Krikaskóli er samþættur leik-og grunnskóli fyrir börn á aldrinum tveggja til níu ára. Hugmyndafræði skólans tekur mið af hugsmíðahyggjunni. Hugsmíðahyggja er námskenning sem gengur út frá því að þekking sé afurð þess hvernig einstaklingar skapa merkingu úr reynslu sinni. Lögð er áhersla á að námsumhverfið sé opið og sem líkast raunverulegum aðstæðum og að nemandinn sé virkur í að byggja upp eigin þekkingu. Námsumhverfi í anda hugsmíðahyggju stuðlar að virkri uppbyggingu þekkingar hjá hverju barni. Við skipulagningu á námi er áhersla lögð á að tengja nýja þekkingu fyrri reynslu barnsins, einnig á samvinnu barna í verki og að tengja viðfangsefni við nærsamfélagið.
Mosfellsbær stóð fyrir hugmyndasamkeppni meðal hönnuða og hugmyndafræðinga sem lögðu grunnin að skólanum okkar í samvinnu við Mosfellsbæ. Hugmyndafræði skólans, húsnæði og lóð var mótað samhliða. Húsnæði skólans og lóð munu því styðja vel við og styrkja starfshætti skólans.