Sjálfbærniskýrsla Húsasmiðjunnar 2023

Page 1

Húsasmiðjunnar

Samfélagið, umhverfið og efnahagur 2023

2
Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Efnisyfirlit

Ávarp forstjóra

Fyrirtækið

Um fyrirtækið

Stjórnarhættir

Aðild að samtökum

Viðskiptalíkan

Aðfangakeðja

Áherslur á UFS þáttum

Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur

Hagaðilar

Markmið okkar

Heimsmarkmiðin

Umhverfisþættir

Loftslagsáhrif Húsasmiðjunnar

Markmið og árangur í umhverfisþáttum sjálfbærni

Minni sóun - meiri nýting

Umhverfisstefna

Grænar vörur

Virðiskeðjan

Tímalína

Félagslegir þættir

Mannauður

Fjölbreytileiki og jafnrétti

Jafnlaunavottun

Húsasmiðjuskólinn

Fagnám í verslun

Starfsþróun

Heilsa og öryggi

Öryggismál

Markmið og árangur

Samfélagsstyrkir

Efnahagslegir þættir

Stefnumótun Húsasmiðjunnar 2023-2025

Sjálfbærni áhættur og tækifæri

Stafrænar lausnir

Rafræn skjöl

Húsasmiðjuappið

Sjálfsafgreiðslukassar

Markmið 2023 og 2024

Viðauki

GRI tilvísanir

ESG 2022

3

Ávarp forstjóra

Húsasmiðjan hefur skýr markmið í átt til sjálfbærrar

þróunar og leitar leiða til að hafa jákvæð áhrif út í samfélagið sem og að minnka neikvæð áhrif á umhverfið á meðan efnahagslegum þáttum er mætt. Við leitum stöðugt að nýjum lausnum sem hafa minni umhverfisáhrif og var margt lagt til í þá átt árið 2023. Ábyrgð seljenda byggingarefna er mikil og það er hröð þróun á markaðnum varðandi nýjungar í byggingarefnum.

Húsasmiðjan er nú formlega vottaður söluaðili FSC og

PEFC vottaðs timburs, fyrst byggingavörukeðja á Íslandi. Um ræðir alþjóðleg vottunarkerfi sem tryggja sjálfbærni og rekjanleika timburs en vottað timbur er skilyrði í flestar vistvænar byggingaframkvæmdir. Þessar vottanir tryggja að timbrið komi úr sjálfbærum skógum sem er viðhaldið

með plöntun fleiri trjáa en eru felld. Þau vernda líf og vistkerfi skóga sem og samfélagsins í heild.

Keppst er við að minnka kolefnisfótspor fyrirtækisins með því að minnka sóun á öllum sviðum rekstursins hvort sem um ræðir að draga úr eldsneytisnotkun farartækja, rafmagnsnotkun eða fullnýtingu á byggingarefnum. Stór liður í því var að fá fyrsta rafkranabílinn afhentann sl. vor, hann er meðal fyrstu sinnar tegundar í heimi þar sem kraninn gengur einnig fyrir rafmagni og styður við losunarlausa byggingarstaði. Kranabílar þurfa almennt að vera í lausagangi þegar glussakranar eru notaðir en rafkraninn kemur í veg fyrir staðbundna mengun og er ekki heilsuspillandi fyrir þá sem vinna á verkstað. Rafkranabíllinn hefur verið vinsæll kostur í vistvæn verkefni þar sem kolefnissporið er reiknað í lífsferilsgreiningu bygginga ásamt því að hann nýtist vel í aðra vörudreifingu.

Húsasmiðjan stuðlar að hringrásarhagkerfi á byggingar-

4
2023
Sjálfbærniskýrsla
Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.
fyrirtækisins með því að minnka
á öllum sviðum rekstursins hvort sem um ræðir að draga úr eldsneytisnotkun farartækja, rafmagnsnotkun eða fullnýtingu á byggingarefnum.
Keppst er við að minnka kolefnisfótspor
sóun

Sjálfbærniskýrsla 2023

efnum þar sem efni sem áður féllu til sem úrgangur og fóru í urðun hafa öðlast nýtt líf í endurnýtingu og endurvinnslu.

Sem dæmi skilar Húsasmiðjan frauðplasti til endurnýtingar sem er nýtt til einangrunar í mannvirkjum og litaðrar plastfilmu sem fer í framleiðslu á öðrum vörum. Ferlar í fullnýtingu efna hafa verið settir fram á öllum starfsstöðvum

sem og ábyrgari úrgangsferlar eins og endurvinnsla hérlendis. Sem dæmi þá er endurvinnsla á plasti hér á landi talin hafa 82% minni loftslagsáhrif en þegar það er sent út til Evrópu í endurvinnslu. Með markvissum aðgerðum var samdráttur upp á 67 tonn af úrgangi á einu ári og bestun ferla er að sjálfsögðu áframhaldandi.

Fyrirtækið er sífellt að bæta aðgengi viðskiptavina með nýrri upplýsingatækni sem veitir þeim yfirlit yfir þær byggingavörur sem þeir hafa keypt yfir ákveðið tímabil eða eru merktar ákveðnu verki. Þá geta viðskiptavinir verið með greinargott yfirlit yfir sín reikningsviðskipti, séð umhverfisvottanir vara ásamt því að hlaða til sín þeim vottunar- og fylgiskjölum sem þeim fylgja.

Í nóvember opnaði Húsasmiðjan glæsilega nýjun verslun við Larsenstræti á Selfossi sem jafnframt hýsir útibú Blómavals og Ískraft. Nýja byggingin er mun hagkvæmari í rekstri en fyrrverandi verslun og nútímaleg lýsing og hússtýringarkerfi tryggja umhverfislegan rekstrarávinning. Einnig opnaði Ískraft nýja glæsilega starfsstöð á Höfðabakka í Reykjavík en allt húsnæðið var nýuppgert og sérsniðið að þörfum Ískraft.

Húsasmiðjan finnur fyrir sífellt auknum almennum áhuga á sjálfbærnimálum sem er mjög jákvætt. Þetta er víðfemt og mikilvægt málefni, þar sem allir eiga rétt á heilnæmu og góðu húsnæði sem styður við góð lífsgæði. Við hjá Húsasmiðjunni munum sem fyrri ár halda markvisst áfram að þróa vöruframboð okkar, bæta verkferla til minnkunar sóunar og fræða starfsfólk og viðskiptavini okkar um nýjungar sem stuðla að aukinni sjálfbærni. Nýjar reglugerðir sem lúta að sjálfbærni munu hjálpa íslenskum fyrirtækjum að taka næstu skref til bjartrar framtíðar. Í breytingunum leynast tækifærin.

5

Fyrirtækið

Markmið Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts er að veita

framúrskarandi þjónustu í sátt

við umhverfið og samfélagið

6

Sjálfbærniskýrsla 2023

Um fyrirtækið

Húsasmiðjan er leiðandi byggingavöruverslun á landsvísu með breitt vöruúrval, dreifingu og þjónustu.

Fjöldi starfsmanna

545 þar af 150 konur.

Framkvæmdastjórn

8 manns og þar af 2 konur.

Heimsmarkmiðin

Húsasmiðjan vinnur að sjö heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Ný starfsstöð

Ný og glæsileg starfsstöð Húsasmiðjunnar, Blómaval og Ískraft á Selfossi opnaði í nóvember 2023, allt undir sama þaki. Einnig opnaði glæsileg starfsstöð Ískraft á Höfðabakka 7, Reykjavík í júlí 2023.

Höfuðstöðvar Þekking

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru staðsettar í Kjalarvogi 12.

Áhersla er lögð á á hæfni og þekkingu starfsfólks m.a. með rekstri Húsasmiðjuskólans.

7

Sjálfbærniskýrsla 2023

Við erum hluti af BYGMA

Húsasmiðjan er hluti af dönsku byggingavörukeðjunni BYGMA sem starfrækir verslanir í Danmörku, Svíþjóð, Íslandi, Færeyjum og Grænlandi. Hjá BYGMA starfa um 2.700 manns í yfir 100 verslunum. BYGMA er danskt fjölskyldufyrirtæki, stofnað árið 1952 og er í dag ein af leiðandi byggingarvöruverslunarkeðjum í Danmörku.

Starfsstöðvar verslana

14 Húsasmiðjuverslanir

2 Vöruhús 7 Blómavalsverslanir 4 Ískraft verslanir

8
5 2

Sjálfbærniskýrsla 2023

Stjórnarhættir

Stjórnskipulag - framkvæmdastjórn

Framkvæmdastjórn tekur allar stefnumótandi ákvarðanir og þar með ákvarðanir varðandi sjálfbærni. Verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála starfar á mannauðssviði og vinnur náið með framkvæmdastjórn um tiltekin málefni.

Mannauður og samfélag

Edda Björk Kristjánsdóttir

Verslanasvið

Guðrún Tinna Ólafsdóttir

Rekstrarsvið

Magnús G. Jónsson

Forstjóri Árni Stefánsson

Fagsölusvið

Sigurður Orri Jónsson

Vörusvið

Pétur Andrésson

Markaðsmál

Magnús Magnússon

Stjórn og stjórnendur Húsasmiðjunnar hafa sett sér það markmið að viðhafa góða stjórnarhætti. Stjórnarhættir félagsins eru í samræmi við lög nr 138/1994 um einkahlutafélög og samþykktir félagsins. Félagið fylgir leiðbeiningunum um stjórnarhætti sem útgefnir eru af Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Leiðbeiningarnar má finna á leidbeiningar.is. Félagið víkur frá leiðbeiningum þar sem félagið hefur ekki tilnefningarnefnd, endurskoðunarnefnd, framkvæmir ekki árangursmat. Hlutfall kynja í stjórn uppfyllir ákvæði laga um einkahlutafélög um kynjahlutföll í stjórnum félaga sem eru með 3 stjórnarmenn og fleiri en 50 starfsmenn, þar sem í stjórn er ein kona og tveir karlar.

9
Ískraft Brynjar Stefánsson

Sjálfbærniskýrsla 2023

Flokkunarreglugerð ESB (EU Taxonomy)

Evrópska flokkunarreglugerðin felur í sér samræmdar og auknar kröfur til fyrirtækja er varða upplýsingagjöf og gagnsæi sem viðkemur sjálfbærni. Húsasmiðjan fellur undir gildissvið þessarar löggjafar sem var lögfest á Íslandi þann 1. júní 2023.

Húsasmiðjan vinnur að því að greina reksturinn eins og lýst er í flokkunarreglugerðinni. Við fyrstu skoðun þá eru vöruflutningar Húsasmiðjunnar eina atvinnustarfsemin sem er gjaldgeng (e. eligible) og fellur undir reglugerðina. Unnið verður áfram að því að greina starfsemi Húsasmiðjunnar og skoða hvort gjaldgeng starfsemi falli að kröfum (e. aligned) reglugerðarinnar.

Húsasmiðjan hefur ekki greint að fullu lágmarks verndarráðstafanirnar er varða mannréttindi, spillingu og mútumál, samkeppni og skattamál. Því verður lokið 2024 og greint frá í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar fyrir það ár. Húsas-

miðjan hefur skýra stefnu varðandi spillingar- og mútumál sem kynnt hefur verið starfsfólki Húsasmiðjunnar.

Leiðbeiningar um það eru aðgengilegar í gæðahandbók félagsins inni á innri vef Húsasmiðjunnar. Þá hafa verið innleiddar siðareglur fyrir vörustjóra. Reglur um móttöku reiðufjár hafa einnig verið innleiddar, sjá nánar í yfirliti yfir mikilvægar innri reglur.

Mikilvægisgreining

Húsasmiðjan hefur hafið vinnu við mikilvægisgreiningu til að undirbúa komandi löggjöf um sjálfbærni-upplýsingar eða CSRD (Corporate Sustainability Reporting Directive).

Fyrstu niðurstöður mikilvægisgreiningarinnar endurspegla kjarnarekstur og lykiláskoranir fyrirtækisins og staðfestir að sjálfbærni er hluti af allri starfsemi Húsasmiðjunnar.

Greining er gerð í samræmi við kröfur ESRS staðlanna sem fylgja CSRD löggjöfinni þar sem mikilvægir sjálfbærniþættir eru greindir ásamt áhættu, tækifærum og áhrifum.

Aðild að samtökum

Húsasmiðjan er aðili að Viðskiptaráði Íslands, Samtökum verslunar og þjónustu, Samtökum atvinnulífsins og Stjórnvísi. Einnig er fyrirtækið aðili að Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, ásamt samtökunum Grænni byggð.

10

Sjálfbærniskýrsla 2023

Viðskiptalíkan

Unnið eftir lögum og reglugerðum, kjarasamningum o.fl.

Val okkar:

Kostnaður, umhverfi, gæði og skilmálar

Kjarni Húsasmiðjunar byggir á sérþekkingu mannauðs. Með henni veitum við þjónustu og ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja. Húsasmiðjan byggir á traustum og ábyrgum viðskipta- og birgjasamböndum. Í krafti stærðar getur

Húsasmiðjan boðið upp á hagstæð verð til neytenda og þróað viðskiptalausnir. sem eykur framleiðni og minnkar sóun.

Vöruhús Lyftarar

Náttúruauðlindir

- Umhverfisvottanir

- Mannréttindi

- Líffræðilegur fjölbreytileiki

Flutningar Umhverfi Mannauður Birgjar

- Gæði

- Verð

- Umhverfisvottanir

- Kostnaður

- Mannréttindi - Losun GHL

- Ábyrg innkaupastefna

- Umhverfisvænni valkostir

- Umbætur v. losunar á GHL

- Bestun ferla, úrgangur

- Hringrásarhagkerfið

- Líffræðilegur fjölbreytileiki

- Heilsusamlegt vinnuumhverfi

- Jafnrétti og fjölbreytileiki

- Fræðsla og þekking

- Öryggi

- Aðlögun að loftslagsbreytingum

11
ÁHERSLUR Í DAG FRAMTÍÐAR ÁHERSLUR

Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Við erum leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á bygginga- og heimilisvörumarkaði.
Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu, rétt vöruúrval og samkeppnishæft verð í sátt við umhverfi og samfélag

Verslanir

Fjármagn Þróun og ferlar

- Hugað að fastafjármunum félagsins

- Umbreyting yfir

í vistvæna kosti

- Stafræn þróun

- Bestun ferla

Viðskiptavinir

- Upplýsingagjöf

- Þjónustuvefur

- Einfalt ferðalag

- Pappír

- Fjarþjónusta/vefverslun

Hús og heimili

- Gæði og þjónusta á góðu verði

FYRIR ÞIG

* Heimsmarkmiðin tengjast á einn eða annan hátt við viðskiptalíkan, sjá nánar útlistun á bls. 23

12
ÁHERSLUR Í DAG

Sjálfbærniskýrsla 2023

Birgjar/ framleiðandi

Húsasmiðjan verslun og vörugeymsla

Aðfangakeðja

Ráðgjöf og sala

Dreifing og afhending

Viðskiptavinur í verslun

Vefverslun husa.is Pöntunaraðili

Byggingarsvæði og viðskiptavinur

13

Sjálfbærniskýrsla 2023

Vörusvið

Stýring aðfangakeðjunnar er í höndum Vörusviðs. Níu vörustjórar Húsasmiðjunnar bera ábyrgð á samningum og innkaupum frá birgjum. Þá eru flutningar til landsins og dreifingar innanlands einnig stjórnað af vörusviði.

Norðurlöndunum og Eystrarsaltsríkjunum. Húsasmiðjan kappkostar að veita viðskiptavinum sínum allar nauðsynlegar vottanir til að uppfylla skilyrði BREEAM, LEED og Svansvottaðra bygginga. Húsasmiðjan horfir til sjálfbærni við val á birgjum.

Innkaup

Húsasmiðjan flytur inn langstærstan hluta af vöruframboði sínu frá viðurkenndum Evrópskum birgjum. Rúmlega 20% vöruframboðs kemur frá innlendum framleiðendum og heildsölum. Timbur og plötur koma aðallega frá

Vöruflutningur

Í sjóflutningum notar Húsasmiðjan annars vegar línuskipafélögin Eimskip, Samskip og Smyril Line. Hins vegar leiguskip frá Eystrasaltslöndunum þar sem timbur, plötur, stál og önnur grófvara er lestuð. Skipin leggjast að bryggju í 100 metra fjarlægð frá vöruhúsi okkar þar sem lyftarar keyra efnið beint frá skipi inn í vöruhús. Með því erum við að tryggja flutning frá skipshlið í vöruhús á sem vistvænasta máta.

Stórt skref í minnkun kolefnisfótspors Húsasmiðjunnar í flutningum var tekið á vormánuðum 2023 þegar Húsasmiðjan fékk einn af fyrstu rafmagnsvörubílum landsins. Með þessu er Húsasmiðjan í fararbroddi í innleiðingu umhverfisvæns flutningamáta.

Vöruhús

Húsasmiðjan rekur tvö vöruhús. Holtagarðar 10 þar sem allar smávörur eru hýstar og Kjalarvogur 14 þar sem allar grófar byggingavörur; timbur, plötur, stál, einangrun o.fl eru hýstar. Þaðan er vörum dreift til verslana og viðskiptavina, flutningur þaðan eru bæði á bílum Húsasmiðjunnar og þriðja aðila.

Vottaðar vörur

Í vöruúrvali Húsasmiðjunnar er að finna þúsundir vörunúmera sem hafa hlotið umhverfisvottun og hægt að fá yfirlit yfir allar vottaðar vörur í vöruúrvalinu og auðvelt að nálgast skjöl yfir vottanir og allar tækniupplýsingar sem sótt eru í gagnagrunn sem sífellt er uppfærður. Græn vara

14

Sjálfbærniskýrsla 2023

Áherslur á UFS þáttum

Áherslur Húsasmiðjunnar á UFS þáttum til sjálfbærrar þróunar (umhverfis-, félags- og stjórnarháttum).

Umhverfisþættir

- Samdráttur á losun GHL

- Úrgangsmál

- Hringrásarhagkerfi

- Líffræðilegur fjölbreytileiki

- Loftslagsbreytingar af völdum GHL

- Minnka sóun

- Minnka vistspor virðiskeðju

- Auka framboð á heilsuverndandi og eiturefnalausum byggingarefnum

Félagslegir þættir

- Jöfn kjör

- Fjölbreytileiki

- Öryggismál

- Heilsa og heilbrigði

- Mannréttindi í virðiskeðju

- Fræðsla

Stjórnarhættir

- Þrír stjórnarmenn sitja stjórnarfundi

- Kynjahlutfall er 33% konur 66% karlar og er í

samræmi við lög þar um

- Stjórnin hefur sett sér markmið um ábyrga

stjórnarhætti í samræmi við leiðbeiningar frá viðskiptaráði

- Stjórnin víkur frá leiðbeiningum er varðar

stjórnar og endurskoðunarnefndir

15

Sjálfbærniskýrsla 2023

Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur

Listi yfir reglur og stefnur Húsasmiðjunnar sem varðar þætti í starfsemi fyrirtækisins

• Heilsustefna

• Viðverustefna

• Netöryggisstefna

• Umhverfisstefna

• Stefna og viðbragðsáætlun við einelti og áreitni

• Siðareglur

• Mannauðsstefna

• Fræðslustefna

• Gæðastefna

• Jafnlaunastefna

• Jafnréttisstefna

• Samkeppnisréttarstefna

• Persónuverndarstefna

• Reglur um vernd uppljóstrara

• Reglur um móttöku reiðufé

16

Sjálfbærniskýrsla 2023

Hagaðilar

Allt starfsfólk Húsasmiðjunnar er á launum samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Húsasmiðjan hefur ekki farið í sérstaka greiningu á hagsmunaaðilum heldur notast við innri skilgreiningu og gerir reglulega viðhorfskannanir á meðal viðskiptavina og starfsmanna varðandi þjónustu og starfsánægju innan fyrirtækisins. Einnig eru framkvæmd reglulega starfsmannaviðtöl og haldnir upplýsingafundir.

Um skýrsluna

Efnistök skýrslunnar og viðfangsefni byggja á greiningarvinnu sem gerð var af völdum einstaklingum innan fyrirtækisins. Byggir það á hvernig fyrirtækið getur stutt við hagsmunaaðila og viðskiptavini í því að byggja á sjálfbærari hátt. Jafnframt tengjast þau útvöldum Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem Húsasmiðjan telur að tengist beint eða óbeint starfsemi fyrirtækisins.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir rekstri starfstöðva Húsasmiðjunnar á Íslandi, þar með talið Blómaval og Ískraft (sjá mynd bls. 9). Þau gögn sem koma fram varðandi losun fyrirtækisins afmarkast við beina og óbeina losun frá rekstri fyrirtækisins. Skýrslan afmarkast við starfsemi Húsasmiðjunnar.

Upplýsingar í skýrslunni er fengnar úr ársreikningi og umhverfisuppgjöri fyrirtækisins og eiga við árið 2023. Söfnun gagna og útreikningur á kolefnisfótspori og tengdum lykilmælikvörðum Húsasmiðjunnar, Blómavals og Ískrafts er unninn af starfsmönnum Klappa grænna lausna hf. Nýtt er hugbúnaðarlausn Klappa sem byggir á áreiðanlegri

og gagnsærri upplýsingaöflun, bæði frá fyrirtækinu og þriðja aðila. Hugbúnaðarlausn Klappa hefur hlotið vottun á umhverfisútreikningum, umfang 1, umfang 2 og umfang 3 samkvæmt GHG Protocol staðli. UFS taflan er framsett skv. leiðbeiningum Nasdaq, útgefnum á íslensku árið 2019 og vísað er í helstu alþjóða leiðbeiningar og staðla m.a. í

viðeigandi GRI staðla, UN Global Compact og Heimsmarkmið. Auk þess er horft til væntanlegs Evrópustaðals, draft

ESRS E-1 Climate Change. Þannig tryggir kerfi Klappa að útreikningar og upplýsingar sem birtar eru í UFS töflu uppfylli kröfur viðeigandi staðla sem unnið er með í kerfi

Klappa og vísað er til í UFS töflu. Upplýsingar varðandi samfélagsuppgjör eru fengin úr innri kerfum fyrirtækisins.

Í skýrslunni eru viðfangsefnin fjölbreytt og mörg þeirra

hafa beina eða óbeina tengingu við Heimsmarkmiðin. Meðal þess sem fjallað er um eru umhverfismál og losun gróðurhúsalofttegunda, samfélagslegir þættir á vinnustað s.s. jafnrétti á vinnustað, starfsöryggi og vinnuvernd, mannauður, vistvænar vörur og umhverfisvottanir.

Húsasmiðjan hefur frá árinu 2019 verið hluti af samfélagsskýrslu Bygma samsteypunnar og mun halda því áfram ásamt því að gefa út sína eigin sjálfbærniskýrslu.

Skýrslan er unnin með upplýsingum sem vísað er í GRI tilvísunartöflu með tilvísunum (GRI content index with reference) sem tók gildi 1. janúar 2023 og er fyrir tímabilið 1. janúar 2023 til 31. desember 2023 í samræmi við GRI staðla. Upplýsingar eru ekki yfirfarnar af þriðja aðila.

Samstarfsaðilar, stjórnvöld, eigendur, félagasamtök og hagsmunasamtök

Viðskiptavinir, verktakar, birgjar og starfsfólk

Húsasmiðjan

17

Húsasmiðjan hefur frá árinu 2019 verið hluti af samfélagsskýrslu

Bygma samsteypunnar og mun

halda því áfram ásamt því að gefa út sína eigin sjálfbærniskýrslu

Emilía Borgþórsdóttir, verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála. emilia@husa.is.

18
Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Markmið okkar

Lykiltölur

Húsasmiðjan er leiðandi verslunar og þjónustufyrirtæki á bygginga-og heimilisvörumarkaði. Markmið fyrirtækisins er að veita framúrskarandi þjónustu, rétt vöruúrval og samkeppnishæft verð, í sátt við umhverfi og samfélag.

Velta milljarður

Fjöldi starfsmanna

26,608

545 (konur 157)

Heildar fermetrafjöldi húsnæðis

68.556

Brúttó kolefnislosun

728,2

tCO2í

Kolefnislosun eftir kolefnisbindingu

274,1

tCO2í

19

Heimsmarkmiðin

Húsasmiðjan og Bygma samstæðan hafa greint sjö meginmarkmið af heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna til að vinna með útfrá rekstrinum

Húsasmiðjan stuðlar að sjálfbærni innan byggingageirans á Íslandi

Markmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun Sjö markmið Húsasmiðjunnar

3 Heilsa og vellíðan 4 Menntun fyrir alla 5 Jafnrétti kynjanna

7 Sjálfbær orka 8 Góð atvinna og hagvöxtur

12 Ábyrg neysla og framleiðsla 15 Líf á landi

20
Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Heimsmarkmiðin

Umhverfið

Samfélagið

Innri markmið

Aukið hlutfall umhverfisvottaðra vara

Minnka orkunotkun

Auka sorpflokkun og draga úr sorpi

Lífshlaupið og hjólað í vinnuna.

Innri og ytri

Ytri markmið

Fara í átt að hringrásarhagkerfi

Auka hlutfall rafbíla og hleðslustöðva

Ýta undir líffræðilegan fjölbreytileika

Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda

Þátttaka í loftslagsverkefni SoGreen

Fræðsla til viðskiptavina

Rafræn viðskipti

Kaup á FSC og PEFC vottuðu timbri

Innri markmið

Jafnlaunavottun og jöfn kjör fyrir alla

Fagnám í verslun

Auka starfsánægju

Styrkir til líkamlegrar og andlegrar heilsu

Bólusetningar gegn inflúensu

Öryggi og vinnuvernd

Heilsudagar með fræðslu

Frekari menntun starfsfólks

Húsasmiðjuskólinn

Styðja við einstaklinga með skerta starfsgetu

Heilsufarsmælingar

Ytri markmið

Samstarf við félag fagkvenna

Seljum ekki vímugjafa.

Samfélagsstyrkir

Efnahagur

Innri markmið

Minnka sóun með bættum ferlum

Arðbær rekstur

Hagkvæmni í rekstri og innkaupum

Aukið hlutfall á grænt fjármagn

Ytri markmið

Stafræn þróun

Gott viðskiptasiðferði og heilbrigðir starfshættir

21

Umhverfisþættir

Grænar vörur eru betri fyrir þig og umhverfið eins er mikil umhverfis vernd fólgin í að vanda til verka

22

Sjálfbærniskýrsla 2023

Loftlagsáhrif Húsasmiðjunnar

Húsasmiðjan leggur mikið upp úr að bjóða viðskiptavinum sínum grænar lausnir frá ábyrgum birgjum og er með skýr markmið í átt að vistvænni framtíð. Leitað er nýrra leiða í átt að sjálfbærni m.a. með minni sóun, bættum ferlum innanhúss, minna vistspori í virðiskeðjunni, nýjungum á sviði byggingarvara og strangari kröfum í umhverfisvottunum. Mannvirkjageirinn er talinn ábyrgur fyrir um 40% af heildarútblæstri á heimsvísu. Þar af eru byggingarefni ábyrg fyrir 45% af heildarlosun nýbygginga og því augljóst að framþróunar er krafist. Því tekur Húsasmiðjan ábyrgð sína alvarlega sem stór söluaðili á byggingarefnum. Umhverfisáhrif starfseminnar eru því töluverð, mest í umfangi 3 eða í óbeinni losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) á vörum og þjónustu fyrirtækisins. Húsasmiðjan tilgreinir nú fleiri flokka í umfangi 3 en áður hefur verið gert og markmiðið er að fjölga flokkunum sem bókhaldið nær utanum á komandi árum.

Samfélagsuppgjör Húsasmiðjunnar, byggir á Environmaster hugbúnaði Klappa við útreikninga og bókhald á helstu UFS þáttum (umhverfis-, félags- og stjórnarháttum).

Við útreikninga á umhverfisuppgjöri er stuðst við „The Greenhouse Gas Protocol“ en umfang 3 er enn ekki að fullu talið en við vinnum í átt að telja til fleiri þætti sem tilheyra því umfangi bæði á fyrri og síðari stigum, sjá mynd bls 27.

Umfang 1 tekur saman beina losun GHL frá starfsemi fyrirtækis. Í tilfelli Húsasmiðjunnar afmarkast umfang 1 við losun frá eldsneytisnotkun bifreiða og tækja í eigu eða rekstri Húsasmiðjunnar.

Umfang 2 er óbein losun GHL sem tengd er notkun raforku, heitu og köldu vatni. Losun af þessu tagi á sér ekki stað innan marka starfsemi fyrirtækisins og telst því til óbeinnar losunar.

Umfang 3 er óbein losun GHL í virðiskeðjunni og er tvískipt, það sem kemur til og fer frá Húsasmiðjunni. Sú losun, sem talin er fram í uppgjöri þessu, er losun frá eldsneytistengdri starfsemi, úrgangi og flugferðum á vegum fyrirtækisins. Greint er frá losun GHL í tonnum af CO2 ígildum.

Umfang 1 287 tCO2í

Jókst örlítið á milli ára, með meiri eldsneytisnotkun farartækja. Fara þarf í markvissari orkuskipti.

Umfang 2 164,4 tCO2í

Reglubundið eftirlit til að koma í veg fyrir sóun. Rafmagnsnotkun lækkar örlítið á milli ára, þrátt fyrir fjölgun hleðslustöðva. Notkun á heitu vatni lækkar töluvert á milli ára.

Umfang 3 274,3 tCO2í

Umfang 3 hefur lækkað í þriðjung frá árinu á undan. Helsta skýringin er fjöldi viðskiptaferða þar sem öllu starfsfólki var flogið út í afmæli Bygma 2022. Einnig hefur ný löggjöf á meðferð litaðs timburs skilað miklum samdrætti, en það er ekki lengur urðað heldur brennt til orkuframleiðslu. Búast má við aukningu á losun í umfangi 3 þegar talin verða fram fleiri þættir en nú er gert.

23

Sjálfbærniskýrsla 2023

Losunarsvið 2

Óbein áhrif

Aðkeyptar vörur og þjónusta

Fjárfestingar og tæki

Eldsneiti og orka

Flutningur og dreifing

Rafmagn og hiti fyrir eigin not

Losunarsvið 3

Leigt húsnæði

Starfsmenn til og frá vinnu

Úrgangur af framleiðslu Vinnuferðir

Vörur og þjónusta til Húsasmiðjunnar

Umfang 3 - fyrra stig

Óbein losun

- Aðkeyptar vörur og þjónusta

- Fastafjármunir

- Eldsneytis- og orkutengd starfsemi

- Aðkeyptur flutningur og dreifing

- Úrgangur frá rekstri

- Vinnuferðir

- Samgöngur starfsmanna

- Leigðar eignir

*Feitletraðir þeir flokkar sem mælingar fara fram í

*Allar tölur byggja á UFS uppgjöri, viðauki í skýrslu

Flutningur og dreifing

Aðkeyptar vörur og þjónusta

Notkun seldrar vöru

Eigin húsnæði

Faratæki fyrirtækisins

Fyrirtækið

Umfang 2

Óbein losun

- Rafmagn

- Hiti

Umfang 1

Bein losun

- Eignir fyrirtækis

- Farartæki fyrirtækis

Förgun seldra vöru Leigðar fasteignir

Losunarsvið 3

Fjárfestingar

Leigð vörumerki

Vörur og þjónusta frá Húsasmiðjunni

Umfang 3 - síðari stig

Óbein losun

- Flutningur og dreifing

- Áframhaldandi vinnsla á seldri vöru

- Notkun á seldri vöru

- Lok líftíma seldrar vöru

- Útleigðar eignir

- Sérleyfishafar

- Fjárfestingar

24
Óbein áhrif Óbein áhrif

Sjálfbærniskýrsla 2023

Umfang 1. Eldsneytisnotkun farartækja

Kolefnislosun v. eldsneytisnotkunar farartækja í tCO2í. Markmið reiknað miðað við að hlutfall rafknúnna ökutækja verði komin upp í 70% fyrir 2025

Umfang 2. Rafmagnsog heitavatns notkun

Heildareldsneytisnotkun í kg

Kolefnislosun raforka

0 1.500.000 3.000.000 4.500.000 6.000.000 0 35.000 70.000 105.000 140.000 2019 2020 2021 2022 2023 -26% -27% -18%
Rafmagnsnotkun í kWst 2019 2020 2021 2022 2023 0 14,5 29 43,5 58 2019 2020 2021 2022 2023 2025 Kolefnislosun vegna raforku
5% samdrátt árlega. Farið var í orkusparandi aðgerðir. 25 0 100 200 300 400 2019 2020 2021 2022 2023 2025
í tCO2í. Markmið sett 2021 um
-13%
Heildareldsneytisnotkun í kg

Heitavatnsnotkun í m3

Hitaveita í kWst

Kaldavatnsnotkun í m3

26 -11% 0 77.500 155.000 232.500 310.000 2019 2020 2021 2022 2023 0 4.500.000 9.000.000 13.500.000 18.000.000 2019 2020 2021 2022 2023 -11% 0 7.750 23.2500 31.000 15.500 2019 2020 2021 2022 2023
Sjálfbærniskýrsla 2023
-32%

Umfang 1, 2 og hluti af 3.

Umfang 1 og 2, tCO2í Umfang 3, sorp, tCO2í

Innleiddir voru flokkunarferlar í byrjun árs 2023 með hringrásarferlum og ábyrgari endurvinnslu. Grafið sýnir hlutfall af endurunnu sorpi.

Sjálfbærniskýrsla
1.100 825 550 275 0 2019 2020 2021 2022 2023
2023
0 300.000 600.000 900.000 1.200.000 2019 2020 2021 2022 2023 Endurunnið
kg
sorps
kg
Umfang 3, úrgangur frá rekstri (flokkur5)
sorp -
Förgun
-
27 1.091.392 998.965 966.916 1.106.005 1.045.405 0 Fjöldi starfstöðva 2 4 6 10 2019 2 3 4 5 10 10 2020 2021 2022 2023 Fjöldi hleðslustöðva Rafbílar Tvinn 37% 42% 38% 46% 2030 40% -43% 2025 0 2019 2020 2021 2022 2023 Fjöldi rafbíla 2 4 6 8 10 12 2025 69%

Sjálfbærniskýrsla 2023

Líta þarf enn frekar í suma

þætti til að takmarka

útblástur GHL. Enn er unnið að bestun ferla

Flokkunarhlutfall á úrgangi

Flokkunarhlutfallið er 68% fyrir 2023 en markmiðið er að fara upp í 90% 2025. Það er ljóst að spýta þarf í.

28 2019 2020 2021 2022 2023 0% 22,5% 45% 67,5% 90% 2025 90%

Sjálfbærniskýrsla 2023

Minni sóun –

meiri nýting

Íslenska Gámafélagið sér um sorphirðu að langstærstum hluta, Dagar sjá um Egilsstaði og Kubbur um Ísafjörð. Öll gögn fara til Klappa sem reiknar alla losun sem kemur frá

Sorpi. Gott bókhald leiðir til betra gagnsæis svo hægt sé að bregðast við með aðgerðum. Ef hægt er að mæla það þá er hægt að bæta það! Með samstilltu átaki þá var samdráttur á þyngd úrgangs um 67 tonn sem skýrist af ábyrgari úrgangsstraumum.

Endurnýting frauðplasts

Til að minnka losun vegna úrgangs þá hefur ferlum verið breytt á ábyrgan hátt og hugað betur að hringrásarhag-

Endurvinnsla á hreinu frauðplasti.

kerfinu. Gerður hefur verið samstarfssamningur við Tempra (www.tempra.is) sem getur tekið á móti öllu hvítu og hreinu frauðplasti sem fellur til í verslunum Húsasmiðjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Helst er um að ræða frauðplast utan af rafmagnstækjum, smáhlutum, hjólum og öðrum vörum sem þarf að verja í flutningi. Tempra getur notað allt að 30% endurvinnanlegt frauðplast á móti nýju hráefni. Húsasmiðjan kaupir einangrunarplötur frá Tempra sem eru notaðar í mannvirkjagerð. Þannig er úrgangi komið

Frauðplasts einangrun.

29

Sjálfbærniskýrsla 2023

í hringrás. Þetta ferli byrjaði í lok árs 2022 og er enn vaxandi. Árið 2023 fóru um 40 m3 af hvítu hreinu frauðplasti í endurvinnslu og þannig forðað frá urðun.

Með aukinni vitund starfsfólks urðu til frekari tækifæri til

að endurnýta frauðplast. Á síðasta ári var verið að reisa nýtt stálgrindarhús fyrir starfsemi Húsasmiðjunnar á Selfossi. Þegar stálgrindin barst til landsins var hún varin af lituðu frauðplasti. Tempra hafði ekki tök á að endurnýta litað frauðplast en þess í stað kom starfsfólk Húsa-

smiðjunnar auga á verðmætin í frauðplastinu og var það í staðinn notað til einangrunar í grunni nýbyggingar í nágrenninu. Þannig spöruðust 45 m3 af frauðplasti.

30

Sjálfbærniskýrsla 2023

Endurnýting litaðs plasts

Mikið fellur til af litaðri plastfilmu sem er notuð til að verja timburbúnt, rör og margs konar hrávörur. Í árslok 2022 hóf Húsasmiðjan samstarf við Pure North (www.purenorth.is) sem tekur við plastfilmunni. Þar er plastið þvegið, kurlað og loks er búin til hrávara sem er seld aðilum innanlands en mest megnis erlendis. Þessi hrávara er m.a. notuð í pípulagnir, frárennslisrör og margs konar iðnaðarvöru. Samkvæmt útreikningum Pure North er um 82% minni loftslagsáhrif af plasti sem skilar sér til innlendrar endurvinnslu í stað þess að plastið sé sent til Evrópu til endurvinnslu.

Árið 2023 skilaði Húsasmiðjan inn 450 kg af lituðu plasti til Pure North og kom þar með í veg fyrir um losun 680 kgCO2 í. Reiknað er með að mun meira af litaðri plastfilmu muni skila sér til Pure North á komandi ári þar sem farið er að flokka hana sérstaklega á starfsstöðvum Húsasmiðjunnar.

Endur- og fullnýting timburs

Við rekstur Húsasmiðjunnar falla til alls kyns efni og leitum við leiða til þess að koma þeim í ábyrgan farveg sem og að huga til hringrásarhagkerfisins eins og með „industrial symbiosis”, þar sem úrgangur eða hliðarafurðir verða að hrávöru í annarri framleiðslu. Stefnt er að lágmarka notkun auðlinda og halda efni í umferð með því að gera við, endurnýta, endurframleiða, endurvinna og nýta deilihagkerfi. Raftækjaverkstæði stuðlar að viðhaldi á tækjum svo þau endist sem lengst. Mikil áhersla í hringrásarhagkerfinu er að verðmæti tapi ekki gæðum og því mikilvægt að huga að ábyrgri endurhagnýtingu vöru.

Helsta innflutningsvara Húsasmiðjunnar er timbur. Sögulega hefur of stór hluti af innfluttu timbri endað sem

Mikil áhersla í hringrásarhagkerfinu er að verðmæti tapi ekki gæðum og því mikilvægt
að huga að ábyrgri endur hagnýtingu vöru eins
og þegar frauðplast sem vernda vörur verði að

einangrun húsa sem standa í tugi ára

úrgangur. Ekki hefur verið til farvegur fyrir timbur sem ekki er söluvænt þó svo að starfsfólk hafi unnið ötullega að því að koma því í notkun til viðskiptavina. Þó hafa ekki verið til markvissir ferlar en árið 2023 hóf Húsasmiðjan samstarf með hinum dönsku Lendager arkitektum (www. lendager.com) við að greina magnið og gera úr því verðmæti. Arkitektastofan er með þeim framsæknustu í

heiminum við endurnýtingu byggingarefna og opnaði útibú á Íslandi í ársbyrjun 2023.

Um 85 tonn af hreinu úrgangstimbri falla til árlega í starfseminni, sem jafngildir losun gróðurhúsalofttegunda uppá 1,8 tCO2 í. Mikið af þessu timbri er úr einnota brettum, umbúðatimbri og fleira í þeim dúr. Einnig töluvert af undnu timbri sem ekki er fýsilegt fyrir viðskiptavini. Félagsbústaðir við Háteigsveg 59 nýtir úrkaststimbur sem klæðningu sem þau brenna með Shou Sugi Ban japönsku aðferðinni en með stöðlun í klæðningu er hægt að nýta timbur sem að öðru leyti væri ill seljanlegt. Með þessu er vakin athygli á nýtingu hráefna sem hafa hingað til flokkast sem úrgangur.

31

Sjálfbærniskýrsla 2023

Umhverfisstefna

Húsasmiðjan gerir sér grein fyrir ábyrgðarhlutverki sínu í gegnum virðiskeðjuna og skuldbindur sig til að vinna með markvissum aðgerðum að lágmarka umhverfisáhrif starfsemi sinnar. Um leið að vera leiðandi fyrirtæki fyrir byggingariðnað sem auðveldar viðskiptavinum að fara í vistvænar framkvæmdir.

Markmið:

1. Vera leiðandi fyrir vistvænar byggingar á Íslandi.

2. Bjóða upp á hagkvæma, umhverfisvænni kosti í öllum helstu vöruflokkum.

3. Minnka vistspor fyrirtækisins.

4. Skapa heilbrigt og gefandi starfsumhverfi.

5. Setja reglulega mælanleg og tímasett markmið í umhverfismálum.

6. Minnka kolefnislosun um 40% fyrir árið 2030.

Aðgerðir:

1. Auðveldum viðskiptavinum okkar val á vistvænum vörum, sem lúta að reglum þess vottunarkerfis sem unnið er eftir hverju sinni. Sem þýðir stöðuga þróun þar sem vottunarkerfi eru tekin reglulega í endurmat.

2. Efla og auka samstarf við birgja sem huga markvisst að umhverfi sínu, eru vottaðir og framleiða vörur með umhverfisvænum hætti.

3. Sýna fram á hagkvæmni í rekstri, innleiðing ferla sem halda sóun í lágmarki. Leita stöðugt leiða til að

draga úr orkunotkun, minnka úrgang og koma þeim úrgangi sem til fellur í endurvinnsluferla og með því minnka vistspor fyrirtækisins.

4. Vinna markvisst að fræðslu og þjálfun starfsmanna með aukinni þekkingu og metnaði á umhverfismálum, þekkingu og reynslu deilt með viðskiptavinum okkar.

5. Rekstrarákvarðanir eru teknar með það að leiðarljósi að nýta náttúruauðlindir skynsamlega. Hvetja alla hag-

aðila til virðingar fyrir umhverfinu, að þeir setji sér raunhæf mælanleg markmið í því skyni að draga úr umhverfisáhrifum sínum.

6. Leiðir að minnkandi kolefnislosun í umfangi 1 og 2 eru að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og fara í orkusparandi aðgerðir. Í umfangi 3 verður farið í að minnka magn úrgangs og auka hlutfall flokkaðs úrgangs í 90% til og með 2025.

32

Sjálfbærniskýrsla 2023

Grænar vörur

Húsasmiðjan hefur breitt vöruúrval í öllum flokkum byggingavara sem uppfylla þurfa mismunandi vottanir eins og t.d. í Svaninum, BREEAM og LEED. Á heimasíðunni er að finna upplýsingar þess efnis undir Græn vara en þar er að finna EPD skjöl eða umhverfisyfirlýsingu vörunnar, ásamt þeim vottunum sem varan hefur. Unnið hefur verið að því að auka sýnileika allra fylgiskjala á vefnum til að auka aðgengi viðskiptavina og auðvelda þeim að velja vistvænni kost. Sjá nánar um grænar vörur hér.

Húsasmiðjan skilgreinir þær vörur sem uppfylla ákveðin en mismunandi skilyrði með tilliti til umhverfisþátta „grænar vörur“ til þess að einfalda fyrir viðskiptavininum. Þetta er mjög breitt svið en allt vörur sem fara mildari höndum um umhverfi og heilsu okkar.

• Þetta eru vörur sem eru leyfðar til notkunar í matvælaiðnaði, vistvænum - og svansvottuðum byggingum.

• Vottaðar vörur eins og Svanurinn, Blái engillinn, Bio, Evrópublómið, Oeko Tex, PEP ecopassport, Gev – Emicode, o.s.frv.

• Timbur úr sjálfbærum skógum, með FSC og PEFC stimplinum.

• Vörur úr endurunnum efnum sem og orkusparandi rafmagnsvörur og ljósaperur (LED).

af vottunum sem falla undir grænar vörur, ótæmandi listi.

33
Grænar vörur falla undir heimsmarkmið SÞ. Sýnishorn Græn vara

Sjálfbærniskýrsla 2023

Virðiskeðjan

Stærstu vöruflokkarnir okkar:

Húsasmiðjan er stór söluaðili á timbri og síðan 2016 hefur verið sett mikið kapp á að kaupa allt timbur úr sjálfbærum skógum með FSC (Forest Stewardship Council) og PEFC (Programme for the Endorsement of Forest Certification) vottun. Til þess að geta selt vottað timbur þarf rekjanleika sem tryggir rétta meðhöndlun efnisins frá framleiðanda til viðskiptavinar. Húsasmiðjan hlaut FSC og PEFC vottun 2023 fyrst íslenskra byggingavörukeðja. Það er mikilvægt að geta sýnt fram á rekjanleikavottun timbursins og að engin óumhverfisvæn eða röng meðhöndlun hafi orðið áður en það kemur í hendur viðskiptavina, tryggja þarf gagnsæi og rekjanleika í virðiskeðjunni.

Kambstálið er um 92% úr endurunnu stáli, og kemur með umhverfisyfirlýsingu vörunnar (EPD) sem nýta má í lífsferilsgreiningar (LCA) í umhverfisvottunum eins og BREEAM.

Birgjar Húsasmiðjunnar koma langflestir frá Evrópu þar sem kröfur um umhverfisvottanir og rekjanleika eru oft strangari en gerist hér á landi. Einnig skiptir gæði vörunnar máli, að varan sé eftir stöðlum og hægt sé að gera við hana en það er einn stór umhverfisþáttur, að halda henni inni í hringrás sem lengst.

Málningin frá Jotun inniheldur engin eiturefni og er gott dæmi þar sem strangar kröfur umhverfisvottana vernda ekki eingöngu umhverfið heldur einnig heilsu fólks. Lady málningin inniheldur engin leysiefni né efni sem eru

hættuleg umhverfinu sem og rotvarnarefni t.d. formaldehýð. Málningin inniheldur ekki mýkingarefni (þalöt og bisphenól) sem geta verið hormónatruflandi og þá sérstaklega hjá litlum börnum. Málningin er einnig endingarbetri sem er gott fyrir umhverfið því ekki þarf að mála eins oft, sem kemur út í sparnað fyrir viðskiptavininn.

Orthex hefur sjálfbærni sem grundvallaratriði í stefnumótun og ákvarðanaferlum. Meirihluti af hráefninu er endurvinnanlegt og fyrirtækið stefnir að kolefnishlutleysi árið 2030. Samfélagsleg ábyrgð, umhyggja fyrir starfsfólki og öryggi þess ásamt siðferðislegum viðskiptaháttum eru helstu frammistöðuvísar fyrirtækisins.

Mascot starfar samkvæmt öllum 17 sjálfbærnismarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Um 80% af framleiðslu

34

Sjálfbærniskýrsla 2023

Mascot er í eigin verksmiðjum í Laos og í Víetnam. Þeir eru með umhverfisstefnu og mikinn fókus á samfélagslega

ábyrgð og leiðir til að endurnýta og endurvinna úrgang. Stefnt er að endurnýttu efni í framleiðslu og er nýjasta fatalína Mascot úr 89% endurunnu efni en einnig er lögð áhersla á endingargóðan og sterkan fatnað. Framleiðslan öll er unnin við mannúðleg og heilbrigð vinnuskilyrði.

Spónaplötuframleiðandinn Koskisen er í sífelldri framþróun með sínar vörur og býður nú uppá 100% endurnýtt hráefni ásamt því að huga að umhverfisþáttum allan lífsferil framleiðslunnar. Hið hefðbundna lím sem er notað í spónaplötu framleiðslu hefur verið skipt út fyrir endurvinnanlegt viðar bindiefni, Lignín.

Þeir bjóða nú uppá „Zero“ plötu sem er í styrkleikaflokki P2, yfirborðið er þétt og slétt og því auðvelt að mála eða filma plötuna. Þessar plötur heita þessu nafni þar sem þær hafa enga losun í framleiðslunni og því kolefnishlutlausar.

FSC OG PEFC vottun á timbursölunni

Hljóðgildruplöturnar frá Fög og Venö er svansvottuð hágæða vara. Fyrirtækið hefur bætt sjálfbæra skjölun með lífsferilsgreiningum (LCA) sem auðveldar byggingaraðilum sem eru í BREEAM og LEED vottunarferli. Einnig er varan FSC vottuð sem tryggir að allt timbur komi úr sjálfbærum skógum.

Allt timbrið okkar er FSC og/eða PEFC vottað sem tryggir rekjanleika frá framleiðanda til kaupanda. Vottað timbur tryggir að allt timbur komi frá sjálfbærri skógrækt þar sem líffræðilegum fjölbreytileika er viðhaldið og í samræmi við staðla. Einnig er starfsfólki tryggð þjálfun, öryggisbúnaður og mannsæmandi laun. Við tryggjum þannig viðskiptavinum gagnsæi og rekjanleika þess hráefnis sem þeir kaupa og tryggjum að gæðum sé viðhaldið til þeirra.

35

Sjálfbærniskýrsla 2023

Orkuskipti tækja

Vegferð til orkuskipta fyrirtækisins hefur staðið yfir og er nú í fullum gangi. Nú þegar hafa verið settar upp 10 hleðslustöðvar við verslanir Húsasmiðjunnar og er ætlunin að setja fleiri hleðslustöðvar við allar starfsstöðvar hringinn í kringum landið. Ætlunin er að skipta út bílum sem eru knúnir jarðefnaeldsneyti fyrir rafmagn og er það verkefni komið vel á veg. Flest allir okkar lyftarar ganga fyrir rafmagni eða yfir 80%. Enn hefur ekki verið hægt að fá skotbómulyftara sem ganga fyrir öðru en díselolíu. Bílaflotanum hefur að hluta verið skipt út og kom fyrsti rafkranabíllinn hingað til lands í júní en hann er fyrstur sinnar tegundar í heimi þar sem kraninn gengur einnig

fyrir rafmagni. Kranabílar þurfa að vera í lausagangi þegar glussakranar eru notaðir og þar sem kraninn gengur fyrir rafmagni kemur hann í veg fyrir staðbundna mengun og er ekki heilsuspillandi fyrir þá sem vinna á verkstað. Rafkranabíllinn er mjög vinsæll og er iðulega pantaður í

vistvænum verkefnum þar sem kolefnissporið er reiknað

ásamt lífsferilsgreiningu bygginga. Bíllinn var tekinn í notkun um mitt ár 2023 og hefur honum verið ekið þegar

8.876 kílómetra. Þetta hálfa ár kom í veg fyrir losun

gróðurhúsalofttegunda uppá 7,2 tCO2 í frá jarðefnaeldsneyti og er áætlað að næsta ár verði nær 20 tCO2 í.

Aksturinn hefur aukist um 35,4% frá því í fyrra með tilheyrandi sparnaði á olíu, AdBlue og CO2 losun.

36

Sjálfbærniskýrsla 2023

Umhverfisvottuð

verkefni

Húsasmiðjan hefur tekið þátt í fjölda umhverfisvottaðra verkefna en, BREEAM-, LEED- og Svansvottun eru þær algengustu.

37

Tímalína umhverfisog samfélagsmál 2007-2023

2007

Áhersla lögð á að kaupa timbur úr sjálfbærum skógum frá framleiðendum með FSC eða PEFC vottun.

2008

Húsasmiðjan hóf að auglýsa Svansvottaða málningu

2015

Samstarf við Klappir hefst

Húsasmiðjan tók þá formlega þátt í Loftlagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar

2016 Vefverslun Húsasmiðjunnar opnar

Nánast allt timbur Húsasmiðjunnar kemur úr sjálfbærum skógum frá framleiðendum með FSC og PEFC vottun

2017

Timbursala og Fagmannaverslun opnar í Kjalarvogi við hafnarbakkann. Lækkar kolefnaspor vörudreifingar verulega

Húsasmiðjan er virkur þátttakandi í samfélagsskýrslu BYGMA samstæðunnar

Húsasmiðjan var fyrsta byggingavöruverslun að bjóða upp á hleðslustöðvar fyrir rafbíla

2018

Byrjað að skilgreina „grænar vörur“ sem umhverfisvænn kostur

Opnað fyrir reikningsviðskipti í vefverslun fyrst byggingaverslana

2019

Húsasmiðjan hlýtur jafnlaunavottun

Húsasmiðjan verður stór bakhjarl Stóra plokkksdagsins á Íslandi

Húsasmiðjan kynnir „grænar vörur“ í vefverslun og verslunum sínum

2020

Samningur við Kolvið og Votlendssjóð um kolefnisbindingu

Hætt að nota plastburðarpoka í verslunum Húsasmiðjunnar

Samfélagsuppgjör í samstarfi við Klappir gefið út

Staða verkefnisstjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni

Þátttaka Húsasmiðjunnar í fyrstu Svansvottuðu endurbyggingu á Íslandi að Þingholtsstræti 35

Húsasmiðjan gerist hluti af Grænni byggð

Húsasmiðjuappið kemur á markað

2023

Húsasmiðjan gerist aðili að Festi samfélagsábyrgð

Húsasmiðjan gefur út sjálfbærniskýrslu

Samstarf við Orkusöluna um uppsetningu hleðslutöðva við allar starfstöðvar Húsasmiðjunnar á næstu árum

Samstarf við Tempru á endurvinnslu á frauðplasti

Fengum FSC og PEFC vottun á timbursölu. Fyrsti rafkranabíllinn 2022

Samstarf við Pure North, plast endurvinnsla

Húsasmiðjan í brautryðjendahóp SoGreen

2021

Félagslegir þættir

Það er skýrt markmið að vera eftirsóttur vinnustaður sem býður upp á jákvæða menningu þar sem jafnrétti ríkir

41

Mannauður

Mannauður Húsasmiðjunnar er ein helsta auðlind fyrirtækisins og um leið lykilþáttur í að ná góðum rekstrarárangri. Við fögnum fjölbreytileikanum og trúum því að lífið sé stöðugur lærdómur og um leið tækifæri til að miðla. Því er mikilvægt að samsetning starfsfólks okkar endurspegli viðskiptavini okkar eins og hægt er.

Hjá Húsasmiðjunni, Blómaval og Ískraft starfar fjölbreyttur hópur rúmlega 500 starfsmanna. Við bjóðum öll velkomin óháð kyni, kynhneigð, kynþætti eða öðrum þáttum. Við bjóðum fólki á „besta aldri“ sérstaklega velkomið til okkar, því við kunnum að meta margs konar reynslu, þekkingu eða menntun ásamt almennri lífsreynslu.

Það er skýrt markmið okkar að vera eftirsóttur vinnustaður sem býður upp jákvæða menningu og sterka liðsheild, þar sem jafnrétti ríkir og jöfn tækifæri eru til menntunar og starfsþróunar. Vinnuumhverfið sé heilsusamlegt og við getum þannig stuðlað að því að starfsfólki líði vel og blómstri í sínum störfum. Leitast er við að upplýsingaflæði sé gott og að allir starfsmenn séu meðvitaðir um hlutverk sitt og hafi gildi fyrirtækisins, áreiðanleika, þjónustulund og þekkingu að leiðarljósi, við dagleg störf og ákvarðanatöku.

Edda Björg Kristjánsdóttir, mannauðs- og samfélagstjóri.

42
Sjálfbærniskýrsla 2023
43
Sjálfbærniskýrsla 2023

Fjölbreytileiki og jafnrétti

Fjölbreytileiki og jafnrétti skiptir okkur miklu máli og höfum við sett okkur skýra stefnu í jafnréttismálum sem nær til alls starfsfólks.

Stefnan sem byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna miðar að því að stuðla að jafnri stöðu starfsfólks innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum einstaklinga á sem flestum sviðum. Einnig miðar stefnan að því að starfsfólki sé ekki mismunað vegna uppruna, þjóðernis, stéttar, tungumáls, litarháttar, trúarbragða, skoðana, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, aldurs, fötlunar, líkamsgerðar eða annarrar stöðu. Við trúum því að í fjölbreytileikanum liggi tækifæri.

Atvinna með stuðningi

Húsasmiðjan leggur sitt af mörkum við að styðja við þá sem hafa skerta starfsgetu vegna andlegrar og/eða líkamlegrar fötlunar með því að finna þeim starf við hæfi innan Húsasmiðjunnar og er það gert í samvinnu við Vinnumálastofnun. Einnig eigum við gott samstarf við Sveitarfélögin, grunnskóla, barnavernd, og Virk. VIRK tilnefndi Húsasmiðjuna sem eitt af 15 fyrirtækjum sem áttu möguleika á að hljóta viðurkenninguna VIRKT

Hlutfall kvenna í rekstrar-
stjórahópnum okkar jókst
á síðasta ári frá 19% í 25%

fyrirtæki. En tilnefningin horfir til framlag fyrirtækja og samfélagslega ábyrgð með því að bjóða einstaklingum tækifæri til þess að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði.

Við teljum þetta vera þroskandi verkefni fyrir alla hlutaðeigandi. Árið 2023 voru 9 einstaklingar með skerta starfsgetu í starfi hjá Húsasmiðjunni.

Kynjahlutfall

Stöðugt er unnið að því að jafna kynjahlutfall starfsfólks,

bæði í stjórnunarstöðum og í heild. Hlutfall kvenna í heild sinni jókst um eitt prósentustig árið 2023 og var 29%.

Hlutfall kvenna árið 2018 var 24%, svo hlutfall kvenna hefur verið að hækka síðstu ár, þó með smá niðursveiflum. Hlutfall kvenna í rekstrarstjórahópnum okkar jókst á síðasta ári frá 19% í 25%. Við setjum okkur markmið um að halda áfram að jafna kynjahlutfallið, bæði í stjórnunarstöðum og í heild.

Sjálfbærniskýrsla
44
2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Framkvæmdastjórn

Aðrir stjórnendur Hlutfall þjóðerna

Húsasmiðjunnar

45
Allir 29% 72%
25% 75% 25% 75% Ísland Erlendur uppruni Karlar
Konur
Karlar Konur Karlar Konur
10% starfsfólks
er af 15 þjóðernum 10% 90%

Jafnlaunavottun

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Það skiptir miklu máli að allir sitji við sama borð þegar kemur að launaákvörðunum og er jafnlaunakerfi ætlað að tryggja að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf sé ekki mismunað í launum.

Það er mikilvægt fyrir starfsfólk Húsasmiðjunnar að vita að til staðar er stjórnkerfi sem tryggi að launaákvarðanir byggjast á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér mismunun vegna kyns eða annara ómálefnalegra þátta.

Húsasmiðjan fékk fyrst jafnlaunavottun árið 2019 og hefur nú farið í gegnum endurvottun sem gildir til 2025.

Húsasmiðjan hefur sett sér það markmið að kynbundinn launamismunur sé lægri en 1% en vinnur ötult að því að munurinn verði að lokum enginn eða 0%. Launamunur fyrir árið 2023 var 0,2% karlmönnum í hag.

46
4 3,5 3,3 3 2,3 1,3 0,9 0,2 3 2,5 2 1,5 1 0,5 0 2018 2019 2020 2021 2022 2023
Sjálfbærniskýrsla 2023

Það er mikilvægt fyrir starfsfólk Húsasmiðjunnar

að vita að til staðar er stjórnkerfi sem tryggir

að launaákvarðanir byggjast á málefnalegum

sjónarmiðum og feli ekki í sér mismunun vegna kyns eða annara ómálefnalegra þátta.

47
Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

Húsasmiðjuskólinn

Við teljum að menntun og þekking sé ein af mikilvægustu forsendum þess að starfsfólki líði vel í starfi. Það er nauðsynlegt að viðhalda hæfni og færni með sífelldri endurnýjun á þekkingu. Því er lögð rík áhersla á að efla og þróa faglega og persónulega hæfni og þekkingu starfsfólks. Í Húsasmiðjuskólanum sem hefur verið starfræktur

síðan 1998, er boðið upp á fjölda námskeiða og fræðslufunda á hverju ári, en stærstur hluti þeirra er kenndur af öðrum starfsmönnum Húsasmiðjunnar, bæði í staðarnámi sem og á rafrænu formi. Þannig miðlum við sérþekkingu og heildin dafnar.

Fræðslan er fjölbreytt og er starfsmönnum skylt að sækja ákveðin námskeið starfs síns vegna en einnig er boðið upp á valnámskeið sem ýmist snúa að því að efla okkur bæði faglega og persónulega. Húsasmiðjan styður einnig við starfsfólk sem sækir sér frekari menntun á framhalds- eða háskólastigi.

Stuðst er við fjórar megin áherslur fræðslu;

• Vörur/umhverfi

• Þjónusta

• Tækni/kerfi

• Samskipti/leiðtogafærni.

Námsframboð eykst með hverju árinu

Námsframboðið jókst á síðasta ári og var það að mestum hluta vegna aukins framboðs á rafrænu fræðsluefni.

Námsaðsókn dróst hins vegar aðeins saman milli ára, unnið verður að því að rýna hvers vegna og í framhaldi settar fram úrbætur eða leiðir til að auka námsaðsókn árið 2024. Námsaðsókn

48
Námsframboð 400 300 200 100 0 180 220 363 100 100 177 2018 2019 2020 2021 2022 2023
2200 1650 1100 550 700 576 1190 1443 1504 2003 2018 2019 2020 2021 2022 2023 0
49
2023
þess
starfsfólki
Sjálfbærniskýrsla
Við teljum að menntun og þekking sé ein af mikilvægustu forsendum
líði vel í starfi

Sjálfbærniskýrsla 2023

Fagnám í verslun

Húsasmiðjan tók virkan þátt í uppbyggingu á námi sem heitir Fagnám í verslun og þjónustu. En það var unnið í samvinnu við Verzlunarskóli Íslands, Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks, Lyfju og Samkaup.

Starfsfólki stendur til boða að fara í raunfærnimat hjá

Mími þar sem kunnátta og hæfni hvers og eins er metin til eininga á móti kenndum áföngum, þannig fá einstakling ar með starfsreynslu og hæfni slíkt metið til eininga sem hægt er að meta til stúdentsprófs. Markmið námsins, er meðal annars að nemendur auki þekkingu sína og færni á vinnustað, þjálfist í að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og geti stýrt verkefnum í verslun í samræmi við skipulag og áætlanir. Árið 2023 sóttu 4 starfsmenn

Húsasmiðjunnar námið Fagnám í verslun.

Við höldum ótrauð áfram í því að styrkja og hvetja starfs fólk til þess að efla sig með því að fara í þetta nám.

50

Sjálfbærniskýrsla 2023

Starfsþróun

Fjöldi starfsfólks hefur unnið hjá fyrirtækinu í langan tíma, unnið við hin ýmsu störf og býr þar af leiðandi yfir gríðarlega góðri þekkingu sem er dýrmætt fyrir samstarfsfólk og fyrirtækið. Störfin eru fjölbreytt og tækifæri til starfsþróunar víða. Hægt er að fara ýmsar leiðir til að þróast í starfi, t.d. axla meiri ábyrgð í eigin starfi, færast til í starfi innan starfsstöðvar eða á milli starfsstöðva ásamt því að færast í hærri stöður.

Anna Bragadóttir hóf störf hjá Húsasmiðjunni fyrir 20 árum eða þegar hún var 18 ára gömul. Hún byrjaði að vinna á afgreiðslukassa í verslun okkar í Skútuvogi, síðar tók hún við þjónustuborðinu og stuttu seinna tók hún einnig við bókhaldi og uppgjöri fyrir verslunina. Í kjölfarið tók hún svo við sem deildarstjóri þjónustuborðs og afgreiðslukassa. Árið 2015 tók hún svo þátt í innleiðingu á nýju tölvukerfi fyrir Húsasmiðjuna. Eftir að því lauk var henni boðin staða á skrifstofu í bókhaldsdeild. Í dag er hún orðin hluti að mannauðsdeild og sér um fræðslumál ásamt fleiri verkefnum.

Hvað er best við að starfa í Húsasmiðjunni og hvaða ráð gefur þú þeim sem vilja þróast í starfi?

„Það eru mörg og fjölbreytt störf í Húsasmiðjunni og næg tækifæri fyrir þá sem hafa áhuga á að vaxa í starfi og takast á við ný verkefni og þannig sífellt að bæta við þekkingu og læra nýja hluti“.

51
Anna Bragadóttir, fræðslu- og mannauðsmál.

Sjálfbærniskýrsla 2023

Heilsa og öryggi

Heilsustefna

Húsasmiðjan leggur ríka áherslu á velferð og vellíðan starfsfólks og er stefna Húsasmiðjunnar að efla vitund starfsfólks um mikilvægi þess að lifa heilbrigðu lífi, stuðla að bættri heilsu og öryggi og auka vellíðan í vönduðu vinnuumhverfi.

Markmið stefnunnar eru:

• Hlúa að líkamlegri og andlegri heilsu

• Auka meðvitund og skilning á heilsueflingu

• Viðhalda og efla vellíðan í starfi og starfsánægju

• Draga úr veikindum og fjarvistum starfsfólks

• Stuðla að menningu þar sem sálfélagslegt öryggi ríkir

• Skapa og efla sterka liðsheild

• Minnka líkur á veikindum og slysum

• Stuðla að vinnuumhverfi þar sem jafnvægi er milli vinnu og einkalífs

• Bæta félagsleg tengsl og samskipti á vinnustað

52

Sjálfbærniskýrsla 2023

Til þess að ná fram markmiðum er boðið upp á:

Líkamsræktarstyrkur

Á hverju almanaksári veitir Húsasmiðjan 20.000 kr. líkamsræktarstyrk (að auki 4.000 kr. frá starfsmannafélagi)

Sálfræðiráðgjöf

Hægt að óska eftir stuðningi með sálfræðiaðstoð

Samgöngustyrkur

Fyrir starfsfólk sem notar vistvænan ferðamáta

Heilsutengd fræðsla og viðburðir

Starfsfólk er hvatt til þátttöku í heilsueflandi viðburðum

Mánaðarleg mæling á líðan

Framkvæmdar eru mánaðarlegar mælingar á líðan og starfsumhverfi starfsfólks

Inflúensubólusetning og heilsufarsmæling

Á hverju hausti er starfsfólki boðið upp á inflúensubólusetningar þeim að kostnaðarlausu ásamt heilsufarsmælingum einu sinni á ári

Öruggur vinnustaður Aðgengi að trúnaðarlækni

Stuðlum að jákvæðu viðmóti, kurteisi og virðingu. Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi er ekki liðin innan Húsasmiðjunnar

Starfsfólki stendur til boða að fara til trúnaðarlæknis þeim að kostnaðarlausu

53

Sjálfbærniskýrsla 2023

Öryggismál

Öryggi starfsfólks skiptir gríðarlegu máli og við leggjum mikið upp úr því að búa til og viðhalda öruggu starfsumhverfi. Hjá Húsasmiðjunni er starfrækt öryggisnefnd sem vinnur með mál er varðar aðbúnað, hollustuhætti og öryggi. Á starfsstöðvum okkar eru öryggistrúnaðarmenn sem kosnir eru af starfsfólki og/eða öryggisverðir sem er stjórnandi á starfsstöð. Öryggishandbækur eru allar á rafrænu formi og aðgengilegar fyrir starfsfólk okkar á öllum starfsstöðvum. Markmiðið var að gera þær aðgengilegri fyrir starfsfólk og þannig tryggja betur starfsöryggi starfsfólks og draga enn meira úr hættu á slysum. Haldin voru námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn ásamt því að skyndihjálparnámskeið, netöryggisnámskeið og almenn öryggisnámskeið voru haldin fyrir starfsfólk. Auk þess var haldin öryggisvika sem tileinkuð var öryggismálum. Fjárfest var í hjartastuðtækjum og þau sett upp í stærstu verslunum okkar.

Árið 2023 var heildarfjöldi vinnuslysa 7 samanborið við 6 árið áður. Við munum halda áfram að greina ferla og leiðir til að draga úr líkindum á slysum á fólki. Veikindahlutfall minnkaði milli ára, árið 2023 var hlutfallið 5,65% samanborið við 6,4% árið 2022.

Öryggi starfsfólks skiptir okkur

gríðarlega miklu máli og við

leggjum mikið upp úr því að búa til

og viðhalda öruggu starfsumhverfi

Einelti, áreitni og ofbeldi ekki liðið Húsasmiðjan er með skýra stefnu og viðbragðsáætlun í málum er varða einelti, áreiti og ofbeldi á vinnustað. Við viljum að allir viti að slík mál eru ekki liðin hjá okkur, forvarnir eins og fræðsla um samskipti og eðlilega hegðun er reglulega á dagskrá hjá okkur. Viðbragðsáætlun er aðgengileg í gæðahandbók og á innri vef fyrirtækisins, áætlunin er einnig kynnt fyrir öllu nýju starfsfólki þegar

það hefur störf ásamt því að áætlunin er kynnt árlega

samhliða kynningum á niðurstöðum úr vinnustaðagreiningu. Markmið okkar eru að allt starfsfólk þekki stefnu og viðbragðsáætlun okkar er varða einelti og áreiti.

54

Sjálfbærniskýrsla 2023

Það er gott að vinna hjá Húsasmiðjunni

Starfsánægja skiptir okkur miklu máli og við teljum starfsánægju vera ein af lykilforsendum þess sem ákvarðar velgengni fyrirtækisins, ánægt starfsfólk endurspeglast í ánægðum viðskiptavinum. Við leggjum áherslu á að hlúa vel að starfsfólki, efla það og þjálfa og ná þannig að draga fram það besta frá hverjum og einum.

Við höfum sett okkur skýr markmið um leiðir til að viðhalda og auka starfsánægju. Mánaðarlega eru sendar út púlskannanir sem mæla starfsánægju. Þannig fáum við mikilvægar upplýsingar um aðgerðir sem þarf að grípa til á

Heildar starfsánægja hefur hækkað jafnt og þétt síðan við byrjuðum með mánaðarlegar mælingar. Í fyrstu mælingu seinnipart ársins 2022 mældist starfsánægja 7,6 (sem er 0,3 yfir meðaltali sambærilegra fyrirtækja). ENPS skorið var 32 (sem er 14 yfir meðalskori sambærilegra fyrirtækja).

Í enda árs 2023 var starfsáængja 8,0 (sem er 0,7 yfir meðaltali sambærilegra fyrirtækja) og ENPS skorið var 46 (sem er 30 yfir meðalskori sambærilegra fyrirtækja).

Unnið er markvisst með niðurstöður, bæði niðurstöður mælinga og ábendinga, það gerum við með því að hlusta

Starfsánægja

8,0

0,7 yfir meðaltali sambærilegra fyrirtækja

ENPS Skor

30 yfir meðalskori sambærilegra fyrirtækja 46

55

Jafnlaunavottun

Markmið að vera undir 1% 0,2%

Jafna kynjahlutfall í heild

Markmið 30% kvk 29% kvk

ENPS Skor

Markmið 45 47

Starfsánægja

Markmið 8,1 8,0

56 Sjálfbærniskýrsla 2023
í félagslegri
Markmið og árangur
sjálfbærni

Sjálfbærniskýrsla 2023

Samfélagsstyrkir

• Afturelding íþróttafélag

• Höttur íþróttafélag

• Þróttur íþróttafélag blakdeild

• FHL íþróttafélag - kvennabolti

• Klettaskóli - ferðastyrkur

• Samhjálp félagasamtök

• Karlakór Keflavíkur

• Tindastóll - íþróttafélag

• Ungmennafélagið Sindri

• Knattspyrnufélag Kópavogs

• Breiðfirðingafélagið

• Fákur- hestamannafélag

• Björgunarfélag Árborgar

• Björgunarsveitin Brák

• Björgunasveitirnar - Neyðarkall

• Breiðablik Körfuknattleiksdeild

• Félag Skógarbænda á Austurlandi

• Fjölnir - íþróttafélag

• Fram íþróttafélag

• Fylkir - íþróttafélag

• Golfklúbbur Akureyrar

• Golfklúbbur Hornafjarðar

• Golfklúbbur Kiðjaberg

• Golfklúbbur Vestmannaeyja

• Golfklúbburinn Hamar

• Golfklúbburinn Leynir

• HDSÍ - félag handboltadómara

• Heilsumiðstöð SÍBS

• ÍBV íþróttafélag

• Jólaföndur v/flóttafólk - Sigríður Heimisdóttir

• KA íþróttafélag

• Karlakórinn Hreimur

• Karlakórinn Jökull

• Kiwanis víðsvegar um landið

• Kór Öldutúnsskóla

• Kvenfélag Selfoss

• Kvennakór Hornafjarðar

• Lionsklúbbar víðsvegar um landið.

• Meistarafélag iðnaðarmanna Hafnafirði

• Minningarsjóður Hlyns Snæs

• Neytendasamtökin

• Rafiðnaðarsamband Íslands

• Skallagrímur - íþróttafélag

• Skógardagurinn Egilsstöðum

• Skógrækt ríkisins

• Special Olympics - styrkur til keppanda

• Suðurlandsdeildin, hestamót

• Söfnun v/munaðarlaus börn í Nepal

• Sögufélag Hörgarsveitar

• Tindur hjólreiðafélag

• UMF Selfoss - íþróttafélag

• Víkingur íþróttafélag

• Þór íþróttafélag

57

Sjálfbærniskýrsla 2022

Félag fagkvenna

Árið 2022 hófu Húsasmiðjan og Félag fagkvenna samstarf til vitundarvakningar með það að markmiði að eyða staðalímyndum í iðngreinum. Markmiðið er að hvetja sem flesta til þess að kynna sér kosti iðnnáms og íhuga iðngreinar sem atvinnumöguleika. Aðsókn kvenna í iðnnám hefur aukist mjög síðastliðin þrjú ár og í sumum greinum hefur fjöldi þeirra jafnvel tvöfaldast, svo sem í pípulögnum, húsasmíði, rafvirkjun og dúkalögn.

Smelltu og horfðu á myndbandið

58

SoGreen

Samstarfsverkefnið sem við studdum árið 2022 tryggir menntun 180 stúlkna í Monze-héraði Sambíu í 5 ár, sem mun ekki aðeins leiða til loftslagsbreytinga, heldur stuðla að mannréttindum berskjaldaðra stúlkna, auka jafnrétti, heilbrigði og efla fátæk samfélög. Kolefniseiningarnar eru virkar eftir 5 ár og forðunin reiknuð til 50 ára, en stefnt er á vottun. Ákveðið var að styrkja SoGreen til frekara samstarfs árið 2023 þar sem næsta kolefniseininga-verkefni fer nú fram í austurhluta Sambíu. Þar hljóta 200 stúlkur fulla fimm ára gagnfræðiskólamenntun en á þessu svæði eru sérlega miklar hindranir fyrir menntun stúlkna. Eins og í fyrra verkefni er stefnt að vottun þessara kolefniseininga sem taka gildi eftir 5 ár.

59
Sjálfbærniskýrsla 2023

Efnahagslegir þættir

Stafræn umbreyting eykur

framleiðni innan fyrirtækisins og þjónustu til viðskiptavina

60

Sjálfbærniskýrsla 2023

Stefnumótun Húsasmiðjunnar

2023-2025

Sjálfbær vöxtur

Undir stefnumótuninni sjálfbær vöxtur hefur áherslan verið á stefnu fyrirtækisins í sjálfbærni og aðallega umhverfisþáttinn og þeim nýju tækifærum sem felast í nýjum áskorunum. Áherslurnar má skipta í þrennt; starfsemi, mannauður, og vörur og þjónusta. Bestun ferla og minni sóun hefur verið fyrirferðamikil 2023. Aukin þekking starfsfólks á sjálfbærri vegferð er gríðarlega mikilvæg með innri fræðslu til að styðja við best veitta þjónustu til viðskiptavina. Aukin eftirspurn er eftir umhverfisvottuðum vörum og leggur Húsasmiðjan áherslu á að auka við það framboð og setja það fram á einfaldan hátt til að auðvelda viðskiptavininum við það val. Með aukinni þekkingu og gagnsæi í virðiskeðjunni getur viðskiptavinurinn tekið upplýstar ákvarðanir með gæði fyrir umhverfið og heilsu íbúa í fyrirrúmi. Húsasmiðjan gerir grein fyrir ábyrgðarhlutverki sínu og gerir fólki kleift að vera ábyrgir neytendur með því að bjóða upp á breitt vöruúrval grænna vara.

Með nýjum reglugerðum um gagnsæi og ábyrga viðskiptahætti skiptir máli að Húsasmiðjan veiti þær upplýsingar og hafi framsetningu fylgiskjala aðgengilegar. Mikilvægt er að starfsfólk nái að innleiða sjálfbærni í sinni vinnu, sama hvar í fyrirtækinu það starfar. Allir þurfa að skilja mikilvægi

þessa málaflokks þar sem sjálfbærni kemur inn á allt og tryggir öllum farsælli starfshætti sem og vinnuumhverfi.

Stafræn umbreyting

Húsasmiðjan leitast við að nýta stafræna tækni til að auka framleiðni innan fyrirtækisins og þjónustu til viðskiptavina.

Fjölmörg verkefni hafa litið dagsins ljós sem hjálpa starfsfólki að veita góða þjónustu og auka áreiðanleika. Starfsmannaapp (Verkfærakassinn) aðstoðar t.a.m. starfsfólk að nálgast upplýsingar um vörur s.s. almennar vöruupplýsingar, birgðastöðu og sölusögu. Haldið verður áfram að styrkja verkfærakassann og sjálfvirknivæða ferla með aðstoð hans, enda hefur það gefist vel.

Innkaup og dreifing á vörum út í verslanir eru að mestu

leyti fram með sjálfvirku pantanakerfi AGR. Stefnt er að því að fjölga vöruflokkum sem pantaðir eru með AGR og bæta þannig dreifingu út í verslanir og áreiðanleika í innkaupum.

Rafrænir rekstrarreikningar ásamt rafrænum innlendum innkaupareikningum eru nánast að fullu rafrænir. Stefnt er að því að auka móttöku erlendra reikninga með rafrænum hætti og auka sjálfvirknivæðingu í bókun erlendra innkaupa. Það verkefni er nú þegar hafið.

Viðskiptavina app Húsasmiðjunnar kom út í lok árs 2021 og var fyrsta heila rekstrarárið 2022. Viðskiptavina appið nýtist einstaklingum og fyrirtækjum að eiga auðveld viðskipti við Húsasmiðjuna. Hægt er að skrá úttektaraðila, stofna verk og stunda viðskipti í sjálfsafgreiðslu sem flýtir fyrir og minnkar pappírsnotkun. Stefnt er að því að efla appið enn frekar með ýmsum nýjungum árið 2023.

61
SJÁLFBÆR VÖXTUR STAFRÆN UMBREYTING

Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfsafgreiðslukassar verða teknir upp í Skútuvogi 2023 og munu þeir koma til með að styrkja appið enn frekar.

Þjónustuvefurinn nýtist fyrirtækjum í viðskiptastýringu við Húsasmiðjuna og býður upp á ýmis gögn sem hjálpa fyrirtækjum að greina viðskipti sín við Húsasmiðjuna. Stefnt er að frekari umbótum á þjónustuvef er snúa að umhverfisvænum vörum og greiningu gagna.

Árið 2022 voru innleiddir vöruupplýsingaskjáir í verslunum þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur og fengið upplýsingar t.d. hvort vara sé með umhverfisvottun. Stefnt er að því að fjölga verslunum sem hafa vöruskanna til umráða.

Húsasmiðjan hefur notið góðs af öflugu starfsfólki á sviði

UT sem hefur byggt upp safn af vefþjónustum sem nýtast fyrirtækinu til ýmissa framþróunarverkefna sem bæta hag fyrirtækisins.

Besti vinnustaðurinn

Mannauður Húsasmiðjunnar er ein helsta auðlind fyrirtækisins og um leið lykilþáttur í að ná góðum rekstrarárangri. Það er skýrt markmið okkar að vera eftirsóttur vinnustaður sem býður upp jákvæða menningu og sterka liðsheild. Við leggjum okkur fram við að hlúa vel að mannauðnum og að tryggja það að við séum með rétta fólkið með réttu þekkinguna og reynsluna. Það er mikilvægt að við séum aðlaðandi vinnustaður fyrir núverandi starfsfólk og fyrir nýtt starfsfólk. Einn hluti af stefnumótun fyrirtækisins ber heitið Besti vinnustaðurinn. Skýr lína hefur verið lögð varðandi þá áhersluþætti sem við trúum að muni móta og viðhalda besta vinnustaðnum. Við leggjum áherslu á góðan starfsramma, góða stjórnun, jákvætt vinnuumhverfi, heilsu og velsæld, skýra sýn og stefnu og þróun og vöxt í starfi.

Við framkvæmum mánaðarlegar starfsánægjukannanir sem mæla þessa áherslu þætti og gefa okkur því mikilvægar upplýsingar inn í stefnumótunarvinnu okkar og hvar við stöndum. Unnið hefur verið á markvissan hátt með þessar upplýsingar með góðum árangri. Lögð er áhersla á stöðugar umbætur með því að hlusta, bregðast við og breyta. Í stefnumótun okkar gerum við einnig ráð fyrir góðu samtali og vinnuhópum þvert yfir fyrirtækið þar sem munum tala um það hvernig við verðum besti vinnustaðurinn og hvað felst í því að vera besti vinnustaðurinn.

Með aukinni upplýsingagjöf og markvissum gögnum teljum við að við getum tekið betri og upplýstari ákvarðanir í rétta átt.

62
BESTI VINNU- STAÐURINN

Sjálfbærniskýrsla

Sjálfbærni áhættur og tækifæri

Áhættustýring er mjög mikilvægt verkfæri til að auka arðsemi og vöxt. Meðvituð áhættustýring er lykilatriði í því að ná markmiðum okkar. Með því að stjórna áhættum getum við skapað árangur sem kemur til góða fyrir fyrirtækið og viðskiptavini okkar.

Í starfsemi Húsasmiðjunnar eru tilteknir áhættuþættir sem hafa áhrif á ytra umhverfi félagsins. Fyrirtækið er í stöðu til að draga úr þessum áhættuþáttum og minnka sóun og útblástur. Húsasmiðjan hefur t.a.m. sett sér markmið að vera leiðandi fyrirtæki í umhverfisvænum vörum sem uppfylla

stranga staðla í umhverfisvottuðum byggingum. Með þeirri stefnu getur fyrirtækið tekið ábyrgð á minnkun umhverfisáhrifa og stuðlað að sjálfbærum byggingarháttum á Íslandi.

2023 63

Sjálfbærniskýrsla 2023

Umhverfið

Kolefnislosun

Áhætta/Tækifæri

Flutningur – afhending á efni

Ferðir starfsmanna

Almenn orkunotkun úr rekstri.

Úrgangur

Aðgerðir

Vöruhús á bryggju, vörur fluttar úr uppskipun á rafmagnslyfturum.

Fjárfest í rafvörubíl með krana. Hugað að akstri ökumanna og hagræðingu flutningsleiða með miðstýrðri akstursdeild. Þá er innra gjald hærra fyrir akstur utan skipulags.

Fjarfundir hafa aukist til muna.

Lýsing rafstýrð og hugað er að því að skipta út ljósakosti þar sem hægt er og færa yfir í LED.

Söfnun og greining gagna. Bestun ferla og ábyrgari móttaka úrgangs. Hringrásarferlar.

Þekking/Menntun

Áhætta/Tækifæri

Auka þekkingu starfsfólks

Auka þekkingu viðskiptavina

Ráðgjöf

Lög og reglugerðir

Aðgerðir

Innri fræðsla á umhverfismálum. Unnið með starfsfólki við innleiðingu nýrra ferla.

Vel merktar vörur til þess að viðskiptavinurinn geti tekið upplýstar ákvarðanir um val á vöru. Áhersla lögð á heilsu viðskiptavina.

Ráðgjöf til viðskiptavina þegar ráðast skal í umhverfisvottuð verkefni.

Innleiðing nýju hringrásarlagana.

Vöruupplýsingar Ábyrg úrræði

Áhætta/Tækifæri

Ófullnægjandi vöruupplýsingar

Aðgerðir

Merkja umhverfisvottaðar vörur

„Grænar vörur“ til að einfalda viðskiptavininum. Öll fylgiskjöl vara, m.a. umhverfisvottanir og umhverfisyfirlýsingu (EPD) vara sett á vef.

Áhætta/Tækifæri

Eyðing náttúruauðlinda og líffræðilegs fjölbreytileika Neikvæð umhverfisáhrif af vörum og byggingarefni

Aðgerðir

FSC og PEFC vottun á vöruhúsi Húsasmiðjunnar. Tryggir rekjanleika vörunnar og að varan haldi gæðum frá framleiðanda til kaupanda.

Áhersla lögð á aukið úrval á umhverfisvænni og vottuðum vörum sem merktar eru „Grænar vörur”.

64
64

Samfélagið Efnahagslegir þættir

Fjölbreytileiki

Áhætta/Tækifæri

Einsleitur hópur starfsfólk

Endurskoða markmið jafnréttiáætlun og kortleggja hvar frekari tækifæri til að auka fjölbreytileika liggja.

Starfsmannavelta

Áhætta/Tækifæri

Há starfsmannavelta

Í stefnumótun fyrirtækisins er einn af þrem áherslupunktum í stefnumótuninni að búa til besta vinnustaðinn. Með markvissum aðgerðum sem miða að því að búa til aðlaðandi og góðan vinnustað náum við að halda í núverandi starfsfólk og að laða að nýtt hæft starfsfólk.

Menntun

Áhætta/Tækifæri

Þekking starfsfólks

Boðið er upp á methaðarfulla fræðslu sem miðuð er að hverjum starfahóp. Einnig er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða fræðslu með það að markmið að auka og viðhalda faglegri þekkingu og auka persónulega hæfni Starfsfólk er einnig stutt til að sækja sér fræðslu utan fyrirtæksins

Óvissa á markaði

Áhætta/Tækifæri

Virk birgðastýring

Fjárfestingar

Sjálfbærni

Áhætta/Tækifæri

Loftslagsbreytingar

Sjálfvirknivæðing

Aðhald á birgðastöðu. Aðgerðir á eldri birgðum og nýting á verðmætum.

Hugað að endurnýjun fastafjármuna Bifreiðar og lyftarar endurnýjaðir reglulega. Nýjar fjárfestingar miða að rafknúnum ökutækjum eða tvinnbílum.

Þjónusta og gæði

Áhætta/Tækifæri

Gæði

Aðlögun að loftslagsbreytingum m.t.t. ýktara veðurfars.

Gervigreind

Minni notkun á pappír.

Hagræðing á tíma og umsýslu. Bestun ferla

Betri upplýsingagjöf á heimasíðu Bætt þjónusta, þjónustuvefur.

Aðgerðir Aðgerðir

Allar sérpantanir staðfestar af viðskiptavini til að koma í veg fyrir mistök í pöntun.

Aðgerðir Aðgerðir
65
Aðgerðir Aðgerðir

Sjálfbærniskýrsla 2023

Með áhættustjórnun getum við náð
þeim árangri sem kemur fyrirtækinu og viðskiptavinum okkar til góðs
66
66

Sjálfbærniskýrsla 2023

Stafrænar lausnir

Húsasmiðjan leggur áherslu á sjálfsafgreiðslulausnir til viðskiptavina svo stytta megi tíma og auka pappírslaus viðskipti og býður upp á

• Rafræna lánaferla til einstaklinga og fyrirtækja

• Greiðsludreifingu

• Rafræn stýring á úttektaraðilum í gegnum app og

þjónustuvef

• Pappírslaus, rafræn viðskipti með sjálfsafgreiðsluappi

• Skanna vöru og athuga umhverfismerkingar í appi og vöruskanna í verslun

• Umhverfismerkingar á vef

• Kostnaðargreiningar á viðskiptavinavef

67
Unnið er að lausnum til að auðvelda viðskiptavinum að eiga umhverfisvænni viðskipti

Sjálfbærniskýrsla 2023

Fjöldi innkaupareikninga, fjöldi rafrænna IR og hlutfall IR

Fjöldi rafrænna, fjöldi reikninga

0 5 þ 10 þ 15 þ 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 Fjöldi rafrænna Hlutfall rafrænna Fjöldi reikninga 12,4 þ 2,9 þ 15,4 þ 16,3 þ 16,4 þ 16,1 þ 13,3 þ 14,9 þ 14,9 þ 4,8 þ 4,9 þ 5,1 þ 6,5 þ 8,7 þ 12.7 þ 13.3 þ 13.7 þ 13,6 þ 23,78 % 32,07 % 31,08 % 39,75 % 53,67 % 91.10 % 53,67 % 91.93 % 92.10 % 14,8 þ 68 Fjöldi rafrænna Hlutfall rafrænna Fjöldi reikninga 2019 2020 2021 2022 2023 2024 0 1000 þ 20000 þ 30000 þ 30 þ 30 þ 16 þ 9 þ 4 þ 31 þ 27 þ 26 þ 26 þ 24 þ 9 þ 8 þ 2 % 95,41 % 94,98 % 94,50 % Fjöldi rafrænna Hlutfall rafrænna Fjöldi reikninga Fjöldi innkaupareikninga, fjöldi rafrænna IR og hlutfall rafrænna 0 2000 þ 4000 þ 6000 þ 8000 þ 7,2 Þ 7,3 Þ 8,0 Þ 8,1 Þ 7,4 Þ 1,71 Þ 2,5 Þ 0,0% 0,1% 0,1% 0,1% 0,0% 1,13% 0,75% 1,59% 2020 2022 2024
og hlutfall rafrænna

Pappírslaus viðskipti

Prentun greiðsluseðla mælt í stk.

Prentun reikninga

69
skjöl
Sjálfbærniskýrsla 2023 Rafræn
Liður í stafrænni vegferð er að færa okkur alfarið yfir á stafrænt form með greiðsluseðla.
8000 7000 6000 5000 4000 3000 2000 1000 0 2018 Jan. Júl. Jan. Jan. Jan. Jan. Júl. Jan. Júl. Ágú. Sep. Okt. Nóv. Des. Júl. Júl. 2018 2019 2020 2021 2022 2022 2023 2023 2023 2023 2023 2023 2023 2020 2019 35000 30000 25000 20000 15000 10000 5000 0 2018 Jan. Júl. Jan. Jan. Jan. Jan. Júl. Jan. Júl. Ágú. Sep. Okt. Nóv. Des. Júl. Júl. 2018 2019 2020 2021 2022 2022 2023 2023 2023 2023 2023 2023 2023 2020 2019

Útprentanir reikninga til einstaklinga hefur verið hætt

Unnið er að því að fækka prentuðum reikningum til fagaðila

Hægt er að fá reikningana senda í PDF

Unnið er að því að hætta útprentun á greiðsluseðlum

Hægt er að nálgast alla reikninga inni á þjónustuvef Húsasmiðjunnar

Reikningar til fagaðila eru einnig sendir með rafrænum hætti

Sjálfbærniskýrsla 2023

Húsasmiðjuappið

Skanna, borga út

Árið 2022 var fyrsta heila rekstrarár viðskiptavinaappsins sem gefið var út í nóvember 2021. Um er að ræða sjálfsaf greiðslu- og viðskiptastýringar app þar sem viðskiptavinir

Sjálfsafgreiðsla

geta afgreitt sig sjálfir með vörur og þjónustu. Hátt í 10 þúsund notendur hafa notað appið. Með appinu er hægt að stilla úttektaraðila, bæta við verkum, skrá „vegna“ á viðskipti, sækja um lánsheimild auk sjálfsafgreiðslu í verslunum. Þá er hægt að skanna vörur og lesa sig til um notkun og eiginleika vöru. Einnig er hægt að sjá hvort vara sé með skráða umhverfisvottun. Stefnt er að því að styrkja appið enn frekar á komandi mánuðum.

Greiðsludreifing

HÚSASMIÐJAN

Upplýsingar um vörur

Stýra lánaheimild

Stýra úttektaraðilum

Stjórna verkum

Símaskrá

Afgreiðslutímar

71

Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfsafgreiðslukassar

Sjálfsafgreiðslukassar voru teknir í notkun í Skútuvogi í ágúst 2023. Sjálfsafgreiðslukassarnir koma til með að spara tíma viðskiptavina og hagræða í rekstrarkostnaði. Kassarnir koma til með að spara orku þar sem þeir þurfa ekki sömu aðstöðu og mannaðir kassar. Þá gefst tækifæri að nýta starfsfólk til annarra verka svo sem merkingar vara og betrumbæta þjónustu til viðskiptavina og auka sérþekkingu t.a.m á umhverfisvænum vörum.

Verði til fækkun starfsfólks vegna sjálfsafgreiðslukassa minnkar kolefnisspor vegna flutninga starfsfólks í og úr vinnu.

72

Sjálfbærniskýrsla 2023

Fá rekjanleikavottun á timbursölu.

Auka flokkunarhlutfall

á úrgangi í 70-75%

Auka fjölda rafbíla og rafhleðslustöðva við verslanir.

Bæta upplýsingagjöf á umhverfisvottuðum vörum á vef og appi

Koma af stað fleiri hringrásarverkefnum.

Draga úr losun GHL um 5%.

Erlendir innkaupareikningar verði 20% rafrænir.

Útsendir reikningar á pappír fækki um 15% .

Jafnlaunavottun 0,9%, markmið að vera undir 1%

Starfsánægja 7,6, markmið 7,9.

ENPS skor 42, markmið 45.

Jafna kynjahlutfall bæði í stjórnendastöðum og almennt.

Efnahagslegir hvatar sem minnka sóun.

Outlet á vef til að selja út birgðir sem eru gamlar á lægra verði.

73
Markmið 2023
Félagsleg Efnahagsleg Umhverfis

Sjálfbærniskýrsla 2023

Auka flokkunarhlutfall

á úrgangi yfir 70%

Auka hlutfall

rafbíla um 20%

Auka hlutfall

hleðslustöðva um 20%

Bæta aðgengi að vottunar skjölum fyrir verk viðskiptavina á þjónustuvef

Setja af stað tvö ný hringrásarverkefni á árinu.

Draga úr losun GHL um 5%

Erlendir innkaupareikningar

verði 20% rafrænir

Útsendir reikningar á pappír fækki um 10%

Jafnlauna vottun undir 1%

Starfsánægja 8,1

ENPS skor yfir 47

Jafna kynjahlutfall í 30%

Fullnýting efna og umbúða og forða þannig frá urðun

Outlet til að selja

gallaðar vörur

74
2024
Markmið
Félagsleg Efnahagsleg Umhverfis

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI tilvísunartafla með tilvísunum

(e. GRI content index with reference.)

Stuðst er við GRI staðla við miðlun upplýsinga Húsasmiðjunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 31. desember 2023. GRI tilvísunartaflan fylgir útgáfu GRI Content Index template sem tók gildi 1. janúar 2023. Taflan er birt með tilvísunum í samræmi við GRI „Content Index with references“ og eru tilvísanir í viðeigandi kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar.

Stuðst er við íslenskar þýðingar frá fyrri þýðingum Staðlaráðs í samstarfi við Festu á eldri GRI tílvísunartöflum en bætt hefur verið við þýðingum þar sem við á. Íslenskar

þýðingar hafa ekki verið yfirfarnar eða útgefnar af GRI.

GRI 1: Grunnupplýsingar

Hliðsjón er höfð af GRI 1: Foundation 2021, með tilvísunum í GRI staðla (e. Reporting with reference to the GRI Standards).

GRI Lýsing

GRI2: Almennar upplýsingar, 2021

2-1 Um fyrirtækið.

2-2 Rekstrareiningar sem falla undir upplýsingagjöf fyrirtækisins um sjálfbærni.

2-3 Tímabil skýrslugjafar, tíðni og samskiptaupplýsingar.

2-4 Endurframsettar upplýsingar.

2-5 Utanaðkomandi úttekt og áritun.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Höfuðstöðvar Húsasmiðjunnar ehf. eru í Kjalarvogi 12, 104 Reykjavík, Ísland. Aðal ÍSAT atvinnugreinaflokkur fyrirtækisins er smásala á járni- og byggingarvörum í sérverslun, flokkur nr. 47.52.1

Fyrirtækið er í eigu Bygma Ísland ehf sem er í eigu Bygma Gruppen í Danmörku.

Starfsemi Húsasmiðjunnar er á Íslandi, víðsvegar um landið. Fyrirtækið; Um fyrirtækið.

Allar starfsstöðvar Húsasmiðjunnar heyra undir upplýsingagjöfina sem og vörumerkin Ískraft og Blómaval.

Sjálfbærniskýrslan er gefin út 24. maí 2024 og gildir fyrir tímabilið 1. janúar 2023 til 31. desember 2023. Fyrirspurnir og upplýsingar um sjálfbærni Húsasmiðjunnar veitir Emilía Borgþórsdóttir, emilia@husa.is.

Skýrslan byggir á fyrri skýrslu.

Ársreikningur félagsins er endurskoðaður og áritaður af óháðum löggiltum endurskoðanda. Innri endurskoðun er í höndum starfandi endurskoðanda. Losunarbókhaldið er yfirfarið af Klöppum en ekki er gerð úttekt af þriðja aðila. Viðauki; UFS uppgjör.

75

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

Starfsemi og vinnuafl

2-6 Starfsemi, virðiskeðja og önnur viðskiptasambönd.

2-7 Starfsfólk.

2-8 Vinnuafl sem tilheyrir ekki starfsfólki.

Stjórnarhættir

2-9 Stjórnskipulag og skipurit.

2-10 Tilnefning og val á æðstu stjórnendum.

2-11 Stjórnarformaður.

2-12 Aðkoma æðstu stjórnar við eftirlit með stýringum áhrifa.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

2-13 Framsal ábyrgðar við stýringu áhrifa.

Fyrirtækið; Aðfangakeðjan, Viðskiptalíkan.

Fyrirtækið

Félagslegir þættir

Viðauki; UFS uppgjör – Félagslegir þættir.

Ekki er um að ræða langtíma samninga við utanaðkomandi vinnuafl. Unnið er að ýmsum verkefnum með ráðgjafafyrirtæjkum.

Fyrirtækið; Stjórnarhættir.

Forstjóri er ráðin af stjórn Húsasmiðjunnar og framkvæmdastjórn er ráðinn af forstjóra. Ráðningarferlar eru faglegir og mannauðssvið tekur virkan þátt í ráðningarferlum. Fyrirtækið; Stjórnarhættir.

Helgi Magnússon, óháður aðili með enga hagsmuni í félaginu.

Stefnur og reglur eru mótaðar og samþykktar af yfirstjórn og greinir m.a. frá markmiðum. Reglulega er stefnur til umfjöllunar á fundum yfirstjórnar og árangur ræddur og metinn. Framkvæmdastjórn ber ábyrgð á eftirfylgni á stefnum fyrirtækisins.

Framkvæmdastjórn tekur allar stærri ákvarðanir um alla þætti sjálfbærni og ábyrgð ekki framseld.

Yfirstjórn felur verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála daglegt eftirlit með stýringu áhrifa.

76

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

2-14 Hlutverk/aðkoma æðstu stjórnar að upplýsingagjöf um sjálfbærni.

2-15 Hagsmunaárekstrar.

2-16 Upplýsingagjöf um veigamikil atriði.

2-17 Heildarþekking æðstu stjórnar.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Stjórn og framkvæmdastjórn marka stefnu fyrirtækisins varðandi sjálfbærni sem jafnframt tryggja

eftirfylgni við framkvæmd og styðja einstðk verkefni. Sjálfbærniskýrsla og helstu verkefni fara reglulega fyrir stjórn. Ársreikningur; Skýrsla stjórnar.

Ársreikningur; Skýrsla stjórnar.

Ársreikningur; Skýrsla stjórnar.

2-18 Mat á frammistöðu æðstu stjórnar.

2-19 Starfskjarastefnur.

2-20 Launaákvörðunarferli.

2-22 Yfirlýsing um stefnumið í sjálfbærri þróun.

Fyrirtækið; Stjórnarhættir.

Aðilar í framkvæmdastjórn hafa lokið háskólanámi og búa yfir víðtækri reynslu í viðskiptalífi en hafa enga sérþekkingu né menntun á sviði sjálfbærni.

Frammistöðumat er framkvæmt á öllum stjórnendum með reglulegum hætti í gegnum kannanir.

Húsasmiðjan fylgir lögum og reglum sem varða réttindi og kjör starfsmanna.

Félagslegir þættir; Jafnlaunavottun.

Fyrirtækið; Áherslur á UFS þáttum

Framkvæmdastjórn Húsasmiðjunnar tekur fyrir og samþykkir allar stefnur sem innifela áherslur félagsins tengdum sjálfbærni.

77

Sjálfbærniskýrsla 2023

Stefna, stefnumið og starfshættir

2-23 Skuldbinding við stefnum

2-24 Samþætting skuldbindinga skv. stefnum.

2-25 Úrbótaferli vegna neikvæðra áhrifa.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

2-26 Verkferlar við að leita ráðgjafar og vekja athygli í álitamálum.

2-27 Fylgni við lög og reglur.

Fyrirtækið; Aðfangakeðjan, Viðskiptalíkan.

Fyrirtækið; Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur.

Fyrirtækið; Viðskiptalíkan.

Umhverfisþættir;Loftslagsáhrif Húsasmiðjunnar.

Efnahagslegir þættir; Sjálfbærni áhættur og tækifæri.

Ef upp koma álitamál sækir Húsasmiðjan viðeigandi ráðgjöf.

2-28 Aðild að samtökum og félögum.

Þátttaka haghafa

2-29 Aðferðafræði/nálgun við aðkomu haghafa

2-30 Þáttaka í kjarasamningum

Ársreikningur félagsins.

Fyrirtækið leitast við að fylgja lögum og reglum í hvívetna.

Fyrirtækið; Aðild að samtökum.

Gerðar eru reglulegar kannanir á innri og ytri haghöfum.

Viðauki; UFS uppgjör - Stjórnarhættir.

78

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

Mikilvægiþættir

GRI 3: Mikilvæg efnisatriði, 2021

3-1 Ferli við að ákveða mikilvægiþætti.

3-2 Listi yfir mikilvægiþætti.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

GRI 201: Efnahagslegur árangur, 2016

3-3 Stjórnun mikilvægiþátta.

Húsasmiðjan hefur hafið mikilvægisgreiningu á sjálfbærniþáttum en þeirri vinnu er enn ólokið.

Stjórnarhættir; Mikilvægisgreining.

Áherslur til birtinga á lykilmælikvöðrum hafa verið valdar af starfsmönnum fyrirtækisins og endurspeglast í birtingum mælikvarða í sjálfbærniskýrslu. Unnið er í framkvæmd á mikilvægisgreiningu með innri og ytri haghöfum

Umhverfisþættir; Loftslagsáhrif Húsasmiðjunnar.

Efnahagslegir þættir; Sjálfbærni áhættur og tækifæri.

Efnahagur

201-1 Efnahagslegt virði sem er skapað og dreift – Bein fjárhagsleg verðmætasköpun.

201-2 Fjárhagsleg áhrif og önnur áhætta og tækifæri sökum loftlagsbreytinga.

201-3 Skilgreint fyrirkomulag skuldbindinga um bætur og annað fyrirkomulag eftirlauna

201-4 Fjárhagsaðstoð frá stjórnvöldum.

Ársreikningur; Rekstrarreikningur.

Efnahagslegir þættir; Sjálfbærni áhættur og tækifæri.

Húsasmiðjan greiðir í lífeyrissjóði skv. lögum.

Engar greiðslur frá stjórnvöldum hafa borist 2023.

79

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

GRI 202: Nálægð við markað, 2016.

GRI 203: Óbein efnahagsleg áhrif, 2016.

202-1 Hlutfall almennra byrjunarlauna eftir kyni samanborið við almenn lágmarkslaun.

202-2 Hlutfall æðstu stjórnenda sem eru ráðnir úr nærsamfélaginu.

203-1 Fjárfestingar í innviðum og þjónustu samfélagsins.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Félagslegir þættir; UFS uppjgör.

GRI 204: Innkaupastefnur - virðiskeðja innkaupa, 2016.

GRI 205: Spillingamál, 2016.

203-2 Veruleg óbein efnahagsleg áhrif.

204-1 Hlutfall útgjalda til birgja í nærsamfélaginu /hlutfall innkaupa hjá birgjum í nærumhverfi.

100%.

205-1 Mat á rekstri vegna áhættu sem tengist spillingu.

Félagslegir þættir; Samfélagsstyrkir.

205-2 Miðlun upplýsinga og þjálfun í stefnum og verklagsreglum/ ferlum gegn spillingu.

Ársreikningur; Skýrsla stjórnar.

Fyrirtækið; Aðfangakeðja.

Fyrirtækið; Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur.

Reglur og stefnur eru kynntar ítarlega fyrir starfsfólki við upphaf starfs, auk þess er regluleg farið yfir reglur og stefnur í tengslum við vinnu við stefnumótun og eftir þörfum.

80

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

205-3 Staðfest atvik um spillingu og aðgerðir sem gripið var til/ mótaðgerðir.

GRI 206: Samkeppnishamlandi hegðun, 2016.

GRI 207: Skattar, 2019

206-1 Lagalegar aðgerðir gegn samkeppnishamlandi hegðun, hringamyndun og einokunaraðferðum.

207-1 Aðferðir við skattauppgjör.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Ekki komu upp atvik vegna spillingamála 2023.

207-2 Stjórnun skattamála, eftirlit og áhættustjórnun.

207-3 Þátttaka haghafa og áhyggjur stjórnenda með tilliti til skattamála.

207-4 Skýrslugerð í mismunandi löndum

GRI 301: Efni, 2016. Umhverfisþættir

301-1 Efni sem notað er eftir þyngd og rúmmáli.

301-2 Endurunnið efni sem er notað

Sérstakar reglur sem lúta að samkeppnislögum sem allt starfsfólk Húsasmiðjunnar er gert að fara eftir.

Fyrirtækið; Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur.

Húsasmiðjan er samskattað með móðurfélagi sínu Bygma Ísland ehf. og gerir upp skv. íslenskum skattalögum .

Áritun óháðs endurskoðanda.

Ársreikningur; Rekstrarreikningur og skýringar 16 og 25.

Ársreikningur félagsins og áritun óháðs endurskoðanda.

Húsasmiðjan starfar á íslenskum markaði og er öll skýrslugerð í samræmi við íslenskar kröfur.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; Úrgangsmálin og hringrásarhagkerfið.

81

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

301-3 Endurunnar vörur og pökkunarefni.

GRI 302: Orka, 2016.

302-1 Orkunotkun skipulagsheildar.

302-2 Orkunotun utan skipulagsheildar.

302-3 Orkukræfni

302-4 Samdráttur í orkunotkun

302-5 Aðgerðir til að draga úr orkuþörf vöru og þjónustu

303-1 Vatnstaka eftir vatnsbólum

GRI 303: Vatn og frárennsli, 2018

303-1 Vatnstaka eftir vatnsbólum

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Umhverfisþættir; Virðiskeðjan.

GRI 304:

Líffræðilegur fjölbreytileiki, 2016.

303-4 Losun vatns

303-5 Vatnsnotkun

304-2 Veruleg áhrif á líffræðilegan fjölbreytileika af starfsemi, vöru og þjónustu

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; Loftslagsáhrif Húsasmiðjunnar.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Fyrirtæki; Viðskiptalíkan. Umhverfisþættir; Virðiskeðjan.

82

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

304-4 Fjöldi tegunda á válista IUCN RED og tegundir í innlendum verndarflokki á áhrifasvæði rekstrar.

GRI 305: Losun í andrúmsloftið, 2016

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Umhverfisþættir; Virðiskeðjan.

GRI 306: Úrgangur, 2020

305-1 Bein losun gróðurhúsalofttegunda (Umfang 1).

305-2 Óbein losun gróðurhúsalofttegunda (Umfang 2).

305-3 Önnur óbein lostun gróðurhúsalofttegunda (Umfang 3).

305-4 Orkukræfni (styrkur losunar).

305-5 Minnkun á losun gróðurhúsalofttegunda (aðgerðir til að draga úr losun).

305-7 Losun köfnunarefnisoxiðs (NOX), brennisteinsoxíðs (SOX) og önnur veruleg losun lofttegunda.

306-1 Losun úrgangs og úrgangur með veruleg áhrif.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Eiingöngu er reiknuð losun í formi CO2 ígilda.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

83

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

306-2 Úrgangursstjórnun með veruleg áhrif.

306-3 Heildar úrgangur.

306-4 Úrgangur vísað frá förgun.

306-5 Úrgangur samþykktur til förgunar.

GRI 308:

Mat á umhverfisáhrifum birgja, 2016.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Umhverfisþættir; Úrgangsmálin og hringrásarhagkerfið.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

Umhverfisþættir; Úrgangsmálin og hringrásarhagkerfið.

Umhverfisþættir; UFS uppgjör. – Losunarbókhald.

GRI 401: Atvinnumál, 2016.

308-1 Nýir birgjar sem voru skimaðir með því að notast við umhverfisviðmið, hlutfall.

308-2 Neikvæð áhrif í aðfangakeðjunni og aðgerðir sem gripið var til.

Félagslegir þættir

401-1 Nýráðningar starfsfólks og velta.

401-2 Hlunnindi fyrir fastráðið starfsfólk í fullu starfi, gildir ekki fyrir starfsfólk í hluta- eða tímabundnu starfi.

401-3 Foreldraorlof

Fyrirtækið; Aðfangakeðja.

Umhverfisþættir; Virðiskeðjan.

Aukinn fókus er á samdrátt neikvæðra áhrifa í aðfangakeðju Húsasmiðjunnar. Enn sem komið er nær losunarbókhaldið ekki yfir hana.

Félagslegir þættir; Fjölbreytileiki og jafnrétti.

Félagslegir þættir; Fjölbreytileiki og jafnrétti.

Hlunnindi eru til staðar fyrir ákveðna starfahópa innan fyrirtækisins.

Fyrirtækið: Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur. Jafnréttisstefna og mannauðsstefna.

84

GRI Lýsing

GRI 402: Kjaramál, 2016.

402-1 Lágmarks uppsagnafrestur ef breytingar verða á rekstri.

GRI 403: Vinnuvernd, heilsa og öryggi, 2018

403-1 Þátttaka í formlegum og sameiginlegum heilsu- og öryggisnefndum stjórnenda og starfsmanna.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Farið er eftir kjarasamningum SA og LÍV.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Viðauki; UFS uppgjör – Félagslegir þættir.

403-4 Þátttaka starfsfólks, ráðgjöf og samskipti í tengslum við vinnueftirlit.

403-5 Þjálfun starfsfólks í tengslum við vinnueftirlit.

403-6 Aðgerðir til að efla heilbrigði starfsfólks.

403-7 Fyrirbyggjandi aðgerðir varðandi heilsu og öryggi.

403-8 Hlutfall starfsfólks sem vinnuefttirlit nær til.

403-9 Vinnutengd slys.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

100%.

403-10 Vinnutengd veikindi.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Viðauki; UFS uppgjör – Félagslegir þættir.

Félagslegir þættir; Heilsa og öryggi.

Viðauki; UFS uppgjör – Félagslegir þættir.

85
Sjálfbærniskýrsla 2023

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

GRI 404: Þjálfun og menntun, 2016.

404-1 Árlegur meðalfjöldi klukkustunda í þjálfun á hvern starfsmann.

404-2 Áætlanir um símenntun starfsmanna og stuðningur til að aðlagast breytingum.

404-3 Hlutfall starfsmanna sem fær reglulega rýni á frammistöðu og starfsþróun.

GRI 405: Fjölbreytileiki og jöfn tækifæri, 2016.

405-1 Fjölbreytileiki stjórnar og starfsmanna.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Félagslegir þættir; Fræðsla og starfsþróun.

Mælt í fjölda viðburða og þátttakenda.

Félagslegir þættir; Fræðsla og starfsþróun.

GRI 406: Engin mismunun, 2016.

GRI 407: Frjáls aðild að verkalýðssamtökum og kjaraviðræðum, 2016.

405-2 Hlutfall grunnlauna og kjör kvenna í samanburði við karla.

406-1 Atvik um mismunun og framkvæmd úrbóta.

Mat á frammistöðu og starfsþróun er framkvæmd árlega meðal allra fastráðna starfsmanna.

407-1 Rekstur og birgjar þar sem hætta er á sniðgöngu varðandi félagafrelsi og sameiginlega kjarasamningagerð.

Fyrirtækið; Um fyrirtækið og stjórnarhættir.

Félagslegir þættir; Fjölbreytileiki og jafnrétti.

Viðauki; UFS uppgjör – Félagslegir þættir.

Viðauki; UFS uppgjör - Félagslegir þættir.

Unnið er eftir skýrri stefnu og aðgerðaáætlun, gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi.

Fyrirtækið; Yfirlit yfir mikilvægar innri reglur.

Húsasmiðjan hefur ekki farið út í ítarlegar skoðanir á hvar möguleg hætta sé á sniðgöngu varðandi félagafrelsi og sameiginlega kjarasamningagerð og hefur því ekki upplýsingar um hvar sú áhætta liggur.

86

Sjálfbærniskýrsla 2023

GRI Lýsing

GRI 408:

Barnaþrælkun, 2016

GRI 409: Nauðungarvinna, 2016

GRI 410: Öryggismál / öryggisvenjur, 2016

GRI 411: Réttur frumbyggja / innfæddra, 2016

GRI 413: Nærsamfélagið, 2016

GRI 414: Mat á samfélagsábyrgð birgja, 2016.

408-1 Rekstur og birgjar þar sem veruleg hætta getur verið á barnaþrælkun.

409-1 Rekstur og birgjar þar sem veruleg hætta getur verið á nauðungar og skylduvinnu.

410-1 Starfsmenn í öryggisgæslu sem fá þjálfun í stefnu eða verklagsreglum í mannréttindamálum.

411-1 Brotatilvik sem fela í sér réttindi frumbyggja.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Húsasmiðjan hefur ekki farið út í ítarlegar skoðanir á hvar möguleg hætta á barnaþrælkun gæti átt sér stað. Lagt er upp úr ábyrgum birgjum þar sem framleiðendur huga að öruggum og heilbrigðum vinnuskilyrðum fyrir starfsfólk sitt.

Húsasmiðjan hefur ekki vitneskju um neina hættu sem getur talist af nauðungarvinnu.

Á ekki við í starfsemi Húsasmiðjunnar.

Ekki er vitað um nein slík brotatilvik, lagt er áherslu á ábyrga birgja og framleiðendur með vottanir sem tryggja slíkt líkt og FSC vottun á timbri.

413-1 Starfsemi sem tengist nærsamfélagi á virkan hátt, áhrifamat og þróunarverkefni.

414-1 Hlutfall nýrra birgja sem hafa verið skimaðr á grundvelli félagslegra viðmiða.

Félagslegir þættir; Samfélagsstyrkir.

414-2 Neikvæð samfélagsáhrif virðiskeðju og aðgerðir sem gripið hefur verið til.

Birgjar hafa ekki verið skimaðir á grundvelli félagslegra viðmiða.

Fyrirtækið; Aðfangakeðja.

Ekki hafa komið upp nein tilvik sem varða neikvæð samfélagsáhrif 2023.

87

GRI Lýsing

GRI 415: Opinber stefna, 2016.

GRI 416: Heilsa og öryggi viðskiptavina, 2016.

415-1 Framlög til stjórnmála.

Tilvísanir í kafla í sjálfbærniskýrslu Húsasmiðjunnar ehf.

Engin framlög hafa verið veitt til stjórnmála 2023.

416-1 Mat á heilsu- og öryggisáhrifum vöru- og þjónustuflokka.

416-2 Atvik þar sem ekki var farið eftir reglum er varða vöru og þjónustu og hefur áhrif á heilsu og öryggi.

Mikill fjölda vara Húsasmiðjunnar eru umhverfisvottaðar sem tryggja að varan sé án allra heilsuskaðlegra efna. Allar helstu upplýsingar um vörur og umhverfisvottanir er að finna á heimasíðu Húsasmiðjunnar.

Ekki er vitað um nein slík atvik þar sem tilkynnt hefur verið um brot tengd vöru og þjónustu sem hafa áhrif á heilsu og öryggi 2023.

GRI 417: Markaðssetning og merkingar, 2016.

GRI 418: Persónuvernd, 2016. Markaðssetning

417-1 Kröfur til upplýsinga og merkinga á vörum og þjónustu.

Húsasmiðjan fylgir reglum um varúðarmerkingar á vörum sem gætu haft skaðleg áhrif á heilsu. Fylgt er íslenskum lögum varðandi merkingar.

417-2 Atvik þar sem ekki er farið eftir reglum sem varða upplýsingar og merkingar vöru og þjónustu.

417-3 Atvik við markaðssetningu þar sem ekki er farið eftir reglum.

418-1 Rökstuddar kvartanir varðandi brot á persónuvernd viðskiptavina og tap á gögnum þeirra.

Húsasmiðjan hefur ekki fengið sekt fyrir brot á upplýsingagjöf sem varða merkingar vöru og þjónustu 2023.

Húsasmiðjan hefur ekki verið sektuð fyrir brot á reglum sem tengjast markaðssetningu 2023. Ein athugasemd barst vegna rangrar notkunar á vörumerki sem brugðist var við samstundis.

Húsasmiðjunni hefur ekki borist kvartanir varðandi brot á persónuvernd viðskiptavina.

Sjálfbærniskýrsla
88
2023

Organizational

and Operational Boundaries Organizational boundaries The “Operational Control” methodology has been chosen in order to define the organizational scope of Sjóvá’s emission accounting. According to the "Operational Control" methodology, companies should account for 100 percent of greenhouse gas emissions from operations under their control. They should not account for greenhouse gas emissions from operations that it has no control over, even though it has a vested interest in their operations. The following companies are covered in the statement:

Viðauki

Umhverfisskýrsla ESG

89 Sjálfbærniskýrsla 2023
Húsasmiðjan ehf. • Operational boundaries Scope 1 Mobile fuel consumption Fully included Stationary fuel combustion Not applicable Fugitive emissions Not applicable Industrial processes Not applicable Scope 2 Electricity Fully included Heating Fully included Cooling Not applicable Steam Not applicable Scope 3 Category 1: Purchased goods and services Not included Category 2: Capital goods Not included Category 3: Fuel and energy related activities Fully included Category 4: Upstream transportation and distribution Not included Category 5: Waste from operations Fully included Category 6: Business travel Partially included Category 7: Employee commute Not included Category 8: Upstream leased assets Not applicable Category 9: Downstream transportation and distribution Not included Category 10: Processing of sold products Not included Category 11: Use of sold products Not included Category 12: End-of-life treatment of sold products Not included Category 13:
leased assets
Category
KlappirGreenSolutionshf. 18 Document Ref: XWYNH-QVUQC-C4OPY-L6JZK Page18of21 Statement
Operational Parameters Unit 2019 2021 2022 2023 Net revenue (from financial statement) ISK m 18.75 23.96 27.33 26.61 Total assets (balance sheet) ISK m 6.5 10.4 10.8 Number of employees (from financial statement) FTEs 389.0 402.0 397.0 400.0 Total space for own operation m² 92,551.0 92,551.0 67,957.0 68,556.0 Total space for own operation m³ GhG emission intensity Unit 2019 2021 2022 2023 GHG emissions per megawatt-hour consumed kgCO₂e/MWh 48.0 39.8 51.5 38.4 GHG emissions per full-time equivalent (FTEe) employee kgCO₂e/FTEs 2,713.1 2,180.4 3,060.1 1,820.5 GHG emissions per assets kgCO₂e/ISK 163,379 116,579 67,509.3 GhG emissions per unit of revenue kgCO₂e/ISK 56,281.7 36,588.0 44,455.3 27,366.8 GhG emissions per unit of space (m²) kgCO₂e/m² 11.4 9.5 17.9 10.6 GhG emissions per unit of space (m³) kgCO₂e/m³ Nasdaq: E2|UNGC: P7, P8|GRI: 305-4 |SDG: 13|SASB: General Issue / GHG Emissions, Energy Management Energy intensity Unit 2019 2021 2022 2023 Energy per full-time equivalent (FTEe) employee kWh/FTEs 56,519.1 54,769.3 59,464.6 47,387.7 Energy per unit of revenue kWh/ISK m 1,172,446 919,060 863,858 712,375 Energy per square meter kWh/m² 237.6 237.9 347.4 276.5 Energy per cubic meter kWh/m³ Nasdaq: E4|UNGC: P7, P8|GRI: 302-3|SDG: 12|SASB: General Issue / Energy Management Waste intensity Unit 2019 2021 2022 2023 Total waste per full-time equivalent (FTEe) employee kg/FTEs 2,805.8 2,407.3 2,799.8 2,611.3 Total waste per unit of revenue kg/ISK m 58,204.7 40,395.1 40,673.8 39,255.3 Klappir Green Solutions hf. 5 Document Ref: XWYNH-QVUQC-C4OPY-L6JZK Page 5 of 21 Húsasmiðjan ehf. Sustainability Statement 2023
104
Document Ref: XWYNH-QVUQC-C4OPY-L6JZK Page 1 of 21
Downstream
Not applicable
14: Franchises Not applicable Category 15: Investments Not included
Operational Parameters
Kjalarvogi 12,
Reykjavík Húsasmiðjan ehf. Reg. 5512110290
Smelltu
og skoðaðu
90
2023
Sjálfbærniskýrsla

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.