Golf á Íslandi - 3. tbl. 2014

Page 78

Þegar ég spila golf erlendis er ég oft spurð hve margir golfvellir séu á Íslandi. Þegar ég segi 60-70 verður fólk skiljanlega gapandi hissa. Allt í kringum landið eru vellir sem byggðir hafa verið upp af hugsjónafólki með þann draum að geta leikið golf á heimaslóðum.

Barna- og unglingastarf á landsbyggðinni:

Dæmi um slíka velli eru á Blönduósi og Skagaströnd, þar sem ég hef haldið námskeið fyrir börn og unglinga, í sumar og fyrrasumar. Á síðasta námskeiði voru 16 krakkar á Blönduósi og 14 á Skagaströnd og hefur þeim fjölgað töluvert frá því í fyrra. Þarna eru áhugasamir og efnilegir kylfingar sem, því miður, fá ekki næga þjálfun vegna þess að klúbbarnir hafa ekki bolmagn til að halda úti reglulegum æfingum. En hverjir eru kostir þess að krakkar um allt land geti lært og leikið golf? Hreyfing og útivera eru óumdeildir kostir. Á níu holum eru gengnir fjórir til fimm kílómetrar um holt og hæðir og oftast í góðum félagsskap. Golf er einstaklingsíþrótt þannig að hver og einn iðkandi leikur á eigin forsendum sem hentar mörgum betur en hópíþróttir. Það er því til mikils að vinna að efla golfíþróttina á landsbyggðinni. Dalvík er dæmi um bæ sem hefur lagt mikinn metnað í barna- og unglingastarf og þar kennir Heiðar Davíð Bragason krökkunum golf árið um kring með frábærum árangri. Ég vil hvetja bæjaryfirvöld á Blönduósi, Skagaströnd og annars staðar að íhuga hvernig stutt er við bakið á ungum kylfingum. Er regluleg og góð kennsla? Er auðvelt fyrir krakkana að komast á golfvöllinn? Er góð æfingaaðstaða yfir veturinn? Íþróttaiðkun barna og unglinga er gott veganesti út í lífið og þar er golfið fremst í flokki. Kær kveðja Hulda Birna Baldursdóttir PGA Trainee Golfkennaranemi

Tíu ástæður af hverju börn ættu að leika golf Foreldrar ættu að hrífast af golfinu vegna þeirra gilda sem þar eru höfð í heiðri. Hér eru tíu ástæður sem vinur minn Páll Sveinsson formaður Barna og unglingaráðs GHG benti á í grein í fyrra: 1. Auðmýkt og virðing. Golfið fer fram á að iðkendur þess sýni hverjum öðrum virðingu, jafnt innan sem utan vallar. Auðmýkt fyrir náttúrunni, virðingu fyrir þér og öðrum með heiðarleika og kurteisi að leiðarljósi. 2. Stundvísi. Á hverjum degi leika hundruð iðkenda golfvelli landsins. Til þess að slíkt geti farið fram með eðlilegum hætti og án árekstra er farið fram á rástímaskráningu. Ef tímar skráningarinnar eru ekki virtir missir þú af þínum hring. Sama gildir um mót, ef þú mætir ekki á réttum tíma tekur þú ekki þátt. 3. Heiðarleiki. Börn læra heiðarleika af golfi, svindl líðst ekki og þátttakendur læra að taka ábyrgð á sinni hegðun og framkomu á golfvellinum. 4. Öryggi. Golfkylfur og boltar geta verið hættuleg tæki ef þeim er ekki rétt beitt. Lögð er áhersla á að iðkendur séu meðvitaðir um það og að þeir hugi að öryggi og gæti þess hið fyllsta við sína golfiðkun. Þetta læra iðkendur og heimfæra á aðra þætti lífsins. 5. Þögn. Golfíþróttin krefst mikillar einbeitingar. Svo slík einbeiting náist er nauðsynlegt að iðkendur fái næði til að einbeita sér á meðan golfhögg er slegið. Þá læra börn að sýna hverju öðru virðingu og tillitssemi. 6. Ímyndunarafl. Kylfingar læra að virkja ímyndunaraflið hvort sem það er daginn fyrir mót, í leik eða við æfingar. Fyrir hvert högg þarf að sjá hvaða afleiðingar val á verkfæri (kylfu) og hvernig það er framkvæmt hefur á útkomuna. 7. Vandamálalausnir. Tré, vindur, rigning, sandglompur og skurðir eru hluti af golfleiknum. Barn sem lærir að takast á við vandamál í leik er líklegra til að geta brugðist við vandamálum sem koma upp í hinu daglega lífi. 8. Einbeiting. Eins og áður hefur komið fram krefst golfið einbeitingar. Þrátt fyrir mikla einbeitingu er eðli golfíþróttarinnar þannig að auðvelt er að gera mistök. Golfið kennir sínum þátttakendum að mistök eru hluti af leiknum og þeim ber að taka af auðmýkt en ekki láta þau brjóta sig niður. 9. Æfing, þrautseigja og hlustun. Afar sjaldgæft er að árangur náist í golfi strax í upphafi. Til þess að ná árangri verða iðkendur að æfa mikið og halda æfingum stöðugum og til streitu ásamt því að vera opnir fyrir tilsögn. Börn sem tileinka sér þetta eru reiðubúin í áskoranir hins daglega lífs. 10. Tignarleiki. Í golfinu læra börn virðingu fyrir fullorðnum og hverju öðru. Í lok hvers golfhrings takast þátttakendur í hendur, barn (iðkandi) hlær ekki að óförum keppinautar né sýnir honum vanvirðingu á annan hátt.

78

GOLF Á ÍSLANDI • www.golf.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.