Veldu páskaegg frá Nóa sem passar þér! Nóa páskaeggin eru tilbúin. Við vönduðum okkur alveg sérstaklega. Litlu páskakanínurnar eru líka komnar aftur og þær eru svo sætar að þær eru ætar! Páskaeggin eru af öllum stærðum og gerðum, svo að allir ættu að finna egg við sitt hæfi.
Skoðaðu úrvalið, veldu og njóttu!
Sígildir sigurvegarar
Risa Eitt Sett var nýlega valið besti nýliðinn á Nammitips. Eitt Sett er að sjálfsögðu líka til sem unaðslegt páskaegg. Annar sigurvegari er okkar sígilda og ómótstæðilega Nóa Kropp sem var valið mest ávanabindandi nammið á Nammitips. Hvort eggið ætlar þú að fá þér?
Hinir sívinsælu Nóa Hnappar sóma sér einstaklega vel í páskaeggjum og það er óhætt að segja að hnappaeggin okkar séu sannkallaðir hnappafengir! Við bjóðum upp á tvær ómótstæðilegar tegundir í ár, hið klassíska perluhnappaegg og frábæra nýjung sem svíkur engan, saltkaramelluhnappaegg! Ekki missa af þessum hnappdrættisvinningum!
Síríus Rjómasúkkulaði með trompbitum hlýtur að vera ein af uppfinningum aldarinnar! Það var því augljóst að við þyrftum að bjóða upp á það sem páskaegg. Nú spilum við út öðru sterku trompi en það er hvorki meira né minna en páskaegg með sterkum trompbitum! Það er ekki hlaupið að því að trompa þessa tvennu! Rjómasúkkulaði fylgir ekki með eggi.
TULIPOPPAÐU UPP PÁSKANA!
Ævintýraheimur Tulipop er engu líkur og nú eru komnar glænýjar og spennandi teiknimyndir um þær litríku persónur sem þar búa. Það er því vel við hæfi að þær fái sín eigin páskaegg úr ævintýralega gómsætu Nóa Síríus súkkulaði! Þau fást bæði úr klassísku rjómasúkkulaði og bragðmiklu dökku súkkulaði og eru að sjálfsögðu full af ómótstæðilegu Nóa nammi. Gleðilega páska!
Konfektegg MJÓLKURSÚKKULAÐIEGG MEÐ MÁLSHÆTTI OG NÓA KONFEKTI
Fyrir þá sem hafa sterkar og heitar tilfinningar gagnvart súkkulaði og elska Nóa konfekt er konfekteggið hið eina rétta. Síríus konfektegg færir íslenskum sælkerum hefðina og gæðin til að sameina mestu súkkulaðihátíð ársins með gæðakonfektmolum að auki.
Gleðilega páska
Súkkulaðipáskaegg Páskaeggin frá Nóa Síríus eru án efa orðin ein af ríkustu hefðunum í páskahátíð Íslendinga. Ekki má gleyma málshættinum sem gefur páskaeggjum Nóa Síríus hinn hátíðlega blæ. Þessi vinsæla hefð sameinar kynslóðir og skapar ljúfar minningar með þjóðinni.
Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Öll páskaeggin frá Nóa Síríus eru framleidd úr ljúffengu og hágæða Síríus súkkulaði og eru jafn góð og þau líta út fyrir að vera. Síríus súkkulaði er hluti af Cocoa Horizons verkefninu. Cocoa Horizons gerir kakóræktendum kleift að rækta og framleiða kakóið á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Cocoa Horizons ferlið tryggir fræðslu til kakóbænda varðandi ræktunaraðferðir og aðbúnað starfsfólks auk þess sem það kemur að fræðslumálum, heilsugæslu og aðgengi að hreinu vatni. Þannig stuðlar Cocoa Horizons að betri lífsskilyrðum í kakóræktarsamfélögum.
facebook.com/noisirius