Af stað út í heim Útflutningsaukning og hagvöxtur - ÚH
Útflutningsaukning og hagvöxtur – ÚH Útflutningsaukning og hagvöxtur er verkefni á vegum Íslandsstofu sem er ætlað fyrirtækjum sem vilja ná árangri í markaðssetningu á erlendum markaði. Þátttakendur fá aðstoð við að gera raunhæfar markaðsáætlanir og hver og einn er búinn undir að hrinda áætlun sinni í framkvæmd.
Ferlið Verkefnið byggir á sex tveggja daga vinnufundum, yfir fjögurra mánaða tímabil, þar sem ákveðnir dagar eru valkvæðir. Áhersla er lögð á þétta dagskrá og öfluga verkefnavinnu sem lágmarkar fjarveru frá daglegum störfum. Á milli funda fær síðan hver og einn tækifæri til að sinna sinni markaðsáætlun undir handleiðslu ráðgjafa.
Þátttakendur í ÚH verkefninu Fjölmörg fyrirtæki, úr flestum greinum atvinnulífsins, hafa tekið þátt í verkefninu í þann aldarfjórðung sem það hefur verið í boði. Meðal þátttakenda má nefna:
„Uppbygging námskeiðsins, ráðgjafar og fyrirlesarar og ekki síst aðrir þátttakendur skiluðu okkur ekki bara markvissari og betri áætlun, heldur líka frábærum stundum í skemmtilegum félagsskap og mikilvægri rýni á okkar hugmyndir.“
Bláa lónið Elding hvalaskoðun Íslenskur æðadúnn Mentor Nói-Siríus Pottagaldrar Primex Toppfiskur Trackwell True North Vilkó Villimey Össur
Tímalína
2016
7. janúar
20.-21. janúar
10.-11. febrúar
18. febrúar
2.-3. mars
13-19. mars
29.-31. mars
13.-14. apríl
20. apríl
27.-28. apríl
12. maí
19. maí
Umsóknarfrestur rennur út. Sækja skal um á islandsstofa.is
Vinnufundur nr. 1
Vinnufundur nr. 2
Samstarf hefst við nemendur í meistaranámi í HÍ
Vinnufundur nr. 3
Kynning í eigin fyrirtæki
Vinnufundur nr. 4
Vinnufundur nr. 5
Skil á fyrstu drögum að skýrslu
Vinnufundur nr. 6
Skil á lokaskýrslu
Kynning fyrir stýrihóp
Áhugaverðar staðreyndir 96% þátttakenda voru almennt ánægð með þátttöku sína í verkefninu og myndu mæla með því við stjórnendur fyrirtækja sem stefna á útflutning. 92% voru sammála því að tíma þeirra og fjármagni hefði verið vel varið með þátttöku í verkefninu. 85% voru komin með skýra útflutningsstefnu til framtíðar og sögðu þátttöku í verkefninu hafa haft jákvæð áhrif á tilgang og stefnu fyrirtækisins.
Öflugt tengslanet Frá upphafi hafa tæplega 300 íslensk fyrirtæki tekið þátt í verkefninu og óhætt er að fullyrða að þau hafi almennt verið ánægð með þátttökuna og þá þekkingu sem þau hafa aflað sér. Fyrirtækin koma úr ólíkum áttum, en skipting milli atvinnugreina er nokkuð jöfn.
Skipting milli atvinnugreina Þjónusta Ferðaþjónusta Tækni Upplýsingatækni
Annað Iðnaður Matvælaframleiðsla Sjávarútvegur
„Opnaði hugann fyrir alþjóðahugsun“ „Aðferðarfræði sem nýtist í daglegu starfi“ „Að fara í gegnum verkefnið jafnast á við gott meistaranám“
Góður stuðningur Mikið er lagt upp úr því að þeir sem taka þátt í verkefninu hverju sinni hafi fjölbreyttan bakgrunn og komi úr ólíkum greinum atvinnulífsins. Þannig skapast líflegar umræður og þátttakendur fá tækifæri til að sjá sín viðfangsefni frá öðru sjónarhorni.
Hringborð ÚH–ara Íslandsstofa stendur fyrir reglulegum endurfundum þátttakenda ÚH verkefnisins, frá upphafi. Markmiðið með þessum fundum er fyrst og fremst að efla tengslanetið og skapa vettvang þar sem íslensk fyrirtæki geta miðlað af reynslu sinni í útflutningi.
„Sú þekking sem skilaði sér hvað best var að meta aðstæður á þeim mörkuðum sem stefnt var á að fara inn á, þann menningarmun sem er á milli landa, og raunhæft mat á útflutningsmöguleikum fyrirtækisins.“
Einnig eru skipulagðir viðburðir þar sem hópnum er boðið að hittast og fræðast um það sem er efst á baugi í útflutningsmálum.
Sækja um Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í ÚH verkefninu er bent á vef Íslandsstofu, islandsstofa.is. Þar er hægt að nálgast umsóknareyðublað og allar frekari upplýsingar um verkefnið. Þátttökugjald er 420.000 krónur sem greitt er með þremur jöfnum greiðslum. Innifalið er öll aðkeypt sérfræðiþjónusta á sameiginlegum vinnufundum, persónuleg ráðgjöf á milli funda ásamt öllum fundarkostnaði, þar með talinn gistikostnaður vegna þeirra funda sem haldnir eru úti á landi.
Sterkir samstarfsaðilar Samstarfsaðilar Íslandsstofu í verkefninu eru Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Landsbankinn og Félag kvenna í atvinnulífinu.