1 minute read
HLÖÐUM Í HAGKVÆM
from Göngubók UMFÍ 2023
by UMFÍ
Fj Lskyldu Vint Ri
GLÆSILEGUR 455.000 KR.
Advertisement
SUMARKAUPAUKI
FYLGIR MEÐ
JEEP® COMPASS HENTAR ÞÉR FULLKOMLEGA
Rafmagnaður, fjórhjóladrifinn Jeep® Compass skilar þér hvert á land sem er. Pláss fyrir allt, alla og öll þín ævintýri út í búð eða upp á næsta fjall. Sumarkaupauki fylgir öllum Jeep® Compass og Jeep® Renegade. Dráttarbeisli, aurhlífar, hleðslukapall og þjónustuskoðanir að verðmæti 455.000 kr.
Sambandsaðilar UMFÍ á Suðurnesjum eru: Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, Ungmennafélag Grindavíkur, Ungmennafélag Njarðvíkur og Ungmennafélagið Þróttur í Vogum.
Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag
Árið 1994 voru sex íþróttafélög í Keflavík sameinuð í eitt félag – Keflavík, íþrótta og ungmennafélag. Ákveðið var að halda í stofndag elsta félagsins, Ungmennafélags Keflavíkur, en hann var 29. september 1929. Keflavík er fjölgreinafélag þar sem boðið er upp á badminton, blak, fimleika, knattspyrnu, körfubolta, skotíþróttir, sund og taekwondo. Félagið er með beina aðild að UMFÍ
Ungmennafélag Grindavíkur
(UMFG) var stofnað árið 1935. Innan félagsins er boðið upp á fimleika, hjólreiðar, júdó, knattspyrnu, körfubolta, pílukast, skotíþróttir, sund og taekwondo. Félagið er með beina aðild að UMFÍ.
Ungmennafélag Njarðvíkur
(UMFN) var stofnað árið 1944. Innan félagsins er boðið upp á knattspyrnu körfuknattleik, sund, lyftingar, glímu og þríþraut. Félagið er með beina aðild að UMFÍ.
Ungmennafélagið Þróttur
Árið 1907 var Ungmennafélag Vatnsleysustrandar stofnað og starfaði það til um 1920 er það lagðist af. Umf.
Þróttur í Vogum (UMFÞ) var stofnað 23. október 1932 og hefur starfað allar götur síðan. Hjá Þrótti er boðið upp á knattspyrnu, sund og júdó. Félagið er með beina aðild að UMFÍ.