Work for children

Page 1

Rauður Gulur Grænn og Blár

Hugmyndir vegna umhverfisverka fyrir Reykjanesbæ Samstarfsverkefni

2010 Guðmundur R Lúðvíksson, myndlistamaður


Hugmyndin - verkið.

Blýantar, litir og fuglahús Hugmyndin er að þessu verki er að nota tré (afklippur ) og gera úr þeim einskonar blýanta og liti. Þessi framkvæmd er ákaflega auðveld þar sem nóg af trjáar úrgangi fellur til á vorin. Ofan á blýantinum er lítið fuglahús í grænum lit. Hér vil ég höfða til náms hjá börnum. Blýantarnir eru þrír, í rauðum, gulum og bláum lit. Fuglahúsið ber grænalitin. Þau eiga að finna út hvaða lit vantar í blýantana og tengja fuglahúsið við. Þau gætu t.d ímyndað sér að græni blýanturinn hafi verið notaður í fuglahúsið ? Stærð verksins fer eftir trjábolunum sem notaðir eru. Kostaður við gerð verksins er sára lítill og auðvelt er að koma verkinu saman og fyrir.


Rauður Gulur Grænn og Blár Blýantar, litir og fuglahús


Hugmyndin - verkið.

Cuckoo Clocks - Gúgú klukkan Hugmyndin að þessu verki er “gúgú” klukkurnar þar sem fuglinn gægist út um gluggann og segir “gúgú” Verkið er í megin atriðum þrí þætt. 1. Leikur - Leyfa börnunum að fara í gluggann í húsinu og leika fuglinn og segja “gúgú” 2. Að fræða börnin um þessar klukkur sem eiga sér merkilega sögu. En klukka þessi var fyrst gerð af Grikkjanum Ctesibius frá Alexandríu (ca.285-222 BC). 3. Að kenna börnum um leið á klukku. Verkið á ekki að vera stórt um sig. Ca. 230cm á hæð. Gert úr timbri. Á bakvið húsið er lítil trappa upp í gluggan fyrir börnin. Skreyta mætti húsið meir en hér er sýnt á módelinu og gera það litríkara. Sára lítill kostnaður og ekki mjög mikil vinna við gerð þess.


Rauður Gulur Grænn og Blár Cuckoo Clocks - Gúgú klukkan


Hugmyndin - verkið.

Litapalletan og fóðurhús fuglanna. Hugmyndin að þessu verki er eins og fyrri hugmyndir, notast er við grunn litina. Hér er málarapallettan notuð sem pallur fyrir fuglafóður, formið er tilvísun í listana, lífið, leik og starf. Á pallettunni eru einnig kubbar í grunnlitunum. Þakið er ( skjól ) munsturskorið til að fá mismunandi skugga þegar sól skýn á húsið og einnig til að það líti út fyrir að vera tré. Ofan á því er einfalt nokkurskonar fuglahús, en það framkallar einnig sólarúrið í verkinu. Verkið er því einnig sólúr. Þetta verk er einfalt í framkvæmt, og kostnaður ætti ekki að vera mikill við gerð þess. Stærð verksins miðast við barnastærð. Hæð þess gæti verið ca. 200cm. Verkið má einnig vera á súlu til að lifta því upp, en þá er verkið hugsað fyrir fugla. En það getur líka verið svona eins og sýnt er hér, en þá hefur það meiri meiningu um áningastað fyrir börn, þar sem kubbarnir gætu nýst sem bekkir.


Rauður Gulur Grænn og Blár Litapalletan og fóðurhús fuglanna


Verkið gæti einnig verið stærra og staðið eitt og sér á opnu svæði á Reykjanesi.

Hugmyndin - verkið.

Horft á heimin í nýju ljósi ! Hugmyndin að þessu verki er sótt í setninguna “ Horfðu á heiminn í nýju ljósi “ Hér er notast við 4 gler eða plexí gler í grunnlitunum, rauðum, gulum, grænum og bláum. Glerin eru á snúningsás. Hugmyndir er sú að fólk geti skoðað umhverfi í mismunandi litum. Horft á Keili í gulu, eða Keflavík í gulu osfr. Stærð verksins ca. H: 120 cm ( Barnastærð ) X B: 100cm eða H: 180 cm x B: ca. 100 cm ( Fullorðins stærð ). Verkið þarf að standa á opnu svæði sem gefur möguleika á að skoða í allar áttir.


Rauður Gulur Grænn og Blár Horft á heimin í nýju ljósi !

Verkið hugsað í barnastærð.


Hugmyndin - verkið.

“ Blýantagarður fyrir fugla “

Hugmyndin að þessu verki er sú sama og hér áður. Hér er búin til lítill “blýantagarður” fyrir fugla. Göt og holur eru í blýöntunum ásamt prikum fyrir fuglana. Notuð eru afklippt tré.


Rauður Gulur Grænn og Blár “ Blýantagarður fyrir fugla “


Guðmundur R Lúðvíksson 2010


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.