Heilsublað jan 2025

Page 1


30. janúar–9. febrúar 2025 Um 3.000 heilsuvörur á

Bls. 6

MUNA vítamín

framleiðsla fyrir þína heilsu

Bls. 81

Helga

Reynisdóttir

ljósmóðir

Heilsa og

umhverfi í fyrsta sæti

ALLT AÐ

Bls. 23

OG APPTILBOÐ Á HVERJUM DEGI

Katrín Amni Friðriksdóttir

Kavita

„Svona kemst ég brosandi í gegnum íslenska veturinn“

Bls. 36

Unnur

Borgþórsdóttir

Morðcastinu Ekkert mál að vera vegan

Ódýrt fyrir heilsuna
Tilboðin gilda 30. janúar–9. febrúar 2025

Appdagatal Glæsileg tilboð í appinu!

Afsláttur í formi inneignar í appinu. Sæktu appið og safnaðu inneign.

Hjartanlega velkomin á Heilsu- og lífsstílsdaga

Heilsan er dýrmæt en það þarf ekki að vera dýrt að hugsa um heilsuna. Góður göngutúr í fallegu vetrarveðri er til dæmis algjör vítamínsprauta í skammdeginu. Góð næring og vítamín skipta auðvitað máli líka og við hjá Nettó leggjum okkur fram um að koma til móts við þarfir viðskiptavina með breiðu vöruúrvali og sanngjörnu verði.

Heilsu- og lífsstílsdagar, sem hefjast í janúar og ágúst ár hvert og standa yfir í 11 daga, eru algjör hátíð fyrir okkur því þá bjóðum við upp á allt að 25% afslátt af um 3.000 heilsu- og lífsstílsvörum. Einnig erum við með appdagatal þar sem ákveðin heilsuvara, ásamt tegund af ávexti eða grænmeti, er á ofurapptilboði hvern dag sem Heilsu- og lífsstílsdagar standa yfir. Ég hvet lesendur til að skoða appdagatalið vel og sækja appið – ef þið notið það ekki nú þegar.

Við leggjum okkur einnig fram um að bjóða upp á hollari valkosti í öllum deildum hjá okkur. Svo hvort sem þið viljið birgja ykkur upp af dósum með lífrænum baunum, fylla frystinn af blómkálsgrjónum, finna vítamín fyrir alla fjölskylduna eða kaupa hollara gæludýrafóður, þá getið þið gert ódýr innkaup í Nettó.

Í blaðinu finnið þið yfirlit yfir öll tilboðin og ýmsar fróðlegar greinar.

Við óskum gleðilegrar hátíðar og bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Heilsu- og lífsstílsdaga.

Heilsan er í góðum málum í Nettó!

Vigdís Guðjohnsen Markaðsstjóri Nettó

Reiknaðu innkaupin til enda!

Hvernig virkar appið?

Notaðu appið þegar þú kaupir vörur með appslætti. Skannaðu QR-kóðann við kassann þegar þú borgar og þá birtist afslátturinn sem inneign í appinu. Þegar þú hefur safnað nægri inneign getur þú borgað með appinu.

Hér sést inneignin þín.

Nánari upplýsingar.

Pantaðu í netver

Skannaðu þegar þú borgar til að safna inneign.

Afslátturinn birtist sem inneign í Samkaupaappinu. Þú getur notað appið í öllum verslunum Nettó og á netto.is.

Innkaupalistinn þinn.

Yfirlit yfir innkaupin þín.

Hvað er á tilboði núna?

Íslensk framleiðsla fyrir þína heilsu

Okkur hjá MUNA er annt um heilsuna og við viljum auðvelda fleirum að lifa heilbrigðu lífi.

Við erum mjög stolt af nýrri vítamínlínu MUNA sem kom á markað við mikinn fögnuð í fyrra. Um er að ræða fjölbreytt vítamín fyrir alla fjölskylduna. MUNA vítamínin eru framleidd á Íslandi eftir ströngustu gæðakröfum.

Grenivík er þekkt fyrir náttúrufegurð, hreint loft og óspillta náttúru en einmitt þar er Pharmarctica, framleiðandi MUNA vítamínanna staðsettur, í litlu sveitarfélagi á Norðurlandi eystra. Óhætt er að segja að staðsetningin veiti fyrirtækinu einstaka aðstöðu til að framleiða hreinar og náttúrulegar vörur.

Ör vöxtur í íslenskri framleiðslu Pharmarctica hóf starfsemi sína árið 2003 með framleiðslu á forskriftarlyfjum lækna og snyrtivörum og hefur verið í örum vexti síðan. Í dag er Parmarctica leiðandi í framleiðslu á fjölbreyttum húðvörum og heilsuvörum. Vörurnar þeirra eru oft unnar úr náttúrulegum hráefnum sem eru rík af næringarefnum og hafa jákvæð áhrif á húð og almenna heilsu.

Pharmarctica leggur mikla áherslu á gæði og öryggi vara sinna. Allar vörur eru framleiddar í samræmi við stranga alþjóðlega gæðastjórnunarstaðla og eru háðar reglulegum gæðaskoðunum. Fyrirtækið notar eingöngu hágæða hráefni og fylgir framleiðsluferli sem tryggir að vörurnar séu öruggar og áhrifaríkar.

Mikilvæg starfsemi fyrir sveitarfélagið Sigurbjörn Þór Jakobsson, framkvæmdastjóri Pharmarctica, segir starfsemina mjög mikilvæga fyrir sveitarfélagið þar sem starfssviðið sé mjög breitt en hjá fyrirtækinu starfa sautján manns sem flestir búa í nærumhverfi Grenivíkur.

„Það er sömuleiðis mikilvægt fyrir starfsemi okkar að fá verkefni eins og að framleiða MUNA vítamínlínuna þar sem öll okkar þekking og tækni fær að njóta sín.“

Pharmarctica er framarlega í rannsóknum og þróun nýrra vara. Fyrirtækið vinnur oft með vísindamönnum og sérfræðingum að þróun nýrra og endurbættra vara sem mæta þörfum viðskiptavina. Þetta tryggir að vörurnar séu ávallt í takt við nýjustu vísindalegu þekkingu og þróun á sviði húðvara og heilsuvara eins og MUNA vítamína.

20% AFSLÁTTUR

Magic Magnesium

Magnesíum Citrate frá New Nordic styður við heilbrigða meltingu með því að hafa losandi

áhrif á ristil og getur því reynst þeim vel sem þurfa að koma á hreyfingu í þarmana.

Það er einnig þekkt fyrir að hafa góð áhrif á sinadrætti og fótapirring.

Magnesíum Glycinate frá New Nordic er sérlega ganglegt til að styðja við heilbrigt svefnmynstur vegna amínósýrunnar glýsín sem stuðlar að betri svefni. Auk þess hefur

Magnesíum Glycinate slakandi áhrif á taugakerfið og getur stuðlað að léttu skapi og betri andlegri heilsu.

Magnesíum Malate frá New Nordic er sérstaklega vinsælt meðal íþróttafólks og ekki að ástæðulausu. Það er þekkt fyrir að hafa jákvæð áhrif á orkuvinnslu líkamans, vöðvaþreytu og að styðja við heilbrigði beina. Magnesíum Malate stuðlar sérstaklega að því að draga úr þreytu og lúa og bæta almennt orkuna.

FYRIR SLÖKUN

FYRIR MELTINGU

FYRIR ORKU

næra hugann

20% AFSLÁTTUR

Sigraðu sykurpúkann

– 5 ráð gegn sykurlöngun

Að draga úr sykri í mataræði og fylgja heilbrigðum lífsstíl getur verið stórt skref í átt að bættri heilsu og auknum lífsgæðum. Þú finnur jafnvægi og meiri orku með litlum breytingum á daglegum venjum. Eins er gott að huga að ýmsum grunnþáttum í lífsstíl okkar sem skipta miklu máli þegar kemur að því að halda blóðsykri í jafnvægi, svo sem að stunda reglulega hreyfingu, huga að slökun og góðum svefni en allir þessir þættir hafa mikil áhrif á blóðsykursjafnvægi okkar og líðan. Með þessum einföldu skrefum er hægt að sigrast á sykurpúkanum og auka lífsgæði til muna. Að draga úr sykurneyslu getur skilað miklum ávinningi eins og meiri orku, minni bólgum, sterkara ónæmiskerfi og betri líðan. Hér eru fimm einföld ráð til að koma blóðsykrinum í jafnvægi og vinna gegn sykurlöngun:

1. Byrjaðu daginn rétt Morgunmatur sem inniheldur prótín, trefjar og góða fitu er lykillinn að stöðugu blóðsykursjafnvægi yfir daginn. Prófaðu eggjahræru með avókadó, tómötum og ólífuolíu eða næringarríkan chia-graut með möndlusmjöri og prótíndufti. Þetta gefur góða mettun og dregur úr löngun í sykur.

2. Veldu hollari sætuefni Þegar sætindalöngunin gerir vart við sig skaltu velja náttúruleg og hollari sætuefni sem hafa minni áhrif á blóðsykur. Lífrænt hlynsíróp, lífrænt hunang og stevía eru t.a.m. góðir valkostir. Þannig geturðu notið sætu án þess að falla í gildru sykurpúkans.

3. Kryddaðu lífið

Heilnæm krydd eins og kanill, múskat, negull og vanilla eru ekki aðeins bragðbætandi heldur geta þau einnig hjálpað til við að jafna blóðsykur og slá á sykurlöngun. Notaðu þau út á morgunmatinn eða jafnvel í kaffi til að gefa matnum náttúrulega sætu.

4. Passaðu svefninn

Svefnleysi getur aukið sykurlöngun þar sem líkaminn leitar að skjótfenginni orku. Góð svefnrútína þar sem þú færð 7–9 tíma svefn bætir bæði blóðsykursstjórnun og almenna líðan.

5. Hreyfðu þig og viðhaltu jafnvægi Regluleg hreyfing, streitustjórnun og gott næringarinnihald í mataræði eru ómissandi grunnþættir til að halda blóðsykri í jafnvægi. Ef þörf krefur skaltu íhuga að nota bætiefni eins og króm, eplaedik eða grænt te sem auka insúlínnæmi og geta stuðlað að bættri efnaskiptaheilsu.

Veldu gæði

Við leggjum mikinn metnað í rannsóknir og öryggisprófanir og því getur þú verið viss um að fá það sem þú borgar fyrir. Til að tryggja hámarks virkni innihalda vörurnar frá NOW einungis hráefni í hæsta gæðaflokki, án óæskilegra aukaefna. Vertu viss - veldu NOW

Gæði - Hreinleiki - Virkni

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til 20% AFSLÁTTUR

Got t bragð til að bæta heilsuna

20% AFSLÁTTUR

20%

AFSLÁTTUR

MEÐ SAGAPRO

„Eftir að ég byrjaði að taka SagaPro sef ég betur og vakna úthvíldur á morgnanna “

20%

AFSLÁTTUR

Feel Iceland kollagen húð vöðvar liðamót

Íslenskt kollagen fyrir árangur

feeliceland.com

SagaPro getur fækkað tíðum þvaglátum að nóttu sem og að degi 96% þátttakenda í neytendakönnun sögðu að notkun á SagaPro hefði bætt lífsgæði þeirra * Skv viðhorfskönnun sem framkvæmd var árið 2023 og svöruðu 159 viðskiptavinir Könnunin var framkæmd í samvinnu við Dr Þorlák Karlsson

LÍFR N OG BRAG GÓ TE

ÓBLEIKTIR OG PLASTLAUSIR TEPOKAR

25% AFSLÁTTUR

20%

AFSLÁTTUR

20%

AFSLÁTTUR

Eftir tvær til þrjár vikur var ég ekki lengur með liðverki og orkan hafði aukist til muna með Active JOINTS frá Eylíf Friðrik Benediktsson, langhlaupari

Active JOINTS fyrir liðina, styrkir beinin og flýtir endurheimt.

Hrein íslensk gæðahráefni, framleitt á Grenivík

„Ég hef prófað ýmislegt

við liðeymslum en ekkert

hefur virkað eins vel og Nutrilenk“

- Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í handbolta

15% AFSLÁTTUR

20% AFSLÁTTUR

Njóttu dagsins með MUNA vítamínum

20%

AFSLÁTTUR

Nýtt ár er tími nýs upphafs og tækifæra, þegar við erum hvött til að líta inn á við, hugsa um hvað hefur þjónað okkur vel og hvaða venjur má bæta til að efla bæði andlega og líkamlega heilsu.

Áþessum myrkustu

dögum ársins, þegar náttúran minnir

okkur á að hægja á og hlaða batteríin, er upplagt að beina athyglinni að þeim grunnþáttum sem halda okkur jarðtengdum og orkumiklum.

Þetta er einnig tími til að skerpa á rútínunni, huga að smáatriðunum og innleiða einfaldar breytingar sem geta haft mikil áhrif á vellíðan okkar. Það getur falist í því að hlúa að líkamanum með hollu mataræði, bætiefnum og vítamínum, eða að skapa rými fyrir hugarþjálfun og slökun í daglegu amstri.

Morgunrútína

• Byrjaðu daginn með glasi af vatni með sítrónu ásamt Asídófílus til að vökva líkamann og virkja meltinguna. Taktu fjölvítamín sem innihalda B-vítamín, C-vítamín og D-vítamín til að gefa þér orku og styrkja ónæmiskerfið. B-stress getur einnig verið góður kostur í morgunsárið samhliða næringarríkum morgunverði sem á mikilvægan þátt í að byrja daginn rétt.

Hreyfing

• Þegar þú ert á leið í ræktina eða út að hlaupa getur verið gott að taka magnesíumviðbót. Magnesíum hjálpar til við vöðvasamdrátt og dregur úr vöðvakrömpum. Ef þú ferð út í sólarljósið, þá er það frábær leið til að auka D-vítamínframleiðslu í líkamanum ásamt því að taka reglulega inn D-vítamín.

Hádegi

• Hugaðu að fjölbreyttum hádegismat sem inniheldur grænmeti, prótín og heilkorn. Spínat og aðrir laufgrænir grænmetisréttir eru frábær uppspretta af fólínsýru og járni. Fiskur, eins og lax eða túnfiskur, inniheldur omega-3 fitusýrur sem eru góðar fyrir heilann og hjartað.

Miðdegi

• Þegar orkuleysi læðist að þér seinni part dagsins getur lítið millimál hjálpað. Hnetur og fræ eru góð uppspretta E-vítamíns og magnesíums. Skammtur af dökku súkkulaði getur líka veitt þér orkuskot auk andoxunarefna.

Kvöldrútína

• Eftir kvöldmat er tími til að slaka á. Stuttur göngutúr eða róleg jógaæfing geta hjálpað til við að róa hugann. Taktu kalk og D-vítamínviðbót til að styrkja beinin.

Svefn

• Lokaðu deginum með róandi rútínu. Lestur, heitt bað og rólegir tónar geta stuðlað að slökun. Taktu magnesíumviðbót til slaka enn betur á og sofa vel. Bolli af heitu kamillutei getur einnig hjálpað þér að slaka á áður en þú ferð í háttinn. Melatónín frá MUNA getur sömuleiðis stuðlað að djúpum og góðum svefni fyrir þau sem þurfa sérstaklega góða hvíld.

Ávinningur vítamína og heilbrigðs lífsstíls

Vítamín gegna mikilvægu hlutverki í heilsu okkar og vellíðan. Með því að taka inn fjölvítamín og önnur vítamín, sem þú þarft á að halda, ásamt fjölbreyttu og næringarríku mataræði, getur þú stuðlað að betri heilsu og orðið orkumeiri. Hreyfing, góður svefn og streitustjórnun eru einnig lykilatriði í heilbrigðum lífsstíl.

Ljósið í myrkrinu

Frá NOW finnur þú fjölbreytt úrval af D-vítamíni sem hjálpar þér að mæta vetrinum með bros á vör. D-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og stuðlar að vexti og viðhaldi beina.

D-vítamín

20% AFSLÁTTUR

VERNDAÐU ÞIG OG ÞÍNA ÞARMA

Öflug góðgerlablanda sem

styður við heilbrigða meltingu

Inniheldur hvítlauk og greipaldin sem hefur verið þekkt fyrir að vinna gegn myndum candida albican gersveppsins.

1- 4 hylki á dag

Styður við eðlilega virkni ónæmiskerfsins

Best er að taka hylkin með mat. Má opna hylkin og blanda í jógúrt eða boost

20% AFSLÁTTUR

Ljómaðu innan frá

Einstök blanda af næringarefnum sem stuðlar að heilbrigðari húð, sterkara hári og nöglum.

Gæði - Hreinleiki - Virkni 20%

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira af vörunni heldur en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til

FRÁBÆRT VERÐ

Sleep Aid melatónín 1mg. 200 dagskammtar

MAGNAÐIR MUNNÚÐAR

Kostir vítamína í munnúðaformi

FÆRÐU NÓG AF

Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem gegnir mörgum mikilvægum hlutverkum

20%

AFSLÁTTUR

MAGNESÍUM?

Rannsóknir hafa sýnt að allt að 75% fólks fái ekki nægilegt magnesíum daglega

20%

AFSLÁTTUR

„Svona kemst ég brosandi í gegnum íslenska veturinn“

„Við þekkjum öll hið klassíska slen og orkuleysi sem hellist yfir íslensku þjóðina, eins og þung mara í skammdeginu, með tilheyrandi þreytu og orkuleysi,” segir Katrín

Amni Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækisins Kavita, sem framleiðir og þróar íslensku bætiefnalínuna ICEHERBS.

Orkublandan hjálpar í mesta skammdeginu

„Orkublandan okkar, frá ICEHERBS, inniheldur 2000 einingar af D-vítamíni og hreina íslenska burnirót (Rhodiola rosea). Það er ótrúleg virkni í orkublöndunni, enda heyri ég mikið frá viðskiptavinum okkar hvað varan gerir þeim gott.

Flestir finna fyrir virkni innan örfárra daga og vakna hressari á dimmum morgnum,“ segir Katrín sem ákvað á sínum tíma að taka málin í sínar hendur.

„Ég þróaði vöruna með sjálfa mig í huga. Mér fannst spennandi að tvinna þessi innihaldsefni saman, enda hefur inntaka á bæði D-vítamíni og burnirót reynst mér gríðarlega vel í gegnum árin,” segir Katrín Amni.

„Við þekkjum öll mikilvægi sólarvítamínsins sem D-vítamín er. Svo er burnirótin einfaldlega uppáhalds jurtin mín. Hún er þekkt fyrir að auka orku og kraft, hefur mjög jákvæð áhrif á þreytu, streitu, einbeitingu og andlegt úthald.”

Orkan úr náttúrunni

Katrín hefur alltaf lagt áherslu á að sækja sér orku á náttúrlegan hátt og hefur til margra ára haft áhuga á krafti lækningajurta.

„Ég hef alltaf haft áhuga á að sækja mér auka orku á náttúrulegan hátt og er jurtaríkið ofboðslega gjöfult þegar kemur að því að bæta lífsgæði. Burnirótin er ein af þeim lækningajurtum sem ég hef notað lengi og er alltaf jafn hrifin af. Mér finnst mikilvægt að nota að staðaldri náttúrulega orkugjafa en ekki bara skammvinna orkugjafa, eins og til dæmis kaffið sem veitir skammvinna orku og því þarf stöðugt meira. Burnirótin byrjar að hafa langvinn og góð áhrif innan nokkurra daga en það er mikilvægt að taka inn slík bætiefni daglega, sérstaklega yfir dimmustu mánuðina; þá er orkublandan algjörlega tilvalin til þess að taka inn alla daga.“

20% AFSLÁTTUR

Nauðsyn D-vítamíns á Íslandi

Katrín hefur tekið eftir því að Íslendingar eru orðnir upplýstari um mikilvægi D-vítamíns undanfarin ár: „Þekking Íslendinga á notkun D-vítamíns hefur aukist mikið síðastliðin ár sem er mjög gott þar sem D-vítamínið er eitt mikilvægasta vítamínið sem líkaminn þarfnast. Skortur á því getur valdið ýmsum heilsufarsvandamálum, sérstaklega hjá okkur á Íslandi.“

„Við sem búum á norðlægum slóðum erum enn verr sett því alla jafna fáum við of lítið af sólarljósi, hvað þá í svartasta skammdeginu. Því er algert lykilatriði að taka inn D-vítamín sem bætiefni til þess að tryggja nægilegt magn. Og munurinn leynir sér ekki þegar líkaminn fær loksins nóg,” bætir hún við.

„D-vítamín hjálpar okkur líka að vinna kalk úr fæðunni til þess að fyrirbyggja kalkskort. Beinþynning af völdum kalkskorts er því miður frekar algeng. „Því fyrr sem við byrjum að taka inn D-vítamín að staðaldri, því betra. Ég hika ekki við að gefa unglingsdóttur minni, sem æfir mikið og er í krefjandi námi, þessa orkublöndu á hverjum degi, allan veturinn,“ segir Katrín Amni.

Mögnuð lækningajurt

Burnirótin er ein magnaðasta lækningajurt sem vex á Íslandi og eitt best geymda leyndarmál jurtaríkisins. Jurtin vex á norðlægum slóðum og er afar þrautseig. Þá er hún oft kölluð hið norræna ginseng en hún er þekkt fyrr einstök áhrif sín á orkustig, einbeitingu og úthald. „Burnirótin er ein af þeim lækningajurtum sem eru kallaðar „adabtógenískar” og hafa jákvæð áhrif á andlegt ástand, orku, þrótt og þol,” segir Katrín.

Innihaldsefni orkublöndunnar frá ICEHERBS eru algjört dúndur fyrir aukna orku, snerpu og úthald. Í hverju hylki eru 2000 einingar af D-vítamíni, sem eru viðmiðunargildi fyrir efri mörk daglegrar meðalneyslu á D-vítamíni.

ICEHERBS er íslenskt vörumerki sem leggur ríka áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla á vörur ICEHERBS nýtist viðskiptavininum vel, að virknin skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Mikilvægi hreinna innihaldsefna er í hávegum haft og innihalda fæðubótarefnin engin óþarfa uppfylliefni. ICEHERBS er framleitt á Blönduósi.

Hámarks árangur á æfingum

Kreatín gegnir mikilvægu hlutverki í vöðvauppbyggingu og orkumyndun líkamans.

Kreatín er talið bæta líkamlega frammistöðu þegar kemur að stuttum og snörpum æfingum.

Gæði - Hreinleiki - Virkni

20% AFSLÁTTUR

Efling fyrir hugann

Lion’s Mane er lækningasveppur sem veitir náttúrulegan stuðning fyrir skýrari huga, minni streitu og bætt minni.

Gæði - Hreinleiki - Virkni

20% AFSLÁTTUR

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira af vörunni heldur en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til

Lion’s Mane Lækningasveppur náttúrunnar

Lion’s Mane er lækningasveppur sem hefur vakið athygli fyrir jákvæð áhrif á taugakerfið og heilastarfsemi. Sveppurinn, sem kallast „ljónsmakki“ vegna loðinnar hvítrar áferðar, er ekki aðeins þekktur fyrir sérstakt útlit heldur einnig fyrir heilsubætandi eiginleika sem geta hjálpað til við að efla minni og einbeitingu og bæta svefn.

Taugakerfi og heilastarfsemi

Einn af mikilvægustu eiginleikum Lion’s Mane er að styrkja taugakerfið. Sveppurinn er talinn örva framleiðslu á taugavaxtarþætti (NGF), prótíni sem er nauðsynlegt fyrir viðhald og viðgerðir á taugafrumum. Þetta gerir hann sérstaklega gagnlegan fyrir fólk sem vill efla minni og einbeitingu.

Minni streita og aukin vellíðan

Lion’s Mane hefur róandi áhrif á taugakerfið og getur dregið úr streitu. Hann inniheldur lífvirk efni sem hafa bólgueyðandi og andoxandi eiginleika og hjálpa líkamanum að jafna sig eftir langvarandi streituástand. Auk þess styður hann heilbrigða starfsemi heila og taugakerfis sem getur stuðlað að betri líðan og skýrari hugsun.

Minni og einbeiting

Sveppurinn hefur reynst gagnlegur fyrir þau sem vilja bæta hugræna getu, sérstaklega minni og einbeitingu. Með því að örva taugavaxtarþátt hvetur Lion’s Mane til myndunar tauga og taugatenginga og hjálpar til við að viðhalda þeim. Þannig verður auðveldara að læra nýja hluti og rifja upp upplýsingar. Þetta gerir sveppinn að áhugaverðum valkosti fyrir bæði yngra fólk, sem vill bæta námsgetu, og eldra fólk sem vill viðhalda heilastarfsemi.

Svefn og endurnæring

Lion’s Mane getur einnig haft jákvæð áhrif á svefn. Með því að draga úr streitu og efla jafnvægi í taugakerfinu getur hann hjálpað fólki að slaka á og sofa betur. Betri svefn hefur síðan jákvæð áhrif á heilastarfsemi, minni og tilfinningalegt jafnvægi, sem styrkir enn frekar hugarástand og almennt heilbrigði.

Andoxun og ónæmiskerfið

Lion’s Mane inniheldur beta-glúkan fjölsykrur og mikið af andoxunarefnum sem hjálpa til við að draga úr bólgum, vernda frumur gegn skaða og styrkja ónæmiskerfið. Þetta gerir sveppinn að öflugu náttúrulegu bætiefni fyrir almennt heilbrigði.

Hvernig má nota Lion’s Mane?

Lion’s Mane er fáanlegur í ýmsum formum, svo sem fæðubótarefni í hylkjum, dufti eða tei. Mikilvægt er að velja hágæða vörur sem tryggja virkni sveppsins. Lion’s Mane er einstakt náttúrulegt fæðubótarefni sem styrkir bæði taugakerfi og eflir andlega líðan. Hvort sem markmiðið er að bæta hugræna getu, efla ónæmiskerfið eða almenna heilsu, er Lion’s Mane góður náttúrulegur valkostur og getur reynst mikilvægur hluti af heilbrigðum lífsstíl. Gott er að ráðfæra sig við fagaðila áður en þú hefur inntöku á Lion’s Mane ef þú ert með ofnæmi eða vegna sérstakra heilsufarsástæðna.

NÝR KOLSÝRÐUR DRYKKUR MEÐ DJÚSÍ INNIHALDI

Frískandi og vítamínbættur með náttúrulegum bragðefnum

25% AFSLÁTTUR

25%

ekta safar og eðalgos

15% AFSLÁTTUR

True döðlur, bragðbætt hollusta True döðlur, bragðbætt hollusta

Enginn viðbættur sykur

Náttúruleg bragðefni

Hátt tre a innihald

Framleitt í Danmörku

25% AFSLÁTTUR

HVERT SEM DAGURINN LEIÐIR ÞIG!

20% AFSLÁTTUR

Ekkert mál að vera vegan!

Unnur Borgþórsdóttir, sem sér um Morðcastið, segir frá lífi sínu sem grænkeri og deilir með okkur tveimur af sínum uppáhalds uppskriftum.

Núna í janúar, eða Veganúar 2025, eru tíu ár síðan ég borðaði síðast kjöt. Það gerðist eiginlega alveg óvart en hefur haft mikil áhrif á líf mitt.

Þetta byrjaði sem vangaveltur fyrir Veganúar: „Get ég lifað kjötlausan mánuð?“ Ég gat það! Kjötlaus mánuður varð svo að mörgum dýraafurðalausum árum og mikilli vitundarvakningu hjá sjálfri mér og mörgum í kringum mig.

Við þurfum meira plöntufæði

Mörg skilja ekki að ég hætti að borða dýraafurðir, önnur fyrirlíta ákvörðunina og enn fleiri finna hjá sér þörf til að útskýra hvers vegna mín ákvörðun er verri en þeirra eigin. Að mörgu leyti er það óþolandi að fólk skipti sér af því hvernig ég næri mig. Hins vegar er gott að fólk hafi skoðun og vilji ræða vegan lífsstíl því ég get svarað óhikað, útskýrt og rökstutt.

Við þurfum öll að neyta meira af plöntumiðuðu fæði, ekki bara heilsu okkar og dýranna vegna, heldur til að reyna að bjarga heiminum frá okkur sjálfum. Meira að segja Landlæknir segir okkur í „Ráðleggingum um mataræði“ að takmarka neyslu kjöts.

Fjölbreytt úrval í Nettó

Frá því ég hætti að borða dýraafurðir hefur margt breyst. Að taka skrefið var eitt en að læra að skipta út gömlum vönum og vörum sem ég hafði notað í áratugi var oft mjög flókið. Með árunum hefur fjölbreytni í vöruúrvali aukist og þar hefur starfsfólk Nettó á Egilsstöðum, þar sem ég versla langmest, staðið sig frábærlega. Úrvalið er stórgott og þau fá reglulega inn nýjungar þannig að það er ekkert mál að fá, eða búa til, vegan útgáfu af þeim mat sem mér finnst bestur.

Ég elska góðan mat sem inniheldur frábæra næringu. Baunir, hnetur, fræ, grænmeti, ávextir ... þið fáið ekki betri næringu fyrir líkama og sál. Til að byrja með var ég skíthrædd við baunir og tófú, enda þekkti hvorugt úr uppeldinu. Mér fannst áferðin skrítin en ótti minn var algjörlega óþarfur og í dag er þetta uppáhalds maturinn minn. Ástæðan er einföld: Þú getur notað baunir, hnetur og fræ til að búa til allt sem þig langar í.

Úrvalsnæring

Baunir eru frábær uppistaða trefja og prótíns og hægt er að bæta þeim í bókstaflega allt, frá súpu til súkkulaðiköku. Þær hafa líka jákvæð áhrif á heilsuna, geta t.d. lækkað kólesteról og blóðsykursgildi.

Tófú er unnið úr sojamjólk (sojabaunum) sem er pressuð í litla kubba, ekki ósvipað því hvernig kúaostur er búinn til. Tófú er prótínríkt og stútfullt af nauðsynlegum amínósýrum. Í því er líka góð fita, kolvetni, vítamín og steinefni. Í tófú er mikið af næringu í tiltölulega fáum hitaeiningum. Talið er að tófú geti dregið úr einkennum tíðahvarfa, styrkt hjarta og stuðlað að jafnvægi kólesteróls. Það styrkir bein, hefur jákvæð áhrif á andlega heilsu og talið er að tófú geti dregið úr hættu á tilteknum krabbameinum.

Hnetur og fræ eru stútfull af hollri fitu, trefjum og andoxunarefnum, mismikið eftir tegundum, og hafa góð áhrif á hjartaheilsu, blóðþrýsting og kólesteról.

Spennandi réttir

Plöntumiðað fæði er alls ekki bara sorgmætt kálblað og kartöflur (samt án gríns, áfram kartöflur!) og það hægt að gera vegan útgáfu af nánast öllum réttum. Flest af því sem þarf áttu eflaust til í skápunum nú þegar og restin fæst í Nettó.

Hér eru tvær laufléttar uppskriftir sem henta öllum. Sú fyrri er að taquitos-vefjum sem eru innblásnar af mínum bestu konum, Veganistum. Það er óhætt að breyta vefjunum og bæta þær eftir því hvað er til hverju sinni. Seinni uppskriftin er að gómsætri „ostasósu“ sem er ómissandi með vefjum og sem ídýfa með góðu snakki.

Taquitos-fylling

• Olía til steikingar

• 3 hvítlauksgeirar

• ½–1 rauðlaukur

• 1 pk. svartar baunir frá Änglamark

• 1 pk. kjúklingabaunir (eða aðrar baunir)

• 1 poki taco-krydd frá Santa Maria

• 1 askja hafrasmurostur frá Oatly

• 1 dl salsa frá Santa Maria

• Salt og pipar

• Safi úr ½ límónu

• Epic mature rifinn ostur frá Violife

• Vefjur frá Santa Maria. Ég kaupi stórar vefjur og sker í tvennt áður en ég set fyllinguna í.

Steikið allt á pönnu.

Ég stappa aðeins baunirnar til að blanda þessu saman en einnig getur verið gott að nota töfrasprota til að blanda vel. Til að stjórna þykktinni mæli ég með að bæta vatni við þegar þetta mallar á pönnunni en leyfið ykkur listrænt frelsi með þykkt, innihald og önnur krydd.

Fyllið hverja vefju með smávegis af rifnum osti og fyllingu og rúllið upp áður en þið steikið á pönnu, í airfryer eða ofni þar til þær verða gylltar.

„Ostasósa“ úr kasjúhnetum

• 1 bolli kasjúhnetur frá H-Berg

• Rúm teskeið gróft sinnep frá Maille

• 2 hvítlauksrif

• Sítrónusafi (slatti, a.m.k. ¼ bolli)

• Vatn (eftir smekk, en gott að byrja á 1/3 bolla)

• Salt og pipar eftir smekk

• Næringarger eftir smekk

Best er að leggja kasjúhneturnar í bleyti í nokkrar klukkustundir ef tími gefst. Ef ekki, þá þarf að passa að blanda vel.

Öll hráefnin eru svo sett saman í blandara eða þeim blandað saman með töfrasprota þar til sósan verður mjúk og kekkjalaus. Hægt er að stjórna þykktinni með vatnsmagninu og ef hún verður of þunn er hægt að setja hana í ísskáp í smá stund. 25%

25% AFSLÁTTUR

15% AFSLÁTTUR

HÁGÆÐA LÍFRÆN JURTAMJÓLK

25% AFSLÁTTUR

10 leiðir til að krydda tilveruna 20%

Kolbrún Pálína Helgadóttir, markaðssérfræðingur, markþjálfi, yin yoga-kennari og talskona MUNA tók saman ljúfar hugmyndir að því hvernig gera má myrkasta tíma ársins svolítið huggulegan.

Upphaf nýs árs er tilvalinn tími til að endurhugsa og endurskipuleggja daglegt líf. Myrkrið og kyrrðin hvetja okkur til að skapa rútínur og hefðir sem næra bæði líkama og sál. Með einföldum skrefum er hægt að bæta lífsgæðin, skapa betri líðan og njóta litlu hlutanna sem gleðja á myrkum vetrardögum.

Hér eru 10 leiðir til að krydda tilveruna og gera janúar og febrúar bjartari og betri:

1. Komdu upp rútínu fyrir kvöldið Skapaðu friðsælt umhverfi áður en þú ferð að sofa. Hreinsaðu húðina, nærðu hana með góðum kremum, burstaðu tennurnar og undirbúðu föt og töskur fyrir næsta dag. Hafðu vítamín morgundagins sömuleiðis tilbúin. Þessi einföldu skref minnka morgunstress og gera daginn betri.

2. Byrjaðu daginn með vatnsglasi

Fylltu glas af vatni kvöldið áður, bættu smá sítrónu út í og drekktu það strax um morguninn áður en þú grípur kaffibollann. Þetta hjálpar til við að vökva líkamann eftir nóttina og undirbýr hann fyrir daginn.

3. Njóttu góðs kaffibolla eða heilsusamlegs drykks

Gefðu kaffibollanum smá dekur. Prófaðu að bæta næringarefnum út í kaffið eða búa til kaffibúst sem nærir og gleður. Hér eru þrjár uppskriftir að kaffidrykkjum sem krydda hversdagsleikann:

Kryddaður

• Sterkur kaffibolli eða kryddað te, t.d. chai, kanil- eða túrmerikte.

• 2 tsk. MUNA möndlusmjör

• 1 tsk. MUNA kanill

• ½ tsk. MUNA túrmerik

• Pipar

• Kollagen

Blandið öllu varlega saman í blandara. Gætið þess að heiti vökvinn kólni aðeins fyrst.

Heitur

• Kaffi

• 2 tsk. MUNA möndlusmjör

• 2 tsk. kollagen, ef vill

• 1 tsk. MUNA kanill

• 1 daðla frá MUNA

Blandið öllu varlega saman í blandara. Gætið þess að heiti vökvinn kólni aðeins fyrst.

Sterkur

• 1 banani

• 1 sterkur kaffibolli

• 2 tsk. MUNA hnetusmjör

• 1 msk. súkkulaði- eða vanilluprótein frá NOW, eftir smekk

• 3–4 ísmolar

• 1 bolli Isola möndlumjólk

Blandið öllu varlega saman í blandara þar til drykkurinn er laus við kekki.

4. Iðkaðu yin yoga eða slökunaræfingar

Hægar hreyfingar eins og í yin yoga geta dregið úr streitu og hjálpað þér að tengjast sjálfum þér á dýpri hátt. Þetta er frábær leið til að ná jafnvægi í huga og líkama.

5. Lestu bók sem nærir sálina Veldu bók sem veitir þér innblástur eða hjálpar þér að slaka á. Lestur er frábær leið til að leyfa huganum að flakka og njóta rólegra kvöldstunda.

6. Haltu dagbók

Taktu frá nokkrar mínútur á hverjum degi til að skrifa niður hugsanir þínar, markmið eða þakklæti. Þetta hjálpar þér að skýra hugann og finna jafnvægi.

7. Útbúðu heitan, hægeldaðan mat

Nýttu janúar og febrúar til að prófa uppskriftir að hægelduðum réttum sem fylla heimilið af hlýju og ilmi. Góður matur er ekki aðeins næring fyrir líkamann heldur einnig fyrir sálina.

8. Heit líkamsrækt

Prófaðu líkamsrækt sem eykur hita og orku, eins og spinning, hot yoga eða kraftmikla dansæfingu. Það veitir þér bæði líkamlegan og andlegan létti.

9. Gefðu þér tíma fyrir náttúruna

Farðu út í myrkrið og upplifðu friðsæld vetrarins. Stutt ganga eða kyrrlát stund undir stjörnubjörtum himni geta verið endurnærandi.

10. Einbeittu þér að litlu hlutunum

Finndu það sem gleður þig í daglegu lífi. Það gæti verið morgunstund með tebolla, ljúft augnablik með fjölskyldu eða nýr ilmur sem lyftir andanum. Litlu hlutirnir skipta máli og þess vegna er mikilvægt að finna það sem kryddar tilveruna þína.

HAMINGJA ER GRANÓLA!

15%

AFSLÁTTUR

Veldu virkni

Frá NOW getur þú fundið fjölbreytt úrval af hágæða próteini. Próteinin frá NOW eru með stimplana „ Informed choice“ og „ Informed Sports“ og standast því ströngustu gæðastaðla um hreinleika vöru og innihalda þau engin efni sem eru á bannlista WADA.

Gæði - Hreinleiki - Virkni

20% AFSLÁTTUR

25%

AFSLÁTTUR

DÖÐLUBITAR

Frábært miðdegissnarl fyrir alla

Gómsætir próteinbitar úr náttúrulegum hráefnum.

Döðlur, eggjahvítur (frá frjálsum hænum) kakó og hnetur. Engin ónáttúruleg sætuefni, bragðefni eða litarefni.

Góðgæti fyrir öll lífsins tilefni

Deliciously Ella heilsuvörulínan hefur heldur betur sigrað heiminn með gómsætu heilsufæði.

Vörurnar eru glútenlausar og einstaklega bragðgóðar ásamt því að henta þeim sem fylgja veganog plöntumiðuðu mataræði.

25%

AFSLÁTTUR

góðan nætursvefn

20% AFSLÁTTUR

Það sést hver drekka Kristal

20%

KOFFÍNLAUST

Hollur MUNA

trönuberjakokteill fyrir öll tækifæri

Trönuberjasafi er ekki bara hollur heldur líka einstaklega bragðgóður. Hann má nota í alls konar kokteila og mat, heilsudrykki og þeytinga. Að drekka trönuberjasafa er góð leið til að efla heilsuna, gleðjast í góðum félagsskap og njóta lífsins í hægari takti. Með fallegri framsetningu má svo setja punktinn yfir i-ið.

Innihald:

• Klakar

• 1/3 hluti MUNA trönuberjasafi

• 2/3 hluti engiferbjór (án áfengis)

• Svolítið af MUNA hrásykri

• Nokkrar límónusneiðar

• Fersk mynta

Aðferð:

1. Stráið hrásykri á disk. Vætið brúnirnar á glasinu með ferskum límónusafa og dýfið í sykurinn til að fá fallega gyllta sykurbrún.

2. Fyllið glösin af klökum.

3. Hellið MUNA trönuberjasafa í glösin og fyllið með engiferbjór.

4. Skreytið með límónusneiðum og myntu.

5. Þau sem vilja taka framsetninguna skrefinu lengra geta búið til sína eigin klaka með trönuberjum eða öðrum berjum.

Kraftaverkadrykkur fyrir heilsuna

Trönuberjasafi er þekktur fyrir fjölmarga kosti:

• Bætir þvagfæraheilsu: Regluleg neysla getur dregið úr líkum á þvagfærasýkingum.

• Ríkulegt innihald andoxunarefna: Viðheldur heilbrigðri húð og styrkir ónæmiskerfið.

• Lágt sykurinnihald: Hentar vel fyrir þau sem vilja forðast viðbættan sykur.

• Gott fyrir hjarta- og æðakerfi: Hjálpar til við að draga úr bólgum og bæta kólesterólhlutföll í líkamanum.

Skál fyrir góðri heilsu!

25% AFSLÁTTUR

15% AFSLÁTTUR

20 01

Elín Hall, leikkona síðan

25% AFSLÁTTUR

25% AFSLÁTTUR

Dásamlega bragðgóð og glútenfrí brauð, pítsubotnar og vefjur.

25% AFSLÁTTUR

ÄNGLAMARK PESTÓ

25% AFSLÁTTUR

NÁTTÚRULEGUR HLUTI AF HVERJUM DEGI

10-25% AFSLÁTTUR

Úrvalið er mismunandi eftir verslunum.

20% AFSLÁTTUR

2 1 FYRIR

20% AFSLÁTTUR

95% MINNI SYKUR HÁTT TREFJAINNIHALD

10% AFSLÁTTUR

– SYKURLAUST OG VEGAN –

25% AFSLÁTTUR

MINNI SYKUR MEIRA GOTT!

25% AFSLÁTTUR

20% AFSLÁTTUR

skothelt kombó

25% AFSLÁTTUR

Próteindrykkir

Án laktósa prótein

AFSLÁTTUR

20% AFSLÁTTUR

25% AFSLÁTTUR

25% AFSLÁTTUR

MEST SELDI

ALOE VERA DRYKKUR

Fæst í mörgum bragðtegundum: Orginal, Granatepli, Jarðaber, Ananas, Lychee

KONUNGUR MILLIMÁLANNA

25% AFSLÁTTUR

20%

25% AFSLÁTTUR

Hafralatte

Kaffi og hafrar eiga samleið. Kaffi bragðast einfaldlega betur með haframjólk. Rjómakennt og frískandi ískaffi sem þú getur gripið með hvert sem er.

25% AFSLÁTTUR

10% AFSLÁTTUR

25% AFSLÁTTUR

20% AFSLÁTTUR

BRAGÐGÓÐAR OG HOLLAR CHIA SKVÍSUR

25% AFSLÁTTUR

Bragðgottnasl

25% AFSLÁTTUR

25% AFSLÁTTUR

Tilvalið í nestið 

25% AFSLÁTTUR

Léttar og lofsteiktar kræsingar

Hitaeiningafjöldimeð hverri uppskrift!

80 girnilegar uppskriftir að loftsteiktum réttum fyrir sanna sælkera. Hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur loftsteikingarmeistari, grænmetisæta, kjötæta eða græn keri, þá finnurðu eitthvað hér við þitt hæfi.

20% AFSLÁTTUR

20% AFSLÁTTUR

smoothies sem eru

10%

AFSLÁTTUR

aldrei úr þykkni meiri vítamín meiri trefjar

25% AFSLÁTTUR

í grautinn, á brauðið og í eftirréttinn

Kynorka

Maca rótin er talin auka kynlöngun hjá öllum kynjum. Einnig er maca rótin talin styðja við hormónakerfið og hjálpa til við breytingaskeiðið.

Gæði - Hreinleiki - Virkni

Bætiefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki neyta meira af vörunni heldur en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um án ráðlegginga frá lækni. Ófrískar konur, konur með börn á brjósti og þeir sem eru að taka lyf ættu einnig að ráðfæra sig við lækni varðandi inntöku bætiefna. Geymist þar sem börn ná ekki til 20% AFSLÁTTUR

Heilsa og umhverfi í fyrsta sæti

Helga Reynisdóttir ljósmóðir, sem m.a. heldur úti miðlinum Fæðingarfræðsla Helgu Reynis á Instagram, segir Natracare vörurnar vera frábært val fyrir konur sem vilja setja eigin heilsu og umhverfisvernd í fyrsta sæti.

Þegar kemur að heilsunni viljum við vanda okkur og gera allt til þess að hámarka lífsgæði okkar og heilbrigði. Síðastliðin ár hefur einnig orðið mikil vitundarvakning í umhverfismálum. Sem betur fer er heimsbyggðin að verða meðvitaðri um mikilvægi þess að hugsa vel um umhverfið og fólk velur vörur sem eru betri fyrir líkamann og umhverfið.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að í tíðavörum, sem settar eru þétt upp við líkamann og komast í snertingu við viðkvæmar slímhúðir, eru þungamálmar og plast en þessi efni eru hormónaraskandi og hafa slæm áhrif á heilsu kvenna. „Þar sem konur nota bindi meðan á blæðingum stendur og margar einnig á meðgöngu og á efri árum, er mikilvægt að við séum meðvituð um hvaða efni vörurnar innihalda og hvernig þær fara með líkamann og jörðina okkar,“ segir Helga Reynisdóttir, ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi. Hún starfar á Landspítalanum og heldur einnig úti miðlinum Fæðingarfræðsla Helgu Reynis á Instagram. „Því eru Natracare vörurnar frábært val fyrir konur sem vilja setja eigin heilsu og umhverfisvernd í fyrsta sæti.“

Af hverju hreinar tíðavörur?

Venjulegar tíðavörur eru að sögn Helgu oft gerðar úr gerviefnum, plasti og efnum sem hafa verið meðhöndluð með efnablöndum eins og klór og ilmefnum. „Margar konur átta sig ekki á því að þetta getur haft áhrif á viðkvæm svæði líkamans, valdið ertingu og stuðlað að ójafnvægi í líkamanum. Vörur sem þessar geta haft áhrif á flóru líkamans og mögulega valdið usla. Það að velja tíðavörur úr hreinum og náttúrulegum efnum getur dregið úr hættu á slíkum áhrifum og stuðlað að heilbrigðara jafnvægi í líkamanum.“

Natracare býður upp á tíðavörur sem eru:

• 100% lífrænar og án skaðlegra efna: Notkun Natracare tryggir að þú leggur ekkert sem er óæskilegt eða skaðlegt upp við líkamann.

• Ilmefnalausar og án bleikiefna: Margar hefðbundnar vörur eru með ilmefnum og litarefnum sem geta valdið óþægindum og ofnæmisviðbrögðum. Natracare tryggir að vörurnar séu hreinar og öruggar.

Umhverfisvænn valkostur

Plast í tíðavörum er ekki aðeins óhollt fyrir líkamann heldur einnig umhverfið. „Með því að velja umhverfisvænar tíðavörur stuðlar þú að minni plastmengun og hjálpar til við að minnka áhrif úrgangs á náttúruna. Natracare leggur mikla áherslu á að vörurnar séu bæði niðurbrjótanlegar og lífrænar, þannig að þær brotna niður á öruggan hátt, án þess að skilja eftir sig plastagnir eða önnur skaðleg efni.“

Vörur fyrir allar konur

Natracare býður upp á fjölbreytt úrval af tíðavörum sem henta konum á öllum æviskeiðum: Unglingum, barnshafandi konum og konum eftir breytingaskeiðið. „Hvort sem þú kýst bindi, túrtappa eða aðrar tíðavörur, finnur þú það sem hentar þér hjá Natracare. Vörurnar eru hannaðar til að tryggja þægindi og vernd á meðan þú ert á tíðum – án þess að skaða heilsu eða umhverfi.“

Ábyrgðarfullar ákvarðanir fyrir framtíðina

Að velja Natracare tíðavörur er ekki aðeins ákvörðun um að setja persónulega heilsu í forgang, heldur einnig umhverfið. Með því að kaupa vörur sem eru framleiddar með virðingu fyrir bæði konum og náttúrunni ertu að leggja þitt af mörkum til hreinni og heilbrigðari framtíðar.

15%

ÄNGLAMARK

ERU ALLAR ÁN ASTMA- OG

OFNÆMISVALDANDI EFNA.

Þær innihalda ekki litarefni, lyktarefni eða efni sem raska hormónabúskapnum.

Þær eru án parabena og framleiddar úr fáum völdum innihaldsefnum til að lágmarka hættuna á ofnæmisviðbrögðum.

Að auki eru þær Svansvottaðar.

Verðlaunað kuldakrem sem verndar viðkvæma barnahúð gegn kuldabola – og fullorðna líka.

25% AFSLÁTTUR

15% AFSLÁTTUR 15% AFSLÁTTUR

Sonett Sensitive

Hentar sérstaklega börnum eða einstaklingum með ofnæmi eða viðkvæma húð

VELDU HEILNÆMARI KOSTINN

Þú færð lífrænar hreinsivörur frá Änglamark í Nettó. 25% AFSLÁTTUR

Fyrir þig... alltaf

Veldu þínar heilsuvörur vandlega. Vörurnar frá NOW innihalda einungis hráefni í hæsta gæðaflokki. Við leggjum mikinn metnað í rannsóknir og öryggisprófanir til að tryggja þér vörur sem virka.

Gæði - Hreinleiki - Virkni

25% AFSLÁTTUR

ÄNGLAMARK SNYRTIVÖRUR

Engin aukaefni!

Allar Änglamark vörurnar eru án astma- og ofnæmisvaldandi efna. Þær innihalda ekki litarefni, lyktarefni eða efni sem raska hormónabúskapnum. Þær eru án parabena og framleiddar úr fáum völdum innihaldsefnum til að lágmarka hættuna á ofnæmisviðbrögðum. Änglamark vörurnar bera merki Svansins. Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki sem tryggir að varan sé betri fyrir umhverfið og heilsuna. Með því að velja Svansmerkta vöru og þjónustu er því stuðlað að betra umhverfi og bættri heilsu, án þess þó að fórna gæðum.

25% AFSLÁTTUR

Hreint heimili á nýju ári

Nýtt ár býður upp á nýtt upphaf. Þegar búið er að pakka saman jólunum og ný rútína er í vinnslu getur verið gott fyrir sálina að taka hraustlega hreingerningu að hætti Sonett.

25% AFSLÁTTUR

Sonett vörurnar eru 100% lífrænar og umhverfisvænar og brotna auðveldlega niður í náttúrunni. Þær eru mildar fyrir húð og innihalda ilmkjarnaolíur sem fá heimilið til að glansa og ilma dásamlega. Hvorki eru notuð rotvarnarefni, ilmefni né kemísk litarefni. Vörurnar innihalda hvorki ensím né yfirborðsvirk efni og bleikiefnin eru án klórs. Í vörulínunni finnur þú allt sem þarf fyrir heimilisþrifin.

Skínandi fínt svefnherbergi

Tökum af rúminu og setjum rúmfötin í þvott með fljótandi lavender-þvottalegi. Til að drepa rykmaura mælum við með að þvo rúmfötin á 60 gráðum eða setja þau a.m.k. í hálftíma í þurrkarann. Síðan er gott að úða sótthreinsispreyinu yfir dýnur, kodda og sængur.

Ullarrúmteppi er best að þvo með ólífuþvottalegi sem er sérstaklega ætlaður fyrir ull og silki. Munið að stilla á þvottakerfi fyrir ull og viðkvæman þvott. Ullarsápan er notuð í lokaskoluninni. Leysið upp hálfa teskeið af ullarsápu í 30–40 ml af heitu vatni og hellið vökvanum í mýkingarefnishólfið á þvottavélinni.

Fyrir þau sem leggja í fataskápana, þá tökum við til í einni hillu í einu og setjum það sem er slitið eða við erum hætt að nota í endurvinnslupoka. Brjótum allt annað saman, flokkum eins flíkur saman og röðum jafnvel eftir lit.

Þurrkum úr öllum hillum með örtrefjaklút og alhliða yfirborðs- og glerheinsi, þessum með fjólubláa miðanum. Einnig er hægt að blanda alhreinsi eða appelsínukrafthreinsi út í vatn og væta tusku upp úr því.

Nýtum slár sem best og brjótum allt saman sem ekki þarf að hanga. Setjum aukahluti eins og klúta, skartgripi og belti á hillu eða í körfur. Það er líka sniðugt að hengja þá á snaga innan á hurðir eða á vegg.

Hugsum vel um fötin okkar og þvoum þau með viðeigandi þvottaefni. Við mælum með fljótandi þvottaefni fyrir litaðan þvott (Laundry liquid color), þetta með gula miðanum, sem hentar sérstaklega vel fyrir íþrótta- og útivistarfatnað.

Þurrkum af og þvoum gardínur en gætum þess að fara eftir leiðbeiningum. Við mælum alltaf með fljótandi ólífuþvottalegi fyrir viðkvæm efni eins og ull og silki.

Þurrkum af öllum hillum, borðum, náttborðum og gluggakistum.

Til þess að fá skínandi fína spegla án ráka er best að nota hreinan örtrefjaklút vættan með volgu vatni og alhliða yfirborðs- og glerhreinsi. Sömu aðferð er hægt að nota á gluggana. Þó mælum við með alhreinsi út í vatn á rúðurnar.

Endið hreingerninguna á því að ryksuga og skúra og þá mælum við með að setja alhreinsinn, þennan með bleika miðanum, út í volgt skúringavatn.

Búið um rúmið að lokum og setjið blóm í vasa; við erum þess fullviss að þá munið þið sofa betur og njóta vetrarins sem allra best.

Gerum hvíta þvottinn hvítan á ný

Bætið bleikiefni og blettahreinsi frá Sonett (Bleach Complex and Stain Remover) út í þvottaefnið reglulega til að fyrirbyggja að hvítar flíkur gráni eða gulni. Eins er hægt að hressa upp á þær með því að leggja þær í bleyti í blettahreinsinum.

Sonett hreingerningavörurnar eru:

• Góð og öflug hreinsiefni

• Náttúruleg, unnin úr plöntuhráefnum

• Brotna fullkomlega (100%) niður í náttúrunni

• Innihalda samþjöppuð efni sem eru drjúg í notkun

• Sérlega mildar fyrir húðina

• Án tilbúinna rotvarnarefna og ensíma

• Án tilbúinna ilmefna

• Án tilbúinna litarefna

instagram/sonett_iceland

25% AFSLÁTTUR

Þín eigin áfyllingarstöð heima

Einfaldaðu þér lífið með 10L brúsa af Sonett og hugsaðu um umhverfið. Eins er hægt að pumpa beint í þvottakúlu og setja í vélina.

*

Sonett hreingerningarvörurnar brotna 100% niður í náttúrunni.

Sistema byrjaði í bílskúr

25%

AFSLÁTTUR

Ragga nagli heilsusálfræðingur segir frá sögu og kostum geymsluílátanna vinsælu.

Saga Sistema er mjög falleg Árið 1983 byrjaði Brendan Lindsay frá Cambridge í NýjaSjálandi á því að búa til litlar plastkúlur til að sýna stærð flíka á herðatrjám í plastmótunarvél í bílskúrnum heima hjá sér. Síðan bjó hann til sjálf herðatrén. Þaðan þróaðist framleiðslan yfir í nestisbox.

Brendan ólst ekki upp í vellystingum. Fjölskyldan átti í sig og á, en ekkert umfram það, og vasapeningur var ekki í boði. Þess vegna byrjaði hann snemma að vinna fyrir sér.

Fyrirtækið óx og árið 2016 seldi Brendan það risanum American Newell, sem framleiðir meðal annars Rubbermaid vörurnar, fyrir 470 milljónir Bandaríkjadala. Hann gerði kröfu um að framleiðslan yrði áfram í Auckland, Nýja-Sjálandi, næstu 20 árin og að loforð hans til síns fyrsta starfsmanns, sem hann lofaði vinnu fram að eftirlaunaaldri, yrði efnt.

Árið 2016 starfaði 700 manns í 52.000 fermetra verksmiðju Sistema í Auckland og fyrirtækið seldi vörur til 110 landa. Mörg hundruð milljónir nota hagnýtu nestisboxin, vatnsbrúsana, geymslukassana og allar þær fjölbreyttu vörur sem fyrirtækið framleiðir.

Það þykir víst svo gott að vinna hjá Sistema að það er biðlisti eftir starfi þar.

Ástarsaga mín og Sistema Ég flutti til Danmerkur árið 2009 og árið 2012 rakst ég á Sistema vörurnar á heimasíðu sem seldi barnavörur. Ég er mikill nestisperri og ferðast mjög mikið og er yfirleitt alltaf með minn eigin mat með mér. Ég er líka algjör sósusjúklingur og það sem heillaði mig við Sistema voru litlu sósuboxin í fjölbreyttum stærðum. Ég keypti alls konar nestisbox, sósuílát, salatsósubrúsa, lítil hnífapör og kælitösku.

Árið 2014 fór ég síðan á fund með þáverandi markaðsstjóra Nettó. Hún hafði dreift ýmsum Sistema boxum á borðið fyrir

framan sig. Við höfum báðar hlegið að svipnum sem hún sagði að hefði komið á mig þegar ég arkaði inn á fundinn ... svipur hneykslunar og hroka.

Í hroka og yfirlæti hugsa ég: „Er hún að reyna að kynna þessar vörur fyrir mér sem ég hef notað í öreindir síðustu tvö árin og pósta fullt um þau á Facebook-síðunni minni?“

En svo kom hið sanna í ljós. Systir hennar fylgdi mér á Facebook og hafði séð pósta frá mér um Sistema. Hún hringdi í systur sína, markaðsstjórann, og bað hana að flytja inn þessar snilldarvörur svo pöpullinn á Íslandi gæti notið góðs af úrvalinu og átt gleðilegar nestismáltíðir.

„Þú gerir þér enga grein fyrir því hvað máttur þinn er mikill!“ sagði þessi elsku kona.

Upphafið að fallegu samstarfi

Þetta var einnig upphafið að farsælu samstarfi Nettó og Röggu nagla sem ennþá blómstrar 10 árum síðar með alls konar sprelli í kringum Heilsudaga og reglulegri fræðslu í búðunum sem og kynningu á heilsustöffi á samfélagsmiðlum.

Eins varð þessi fundur upphafið að djúpri vináttu minnar og umrædds markaðsstjóra sem í dag er ein af mínum allra bestu vinkonum.

Ég hef margsinnis farið í höfuðstöðvar Sistema fyrir Skandinavíu sem eru í Næstved, litlum bæ í klukkutíma akstursfjarlægð frá Kaupmannahöfn, og þar ræður hún Maja Meisner ríkjum. Við tvær höfum einnig þróað með okkur fallega vináttu.

Ég hef hitt Brendan Lindsay, stofnanda Sistema, sem er dásamlega hlýr og auðmjúkur maður. Hann hafði mikinn áhuga á íslenskum fótbolta og dásamaði hvað Íslendingar væru duglegir í íþróttum.

Ekki nóg með það, heldur hef ég komið með hugmyndir að stærri nestistösku og stærra nestisboxi sem var komið áfram til Brendans og ekki leið á löngu þar til hvort tveggja var framleitt.

Skipulagður snæðingur

25% AFSLÁTTUR

Ljúffengtmeð kaffinu

25% AFSLÁTTUR

10% AFSLÁTTUR

Prinsbiti

25% AFSLÁTTUR

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.