Málum með Elínu G. Í olía og akríl
1
OG AMMA GRÉT. Notalegasta á sýningu.
2
Formáli
þessi lesning er eins og góð matreiðslubók sem ekki á að
fara eftir uppskriftunum, heldur lesa og nota það sem vekur áhuga og sleppa hinu í matagerðinni. Þú færð þá þína uppskrift sem enginn á nema þú. Persónulegt málverk sem er engu líkt. Það verða ekki til meistaraverk í hvert sinn, þá er bara að byrja uppá nýtt og mála yfir. Leikgleðin verður að vera með í för og einbeitingin að ná settu marki. Síðan getur þú horft á verkið og hugsað þetta gat ég gert. Hvernig fór ég að þessu? Í hita leiksins gleymist tíminn og málað er nær ómeðvitað af einstakri einbeitingu. Það eru ekki allir sem mála þannig en þannig geri ég það. Þetta hefti er tileinkað barnabörnunum
mínum í von um að
þau geti nýtt sér mína reynslu og þekkingu. Þau eru öll mjög listræn. Ég byrjaði frekar seint í myndlistinni. Þrjátíu ára var ég í Noregi að læra og byrjaði ekki aftur fyrr en fertug. Fyrst í Háskóla Íslands í eitt ár og útskrifaðist með kennsluréttindi í grunnskóla. Síðan í Listaháskóla Íslands í fimm ár og útskrifaðist með BA í listum. Þetta nám var mikill skóli með helstu máurum Íslands. Tár og barátta þarf til að fást við listina. Að lokum verðuru sáttur og vinnur þín verk. 3
Hvernig byrja ég að mála? Nokkrar aðferðir. Þú velur þér grunnlitina og svartan og hvítann. Ramma að þinni stærð og blöndunarefni. Trönur ef þú vilt standa við verkið en það er nauðsynlegt fyrir lengra komna. Líkaminn allur málar og þú svitnar þegar mikil átök eru í málverkinu. Oft er gott að byrja á pappír með olíulitunum til að taka úr sér hræðsluna og hrollinn við hvítann strigann. Það eru nokkrar aðferðir sem hægt er að nota og eru kenndar hér: 1.
teikna með blýanti og bíða þar til myndin þornar á milli lita.
2.
Blautt í blautt, teiknað upp með olíu og nota pensil eða sköfu.
3.
Mála svartan grunn og nota punktaaðferðina, sköfu eða pensil.
4.
Venjulegar akrílmyndir eru málaðar eins og olían, nema þorna fyrr. Akríllinn er blandaður vatni en olían olíu.
5.
Akrílmyndir fyrir lengra komna eru með í lokin.
Tröllið er teiknað með brúnum pensli á hvítan striga. Ísinn er málaður á hvítann striga með bláum og svörtum olíulit í mjóum pensli og haldið aftarlega á pennslinum.
4
1. Málað með olíu, hér teiknað með svörtum lit en má alveg eins teikna með blýanti. Teikningin má ekki krossa annan hlut, nema setja hlutinn þannig að hann sýnist ekki standa uppá þeim sem er undir. Hér er notað blöndunarefni og stundum svolítið mikið. Þá lætur maður verkið þorna og málar aftur yfir. Annars er vatnslitaáferð á myndinni. Það er auðvita í lagi. Hér er reglan brotin að byrja alltaf á bakgrunni. Það er líka í lagi. Svart hvíti dúkurinn er málaður næst og síðast blár skuggi. Þá er komið að því að láta myndina þorna og það tekur alveg vikun áður en farið er að mála meira í myndina. Hér mætti fara yfir speglunina og lónið. Þið munið að klassisk kyrralífsmynd er ekki með landslagi í baksýn. Þú getur gert hvítann vegg á bakvið og hugsað um skuggann sem fellur á vegginn og dúkinn. Sjáið stútinn á flöskunni hún má ekki vera jafn há og fjallið. 5
Kyrralífsmyndir teiknað með blýanti og þornar á milli. 1. Það er alltaf hægt að finna nýja leið í kyrralífsmyndum. Þessar myndir segja sögu, en það gera ekki hefðbundnar kyrralífsmyndir. Efri mynd er um Venus konu Íslands sem má ekki setja öll eggin í sömu körfu. Neðri myndin er um kulda bernskunnar og fegurðina sem gerir mann að manneskju sem nýtur sín í þjóðfélaginu. Gerðu þér þínar kyrralífsmyndir það er gott að byrja á þörf fyrir tjáningu. Kyrralífmyndirnar hafa hefðir en þú mátt brjóta þær og finna þína leið.
6
Klassísk uppstilling, kyrralífsmynd,
með klæði fyrir
aftan og í forgrunn. Þessi er máluð með akríl. Fyrsta málaða myndin mín á ferlinum. Þess vegna þykir mér vænt um hana. 1.
7
1. Ég lék mér í sandinum. Hún er teiknuð upp með mjúkum blýant B4 til B6 á hvítann strigann. I.
Þá eru valdir litir á pappa diskinn. Blöndunarefni er nota´ð hér eins og áðan.
II.
Við byrjum á bakgrunninum, himninum og fjöllum, síðan vatnið og að lokum forgrunninn, sandinn. Þegar við málum notum við sömu liti og færum okkur upp og niður málverkið með smá strokum til að fá flæði og samræmi í myndina. Þú stingur pennslinum í krukkuna með blöndunni þegar þú þarft að fá mýkt í litina. Ég geri það í hvert skipti sem ég næ í næsta lit á pappa diskinn.
III. Fjarðlægðin er blá en nálægðin er litrík, það gerir dýptina. IV. Það þarf svona 2 til 3 umferðir í bakgrunninn. Það fer eftir því hvað liturinn er gegnsær hjá þér þ.e. Hvað þú dýfir mikið í krukkuna með blöndunni. Ég nota litinn alltaf gagnsæjan oft eins og vatnslit, en það er bara smekksatriði. V.
Þegar bakgrunnurinn er þornaður málum við strákana. Munið að mála með smá lit úr umhverfinu í líkamann. Nú er betra að mála ekki mjög gagnsætt heldur aðeins þykkara. Þá er jafnvel nóg að mála eina umferð. Aldrei að nota svartann í skugga heldur bláan og nota hvítann og gulan í ljósið.
8
2 Þessi aðferð er blautt í blautt.
Eins og í teikningu
eru strikin breiðari í skugga og þynnri í byrtunni. Þú getur notað blýant, olíukrít eða olíu til að teikna upp myndina. I.
Nú málum við blautt í blautt og bíðum ekki eftir að strikin þorni. Við notum þveran pensil og drögum frá hægri til vinstri.
II.
Grár er aðalliturinn en grænn, gulur og hvítur eru settir á nokkra staði. Byrjað er á klettunum síðan niður í vatnið sem speglun. Guli er neðst við vatnslínuna og speglast í vatninu. Vatnslínan er teiknuð með málbandi því hún verður að vera alveg bein.
III. Grár litur er blanda af bláum og appelsínugulum. IV. Í lokin er blái liturinn málaður að spegluninni og litirnir blandaðir saman við samskeitin. V.
Þetta er málað í einni umferð. Liturinn er svolítið þykkur í klettunum og þunnur í vatninu. Það þarf þá að fara aftur yfir vatnið 9
Uppstillingar, býantur notaður í teikningu. Þessi stíll er klassískur þar sem hlutum er raðað á borð. Venjulega eru það ávextir og flöskur. Nútímamyndir eru farnar að sýna annað margt er borið á borð og samhengi hlutanna getur haft merkingu, en það gerðu ekki hinar upprunalegu kyrralífsmyndir. Í bakgrunn var veggur eða léreftstuska. Þessi mynd hér fyrir neðan er því ekki hefðbundin. Til dæmis voru hlutirnir ekki raðaðir fyrir framan málarann heldur googlaðir og prentaðir út til að fara eftir. Sagnalistin er því notuð á þennan hátt að raða saman og setja síðan borgina fyrir aftan. Dísir Reykjavíkur getur þessi mynd heitið. Kóróna, fegurðardís með ilmvatn, varalit og gler ávexti, því hún borðar ekki heldur horfir og dáist að matnum. Skórnir og perlufestin eru elegant en lakkrískonfektið er stóra freistingin sem við glímum öll við. Bakgrunnurinn er Akrafjallið og Skarðsheiðin sem minnir okkur á rómantíkina í tónlistinni. Myndin gæti heitið draumadís landsins., eða draumur landsins. Þannig getur þú gert þína uppstillingu með eða án merkingar. Kyrralífsmyndir eru alltaf elegant og klassik. Alltaf í tísku og eiga sína aðdáendur í nútímanum. Margir listamenn gripu oft í kyrralífsmyndirnar og er hægt að finna þær hjá flestum eldri málurum sem hafa orðið frægir.
10
3. Svart undirlag og teiknað með hvítum lit í pensilinn.
Hér er notaður spaði til að mála með þú velur þann sem þér þykir bestur í hendi. Litirnir mega þá vera orðnir harðir utan á og mjúkir undir á pappadisknum. Við notum ekki neitt til að mýkja litinn . Þetta er góð aðferð þegar verið er að mála yfir aðra mynd. Nota þá svartan Akríl og svamp til að hylja myndina. Hún verður svolítið hrjúf og er það bara betra með sköfunni. Myndin fær líf í litnum. Þetta er unnið blautt í blaut sem segir að við megum blanda litnum á striganum. Þetta verða grófar myndir sem gaman er að vinna með í einum rikk. Hætta ekki fyrr en allt er búið. Láta síðan þorna og lagfæra eitthvað ef þarf. 11
Þessar myndir sýna framgang málverksins. Hlutirnir á borðinu eru málaðir síðast til að málingin smitist sem minnst í bakgrunninn. En það er svo gott að teikna upp með olíulit þá ferðu ekki nær strikinu en svo að þú tekur ekki hvíta litinn með þér. Þessar myndir eru unnar með spaða og tusku til að mála með. Teikna, mála bakgrunn og forgrunn síðast hlutina til þess að smita minnst bakgrunninn.
12
3. Svart undirlag. Við byrjum að mála yfir hvíta strigann með svörtum akríl lit og látum hann þorna.
I.
Þá teiknum við upp með olíukrít eða olíulit. Við teiknum aðeins upp stóru fletina en ekki púnktana eða munstur.
II.
Við málum fjöllin, himininn og þokuna fyrst. Það er gert með þunnum lit í einni umferð blautt í blautt.
III.
Klettarnir eru málaðir með þykkum lit og pensli að stærð eins og þér finnst doppurnar eiga að vera stórar. Þær eru bornar á án þess að koma við þá næstu, þannig að svartur litur er alltaf á milli doppanna.
IV. Hér er hugsað mikið um skugga og ljós og liturinn er mikið blandaður í mörgum núönsum til að fá líf í myndina og hreyfingu.
13
4. Hér er líka málað með svörtum akríl lit á hvíta strigann.
Síðan er teiknað upp með blýanti kaflarnir og
notað til þess málband og reglustiku. I.
Kaflarnir eru málaðir þykkir með lit. Við förum bara eina umferð með kaflana og berin hér fyrir neðan. Þú velur þína liti sem passa vel saman.
II.
Því næst er myndin látin þorna og síðan teiknuð upp með olíukrít og dýrin eins og barnið málað upp.
III. Í þessum myndum er teiknað ofaná bakgrunninn með olíulit. Forgrunnurinn unninn og teikningarnar koma svo í nýrri hugmynd.
14
Í hita leiksins verður allt svo frábært,
þess vegna
er gott að láta verkið til hliðar og kíkja á það útundan sér á meðan verið er að vinna annað verk. Á einhverjum tímapunkti verður verkið gert upp, annað hvort að mála yfir það allt, ekki sleppa góðu pörtunum þeir koma til með að trufla framhaldið, eða laga myndina, til að vinna áfram og gefa henni séns þar til annað kemur í ljós. Ég hafði nokkrar myndir sem ég var ekki fullkomlega ánægð með til hliðar í langan tíma, kannski tvo mánuði. Þá datt mér í hug lausn, þ.e. að mála með bláum lit sem er gegnsær yfir allt. Út úr því komu góðar næturmyndir og undirlagið tók misjafnlega við litnum sem passaði vel. Síðan hélt ég áfram með myndirnar út frá þessum breytingum sem voru jákvæðar. Myndin hefur sinn sköpunarferil og óþarfi að vera óþolinmóður. Þetta voru olíumálverk í þessu tilfelli. Þið þroskið með ykkur eitthvað alveg nýtt. Ég mæli með að heftið verði lesin í gegn áður en þið byrjið á ykkar verki. Hvernig vinnur listamaður? Hver er kveikjan að myndaseríunni? Hvers vegna notar hann olíu í myndverkið en ekki acríl? Eða öfugt. Þessu vil ég reyna að svara.
15
Akríl og olía eru mjög ólík efni.
Olían er lengi að
þorna og hægt er að kaupa efni til þess að fá hana til að þorna hraðar, og einnig til þess að geta málað þunnt, gegnsætt og þykkt. Þessi efni fást í Verkfæralagernum í Smáratorgi. Þangað er gott að fara að leita sér að striga
og öðrum efnum og penslum. Akríl er líka til þar og
trönur. Þegar teikniþjálfunin er fyrir hendi er mál til komið að mála heiminn. Það er hægt að mála akríl úr túpum auðveldlega og skola pensilinn með vatni. Akrílmyndir eru plastkenndari en oft sér maður það ekki. Hér er ég á sýningu með tveimur olíuverktum. Verkið til hægri er málað á svartan grunn með dropatækni. Þessi mynd er tekinn úr Morgunblaðinu sem ég dáðist að. Auðvitað er ekki lengur hægt að sjá það, engin merki lengur um samhengi þar á milli. Myndin til vinstri var teiknuð upp eftir að sjá Máv vera að éta hamborgara sem dottið hafði úr bónuspoka. Bara hreint hugarefni, stundarmynd.
16
Sköpunarþörfin Hvar byrjum við þegar áhuginn hefur vaknað og sköpunar þörfin flæðir um líkamann. Þeir sem vilja mála þurfa að hafa góða þjálfun í teikningu. Ekkert er leiðinlegra en sjá slæma teikningu í málverki. Þá á ég við stífa teikningu og ljót form. Teikningin á að vera rétt. Til þess að losa um er gott að nota t.d. Svarta olíu á mjóan pensil. Halda um skaftið aftarlega og láta litinn renna, með terpentínu, olíu og þurrkefni sem þú átt í krukku með loki. Þú stjórnar pennslinum með því að halda laust aftarlega í skaftið og lærir að einbeita þér að þeirri teikningu sem þú hefur ákveðið í huganum, hvort sem þú notar uppstillingu fyrir framan þig eða ekki. Innri kraftur hefur falleg form og þú getur laðað þau fram á þennan hátt. Það er gott að æfa sig á pappír og hætta ekki fyrr en þú getur málað sem þig langar til. Hægt er að láta þessar línur þorna og mála myndina út frá þeim. Eða hafa þær blautar og mála í formin, án þess að koma við svarta litinn. Það er í lagi að myndin verði ekki eins og ljósmynd. Það gerir málverkið skemmtilegt og frábrugðið ljósmyndinni.
17
Teiknað upp eftir skissu eða annarri mynd. Hér er svartur grunnur og teikningin krítuð upp með olíukrít. Hægt er að gera kafla, frá skissunni og í málverkið. T.D. Að nota einn sinnum einn sentimeter á skissunni og 5 sinnum 5 sentimetra á striganum. Þetta eru ferningar sem þú byrjar á að strika yfir myndina og færir yfir á strigann sem er strikaður með 5 sm millibili. Síðan horfir þú á myndina sem þú ferð eftir og teiknar inn í reitina á strigann. Teikningin er tilbúin þegar allir ritir eru teiknaðir. Það er líka hægt að vaða bara í strigann. Þegar vaðið er í strigann er farið í óvissuferð. Þú sérð verkið fyrir þér í huganum og breytir eftir tilfinningu og reynslu stundarinnar sem verið er að vinna verkið. Þannig vinn ég oftast, þá þarf að stroka út oftar því ekki verða öll verk góð. Maður strokar út með sama lit og er í grunninum. Þá er líka hægt að horfa á myndina sem á að fara eftir og teikna beint upp eftir henni. Það er góð aðferð þegar þú hefur náð færni í að horfa á fyrirmyndina. Hér er dropatæknin notuð. 18
4. Olía eða akríl. Það eru nokkrar myndir sem koma eins út í olíu og akríl. Eins og smáfólkið. Málið með þær er að nota pensla sem eru þverir á oddinn og þunna pensla til að teikna með. Teikningin er klár og þú málar inn í hana eins og litabók með þínum uppáhalds litum.
Þá sést svarti
alltaf á milli litanna. Eins
er
það
með
hinar
myndirnar á síðunni. Þessar myndir eru allar grunnaðar með svartri akrílmálningu og liturinn snertir ekki næsta lit. Akrílliturinn þekur vel úr túpunni og óþarfi að blanda hann frekar.
19
5. Akríl málun
Akrílverkið hér á síðunni er málað á sérstakan
hátt. Þessi aðferð er fyrir lengra komna. Akríl er fljótt að þorna beint úr túbunni. Hægt er að blanda akríl vatni og mála með því þunnu. Það geri ég hér. Þá þarf að kaupa litinn í brúsa og blanda í skyrdollu með jafn miklu vatni eða meira. Þá er hægt að kaupa efni til að lengja þornunartímann. Það hef ég ekki notað, því mikið vatn blandað akríl gerir hann lengur að þorna og má nota litinn í skyrdollunum í marga daga á eftir. Þessi mynd er með gumsi undir og er því svolítið upphleypt. Þessi aðferð tekur á og þarf niðurfall til að taka á móti vatninu sem er skvett á myndina. Vatnið virkar þá eins og pensill, tekur í burtu litinn og eftir stendur liturinn sem vatnið kom ekki á. Þessa aðferð hef ég engan notað nema mig og er hún þess vegna sérstök og þess virði að prófa í réttu húsnæði.
20
Málað er með svampi. Ekki blanda litinn í dollunni heldur í verkinu sjálfu. Takið eftir hvað gulur litur og bleikur smellur inn í það sem fyrir er og skerpir litinn sem er undir. Hann nær að skína. Fyrst er málað með ljósum litum margar umferðir því litunum er blandað saman á striganum með svampinum. Umferðirnar þorna á milli. Blár er notaður síðast. Hann er gegnsær og fer yfir skæra liti. Svartur er ekki notaður nema í undantekningar tilfellum. Svarti getur drepið aðra liti niður sem hann fer yfir. Vatni er skvett á mynd sem er ekki þornuð. Þegar vatni er skvett á myndina er verið að ná ákveðinni áferð eins og í snjóbreiðum til dæmis. Í þessum myndum er notað gums sem undirlag. Þá er teiknað upp með gumsinu með svampi. Þykkt sem á að vera nálægt en þunnt sem á að vera lengra í burtu. Þannig nær maður dýpt í myndflötinn. Þessar myndir voru unnar í sprænu þema. Sungið var við vinnuna og gleðin ríkti. Þegar ég fékk mína fyrstu myndavél notaði ég hana til að taka myndir af sprænum. Nálægðin við sprænuna gerði mig hissa og ný uppgötvun átti sér stað. Svo tært svo bragðgott, svo faqllegur tónn. 21
Sprænurnar sýndust svo stórar við nálæga myndatöku. Það varð upplifun sem var skemmtileg. Sprænumyndirnar voru hugsun þessarar upplifunar. Ég er mjög ánægð með þessar myndir og þær eru allar farnar á góð heimili. Ég sakna þeirra. Þessi aðferð krefst þess að vinna strigann frá grunni. Strekkja striga fyrir akríl og kaupa 100% bómull, strekkja hann á blindramma og bera á hann tvær umferðir að Róblex, fæst hjá Slippfélaginu í Dugguvogi, eða trélími plús vatni og eina af hvítum grunni. Striginn er grófur og tekur vel við litnum. Fékkst í Litalandi í Borgartúninu. Hann strekkist líka vel þar sem vatn herpir bómullarefnið saman og myndflöturinn strekkist. Striginn þarf að vera grófur til að taka við gumsinu og litnum þar ofan á í mörgum umferðum. Ekki sléttur og glansandi eins og við olíumálun. Strigi sem eingögu er ætlaður olíulit krumpast allur og verður ónítur ef vatn kemur á hann. Gumsið þarf að vera þurrt áður en farið er að bera á það akríl málningu. Þessi vinna tekur líkamlega á mann. Það er stundum sem við viljum taka til hendinni og láta reyna á okkur. Þetta er góð leið til þess.
22
Ég nota þurrt sparsl blandað vatni eftir uppskrift á pakkanum. Þegar því er lokið er trélíminu hellt út í 50%...50%. Þá er gott að hraða sér og mála á strigann með svampi. Þykkt sem á að vera nálægt og þunnt í bakgrunninn og sum staðar ekkert t.d. í lygnri gjótu. Ég útbreiddi alla rammana bak við húsið hjá mér í góðu veðri. Þegar grunnurinn var vel þornaður var í lagi að bera gumsið á hann með svampi. Ég vinn alltaf margar myndir í einu. Um það bil 5 til 10. í sama þema og sömu stærð. Þegar gumsið er vel þornað er í lagi að byrja að mála. Gott er að mála þegar andinn kemur yfir mann. Það er sama hvað það er kallað en þín líðan hefur allt að segja. Þegar svokallaður andi er ekki yfir mér, er eins gott að sleppa því að mála, nema þá helst að grunna eða þess háttar undirbúning. Í þannig vinnu hef ég komist að því að ég þarf að mála yfir næsta dag, þess vegna bíð ég núna eftir svokölluðum anda þ.e. Sjálfstraustinu og gleðinni við að fást við viðfangsefnið. Málverkið verður glaðara, en gleðina og fegurðina vil ég sjá í mínum verkum
23
Akríl með gumsi. Mín uppáhalds. Hvers vegna? Ég veit það ekki, mitt mat er oftast tilfinningalegt. Rauði liturinn var tengdur við Ástralíu þar sem dóttir mín var. Sprænan var varfærnislegt líf fram á við, sjálfstætt án skildu. Beljurnar eru hins vegar sprell. Það er líka gott Að leika sér inn á milli og hugsa eingöngu um gleðina í dag. Að hugsa um sölu eiðuleggur sköpunarkraftinn og framvinduna, þroskann í listinni
24
Málarinn kviknaði í mér
Þegar ég horfði á afa minn
mála á vinnustofunni sinni. Þá sá ég galdurinn, leyndardóm listarinnar verða til. Ég byrjaði að velja gjótur sem þema þegar ég fór að mála sjálf Það var mín gjóta, djúp og gegnsæ með mörgum lögum af akríllit og grófum grunni. Eins og vatnið í gjótunni var hugur minn tær og djúpur. Nátturan verður oft kveikjan að mínum verkum. Þá vel ég hluta náttúrunnar sem tengist líðan minni. Ég vinn með sjálfa mig í gegnum náttúruna. Dæmi um þema er í ísjakar, sprænur, sker, frosin ber, pixlar, gjótufólkið,, borið á borð, smáfólkið. Persónulega fynnst mér vera nauðsynlegt til að ná ástríðu í verkið. Hugsun á heimspekilegan hátt um lífið og tilveruna. Viðfangsefnið er það fyrsta sem kveikir í manni og útkoman verður oft í stíl við fyrstu hugmynd sem heillar mann.
25
LITAFRÆÐI Ég geri ráð fyrir að þú hafir öðlast grunn þekkingu í litafræði og held því áfram út frá því. Það er gott að vita hvernig við gerum gráan lit. Svartur blandað með hvítum til að fá gráan notum við ekki. Við notum þann gráa sem fellur inn í okkar málverk. Andstæðu litirnir, gulur / fjólublár, þá kemur út grár sem passar við þessa liti í mynd. Rauður/ grænn og appelsínugulur/blár. Af þessum litum hef ég mest notað bláan við appelsínugulan. Þegar í myndinni er blár og appelsínugulur er þetta fallegt saman. Þessa gráu blöndun er líka hægt að nota sem svartan lit. Grái liturinn er blandaður með hvítum til þess að ná réttri tónhæð.
Hér er ekki notaður grár en rauður og okkurgulur í andlitslit. Blandað með hvítu í rétta tónhæð.
26
Það vantar brúnan lit í litahringinn. Þú blandar
þremur
litum
saman
gulum/
rauðum/bláum í þeim hlutföllum sem þú vilt fá út. Síða má lýsa með hvítum eða gulum. Okkurgulur er ekki í hringnum en hann er góður með rauðum til að ná líkamslit, andlitslit. Hlutföllin eru eins og þú vilt ná og blanda má blönduna með hvítum eða bláum í skugga. Skuggi er ekki málaður með svörtum heldur gagnstæðum lit. Rautt epli hefur grænan skugga. Svartur er lítið notaður nema sér eða í pensilinn til að teikna. Það er gott að eiga grunnlitina , en auk þess hvítan, svartan og okurgulan sienabrúnan, prussian bláan, ceraclin bláan, paypersgráan, appelsínugulan og grænan. Margir fjólurauðir eru fallegir og það er alger lúxus að eignast þá fyrir smá effektana. Annars finnur þú þína litapallettu og velur þá liti sem þér líkar og sleppur hinum. Hér er teiknað með hvítum í forgrunninn en svörtum í bakgrunninn. Sterkir litir fremst og bláir aftast til að ná fram fjarlægð.
27
Myndbygging
Myndbyggingu er erfitt að kenna því hún verður
hluti af þér sjálfum þegar þú öðlast þjálfun. Ég vil bara segja þér að ímynda þér vega salt. Þú villt jafnvægi á vegasaltið eins og í myndina. Ef þú raðar mörgum appelsínum í eitt hornið þá þarftu að setja eitthvað í hitt hornið. Þá geturðu notað sterkari lit og bara eina appelsínu. Litur hjálpar í myndbyggingunni. Í svart hvítu myndunum gildir bara vegasaltið, en lituðu myndunum þarf styrkleiki litarins að vera með í vega saltinu. Sumir hafa þetta í sér og ekkert mál aðrir þurfa að hugsa meira um jafnvægið. Í dag er allt í tísku og ójafnvægi er þar á meðal. Það hef ég ekki unnið með. Frumformin, hringur, þvíhyrningur og ferningur eru klassísk form í myndbyggingu. Þá staðsetur þú hlutina í horn formanna eða allan hringinn. Fimm ktrókudílar á móti einum trúð sem er í miðjunni. Hann snýr þannig að hann vísar í auða svæðið. Ef hann snéri í hina áttina. Þyrfti hann að vera upp við hægri kantinn.
28
Strigi stekktur á blindramma. I.
Blindraminn þarf að vera með rétt horn. Gott er að mæla það við borðhorn.
II.
Striginn klipptur í rétta stærð, áætlað er 4 sm. Í heftin.
III. Striginn er settur með rönguna upp og blindramman ofan á. IV. Öflug heftibyssa ef við ætlum að hefta marga striga. Rafmagns byssa með 0,4 sm hefti í henni V.
Fyrst strekkjum við hliðarnar móti hvorri annarri síðan gagnstæðar hliðar. Þetta á að vera eins stíft og þið ráðið við.
VI. Hornin eru brotin saman að lokum og heft niður.
Nú til dags er eiginlega óþarfi að strekkja fyrir olíulitinn, það eru til svo góðir strigar í Verkfæralagernum. En fyrir akrílinn eins og ég nota hann er gott að vinna strigann frá grunni. Hefta ógrunnaðan strigann og grunna fyrst með lími eða Róblex og grunna síðan. Þar næst gumsa og byrja þá að mála. Gott er að halda uppá litlu stykkin sem þú hamrar í hornin og setur þau samviskusaman í hornin. Gott er að hamra í hornin í vinnunni ef striginn ætlar að slakkna.
29
Ég hef málað langan feril
og verið farsæl og haldið margar
einkasýningar á mínum ferli. Þegar þetta er skrifað er ég orðin sextug og nýr kafli tekur við. Ferill minn hefur verið farsæll og margir notið minna verka. Síðasta verkefni mitt voru frosin ber. Í þunglyndi er ekki hægt að mála því þá er striginn í ósamræmi í litum og formi. Eins og engin þekking er fyrir hendi. Krafturinn er svo mikill í maníunni að ég gleymi mér við vinnuna og missi tímaskinið. Þessi mynd er unnin með akríl og gumsi. Hvíti liturinn er áberandi og unnin síðast í ferlinu. Þetta er stór mynd eins og allar akrílmyndirnar. Ég hef reynt að mála á hverjum degi en það borgar sig ekki fyrir mig. Við erum misjöfn og það hentar minni típu að bíða eftir andanum. Andi minn er krafturinn. Ég bý til kraftmikil verk því ég er kraftmikil á meðan. Þannig er það bara fyrir marga tilfinningamálara. Dagsformið hefurað segja. Gleði og sjálfsvissa hjálpar til við vinnuna. 30
Stærðin
á
striganum
Stærðin á
striganum skiptir máli. Þegar þú hefur gert þér grein fyrir hvernig mynd þig langar til að mála, er hægt að velja striga. Ég er farin að kaupa Söru rammana í Verkfæralagernum í Smáratorgi. Maður stendur við stóru rammana en getur setið við A4 stærðina. Litlu verkin verða oft of stíf nema sé notuð teikningin sem ég nefndi fyrir ofan. Teiknað með pensli. A4 stærðin er auðvitað í lagi en hún veitir þér ekki frelsi. Það skiptir máli að nota sömu stærð í nokkurn tíma. Svo sem fimm til tíu verk. Maður fær tilfinningu fyrir stærðinni og á auðveldara með myndbygginguna.
Olía eða akríl
Margir sjá ekki muninn á þessum tveim verkum,
og það er í lagi. Olía á striga hefur alltaf þótt fínni, svo það má helst ekki nefna það að myndverkið er unnið með akríl. Mín bestu verk eru unnin með akríl og gumsi, það er mín sérstaða sem aðrir hafa ekki náð. Ég veit um engan með þessa tækni. Hún er fengin frá góðum og vel metnum málara sem hefur yfirgefið þennan heim. Þessi maður stappaði í mig stálinu og ég blómstraði í návist hans. Þannig er tilfinningalífið okkar. Dagsformið segir til sín sem tilfinningaveru. 31
Claud Monet (1840-1926)
Heimili hans
er rétt fyrir utan París. Þar er hægt að ganga um garðinn hans og sjá þá staði sem hann málaði. Þar andar maður að sér málverkinu og sér fallegu eitt
brýrnar hans yfir vötnin. Þetta er
af
stóru
upplifununum.
MOMA
safnið í New York hafði eina mjög stóra mynd uppi með Claud Monet af vatnaliljunum.
Þeir áttu líka mikið af frægum verkum eins og Rokoch. Þegar hann spurði aðstoðarmanninn sinn mjög spenntur, hvað sérðu? þá sagði aðstoðarmaðurinn rautt. Málverkið var rautt með einum rauðum ferning. bjóst hann við að heyra allar sem hann lagði í verkið.
32
Auðvita
þær tilfinningar
Hvað rekur listamanninn áfram
Áhugi minn af lista-
verkabókum, listamönnum. Impressioistarnir heilluðu mig. Að geta ferðast og séð þau málverk sem hafa heillað í bókum er sérstök tilfinning. Tíminn stendur í stað og þú getur ekki verið nógu lengi
að horfa á
verkin.
Edvard 1944)
Munch
(1863-
var norskur málari
og var
fyrsta upplifun mín. Safnið hans í Osló er stór upplifun. Munch var veikur en vildi ekki taka lyfin sín því þá fannst honum hann ekki geta málað en Munch málaði mikið út frá tilfinningum símum. Christian Krog danskur málari var með honum á vinnustofu og hann varð hrifinn af þessum nátturunnanda. Munch keypti sína fyrstu kodak myndavél 1902. Þegar hann dó 1944 skildi hann eftir sog 1.150 málverk 17.800 grafík prent og 4.500 vatnslita myndir og teikningar ásamt 13 skúlptúrum. Öskrið sem varð mjög vinsælt málaði hann 1893.
33
Henri de Toulouse Lautrec (18641901) götin
oft
Hann notar fáa liti þegar hann gerir plaá
brúnann
pappír.
Svartan,
brúnann,
appelsínugulan og hvítann. Plagötin hans voru mjög vinsæl. Hann teiknaði líka upp skissur og málaði í Rauðu Millunni. Þar sem voru kabarettar og gleðikonur að bíða eftir kúnnum. Hann var dvergur og í kvikmyndinni Rauðu myllunni er þessu vel lýst. Safnið Mursée D'orsay er safn í París, gömul lestrarstöð, með mest af myndum eftir hann sem ég hef séð. Rauða millan er enn á sínum stað með kaparet. Hann dó 66 ára af alkahólisma og sifelis.
34
Vincent van Gogh
(1853-1890) var hollenskur málari og sá
besti í því landi eftir Rembrant. Hann fór til Bretlands 1873 og líkaði þeirra menning vel. Safn hans sem er í Amsterdam kom mér á óvart og þá sérstaklega sjálfsmyndirnar hans. Allar jafn stórar og frá sama sjónarhorni, en með mismunandi tækni og litum. Þetta var mikill fjöldi mynda Þetta var frábært safn. Hann seldi enga mynd,meðan hann lifði, nema eina til bróður sins sem var að styrkja hann. Hann var með
geðhvörf og sést það í gegnum málverkin hans Þegar hann kom til Parísar til bróður síns sá hann fyrst impressionistana og stundaði Henri de Toulouse Lautrec og Pissarro og aðra. 1889 fór hann á spítala vegna þunglyndis og sama ár var honum boðið að sýna í Brussel. Þangað sendi hann 6 myndir. Hann dó 37 ára að aldri í fangi yngri bróður sins eftir sjálfsvíg. Hann skildi eftir sig 2.100 verk 860 olíumálverk o 1.300 vatnslitamyndir og teikningar.
35
Egon Shile ( 1890—1918)
Var
austurískur málari og í Vín er stórt safn með honum. Teikningarnar hans heilluðu mig mest. Myndirnar hans eru hráar og kaldar. Það hefur ef til vill gert hann að þeim meistara sem hann er. Gustaf Klint hafði mikil áhrif á hann, en hann var líka austurrískur. Egon Shile fór í akademíuna 16 ára gamall en hætti 19 ára. Hann hreyfst að kenningum Freuds og varð málari fyrirsæta og erótíkur.
Gustaf Klimt. (18621918) var austurískur málari. Hann var í akademíunni til 21 árs aldurs. Kossinn málverkið hans var málað 1907-1908. 36
Mesta safn impressionista fann ég í New York. Frábær upplifun. Þú finnur þína meistara með því að skoða bækur. Það er margt til á bókasöfnum, bókabúðum og internetinu. Hrifning hvar sem hún kemur er hvati til að mála. Þú getur hrifist af umhverfinu í kringum þig, fólkinu í kringum þig. Smáhlutunum og víðáttunni. Njóttu og tjáðu upplifunina sem þú finnur fyrir. Ein upplifun er oft efni í margar myndir unnar á ólíkan hátt. Þessi háttur er líkur og ljóðagerð og er þess vegna ljóðrænn. Það eru margar aðkomur að sköpun. Allar eru þær jafn réttháar og spennandi fyrir listamanninn. Hér hef ég lýst minni sköpun. Svona skrif eru aldrei tæmandi en ég reyni að bæta úr því með lestur og kennslu þessarar bókar.
37
38