Jón ætlar að panta tíma hjá lækni. Hann finnur númerið á sinni heilsu-gæslu-stöð og hringir.
Jón fer á heilsu-gæslu-stöðina daginn sem hann á pantaðan tíma
Jón mætir á heilsu-gæslustöðina og talar við starfs-mann í af-greiðslu. Þar þarf Jón að segja nafnið sitt og kennitöluna sína. Jón bíður eftir að læknirinn kalli nafnið sitt. Þegar læknirinn er búinn að kalla upp nafnið hans fer Jón inn á stofu með honum.
Jón segir lækninum hvað er að. Læknirinn skoðar Jón og spyr hann spurninga.
Jón biður lækninn um að skrifa niður hvað hann eigi að gera næst.
Jón þakkar fyrir sig og kveður lækninn.