Nýliðaþjálfun 2010-12 Almennar upplýsingar um nýliðaþjálfun Hjálparsveitar skáta í Reykjavík tímabilið 2010-2012.
Inngangur Á haustin gefst almenningi kostur á að hefja björgunarsveitaþjálfun með Hjálparsveit skáta í Reykjavík (HSSR). Tilgangur nýliðaþjálfunar er að fá inn nýtt fólk til þátttöku í leitar- og björgunarstarfi. HSSR er rétti staðurinn fyrir þig ef:
- þú sérð fram á að geta tekið þátt í útköllum eftir að þjálfun lýkur - þú hefur áhuga á að stunda útivist og ferðamennsku af ólíkum gerðum - þú hefur áhuga á að kynnast og starfa með skemmtilegu fólki
Í þessum bæklingi er fjallað um nýliðaþjálfun HSSR. Við hvetjum þig til að kynna þér dag skrána sem og þær kröfur sem sveitin gerir til fólks í nýliðaþjálfun og kanna hvort þú eigir ekki samleið með okkur. Nýliðateymi HSSR
2 Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Kynning á HSSR Hjálparsveit skáta í Reykjavík var stofnuð 1932 HSSR í hnotskurn og er í dag ein stærsta björgunarsveit landsins. Fj. félaga: 300 Hún er aðili að Slysavarnafélaginu Lands Fj. útkalla á síðasta starfsári: 34 björgu og er heildarfjöldi félaga um 300. Fjöldi útkallshópa: 9 Útkallskerfi sveit ar innar er virkjað af Bækistöð: Malarhöfði 6 lögreglu og er sveitin hluti af kerfi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Sveitin er landbjörgunarsveit og miðast búnaður og þjálfun við það. Félagar skiptast í hópa eftir áhugamálum hvers og eins. Gefin er út dagskrá með yfirliti yfir ferðir og fyrirlestra auk annarra liða. Fyrir utan nýliðadagskrá eru hvert ár farnar fjölmargar ferðir á vegum útkallshópa innan HSSR. Sjö manna stjórn er yfir starfsemi HSSR, en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og frumkvæði útkallshópa og félaganna sjálfra. Sveitin er að mestu rekin fyrir sjálfsaflafé og er það því stór hluti af starfi hennar að afla fjár til rekstursins. Húsnæði sveitarinnar er að Malarhöfða 6 og er það um 1.200 m2 að stærð. Þar er búnaður sveitarinnar geymdur, en hún er vel tækjum búin. Nánar má fræðast um starfsemi sveitarinnar á vefnum hssr.is. Allar upplýsingar um útkallshópa má finna í bæklingi sem liggur frammi í húsnæði sveitarinnar að Malarhöfða 6. Skipting útkalla
Á grafinu má sjá skiptingu útkalla HSSR árin 2003 til hausts 2009, en samtals var farið í 130 útköll á tímabilinu. Þarna sést að um 3/4 útkalla eru leitir í byggð og láglendi ásamt óveðursaðstoð.
10% 9% 24% 9%
Yfirlit yfir útkallshópa - Alþjóðasveitarhópur - Bækistöðvarhópur - Sérhæfður leitarhópur - Viðbragðshópur - Undanfarar
21%
- Léttsveit - Sjúkrahópur - Sleðahópur - Tækjahópur
27%
Innanbæjarleit
Fjallabjörgun
Utanbæjarleit
Jökull / snjór
Óveðursaðstoð
Annað / flug / sina
Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2010-12
3
Spurningar og svör Hverjir geta hafið nýliðastarf? Aldurstakmark er 18 ár, en þjálfunin hentar fólki á öllum aldri. Þú þarft nauðsynlega að vera í góðu líkamlegu og andlegu formi, en einnig er mjög mikilvægt að eiga gott með að vinna í hópi fólks og að vera félagslega hæfur. Reynsla af útivist er kostur, en ekki nauðsyn. Námskeið fara fram á íslensku og því er íslenskukunnátta mikilvæg. Stelpur eða strákar? Aldrei hefur verið gerður munur á hlutverkum kvenna og karla innan HSSR. Þar ganga allir í öll verk.
4
Er þetta tímafrekt? Dagskráin er þétt og miklar kröf ur eru gerðar um mætingu á námskeið, í gönguferðir og fjár aflanir. Þar að auki er ætlast til að þú undirbúir þig fyrir stóru námskeiðin með því að lesa námsgögn. Dagskrá vetrarins er á bls. 8. Til viðbótar því sem hér er upp talið er gert ráð fyrir að nýliðar gefi sér góðan tíma til æfinga utan reglubundinnar dagskrár og að þeir hafi sjálfir frumkvæði að því að æfa það sem þeim er kennt á námskeiðum. Nýliðaþjálfun miðar að beinum undirbúningi fyrir starf að björg un armálum. Sjáir þú fram á að geta tekið þátt í útköllum eftir að þjálfun lýkur hlökkum við til að fá þig Hjálparsveit skáta í Reykjavík
til starfa með okkur. Útköll verða alla daga ársins og á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Þarf að mæta í alla dagskrárliði? Allir dagskrárþættir hafa tilgang og ekkert er óþarft. Ef upp koma sérstakar aðstæður sem hamla þér frá því að mæta á einstaka viðburði er slíkt metið hverju sinni. Fyrir alla viðburði gerir fólk grein fyrir sér með því að senda póst á netfangið nylidar@hssr.is og svara „mæti“ eða „mæti ekki“ og tilgreini ástæðu forfalla. Þetta er sami háttur og hafður er á í útköllum fullgildra félaga sem svara útkallsboðum með SMS-i um mætingu. Í mætingu á dagskrárliði er lögð mikil áhersla á stundvísi.
Kostar þetta peninga? Nýliðar greiða námsbækur á kostnaðarverði, gistigjöld og mat sem oftast er sameiginlegur á lengri námskeiðum. Sá kostnaður sem eftir stendur vegna þátttöku í námskeiðum og ferðum er greiddur af HSSR. Þarf ég að eiga allar græjur? Fyrir þann sem engan búnað á til útivistar er dýrt að byrja í björgunarsveit. Fatnaður og annar búnaður nýtist hins vegar í alla útivist og er því ekki töpuð fjárfesting þótt viðkomandi hætti þjálfun. Sérhæfðan búnað eins og snjóflóða- og klifurbúnað mælum við með að nýliðar reyni af fremsta megni að fá lánaðan til að byrja með.
Ef ómögulegt er að fá búnað að láni hjá kunningjum á HSSR takmarkað magn af búnaði til útláns. Búnaðarlisti er á bls. 7. Fara nýliðar í útköll? Nei, aðeins fullgildir félagar eru sendir í útköll á vegum sveitarinnar. Útköll geta verið mjög krefjandi bæði fyrir líkama og sál. Nýliðum ber að gæta þagmælsku um það sem viðkemur útköllum HSSR og þeir kunna að heyra. Hvað tekur nýliðaþjálfun langan tíma? Fyrstu 9 mánuði í þjálfun eru einstaklingar í hópnum nýliðar 1. Eftir þann tíma eru tekin einstaklingsviðtöl og þeir sem hafa staðist settar kröfur eru færðir yfir í hópinn nýliðar 2. Þjálfunin tekur í heild 18 mánuði. Gangi hún vel getur nýliði vænst þess að verða full gildur félagi í mars á öðrum starfsvetri. Ef einstaklingar hafa reynslu úr öðrum björgunarsveitum er það metið hverju sinni. Hvernig er þjálfunin uppbyggð? Mikil áhersla er lögð á liðsheild en jafnframt á að byggja upp frumkvæði og sjálfsbjargar viðleitni einstaklingsins. Ferðamennska og fyrsta hjálp er lang stærsti þátturinn í dagskrá nýliða 1. Í undir stöðunámskeiðunum Rötun og Fyrstu hjálp eru haldin stutt próf í námskeiðslok en annars er frammistaða metin af leiðbeinendum. Á öðru ári snýst starfið að miklu leyti um að kynna sér sérhæfingu innan sveitarinnar. Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2010-12
5
Spurningar og svör, frh. Hvernig er framvindan metin? Nokkrum sinnum á þjálfunarferlinu er hver ein staklingur metinn af nýliðaforingjum og leiðbeinendum. Matskröfur byggja á því að fólk nýtist í björgunarstarfi. Þeim sem hafa ekki sýnt nægilega ástundun eða frammistöðu verður gefið tækifæri til að bæta sig ella verða vísað úr þjálfun. Eru nýliðar gjaldgengir í almennt starf sveitarinnar? Nýliðar er velkomnir í ferðir, á fundi og fjáraflanir á vegum HSSR. Einu undantekn ing arnar eru ef ferðir krefjast sérstakrar þjálfunar eða hæfni á einhverjum sviðum og er það þá sérstaklega tekið fram.
6 Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Hvernig er haldið utan um nýliðastarf? Nýliðaforingjar halda utan um nýliðastarf með nýliðateymi HSSR sér við hlið. Stöðu fundir eru haldnir með nýliðum nokkrum sinnum á þjálfunartímabilinu þar sem farið er yfir það sem á undan er gengið og það sem í vændum er. Er þetta eintómt púl og strit? Brennandi áhugi á björgunarmálum sameinar félaga í HSSR. Það sem knýr okkur þó ekki síður áfram er mikill áhugi á hvers konar útivist og ferðamennsku og samheldni fjölbreytilegs hóps af skemmtilegu fólki, bæði á léttum stundum og við erfiðari og krefjandi kringumstæður.
Búnaðarþörf nýliða Hér er að finna yfirlit yfir þann búnað sem nýliðar þurfa að hafa með sér í þjálfuninni. Æskilegt er að hver nýliði verði sér út um þann búnað sem hann ætlar að nota, enda er gott að kynnast vel eigin búnaði og venjast honum. Megnið af búnaðinum nýtist fólk vel í almennri ferðamennsku þannig að það er síður en svo glatað fé sem fer í búnað af þessu tagi. Oft er líka hægt að fá þennan búnað lánaðan hjá fjölskyldu og vinum, en þá er nauðsynlegt að hafa í huga að hann er mikið notaður á þjálfunartíma og þarf því yfirleitt að vera laus til notkunar. Í byrjun er nýliðum ráðlagt að reyna að fá lánaðan allan dýran og sérhæfðan búnað, s.s. snjóflóða-, klifur- og sigbúnað, ef nokkur kostur er. Hjálparsveitin á svo nokkurt magn búnaðar sem hægt er að fá lánaðan, ef í nauðirnar rekur. Yfirlit yfir búnað Sept. Fatnaður Göngubuxur Gönguskór Jakki úr öndunarefni Buxur úr öndunarefni Peysa, flís eða ull Bolur, helst ull (2) Föðurland, helst ull (2) Sokkar (3) Vettlingar (2) Húfa Lambhúshetta Almennur búnaður Áttaviti Hitabrúsi Ennisljós og auka rafhlöður Sjúkragögn
Okt. Nóv.
Feb.
Sept. Vetrarbúnaður Sólgleraugu Skíðagleraugu Mannbroddar Ísexi Snjóflóðaýlir Snjóflóðastöng Skófla Gönguskíði og stafir
x x x x x x x x x x x x x
Klifur- og sigbúnaður Hjálmur Sigbelti Sigtól Karabínur (3-4) Slingar og prússikbönd (4-5)
Okt. Nóv.
Feb.
x x x x x x x x x x x x x
x x
Ferðabúnaður Svefnpoki Einangrunardýna Vatnsheldur innri poki Bakpoki, lítill (20-40 l.) Bakpoki, stór (50-90 l.) Tjald (eitt f. hóp) Prímus/pottur (einn f. hóp)
x x x x x x x
7 Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2010-12
Dagskrá fyrra kennslutímabils (2010-11) Mætingarkröfur fyrra kennslutímabils
Pakkað, tjaldað og eldað á fjöllum / 5. okt.
Rauðir dagskrárliðir eru skylda.
Kennt að pakka og raða í bakpoka sem og að
Græna dagskrárliði er hægt að taka á seinna ári.
tjalda. Þátttakendur mæta með allan búnað
Fjall kvöldsins: 2/4 fyrir áramót og 3/5 eftir áramót
(nema mat) fyrir tjaldferð næstu helgar. Farið
Fjáraflanir: a.m.k. 8 skipti
er yfir hagnýt atriði. Fjallað er um fjallamat og
(t.d. fótboltagæsla, Neyðarkall, flugeldavinna)
matreiðslu á fjöllum. Helgarferð í tjaldi / 8.-10. okt. Fyrsta helgarferðin, þar sem gist er í tjöldum og látið reyna á það af ferðamennskunni sem búið er að kenna. Gengið er utan alfaraleiða Kvöldstund með Tækjahópi / 19. okt. Tæki sveitarinnar kynnt, gerð þeirra og eiginleikar. Einnig er farið yfir umgengni og þrif.
Í dagskránni hér á eftir eru öll námskeið fyrir utan
Dagsferð - löng fjallganga / 23. okt.
reglubundið stöðumat, fjöll kvöldsins og almenna
Löng fjallgönguferð í nágrenni Reykjavíkur.
dagskrá sveitarinnar. Línur, hnútar, sig og broddameðferð / 9. nóv. Fjall kvöldsins - kynningarferð / 9. sept. 2010
Undirbúningskvöld fyrir fjallamennskunámskeið.
Létt kvöldganga í fylgd fullgildra félaga.
Spottavinna og hnútar. Sigæfingar innandyra.
Ferðabúnaður / 14. sept.
Fjallamennska 1 / 12.-14. nóv.
Fjallað um persónulega búnað sem þarf til að taka
Erfið helgarferð með bakpoka við vetraraðstæður.
þátt í nýliðastarfi HSSR og ferðabúnað almennt.
Undirstöðuatriði í vetrarfjallmennsku kennd verk lega. Gist í skálum.
Dagsgönguferð / 18. sept. Dagsferð í nágrenni borgarinnar.
VHF fjarskipti / 23. nóv. Grunnnámskeið í notkun VHF talstöðva.
Ferðamennska og rötun / 24.-26. sept.
8
Kennd eru undirstöðuatriði ferðamennsku ásamt
Öryggismál flugelda / 30. nóv.
kortalestri, notkun áttavita og grunnatriði GPS.
Kynning á vinnu- og umgengnisreglum við flug
Gist í skála.
eldasölu og frágang.
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Veðurspár og veðurfræði til fjalla / 11. jan. 2011 Erindi um hvernig við lesum og metum veðurspár. Áreynsluferð með fullgildum / 16. jan. Erfið fjallgönguferð með fullgildum félögum.
Skíðamennska / 15. feb. (kvöld) og 26. feb. Fjallað um skíði í björgunarsveitar starfi. Kvöld fyrir lestur inni og dagsferð á skíðum. Gufuskálar / 18.-20. feb. Samæfing á Gufuskálum með útkallshópum sveitar
Fyrsta hjálp 1 / 21.-23. jan.
innar þar sem nýliðar eru
Þátttakendur öðlast grunnþekkingu í fyrstu hjálp
hvattir til að taka þátt.
sem byggist á því að ekki er alltaf hægt að hringja í 112 og fá aðstoð fagfólks. Kennt í Reykjavík.
Göngu-GPS / 22. feb. Markmið námskeiðsins er
Snjóflóð / 1. feb (kvöld) og 4.-6. feb. (helgi)
að gera þátttakendur hæfari
Bók- og verklegt námskeið um snjóflóð og snjó
til að nota göngu-GPS tæki
flóðaleit. Kennt í Reykjavík og nágrenni.
sem viðbótarútbúnað við rötun í gönguferðum. Línur, hnútar, sig og broddar upprifjun / 1.mars Undirbúningur fyrir fjallamennsku 2. Grunnatriði rifjuð upp og farið yfir búnað. Fjallamennska 2 / 4.-6. mars Erfið vetrarferð í fjallendi með bakpoka. Þetta er framhaldsnámskeið í fjallamennsku. Gist er í tjöldum. Gönguskíða- og snjóhúsaferð / 15. mars (kvöld ) og 19.-20. mars (helgi) Einnar nætur æfingaferð þar sem nýliðar prófa að ferðast á gönguskíðum og grafa og gista í snjóhúsi. Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2010-12
9
Dagskrá fyrra kennslutímabils (2010-11), frh. Jómfrúarferð / 2. apr.
Hvannadalshnjúkur / 2.- 5. júní
Lokapróf fyrra árs nýliðaþjálfunar. Dagsgönguferð
Síðasti dagskrárliður fyrra árs nýliðaþjálfunarinnar,
á milli pósta þar sem reynir á flesta þætti
toppurinn á fjöllum kvöldsins.
ferðamennsku og rötunar, fyrstu hjálp og annað Sumarferð
sem kennt hefur verið í nýliðaþjálfuninni.
Tjaldgönguferð að sumri sem nýliðar skipuleggja Kynning á útkallshópum / 12. apr.
og fara á eigin vegum í 2-5 manna hópum.
Kynning á þeim útkallshópum sem nýliðunum gefst færi á að starfa með á seinni vetri. Nýliðaviðtöl / 9., 10., 12., 16. og 17. maí Að loknum fyrsta vetri í nýliða þjálfun inni setjast nýliðinn og nýliðaforinginn niður ásamt fulltrúa stjórnar og ræða stöðu mála. Klettaklifur og bergtryggingar / 4. og 25. maí Farið er í uppsetningu hinna
margvíslegu
bergtrygginga
fyrir
klettaklifur og björg un. Nýliðar spreyta sig í klettaklifri og sigi við auðveldar aðstæður undir leiðsögn sér fræðinga. Tvö kvöld í nánd við borgina. Verklegar
10
æfingar. Hjálparsveit skáta í Reykjavík
Dagskrá seinna kennslutímabils (2011-12) Þverun straumvatna / sept. 2011
Kort og tölvuvinnsla (Ozi Explorer) /
Verklegt dagsnámskeið í leiðarvali um jökulvötn.
kvöldfyrirlestur í jan. 2012 Hugbúnaðurinn Ozi Explorer er notaður í sveitinni
Heimsókn í Skógarhlíð / kvöld í sept.
til þess að halda utan um GPS gögn og við
Fyrirlestur, undirbúningur fyrir Leitartækni.
kortavinnslu.
Leitartækni / helgi í sept.
Útkallsmál og bækistöðvahópur,
Kennd eru undirstöðuatriði í leit að týndu fólki
persónulegur útkallsbúnaður /
í byggð og óbyggðum. Námskeiðið byggir á röð
kvöld í feb.
fyrirlestra og röð verklegra æfinga í birtu og
Farið yfir ferli útkalla og persónu
rökkri.
legan útkallsbúnað.
Ferðast á jökli / dagsferð í sept.
Slöngubátar / kvöld í feb.
Námskeið um leiðarval og ferðalög á jökli. Nýliðar
Slöngubátar kynntir þannig
prófa ísklifur við auðveldar aðstæður.
að
allir
geti
sjósett
slöngubát, gangsett vél Tetra-fjarskipti / kvöld í okt.
og framkvæmt helstu
Framhaldsnámskeið í fjarskiptum með aðal
stjórntök slíkra báta.
áherslu á Tetra-stöðvarnar. Nýliðaraunin / Fyrsta hjálp 2 / helgarnámskeið í okt.
helgi í mars
Framhaldsnámskeið í fyrstu hjálp. Þátt tak
Síðasta prófraunin fyrir
endur eru búnir undir að takast á við stóráföll og
inngöngu inn í sveitina
eftirköst þeirra. Stjórnun á vettvangi og fleira.
sem reynir á flesta þætti þjálfunarinnar.
Búnaður
Rústabjörgun / kvöldfyrirlestrar í okt.
skv.
Að gera þátttakendur hæfari til starfa sem
lista björgunarmanns.
einstaklingsbúnaðar
almennir liðsmenn með rústabjörgunarhópum við rústabjörgunarverkefni.
Vetrarferð / vorönn Vetrarferð þar sem ný
Snjóflóð, upprifjun / kvöld í nóv.
liðar skipta sér í 2-5 manna hópa og
Rifjuð upp helstu atriði við leit í snjóflóði og farið
skipuleggja ferðina alfarið sjálfir.
yfir nokkrar dæmisögur frá björgunarleiðöngrum
Gist í a.m.k. eina nótt í snjóhúsum
á Íslandi.
eða tjöldum. Kynningarbæklingur fyrir nýliða 2010-12
11
Pantone 287
Malarhöfði 6 | 110 Reykjavík hssr@hssr.is | hssr.is
CMYK