Ársskýrsla 2009

Page 1

ÁRSSKÝRSLA 2009 Golfþing haldið í Reykjavík 21. nóvember


Dagskrá Golfþing í Reykjavík Íþrótta- og sýningarhöllin í Laugardal Laugardagur 21. Nóvember Kl. 8:45

Kjörbréf afhent starfsmönnum þingsins.

Kl. 9:00

Gengið til aðalfundarstarfa samkvæmt lögum GSÍ.

1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12.

Þingsetning Innganga nýrra golfklúbba Kosning í þriggja manna í kjörbréfanefnd, nefndin skal yfirfara kjörbréf og gera grein fyrir störfum sínum áður en 7. dagskrárliður hefst. Kosning fyrsta og annars þingforseta. Kosning fyrsta og annars þingritara. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga GSÍ Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins. Kosning kjörnefndar og skipað í starfsnefndir þingsins. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfstímabil, ásamt tillögum um félagagjöld. Lagðar fram lagabreytingar sem stjórninni hafa borist með löglegum fyrirvara. Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar.

Kl. 11:00

Nefndir starfa.

Kl. 11:30

Hádegisverður framreiddur (nefndir starfa í þinghlé).

Kl. 14:30

Þingstörfum fram haldið samkvæmt dagskrá.

13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20.

Kl. 20:00

Nefndaálit og tillögur. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og framkomin mál. Önnur mál. Álit kjörnefndar. Kosning stjórnar sbr. 9. gr. Kosning tveggja endurskoðenda og tveggja til vara. Kosning þrigga manna og þriggja til vara í golfdómstól. Sama fjölda í áhugamennskunefnd, aganefnd og forgjafarnefnd. Kosning fulltrúa og varafulltrúa GSÍ á Íþróttaþing ÍSÍ. Þingslit.

Sameiginlegur kvöldverður þingfulltrúa á Hótel Sögu.


Golfsamband Íslands... Vinnur að framgangi golfíþróttarinnar og útbreiðslu á Íslandi ... rekur öfluga afreksstefnu og styður klúbbana við þjálfun og uppbyggingu afrekskylfinga. ... gefur út tímaritið Golf á Íslandi og handbók kylfingsins. ... rekur og heldur utan hreyfingarinnar, www.golf.is.

um

... býður uppá miðlægt tölvukerfi fyrir klúbbastjórnendur og hinn almenna kylfing. Stuðlar að mótahaldi um land allt ... býður uppá mótaröð fyrir alla aldurshópa. ... heldur Íslandsmót í höggleik og holukeppni í öllum aldursflokkum.

tölvukerfi

... kynnir golf í skólum, fjölmiðlum og annarstaðar þar sem því verður við komið. ... er ráðgefandi þegar stofnaður er golfklúbbur eða byggður er golfvöllur.

... heldur Íslandsmót í sveitakeppni fyrir alla aldursflokka. ... er ráðgefandi þegar kemur að uppsetningu valla fyrir mót og almenna golfvallarumhirðu og styður SÍGÍ sem eru samtök golfvallastarfsmanna.

... veitir allar helstu uplýsingar um tölfræði golfsins.

Annast erlend samskipti ... styður við afreksmenn og sendir þá á alþjóðleg mót.

Samræmir leikreglur og reglur um forgjöf ... þýðir og staðfærir forgjafar,- móta- og keppendareglur ásamt golfreglum í samræmi við reglur R&A og EGA.

... styður áhugamenn á leið þeirra til atvinnumennsku.

... sér um að allir golfvellir landsins séu metnir samkvæmt vallarmatskerfi EGA. ... heldur héraðs- og landsdómaranámskeið.

... skipuleggur alþjóðlega viðburði sem haldnir eru hér á landi. ... styður Golf Iceland sem leggur áherslu á fjölgun ferðamanna í golf.

Efnisyfirlit

05

Skýrsla stjórnar

13

Ársreikningur

21

Rekstraráætlun

26

Skýrsla PGA

28

Landsliðsverkefni

32

Úrslit úr mótum



Skýrsla stjórnar Á golfþingi sem haldið var í húsakynnum Laugardagshallar í Laugardal 17. nóvember 2007 voru eftirtaldir kosnir í stjórn sambandsins og skiptu þeir með sér verkum á fyrsta stjórnarfundi:

Aganefnd: Sigurður Geirsson Jónatan Ólafsson Guðbrandur Sigurbergsson Varamenn í aganefnd: Reynir Þorsteinsson, Ríkarður Pálsson og Páll Kristjánsson Forgjafarnefnd: Guðmundur Ólafsson Ágúst Geirsson Guðmundur Magnússon Varamenn í forgjafarnefnd: Anna Björk Birgisdóttir og Baldur Gunnarsson Dómstóll GSÍ: Hjörleifur Kvaran Tryggvi Guðmundsson Guðmundur Sophusson

Forseti: Jón Ásgeir Eyjólfsson NK Stjórn: Róbert Svavarsson GS varaforseti Haukur Örn Birgisson GO, meðstj. Eggert Sverrisson GR gjaldkeri Guðmundur Ólafsson GKG meðstj. Guðmundur Friðrik Sigurðsson GK meðstj. Kristín Magnúsdóttir GR ritari

Áfrýjunardómstóll GSÍ: Sveinn Snorrason Kristján Einarsson Þorsteinn Sv. Stefánsson Varadómarar: Helgi Bragason, Þórir Bragason og Sigurður Geirsson.

Endurskoðendur: Stefán Svavarsson Guðmundur Frímannsson. Varaendurskoðendur: Hallgrímur Þorsteinsson og Ómar Kristjánsson

Starfstímabil þessarar stjórnar eru árin 2008 og 2009. Búið er að gera grein fyrir starfsárinu 2008 í skýslu til formannafundar sem jafnframt var dreift til allra klúbba og er aðgengileg á netinu og mun ég því aðeins gera þessu starfsári 2009 skil, en það er 67. starfsár golfsambandsins. Golfsambandið var stofnað 1942 af Golfklúbbi Reykjavíkur, Golfklúbbi Akureyrar og Golfklúbbi Vestmannaeyja og var golfsambandið fyrsta sérsambandið innan Íþrótta og Ólympíusambands Íslands. Í dag eru 65 golfklúbbar aðilar að sambandinu og hafa aldrei verið fleiri. Frá síðasta þingi hafa Golfklúbburinn Skrifla, Golfklúbbur Vopnafjarðar, Golfklúbburinn Lundur og Golfklúbburinn Tuddi gengið í sambandið og bjóðum við þá velkomna í hópinn. Meðlimir þeirra klúbba sem aðild hafa að sambandinu voru 15.529 þann 1. júlí s.l.

Áhugamennskuefnd: Georg Tryggvason Örn Höskuldsson Gísli Guðni Hall Varamenn í áhugamennskunefnd: Hannes Guðmundsson og Júlíus Jónsson

Ég vil byrja á því að bjóða alla þingfulltrúa velkomna á þing Golfsambandssins sem er haldið í Íþrótta og Sýningarhöllinni hér í Laugardal. Boðað er til golfþings annað hvert ár en formannafundur haldinn árið á milli. Sá siður hefur skapast að halda golfþingið hér á

Varastjórn: Gunnar Gunnarsson GV Ómar Halldórsson GA Theódór Kristjánsson GKj Varastjórnarmenn sátu alla stjórnarfundi og tóku fullan þátt í fundarstörfum. Það sem er af þessu kjörtímabili hefur stjórnin haldið 24 reglulega fundi auk þess hefur stjórn skipað nokkrar starfsnefndir stjórnar sem fundað hafa á tímabilinu. Önnur embætti kosinn á Golfþing:

Ársskýrsla 2009 - Síða 5


Skýrsla stjórnar Reykjavíkursvæðinu en formannafundinn á landsbyggðinni. Reyndar var meiningin að halda fundinn í fyrra á Austurlandi en vegna ástandsins í þjóðfélaginu á síðasta ári var horfið frá þeirri ákvörðun. Þeirra tími kemur þó síðar. Golfsumarið 2009 var æði sérstakt. Það einkenndist af nokkrum atriðum. Í fyrsta lagi var veðurfar með eindæmum gott hér sunnanlands og þó að það hafi vorað seint fyrir norðan þá verður að telja að þetta hafi verið þegar á heildina er litið eitt besta sumar veðurfarslega í manna minnum. Annað atriði sem er athyglisvert er fjölgun kyfinga og fjölgun leikinna hringja á golfvöllum landsins. Víða var efitt að komast að og þurfti að bóka sig með fyrirvara til þess að fá rástíma. Svo mikið var leikið á nokkrum völlum að vallarstjórar töluðu um álagsmeiðsli á golfvöllum sínum. Hins vegar dró mikið úr golfferðum til útlanda og þó að ferðafrömuðir hafi talað um fullbókaðar ferðir þá má telja að framboðið hafi verið miklu minna eða allt að þrisvar sinnum minna. Þegar við reynum að gera okkur grein fyrir vinsældum íþróttarinnar og að hve margir leiki golf er ekki úr vegi að leggja saman þá sem eru meðlimir í golfklúbbum annars vegar og hins vegar þá sem svara í lífsviðhorfskönnun Capacent, en þar kemur fram að þeir sem svara spurningunni um hversu oft þeir fara í golf árlega eru rúmlega 35 þúsund íslendingar sem fara 5 sinnum eða oftar í golf á ári, eða rúmlega tíundi hluti þjóðarinnar. Ef þessi niðurstaða væri notuð í samantekt yfir lykiltölur frá Evrópu værum við á toppnum. Þetta er með því hæðsta sem gerist í heiminum og segir okkur töluvert um vinsældir íþróttarinnar. Þegar við berum okkur saman við aðrar þjóðir hvað þetta snertir ber að hafa í huga eftirfarandi: Hið stutta sumar okkar gefur ekki möguleika nema á 5-6 mánaða tímabili miðað við margar aðrar þjóðir sem geta leikið mestan hluta ársins. Hins vegar vegum við töluvert upp á við þegar við tökum í reikninginn langa sumardaga með ómældri birtu allan sólarhringinn. Það er allavega ljóst að sjaldan eða aldrei hafa verið leiknir eins margir golfhringir á einu ári eins og í sumar hér á landi. Þriðja atriðið sem hafði sérstöðu í ár var rekstur golfklúbbanna og sambandsins. Hin efnahagslega dýfa sem bankahrunið leiddi af

Síða 6 - Ársskýrsla 2009

sér skapaði erfiðleika í rekstri á margan hátt. Stuðningur við starfð varð allt erfiðara og brotthvarf aðalstuðningsaðila okkar kallaði á endurskoðun og endurmat á starfssemi okkar. Öflun auglýsinga í miðlum okkar varð erfiðari og tregari svo og öll liðveisla. Ekki svo að menn hefðu misst áhugann á því að styðja okkur heldur var hér um keðjuverkun að ræða. Til að mæta þessari óvæntu tekjuskerðingu var ákveðið að skera mikið niður í starfsemi sambandsins og því miður varð afrekssviðið fyrir mesta niðurskurðinum og var hætt við æfingaferðir og þátttaka í nokkrum mótum erlendis á árinu 2009. Jafnframt var miklu aðhaldi beitt í rekstri sambandsins og útgjöld til ýmissa þátta dregin saman þó með því markmiði að þjónusta við klúbbanna og hinn almenna kylfing yrði með svipuðum hætti og áður. Ég sagði í skýrslu minni til ykkar á formannafundi að við vissum ekki hvenær botninum væri náð og hvenær fótfesta og viðspyrna væri raunhæf. Satt best að segja vitum við það ekki ennþá. Við getum í besta falli vonað. Við höldum áfram vonum hið besta og gerum gott úr því sem við höfum. En þetta góðir þingfulltrúar þekkið þið af eigin raun því allir búa við þetta ástand. Þrátt fyrir ytri áföll og mikinn samdrátt þá hefur margt verið gert á vettvangi sambandsins og mun ég nú gera grein fyrir þeim helstu verkefnum sem við höfum unnið að á tímabilinu. Forgjafar og vallarmatsmál Búið er að innleiða að fullu EGA forgjafarkerfið og allar þær vinnslur sem kerfið gerir kröfur um. Þannig er árleg endurskoðun forgjafar reiknuð á alla kylfinga í sambandinu í samræmi við kröfur EGA og öll mót sem haldin eru á vegum klúbbanna og GSÍ eru reiknuð út frá CSA sem tekur tillit til aðstæðna á hverjum tíma. Einungs örfá golfsambönd hafa tekið allar aðgerðir EGA forgjafarkerfisins í notkun en þar sem forgjafarútreikningur hér á landi er unnin í tölvukerfi sambandsins, golf.is og samræmd yfir landið, hefur tekist að koma þessu á. Jafnhliða upptöku á árlegri endurskoðun forgjafar og CSA útreikningi á opin mót, er nú búið að endurmeta flesta golfvelli landsins og


Skýrsla stjórnar reglulegt endurmat skipulagt. Í gögnum ykkar getið þið fundið upplýsingar frá Forgjafarnefnd, þar sem gerð er grein fyrir stöðu vallarmatsmála. Því má segja að forgjafarkerfið hér á landi sé orðið mjög þróað miðað við þær forsendur sem lagðar eru til grundvallar kerfinu. Þá eru til á einum stað gögn um alla æfingahringi kylfinga á Íslandi frá árinu 2000 auk þess sem upplýsingar úr öllum mótum frá því 2000 er að finna í gagnagrunni golfsambandsins. Afreksmál Þrátt fyrir erfitt ár hvað varðar styrktaraðila eins og komið hefur fram hefur áhersla verið lögð á að senda keppendur frá GSÍ í hefðbundin verkefni. Þannig var karlalandsliðið sent til Wales til keppni í Evrópukeppni liða og kvennalandsliðið sent til keppni í Slóveníu. Árangur karlaliðsins var ágætur, enduðu í 12. sæti á mótinu eða um miðjan hóp. Kvennaliðið stóð ekki undir væntingum og endaði í C-riðli. Þá sendum við 4 unglinga á Evrópumót unglinga (European Young Masters) í París og voru árangur þeirra þokkalegur, voru um miðjan hóp og í landskeppninni varð Ísland í 16. sæti af 26 þjóðum. Í ágúst tóku 5 kylfingar þátt í Opna Finnska meistaramótinu og komust þeir allir í gegnum niðurskurðinn á mótinu. Hlynur Geir Hjartarson og Eygló Myrra Óskarsdóttir stóðu sig síðan mjög vel á lokahringnum og enduðu bæði í 4. sæti. Þess má geta að mjög sterkir áhugakylfingar frá norðurlöndunum tóku þátt í mótinu. Þrátt fyrir að Staffan Johansson hafi lokið störfum sem landsliðsþjálfari í byrjun ársins hefur hann verið atvinnukylfingum okkar til halds og trausts við undirbúning verkefna erlendis. Þannig hefur Birgir Leifur Hafþórsson og Stefán Már Stefánsson æft undir handleiðslu hans á árinu auk þess sem hann hefur veitt kylfingum okkar góð ráð. Ragnar Ólafsson var skipaður landsliðseinvaldur í byrjun árs og hefur hann einnig haldið utan um æfingar fyrir afrekshópa GSÍ. Þannig var ekkert slakað á í æfingum síðasta vetur, heldur þvert á móti var sú góða æfingaaðstaða sem byggð hefur verið upp nýtt til æfinga auk þess sem GSÍ var með tíma í Reiðhöllinni í Víðidal.

Mótamál Nokkuð miklar breytingar urðu á mótahaldi GSÍ við það að missa helsta stuðningsaðila sambandsins á árinu og hefur umgjörðin verið minni vegna þessa. Þó var brytað uppá þeirri nýung að sýna frá Íslensku mótaröðinni á RÚV í sumar og gefa þannig fleirum tækifæri á að fylgjast með þeim bestu við keppni. Íslandsmótið í höggleik fór fram á Grafarholtsvelli og tókst það mjög vel. Glæsileg umgjörð var um mótið á vegum Golfklúbbs Reykjavíkur og jafnframt var sýnt frá mótinu á RÚV í beinni dagskrá. Samkvæmt mælingum var um 27% uppsafnað áhorf á mótið og sýnir það áhorf, sannanlega hversu golfíþróttin er vinsæl. Mótið var gríðarlega spennandi í bæði karla-og kvennaflokki og réðust úrslit ekki fyrr en á lokaholunni í kvennaflokki þar sem Valdís Þóra Jónsdóttir GL sigraði, átti eitt högg á Signýu Arnórsdóttur GK. Í karlaflokki varð spennan næstum óbærileg, þar sem Ólafur Björn Loftsson NK náði að vinna upp 4 högga forystu Stefáns Más Stefánssonar GR á síðustu 4 holunum og sigra síðan í þriggja holu umspili. Magnaður endir á frábæru móti. Fjölmargir áhorfendur mætu í Grafarholtið til að fylgjast með mótinu og var reynt að gera aðkomu þeirra eins aðgengilega og hægt var, m.a. var útbúinn sæti fyrir þá við 16, 17. og 18. holu auk þess sem stór skorspjöld voru sýnileg við 18. flötina.

Unglingamótin hafa verið vel sótt í sumar og var fullbókað í þau öll. Af því tilefni ákvað GSÍ að reka sérstaka mótaröð fyrir þá sem eru að byrja í golfi og eru ekki komnir með nógu lága forgjöf til að keppa á aðalmótaröðinni og nefnist hún Áskorendamótaröðin. Mjög góð þátttaka hefur verið á þeirri mótaröð og margir framtíðarkylfingar stigið þar sín fyrstu skref. Þá

Ársskýrsla 2009 - Síða 7


Skýrsla stjórnar var í sumar byrjað með mótaröð 12 ára og yngri þar sem yngstu kylfingarnar okkar keppa á fremri teigum en hefðbundið er og hefur hún verið vel sótt. Sveitakeppnir GSÍ hafa líka verið vel sóttar í ár og fyrirséð að við þurfum að bæta við 5. deildinni fyrir næsta vetur til að svara þeirri eftirspurn sem er framkomin varðandi þátttöku í sveitakeppnunum. Að þessu sinni fór 1. deild karla fram á Jaðarsvelli á Akureyri og var mótið mjög spennandi og skemmtilegt. Golfklúbbur Akureyrar hefur staðið í miklum breytingum á vellinum undanfarin ár og er hann nú að verða mjög glæsilegur. Útgáfumál Golfsambandið hefur þrátt fyrir erfitt árferði í auglýsingamálum haldið áfram að gefa út tímaritið Golf á Íslandi og er því dreift til allra félagsbundina kylfinga í klúbbum. Það er til 15.529 kylfinga, en eitt blað er sent á hvert golfheimili. GSÍ er eina sérsambandið sem veitir iðkendum sínum slíka þjónustu, en í blaðinu er komið fram fréttum og tilkynningum til kylfinga auk þess sem blaðið gefur okkur tækifæri til að kynna nýja velli og fjalla um það sem helst er á döfinni hjá klúbbunum og hjá golfsambandinu. Þá hefur GSÍ yfir að ráða tölvukerfi sem sniðið er að þörfum kylfinga þannig að kylfingar eru daglega í beinni snertingu við sambandið þegar þeir panta sér rástíma, skrá sig í mót eða fylgjast með forgöfinni sinni og því auðvelt að koma skilaboðum til kyflinga í gegnum þann miðil. Golf.is er vinsælasti íþróttavefur landsins yfir sumartímann og voru flettingar á fjórðu milljón bara í júlímánuði. Golfsambandið gaf út Handbók kylfingsins í samstarfi við GolfIceland og Ferðamálasamtök Íslands, þar sem allir golfvellir á Íslandi eru kynntir og er handbókinni dreift endurgjaldslaust á upplýsingamiðstöðum, golfklúbbum og hjá ferðaþjónustufyrirtækjum. Bókin er ætluð að vekja athygli á hversu víða er hægt að spila golf á Íslandi og hvetja innlenda jafnt sem erlenda ferðamenn til að veita golfvöllunum athygli. Tölvukerfið Golf.is er helsta stjórntæki klúbbanna til að ráðstafa rástímum og setja upp og reka mót og

Síða 8 - Ársskýrsla 2009

er rekstur kerfisins í höndum skrifstofu GSÍ. Reksturinn hefur gengið vel í sumar og þrátt fyrir mikið álag hefur hann uppfyllt allar þær kröfur sem til hans eru gerðar. Helsta vandamálið er gríðarlegt álag á golfvöllunum þar sem miklu fleiri kylfingar hafa óskað eftir rástímum en pláss er fyrir. Þannig hafa rástímar á völlunum hér á höfuðborgarsvæðinu bókast á 3-5 mínutum þegar mest var og segir það okkur að nokkur hundruð kylfinga eru á vefnum á hverjum tíma. Fjölgun iðkenda Á síðasta formannafundi lagði stjórn GSÍ fram fjárhagsáætlun þar sem gert var ráð fyrir fækkun iðkenda innan sambandsins á árinu 2009. Niðurstaðan hefur verið önnur, kylfingum hefur fjölgað um tæplega 750 og eru nú komnir yfir 15 þúsund. Þá hefur klúbbunum einnig verið að fjölga og eru þeir orðnir 65 og eigum við von á fleiri umsóknum á næstu misserum þannig að stutt verður í að þeir verða orðnir 70 og verða þeir örugglega orðnir svo margir á 70 ára afmæli sambandsins 2012. Stundum er sagt að afleiðingar kreppu komi ekki fram fyrr en að 1218 mánuðum frá því að hún hefst og því verði það ekki fyrr en í sumar sem iðkendum muni fækka í hreyfingunni. Við vonum að svo verði ekki og er mikilvægt að allir taki saman höndum um það bæta aðgang og auðvelda kylfingum þátttöku í starfinu þrátt fyrir lækkaðan kaupmátt og aukið atvinnuleysi.

Golfsýning/útbreiðsla GSÍ tók þátt í golfsýningu í vor sem sett var upp í Laugardalshöllinni og komu um 7-8 þúsund gestir á sýninguna þar sem kynnt var starfsemi sambandsins og klúbbanna. Sérstök áhersla var lögð á barna-og unglingagolf og settar upp sérstakar brautir fyrir þau. Þá kynntu


Skýrsla stjórnar golfbúðirnar nýjustu tæki og tól fyrir kylfinga auk þess sem ferðaskrifstofur kynntu golfferðir fyrir hinn almenna kylfing. Sú ákvörðun stjórnar GSÍ að færa sýningar af Íslensku mótaröðinni á RÚV var liður í að gera golfíþróttina sýnilegri og aðgengilegri fyrir almenning og þannig stuðla að auknum áhuga á íþróttinni. Það hefur skilað góðum árangri varðandi nýja kylfinga og hefur orðið aukning í klúbbnun þvert ofan í spár um annað eins og komið hefur fram. Barna-og unglinganámskeið hafa verið gríðarlega vel sótt í klúbbunum og æfingaaðstaðaa klúbbanna nýst vel fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna. Þjálfunarmál og dómaramál Mikil gróska hefur verið í fræðslumálum í golfhreyfingunni og voru 10 nýjir golfkennarar útskrifaðir með full réttindi í lok júlí. Markvisst hefur verið unnið að uppbyggingu golfkennaranámsins og hafa kennarar komið víða að til að kenna nemendum í skólanum. Golfkennaranámið hefur verið tekið út af Evrópska PGA (European Profesional Golf Assosiation) og var formaður menntanefndar EPGA hér á landi við útkskrift nú í sumar. Í ræðu sem hann hélt við það tilefni gaf hann út þá yfirlýsingu að námið hér á landi stæðist að fullu þær kröfur sem gerðar væru á vegum EPGA og hann myndi í haust á fundi samtakanna leggja til að skólinn á Íslandi fengi alþjóðlega viðurkenningu. Það er gríðarlega mikil viðurkenning fyrir það starf sem unnið hefur verið í uppbyggingu námsins, en skólinn hefur verið rekinn af PGA á Íslandi í samstarfi við GSÍ. Skólastjóri golfkennaraskólans og frumkvöðul er Arnar Már Ólafsson sem verið hefur unglingalandsliðsþjálfari GSÍ undanfarin ár. Í síðustu viku fékk PGA á Íslandi síðan formlega viðurkenningu EPGA og er nám golfkennara hér á landi nú viðurkennt um alla Evrópu. Þá hefur mikil gróska verið námskeiðshaldi á vegum GSÍ og rúmlega 150 kylfingar sótt dómaranámskeið hjá sambandinu. Þessi aðsókn kom okkur nokkuð á óvart en námskeiðin voru bæði hér á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landsbyggðinni. Þessi fjöldi dómara auðveldar klúbbunum framkvæmd móta og hefur jákvæð áhrif á félagsstarf klúbbanna, þar sem félagarnir

tengjast starfsemi klúbbanna með öðrum hætti en áður. Nýir golfvellir Þrátt fyrir fjárhagskreppu eru áætlanir um byggingu nýrra golfvalla. Mikil þörf er orðin á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýja velli en ásóknin á golfvellina á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gríðarleg. Þannig hafa sumir vellir verið bókaðir frá klukkan sjö að morgni fram til klukkan átta að kvöldi. Klúbbarnir hafa ásamt GSÍ reynt að mæta þessari miklu eftirspurn með því að leggja áherslu á að kylfingar spili hratt og þannig náist betri nýting á golfvellinum. Leikhraði er alltaf til umræðu innan hreyfingarinnar og því nauðsynlegt að leggja ríka áherslu á að halda honum.

Við höfum verið opinn fyrir nýjum rekstrarformum við rekstur golfvalla og gjarnan litið til nágrannalanda okkar þar sem einstaklingar og jafnvel fyrirtæki hafa komið að uppbyggingu og rekstri golfvalla. Ekki er að sjá að þetta hafi gefið góða raun allavega við þær efnahagslegu aðstæður sem nú ríkja í okkar þjóðfélagi. Nægir í því sambandi að nefna framkvæmdir við Black Sand, Indriðastaði og Minni Borg. Við megum ekki gleyma því að koma upplýsingum til sveitastjórnarmanna um mikilvægi íþróttarinnar og kosti þess að byggja golfvelli. Við þurfum líka að vera meðvituð um að ryðja úr vegi andstöðu umhverfissamtaka við því að land sé tekið undir golfvelli og reyna að sameina þá við þau sjónarmið okkar að fallegur golfvöllur sé besta umhverfisvernd sem til er. Framkvæmdir sem unnið hefur verið að og hafa litið dagsins ljós hafa lánast mjög vel og má nefna stækkun vallarins í Öndverðanesi í 18

Ársskýrsla 2009 - Síða 9


Skýrsla stjórnar holur, nýr 9 holu völlur í Fnjóskadal, stækkun Hlíðavallar í Mosfellsbæ og stækkun vallarins í Borgarnesi í 18 holur. Allt er þetta til bóta í golfvallarflóruna og sú þekking sem til er í landinu í sambandi við golfvallargerð og umhirðu er okkur til sóma og fagmönnum til fyrirmyndar. Nokkrir af klúbbum okkar eru orðnir ráðsettir í aldri og má nefna 75. ára afmæli Golfklúbbs Reykjavíkur á þessu ári. Nokkrir Golfklúbbar eiga merkisafmæli á næsta ári. Ber þar hæst að Golfklúbbur Akureyrar heldur uppá 75 ára afmæli en aðrir klúbbar sem eiga merkisafmæli eru Golfklúbbur Sauðárkróks og Golfklúbbur Siglufjarðar með 40 ára afmæli, Golfklúbburinn Kjölur 30 ára og Golfklúbburinn Oddur 20 ára.

Golf og ferðaþjónstu Golfsambandið stofnaði ásamt aðilum úr ferðaþjónustunni samtökin Golf Iceland þar sem leitast er við að kynna Ísland sem áfangastað fyrir erlenda kylfinga. Mikið verk hefur verð unnið í markaðssetningu á Íslandi á þessu ári og fjöldi fyrirspurna um golf á Islandi fylgt í kjölfarið á kynningum samtakanna, hvort sem er á vefnum eða með bæklingaútgáfu. Golf Iceland er nú aðili að IAGTO sem eru alþjóðleg samtök golferðaskrifstofa og í þessari viku gafst okkur tækifæri á að kynna Ísland sérstaklega á ráðstefnu samtakanna sem fram fór á Spáni. Fulltrúar IAGTO voru á Íslandi í ágúst og tóku þeir út alla 18 holu velli landsins sem eru aðilar að Golf Iceland með hliðsjón af því hvort þeir væru tilbúnir "export ready" eins og þeir kalla það og var niðurstaða þeirra að allir vellirnir stæðustu þær kröfur sem erlendir kylfingar gerðu. Skýrsla IAGTO fylgir gögnum golfþings og hvet ég þingfulltrúa til að kynna sér hana.

Síða 10 - Ársskýrsla 2009

Menntmálanefnd og Iðnaðarnefnd hefur styrkt Golf Iceland auk þess sem Útflutningsráð hefur komið myndarlega að samtökunum með fjárhagstuðningi, auk þess sem aðilar samtakanna, golfklúbbarnir og ferðaþjónustufyrirtækin fjármagna samtökin. Það er von golfsambandsins að golfíþróttin eigi í framtíðinni eftir að vera mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu hér á landi og með því auka verðamætasköpun landsins og jafnframt stuðla að frekari uppbyggingu golfmannvirkja á landinu. Erlent samstarf Til stóð að halda Norðurlandamót allra flokka hér á landi í sumar en því móti var aflýst og hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi mótsins þannig að næsta sumar verður haldið Norðurlandamót 16 ára og yngri á Íslandi. Þrátt fyrir að þetta mót hafi fallið niður var haldið Evrópumót karla 70 ára og eldri á Hólmsvelli í Leiru í byrjun ágúst og tókst það mjög vel, þrátt fyrir að keppendur hafi fengið allskonar sýnishorn af veðri. Fulltrúar GSÍ sóttu ráðstefnu R&A í vor þar sem kynnt var vinna golfhreyfingarinnar fyrir því að koma golfíþróttinni inná Ólympíuleikana. Það var að áeggjan norðurlandanna að alþjóða golfsamfélagið fór að sækja það að koma golfíþróttinni að á Ólympíuleikum. Sá róður var nokkuð þungur í byrjun og lítil áhugi PGA í Bandaríkjunum sem stóð helst í vegi fyrir því að Alþjóða Ólympíuhreyfingin tæki ákvörðun um að taka golfíþróttina inn. Það var síðan fyrir 2 árum sem tókst að sameina alla aðila innan alþjóðagolfheimsins að hjólin fóru að snúast og niðurstaðan öllum kunn, því í Kaupmannahöfn á haustfundi Ólympíunefndarinnar var samþykkt að golf yrði keppnisgrein á Ólympíuleikum frá og með árinu 2016. Starfsmannamál Á skrifstofunni starfa þeir Hörður Þorsteinsson framkvæmdastjóri, Arnar Geirsson, skrifstofustjóri og Stefán Garðarsson kynningar og markaðsstjóri. Þar fyrir utan ganga þeir til allra verka í sambandi við allt mótahaldið sem sambandið stendur fyrir. Óhætt er að segja að ekki sé hægt að komast af með minna starfslið og oft er mikið álag ,ekki síst þegar að mótaraðirnar eru í gangi. Margir fleiri koma að


Skýrsla stjórnar sjálfu mótahaldinu og í samræmi við umræður á síðasta golfþingi er lögð áhersla á að golfklúbbarnir eru framkvæmdaðilar mótanna en fulltrúar GSÍ eru einungis til að gæta samræmingar um framkvæmd mótanna hverju sinni. Þá er ótaldir þeir dómarar, vallarstarfsmenn og sjálfboðaliðar sem koma að framkvæmd mótanna, svo allt megi ganga snurðulaust fyrir sig. Ákveðið var að ráða ekki nýja þjálfara í stað þeirra Staffans og Arnars Márs heldur þunginn af starfsemi landsliða settur á liðstjóra landsliðsins Ragnar Ólafsson, en hann hefur haft til aðstoðar Karl Ómar Karlsson golfkennara og Derick Moore golfkennara. Þá hefur Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari verið okkur innan handar með líkamsþjálfun kylfinga og Steinunn Eggertsdóttir verið liðstjóri kvennalandsliða. Lokaorð Við höfum öll fylgst með framgöngu Birgis Leifs Hafþórssonar í sumar og sáum fram á að hann myndi fara á 2. stigið á úrtökumótið fyrir Evrópsku mótaröðina. Nú hefur komið í ljóst að hann þjáist af brjósklosi sem skapar óvissu um hans framtíð. Hann er hins vegar bjartsýnn og telur að með hvíld og réttum æfingum nái hann bata. Við óskum honum alls hins besta og vonumst til að þessi fulltrúi okkar á Evrópsku mótaröðinni eigi eftir að verða sjálfum sér og okkur til sóma. Nokkrir af okkar bestu kylfingum reyndu fyrir sér á úrtökumótunum en höfðu ekki erindi sem erfiði. Vonandi tekst þeim betur upp næst en eins og við vitum er þetta miklar þolraunir sem þeir ganga í gegnum og stutt á milli feigs og ófeigs. Nokkrir kylfingar munu ef að líkum lætur reyna fyrir sér á Evrópska öldungatúrnum á næsta ári og verður spennandi að sjá hvernig þeim gengur. Kylfingarnir okkar sem eru við nám vestanhafs hefur gengið prýðilega á háskólamótunum það sem af er vetrar og eru það góðar fréttir. Margir af okkar kylfingum hafa sýnt góðan árangur í sumar sem leið og oft sáust mjög góð skor. Ég held að við séum á réttri leið og sífellt betri kylfingar líti dagsins ljós. Mikið af okkar unga fólki komst á verðlaunapall í sumar og það fer ekki framhjá neinum sem fylgist með þessari

íþrótt að kynslóðaskipti eru hafin í golfinu. Heilmikil nýliðun á sér stað og reyndar nær áhugasviðið til allra aldursflokka. Og það skemmtilega við það er að þetta er engin bóla heldur komið til að vera. Golf er lífstíll. En er á brattann að sækja fyrir íþróttahreyfinguna. Efnahagsumhverfið er en mjög erfitt og ekki verður auðvelt að finna fjármagn til að byggja nýja golfvelli eða efla þá starfsemi sem er í gangi. Mikilvægt er að við öll höldum á lofti þeim jákvæðu áhrifum sem golfíþrótttin hefur á samfélagið. Þannig má benda á rannsókn sem birt var á þessu ári sem gerð var í Svíþjóð þar sem fram kom að þeir sem stunda golfíþróttina fram á elliár, lifa að meðaltali 5 árum lengur en samanburðahópur. Í norskri skýrslu sem gerð var um áhrif golfvalla á umhverfið að jaðarsvæði golfvalla væru ákjósanlegir staðir fyrir fugla og annað dýralíf og því væri hægt að segja að bygging golfvalla væri góð náttúruvernd. Þetta vitum við sem stundum golfíþróttina en við þurfum að vera dugleg að breiða út þessar staðreyndir og þannig ná eyrum ráðamanna. Góður golfvöllur er góð fjárfesting og arður af slíkri fjárfestingu er margföld fyrir samfélagið, sparar útgjöld í heilbrigðiskerfinu, kennir góða hegðun og virðingu fyrir náttúrunni. Við erum á réttri leið. Við eigum mikil verðmæti. Gott og heilbrigt fólk, góða golfvelli í fallegu landi. Við eigum verðmætt tölvukerfi sem heldur utan um ótal hluti. Við eigum gott blað sem öll íþróttasambönd öfunda okkur af og eru ómetanlegar heimildir til framtíðar og síðast en ekki síst erum við svo lánsöm að hafa kynnst íþrótt sem er einstök á sinn hátt. Við eigum gott fólk sem vinnur ötullega óeigingjarnt starf í golfklúbbum þessa lands og þó að það blási á móti um stundarsakir í efnahagsmálum, þá höldum við ótrauð áfram. Okkar tími kemur aftur. Að lokum vil ég þakka kylfingum, forsvarsmönnum golfklúbba og starfsmönnum þeirra fyrir samstarfið í sumar og þingfulltrúum fyrir komuna á þingið og bind ég miklar vonir um að ákvarðanir og samþykktir þessa þings verði golfíþróttinni til heilla og framdráttar.

Ársskýrsla 2009 - Síða 11



Golfsamband Íslands Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Reykjavík

Ársreikningur fyrir starfsárið 2009


Síða 14 - Ársskýrsla 2009


Ársskýrsla 2009 - Síða 15


Rekstrarreikningur 1. október 2008 - 30. september 2009

Skýr.

Árið 2009

Áætlun 2009

Árið 2008

Rekstrartekjur Útgáfu- og fræðslustarfsemi.............. Samstarfsaðilar................................. Styrkir og framlög.............................. Aðrar tekjur....................................... Árgjöld félaga.................................... Rekstrartekjur

1

26.540.809 4.750.900 18.507.994 0 48.198.500 97.998.203

32.845.120 8.870.000 19.000.000 400.000 41.667.570 102.782.690

41.003.606 26.960.000 18.894.665 1.050.000 47.083.400 134.991.671

25.795.065 27.232.393 10.385.341 3.901.438 10.891.398 22.041.735 100.247.370

29.184.000 30.800.000 7.625.000 5.250.000 8.000.000 21.500.000 102.359.000

33.428.766 46.059.234 10.308.629 6.103.087 12.338.501 25.318.413 133.556.630

Rekstrarhalli

(2.249.167)

423.690

1.435.041

Vaxtagjöld......................................... Vaxtatekjur........................................ Vextir

(333.517) 1.203.320 869.803

500.000 500.000

(296.833) 1.051.030 754.197

Gjöld umfram tekjur

(1.379.364)

923.690

2.189.238

Grasvallarsjóður................................ Árgjald í STERF................................ Aðrar tekjur og gjöld

1.538.381 (1.282.096) 256.285

1.500.000 (1.200.000) 300.000

1.345.200 (2.374.278) (1.029.078)

Heildarafkoma

(1.123.079)

1.223.690

1.160.160

2

Rekstrargjöld Útgáfusvið......................................... Afrekssvið......................................... Mótasvið............................................ Fræðslu-og alþjóðasvið..................... Þjónustusvið...................................... Stjórnunarsvið................................... Rekstrargjöld

3 4 5 6 7 8

Vextir

Aðrar tekjur og gjöld

Síða 16 - Ársskýrsla 2009


Efnahagsreikningur 30. september 2009 Skýr.

30.09.2009

30.09.2008

9

13.340.795 0 5.386.082 18.726.877

12.298.447 3.090.235 10.948.330 26.337.012

18.726.877

26.337.012

13.374.779 (497.622) 12.877.157

14.754.143 (753.907) 14.000.236

3.659.143 2.190.577 5.849.720

9.072.503 3.264.273 12.336.776

18.726.877

26.337.012

Eignir: Veltufjármunir Skammtímakröfur.............................. Fyrirfram greitt vegna HM.................. Handbært fé...................................... Veltufjármunir Eignir alls Skuldir og eigið fé: Eigið fé Óráðstafað eigið fé........................... 10 Eigið fé grasvallarsjóðs..................... 10 Eigið fé Skammtímaskuldir Viðskiptaskuldir................................. 11 Ýmsar skuldir.................................... 12 Skammtímaskuldir Skuldir og eigið fé alls

Ársskýrsla 2009 - Síða 17


Sundurliðanir Árið 2009

Áætlun 2009

Árið 2008

1. Útgáfu-og fræðslustarfsemi Golf á Íslandi........................................... Handbók kylfingsins................................ golf.is...................................................... Útgáfustarfsemi

23.778.809 1.592.000 1.170.000 26.540.809

27.354.120 3.591.000 1.900.000 32.845.120

35.647.710 4.105.896 1.250.000 41.003.606

8.036.736 1.996.258 2.300.000 4.105.000 2.070.000 18.507.994

7.000.000 2.000.000 4.000.000 4.000.000 2.000.000 19.000.000

7.561.343 2.032.311 3.460.000 4.100.000 1.741.011 18.894.665

22.838.986 1.379.015 1.577.064 25.795.065

25.224.000 3.960.000 480.000 29.184.000

28.457.954 4.532.165 438.647 33.428.766

7.813.816 931.514 12.263.979 6.223.084 27.232.393

9.200.000 2.000.000 13.000.000 6.600.000 30.800.000

14.119.875 8.060.279 16.663.513 7.215.567 46.059.234

1.125.000 9.260.341 10.385.341

1.125.000 6.500.000 7.625.000

3.255.069 7.053.560 10.308.629

(588.349) 3.659.717 830.070 3.901.438

400.000 3.450.000 1.400.000 5.250.000

1.719.320 3.495.015 888.752 6.103.087

2. Styrkir og framlög ÍSÍ, lottó.................................................. Útbreiðslustyrkur ÍSÍ............................... Afreksmannasjóður ÍSÍ........................... Opinberir styrkir...................................... R&A vegna unglingamála....................... Styrkir og framlög 3. Útgáfusvið Golf á Íslandi........................................... Handbók kylfingsins................................ Golf.is..................................................... Útgáfusvið 4. Afrekssvið Stjórnunarkostnaður............................... Æfingabúðir............................................ Keppnisferðir.......................................... Annað kostnaður.................................... Afrekssvið 5. Mótasvið Mótahald................................................. Sjónvarpsúts, verðlaun o.fl..................... Mótasvið 6. Fræðslu-og alþjóðasvið Útgáfa golfreglna.................................... Alþjóðakostnaður.................................... Annar kostnaður..................................... Fræðslu-og alþjóðasvið

Síða 18 - Ársskýrsla 2009


Sundurliðanir Árið 2009

Áætlun 2009

Árið 2008

7. Þjónustusvið Tölvukerfi................................................ Framlög til samtaka ofl............................ Þjónustusvið

7.246.918 3.644.480 10.891.398

5.000.000 3.000.000 8.000.000

7.411.883 4.926.618 12.338.501

15.767.768 3.797.401 1.395.002 581.564 500.000 22.041.735

16.000.000 3.800.000 1.100.000 600.000

16.510.628 5.094.945 1.423.972 1.288.868 1.000.000 25.318.413

8. Stjórnunarsvið Laun og launatengd gjöld....................... Skrifstofukostnaður................................. Fundir og ráðstefnur............................... Markaðskostnaður.................................. Niðurfærsla viðskiptakrafna.................... Stjórnunarsvið

21.500.000

9. Viðskiptakröfur Félagsgjöld............................................. Auglýsingar............................................. ÍSÍ viðskiptareikningur............................. Niðurfærsla viðsk.krafna......................... Viðsk.kröfur

5.388.905 6.112.996 3.283.229 (1.444.335) 13.340.795

3.025.755 7.885.576 3.887.116 (2.500.000) 12.298.447

Staða 1. janúar....................................... Rekstrarafgangur ársins......................... Óráðstafað eigið fé

14.754.143 (1.379.364) 13.374.779

12.564.905 2.189.238 14.754.143

Grasvallarsjóður frá fyrra ári................... Óráðstafað umfram framl. ársins............ Eigið fé grasvallarsjóðs

(753.907) 256.285 (497.622)

275.171 (1.029.078) (753.907)

10. Óráðstafað eigið fé

11. Viðskiptaskuldir Visa......................................................... Aðrir lánardrottnar................................... Viðskiptaskuldir

1.112.592 2.546.551 3.659.143

4.159.264 4.913.239 9.072.503

1.365.456 825.121 2.190.577

1.562.520 1.701.753 3.264.273

12. Ýmsar skuldir Virðisaukaskattur.................................... Laun og tengd gjöld................................ Ýmsar skuldir

Ársskýrsla 2009 - Síða 19



Golfsamband Íslands Íþróttamiðstöðinni í Laugardal Reykjavík

Rekstraráætlun fyrir starfsárið 2010


Rekstraráætlun 2010

Skýr.

Áætlun 2010

Árið 2009

Árið 2008

Rekstrartekjur Útgáfu- og fræðslustarfsemi.............. Samstarfsaðilar................................. Styrkir og framlög.............................. Aðrar tekjur....................................... Árgjöld félaga.................................... Rekstrartekjur

1

25.650.000 13.900.000 18.200.000 0 50.766.000 108.516.000

26.540.809 4.750.900 18.507.994 0 48.198.500 97.998.203

41.003.606 26.960.000 18.894.665 1.050.000 47.083.400 134.991.671

25.268.000 28.000.000 13.750.000 5.950.000 12.000.000 22.440.000 107.408.000

25.795.065 27.232.393 10.385.341 3.901.438 10.891.398 22.041.735 100.247.370

33.428.766 46.059.234 10.308.629 6.103.087 12.338.501 25.318.413 133.556.630

Rekstrarafgangur

1.108.000

(2.249.167)

1.435.041

Vaxtagjöld......................................... Vaxtatekjur........................................

0 300.000 300.000

(333.517) 1.203.320 869.803

(296.833) 1.051.030 754.197

Tekjuafgangur

1.408.000

(1.379.364)

2.189.238

2

Rekstrargjöld Útgáfusvið......................................... Afrekssvið......................................... Mótasvið............................................ Fræðslu-og alþjóðasvið..................... Þjónustusvið...................................... Stjórnunarsvið................................... Rekstrargjöld

3 4 5 6 7 8

Vextir

Síða 22 - Ársskýrsla 2009


Sundurliðanir Áætlun 2010

Árið 2009

Árið 2008

1. Útgáfu-og fræðslustarfsemi Golf á Íslandi........................................... Handbók kylfingsins................................ golf.is...................................................... Útgáfustarfsemi

21.838.000 2.232.000 1.580.000 25.650.000

23.778.809 1.592.000 1.170.000 26.540.809

35.647.710 4.105.896 1.250.000 41.003.606

8.000.000 2.000.000 2.000.000 4.000.000 2.200.000 18.200.000

8.036.736 1.996.258 2.300.000 4.105.000 2.070.000 18.507.994

7.561.343 2.032.311 3.460.000 4.100.000 1.741.011 18.894.665

21.558.000 2.054.000 1.656.000 25.268.000

22.838.986 1.379.015 1.577.064 25.795.065

28.457.954 4.532.165 438.647 33.428.766

5.000.000 2.000.000 15.000.000 6.000.000 28.000.000

7.813.816 931.514 12.263.979 6.223.084 27.232.393

14.119.875 8.060.279 16.663.513 7.215.567 46.059.234

2.250.000 11.500.000 13.750.000

1.125.000 9.260.341 10.385.341

3.255.069 7.053.560 10.308.629

2. Styrkir og framlög ÍSÍ, lottó.................................................. Útbreiðslustyrkur ÍSÍ............................... Afreksmannasjóður ÍSÍ........................... Opinberir styrkir...................................... R&A vegna unglingamála....................... Styrkir og framlög 3. Útgáfusvið Golf á Íslandi........................................... Handbók kylfingsins................................ Golf.is..................................................... Fræðslusvið 4. Afrekssvið Stjórnunarkostnaður............................... Æfingabúðir............................................ Keppnisferðir.......................................... Annað kostnaður.................................... Afrekssvið 5. Mótasvið Greiðslur til klúbba.................................. Annar mótakostnaður............................. Mótasvið

Ársskýrsla 2009 - Síða 23



Sundurliðanir Áætlun 2010

Árið 2009

Árið 2008

1.200.000 3.750.000 1.000.000 5.950.000

(588.349) 3.659.717 830.070 3.901.438

1.719.320 3.495.015 888.752 6.103.087

8.000.000 4.000.000 12.000.000

7.246.918 3.644.480 10.891.398

7.411.883 4.926.618 12.338.501

16.550.000 3.590.000 1.500.000 800.000 0 22.440.000

15.767.768 3.797.401 1.395.002 581.564 500.000 22.041.735

16.510.628 5.094.945 1.423.972 1.288.868 1.000.000 25.318.413

6. Fræðslu- og alþjóðasvið Útgáfukostnaður..................................... Alþjóðakostnaður.................................... Annar kostnaður..................................... Fræðslu-og alþjóðasvið 7. Þjónustusvið Tölvukerfi................................................ Framlög til samtaka ofl............................ Þjónustusvið 8. Stjórnunarsvið Laun og launatengd gjöld....................... Skrifstofukostnaður................................. Fundir og ráðstefnur............................... Markaðskostnaður.................................. Niðurfærsla viðskiptakrafna.................... Stjórnunarsvið

Ársskýrsla 2009 - Síða 25


Skýrsla PGA PGA á Íslandi er aðili af PGAs of Europe sem hefur það meginmarkmið að samhæfa og tryggja hágæða kennslu í golfi ásamt því að stuðla að almennri framþróun golfíþróttarinnar. Innan aðildafélaganna eru um það bil 15.000 golfkennarar og eru nú 60 félagsmenn í PGA á Íslandi. Síðasti aðalfundur Á aðalfundi sem haldinn var í lok janúar 2009 urðu formannaskipti í félaginu. Arnar Már Ólafsson lét þá af formennsku eftir tveggja ára starf þar sem hann flutti til Þýskalands, hélt hann áfram stjórnarsetu. Við formennskunni tók Sigurpáll Geir Sveinsson en aðrir stjórnarmeðlimir voru kosnir Derrick Moore, Ragnhildur Sigurðardóttir og Ingi Rúnar Gíslason. Stjórn PGA á Íslandi Sigurpáll Geir Sveinsson, Formaður Arnar Már Ólafsson, Skólastjóri Ragnhildur Sigurðardóttir, Ritari Derrick Moore, Gjaldkeri Ingi Rúnar Gíslason, Mótanefnd Á aðalfundinum var gengið frá ráðningu framkvæmdastjóra en hann er Agnar Már Jónsson, hlutverk framkvæmdastjóra er að; framfylgja ákvörðunum stjórnar, daglegur rekstur, fjáröflun í samstarfi við atvinnulífið og aðstoð við daglegan rekstur Golfkennaraskólans. Hlutverk PGA á Íslandi Hlutverk PGA í uppbyggingu golfíþróttarinnar á Íslandi er ávallt að verða mikilvægara. Annars vegar þarf vel menntaða og hæfa einstaklinga til að þjálfa upp þann mikla fjölda áhugamanna sem nú stunda íþróttina og fjölgar ár frá ári. Góð kennla fagaðila leiðir það af sér að ánægja áhugamannana verður meiri, líkurnar á því að viðkomandi haldi iðkun áfram aukast og líkurnar á meiðslum og verkjum minnka sem er aðalástæðan fyrir því að aðilar hætti að spila golf. Hins vegar þurfum við að viðhalda þjálfaraneti sem byggir upp afrekskylfinga framtíðarinnar. Forsendan fyrir því að vel takist til við afreksstarfið er að við höfum hæfa þjálfara til taks. Til að tryggja það að útlærðir PGA kennarar viðhaldi og auki við þekkingu sína stendur PGA fyrir viðamiklu

Síða 26 - Ársskýrsla 2009

endurmenntunarprógrammi. Stuðningur PGA við atvinnuspilarana hefur því ekki verið mikill en það er ljóst að það hlutverk mun aukast þegar afrekstarfið skilar sér með þeim hætti að fleiri einstaklingar taki þátt í atvinnumótunum. Staðan í dag Langstærsta verkefni PGA á Íslandi er rekstur Golfkennaraskólans. 20 nememendur voru skráðir í skólann á árinu 2008 og þar af útskrifuðust 9. Skólinn tekur 3 ár og skiptist í verklegt og bóklegt nám og eru það fjórir meginþættir sem prófað er úr. Í fyrsta lagi er settur upp golfkennaraskóli sem fólst í ár í því að fara með um 40 manna hóp til Costa Ballena þann 13. maí til 21. maí. Útskriftanemarnir kenna þessum aðilum undir eftirliti kennara Golfkennaraskólans. Skólinn í heild sinni er metinn sem og þáttur hvers og eins golfkennaranema. Í öðru lagi taka nemendurnir skriflegt próf sem fjallar um tækni og kennslu. Í þriðja lagi vinna nemendur að lokaritgerð og í fjórða og síðasta lagi taka nemendur próf í einkakennslu. Þar sem framþróun golfíþróttarinnar er mikil þá er þáttur endurmenntunar mikilvægur. PGA á Íslandi sendi þá Derrick Moore og Magnús Birgisson á endurmenntunarnámskeið ePGA. Það lýsir því hve gott samstar PGA á Íslandi er


Skýrsla PGA við ePGA að einungis 8 aðilum í Evrópu var boðið að taka þátt í þessu endurmenntunarnámskeiði. Þá hefur PGA á Íslandi sett upp röð hádegisfyrirlestra þar sem farið er yfir það helsta sem er í gangi varðandi framþróun íþróttarinnar á hverju sinni og fáum við til þess bæði erlenda og innlenda fyrirlesara. Meistaramót PGA var haldið á Hlíðavelli 26. ágúst og seinni hringurinn var spilaður á Keilisvelli 27. ágúst. Mótið var mjög spennandi framan af og voru þeir Sigurpáll Geir Sveinsson, Magnús Lárusson og Nökkvi Gunnarsson í eldlínunni. Leikar enduðu þannig að Sigupáll Geir Sveinsson var PGA meistari 2009 en hann spilaði samtals á sex höggum undir pari. Í öðru sæti var Nökkvi á fimm höggum undir pari og þriðja sætið hreppti Magnús á tveim höggum undir pari. Það er markmið PGA að efla meistaramótið á komandi árum en til þess þarf atvinnulífið að koma að með öflugum hætti en eins og nú viðrar á þeim vígstöðvum er ljóst að PGA meistaramótið verður eflt í áföngum. PGA stóð fyrir Pro-Am móti í samstarfi við GSÍ og GKG. Var mótið haldið föstudaginn 21. ágúst í Leirdalnum og í tengslum við íslensku mótaröðina. Mótið tókst í alla staði vel og var þátttaka það góð að við vorum á tæpasta vaði með að manna hollin með PGA meðlimum. Við

mældum í lokin ánægju gesta okkar og fendum við 4,8 af 5,0 mögulegum í heildarupplifun þátttakenda. Eitt af þeim lokaverkefnum sem útskriftarnemarnir unnu að var að mæla vitund íslenskra stjórnenda á PGA samtökunum samhliða því að kanna viðhorf þeirra gagnvart hreyfingu starfsmanna. Um 87% íslenskra stjórnenda töldu að hreyfing væri framleiðni aukandi fyrir starfsfólkið. Þetta þýðir það að það er mikið tækifæri fyrir PGA að vera stuðningsaðili fyrirtækja með golfíþróttina sem aðalhvata. Til þess að svo megi vera þarf að auka vitund PGA meðal íslenskra stjórnenda en einungis 45% og af þeim 45% eru 75% meðvitaðir um að samtökin séu starfandi á Íslandi. Golfkennaraskóli viðurkendur af EPGA Golfkennaraskólinn hefur verið í viðurkenningarferli hjá EPGA síðan skólinn var settur fyrir þremur og hálfu ári. Viðurkenningin felur það í sér að þeir nemendur sem lokið hafa námi og þeir sem munu ljúka námi, hafa evrópuréttindi til golfkennslu. Þetta er stórt skref og mikil viðukenning fyrir skólann. Þetta staðfestir það að skólinn hefur tilætluð gæði og stöðugleiki er tryggður. Skólinn hefur útskrifað 20 nemendur á síðustu þremur árum. Þessir einstaklingar eru að vinna að uppbyggingu íþróttarinnar, kenna einstaklingum, þjálfa hópa og lið, vinna að rannsóknum og þróunarvinnu auk þess að sinna störfum í golfklúbbum landsins og fyrir golfsambandið. Ísland er 19 landið sem hlýtur þessa staðfestingu. Samstarf við GSÍ Samstarf við GSÍ hefur verið með miklum ágætum og er það mikilvægt eins og sést á þeirri vinnu sem nú er á fullu um framtíðarstefnu afreksmála. Þar vega sjónarmið PGA félaga þungt, enda eru okkar félagar það afl sem hefur sérþekkingu á þessu sviði og rúmast vel innan okkar meginmarkmiða sem eru að stuðla að framþróun golfíþróttarinnar á Íslandi. Mynd: Útskriftarhópurinn 2009 f.v. Einar Lyng Hjaltason, Karl Haraldsson, Einar Gunnarsson, Sturla Höskuldsson, Ólafur Gylfason, Andrea Ásgrímsdóttir, Jón Þorsteinn Hjartarson, Jóhann Hjaltason og Björgvin Sigurbergsson.

Ársskýrsla 2009 - Síða 27


Landsliðsverkefni 2009 Þessa árs verður helst minnst fyrir erfiðleika í efnahagsmáum og hruns fjármálafyrirtækja. Ástand þjóðfélgsins og sú keðjuverkun sem hrunið framkallaði endurspeglast mikið í afkomu samstarfsaðila og bakhjarla flestra íþróttasambanda og félaga í landinu. Allir hafa þurft að endurmeta sitt starf og það umhverfi sem íþróttahreifingin þarf að vinna eftir í dag. Golfsambandið og klúbbar landsins hafa ekki farið varhluta af þessu ástandi og niðurskurðahnífurinn komið víða niður. Afrekssviðið hjá golfsambandinu hefur verið minnkað gríðarlega enda eflaust auðveldast að klípa af því sem fer undir þann þátt. Staffan Johanson lét af störfum um áramótin sem landsliðsþjálfari, en hann ákvað að taka tilboði um að taka við þjálfun finnska landsliðsins og samþykkti stjórn GSÍ að leysa hann undan samningi hér, en hann átti ár eftir af þeim samningi.. Mikil eftirsjá er í þessum frábæra þjálfara sem er gull af manni og vildi íslensku golfi allt hið besta. Arnar Már Ólafsson tók við starfinu en þurfti af óviðráðanlegum ástæðum að hætta í mars á þessu ári. Já tveir góðir golfkennarar sem við missum frá okkur með mjög svo stuttu millibili, það var mikil blóðtaka fyrir golfhreyfinguna á Íslandi. En þessir ágætu félagar okkar hafa ekki setið auðum höndum á undanförnum árum og ber að þakka þeim t.d. fyrir að hafa menntað nýja golfkennara hér á landi og eru nú fagmenn í flestum stærri klúbbum landsins sem sjá um þjálfun og keppnisskipulag okkar afrekskylfinga. Það var því verulega breytt landslag sem ég tók við sem landsliðseinvaldur nú í byrjun árs ef ég miða við þá stöðu sem var á afreksmálum í byrjun starfa minna fyrir golfsambandið hér á árum áður. Innanhúsæfingar, vetrarstarf Arnar Már Ólafsson skipulagði starfið í upphafi vetrar og valdi til þess 47 einstaklinga í fimm hópum. Barnahópur, framtíðarhópur, landsliðhópur unglinga, 19-21 árs hópur og síðan nokkrir afrekskylfingar sem hafa verið hluti Team Iceland hópnum. Með þessu fengu allir þessir einstaklingar leiðsögn frá GSÍ með Arnar Már, Karl Ómar Karlsson, Derrick Moore sem sáu um golfþjálfun, Gauta Grétarsson með púlið og síðan Ragnar Ólfsson og Steinunn Eggertsdóttir í verklegum þáttum sem liðstjórar. Klúbbar eru alltaf að auka vetraræfingar og sem fyrr þeirra

Síða 28 - Ársskýrsla 2009

tímar farnir að rekast á við GSÍ tíma eða öfugt. Fleirri klúbbar sinna mikilvægum vetraræfingum og líta á undirbúning og æfingar kylfinga sem heilsárs íþrótta þó golf sé ekki leikið sem slíkt hér á landi. Reiðhöllin er sem fyrr að mínu mati "musterri" í vetrarstarfi GSÍ fyrir afrekshópana, þar er góð aðstaða og stutta spilið æft með nánast öllum möguleikum höggum sem upp koma í golfleik. Æfingar með keppnisformi var þema vetrarins og "test" með útkomu í stigafjölda út úr svokallaðri 5% skotmarki, gert nokkrum sinnum yfir veturinn. Þannig fengust mælanlegar framfarir við æfingar og vetrarstarfið verður skemmtilegra. Nokkrar æfingar voru gerðar með skilning á boltaflugi ásamt öðrum tækniæfingum. Æfingar voru einnig í kjallara Laugardalshallarinnar þar sem megin áhersla var lögð á pútt, stutt vipp og jafnvægisæfingar með t.d. stórum boltum ásamt líkamlegum æfingum. Hraunkot og Básar voru einnig vettvangar í sérstökum æfingum í vetrarstarfi GSÍ. Fundur var haldinn með "Silfurdrengjunum" í handbolta þeim Sverre Jakobsson og Sigfúsi Sigurðssyni. Voru þeir spurðir spjörununum úr og kom margt fróðlegt fram í þeirra erindi um undirbúning og hugarástand á meðan á Ólympíuleikunum stóð. Engar æfingaferðir á vegum GSÍ voru farnar á þessu ári í ljósi aðstæðna. Líkamleg uppbygging Gauti Grétarsson sér sem fyrr um mælingar á líkamlegri getu afrekskylfinga. Fóru Gauti og Arnar Már á námskeið til Bandaríkjanna í október á síðasta ári á svokallað TPI eða "Titleist Performans Institute" þar sem safnað hefur verið saman öllum helstu æfingum í eitt kerfi sem unnar eru sérstaklega fyrir kylfinga. En þarna kom góð staðfesting á því að Gauti hefur verið á réttri braut í þessum málum með afreksfólkið okkar. Áhersla var lögð á þessar æfingar með yngri leikmenn og æfingar reglulega yfir veturinn þar sem Gauti stýrði æfingum þar sem nýttar voru allar nýjustu áherslur í sér æfingum fyrir kylfinga. Líkamlegt ástand afrekshópana er mikilvægt og út frá því voru skipulagðar ákveðnar æfingar fyrir þá sem þurftu að bæta sig. Flestir eru meðvitaðir um hvað gott líkamlegt form skilar sér í góðum árangri á vellinum. Er það þó álit okkar að líkamlega geta á að vera fyrir hendi þegar unglingar koma frá klúbbunum og hefur GSÍ lagt


Landsliðsverkefni 2009 áherslu á þann þátt í samstarfi við þjálfara klúbbanna og við þannig lagt frekari áherslur á golflegri þætti hjá okkur. Margir klúbbar hafa þetta á stefnuskrá sinni og láta sitt fólk í margskonar líkamlegar æfingar jafnhliða golfæfingum. Mótaröð unglinga Mikil gróskar er í barna og unglingastarfi klúbbana og ekkert lát á þeirri gríðarlegu uppbyggingu sem lögð hefur verið í afreksstarf þeirra og hefur verið stigvaxandi síðustu árin. Þessi grunnvinna skilar sér í góðum árangri okkar bestu unglinga. Mikil og jöfn keppni var á öllum mótum í sumar og á það við alla flokka, allstaðar var sama skemmtilega keppnin. Margir góðir sigrar sáust á mótaröðinni en þó er rétt að nefna frábæran árangur í telpnanaflokki 14-15 ára, en þar sigraði Guðrún Brá Björgvinsdóttir í öllum mótum sumarsins og í stelpnaflokki 13-14 ára sigraði Guðrún Pétursdóttir GR í fimm af sex mótum. Þá varð Ólafía Þórunn Kristinsdóttir stigameistari í flokki 17-18 ára. Stigameistarar Í piltaflokki 17-18 ára var Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR. Í flokki 15-16 ára Magnús Björn Sigurðsson GR og í flokki 13-14 ára Ragnar Már Garðarsson GKG. Á þeim mótum sem ég sá var umgjörð klúbbanna til fyrirmyndar og keppikefli þeirra að framkvæmd og uppsetning valla væri með besta móti. Íslenska mótaröðin Uppsetning á völlunum í sumar var með besta móti en þó best í lok sumars á Íslandsmótinu í höggleik á Grafarholtsvelli þar sem umgjörðin var frábær og mjög hvetjandi fyrir okkar bestu kylfinga.. Slík umgjörð skapar möguleika á góðum tilþrifum og verður spennan sem var á lokadegi mótsins seint toppuð og var spennan í báðu flokkum fram á síðustu holu og gott betur. Íslandsmeistararnir, Ólafur Björn Loftsson NK og Valdís Þóra Jónsdóttir GL léku frábært golf í æsispennandi keppni og stóðu uppi sem sigurvegarar í frábæru móti. Stigameistarar voru Alfreð Brynjar Kristinnson GKG og Signý Arnórsdóttir GK. Alfreð með jöfnu golfi allt sumarið þó svo að hann næði ekki að sigra á stigamóti þá skilaði jöfn spilamennska honum stigameistara titlinum í sumar. Signý var með frábært ár og sigraði á þremur mótum þar af Íslandsmeistaratitli í holukeppni. Íslandsmeistari í holukeppni var Kristján Þór Einarsson GKj.

Ekki tel ég ástæðu til að telja upp frekari úrslit eða árangur móta hérlendis en vísa í Golf á Íslandi á golf.is, en þar er þessum mótum gerð góð skil. Erlend þátttaka Þrátt fyrir dökkt útlit í efnahagsmálum síðasta sumar ákvað stjórn GSÍ að senda bæði kvenna og karlalið á heimsmeistaramót áhugamanna í Ástralíu, sem fram fór í byrjun október en þetta mót hefur oft verið nefnt hinir óopinberru Ólympíuleikar golfsins. Að mínu mati er það æðsta markmið hvers kylfings að taka þátt í þessu móti og veit ég að flestir kylfingar er sama sinnis og ég, sem á mótið hafa komið. Í ár voru 65 þjóðir í karlaflokki og 48 í kvennaflokki. Fyrirkomulag mótisins er með þeim hætti að leikin er höggleikur þar sem þrír kylfingar leika í hverju liði og telja 2 bestu skor dagsins. Leiknir eru fjórir hringir. Kvennamótið heitir Espirito Santo Trophy en það mót var leikið á The Grange vellinum en þar eru tveir 18 holu vellir einfaldlega kallaðir vestur og austur. Kvennaliðið hjá okkur var skipað Helenu Árnadóttir GR, Tinnu Jóhannsdóttir GK og Eygló Myrru Óskarsdóttir GO. Árangur var viðunandi miðað við uppsetningu vallanna en við enduðum í 41. sæti á +57 af 48 þjóðum. Við höfðum sett stefnuna á 35. sæti ef allt hefði gengið upp hjá okkur. Með einungis þrjá hringi undir áttatíu fyrir liðið segir meira en nokkuð um erfiðleikagráðu vallana. En stúlkurnar voru að sýna gott golf inn á milli, þó svo að einbeitingu hafi vantað í lokin. Karlamótið heitir Eisenhower Trophy og var haldið á tveimur völlum eða The Royal Adeilaide og The Grange. Karlaliði var þannig skipað, Kristján Þór Einarson GKj, Ólafur Björn Loftsson NK og Sigmundur Másson GKG. Lokaniðurstaðan þeirra var árangur sem við sættum okkur við eða 27. sætið, en með smá meiri stöðuleika síðasta daginn þar sem við töpuðum sennilega um 7 höggum á síðustu fimm holunum hefði liðið getað náð lengra og því var skiljanlegt að niðurstaðan var okkur nokkur vonbrigði.. En topp tuttugu var í augsýn og strákarnir því nálægt drauma mótinu. Hefði einhver sagt fyrir mótið að 27. sætið yrði okkar hefðum við sáttir tekið við því en ég veit að strákarnir fengu smjörþefin af því sem næstum því varð og það styrkir þeirra trú á betri árangur náist í framtíðinni.

Ársskýrsla 2009 - Síða 29


Landsliðsverkefni 2009 Okkar keppendur eiga hrós skilið, enda verðugir fulltrúar Íslands á þessu móti. Aldrei nein vandmál og jákvæðnin í fyrirrúmi þó aðstæður væri nokkuð strembnar. Ekki bætti úr skák að bankahrunið varð í upphafi móts en allir reyndu að útiloka það frá daglegum verkefnum heimsmeistarmótsins. Allir sýndu okkur mikla velvild, buðust margir til þess að lána okkur peninga og útvega okkur vinnu en samkvæmt fréttum var Ísland, sokkið í sæ. Það gæti stundum smá spennu á kvöldin þegar liðstjórinn borgaði fyrir kvöldmatinn og hvort kortið væri enn opið eða hvort liðstjórinn endaði í uppvaskinu. En þetta blessaðist allt og ég vona að allir hafi að geyma góðar minningar frá Ástralíu. Evrópumót karlalandsliða var haldið á Conwy Golf Club í Wales. Frábær árangur náðist á þessu móti og endaði liðið í 12. sæti af 20 þjóðum. Sex keppendur spila höggleik og telja fimm bestu skor hvorn daginn. Síðan er raðað í riðla eftir árangri í A riðill fara lið 1-8, B riðill 9-16 og C riðill 17-20. Eftir fyrri höggleiksdaginn (+10 / 370) þá vorum við í tólfta sæti en þrátt fyrir bætingu (+8 / 368) seinni daginn þá varð fimmtánda sætið okkar hlutskipti. Lokaholurnar voru mörgum erfiðar og stolt margra bælt niður. Hlynur Geir Hjartarson GK (-2) og Axel Bóasson GK (+3) voru með lægstu skor eftir höggleikinn en jöfn spilamennska allra í liðinu skóp árangurinn og við spilum í B riðli. Eftir höggleikinn er leikin holukeppni og í B riðli leikið einn fjórmenningur og fjóri tvímenningar. Fyrsti leikur í holukeppni var gegn Walesverjum og sigruðum við þá 3-2 og þokkuðumst við þannig upp töfluna. Þetta var sætur sigur fyrir okkur þar sem Walesverjum var spáð einum af topp sætunum á heimavelli í þessu móti. Írar voru næstir en þar var við ofurefli að etja og unnu þeir okkur 4-1. Lokaleikurinn var við Spánverja og tapaðist síðasti viðureignin á 23. holu en Sigmundur fór alla þá leið í hörkuleik. Lokatölur 3-2 fyrir Spánverjum. En eins og fyrr er getið endaði liðið í 12. sæti sem er þriðji besti árangur karlaliðsins á Evrópumóti frá upphafi. Evrópumót kvennaliða var haldið í Golf & Country Club í Bled Sloveníu. Síðast þegar við sendum lið á EM kvenna þá var það í Karlstad í Svíþjóð 2005, þannig að það var tímabær ákvörðun að senda lið á þetta mót. Blandað lið hjá okkur, ungar stúlkur ásamt reynslumeiri

Síða 30 - Ársskýrsla 2009

spilurum. Sama fyrirkomulag var á þessu mót og hjá körlunum. Fyrri dagurinn gaf góðar vonir um árangur og liðið í níunda sæti í lok dags. Valdís (-1) og Signý (+1) og öll skor undir 80 sem töldu. Seinni dagurinn gekk ekki upp og endaði þannig að lakasta skor allra liða varð hjá okkar liði þennan dag og enduðum í 16.-17. sæti eftir höggleikinn. Valdís sú eina með góðan hring eða (+1) 74, aðrar léku yfir 80 höggum C riðill var því staðreynd. Daginn eftir byrjaði holukeppni þar sem keppt var við Slóveníu og vannst öruggur sigur 4-1. Þar sem þrjár þjóðir voru í riðlinum þá sátun við yfir og spiluðum síðan við Írland lokadaginn þar sem góður sigur vannst 3-2 og enduðum við því í 16. sæti í mótinu. Nokkur sárabót eftir höggleikinn en mikilvægt og gott að klára skildusigra og setja mótið í reynslubankann. European Young Master, Golf National Frakklandi. Skemmtilegt mót þar sem blandað var saman einstaklingmóti og liðakeppni. Keppnin er fyrir 16 ára og yngri í báðum flokkum og frábær vettvangur til að bera saman unglinga víðs vegar fra Evrópu. Liðakeppnin er þannig að tveir strákar og tvær stúlkur skipa liðið og þrjú skor telja hvern dag. Það voru 23 þrjár þjóðir sem tóku þátt og enduðum við í 16 sæti í þessu móti. Stelpurnar Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK og Sunna Víðsdóttir GR enduðu á sama skor og í 28.-29. sæti af 50 sem kepptu í þeirra flokki. Strákarnir Magnús Björn Sigurðsson GR í 42. sæti og Guðni Fannar Carisso GO í 36. sæti af 48 kependum í þeirra flokki. Finnish Amateur Open Championship, Helsingi Golf Club. Finnska Golfsambandið bauð okkar að senda 5 þátttakendur á þetta mót og átti fyrrverandi landsliðsþjálfari, Staffan vinur okkar Johansson eflaust hönd í bagga með þetta boð. Fyrirkomulag mótsins var höggleikur 54 holur með niðurskurð eftir 36 holur. Að gegnum niðurskurð fóru 36 í karlaflokki en 18 hjá kvennaflokki. Skemmst er frá því að segja að allir okkar keppendur náðu niðurskurðinum og var frábær árangur þar sem mótið var mjög sterkt og margir sterkir kylfingar . Flestir keppendur voru á þessu móti sem undirbúning fyrir Evrópumót einstaklinga, en þangað komast bara þeir sterkustu. Í karlamótinu endaði Hlynur Geir Hjartasson GK (-4) í fjórða sæti, Alfreð Brynjar Kristinnson GKG á pari í tíunda sæti og Ólafur Björn Loftsson NK (+3) í átjánda sæti. Stúlkurnar voru engir eftirbátar og endaði Eygló


Landsliðsverkefni 2009 Myrra Jónsdóttir (+8) í fimta sæti og Valdís Þóra Jónsdóttir GL (+10) í níunda sæti. Enduðu þær einnig í öðru sæti í liðakeppni sem spilað var jafhliða einstaklingsmótinu. Já frábær árangur hjá okkar fólki og Staffan ánægður fyrir okkar hönd og ekki síður þar sem hann átti þátt í því að koma okkur fólki inní mótið. Duke of York. Eins og undanfarin ár var Íslandsmeisturum í stúlkna og piltaflokki boðið að leika á Duke of York, en því miður hafði Eygló Myrra Óskarsdóttir GO, Íslandsmeistari í stúlknaflokki ekki tök á að taka þátt í þessu verkefni þar sem hún fór til náms til Bandaríkjanna. Haraldur Franklín Magnús GR var því einni keppendinn frá Íslandi á mótinu og endaði í 33.-36. sæti af 57 keppendum, lék hringina 3 á 237 höggum. Lokaorð Við verðum að átta okkur á breytingunum sem orðið hafa og vera tilbúin að mæta en meiri mótbyr en verið hefur í öflun tekna fyrir golfhreyfinguna. Vissulega koma upp hnökrar í aðhaldi hjá stóru sambandi eins og GSÍ er í dag. En markmið okkar er ætíð að fara ekki fram úr þeim áætlunum sem settar voru fram í byrjun. En þeim varð að breyta í takt við það sem inn kom í kassan enda viljum við ekki vera með stóran mínus á milli ára, það kemur bara niður á framtíðarstarfinu. Ekki svo að ég sé að gera þetta svartara en það er, en hógværð og lítillæti eiga eflaust meðbyr hjá öllum í dag. En að jákvæðum nótum, þá eru nokkri hlutir sem ekki hafa breyst að neinu marki. Öll eigum við kylfur, æfingabolta og aðgang að æfingasvæðum með lærðum kennurum, ásamt frábærum golfvöllum. Er þetta ekki undirstaðan til þess að bæta árangur sinn í golfi, jú og hornsteinn að rekstri golfhreyfingarinnar, í útbreiðslu golfíþróttarinnar til almennings og bættum árangri afrekskylfinga. Sem fyrr þá er vinnan á bak við þessa starfsemi í höndum skrifstofunnar þar sem Hörður Þorsteinsson stjórnar með Arnar Geirsson og Stefán Garðarson sér við hlið og framfylgja þeir ákvörðunum stjórnar GSÍ sem markar þá leið sem farin er. Frábært starf í mjög svo erfiðu umhverfi en endurspeglast í góðri samvinnu á störfum sem sjaldan eða aldrei sjást. Ég segi oft í góðu tómi að þeir afli tekna, en ég eyði þeim.

Að mínu mati var árið í ár eitt af okkar bestu árum í alþjóðlegum árangri og við getum verið stolt af þeim keppendum sem voru fulltrúar okkar. En meistarar verða ekki bara til í einhverji lukku, draumur um getu í golfi er góður draumur, en verða bara draumar. Því eins og ég hef sagt áður, þá æfir afreksmaðurinn á meðan þig dreymir dagdrauma um frægð. Látum verkin tala. Ragnar Ólafsson Liðstjóri og landliðseinvaldur GSÍ Evrópumót karla - Conwy Golf Club, Wales Axel Bóasson, GK Hlynur Geir Hjartarsson, GK Kristján Þór Einarsson, GKj Ólafur Björn Loftsson, NK Sigmundur Einar Másson, GKG Sigurþór Jónsson, GR Ragnar Ólafsson, liðstjóri Derrick Moore, kennari Evrópumót kvenna - Bled GC. Slóveníu Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR Ragna Björk Ólafsdóttir, GK Signý Arnórsdóttir, GK Valdís Þóra Jónsdóttir, GL Tinna Jóhansdóttir, GK Steinunn Eggertsdóttir, liðstjóri Karla Ómar Karlsson, kennari European Young Masters - Frakklandi Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK Sunna Víðisdóttir, GR Guðni Fannar Carrico, GO Magnús Björn Sigurðsson, GR Ragnar Ólafsson, liðstjóri Finnska Opna - Helsingi Golf Club Alfreð Brynjar Kristinnsson, GKG Hlynur Geir Hjartarsson, GK Ólafur Björn Loftsson, NK Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO Valdís Þóra Jónsdóttir, GL Ragnar Ólafsson, liðstjóri Duke of York - Skotland Haraldur Franklín, GR Hörður Þorsteinsson, fararstjóri

Ársskýrsla 2009 - Síða 31


Úrslit úr mótum GSÍ Stigameistarar 2009 Karlaflokkur 1. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG 2. Einar Haukur Óskarsson, GOB 3. Axel Bóasson, GK Piltar 17-18 ára 1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 2. Rúnar Arnórsson, GK 3. Andri Már Óskarsson, GHR Drengir 15-16 ára 1. Magnús Björn Sigurðsson, GR 2. Guðni Fannar Carrico, GO 3. Bjarki Pétursson, GB Strákar 13-14 ára 1. Ragnar Már Garðarsson, GKG 2. Ísak Jasonarson, GK 3. Ágúst Elí Björgvinsson, GK Kvennaflokkur 1. Signý Arnórsdóttir, GK 2. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 3. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK Stúlkur 17-18 ára 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 2. Jódís Bóasdóttir, GK 3. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO

2. Ragnar Már Garðarsson, GKG 3. Ástgeir Ólafsson, GR Kvennaflokkur 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 2. Signý Arnórsdóttir, GK 3. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK Stúlkur 17-18 ára 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 3. Jódís Bóasdóttir, GK Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Arndís Eva Finnsdóttir, GK 3. Sunna Víðisdóttir, GR Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 3. Þórdís Rögnvaldsdóttir, GHD

Íslandsmeistarar í holukeppni Karlaflokkur 1. Kristján Þór Einarsson, GKj 2. Einar Haukur Óskarsson, GOB 3. Magnús Lárusson, GKj

Kvennaflokkur 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 2. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK 3 Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO Stigamót 2 Karlaflokkur 1. Sigmundur Einar Másson, GKG 2. Þórður Rafrn Gissurarson, GR 3. Helgi Birkir Þórisson, GSE Kvennaflokkur 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 2. Ragna Björk Ólafsdóttir, GK 3 Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO Stigamót 3 Karlaflokkur 1. Einar Haukur Óskarsson, GOB 2. Björgvin Sigurbergsson, GK 3-4. Haraldur Franklín Magnús, GR 3-4. Andri Þór Björnsson, GR Kvennaflokkur 1. Signý Arnórsdóttir, GK 2. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 3 Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO

Piltar 17-18 ára. 1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 2. Andri Már Óskarsson, GHR 3. Haraldur Franklín Magnús, GR

Stigamót 4 Karlaflokkur 1. Ólafur Björn Loftsson, NK 2. Stefán Már Stefánsson, GR 3. Björgvin Sigurbergsson, GK

Drengir 15-16 ára 1. Magnús B. Sigurðsson, GR 2. Guðni Fannar Carrico 3. Guðni F. Oddsson, GS

Kvennaflokkur 1. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 2. Signý Arnórsdóttir, GK 3. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK

Júlíusarbikarinn Björgvin Sigurbergsson, GK

Strákar 13-14 ára 1. Ragnar M. Garðarsson, GKG 2. Kristinn R. Sigurðsson, GR 3. Ísak Jasonarson, GK

Stigamót 5 Karlaflokkur 1. Andri Þór Björnsson, GR 2. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG 3. Arnar Snær Hákonarson, GR

Efnilegust 2009, Karla- og kvennaflokkur Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Kvennaflokkur 1. Signý Arnórsdóttir, GK 2. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK 3. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG

Stigameistarar Klúbba Karlaflokkur, Golfklúbbur Reykjavíkur Kvennaflokkur, Golfklúbburinn Keilir Unglingaflokkur, Golfklúbburinn Keilir

Stúlkur 17-18 ára 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 2. Karen Guðnadóttir, GS 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Íslandsmeistarar í höggleik

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Halla B. Ragnarsdóttir, GR

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Halla Björk Ragnarsdóttir, GR Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 3. Bryndís María Ragnarsdóttir, GK

Karlaflokkur 1. Ólafur Björn Loftsson, NK 2. Stefán Már Stefánsson, GR 3. Björgvin Sigurbergsson, GK Piltar 17-18 ára 1. Haraldur Franklín Magnús, GR 2. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 3. Guðmundur Örn Árnason, NK Drengir 15-16 ára 1. Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, GHD 2. Björn Öder Ólason, GO 3. Guðni Fannar Carrico, GO Strákar 13-14 ára 1. Oliver Fannar Sigurðsson, GK

Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna S. Snorradóttir, GK 3. Þórdís Rögnvaldsdóttir, GHD

Íslenska mótaröðin Stigamót 1 Karlaflokkur 1. Magnús Lárusson, GKj 2. Axel Bóasson, GK 3. Örn Ævar Hjartarson, GS

Kvennaflokkur 1. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 2. Heiða Guðnadóttir, GKj 3. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK Stigamót 6 Karlaflokkur 1. Kristján Þór Einarsson, GKj 2. Einar Haukur Óskarsson, GOB 3. Magnús Lárusson, GKj Kvennaflokkur 1. Signý Arnórsdóttir, GK 2. Ásta Birna Magnúsdóttir, GK 3. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG

Mótaröð unglinga Stigamót 1 Piltar 17-18 ára. 1. Sveinn Gunnar Björnsson GO 2-3. Andri Már Óskarsson, GHR 2-3. Haraldur Franklín Magnús, GR


Úrslit úr mótum GSÍ Drengir 15-16 ára 1. Magnús B. Sigurðsson, GR 2-3. Elvar Aron Hauksson, GHG 2-3. Guðni Fannar Carrico

Stúlkur 17-18 ára 1. Jódís Bóasdóttir, GK 2-3. Karen Guðnadóttir, GS 2-3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 3. Þórdís Rögnvaldsdóttir, GHD

Strákar 13-14 ára 1. Ragnar M. Garðarsson, GKG 2. Ísak Jasonarson, GK 3. Pétur Magnússon, GK

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Tanja Rós Ingadóttir, GKj

Stigamót 6 Piltar 17-18 ára 1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 2. Rúnar Arnórsson, GK 3. Theodór Emil karlsson, GKj

Stúlkur 17-18 ára 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 2. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 3. Jódís Bóasdóttir, GK

Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 3. Særós Eva Ólafsdóttir, GKG

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Ásdís Eva Finnsdóttir, GK

Stigamót 4 - Íslandsmótið í holukeppni Piltar 17-18 ára. 1. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 2. Andri Már Óskarsson, GHR 3. Haraldur Franklín Magnús, GR

Strákar 13-14 ára 1. Ragnar Már Garðarsson, GKG 2. Ágúst Elí Björgvinsson, GK 3. Ísak Jasonarson, GK

Drengir 15-16 ára 1. Magnús B. Sigurðsson, GR 2. Guðni Fannar Carrico 3. Guðni F. Oddsson, GS

Stúlkur 17-18 ára 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 3. Jódís Bóasdóttir, GK 3. Auður Björt Skúladóttir, GK

Stigamót 2 Piltar 17-18 ára 1. Sveinn Gunnar Björnsson GO 2-3. Andri Már Óskarsson, GHR 2-3. Haraldur Franklín Magnús, GR

Strákar 13-14 ára 1. Ragnar M. Garðarsson, GKG 2. Kristinn R. Sigurðsson, GR 3. Ísak Jasonarson, GK

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Halla Björg Ragnarsdóttir, GR

Drengir 15-16 ára 1. Magnús B. Sigurðsson, GR 2-3. Elvar Aron Hauksson, GHG 2-3. Guðni Fannar Carrico

Stúlkur 17-18 ára 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 2. Karen Guðnadóttir, GS 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Bryndís María Ragnarsdóttir, GK 3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK

Strákar 13-14 ára 1. Ragnar M. Garðarsson, GKG 2. Ísak Jasonarson, GK 3. Pétur Magnússon, GK

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Halla B. Ragnarsdóttir, GR

Áskorendamótaröðin

Stúlkur 17-18 ára 1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 2. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 3. Jódís Bóasdóttir, GK

Stelpur 13-14 ára 1. Guðrún Pétursdóttir, GR 2. Anna S. Snorradóttir, GK 3. Þórdís Rögnvaldsdóttir, GHD

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Sunna Víðisdóttir, GR 3. Ásdís Eva Finnsdóttir, GK

Stigamót 5 - Íslandsmótið í höggleik Piltar 17-18 ára 1. Haraldur Franklín Magnús, GR 2. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR 3. Guðmundur Örn Árnason, NK

Stelpur 13-14 ára 1. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 2. Bryndís María Ragnarsdóttir, GK 3. Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, NK

Stelpur 13-14 ára 1. Anna Sólveig Snorradóttir, GK 2. Bryndís María Ragnarsdóttir, GK 3. Helga Kristín Gunnlaugsdóttir, NK

Drengir 15-16 ára 1. Sigurður Ingvi Rögnvaldsson, GHD 2. Björn Öder Ólason, GO 3. Guðni Fannar Carrico, GO

Stigamót 3 Piltar 17-18 ára 1. Rúnar Arnórsson, GK 2. Andri Már Óskarsson, GHR 3. Páll Theodórsson, GKj

Strákar 13-14 ára 1. Oliver Fannar Sigurðsson, GK 2. Ragnar Már Garðarsson, GKG 3. Ástgeir Ólafsson, GR

Drengir 15-16 ára 1. Hallgrímur Júlíusson, GV 2. Guðni Fannar Carrico 3. Bjarki Pétursson, GB

Stúlkur 17-18 ára 1. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO 2. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 3. Jódís Bóasdóttir, GK

Strákar 13-14 ára 1. Ágúst Elí Björgvinsson, GK 2. Ísak Jasonarson, GK 3. Kristinn Reyr Sigurðarsson, GR

Telpur 15-16 ára 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 2. Arndís Eva Finnsdóttir, GK 3. Sunna Víðisdóttir, GR

Drengir 15-16 ára 1. Magnús Björn Sigurðsson, GR 2. Emil Þór Ragnarsson, GKG 3. Guðni Fannar Carrico, GO

Mót 1 Strákar 14 ára og yngri 1. Birgir björn Magnússon, GK 2. Gísli Sveinbjörsson, GK 2. Fannar Ingi Steingrímsson, GHG Drengir 15-16 ára Hersir Aron Ólafsson, GR Svavar Guðjónsson, GR Egill Sölvi Harðarson, GR Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Karen Ósk Kristjánsdóttir, GR 3. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK Mót 2 Strákar 14 ára og yngri 1. Birgir Björn Magnússon, GK 2. Gísli Sveinbjörsson, GK 2. Eggert Kristján Kristmundsson, GR Drengir 15-16 ára 1. Egill Sölvi Harðarson, GR 2. Guðmundur Birkir Hálfdánarson, GK 3. Bjarki Dagur Sigurðarson, GK Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Erna Kristjánsdóttir, GK 3. Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK

Ársskýrsla 2009 - Síða 33



Úrslit úr mótum GSÍ Mót 3 Strákar 14 ára og yngri 1. Birgir Björn Magnússon, GK 2. Gísli Sveinbjörsson, GK 3. Elías Fannar Arnarsson, GK Drengir 15-16 ára 1. Daníel Hilmarsson, GSG 2. Guðmundur Birkir Hálfdánarson, GK 3. Þórhallur Arnar Vilbergsson, GSG Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK 3. Karen Ósk Kristjánsdóttir, GR Mót 4 Strákar 14 ára og yngri 1. Birgir Björn Magnússon, GK 2. Gísli Sveinbjörsson, GK 2. Kristján Leifur Sverrisson, GK Drengir 15-16 ára 1. Ólafur Dór Steindórsson, GHG 2. Daníel Hilmarsson, GSG 3. Þórhallur Arnar Vilbergsson, GSG Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Karen Ósk Kristjánsdóttir, GR 3. Eva Karen Björnsdóttir, GR Mót 5 Strákar 14 ára og yngri 1. Gísli Sveinbjörsson, GK 2. Birgir Björn Magnússon, GK 3. Eggert Kristján Kristmundsson, GR

2. Lovísa Sigurðardóttir, GR 3. Inga Magnúsdóttir Konur 50+ án forgjafar 1. María Málfríður Guðnadóttir, GKG 2. Erla Adolfsdóttir, GK 3. Kristín H Pálsdóttir, GK Konur 65+ án forgjafar 1. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir, GK 2. Inga Magnúsdóttir, GK 3. Lovísa Sigurðardóttir, GR Karlar 55+ með forgjöf Gísli B Blöndal, GR Sigurgeir Jónsson, GV Kristján Gunnar Ólafsson, GV Karlar 70+ með forgjöf 1. Magnús R Jónsson, GR 2. Jens Karlsson, GK 3. Kjartan Lárus Pálsson, NK Karlar 55+ án forgjafar 1. Jón Haukur Guðlaugsson, GO 2. Rúnar Svanholt, GR 3. Jóhann Peter Andersen, GK Karlar 70+ án forgjafar 1. Magnús R Jónsson, GR 2. Jens Karlsson, GK 3. Sigurjón Rafn Gíslason, GK

1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2. Golfklúbbur Reykjavíkur 3. Golfklúbburinn Kjölur Karlaflokkur, 2. deild 1. Nesklúbburinn 2. Golfklúbbur Setbergs 3. Golfklúbbur Öndverðarness Karlaflokkur, 3. deild 1. Golfklúbbur Húsavíkur 2. Golfklúbbur Bakkakots 3. Golfklúbbur Sauðárkrók Karlaflokkur, 4. deild 1. Golklúbbur Hveragerðis 2. Golfklúbur Sandgerðis 3. Golfklúbbur Vatnsleysustrandar Kvennaflokkur, 1. deild 1. Golfklúbburinn Keilir 2. Golfklúbbur Reykjavíkur 3. Golfklúbburinn Kjölu Kvennaflokkur 2. deild 1. Golfklúbburinn Leynir 2. Golfklúbburinn Mostri 3. Golfklúbbur Sauðarkróks Eldri kylfingar, Karlaflokkur 1. Golfklúbbur Reykjavíkur 2. Golfklúbbur Akureyrar 3. Golfklúbburinn Oddur

Íslandsmót 35 ára og eldri 1. flokkur, karla 1. Arnar Sigurbjörnsson, Gkj 2. Tryggvi Valtýr Traustason, GSE 3. Kristján Hilmir Gylfason, GA

Eldri kylfingar, kvennaflokkur 1. Golfklúbburinn Keilir 2. Golfklúbbur Suðurnesja 3. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar

2. flokkur, karla 1. Konráð Vestmann Þorsteinsson, GA 2. Ásbjörn Þ Björgvinsson, GA 3. Magnús Guðjón Hreiðarsson, GH

Drengir 16 ára og yngri 1. Golfklúbbur Borgarness og Odds 2. Golfklúbburinn Keilir, A-sveit 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, A-sveit

3. flokkur, karla 1. Þórður Már Jóhannesson, GR 2. Birkir Sveinsson, GK 3. Lórenz Þorgeirsson, GKG

Piltar 18 ára og yngri 1. Golfklúbbur Reykjavíkur 2. Golfk. Akureyrar, Sauðarkróks, Hamar 3. Golfklúbburinn Keilir

4. flokkur, karla 1. Halldór Örvar Stefánsson, GSE 2. Hans Guðmundsson, GO 3. Jón Kristján Ólason, GR

Stúlkur 18 ára og yngri 1. Golfklúbbur Reykjavíkur, A-sveit 2. Golfklúbburinn Keilir, A-sveit 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, B-sveit

Drengir 15-16 ára 1. Daníel Hilmarsson, GSG 2. Bjarki Dagur Sigurðsson, GK 3. Þórhallur Arnar Vilbergsson, GSG

1. flokkur, kvenna 1. Andrea Ásgrímsdóttir, GA 2. Þórdís Geirsdóttir, GK 3. Sólveig Ágústsdóttir, GR

Bikarinn Landsbyggðin vann með 17 vinningum gegn 7.

Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Karen Ósk Kristjánsdóttir, GR 3. Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK

2. flokkur, kvenna 1. Leanne Carol Leggett, GA 2. Dóra Henriksdóttir, GVG 3. Indíana Auður Ólafsdóttir, GHD

Íslandsmót eldri kylfinga

3. flokkur, kvenna 1. Jónína Rútsdóttir, GR 2. Ásta Andreassen, GR 3. Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir, GK

Drengir 15-16 ára 1. Daníel Hilmarsson, GSG 2. Bjarki Dagur Sigurðsson, GK 3. Jóhann Garðar Blöndal, GS Stelpur 14 ára og yngri 1. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 2. Karen Ósk Kristjánsdóttir, GR 3. Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK Mót 6 Strákar 14 ára og yngri 1. Gísli Sveinbjörsson, GK 2. Birgir Björn Magnússon, GK 3. Hinrik Þráinn Örnólfsson, GKG

Konur 50+ með forgjöf 1. María Málfríður Guðnadóttir, GKG 2. Kristín H Pálsdóttir, GK 3. Erla Adolfsdóttir, GK

Sveitakeppni Konur 65+ með forgjöf 1. Sigrún Margrét Ragnarsdóttir, GK

Karlaflokkur, 1. deild

Ársskýrsla 2009 - Síða 35


Golfsamband テ行lands Stofnaテー 1942 Engjavegi 6 104 Reykjavテュk Sテュmi: 514-4050 Fax: 514-4051 gsi@golf.is www.golf.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.