2 minute read
Forvarnarverkefni á ferð um landið
from JAFNVÆGI 1útg 43.árg
by Sjávarafl
115 Security A Margeirsson AB Varahlutir Aðalvík Akstur og löndun ehf Ari Oddsson ehf Arkform Ágúst Guðröðarson Árskóli Bakarinn hf Baugsbót Ben Media Bifreiðastöð Þórðar Bifreiðaverkstæðið Klettur Bílamálun Sigurvins ehf Bílasmiðurinn Bílaverkstæði KS Blikksmiðja Guðmundar Blikksmiðjan Vík Bolungarvíkurkaupstaður Borgarbyggð Bókasafn Reykjanesbæjar Bókhaldsstofa Þórhalls Bókhaldsstofan Strandgötu Bókráð bókhaldsstofa Brunavarnir Suðurnesja BSRB Bæjarbakarí ehf Dansrækt JSB DMM Lausnir Efnalaugin Glæsir Eignamiðlun Endurskoðun Helga Endurskoðun Vestfjarða Eskja ehf Essei hf Fiskbúðin Kópavogi Fjarðarkaup Fjarðarmót Fjarðarveitingar Fótaaðgerðastofa Kristínar Garðabær Gefnaborg Gistiheimili Urðarstekk Gjögur hf Gunnarsstofnun Hagblikk Hamborgarabúlla Tómasar Hótel Natur Hvalur ehf Höfðakaffi Íþróttahúsið Glerártorgi Íþróttalækningar Lambinn Veitingar Lásahúsið Litlalón ehf Loft og raftækni Lyfjval ehf Mardöll ehf Mótorhaus ehf Nesbrú ehf Nethamar Norðurá bs Norðurlagnir Orkuvirkni Ósal Pakk veitingar Rafmiðlun Rafsvið hf Reiknstofa Fiskmarkaða Samhentir Set ehf Síldarvinnslan SME Dúkalagnir Smurstöð Akraness Snæljós Sóknarpresturinn Þingeyri SSF Stilling Súluholt Tjöruhúsið TSA verktakar TV verk Vatnspípan ehf Verkalýðsfélagið Hlíf Verslunartækni og Geiri
Líf og heilsa
Forvarnarverkefni á ferð um landið
Hjartaheill hafa um langt skeið staðið að heilsufarsmælingum meðal almennings. SÍBS hafa lengi stutt við það starf og fyrir nokkrum árum komu svo Samtök lungnasjúklinga einnig inn í samstarfið. Svo var það um mitt ár 2017 sem þau hjá Hjartaheill höfðu samband við okkur hjá Samtökum sykursjúkra og buðu okkur að vera með, sem við auðvitað þáðum með miklum þökkum.
Verkefnið gengur út á það að fara um landið, helst á litlu staðina þar sem minnsta þjónustu er að fá, og er ávallt reynt að gera þetta í samstarfi við heilsugæsluna á svæðinu. Þegar við komum á staðinn er fólkinu boðið upp á ýmsar heilsufarsmælingar ásamt spjalli og ráðleggingum. Það sem mælt er: blóðþrýstingur, blóðfita, blóðsykur, súrefnismettun í blóði, gripstyrkur, mittismál, hæð og þyngd, auk þess sem allir eru beðnir að svara spurningakönnun um almennt heilsufar sitt. Frá byrjun hafa tugir þúsunda tekið þátt í verkefninu. Sem betur fer hefur flest þetta fólk verið með öll sín gildi í góðu lagi en margir hafa einnig fengið upplýsingar um að þeir þyrftu að skoða sín mál betur, breyta lífsháttum eða leita læknis. Þó etv megi benda á einstök tilfelli þar sem mælingar hafa leitt fólk til læknis, en heimsóknin þangað reynst óþörf, eru hin tilvikin miklu fleiri þar sem upplýsingarnar sem fólk hefur fengið um ástand mála hafa reynst mikilvægar fyrir heilsu þess, leitt til breyttra lífshátta og jafnvel komið í veg fyrir dauðsföll.
Á þessu skrítna ári 2020 hafa þessar ferðir legið að mestu niðri, eins og svo margt annað, en við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið um leið og aðstæður í samfélaginu leyfa.