í Extraloppunni til þess að eiga pláss og pening til að kaupa sér nýjar flíkur. Það er annað sem fólk þarf að átta sig á. Það er ekki nóg að sefa eitthvað samviskubit með að fara með fötin þín í þessar búðir og versla síðan ekki við þær til baka. Annars verður enginn hringrás úr þessu. Ég hef líka verið að reyna að benda fólki á það. Líka að nota sín föt eins lengi og mögulegt er, það er umhverfisvænasta leiðin og það er líka það sem ég hef verið að vinna með. Stundum eigum við flíkur, til dæmis peysu sem við erum hreinlega komin með leið á og þá er bara um að gera og breyta henni í peysu sem þig langar meira að ganga í. Það skiptir einnig máli,“ segir hún.

AÐFERÐIR TIL AÐ GERA PEYSUR AÐ VERÐMÆTI Í STAÐ RUSLS

Um þessar mundir eru tvær peysur eftir Ýri á sýningu hjá Listasafni Reykjavíkur. Fimmtán nýir listamenn voru fengnir til að sýna verk sín í bland við verk eftir Erró. Ýr segir að það sé mjög gaman að hafa fengið að taka þátt í því verkefni.

„Síðan er ég aðallega með opna smiðju í Hönnunarsafni Íslands og verð að gera það þangað til að Hönnunarmars byrjar í maí. Fólk getur þar prófað sig áfram í aðferðum sem ég hef verið að nota og lagað fötin sín. Það er ótrúlega gaman. Niðrí anddyri á Hönnunarsafninu er ég með stand af peysum frá Rauða krossinum sem er ekki búið að laga. Ég fæ svo mikið magn frá þeim að fólk getur þá komið, fylgt ákveðnum reglum og tekið þær að sér, með því loforði að það muni nota þær og laga, viðhalda. Ég er í rauninni bara að prófa allskonar aðferðir til þess að fá þessar peysur til að verða aðeins verðmætari og vera ekki eitthvað rusl. En ég verð stundum hrædd um að þær verða lítið sem ekkert notaðar eða enda aftur á sama stað innan skamms tíma,“ segir Ýr.

PULSUSULL

Aðspurð hvernig verkefnið Ein með öllu komst á laggirnar segir Ýr að Rauði krossinn hafi haft samband við hana. „Ég hafði verið að vinna með notaðar peysur og þau hjá Rauða krossinum sögðu mér að þau voru gjarnan að fá peysur sem væru smá gallaðar.“

Undanfarin ár hefur Rauði krossinn verið í samstarfi við hönnun í kringum Hönnunarmars. Í gegnum samstarfið fékk Ýr mikið af peysum og hélt síðan sýningu á afrakstrinum í Rauða kross búðinni. „Þau sem eru að vinna í flokkuninni sögðu mér að það væru oft að koma peysur með slettum framan á peysunni, eins konar sósufar og þannig kom nafnið. Eftir eitthvað pulsusull. Fyrsta peysan sem ég skreytti var einmitt með slíkri slettu og ég saumaði út í slettuna og úr varð þemað. Núna heitir verkefnið Pylsa með öllu fyrir alla og þá er ég að reyna að gera þetta þannig að allir geta verið með,“ segir Ýr.

Að lokum spyr blaðamaður Stúdentablaðsins Ýri hvað hún fái sér á pylsu. Ýr er grænmetisæta og segir að það hafi verið ákveðið flækjustig þegar kom að fyrrnefndu verkefni, Pylsur með öllu, þar sem hún og allar fyrirsæturnar nema ein voru grænmetisætur. „En ef ég er að fá mér grænmetispylsur þá fæ ég mér pylsu með tómatsósu, steiktum lauk og sinnepi,“ segir Ýr.

This article is from: