Skýrsla stjórnar AUS starfsárið 2012-13

Page 1

Sk媒rsla stj贸rnar 2012-2013


Efnisyfirlit 1 Inngangur ............................................................................................................................................... 4 2 Stjórn og skrifstofa ................................................................................................................................. 6 2.1 Stjórn ............................................................................................................................................... 6 2.2 Skrifstofa ......................................................................................................................................... 6 3 Ráðstefnur og námskeið ........................................................................................................................ 7 3.1 Á Íslandi ........................................................................................................................................... 7 3.2 Erlendis............................................................................................................................................ 8 4 Fjölmenningarviðburðir og aðrir viðburðir ............................................................................................ 9 5 Sjálfboðaliðar ....................................................................................................................................... 10 5.1 Erlendir sjálfboðaliðar ................................................................................................................... 10 5.1.1 Verkefni á Íslandi........................................................................................................................ 11 5.1.2 Húsnæðismál og fósturfjölskyldur ............................................................................................. 12 5.2 Sjálfboðaliðar erlendis .................................................................................................................. 12 6 Félagslíf ................................................................................................................................................ 13 7 Kynningar og markaðsmál.................................................................................................................... 14 8 Annað ................................................................................................................................................... 17 8.1 Fjármál .......................................................................................................................................... 17 8.2 Félagaskrá ..................................................................................................................................... 18 8.3 LÆF og Æskulýðsráð ...................................................................................................................... 18 8.4 Stefna stjórnvalda ......................................................................................................................... 18

2


3


1 Inngangur Starfsárið var okkur flestum ljúft þrátt fyrir mörg verkefni, nokkrar tarnir og án efa einhverja gnístan tanna þegar hlutir virtust ekki ætla að ganga upp á síðustu stundu. En ég held ég geti fullyrt að við erum öll stolt af því sem við höfum náð að afreka í sameiningu yfir árið og ánægð með hvar AUS er statt í dag. Það varð þó nokkur uppstokkun í stjórninni eftir Aðalfund í október í fyrra. Eftir talsverðar skiptingar inn og út af stjórnarmönnum yfir síðasta ár tók til starfa sex manna hópur sem hefur haldist nánast óbreyttur út starfsárið. Góður vinnuandi ríkti frá upphafi og mikil samstaða þrátt fyrir okkar ólíku persónuleika og hugmyndir. Meðlimir voru óhræddir við að viðra nýjar skoðanir, koma með tillögur, vera ósammála og gera góðlátlegt grín að hvor öðrum og urðu fundir oft á tíðum frjóir og skemmtilegir. Segja má að starfsárið hafi samt sem áður einkennst af áframhaldandi uppbyggingu á grunnstoðum félagsstarfsins. Í takt við síðasta ár héldu ráðstefnur áfram að stækka og er þar að byggjast upp góður þekkingar- og reynslugrunnur sem gerir okkur kleift að fínpússa hluti og gera enn betur. Sett var meira púður í markaðsstarf sem fólst meðal annars í hugmyndavinnu fyrir nýjan bækling og útgáfu fjölda greina eins og sjá má lista yfir hér neðar í skýrslunni. Skólakynningar gengu vel og eru kynningar frá AUS nú orðinn fastur liður hjá mörgum framhaldsskólum. Verkefnum sjálfboðaliða hér á Íslandi hefur fjölgað og er ánægjulegt að sjá hvað fjölbreytni er þar orðin mikil. Fjölbreytni í heimalöndum sjálfboðaliða sem hingað koma á vegum AUS er einnig að aukast og má þar nefna að í vetur dvelja hér sjálfboðaliðar frá Hondúras og Portúgal en AUS hefur ekki tekið á móti sjálfboðaliðum þaðan í langan tíma. Hóparnir halda áfram að stækka og tókum við núna síðast á móti 16 manna hópi í byrjun hausts. Má segja að þetta sé þrátt fyrir óhagstætt samfélagsástand en talsverð vinna var lögð í það að reyna að tryggja AUS og öðrum frjálsum félagasamtökum áframhaldandi rekstrargrundvöll í núverandi efnahagsástandi. Hvað varðar íslenska sjálfboðaliða á leiðinni út eru styttri verkefni enn afar vinsæl. Þó virðist áhugi á dvöl erlendis í hálft eða heilt ár vera að aukast sem er gleðilegt. Hinn spænskumælandi heimur er í greinilegu uppáhaldi en fleiri möguleikar eru nú stöðugt að opnast utanförum eftir því sem félög í fleiri löndum fá inngöngu í ICYE. Samstarf við aðrar ICYE skrifstofur hefur verið þó nokkuð og ber þar helst að nefna evrópusamstarf sjö skrifstofa í Evrópu. Stofnfundur þess samstarfs var haldinn í Sviss í fyrra og var annar fundur haldinn í Danmörku síðasta sumar. Þessi samskipti eru tvímælalaust jákvæð fyrir AUS enda lærdómsrík og mikil gerjun í gangi. Öll þessi ósköp væru þó ekki möguleg án öflugrar skrifstofu. AUS býr yfir einni slíkri sem er mönnuð meiriháttar snillingum. Blómleg staða AUS í dag er að stóru leyti þeim Kristínu og Heiðu að þakka. Kristín stýrir daglegum rekstri AUS af miklum myndarbrag og saman hafa þær náð að leysa úr öllum þeim málum til þeirra berast. Taka má fram að fyrir hönd AUS hefur Kristín landað þó nokkrum styrkjum, meðal annars fyrir fjölmenningarhátíð á vegum AUS og fyrir gerð kynningarmyndbands um AUS. Þetta skiptir lítið félag eins og AUS gríðarlegu máli. 4


Ég vil nýta tækifærið og þakka bæði samstarfsfólki mínu í stjórn og þeim Kristínu og Heiðu fyrir meiriháttar starfsár. Eins vona ég að stjórn næsta árs skemmti sér eins vel og við höfum gert við að hlúa að okkar frábæra félagi! F.h. fráfarandi stjórnar, Sigrún Inga Garðarsdóttir Ritari AUS

Stjórn Alþjóðlegra ungmennaskipta starfsárið 2012-13 Marta Mirjam Kristinsdóttir, formaður Gauti Baldvinsson, gjaldkeri Sigrún Inga Garðarsdóttir, ritari Ásta Björg Björgvinsdóttir, meðstjórnandi Stefán Örn Gíslason, meðstjórnandi

5


2 Stjórn og skrifstofa 2.1 Stjórn Ný stjórn var kosin á Aðalfundi 25. október 2012. Á fundinum kvaddi Sjöfn Guðlaugsdóttir stjórnarstarfið en á starfsárinu höfðu einnig þau Eggert Kristjánsson, Elísabet Sveinsdóttir, Margrét Helga Sesseljudóttir og Katrín Árnadóttir gengt stjórnarstöðum í skemmri eða lengri tíma. Þessum orkuboltum var öllum þakkað skemmtilegt og gott starf. Við tók ekki síðra fólk en hér að neðan má sjá þá sem skipuðu stjórn AUS starfsárið 2012-13: Stjórn AUS starfsárið 2012-13 Formaður Gjaldkeri Ritari Meðstjórnandi 1 (félagslíf) Meðstjórnandi 2 (skólakynningar) Meðstjórnandi 3 (fjölmenningarviðburðir)

Marta Mirjam Kristinsdóttir Gauti Baldvinsson Sigrún Inga Garðarsdóttir Stefán Örn Gíslason Ásta Björg Björgvinsdóttir Sigríður Hugljúf Blöndal

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar kom í ljós að í gegnum sjálfboðaliðastörf sín hafði stjórnin til samans dvalist í hvorki meira né minna en 5 heimsálfum og því um að ræða hóp með fjölbreytta reynslu. Góður vinnuandi ríkti strax frá upphafi, ýmislegt skipulag bætt og meiri regla komst á stjórnarfundi. Meðal annars var gripið til skype- funda yfir sumarmánuðina. Mikill stöðugleiki einkenndi einnig starfsárið en nú þegar líður að næsta Aðalfundi hafa nánast allir meðlimir starfað út árið og verkaskipting haldist næstum óbreytt. Sigríður Hugljúf lét þó af störfum í sumarlok vegna vinnu sinnar og þökkum við henni kærlega fyrir samstarfið. Hún kom okkur til að hlæja á hverjum fundi. 2.2 Skrifstofa Kristín Björnsdóttir og Heiða Aníta Hallsdóttir stýrðu áfram skrifstofu AUS með stakri prýði. Þær gegna báðar 100% stöðum. Kristín hefur nú gegnt stöðu framkvæmdastjóra í 3 ár og undir hennar styrku hendi hefur félagið eflst og dafnað. Heiða gefur engum eftir í dugnaði, skipulagningu og einskærum metnaði. Það er öruggt að segja að án þeirra væri AUS ekki það sem það er í dag. Í ágúst 2012 hóf sjálfboðaliði frá Ítalíu, Barbara Motta, störf á skrifstofunni. Var þetta í kjölfar þess að umsókn um styrk þessa efnis var samþykkt af Evrópu unga fólksins. Barbara reyndist skrifstofunni afar vel og hjálpaði það mikið að hafa auka starfskraft. Þess vegna var ákveðið að sækja aftur um fyrir sjálfboðaliða á skrifstofu í ár. Það gekk í gegn og hefur AUS nú tekið skælbrosandi á móti nýrri Barböru; Barböru Pawlowsku. Hún er frá Póllandi en hefur lengi búið í Bretlandi. Hún hefur nú verið á skrifstofunni í rúman mánuð og gengur samstarfið mjög vel. Verkaskipting á skrifstofunni hefur haldist svipuð. Umsjón skólakynninga var þó færð frá stjórn inn á skrifstofu og hefur Heiða sinnt þeim málum. 6


Síðasta haust hætti Katrín Pálsdóttir sem bókari AUS en þeirri stöðu hafði hún gengt síðan hún lét af störfum á skrifstofunni. Í ár var leitað til endurskoðunarfyrirtækis um bókhaldsþjónustu sem gafst vel.

3 Ráðstefnur og námskeið 3.1 Á Íslandi Ráðstefnur fyrir utanfara og sjálfboðaliða á Íslandi héldu áfram að vaxa. Stefnu síðasta árs um tvær stórar ráðstefnur á ári var haldið til streitu. Á þessar ráðstefnur var EVS sjálfboðaliðum einnig boðið til viðbótar við ICYE sjálfboðaliða og heimkomnum Íslendingum boðið að koma og aðstoða. Þannig skapaðist skemmtilegur andi, tækifæri fyrir fleira fólk að kynnast og ráðstefnurnar urðu stór þáttur í að virkja nýja félagsmenn. Að neðan má sjá lista yfir ráðstefnur síðasta árs: Ráðstefnur fyrir sjálfboðaliða AUS starfsárið 2012-13 Tími Hópur Janúar 4-6 Brottfararráðstefna ICYE Long Term (LT) og EVS Mars 6-10 On Arrival ICYE LT, Mid Term ICYE LT og heimkomnir ICYE LT og EVS Júní 28-30 Final ICYE LT og EVS og brottfararráðstefna ICYE LT og EVS Ágúst 28-Sept. 1 On Arrival ICYE LT og EVS, Mid Term ICYE LT og EVS og heimkomnir ICYE LT og EVS

Staður Hitt Húsið Keflavík Akranes Selfoss

Almennt hefur ríkt mikil ánægja með þessar ráðstefnur bæði meðal erlendu sjálfboðaliðanna og Íslendinga og eru skrifstofa og stjórn ánægð með hvernig til hefur tekist. Með skýrara skipulagi hefur tekist að koma á tengingu við nokkra staði úti á landi sem gerir allan undirbúning léttari. Einnig er komin reynsla á dagskrárliði sem gefur okkur möguleika á að fínpússa þá og bæta um betur.

Ráðstefnuhald í Keflavík og á Akranesi

7


Tekið var upp á þeirri nýbreytni á síðasta starfsári að bjóða fósturfjölskyldum uppá fræðslufund hjá AUS. Þar var farið í ýmis praktísk atriði, tengslin styrkt og starfsemi AUS kynnt. Þetta gafst afar vel. Í ár var ákveðið að ráðast í svipaða fundi, annars vegar fyrir tengiliði AUS í verkefnum sjálfboðaliða og hins vegar fyrir mentora. Fundur með tengiliðum verkefna var haldinn í mars og mæltist vel fyrir. Sögðu flestir viðstaddir að fundurinn hefði verið mjög gagnlegur. Ekki reyndist næg eftirspurn eftir fundi fyrir mentora en þess má geta að EUF hefur haldið sambærileg námskeið fyrir mentora og því þörf og eftirspurn í þessum málum. Þessir fundir eru þó gott framtak sem vert væri að gera að reglulegum viðburðum. Ekki hefur tíðkast að sjálfboðaliðar sem farið hafa á vegum AUS í STePs verkefni mæti á ráðstefnu fyrir brottför né að dvöl lokinni. Í staðinn hefur fólki verið boðið að koma uppá skrifstofu í spjall. Á þessu ári var þessum hópi þó boðið að koma á brottfararráðstefnu ásamt LT sjálfboðaliðum í janúar. Einnig var vilji fyrir því að koma á fót sérstökum STePs heimkomukvöldum þar sem sjálfboðaliðar sem komið höfðu heim úr slíkum verkefnum nýlega gætu hist, kynnst og deilt sinni reynslu. Tilraun var gerð til að halda eitt slíkt kvöld en mæting var því miður dræm. 3.2 Erlendis Stjórn, skrifstofa og aðrir félagsmenn sóttu þó nokkurn fjölda námskeiða, ráðstefna og funda erlendis á síðasta starfsári. AUS hlotnaðist sá heiður að fá að tilnefna úr sínum röðum annan af tveimur fulltrúum Íslands á árlega ungmennaráðstefnu Evrópuráðsins sem haldin var í Dublin í mars. Ráðstefnan bar yfirskriftina Structured Dialogue og sat formaður okkar, Marta Mirjam, fundinn ásamt Erlendi Kristjánssyni fyrir Íslands hönd. Einnig má hér nefna ráðstefnu um fátækt og ójöfnuð sem Sigríður Hugljúf sat í Strassbourg í vor og var einnig á vegum Evrópuráðsins. Kristín, Sigmar Ingi Sigurgeirsson og Heiða Vigdís Sigfúsdóttir fræddust öll um fjöl- og samfélagsmiðla, Sigmar og Heiða Vigdís í Tékklandi en Kristín í Austurríki. Lista yfir námskeið, ráðstefnur og fundi og þátttakendur má sjá hér að neðan: Þátttakendur AUS á námskeiðum o.þ.h. erlendis starfsárið 2012-13 Námskeið/ráðstefna/fundur Þátttakandi/-endur SOHO námskeið Marta Mirjam Kristinsdóttir Poverty and inequality - Sigríður Hugljúf Blöndal Evrópuráðið Structured Dialogue - Marta Mirjam Kristinsdóttir Evrópuráðið Training on Cross Cultural Heiða Aníta Hallsdóttir og Rannvá Olsen Volunteering Impact London Mentoring for change Gauti Baldvinsson Upgrade yourself Heiða Vigdís Sigfúsdóttir og Sigmar Ingi Sigurgeirsson Samstarfsfundur E7 (7 ICYE Kristín Björnsdóttir og Sigrún Inga

8

Tími Febrúar Febrúar

Land Ítalía Frakkland

Mars

Írland

Apríl

Bretland

Maí Júní

Pólland Tékkland

Júlí

Danmörk


skrifstofur í Evrópu) Inclusion TV

Garðarsdóttir Kristín Björnsdóttir

September

Austurríki

Í framhaldi af Aðalfundi ICYE í Kosta Ríka í nóvember 2011 var farið af stað með Evrópusamstarf evrópsku ICYE skrifstofanna sem formlega hóf störf sín á fundi í Sviss í mars 2012. Þar fór af stað vinna í ýmsum sameiginlegum málefnum. Fundinum í Sviss var fylgt eftir með fundi í júlí 2013 í Danmörku sem bæði framkvæmdastjóri og ritari AUS sátu. Fyrir þann fund var kosinn formaður fyrir samstarfið og var Jacob Wachmann Pedersen, fyrrum formaður ICYE Denmark. Framboðs og kosningaferlinu var stýrt af Mörtu Mirjam. Hefur samstarfið fengið á sig skýrari mynd og aðilar ánægðir með vinnu og útkomu hingað til. Fundurinn í Danmörku var að miklu leyti nýttur til að ræða og undirbúa málefni fyrir næsta Aðalfund ICYE sem haldinn verður nú í nóvember 2013 í Úganda. Formaður og framkvæmdastjóri AUS munu sitja þann fund og eru þær fullar eftirvæntingar enda reynslunni ríkari eftir veru sína á síðasta Aðalfundi ICYE.

Heiða Vigdís og Sigmar kynna Ísland á námskeiði í Tékklandi

4 Fjölmenningarviðburðir og aðrir viðburðir Það hefur verið hluti af starfsemi AUS að taka þátt í ýmsum fjölmenningar- og samstarfsverkefnum og stjórn og skrifstofu berast árlega margar hugmyndir og tilkynningar um skemmtileg verkefni og uppákomur. Það er ávallt mikill áhugi að víkka verksvið AUS og taka þátt í sem flestu en því eru auðvitað skorður settar. Á síðasta starfsári var stefnan sú að takmarka þennan hluta starfsins með það að leiðarljósi að eyða meira púðri í grunnatriði starfseminnar s.s. ráðstefnur og má segja að það hafi skilað tilætluðum árangri. Þó voru nokkrir viðburðir á dagskránni þetta árið. 9


Stefnt var á að halda Dag sjálfboðaliðans, 5. desember, hátíðlegan. Hugmyndin var að fjölmenna í Blóðbankann þar sem sjálfboðaliðar tækju höndum saman um að gefa blóð. Skemmst er frá því að segja að því miður varð ekki af því en stjórn heldur þó uppá þessa hugmynd og telur í það leggjandi að stefna að framkvæmd næsta desember. Því má skjóta inn að vegna ólæknandi ferðabakteríu reyndust margir stjórnarmenn óhæfir til blóðgjafar. Í maí var Fjölmenningardagur haldinn hátíðlegur í Ráðhúsinu. Þar komu saman hin ýmsu menningarfélög og –hópar og kynntu starfsemi sína og menningu. AUS var þar á meðal og bauð gestum að kynna sér möguleikana á sjálfboðaliðastarfi út um allan heim, skoða myndir og muni frá sjálfboðaliðum og gæða sér á drekaávexti. Nokkrir hressir félagsmenn og áhangendur AUS mæltu sér mót á sparkvellinum við Austurbæjarskóla í september og skelltu í nokkur mörk í tilefni alþjóðlega verkefnisins Fótbolti til friðar. Í gegnum þrautseigju Kristínar framkvæmdastjóra hvað styrki varðar hlotnaðist AUS styrkur til að skipuleggja og halda fjölmenningarhátíð. Tilhugsunin um slíka hátíð hefur vakið mikla kátínu og hefur nú verið auglýst eftir hressum félagsmönnum til að aðstoða stjórn við skipulagningu viðburðarins. Stefnt er að því að halda hátíðina fljótlega eftir áramót.

5 Sjálfboðaliðar Tölur yfir fjölda sjálfboðaliða starfsársins eru glæsilegar og virðist AUS vera á ágætis siglingu. Hingað til lands komu sjálfboðaliðar frá fjölda landa og íslenskir sjálfboðaliðar halda áfram að setja mark sitt á verkefni víðsvegar í heiminum. 5.1 Erlendir sjálfboðaliðar Á tímabilinu september í fyrra til ágúst í ár komu 20 sjálfboðaliðar til Íslands á vegum AUS. Af þeim komu níu gegnum EVS áætlunina. Fjölbreytni er að aukast og í ofangreindum hópi voru aðilar frá 14 löndum. Þetta er mjög gleðilegt enda gefur það sjálfboðaliðum mikið að kynnast ekki bara Íslandi heldur einnig fólki frá öðrum löndum og skapar líflegan og skemmtilegan anda á ráðstefnum og félagslífsviðburðum. Komudagar fyrir sjálfboðaliða hingað til lands eru enn tvisvar á ári, annarsvegar í byrjun mars og hins vegar lok ágúst. Hinir síðastnefndu voru áður í byrjun september en sú ákvörðun var tekin á árinu að færa þá fram. Þetta var gert til að samræma komudagana dagsetningum í öðrum löndum en einnig í því skyni að geta haldið komuráðstefnu fyrstu helgina í september enda munar það miklu fyrir stjórnarmenn að geta unnið að henni áður en skóli og annað vetrarstarf fer af stað. Þessi breyting þýddi þó að seinnipart ágúst var heldur þröngt í þingi í Barmahlíð þar sem AUS er með íbúð fyrir sjálfboðaliða. Unnið var úr því og fór allt vel að lokum. Nú í lok ágúst 2013 hélt AUS komuráðstefnu fyrir 16 nýja sjálfboðaliða. Nokkur þeirra höfðu að vísu komið til landsins fáeinum vikum áður og enn er von á einum nýjum sjálfboðaliða frá Indlandi. Þessi hópur lofar mjög góðu og um að ræða áhugasama sjálfboðaliða frá 14 löndum. Í þessum hóp eru meðal annars einstaklingar frá Hondúras og Spáni og skemmtilegt að fá spænskumælandi fólk inn í hópinn en það hefur ekki sést í nokkurn tíma. 10


Erlendir sjálfboðaliðar hafa áfram fengið íslenskukennslu hjá Múltí Kúltí. Sú hugmynd kom þó upp á starfsárinu að breyta fyrirkomulagi íslenskukennslunnar og kanna möguleika á að fá til liðs við okkur íslenskunema sem væri tilbúinn að spreyta sig á kennslu. Þannig mætti mögulega lækka útgjöld en einnig gæfi það sjálfboðaliðum kost á persónulegri kennslu þar sem hópurinn myndi aðeins samanstanda af sjálfboðaliðum AUS. Ekki var mögulegt að koma þessari breytingu um kring fyrir sjálfboðaliðahópinn sem kom til okkar síðastliðinn september en Marta hefur kannað möguleikann á að hýsa námskeiðið í Hinu Húsinu og fengið jákvæð viðbrögð. Gjarnan mætti halda áfram að þróa þessa hugmynd á næsta starfsári. Yfirvofandi eru breytingar á styrkjaáætlunum Evrópusambandsins hvað sjálfboðaliðastörf varðar. Youth in Action áætlunin mun leggjast niður en Erasmus+ taka við. Vegna þessara breytinga og óvissu kringum þær var ákveðið að ljúka við allar umsóknir fyrir EVS sjálfboðaliða fyrir næsta ár (komudagar í mars og september) sem fyrst og hafa þær þegar verið kláraðar. Þetta er jákvætt enda mun þetta gefa skrifstofu meira svigrúm til annarra starfa.

Skælbrosandi sjálfboðaliðar á Íslandi 5.1.1 Verkefni á Íslandi Verkefnumi fyrir sjálfboðaliða á Íslandi hefur smátt og smátt verið að fjölga og nú í boði verkefni af ýmsum toga. Til að mynda gaf verkefni hjá Kvikmyndaskóla Íslands svo góða raun í fyrra að þau hafa nú tekið við öðrum sjálfboðaliða. Á Borgarnesi er nú komin reynsla á verkefni í félagsmiðstöðinni Óðal og Mörk sem er dvalar- og hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu er einnig nýtt verkefni. Samstarf hófst við Rauða Krossinn á síðasta ári og býður AUS nú upp á nokkur verkefni hjá þeim. Til viðbótar er einn sjálfboðaliði nú hjá ABC barnahjálp í Reykjavík og einnig hafa bæst við grunn- og leikskólar meðal annars á Egilsstöðum enda virðist það vera sívinsælt hjá sjálfboðaliðum að vinna með börnum. Það er spennandi að hafa nú hafið samstarf við nokkur verkefni úti á landi og það er skemmtilegt að geta boðið sjálfboðaliðunum okkar uppá að dvelja annarsstaðar en í höfuðborginni. 11


Verkefni sem áður voru virk en tóku ekki við sjálfboðaliða til sín þetta árið eru Samhjálp og HNLFÍ í Hveragerði. Samhjálp reyndist heldur þungt verkefni og ekki hæfa ungum sjálfboðaliðum nógu vel en HNLFÍ gekk því miður í gegnum miður skemmtilega reynslu þegar sjálfboðaliði tók uppá því að láta sig hverfa. Slík mál hafa verið þó nokkuð milli tannanna á ICYE skrifstofum í Evrópusamstarfinu enda margir með svipaða reynslu. Eins og greint var frá hér að ofan var haldinn fræðslufundur fyrir tengiliði sjálfboðaliðanna í verkefnunum síðasta vor. Telur AUS slíka fundi vera mikilvægan lið í að byggja upp enn betra og persónulegra samband við samstarfsaðila okkar í verkefnum. 5.1.2 Húsnæðismál og fósturfjölskyldur AUS hélt áfram leigu sinni á tveggja hæða íbúð við Barmahlíð þar sem flestir sjálfboðaliðanna dvelja. Almenn ánægja er með húsnæðið enda ágætis íbúð og gott samband við leigusalann sem er allur af vilja gerður. Ekki spillir staðsetningin fyrir og gaman fyrir sjálfboðaliða að vera nálægt miðbænum auk þess sem það er hentugt að húsnæðið sé ekki of langt frá skrifstofunni. Fjöldi fósturfjölskylda hélst stöðugur frá síðasta ári sem er mikið gleðiefni. Ávinningur þess að hafa fósturfjölskyldur er mikill hvað fjármuni varðar og skilar sér líka í ánægju sjálfboðaliða. Í haust voru sex sjálfboðaliðar búsettir hjá fósturfjölskyldum.

Stefanía og Magnús Örn í Gana og Bjarki og Svandís í Úganda 5.2 Sjálfboðaliðar erlendis Talsverður straumur hefur verið af Íslendingum út með AUS. Eins og í fyrra eru það stuttu verkefnin sem njóta mestra vinsælda en 19 einstaklingar fóru út í STePs verkefni á tímabilinu frá september í fyrra til loka ágúst í ár. Hjá þessum hóp var Afríka lang vinsælasti áfangastaðurinn og eru greinilega margir hrifnir af hugmyndinni um Tansaníu en þangað fóru alls 6 í styttri verkefni. Sjálfboðaliðastörf í hálft eða heilt ár virðast þó sækja á en í Long Term fóru alls níu manns út með AUS á tímabilinu frá september í fyrra til loka ágúst í ár. Þrír fóru út í heilt ár en sex í hálft ár. Úr þessum hópi fóru þrír til Nýja Sjálands en annars voru lönd í Suður Ameríku vinsæl. Alls fóru 15 sjálfboðaliðar út í gegnum EVS áætlunina, þar af 11 í lengri 12


verkefni. Lettland, Serbía, Bosnía og Grikkland voru meðal landa sem heimsótt voru. Stjórn hefur fundið fyrir miklum áhuga á starfi AUS hjá sjálfboðaliðum eftir heimkomu og er það stórkostlegt. Góð þátttaka hefur verið á ráðstefnum og margir lýst áhuga á að starfa með AUS á einn eða annan hátt.

6 Félagslíf Stefnt var að öflugri félagslífsdagskrá veturinn 2012-13 líkt og í fyrra. Stefán meðstjórnandi hafði yfirumsjón með dagskránni. Mánaðarleg kaffihúsakvöldið voru á sínum stað. Íslenski barinn (nú undir nýju nafni) var þeirra helsta athvarf en einnig prófuðu skipuleggjendur sig áfram og var m.a. eitt kvöld haldið á Kex hostel á jasskvöldi. Þar var mikil stemning. Sömuleiðis var einu sinni hist í Stúdentakjallaranum. Ásta var afar örlát á húsnæði sitt og hjá henni var haldið dýrindis jólaboð með hangikjöti og öllu tilheyrandi. Þar var skipst á pökkum en AUS tókst einnig að safna í jólagjafir handa erlendu sjálfboðaliðunum með framlögum frá Aríon banka og Nóa Síríus.

Sjálfboðaliðar gæða sér á hangikjöti í jólaboði AUS Undanfarin ár hafa heimsóknir til forseta Íslands í janúar vakið mikla lukku meðal erlendu sjálfboðaliðanna og vonuðust meðlimir stjórnar til þess að leikurinn gæti endurtekið sig í ár. Eitthvað hefur dagskrá forsetans verið troðin þetta árið því heimsókn varð ekki komið við þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Stefnan er að byrja snemma að leggja drög að heimsókn í vetur. Í febrúar hittust AUS félagar aftur hjá Ástu, nú á Þorrablóti. Ekki er hægt að segja að trogin hafi klárast en margir voru þó mjög hugrakkir að prófa sig áfram í þorramatnum. Dvöl á Íslandi verður ekki fullkomnuð nema með reynslu af Eurovision-æði Íslendinga. Ákveðið var að hittast á Hressó og þar söfnuðust sjálfboðaliðar saman í maí og horfðu á dýrðina. 13


Sæmileg mæting hefur verið á félagslífsviðburði í ár en markmiðið er alltaf að virkja fleiri og hafa meira gaman. Stundum hefur gengið erfiðlega að hrista erlendu sjálfboðaliðana og Íslendingana saman en það getur stafað af ýmsu. Almennt hefur þó verið afar góð stemning á viðburðum. Meira fé var varið í stærri ráðstefnur í ár eins og í fyrra sem þýddi að minna var til að dreifa á félagslífsviðburði. Til dæmis var sumarferð aftur sleppt í ár. Að vísu voru uppi hugmyndir um hópferð á Mýrarboltann á Ísafirði yfir Verslunarmannahelgi og væri vel hægt að hugsa sér það á næsta ári. Stóru ráðstefnurnar virðast þó tvímælalaust vera að skila sér m.a. í auknum áhuga heimkominna Íslendinga á starfsemi AUS og er það afar jákvætt.

7 Kynningar og markaðsmál Fljótlega eftir að ný stjórn tók til starfa í haust var farið í að endurmeta stöðu AUS hvað varðar markaðsmál. Farið var í hugmyndavinnu með heimasíðu, bæklinga og einkennisorð og hefur starfsárið einkennst að miklu leyti af vinnu í markaðsmálum. Hvað varðar heimasíðuna var ákveðið að halda í myndina af „heimsandlitinu“ sem nú hefur orðið einkennismynd AUS. Því miður hefur setið á hakanum að yfirfara texta heimasíðunnar en Heiða hefur haft umsjón með öðrum litlum breytingum. Benni, sem fyrir nokkrum árum setti upp nýja heimasíðu AUS var fenginn aftur til liðs við okkur og hefur smám saman lagfært og bætt við aðgerðum. Heiða hefur sömuleiðis verið öflug í því að setja inn fréttir, sögur og tilkynningar bæði á heimasíðu og facebook síðu AUS. Á facebook síðunni hefur hún unnið í að „promote-a“ ýmsa hluti s.s. myndir og afslætti í verkefni og það hefur skila sér í fleiri „like-um“. Ljóst var að brátt þyrfti að prenta nýtt holl af bæklingi AUS. Ákveðið var að nýta tækifærið og hanna nýjan bækling. Sá gamli hefur þjónað sínu hlutverki vel en var jafnframt bráðabirgðaverk á sínum tíma þegar honum var skellt upp í flýti. Almennur áhugi var á því að gera bæklinginn meira grípandi og litríkari, m.a. með fleiri myndum af sjálfboðaliðum víðs vegar um heiminn. Til að aðstoða okkur við verkið var haft samband við kunningja stjórnar sem nemur grafíska hönnun við LHÍ. Hann tók verkið að sér og litu fyrstu drög dagsins ljós í júní. Unnið var áfram með þau drög, breytt og bætt en staðið hefur á lokadrögum og þau ekki birst ennþá. Það er vonandi að skriður komist á þetta mál enda allir óþreyjufullir að geta skartað nýjum bæklingi til dæmis á skólakynningum.

14


Ný einkennisorð AUS Í tengslum við nýjan bækling voru höfuð lögð í bleyti um ný einkennisorð AUS. Á Aðalfundinum 2012 höfðu komið fram þau sjónarmið að AUS gæti undirstrikað sérstöðu sína meðal annara félaga og fyrirtækja með því að leggja meiri áherslu á sjálfboðaliðastarfið og hugsjónina þar að baki í stað menningarskipta og ævintýra. Þessi hugmynd hefur verið höfð bak við eyrað í ýmsu varðandi markaðsmál á þessu starfsári og eru bæði stjórn og skrifstofa meðvituð um þessa sérstöðu AUS. Hvað varðar einkennisorðin vék Þitt ævintýri á framandi slóðum sem prentað hafði verið á gamla bæklinginn og plaggöt fyrir Gerðu eitthvað magnað sem þykir vera meira í takt við anda félagsins. Stjórnarmenn hafa þegar tekið þessi einkennisorð uppá arma sína og Ásta meðstjórnandi leikið sér með það eins og sjá má að ofan. Vel væri hægt að vinna áfram með það á nýjum plaggötum til dæmis. Skólakynningar í framhaldsskólum héldu áfram þetta starfsárið og þykja enn okkar sterkasta kynningartæki. Heiða tók sig til og útbjó nýjan glærupakka sem nú er notast við og hefur reynst vel. Skólakynningar voru framan af þessu ári í höndum Ástu meðstjórnanda en í byrjun sumars var ákveðið að færa umsjá þeirra inná skrifstofu m.a. þar sem Heiða á auðveldara með að sinna kynningum á vinnutíma. Eins og sjá má í starfsáætlun stjórnar fyrir starfsárið 2013-14 er lagt til að stofna vinnuhóp skipaðan hressum félagsmönnum sem verið gætu skrifstofu innan handar með þessar kynningar.

15


Blaðagreinar með sögum frá sjálfboðaliðum Þó nokkur framleiðsla hefur verið á blaðagreinum á árinu. Hér að neðan má sjá lista yfir greinar tengdar AUS á árinu. Birtar greinar tengdar AUS starfsárið 2012-13 Hvar? Hver? Monitor Innsýn í framandi menningarheim. Saga Sveins Pálssonar í Kenía Monitor Tilbreyting frá Hversdagsleikanum. Saga Írisar Ásgeirsdóttur og Hörpu Reynisdóttur í Tanzaníu Monitor Rússar elska mæjónes. Saga Sigríðar Hugljúfar Blöndal í Rússlandi Framhaldsskólablaðið Sjálfboðaliðastarf-Ógleymanlegt ævintýri. Saga Sigurðar Ernis Eyjólfssonar í Braselíu. Morgunblaðið Fótboltaþjálfun frá Gróttu til Ghana. Saga Magnúsar Ernis Helgasonar í Ghana. Bleikt.is Íslendingar láta got af sér leiða í Úganda Morgunblaðið Póstkort frá Bógátá-Himinn og haf milli 16

Hvenær? 29. nóvember 2012 6. desember 2012 3. janúar 2013 Janúar 2013 8. apríl 2013 10. maí 2013 Maí 2013


Vikan Stúdentablaðið Stúdentablaðið

Borgarhluta. Saga Kristínar Ágústsdóttur í Kólumbíu Besta kaffið er í Bosníu. Saga Hrafnhildar Sifjar Maí 2013 Þórólfsdóttur í Bosníu Ævintýri með AUS. Saga Ernu Hinriksdóttur í Júní 2013 Úganda Ómar Lind Tryggvason um dvöl sína í Kosta Ríka Október 2013

Að lokum tók AUS þátt í nokkrum sameiginlegum kynningum. Þar má nefna Kynningardag í HR 31. janúar sem Sigríður Hugljúf meðstjórnandi stóð vaktina á og Útþrá Hins Hússins 19. febrúar þar sem Gauti gjaldkeri og Heiða Aníta mönnuðu bás AUS. Í tengslum við Útþrá bauðst tækifæri á að uppfæra texta AUS inná vefsíðunni Áttavitinn sem er vefsíða með margvíslegum upplýsingum fyrir ungt fólk. Var það gert og var mikil umferð um síðuna enda kosningavor og Kosningavitinn á sömu síðu.

Gauti á Útþrá og Snehin sjálfboðaliði og Sigríður Hugljúf í HR Annar styrkur sem náðist í höfn hjá AUS á árinu var styrkur til að búa til kynningarmyndband um AUS. Undirbúningsvinna er hafin fyrir þetta verkefni og vonandi að myndbandið líti dagsins ljós sem fyrst á næsta starfsári.

8 Annað 8.1 Fjármál Eins og í fyrra og eins og við er að búast hjá litlum félagasamtökum hafa fjármálin verið endurtekin uppspretta umræðu. Í fyrra var stigið það hugrakka skref að afskrifa gamlar kröfur og var það liður í því að vinna á gömlum draugum í bókhaldinu. Staðan hefur því verið heldur skýrari í ár og með afskriftum í ársreikningi þessa árs er búið að rétta bókhaldið fyllilega af. AUS hlotnuðust þó nokkrir styrkir á árinu og skipti þar vinnusemi Kristínar við styrkumsóknir sköpum. Styrkur úr Æskulýðssjóði fékkst fyrir 17


Haustráðstefnu AUS 2012 og veitti Æskulýðssjóður einnig styrk fyrir fjölmenningarhátíð AUS sem áætluð er eftir áramót. Mikill fengur var að styrk að verðmæti 1.800.000kr sem AUS fékk frá menntamálaráðuneytinu. Eins og lesa má í síðustu starfsáætlun stjórnar fyrir starfsárið 2012-13 og nýrri starfsáætlun fyrir starfsárið 2013-14 var það stefna fyrir árið að koma á fót varasjóði AUS. Það reyndist erfiðara en búist var við og í stuttu máli gafst ekki kostur á því þetta árið. Stjórn og skrifstofa telja þetta ennþá mikilvægt markmið en velja verður tímasetninguna vel og hér verður raunsæi í rekstri að ráða. Landslagið hvað varðar fjárveitingar til félagasamtaka hefur talsvert breyst á árinu eins og lesa má um hér neðar. AUS hefur lýst yfir áhyggjum sínum hvað þetta varðar og er vonandi að leiðir finnist til að félagasamtök verði gert kleift að starfa áfram í óbreyttri mynd. 8.2 Félagaskrá Eitt af markmiðum starfsársins var að klára Félagaskrá AUS. Hugmyndin um félagaskrá hefur verið í gangi í þó nokkurn tíma. Í fyrra var ákveðið að gera átak í þessum málum enda sást þá að lítið vantaði uppá. Marta formaður og Sigrún ritari hittu Tómas Árni Jónasson sem unnið hefur að uppsetningu gagnagrunnsins, á fundi í maí þar sem lögð voru drög að því að klára verkið. Markmiðið var að ganga þannig frá félagaskránni að hún innihéldi bæði skrá yfir alla félagsmenn AUS en væri einnig handhæg gagnaskrá fyrir skrifstofu til að halda utan um gögn sjálfboðaliða sem væru úti og nýkomnir heim. Markmiðin voru því heldur metnaðarfull sem gert hefur það að verkum að vinna er enn í gangi. 8.3 LÆF og Æskulýðsráð AUS hefur haft meira af æskulýðsmálum að segja í ár en mörg undanfarin ár. Marta formaður sat í fulltrúaráði LÆF (Landssamband Æskulýðsfélaga) en Ásta tók við af henni þegar Marta ákvað á aðalfundi LÆF síðasta vor að bjóða sig fram til stjórnarsetu í LÆF. Hún gegnir nú stöðu gjaldkera þar. Mikilvægt er fyrir AUS að hafa rödd inni í LÆF og geta haft þar áhrif. Ásta Björg meðstjórnandi gaf kost á sér í Æskulýðsráð síðasta vetur og var skipuð til setu þar. Æskulýðsráð starfar undir menntamálaráðuneytinu og sinnir ýmsum verkefnum. Ásta Björg mun sitja í ráðinu til næstu tveggja ára og þykir AUS mikill fengur í því að hafa tengingu inn í ráðið gengum manneskju sem reyndist hafa mikla reynslu af æskulýðsmálum. 8.4 Stefna stjórnvalda Ýmislegt hefur gengið á í málefnum sem varða AUS á stjórnmálasviðinu. Ber þar kannski fyrst að nefna breytingar á Æskulýðssjóði en lokað hefur verið á umsóknir um rekstrarstyrki þar. Þetta kemur sér afar illa fyrir lítil félagasamtök eins og AUS. Framkvæmdastjóri og formaður reyndu eftir bestu getu að koma sjónarmiðum AUS á framfæri við undirbúning fjárlaganna. Send voru bréf og hringt til allsherjar-, fjárlaga- og menntamálanefndar. Engar breytingar voru gerðar þó margir væru viljir að hjálpa en þessi vinna skilaði þó því að meiri vitneskja er nú til staðar í kerfinu um AUS. Eftir langt stapp fengu framkvæmdastjóri, formaður og gjaldkeri AUS fund með aðstoðarmanni menntamálaráðherra í byrjun apríl. Lýstu þau þar áhyggjum sínum af fjárhagsstöðu félagasamtaka. Lítið kom út úr þeim fundi enda virtist ráðuneytið vera að halda að sér höndum í flestum málum. Aðstoðarmaður ráðherra benti AUS þó 18


á að sækja um þjónustusamning en Ríkisendurskoðun hefur einmitt mælt með slíkum samningi við æskulýðsfélög. Umsóknin er nú í vinnslu hjá AUS. Nýtt frumvarp um útlendingalög var sett fram á síðasta Alþingi. AUS sendi inn álit sitt á frumvarpinu og gerði athugasemd um flokkun dvalarleyfa. Samkvæmt flokkuninni hefðu dvalarleyfi AUS tilheyrt flokki dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku. Þar sem sjálfboðaliðastarf með AUS er ekki metið sem atvinna bað félagið um að dvalarleyfi AUS falli undir dvalarleyfi vegna mennta- og menningarskipta. Því miður dagaði frumvarpið upp á þingi. Æskulýðsráð vann á síðasta ári að æskulýðsstefnu sem birt var í desember 2012. AUS sendi inn sína umsögn á því plaggi. Marta skrifaði bréf til Jóns Gnarr, borgarstjóra, með beiðni um samstarf við borgina eða styrk til þess að lækka húsaleigu og strætógjöld fyrir sjálfboðaliða. Því miður barst neitun frá borginni. Nú 1. október síðastliðinn sendi AUS inn tvær umsóknir um styrki til Reykjavíkurborgar, annars vegar fyrir leiðtogaþjálfun á heimkomuráðstefnu og þjálfun erlendra sjálfboðaliða. Reynt hefur verið að fá upplýsinar um styrkjakerfi borgarinnar en lítið fengist.

19


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.