Lög Alþjóðlegra ungmennaskipta – AUS I.
Kafli- Félagið og aðsetur
1. gr. Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) eru alþjóðleg sjálfboðaliða- og fræðslusamtök sem hafa það að markmiði að auka kynni og skilning milli þjóða heims og vilja þannig stuðla að friðvænlegri heimi. Félagið starfar á landsvísu en aðsetur og varnarþing er í Reykjavík. 2. gr. AUS eru frjáls félagasamtök sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða. AUS er aðili að evrópu- og alþjóðasamtökum International Cultural Youth Exchange (ICYE) og starfar eftir þeim vinnureglum sem settar eru fram af ICYE á hverjum tíma.
II. Kafli- Hlutverk og markmið. 3. gr. Markmið AUS er að gefa ungu fólki tækifæri til að læra um ólíka menningarheima í þeim tilgangi að aðstoða það við að þróa þá þekkingu, hæfileika og skilning sem þarf til þess að stuðla að friði og skilningi milli einstaklinga og þjóða og vinna gegn fordómum og hleypidómum hvers konar. Markmið AUS er að stuðla að þroska ungs fólks til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Markmiðum sínum hyggst AUS m.a. ná með að: Skipuleggja ráðstefnur, kynningarfundi og aðrar uppákomur. Að gefa ungu fólki tækifæri til þess að vinna sem sjálfboðaliði erlendis og kynnast þannig menningu og samfélagi annarra þjóða. Með því að taka á móti erlendum sjálfboðaliðum og kynna þá fyrir íslenskum siðum og menningu í gegnum leik og starf. III. Kafli- Félagsaðild 4. gr. Rétt til inngöngu í AUS hafa öll frjáls félög sem hafa það að markmiði að gefa ungu fólki tækifæri til að læra um ólíka menningarheima og starfa eftir þeim vinnureglum sem settar eru fram af AUS á hverjum tíma. Aðildarumsókn skal skila skriflega til stjórnar AUS ásamt afriti af lögum. Stjórn AUS getur veitt félagi inngöngu fram að næsta aðalfundi sem þarf að staðfesta ákvörðun stjórnar. Einnig getur stjórn AUS ákveðið að víkja aðildarfélagi tímabundið úr AUS, eða fram að næsta aðalfundi, sem þarf að staðfesta ákvörðun stjórnar. 5. gr. Rísi upp ágreiningur milli stjórna AUS og aðildarfélags um stjórnarhætti eða ákvarðanir stjórnar aðildarfélagsins, getur stjórn AUS yfirtekið ákvarðanir stjórnar aðildarfélagsins sem tengjast samstarfi félaganna. Slík yfirtaka er einungis gild ef 2/3 hluti stjórnar AUS samþykkir hana, enda stangist ákvörðun stjórnar aðildarfélagsins á við vinnureglur AUS. 6. gr. Allir þeir sem fara til útlanda sem sjálfboðaliðar á vegum AUS teljast félagsmenn, nema þeir kjósi það ekki. Úrsögn úr félaginu skal tilkynna skriflega. Upphæð félagsgjalda er ákveðin á aðalfundi.
7. gr. Aðrir einstaklingar sem bera hag félagsins fyrir brjósti og starfa í þeim anda geta orðið félagsmenn. Sá sem óskar að gerast félagi skal senda stjórn félagsins skriflega umsókn um inngöngu. Stjórn AUS metur hvort viðkomandi uppfylli þessi skilyrði og veitir félagsaðild. 8. gr. Stjórn AUS getur vikið félagsmanni úr félaginu ef hann hefur brotið lög félagsins eða með öðrum hætti sýnt af sér háttsemi sem er andstæð hagsmunum félagsins. Áður en tekin er ákvörðun um brottvísun skal gefa félagsmanni kost á að veita andsvör um hina fyrirhuguðu ákvörðun. Ofangreind samskipti skulu vera skrifleg. Félagsmaður getur krafist þess að ákvörðun stjórnar um brottvikningu hans sé borin undir aðalfund. 9. gr. Félagið getur kjörið heiðursfélaga samkvæmt tillögu frá stjórn félagsins. Tillaga um slíkt kjör skal borin fram á aðalfundi og telst hún samþykkt ef hún fær 2/3 hluta greiddra atkvæða. IV. Kafli- Aðalfundur 10. gr. Aðalfundur fer með æðsta vald í málefnum félagsins og hefur úrskurðarvald í öllum málum þess. Aðalfund skal halda í september, október eða nóvember ár hvert. Til fundarins skal boðað með því að senda fundarboð til félagsmanna í tölvupósti, með tveggja vikna fyrirvara hið skemmsta, og telst hann þá löglegur. Einnig skal setja tilkynningu um aðalfundinn á heimasíðu AUS með sama fyrirvara. Í fundarboði skal getið þeirra mála sem kunnugt er að lögð verði fyrir fundinn auk venjulegra aðalfundarstarfa, sbr. 13. gr. þessara laga. Skýrsla stjórnar, reikningar félagsins, rekstrar- og starfsáætlun og hugsanlegar lagabreytingartillögur skulu liggja fyrir a.m.k. viku fyrir aðalfund. 11. gr. Á aðalfundi skal skipa 3 menn í kjörnefnd sem kanna kjörgengi og atkvæðisrétt fundarmanna. Kjörgengi og atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn sem greitt hafa ársgjöld. Ekki er leyfilegt að veita öðrum félagsmanni umboð sitt á aðalfundi. Gestir aðalfundar hafa málfrelsi, en hvorki tillögu- né atkvæðisrétt. Í öllum málum sem þarfnast atkvæðagreiðslu ræður hreinn meirihluti greiddra atkvæða, nema sérstaklega sé kveðið á um annað. 12. gr. Kosning til stjórnar fer fram með leynilegri atkvæðagreiðslu. Stjórn er kosin til eins árs í senn og skal kjósa formann, gjaldkera og ritara sérstaklega. Ef einn aðili er í framboði til embættis skal engu síður fara fram kosning. Ef atkvæði falla jöfn skal kosning fara fram aftur, en ef atkvæði falla jöfn í annað sinn skal hlutkesti ráða. 13. gr. Á aðalfundi skal fjalla um eftirfarandi liði: - Kosning fundarstjóra og fundarritara. - Kosning kjörnefndar. - Skýrsla stjórnar kynnt og rædd. - Lagðir fram reikningar síðasta árs til samþykktar.
- Lögð fram rekstraráætlun til samþykktar. - Starfsáætlun lögð fram til samþykktar. - Mögulegar lagabreytingar kynntar, ræddar og afgreiddar. - Hugsanlegar ályktanir/ tillögur kynntar og ræddar. - Kosning stjórnar. - Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna. - Önnur mál. V. Kafli- Stjórn 14. gr. Stjórn AUS fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda og sér um að framfylgja samþykktum aðalfundar og lögum félagsins, auk þess að bera ábyrgð á fjárreiðum félagsins. Stjórn félagsins skipa formaður, gjaldkeri, ritari og þrír meðstjórnendur. 15. gr. Stjórn félagsins tekur nánari ákvarðanir um starfsemi félagsins og ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja. Stjórn er heimilt að ráða framkvæmdastjóra og starfsmenn á skrifstofu, skipa landshlutafulltrúa og kveðja sér til aðstoðar félagsmenn til afmarkaðra verkefna, nefndarstarfa o.s.frv. 16. gr. Formaður skal boða stjórnarfundi með tryggilegum hætti og með hæfilegum fyrirvara. Landshlutafulltrúar hafa seturétt á stjórnarfundum en ekki atkvæðisrétt. Eins skal framkvæmdastjóri sitja fundi stjórnar nema þess sé ekki óskað og hefur þá málfrelsi og tillögurétt en er án atkvæðisréttar. Ákvarðanir stjórnarfundar teljast löglegar ef a.m.k. helmingur stjórnar mætir. Einfaldur meirihluti atkvæða skal ráða úrslitum atkvæðagreiðslu. Ef atkvæði reynast jöfn, þá vegur atkvæði formanns tvöfalt. Gerðir stjórnarinnar skulu bókfærðar. 17. gr. Komi upp sú staða að stjórnarmeðlimur þurfi að segja stöðu sinni lausri getur stjórn félagsins skipað annan einstakling í stjórn félagsins. Komi fram vantraust á stjórnarmeðlim skal boða til stjórnarfundar þar sem vantrauststillaga er borin upp. Sé hún samþykkt af meirihluta stjórnar, skal viðkomandi aðili víkja úr stjórn þá þegar. Ef skipa þarf nýjan einstakling í stjórn félagsins, skal stjórnin taka tillit til úrslita kosninga í stjórn á síðasta aðalfundi. VI. Kafli- Fjármál 18. gr. Reikningsár AUS skal vera frá 1. september til 31. ágúst. Framkvæmdastjóri hefur prókúru og heldur reikninga yfir tekjur og gjöld félagsins. Gjaldkeri félagsins heldur utan um bókhaldið, hefur eftirlit með fjármálum félagsins og gengur frá ársuppgjöri. Reikninga félagsins skal leggja fyrir aðalfund til samþykktar. 19. gr. Reikningar skulu endurskoðaðir af tveimur skoðunarmönnum reikninga sem kosnir eru á aðalfundi, og skal annar þeirra hafa þekkingu á bókhaldi. Skoðunarmenn mega ekki sitja í stjórn AUS á sama tíma. Ef skoðunarmenn samþykkja ekki báðir ársreikning, þá skal
senda hann til viðurkennds bókara til endurskoðunar. Skoðunarmönnum er heimilt, ef þeir telja þess þörf, að gera könnun á fjárhag og færslu bókhalds hvenær sem er á reikningsári. VII. Kafli- Slit 20. gr. AUS verður ekki slitið nema á aðalfundi og þá aðeins að 4/5 greiddra atkvæða samþykki þá ráðstöfun. Fyrirhuguð slit félagsins skal alltaf taka fram í fundarboði aðalfundar. Við félagsslit skal skipa 3 fulltrúa í sérstaka skilanefnd og er formaður AUS jafnframt formaður skilanefndar. Fjármunir félagsins skulu renna til alþjóðaskrifstofu ICYE, “The Federation of International Cultural Youth Exchange“, til varðveislu. VIII. Kafli- Lagabreytingar og gildistaka 21. gr. Lögum þessum er einungis hægt að breyta á aðalfundi með 2/3 hluta greiddra atkvæða enda hafi breytingartillögurnar borist skrifstofu eða stjórn á tilskyldum tíma fyrir aðalfund. 22. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi eldri lög félagsins, og þær samþykktir sem stangast á við lög þessi.
Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi AUS 19. janúar 2008 og breytt 29. september 2011.