
1 minute read
13.1.8. Fagteymisfundir
• Að samræma námsefni • Að samræma okkur hvað varðar agastjórnun, áherslur í námi, skipulag o.fl. • Að samþætta námsgreinar og aldurshópa • Að skipuleggja verkefni þvert á námsgreinar, t.d. þemaverkefni • Að sækja stuðning í samkennara • Að undirbúa teymiskennslu Form og skyldur: • að kjósa sér fundarritara sem ritar fundargerðir • að halda fundargerð
13.1.8.Fagteymisfundir
Advertisement
Mismunandi fagleg teymi kennara starfa á hverju ári í skólanum og hafa það hlutverk að halda utan um og framfylgja stefnu skólans í ákveðnum þróunarverkefnum. Hlutverk hvers teymis er m.a.: • að koma að stefnumótun í málaflokknum • að útfæra stefnu og markmið málaflokksins að skipulagi skólans • að koma stefnu og markmiðum málaflokksins í framkvæmd á skólaárinu • að kynna málaflokkinn og verkefni hans fyrir öðru starfsfólki skólans eins og við á hverju sinni • að koma að viðburðum, þemadögum, námskeiðum, kynningum o.fl. sem hefur með málaflokkinn að gera í starfi skólans • að fylgjast með þróun málaflokksins í skólasamfélaginu í víðara samhengi og viða að sér hugmyndir til frekari þróunar innan skólans • að fylgjast með og láta vita af námskeiðum, fyrirlestrum o.fl. sem í boði er og tengist málaflokknum • að vera opin fyrir samstarfi við aðra skóla og mynda tengsl / samstarf eftir því sem við á / við er komið og gætu aukið gæði okkar starfs • að koma með fréttir af starfi viðkomandi málaflokks eftir því sem við á og er hægt að nýta út á við, t.d. á heimasíðu skólans og í fjölmiðla
Hvert teymi þarf: • að funda vikulega • að kjósa sér fundarritara sem ritar fundargerðir • að halda fundargerð og senda til skólastjóra að loknum fundi