1 minute read

Fleiri tækifæri fyrir börn og ungmenni

Ráðherrar við undirskrift samstarfsyfirlýsingar um verkefnið „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“. F.v.: Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.

Þrír ráðherrar skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu sem getur markað tímamót í íþróttastarfi barna- og ungmenna.

Advertisement

Meiri áhersla en nokkru sinni verður á að gera börnum og ungmennum með fötlun kleift að stunda íþróttir með ófötluðum börnum kjósi þau svo, samkvæmt samstarfsyfirlýsingu sem undirrituð var á dögunum.

Það voru þeir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sem skrifuðu undir yfirlýsinguna.

Verkefnið miðar að því að efla íþróttaástundun fatlaðs fólks, ekki síst barna og ungmenna með fatlanir. Alls verður 60 milljónum króna veitt til verkefnisins, sem er til þriggja ára.

Aðgerðirnar sem ráðist verður í byggja á tillögum sem fram komu á ráðstefnunni „Farsælt samfélag fyrir öll – tækifæri barna og ungmenna í íþróttastarfi“.

Á meðal næstu skrefa eftir undirritunina er að ráða til starfa verkefnastjóra sem mun vinna að framgangi aðgerðanna og eiga í samstarfi við sveitarfélög og íþróttafélög um land allt, auk fulltrúa félagsþjónustu, skóla, sérsambanda ÍSÍ, íþróttahéraða innan ÍSÍ og UMFÍ og fjölda annarra sem tengjast verkefninu.

Einnig verða veittir styrkir og aðstoð við þróun sprotaverkefna í íþróttastarfi sem hafa þann tilgang að efla nýsköpun og styrkja góðar fyrirmyndir þannig að markmið verkefnisins nái fram að ganga.

Viðstaddir undirritunina voru auk ráðherranna þriggja fulltrúar íþróttahreyfingarinnar, þar á meðal þau Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Þórður Árni Hjaltested, formaður Íþróttasambands fatlaðra, og Anna Karólína Vilhjálmsdóttir og Jón Björn Ólafsson frá Íþróttasambandi fatlaðra auk fleiri sem tengjast samningnum. Þar á meðal er Þór G. Þórarinsson, sérfræðingur hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, og Anna Lára Steindal, verkefnastjóri hjá Þroskahjálp.

This article is from: