2002, 8.árg

Page 1

Verð 596 kr.

Fagrit um skotveiðar og útivist. 1. tbl. - 8. árg. 2002



Fagrit um skotveiðar og útivist

Efnisyfirlit Ritstjóraspjall

bls. 7

S i g m a r B . H a u k ss o n

Rjúpan er minn fugl

12

17

23

Dr. Ólafur K. Nielsen

Þjóðlendur og almannaveiðiréttur Í v a r P á l ss o n

Björt framtíð Í v a r E r l e n d ss o n

Grágæsin

Útgefandi:

29

D r . A r n ó r Þ ó r i r S i g f úss o n

„Gormaðurinn“

Laugavegi 103, 105 Reykjavík

32

Viðtal

við

37

42

45

48

H á k o n A ð a l s t e i n ss o n

Úr félagslífinu Myndasyrpa

Úr eldhúsi meistaranna

Sími 551 4574, Fax 551 4584 E-mail skotvis@skotvis.is

S t e f á n H ö s k u l d ss o n

Skaut kött á flugi

Skotveiðifélag Íslands

Heimasíður: SKOTVÍS: http://www.skotvis.is SKOTREYN: http://www.skotreyn.org

U pps k r i f t i r

Í sigtinu - Teista D r . A r n ó r Þ ó r i r S i g f úss o n

Bréf frá veiðimanni til veiðihatara

50

54

57

58

63

67

Ritstjórn og ábyrgð:

Sigmar B. Hauksson Hjördís Andrésdóttir

Kaj Munk

Hefð og nútíma hugvit

Forsíðumynd:

Brian Pilkington

G u ð n i E i n a r ss o n

Sportbúð Títan á Krókhálsinn Frétt

Veiðidellan hefur fylgt mér frá barnsaldri Viðtal

við

H a u k B r y n j ó l f ss o n

Ný skotfimi –  Nýtt skotsport

Auglýsingar:

Pétur Freyr Halldórsson Útlit og prentvinnsla:

Hönnun & umbrot ehf. www.design.is

Í v a r E r l e n d ss o n

Afsláttartilboð SKOTVÍS





Fagrit um skotveiðar og útivist

Frá formanni Á g æ t u S KOTV Í S - f é l a g a r !

F r á Þ j ó r s á r v e r u m ( m y n d J óh a n n Ó l i H i l m a r ss o n )

S

ú spurning sem oft leitar á huga for­manns Skotveiðifélags Ís­lands er hver sé tilgangur félagsins. Vissu­lega eru mörg verkefnanna aug­ ljós, höfuð­ hlut­verk félagsins er að gæta hagsmuna

félagsmanna og raunar allra íslenskra skot­ veiðimanna. Í þessari hags­ muna­ gæslu fer mestur tími stjórn­ar og starfs­ manns félagsins. Annar mikil­vægur þátt­ ur í starfsemi SKOT­ VÍS er fræðsla.

Árlega heldur félagið 8 fræðslu­fundi, þá höldum við úti heima­ síðu, gefum út frétta­ blað og svo auðvitað stolt okkar SKOTVÍS-blaðið sem er • fagrit um skotveiðar og úti­

7


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

vist. Þá efnir félagið nær árlega til vandaðra ráðstefna um veiðar, veiði­dýr og land­­réttar­mál. Í því sambandi vildum við minna á alþjóð­ lega ráðstefnu um rjúp­una sem haldin verður 5. október næst­komandi og nánar er sagt frá hér í blaðinu. Þá er rétt að minna á ýmsa aðra þjónustu við félagsmenn en ár­lega fær skrifstofa SKOTVÍS fjölda sím­ hring­ inga og fyrirspurna í rafpósti um allt milli himins og jarðar hvað varðar veiðar, vopn og landréttarmál. Undan­ farin 2 ár hafa ekki síst borist fyrir­ spurnir um hvar sé hægt að fá veiðileyfi.

Samstarf

M

við stjórnvöld

ikilvægur þáttur í starfi SKOT­ VÍS er samstarf við stjórn­völd og opinberar stofnanir. Við höfum átt afar gott samstarf við Veiði­ stjóra­ embættið, allt frá því að það var sett á laggirnar í núverandi mynd. Sam­starfið við vísindamenn Náttúru­fræði­stofn­unar hefur verið gagnlegt og gott. Við höfum átt mjög góð sam­ skipti við Um­hverfisráðuneytið, em­bættis­­menn jafnt sem ráðherra. Stjórn­­völd hafa nú gert sér grein fyrir því að Skot­veiði­félag Íslands er öflugustu, fjölmennustu og í raun einu lands­sam­tök skot­veiði­manna. Þess vegna er ábyrgð okkar mikil. Við verðum iðulega að vera um­sagnar­aðilar um ný laga­frumvörp er snerta veiðar, náttúru­­vernd og land­réttarmál. Mörg mál sem snerta skot­ veiðar eru um­deilan­leg og þess vegna verðum við að kapp­kosta að finna svar við áleitnum spurningum sem búast má við að sem flestir félags­ menn séu sáttir við. Með því að veita Alþingi og stjórn­ völd­ um visst aðhald, en einnig að vera tilbúin til samstarfs á jafn­réttis­grund­velli, getum við haft veruleg áhrif á mál sem snerta skotveiðar hér á landi og það er einmitt kjarni málsins í starfi • félagsins.

8

Náttúruvernd

N

áttúruvernd er málefni sem nán­ ast allir hafa áhuga á. Segja má að svokölluð Eyjabakkaumræða hafi gjör­ breytt afstöðu þjóðarinnar til náttúr­ unnar. Við komumst að því að náttúru­ auðlindirnar eru ekki óendan­legar og að ósnert náttúra er auðlind og verðmæt. Menn hafa hins vegar deilt um hversu langt á að ganga í að nýta náttúruna, t.d. fallvötnin, til raf­ orku­ framleiðslu. Skot­ veiði­­félag Íslands vildi þyrma Eyja­bakka­ svæðinu, ástæð­ an var einföld og sú að Eyja­ bakkar er stærsta þekkta fellisvæði heiðagæsar­ innar í heiminum. Vísinda­ menn töldu að eyði­ legging Eyja­ bakka­ svæð­isins gæti haft al­varleg áhrif á heiða­ gæsa­ stofninn. Félag­ ið hafði hins vegar enga skoðun á Kára­ hnjúkavirkjun eða álveri á Reyðarfirði. Með samstilltu átaki þjóðar­­innar tókst að bjarga Eyja­bökk­un­ um. Formaður og stjórn SKOTVÍS urðu fyrir árásum á Alþingi vegna þessa máls. Við vorum sakaðir um tvö­falt siðgæði í þessum efnum. Annars vegar vildum við friða gæsirnar og síðar svo skjóta þær. Þessar árásir voru satt best að segja heimsku­legar svo ekki sé nú tekið dýpra í árinni. Allir hugsandi veiðimenn vilja að þeir dýrastofnar sem veitt er úr séu sterkir og heilbrigðir. Við viljum nefnilega geta stundað veiðar í íslenskri náttúru um ókomin ár.

öfugþróunar. Síðan segir í skýrslum að ein af hverjum 8 tegundum fugla­ teg­ unda sé í útrým­ingar­hættu. Við könn­ umst vel við þær hörmulegu afleiðingar þegar dýr eru flutt á milli heimsálfa. Minkurinn sem fluttur var hingað til lands árið 1931 hefur unnið ómetanlegt tjón í íslenskri náttúru. Hinn þátturinn sem nefndur var í skýrslu Sameinuðu þjóð­ anna um eyðileggingu heimkynna dýr­anna er hins vegar nokkuð nýr hér á landi. Eyðilegging Eyjabakkasvæðisins var einmitt skýrt dæmi um afleiðingar slíkrar eyðileggingar.

Norðlingaölduveita

N

orðlingaölduveita er annað aug­ ljóst dæmi þar sem vegið er að heim­kynnum dýra, í þessu tilviki heiða­­­­ gæs­arinnar. Með Norð­linga­öldu­lóni við og í Þjórsárverum munu 7.2 fer­ kíló­ metrar af grónu landi fara í kaf. Fyrir­ hugað miðlunarlón yrði svipað stórt og Mývatn. Í Þjórsárverum er eitt víðáttu­ mesta og fjölbreyttasta gróður­ svæði á hálendinu og hýsir mesta heiða­gæsavarp í heimi. Þjórs­árver eru því lífsnauðsynleg fyrir heiða­ gæsina en um 30-40% af stofn­inum byggir tilvist sína á svæðinu, bæði sem varpfuglar og fuglar í sárum. Miðað við fyrirhugaða lónshæð, 575 metra yfir sjávarmáli, munu um 500 hreið­ur heiðagæsa hverfa undir vatn. Þá er rétt að benda á það að það er ekki nóg Skotveiðar ógna ekki með að fjöldi hreiðra muni fara undir tilvist dýra vatn heldur mun hluti beitilands heiða­ gæs­anna hverfa. Í Þjórsárverum er fjöldi kotveiðar ógna ekki tilvist neinna annarra fugla, þarna hafa sést 45 teg­ dýra á Íslandi. Í skýrslu Sam­ein­ undir og 22 tegundir hafa orpið á uðu þjóðanna um ástand um­hverfis­þátta svæðinu. í heiminum kemur fram að fjórðungur spendýrategunda í heim­ inum á það á hættu að deyja út á næstu 30 árum. Talið Samstaða er að eyðilegging heim­ kynna dýra og flutningur tegunda á milli heims­ hluta amstaða er mikil um verndun séu helstu orsaka­ valdar þessarar Þjórs­ár­vera og næsta nágrennis

S

S



Landsfélag um skynsamlega skotveiði

þeirra. Þjórsárver eru eitt þriggja vot­ lendissvæða Íslands sem eru vernd­uð sam­­kvæmt hinum alþjóðlega Ram­sar­ sátt­ mála um vernd mikilvægra vot­ lendis­ svæða. Hann hafa Íslendingar undir­­­­ritað og þannig skuldbundið sig til að vernda svæðið. Náttúruvernd ríkis­ins hafnaði Norðlingaölduveitu og telur frekari skerðingu Þjórsárvera ekki við­unandi. Meirihluti íbúa Gnúp­verja­ hrepps er andsnúinn þessum fram­­ ­ kvæmd­ um. Tveir ráðherrar í núver­ andi ríkisstjórn, þeir Halldór Ás­gríms­ son og Guðni Ágústsson, hafa lýst sig andvíga virkjunar­fram­kvæmd­um á Þjórs­árvera­svæðinu. Þá eru nán­ast allir þeir vísinda­menn sem hvað best þekkja til Þjórs­ár­vera­svæðisins og hafa stund­ að þar rann­ sóknir á móti fyrir­ hug­ uðum fram­kvæmd­um Lands­virkjun­ar. Skot­ veiði­ félag Íslands hlýtur að vera and­snúið fyrir­huguðum fram­kvæmd­ um við Norð­lingaöldulón. Ljóst er að þessar fram­­kvæmdir ógna heim­­kynn­ um heiða­gæsarinnar. Þjórs­ár­ver er stærsta vot­ lendisvinin á mið­ hálendi Íslands og eins og áður hefur komið fram mikilvægasta land heiða­ gæsar­ innar á Íslandi. Allt rask á Þjórs­ár­vera­ svæðinu getur því haft ófyrir­sjáan­legar afleiðingar fyrir íslenska heiða­ gæsa­ stofninn.

Landsvirkjun

L

andsvirkjun virðist ekkert hafa lært af svokallaðri Eyjabakka­um­ ræðu. Ekkert tillit er tekið til skoðana virtustu vísindamanna þjóðarinnar, Nátt­úru­­­verndar ríkisins, stjórn­mála­ manna og hagsmunasamtaka. Líkur eru á að framkvæmdir hefjist á næst­ unni við Kárahnjúkavirkjun. Ljóst er að enn eru ýmsir andsnúnir þessum fram­ kvæmdum, þ.á.m. öflug alþjóðleg náttúruverndarsamtök. Líklegast verð­ ur töluvert fjallað um þessar fram­ kvæmdir í erlendum fjölmiðlum. Ef Lands­virkjun ætlar að halda til streitu fyrirhuguðum framkvæmdum við Norð­­linga­öldulón, sem m.a. mun hafa í för með sér að 7 ferkílómetrar lón­sins verða innan friðlandsins í Þjórs­­­ ár­ verum, er ljóst að sú fram­kvæmd mun vekja verulega athygli er­lendis og ekki auka hróður Íslend­ inga á sviði náttúruverndar. Það mætti halda að Landsvirkjun, þetta öfluga fyrirtæki, hafi enga stefnu í um­hverfis­málum. Sé sú stefna til þá er hún annaðhvort ósýnileg eða lélegur brandari. Þau vinnubrögð Lands­ virkjunar að stilla þjóðinni upp við vegg eru óþol­ andi. Vissulega á að nýta fallvötnin til raforku­ framleiðslu en það verður að

gera með þeim hætti að ekki sé fórnað dýrmætum náttúru­perlum. Það verður að gera með þeim hætti að heimkynni dýra séu ekki eyði­lögð og tilvist dýra­ teg­ unda ógnað, í þessu tilviki heiða­ gæsar­innar. Við höf­um nefnilega engar tryggingu fyrir því að verði af Norð­ linga­­öldustíflu að hún verði ekki hækk­ uð einhvern tíma í framtíðinni með þeim afleiðingum að mun stærri hluti Þjórsárvera fari í kaf. Hver treyst­ ir Landsvirkjun í náttúru­verndar­málum?

Náttúruverndarmál

Í

Náttúruverndarmálum leggur félag­ ið ríka áherslu á að ekki sé gengið of nærri þeim stofnum sem veitt er úr. Eins og kemur fram í skýrslu Sameinuðu þjóðanna eru það ýmis önnur mannanna verk en veiðar sem ógna dýrastofnum heimsins. Eyði­ legging heimkynna dýranna er ein ­­ mesta ógnunin. Fyrirhugaðar fram­ kvæmdir Landsvirkjunar við gerð Norð­linga­öldulóns er aðför að heim­ kynnum heiðagæsanna og því bein ógnun við stofninn. S i g m a r B . H a u k ss o n f o r m a ð u r S KOTV Í S



„Rjúpan er minn fugl“ Úr

v e i ð i d a g bó k u m

S i g u r f i n n s J ó n ss o n a r

SIGURFINNUR JÓNSSON ER FÆDDUR 11. MARS 1930 Á DAÐASTÖÐUM Á REYKJASTRÖND Í S K A G A F I R Ð I . H A N N Ó L S T U P P Á R E Y K J A S T R Ö N D E N F L U T T I T I L S A U Ð ­Á R ­K R Ó K S 1 9 6 4 O G H E F U R B Ú I Ð Þ A R S Í Ð A N . S I G U R ­F I N N U R E R L A N D S Þ E K K T U R V E I Ð I ­M A Ð U R O G M . A . H E F U R Á R N I G U N N A R S ­S O N 1 SKRÁÐ ÆVISÖGU HANS OG EINS VAR ÞÁTTUR UM SIGURFINN Í RÍKISSJÓNVARPINU Á LIÐNU HAUSTI.


Fagrit um skotveiðar og útivist

A

uk þess að halda veiðidagbók hefur Sigurfinnur talið karra á vorin. Þessar talningar fara þannig fram að hann ekur tvær leiðir vor hvert og telur alla karra sem sjást frá vegi. Önnur taln­ inga­ leiðin er frá Sauðárkróki norður á Hraun á Skaga og hin er hring­vegurinn um Hegranes. Talninga­tím­inn er í lok apríl og fyrri hluta maí. Þessar talningar hóf Sigur­ finnur vorið 1977 og hefur talið á hverju vori síðan nema ekki árið 1996.

É

S

igurfinnur hefur haldið veiði­ dagbók alla tíð og þar hefur hann skráð um rjúpnaveiði m.a. veiði­ dag, veiðisvæði, afla og hvað sást af rjúpu í ferðinni. Samtals eru þetta 1238 dagar sem hann hefur gengið til rjúpna á árabilinu 1944-2001 og í þess­ um ferðum hefur hann veitt 17.032 ­ rjúpur. Rjúpnaveiðar hefur Sigur­­finnur mestmegnis stundað í Tinda­­ stóli í sinni heimasveit. Einnig hef­ ur hann mikið veitt í nálægum fjöll­ um s.s.

g hef vitað nokkuð lengi um þessi gögn Sigurfinns, bæði veiði­d­agbækurnar og eins rjúpna­taln­ ing­arnar, og þótt þetta vera for­vitni­ legt efni. Hann sendi mér niðurstöður vortalninga sinna fyrir fáeinum árum og hefur síðan látið mig vita vor hvert hvað hann hefur séð af körrum á Sigurfinnur á veiðum. talninga­svæðunum. Á liðnum vetri bað ég hann að yfirfara veiðidagbækurnar Kolugafjalli, Sandfelli, Hvamms­ ­ og færa á eyðublað ferð fyrir ferð, hlíðarfjalli, Miðaftansfjalli, Trölla­­­ veiðidag, veiðistað, hversu lengi var kirkju, Vatnaöxl, Stakkfelli, Hryggja­ ­ veitt, hversu mikið og hvað sást samtals fjalli, Gyltu, Molduxa og Sauða­felli svo af fugli. Þetta var þó nokkuð verk fyrir þau helstu séu nefnd. Ör­ fáar ferðir Sigurfinn en allt skilaði þetta sér fljótt hefur hann farið á aðrar slóðir s.s. og vel til mín. Hér er ætlunin að skoða Auðkúluheiði, í Þrándar­hlíðarfjall og á nokkra fleti á þessu gagna­ safni, m.a. Öxnadalsheiði. Dag­bæk­urnar fyrir árin þætti eins og dagsveiði og hvernig hún 1956-1960 eru glataðar og þau ár er dreifist, hvernig veiði breytist á milli aðeins þekkt heildarveiði og veiðiferðir, ára, niðurstöður rjúpna­­­­talninga, og þ.e. 1000 rjúpur í 70 veiðiferðum. tengsl stofnstærðar rjúpu og veiðiafkasta.


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Dagsveiði

Birtu­stundir voru reikn­aðar sam­kvæmt upp­lýs­ing­um í Al­man­aki hins íslenska þjóð­vina­félags2 fyrir Akureyri og miðað var við tímann frá sólrisi til sólarlags. Þetta var gert fyrir hvern veiðidag og síðan tekið meðaltal fyrir hvert ár.

M

eðaldagsveiði Sigurfinns eru 13,7 rjúpur (1168 ferðir). Tíðnidreifing á afla í veiðiferð er skekkt til hægri (1. mynd). Algengustu veiðitölurnar eru 5, 6 og 7 rjúpur í ferð og miðgildið er 12 fuglar. Mest hefur hann náð 70 rjúpum í veiðiferð, einu sinni, en í 23 ferðum veiddist ekkert.

Munur

M

eðalveiði á sóknareiningu, tek­ ið saman fyrir öll árin, var 2,1 fugl/klukkustund, mest 5,6 (1954) og minnst 0,5 fuglar/klukkustund (1948), eða um 10-faldur munur á bestu og verstu árum. Þegar árin eru borin saman má sjá toppa í veiðinni 1945, 1954, 1965, 1976 og 1977, 1987 og 1996 (3. mynd).

á veiði milli ára

V

erulegur munur hefur verið á rjúpnaveiði Sigurfinns á milli ára (2. mynd). Meðalársveiðin eru 302 rjúpur, minnst hefur hann veitt 26 rjúpur (1949) og mest 1002 rjúpur á ári (1965), sem gerir um 39-faldan mun á mestu og minnstu ársveiði. Veiði Sigurfinns var um og innan við 200 fuglar á ári á 5. og 6. áratug síð­ ustu aldar en síðan kom stórt stökk upp á við um miðjan 7. áratuginn. Allan 8. og 9. áratuginn og fram á þann 10. var heildarveiðin yfirleitt á bil­ inu 200-600 fuglar. Frá og með 1993 hefur veiðin nær alltaf verið innan við 200 fuglar.

T

il að hægt sé að bera veiðitölur Sigurfinns saman milli ára og skoða tengsl veiði og stofnstærðar rjúpu verður að staðla veiðitölurnar

Stofnstærð m.t.t. veiðiátaksins, þ.e. fjölda veiði­ daga eða veiðistunda sem liggja að baki ársveiðinni. Veiðiferðir voru mjög mismargar eftir árum, að meðaltali hefur hann gengið 22 sinnum til rjúpna á ári, mest 35 sinnum (1964, 1965, 1982) og minnst tvisvar sinnum (1953). Ég valdi þann kostinn að staðla veiðitölurnar með því að reikna fyrir hvern veiðidag fjölda fugla sem náðust á klukkustund og er það sóknar­ ein­ ingin. Þar sem ég veit sjaldnast hversu lengi Sigurfinnur veiddi í hverri ferð þá miða ég við að hann hafi veitt allan birtutímann.

S

igurfinnur hefur talið rjúpur bæði vor og haust, samanber það sem segir hér að ofan.

H

austtalningarnar spanna flest öll árin og samtals eru til tölur um hvað hann sá af rjúpum í 703 veiði­ ferðum. Reiknaður var meðalfjöldi fugla sem sást í veiðiferð fyrir hvert ár fyrir sig (4. mynd). Greinilegir toppar voru 1945, 1955, 1965 og 1975 og 1976. Eftir að fækkar 1976 hefur ekkert ár skorið sig verulega úr en smá toppar virðast hafa verið 1982, 1988


Fagrit um skotveiðar og útivist

L

og 1996. Mest sást af rjúpu haustið ínuleg aðhvarfsgreining á taln­ 1955, að meðaltali 217 fuglar í ferð, en inga­röðunum sýnir tölfræðilega minnst haustið 1948, að meðaltali 5 marktæka fækkun rjúpna á athugana­ fuglar í ferð. Munur á besta og tímanum. Miðað við reiknaða lé­legasta ári er um 40-faldur. að­hvarfs­línu sýna hausttalningarnar 80% fækkun fyrir tímabilið 1944ortalningarnar spanna styttri 2001, eða að jafnaði um 3% á ári. Á tíma en hausttalningarnar eða sama hátt sýna vortalningar 78% frá 1977. Í úrvinnslu sam­ einaði ég fækkun fyrir tíma­bilið 1977-2001 eða talningasvæðin tvö, Hegranes og 6% á ári, og hausttalningar fyrir sama Skaga, og tók meðal­tal fyrir hvert ár. tímabil gefa 63% fækkun, eða 4% á Mjög góð fylgni er á stofnbreytingum ári. Samkvæmt þessum gögnum rjúpna á milli svæðanna (fylgnistuðull Sigurfinns hafa orðið algjör umskipti = 0,863) og því réttlætanlegt að taka hvað varðar rjúpna­fjölda ef við berum þau saman. Þegar vortalningar Sigur­ saman 5. og 6. ára­tug nýliðinnar aldar finns hófust 1977 var mikið af rjúpu en og svo aftur það sem hefur verið síðan fækkaði, annar toppur var 1981, síðustu 20 árin. Tíma­bilið þar á milli, síðan 1987 og loks 1998 (5. mynd). þ.e. á 7. og 8. ára­tugnum, ríkti einhvers Mest hafa sést í vortalningu 186 karrar konar milli­ bilsástand. Samkvæmt (1987) og minnst 17 (1994), munurinn þessum gögn­ um og skilgreiningum í er um 11-faldur. Válista Nátt­úru­fræðistofnunar Íslands3 þá á rjúpan heima á þeim lista sem engsl talninga að vori og hausti tegund í yfir­ vofandi hættu, þar sem eru tölfræðilega mjög mark­tækar stofn hennar hefur minnkað sem (6. mynd). Þau ár sem Sigur­ finnur nemur meira en 20% á síðustu 10 telur margar karra að vori sér hann árum. Miðað við hvað sást mest af einnig að jafnaði margar rjúpur í rjúpu í haust­taln­ingum Sigurfinns á 5. veiðiferðum að hausti. Samkvæmt og 6. áratug lið­innar aldar þá voru á reikn­­aðri aðhvarflínu þá breytast vor- þeim árum um 20-sinnum fleiri rjúpur og hausttölur í réttum hlutföllum á veiðislóðinni en á liðnu hausti og það þann­ ig að helmingi stærri vorstofn munar um minna! merkir að Sigurfinnur sér að jafnaði helm­ingi fleiri rjúpur að hausti.

V

T

Tengsl

veiðiafkasta og

stofnstærðar

Í

Hér er skot­­veiði­mað­ur­inn í hlutverki rán­dýr­sins og fróðlegt að skoða hvað þessi gögn Sigurfinns segja okkur um það hvernig veiði­afköst hans, þ.e. afli á sóknar­ einingu, breyt­ ast með breyttri stofn­stærð rjúp­unnar.

V

ortalningar á rjúp­­um og veiði á sóknareiningu að hausti sýna marktæk línu­leg tengsl í hlut­föllunum 1/ , þannig að þegar rjúpna­­ stofn­ inn 2 fjór­faldast þá tvö­fald­ast veiði­afköstin (7. mynd). Hausttalningar fyrir þetta sama árabil (1977-2001) gefa sams­ konar niðurstöðu, þ.e. mark­tækt línu­ legt samband stofn­stærðar og veiði á sóknar­ einingu og að fjórföldun á stofn­­­stærð gefur tvöföldun í veiði­af­ köst­­um. Samkvæmt þessum niður­stöð­ um þá eru áhrif veiðimannsins hlut­ falls­lega mest þegar rjúpna­stofn­inn er minnstur.

E

kki er að sjá á gögnum fyrir tíma­ bilið 1977-2001 að nein mett­un verði á veiði á sóknareiningu, þ.e. að rjúpurnar verði nokkurt ár það margar að veiðimaðurinn hafi hrein­ lega ekki undan og geti ekki aukið afköstin frekar. Rétt er þó að benda á að á þessum tíma hefur ekki verið verulega mikið af rjúpu miðað við það sem áður hefur þekkst (sbr. 4. mynd). Ef við hins vegar skoðum niðurstöður haust­talninga frá upphafi á móti afla á sóknareiningu sjáum við mettun við mesta þéttleika rjúpna, og aðhvarfs­fer­ ill­inn er kúptur en ekki línulegur (8. mynd). Hámarksafköst veiðimannsins virðast liggja í kringum 4 rjúp­ ur/ klukku­stund.

vistfræði er það kallað atferlis­ svörun (á ensku funct­ ional re­sponse) hvern­ig rándýr, þ.e. einstak­ ling­ urinn, bregst með breyttri neyslu við Niðurlag stofn­breytingum bráð­ ar. Þessi svör­un skiptir ilgangurinn með þessum skrif­ miklu máli í sambandi um er að kynna merkt framlag við möguleika rán­dýrs­ rann­ ins á því að hafa áhrif á Sigurfinns Jónssonar til rjúpna­ stofnstærð bráðarinnar. sókna og sýna hverju leikmenn geta

T


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

áorkað með öguðum vinnubrögðum og skipulegri skráningu athugana. Á engan hátt ber að líta á þessi skrif sem endan­lega úrvinnslu á gögnum Sigur­ finns. Þessi skoðun gagnanna hefur þó leitt eitt og annað athyglisvert í ljós, m.a. um gildi áhugamannastarfs og um ástand rjúpnastofnsins, nánar um þessi atriði.

veiði­ tölum til embættis veiðistjóra. Annar möguleiki væri að Skot­ veiði­ félag Íslands skipu­ legði slíkt starf með­ al áhugasamra félaga líkt og tíðkaðist hjá félaginu á 9. ára­tugnum. Haust­taln­­ingarnar myndu gefa okkur ítar­legri upp­lýs­ingar en við höfum nú um ástand stofns­ins, sundur­­­liðað eftir lands­­hlut­um, og skrán­ing á átakinu sem liggur að baki veið­inni gæfi afla á agbækur Sigurfinns sýna að sóknar­einingu. með einföldum aðferðum er hægt að afla gagna sem skipta máli við að vekur athygli þegar við skoð­ vöktun rjúpnastofnsins og gagna sem um talningar Sigurfinns hversu lýsa atferlissvörun veiðimannsins. Þús­ rjúpnastofninum virðist hafa hrakað á undir manna ganga til rjúpna haust liðnum áratugum. Samkvæmt þessum hvert og dagsverkin sem þeir skila við talningum og alþjóðlegum viðmið­un­ þessa iðju skipta tugum þús­ unda. um á íslenski rjúpnastofninn heima á Hvernig er hægt að virkja þetta afl í válista sem tegund í yfir­vof­andi hættu þágu rjúpnarannsókna og hver ætti að (á ensku vulnerable). Þetta eru ekki hafa frumkvæði að því? Eins og er einu talningarnar sem benda í þessa skilar hver veiðimaður inn veiðiskýrslu átt, mínar eigin rjúpna­ talningar frá til embættis veiðistjóra og er það vel. Í Norð­ austur­ landi sýna það sama, þ.e. skýrsluna skráir veiði­ mað­ urinn um mark­ tæk 51% fækkun yfir tímabilið rjúpnaveiði aðeins heildarafla skipt 1981-2001, eða að jafnaði um 3,5% á eftir landshlutum. Engar upplýsingar ári. Síðasta stóra rjúpnahámarkið hér á fylgja um veiði­ átakið sem liggur að landi var um miðjan 6. áratug síðustu baki aflanum eða hvað sást af fugli í aldar, þ.e. fyrir um 50 árum síðan. hverri veiðiferð og er það miður. Ég Fáum við, sem nú lifum og ekki mun­ tel óraunhæft að hægt sé að skylda alla um þá tíð, einhvern tíma að upplifa veiðimenn til að taka þátt í slíkri upp­ slíka stund á fjöllum þar sem rjúpna­ lýsingasöfnun en örugglega er hægt að flekk­irnir slá gráma á hæðirnar líkt og fá einhver hund­ruð áhuga­samra mann gert hafi snjóföl í morgunsárið? til þátttöku. Bein­ast lægi við að slík skil tengdust skilum veiði­mannsins á

D

Þ

Þakkarorð

L

ovísa Ásbjörnsdóttir gerði línu­rit­in sem fylgja greininni og kann ég henni bestu þakkir fyrir bæði smekkvísi og fagleg vinnubrögð. Ég vil þakka Sigur­ finni Jónssyni ánægjulega sam­ vinnu. Hann er maður óvanalegrar gerð­­ ar svo ekki sé kveðið fastar að orði. Þrátt fyrir áfall sem nægt hefði til að kné­setja hvern mann þá reis hann upp og þar var rjúpan eitt haldreipa hans. Sigur­ finnur skrifar í athugasemd til mín á eyðublaðið fyrir veiðiárið 1973 „Ekki að marka þetta ár, missti vinstri hendi og framhandlegg, einnig mikið meiddur á vinstra fæti.“ Haustið 1973, hálfu ári eftir slysið, GEKK Sigur­finnur 22 daga til rjúpna!

Heimildir 1 Árni Gunnarsson 1999. Háspenna, lífs­ hætta: Sigurfinnur Jónsson skotveiði­mað­ur. Reykjavík, Mál og mynd, 222 bls. 2 Almanak hins íslenska þjóðvinafélags 1999. 199 bls. 3 Náttúrufræðistofnun Íslands 2000. Vá­listi 2. Fuglar. 103 bls. Ólafur K. Nielsen Náttúrufræðistofnun Íslands P ós t hó l f 5 3 2 0 – 1 2 5 R e y k j a v í k okn@ni.is


Fagrit um skotveiðar og útivist

Þjóðlendur og almannaveiðiréttur Inngangur

Þ

að er kunnara en frá þurfi að segja að lengi hafa staðið deilur og ríkt óvissa um eignarrétt að hálendissvæðum á Íslandi sem m.a. hafa verið kölluð afréttir og al­menn­ ingar eða einfaldlega óbyggðir. Fyrir lá að ýmsir töldu og telja sig eiga þessi landssvæði beinum eignarrétti og svo er auðvitað með réttu í einhverjum ÍVAR PÁLSSON tilvikum. Í nokkrum dómum um slík VARAFORMA‹UR SKOTVÍS svæði hafði hins vegar verið staðreynt að einungis var um beitarafnot að ræða en ekki beinan eignarrétt að landi. legum hætti hvaða land teldist til þjóð­ Jafnframt lá fyrir að til voru svæði á lendna og þar með hver væru mörk hálendinu sem enginn gat sannað þeirra og eignarlanda. eignarrétt sinn á. Höfðu dómstólar slegið því föstu að ríkið væri ekki il að vinna þetta vandasama verk eigandi slíkra svæða. skipaði forsætisráðherra svo­ kallaða Óbyggðanefnd haustið 1998. il að leysa úr óvissu um þessi mál Nefndinni ber að kanna og skera úr um fyrir fullt og allt voru árið 1998 hvaða land telst til þjóðlendna og hver samþykkt lög nr. 58/1998, um þjóð­ séu mörk þeirra og eignarlanda. Einnig lendur og ákvörðun marka eignarlanda, ber henni að skera úr um mörk þess þjóðlendna og afrétta (hér eftir kölluð hluta þjóðlendu sem nýttur er sem þjóðlendulög). Segja má að megin­ til­ afréttur, úrskurða um eignar­ réttindi gangur laganna sé tví­þættur: Í fyrsta lagi innan þjóðlendna auk þess sem henni að slá eign ríkisins á þau landsvæði sem hafa verið falin tiltekin verkefni við að enginn annar get­ ur sannað eignarrétt skipta landinu upp í sveitar­ félög. sinn til. Slík svæði verða samkvæmt Nefndin á að hafa lokið störfum árið lögunum að þjóð­ lend­ um sem svo eru 2007. Í mars sl. kvað nefnd þessi upp nefndar. Í öðru lagi var lögunum ætlað fyrstu úrskurði sína. Í greinar­ stúf að tryggja að ríkið ætti frumkvæði að því þessum er ætlunin að gera stutt­ lega að kanna og skera úr um með skipu­ grein fyrir þýðingu þjóð­ lendu­ laga og

T

T

úrskurðum óbyggða­nefndar fyrir skot­ veiði­menn, hvaða rétt al­menn­ingur mun hafa til skot­ veiða innan þjóð­ lendna og niður­stöðum nefndarinnar í fyrstu úrskurð­um hennar.

Almennt

um veiðirétt

Á

ður en lengra er haldið er ekki úr vegi að rifja stuttlega upp nokkur meginatriði varðandi veiðirétt og eignarhald hans.

V

illt dýr og selir eru eigandalaus verðmæti eða náttúrugæði. Eignarréttur að villtum dýrum sem veidd eru stofnast með svokallaðri töku. Með töku er átt við stofnun eignarréttar sem á sér stað með umráðatöku verðmætis sem þá er ekki eignarrétti háð. Töku villtra dýra og sela köllum við í daglegu tali veiðar. Slík taka er þó ekki öllum heimil því frá upphafi byggðar á Íslandi hefur rétturinn til að veiða spendýr og fugla verið tengdur eignarhaldi á landi. Þannig hefur veiðiréttur verið hluti svokallaðra fasteignarréttinda.

V

eiðirétti hefur því verið mis­jafnt farið eftir því hvernig eignar­ haldi á landi er háttað. Til ein­föld­unar má segja að löndum og svæðum utan þéttbýlisins hafi almennt verið skipt í

Afréttur: Hvers konar land ofan byggðar sem að jafnaði hefur verið notað til sumarbeitar fyrir búfé. Almenningur: Svæði sem sem enginn aðili getur talið til einstaklingseignarréttinda yfir. Með beinum eignarrétti er átt við: Einkarétt tiltekins aðila, eigandans, til þess að ráða yfir tilteknum líkamlegum hlut innan þeirra marka, sem rétti þessum eru sett í lögum og af takmörkuðum (óbeinum) réttindum annarra sem stofnað hefur verið til yfir hlutnum. Þjóðlenda: Landsvæði utan eignarlanda þó að einstaklingar eða lögaðilar kunni að eiga þar einhver takmörkuð eignarréttindi. (1. gr. laga um þjóðlendur.)

17


150.000 krónur

Já, það borgar sig að taka með notuð skothylki, þín og annarra, til byggða á næstu OLÍS-stöð, fyllir út þátttökuseðil sem fer í pott sem dregið verður ú Verðlaunin eru vegleg eða 150.000 krónur í eldsneyti frá OLÍS. Það má segja eldsneyti í 1 ár, það munar um minna. Láttu ekki þitt eftir liggja, taktu byggða og stuðlaðu að því að skotveiðimenn séu virkir í náttúruvernd og séu e


Fagrit um skotveiðar og útivist

þrjá flokka eftir eignar­haldi þeirra, þ.e. jarðir, afrétti og al­menn­inga.

J

arðir (heimalönd jarða/lögbýli) hafa þannig ávallt fallið í flokk eignar­ landa og almenningar í flokk eiganda­lausra svæða. Afréttir hafa hins vegar hvort heldur sem er getað verið eigna­ rlönd eða eigandalaus svæði. Með setningu þjóðlendu­ lag­ anna var flokkun lands eftir eignar­haldi í raun fækkað í tvo þ.e. annars vegar eignar­ lönd og hins vegar þjóð­ lendur, en í þann flokk falla af­ réttir sem enginn

getur sannað eignarrétt sinn til og almenningar.

Á

eignarlandi er landeiganda einum heimilar dýraveiðar og ráðstöfun þeirra. Landeigandi ræður því hvort og þá hverjir stunda veiðar á landi hans skv. 2. mgr. 8. gr. laga um vernd friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Al­ menn­­ ingi eru hins vegar heimilar veiðar „... á afréttum og almenningum utan landareigna (eignarlanda) lög­ býla, enda geti enginn sannað eignar­

rétt sinn til þeirra...“. skv. 1. mgr. 8. gr. sömu laga. Fyrir setningu þjóð­ lendu­ laganna var almenningi því heimilt að veiða á þeim svæðum sem verða að þjóðlendum. Spurning er hvort sá réttur gildi áfram?

Veiðiréttur

í þjóðlendum

H

vorki í lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum (hér eftir kölluð villidýralög) né lögum um þjóðlendur

Veiðiréttur: Réttur ákveðins aðila/ákveðinna aðila til töku villtra dýra á tilteknu svæði/svæðum, með því að handsama þau, drepa eða tína (egg eða fugla), innan þeirra marka sem rétti þessum eru sett í lögum (tillaga höfundar að skilgreiningu). Eignarland: Landsvæði sem er háð einkaeignarrétti þannig að eigandi landsins fer með öll venjuleg eignarráð þess innan þeirra marka sem lög setja á hverjum tíma (1. gr. þjóðlendulaga). Innskot höfundar. Vefsíða Alþingis, althingi.is, Þingfundur 2. maí 1998, 112 löggjafarþing, mál nr. 367.

19


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Í

er fjallað berum orðum um veiðirétt í þjóðlendulögunum er gerður skýr þjóðlendum. Til þess að komast að munur á eignarlandi og þjóð­lend­ niðurstöðu um veiði­réttinn þarf því að um en tekið skal fram að hug­ takið rýna í ákvæði beggja laganna, bera þau landar­eign í villidýra­lögun­um hefur í saman og skýra. raun sömu merkingu og hugtakið eignar­­­land í þjóðlendu­lögun­um. Sam­ þjóðlendulögunum er því m.a. lýst kvæmt villidýralögun­um gildir einka­ yfir að ríkið verði eigandi hvers veiði­réttur land­eig­anda aðeins á konar landsréttinda sem ekki eru háð landar­­eignum/eignarlandi og þ.a.l. einkaeignarrétti innan þjóð­ lendna. ekki á þjóð­ lendum. Að sama skapi Veiðiréttur á villtum fuglum og dýrum gildir almannaveiðiréttur á afréttum fellur í þann flokk og tilheyrir því í og al­menn­ingum utan landar­eigna/­ raun ríkinu skv. lögun­um. Að jafnaði eignar­ landa lögbýla. Þrátt fyrir að þarf að fá leyfi hjá viðkomandi sveitar­ afréttir verði ekki til sem hugtak um stjórn til nýtingar sambærilegra lands­ eignar­hald á landi og því síður al­menn­ réttinda og veiði­ réttar innan þjóð­ ingar þegar Óbyggða­nefnd hefur lokið lendna. Hins vegar er einnig tekið störf­ um, verður með hlið­ sjón af fram að slík leyfi þurfi m.a. ekki varð­ framangreindu að telja að al­ manna­ ­ andi réttindi sem fengin eru öðrum veið­iréttur gildi á þjóð­lendum. Fram­ með lögum. an­­­greint styðst einnig við um­mæli sem forsætisráðherra, Davíð Odds­­­son, lét

Í

falla á Alþingi þegar frum­varp til þjóð­ lendu­ laga var til umræðu þar. Að­ spurður af Krist­ jáni Pálssyni al­ þingis­ mann­ i um veiðirétt á villtum fuglum og villtum spendýrum svaraði hann svo:

„E

ngin ástæða er til að ætla að með frv. sé verið að skerða þær ákvarðanir Alþingis sem liðnar eru hvað þetta varðar eða framtíðar­ möguleika Alþingis hvað þetta varðar eftir að lögin hafa verið sett. Þetta þýðir með öðrum orðum að þeim reglum er nú gilda, þar með lög nr. 64/1994, og ákvæðum sem þar standa er í engu haggað þrátt fyrir þau lög sem við erum að undirbúa samþykkt á um þjóðlendur. Ég tek því undir það með hv. þingmanni að það er misskilningur aðila sem hafa óttast að


Fagrit um skotveiðar og útivist

með lagasetningunni sé verið að gera breytingar hvað það varðar. ...”

Þ

Þýðing

þjóðlendulaga og

ú r s k u r ð a ób y g g ð a n e f n d a r fyrir skotveiðimenn

ar sem réttindi þessi eru fengin almenningi með villidýra­lögun­ ð því gefnu að almanna­ veiði­ um verður jafnframt að slá því föstu rétt­ur gildi á þjóðlendum munu ekki þurfi að sækja um leyfi til við­kom­ úrskurðir Óbyggðanefndar hafa andi sveitarstjórna til skot­ veiða á verulega þýðingu fyrir skotveiðimenn. þjóðlendum. Af öllum þeim dómum sem gengu á 20. öld, um eignarhald á svæðum utan rátt fyrir framangreint er ljóst byggðamarka, var einungis í tveimur að nauðsynlegt er að breyta tilvikum skýrlega fallist á að land væri villi­dýralögunum til þess að gera þetta undirorpið beinum eignarrétti. Lang­ skýrara og til að tryggja rétt al­menn­ líklegast er því að Óbyggðanefnd ings til skotveiða á þjóðlendum. Eðli­ komist að þeirri niðurstöðu að meiri­ legast verður að telja að kveðið verði á hluti lands á hálendi Íslands verði um það berum orðum að almanna­ þjóðlendur þegar nefndin hefur lokið veiðiréttur gildi á þjóðlendum. Því störfum. mun stjórn SKOTVÍS beita sér fyrir á komandi vetri. egar nefndin hefur kveðið upp úrskurði sína mun heldur ekki

A

Þ

Þ

ríkja um það nein óvissa lengur hvar heimilt er að stunda skotveiðar án þess að óska eftir leyfi landeiganda. Hægt verður að skoða það á korti. Þetta er þó með þeim fyrirvara að heimilt er að skjóta úrskurðum nefndarinnar til dóm­ stóla innan sex mánaða frá því niður­ staða hennar hefur verið birt í Lög­birtingablaðinu. Niðurstaða nefndar­ innar er því ekki endanleg fyrr en ljóst er hvort úrskurði hennar verður skotið til dómstóla. Verði úrskurði skotið til dómstóla liggur endanleg niðurstaða ekki fyrir fyrr en að lokinni upp­ kvaðningu héraðsdóms eða eftir atvik­ um hæstaréttardóms, verði niðurstöðu héraðsdóms áfrýjað til Hæstaréttar.

Ú r s k u r ð i r ób y g g ð a n e f n d a r í Á r n e ss ý s l u www.flugfelag.is

Hvort viltu skjótast eða sniglast

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS FLU 18355 07/2002

Á nýju vefsíðunni okkar

flugfelag.is er einfaldara og fljótlegra að bóka flugferð en áður. Taktu fimm lítil skref á netinu og við flytjum þig á áfangastað.

- austur á Hérað Hápunktur skotveiðinnar er tvímælalaust að fara á hreindýraveiðar austur á land. Til hvers að eyða tveimur frídögum í akstur þegar flug tekur innan við klukkustund og er ódýrara?

Fljúgðu frekar!


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Í

mars sl. kvað nefndin upp sína fyrstu úrskurði, sjö talsins. Vörð­ uðu þeir allir landsvæði í uppsveitum Árnessýslu. Úrskurðir þessir eru mjög vandaðir og ítarlegir og ljóst að nefndin hefur lagt í þá mikla vinnu. Í úrskurðunum er kafli sem kallaður er „Almennar niðurstöður Óbyggða­ nefnd­ar“. Þar gerir nefndin grein fyrir almennum athugunum og niður­ stöð­ um sínum um staðreyndir og laga­atriði sem þýðingu hafa við úrlausn málanna. Þessi kafli er í raun hinar almennu forsendur sem úr­skurð­irnir byggjast á og gera má ráð fyrir að úrskurðir nefndarinnar í framtíðinni muni byggjast á. Greinarhöfundur hvetur þá sem áhuga hafa á þessum málum að kynna sér þessa kafla sérstaklega.

H

ér eru ekki tök á því að fara ofan í framangreindar for­ sendur nefndarinnar né einstakar niður­­­ stöður hennar. Almennt má þó segja að úrskurðirnir séu í samræmi við fræðikenningar og dómafordæmi frá síðustu öld er þessi mál varða og eru almennt viðurkennd. Athygli vekur þó að nefndin virðist gefa landa­ merkjabréfum nokkuð meira vægi auk þess sem hún gerir ekki kröfu um að hægt sé að sýna fram á órofa yfirfærslu eignarréttinda lands frá landnámi til dagsins í dag. Rétt þykir einnig að taka fram að nefndin gerir ekki mikið úr fordæmisgildi þeirra dóma, sem gengið hafa í sakamálum vegna meintra ólögmætra fuglaveiða, m.a. þar sem vafi í slíkum málum um eignarhald og landamerki er ávallt túlkaður meintum sakamanni í hag. Ekki er því óhugsandi

Á

að svæði, sem talin hafa verið hugasömum er bent á heima­ eigandalaus á grund­velli slíkra dóma, síðu Óbyggðanefndar. Rétt er verði í meðferð óbyggðanefndar talin að benda á að kort sem sýnir niður­ eignar­lönd. stöður nefndarinnar í Árnessýslu er hægt að skoða á heimasíðu Óbyggða­ samræmi við þetta og eins og búast nefndar obyggdanefnd.is. Á síðunni er mátti við í ljósi fræði­kenn­inga og jafnframt hægt að nálgast upplýsingar eldri dóma, varð það niður­ staða um störf nefndarinnar og þjóðlendu­ Óbyggðanefndar að mestur hluti þess lögin og fylgjast með gangi mála. svæðis sem nefndin fjallaði um í þessum sjö úrskurðum teldist til þjóð­ ð lokum vill undirritaður hvetja lendna (sjá nánar meðfylgjandi kort þá skotveiðimenn sem hyggja á um niðurstöður nefndarinnar varðandi veiðar í uppsveitum Árnessýslu að landssvæði í Árnessýslu). Nefndin kynna sér niðurstöður nefndarinnar og komst þó að þeirri niðurstöðu í veiða ekki á svæðum sem úrskurðuð úrskurði sínum um Biskups­ tungna­ hafa verið sem eignarlönd án leyfis afrétt og efstu lönd í Biskupstungna­ landeiganda. hreppi (mál nr. 4/2000) að víðáttu­ mikið svæði, sem afmarkast í grófum eð ósk um gott veiðitímabil og dráttum af línu dreginni frá Rauðafelli hóflega veiði, til norðaustur í Hagavatn (við rætur Hagafellsjökuls í Langjökli), frá Haga­ Í v a r P á l ss o n , v a r a f o r m a ð u r S KOTV Í S . vatni til suðausturs um Sandvatn niður að Hvítá, væri eignarland (sjá kort). Heimildaskrá:

Í

A

M

Þ

rátt fyrir það gefa þessir fyrstu úrskurðir nefndarinnar tilefni til að ætla að þegar nefndin hefur lokið störfum muni stærsti hluti hálendis­ svæða á Íslandi teljast þjóðlendur. Verði svo, og haldist almanna­ veiði­ réttur til skotveiða innan þjóðlendna, eru þjóðlendulögin líklegast ein mesta réttarbót sem íslenskum skotveiði­ mönn­ um hefur hlotnast. Það verður því spennandi að fylgjast með störfum nefndar­ innar næstu ár og afdrifum þeirra úrskurða hennar sem látið verður reyna á fyrir dómstólum.

Munið vefsíðuna:

www.skotvis.is

Auk laga, heimasíðu Alþingis og Óbyggðanefndar og úrskurða Óbyggða­nefndar studdist greinar­höfundur við eftirtalin rit við samningu greinarinnar: 1. Ívar Pálsson 1998: Skotveiðar (Réttarstaða skotveiðimanna), kandídatsritgerð við lagadeild Háskóla Íslands. 2. Þorgeir Örlygsson 1995: Um eignarhald á landi og náttúruauðlindum, Afmælisrit Gauks Jörundssonar, Reykjavík.


Fagrit um skotveiðar og útivist

Björt framtíð

AUGUN ERU TVÍMÆLALAUST ÞAU SKYNFÆRI SEM VIÐ VILDUM SÍST VERA ÁN OG ÞÁ HVORKI ANNARS NÉ BEGGJA. GETA MENN SÉÐ AFLEIÐINGARNAR FYRIR SÉR EF ÞEIR MISSTU SJÓN Á ÖÐRU EÐA BÁÐUM AUGUM Í DAG. SENNILEGA EKKI TIL FULLS ENDA LENDA FÆSTIR Í ÞVÍ Á UNGA ALDRI AÐ MISSA SJÓN. ÞETTA GERIST ÞÓ ALLTOF OFT A‹ EITTHVERJU MARKI VEGNA SLYSS SEM HEF‹I MÁTT KOMA Í VEG FYRIR ME‹ ÓD†RUM OG AU‹VELDUM HÆTTI.

D

æmið sem ég nefni hér er ykkur til glöggvunnar en er því miður tekið úr raunveruleikanum: Maður einn 56 ára gamall varð fyrir því óláni að verða fyrir hagla­ byssu­ skoti. Skotið kom úr veiðihaglabyssu og höglin sem hann fékk í sig voru blýhögl nr.6, haglastærð sem er senni­ lega í algengustu rjúpnaskotum sem notuð eru hér á landi. Sum höglin fóru í búk mannsins en önnur lentu í andliti hans og þar af lenti eitt haglið í hægra auga. Færið sem skotið var af er talið vera nálægt 80 metrum. Við rann­sókn á auga mannsins kom í ljós að eitt hagl hafði farið í gegn um horn­ himnu og lithimnu augans og stoppað á sjónhimnu augans.

R

annsóknir hafa sýnt að veiði­ hagl númer 6 sem skotið er úr hagla­byssu (hér skiptir ekki máli hvort skotið komi úr cal 12 eða cal 20) getur gatað auga á færi allt að 90 mertum. Flestir augnskaðar í heiminum sem verða vegna haglabyssna verða við það að hagl fer í gegnum augað. Í þessu tilfelli þar sem færið var talið um 80 metrar hafði haglið næga orku til að gata augað en fór ekki í gegn. Hægt var að fjarlægja höglin úr andliti og auga þar sem sár í andliti greru en sjón tapaðist að mestu.

T

il að átta sig aðeins á fjar­ lægðinni í umræddu dæmi, þá er bilið milli ljósastaura á hrað­braut­ um oft um 40 m, þetta þýðir þá tvö

F

staurabil. Á skotvöllum er þessi hætta til staðar og er til að mynda fjarlægðin milli turna á skeet velli aðeins 38,6 metrar. Á skeet skotvelli er hættu­ svæðið 100 m en þar er aðeins skotið með höglum númer 9.

Skotgleraugu – Fáðu meira út úr skotfiminni og skotveiðunum

A

llir skotmenn stefna að sama marki, það er að hitta skot­ markið hvort sem það er leirdúfa eða lifandi bráð. Að hitta betur og njóta æfingarinnar eða veiðanna betur.

F

lestir geta æft skotfimi og byssu­ með­ höndlun betur en hugsa ekki nægjanlega um að hafa réttan búnað til að sjá skotmarkið vel. Með sér­ stökum gleraugum með sérhönn­ uð­um glerjum fyrir skotmenn er hægt að fá alveg nýja sýn í skotfimi og veiðar, ásamt því að öðlast um leið öryggið við að vera með augnvörn.

lestir okkar sem hafa skotið mikið á leirdúfur vita að það er mjög mikilvægt að vera með góð skotgleraugu og einnig með réttan lit á glerjum til að sjá leirdúfuna betur og ná að greina hana eldsnöggt er hún kemur í loftið. Þetta er best gert með rauðleitum glerjum ef dúfan er rauð og glerjum sem hafa litafilter í sér til að auka sjónskerpu og útlínur hluta. Skotdómarar nota einnig slík gler­augu til að geta skorið betur úr um hvort dúfur eru hittar eða ekki. Fullyrða má að allflestir keppnismenn í skotfimi noti skotgleraugu við æf­ ingar og keppni. Ef þeir eru spurðir svara allflestir: til að sjá dúfuna fyrr og betur, en auðvitað ættu allir skotmenn fyrst og fremst að vera með gleraugu vegna öryggis og síðan til að sjá skotmark betur.

Þ

eir okkar sem stundað hafa rjúpnaveiði vita einnig hve erfitt getur verið að sjá fuglinn við vissar aðstæður og geta slík gleraugu þá komið sér mjög vel við veiðarnar. Oft eru aðstæður þannig á veiðum að snjór er yfir öllu eða flikrótt og erfitt getur verið að greina rjúpuna þar sem hún kúrir sig í snjóinn hreyfingarlaus. Við þessar aðstæður eru menn hugsanlega oft að ganga fram hjá fleiri fuglum heldur en þeir sjá yfir daginn. Flestir þekkja sögurnar um menn sem hafa verið á veiðum og ekki séð fugl fyrr en þeir koma aftur í • bílinn, eða þegar menn

23


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

setjast niður til að hvílast eða fá sér kaffi þá birtast allt í einu fuglar allt í kring um þá. Ekki þarf nokkur að ímynda sér að ekki hafi verið fuglar annars staðar allan daginn heldur en við bílinn eða nákvæmlega þar sem menn slöppuðu af til að borða nesti. Ástæð­an er ósköp einföld, menn hafa bara ekki séð fuglana fyrr en þeir fóru að gefa sér betri tíma og fuglarnir jafnvel farið að ókyrrast og hreyfa sig eftir smá tíma. Einnig er gott á gæsaog andaveiðum að geta greint hratt og vel hvort fuglinn sem kemur er bráð eða friðuð tegund. Við svona að­stæð­ ur geta góð gleraugu hjálpað.

E

kki má heldur gleyma örygginu sem gleraugun veita en þau geta auðveldlega bjargað skotmönnum frá augnskaða og blindu. Það á við þar sem menn eru að skjóta á skotsvæði þar sem mikil hætta er á skaða vegna leirdúfubrota, vegna endurkasts hagla og heitra púðuragna hjá þeim sem

nota hálfsjálfvirkar byssur. Einnig er mönnum á veiðum hætt við augn­skaða en þar geta þeir átt á hættu á að fá högl í sig frá öðrum skyttum eða vegna endurkasts frá grjóti og þá sérstaklega þegar verið er að skjóta í kjarri eða þar sem margir eru á sama veiði­ svæðinu, eins og oft vill vera fyrstu dagana á rjúpnaveiðum.

Góð skotgleraugu =Hámarks sjón við allar aðstæður

H

efðbundin sólgleraugu virka oftast þannig að þau dekkja sýn og við það tapast skerpa. Við ákveðnar aðstæður ljóss og skugga verður þá erfitt að sjá útlínur landslags og þess háttar. Skotgler eins og til dæmis X.P.V. (Extreeme pover vision) frá Carl Zeiss og Beretta skotgleraugun auka skerpu og dýptarskerpu og gera þannig aðveldara að sjá leir­dúf­una eða

fuglinn. Skotmenn sem nota þannig gleraugu fá því betri sýn og sjá þannig skotmark, skugga og útlínur greinilegar en með hefð­bundn­­um sólgleraugum. Þetta skiptir miklu máli og þá sérstaklega á skot­vellinum þar sem nákvæmni og hraði við að greina skotmarkið er mikil­vægur.

Betri

og öruggari vörn

S

ýnilegt ljós sem er rafsegul­ bylgja hefur bylgjulengdina 380-760 nm (nanómetrar). Ljós undir 380 nm er svokallað útfjólublátt ljós. (UVA) UVA- 100-280 nm valda hvarmabólgu, snjóblindu og rafsuðublindu. UVB- 280-315 nm valda sólbruna. UVC- 315-380 nm valda lit á húð. Ljós yfir 380 nm er síðan hinir ýmsu litir sem við sjáum.

Er þinn

lífeyrissparnaður

öruggur?

Lífeyrissparnaður ætti að njóta öruggrar og traustrar ávöxtunar, því býður Spv upp á Lífsval 1, reikning sem gefur þér örugga ávöxtun, þar sem sveiflur á verðbréfamörkuðum hafa engin áhrif. Reikningurinn hefur frá stofnun sýnt eina hagstæðustu ávöxtun sem völ er á.

Nafnávöxtun var 15,63% árið 2001 og raunávöxtun var 6,46%. Enginn kostnaður eða þóknun. Hver var raunávöxtunin á þínum sparnaði? Gerðu samanburð! Ekki taka áhættu með viðbótarlífeyrissparnaðinn, komdu til okkar í Spv og fáðu ráðgjöf.

Verið velkomin í afgreiðslustaði okkar í Borgartúni 18, Hraunbæ 119 og Síðumúla 1, eða fáið upplýsingar í síma 5754100 og á heimasíðu Spv, sem er www.spv.is.


00 02 – 01 03


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Hvað

sjáum við?

fram í allri sinni dýrð og smáatriðum. Sum minnka mikinn hluta bláa ljóss­ annast þú við alla þessa grá­ ins, og eru þau oft gul að lit. myglu­ legu skýjuðu daga? En einnig á sólskinsdögum sér maður ver­ etta gerir það m.a. að verkum öld­ ina litlausa. Það er vegna þess að að skotgleraugu eru ekki alltaf sólarljósið inniheldur mikið af bláu ljósi. hentug til notkunar við akstur. Einnig Blái liturinn er svo yfirgnæfandi að hann er óæskilegt að horfa beint í sólina yfirgnæfir alla aðra liti. Hefð­ bund­ in með þeim. sólgleraugu með UV 400 filter úti­loka alla geisla undir 400 nm og þar meðtalda flesta skaðlega geisla og einnig hluta af sýni­ legu ljósi. Bak við dökk glerin stækk­ar sjáaldur augans þannig að blátt ljós 400-480 nm á greiðan aðgang að aug­anu. Rannsóknir NASA, sem staðið hafa yfir í 20 ár, hafa m.a. leitt í ljós að slík geislun veldur einnig skaða í augum, m.a. skemmdum á augnbotni og kölkun í augnlinsum. Rannsóknir þessar hafa einnig leitt í ljós að með hágæða sólglerjum með innbyggðri blárri litsíu síast út þessir skaðlegu geislar og þar með minnkar hættan til muna á þessum Ö r u g g m e ð r i sp u v ö r n augn­skemmd­um. lerin eru flest gerð úr poly­ carbon plastefni (CR-39) sem B l á l i t sí a getur þolað bæði skot úr haglabyssu og 22 cal riffli. Verum samt með það í kotgleraugu eru öll með inn­ huga að þó að glerin séu höggþolin byggðri blárri litsíu (blue geta þau brotnað. Einnig eru glerin blokker) sem minnkar bláa hluta ljóss­ meðhöndluð með Carat húð sem ver ins þannig að hann sé í réttu hlutfalli þau gegn rispum og hindrar truflandi við aðra liti. Þannig sjá menn veiði­ glampa, ásamt því að verða af­ raf­ svæðið í réttu ljósi og litir mögnuð. • ásamt veiðidýrum spretta

K

Þ

G

S

26

Ekki

polaroid

L

jósbylgjur sveiflast bæði lárétt og lóðrétt. Það sem polaroid gler gerir er að útiloka aðra bylgjuna, annað hvort þá láréttu eða þá lóðréttu. Hægt er að sjá þetta með því að setja saman tvö polaroid gleraugu og snúa þeim síðan hægt þá eiga glerin að sía út nánast allt ljós. Polaroid er ekki æskilegt í skotgleraugum þar sem það minnkar bara ljósmagnið sem berst til augans og tekur glampa af flötum eins og vatni en eykur ekki skerpu eða litadýpt. Að sjálfsögðu eru þau öll með 100% UV vörn.

Mörg

gler

O

ft er hægt að kaupa skot­gler­ augu með glerja settum þar sem hægt er að skipta um gler eftir að­ stæð­ um. Er þá eitt gler kanski skerpu­aukandi rautt, eitt gult, eitt grátt eða kanski glært og annað appel­sínu­ gult. Oftast eru höfð þrjú mismunandi gler í settum eða þá að menn kaupa bara eina gerð til að byrja með.

R A

auða glerið er skerpuaukandi og eykur næmi augans til að greina rauða liti. ppelsínulita glerið er skerpuaukandi og eykur næmi augans á að greina appel­ sínugula liti.


Fagrit um skotveiðar og útivist

anda mæld til að þau passi sem best og öðrum óskum um umgjarðir og annað mætt. Verð á gleraugum hjá Hlaði var frá kr. 3.200 en hjá Linsu­hönnun var verðið frá kr. 23.000.

S

kotmenn, bætum skotgleraug­ um í veiðigræjurnar. Þau vernda ykk­ur fyrir skaðlegum geislum sólar­ ula glerið minnkar móðu er skerpu­auk­ innar sem eru sérstaklega sterkir upp andi og skerpir sérstaklega gráa tóna. Einnig eykur það næmi augans fyrir gulum litum. ráa glerið skerpir en dregur mest úr birtu þar sem liturinn í glerjunum dreg­ur úr birtunni. Einnig er hægt að fá ýmsar blöndur af þessum litafilterum og er til dæmis grá-brúnt gler mjög hentugt í mikilli birtu og snjó, og þá er það haft dekkra en önnur gler.

G G

Hvernig

fáum við

gleraugun?

Í

stuttri en óform­legri könn­ un á úr­vali skot­gler­augna í Reykjavík feng­ust skotgleraugu aðeins í einni byssu­verslun, Hlað á Bílds­­ höfða 12 og síð­ an er Linsu­mát­un í Ármúla 20 einn­ig með skot­­gler­­augu. Hjá Hlað á Bílds­höfð­­an­um fást skot­­­gler­­ augu fyr­ ir þá sem þurfa ekki sjón­­gler. Hjá Linsu­­­mátun fást einn­ig sérútbúin skot­­­gler­augu fyrir þá sem þurfa sjóngler með fjar­lægðar­styrk, les­­punkti og marg­skiptu gleri.

Þ

egar Linsumátun gerir skot­gler­augu er reynt að mæta öllum þörfum kaup­and­ ans. Við kaup á þannig glerjum er fjarlægð milli augna kaup­

til fjalla, hugsanlegum að­skota­hlutum svo sem ryki, sandi, höglum og fleira ásamt því að leyfa okkur að sjá nátt­úr­ una í skemmtilegra og skarpara ljósi. Bætum öryggið og vonum að veið­arnar verði ánægjulegri fyrir vikið. Í v a r E r l e n d ss o n , stjórnarmaður í

S KOTV Í S


Skjóttu!

Góður útivistar- og camofatnaður eykur vellíðan og árangur í veiðiferðinni.

ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS UTI 18443 08/2002

59.900

fiekkt merki í skotvei›ivörum: Wetland Brown Camo Express Eley Federal

TILBO‹ 1 Gazelle hálfsjálfvirk 3" me› ól, poka og skotbelti 4 pakkar RIO gæsaskot Hreinsisett og gæsaflauta

TILBO‹ 2 CBS Pumpa 3" Magnum Ól, poki og skotbelti 4 pakkar RIO gæsaskot Hreinsisett og gæsaflauta

49.900

Gervigæsir 11.900

12 stk.

Vel heppnu› vei›ifer› hefst í Útilífi!

Smáralind - Glæsibæ Simi 545 1500 og www.utilif.is


Fagrit um skotveiðar og útivist

Grágæsin óleystar gátur 120.000

100.000

80.000

Fjöldi fugla

NÚ ÞEGAR GÆSAVEIÐITÍMINN HEFST VELTA MENN FYRIR SÉR ÁSTANDI GÆSASTOFNANNA. R A N N S Ó K N I R N Á T T Ú R U­F R Æ Ð I ­ STOFNUNAR ÍSLANDS OG WILDFOWL & WETLANDS TRUST Á GÆSUM UNDANFARIN ÁR HAFA SVARAÐ ÝMSUM SPURN­ I N G U M V A R ЭA N D I G Æ S A­S T O F N ­ ANA EN EINNIG HAFA VAKNAÐ NÝJAR SPURNINGAR SEM BRÝNT ER AÐ FÁIST SVÖR VIÐ.

60.000

40.000

20.000

0 1960

R a n n só k n i r

1965

1970

1975

1980

1985

1990

1995

2000

Ár

Hauststofn

grágæsa á

Bretlandseyjum. Punktarnir sýna talningar en línan er fimm ára Byggt á gögnum frá Wildfowl & Wetland Trust.

hlaupandi meðaltal.

R

annsóknir Náttúru­fræði­stofn­ unar og Wildfowl & Wetlands Trust (WWT) snérust einkum um að fá mat á veiðálag og veiðiþol ís­lensk/ bresku grágæsa- og heiða­ gæsa­ stofnanna. Í því skyni voru merktar á Íslandi um 4.500 gæsir á árunum 1996–2000, samtals 1.274 grágæsir og 3.245 heiðagæsir. Merkingarnar veita upplýsingar um dánartíðni og afkomu gæs­ anna og ferðalög þeirra. Til að meta hlutfall ungfugla í veiði var safn­ að vængjum úr afla frá veiði­mönn­um. Varpárangur var metinn með taln­ing­ um að hausti bæði á Íslandi og á Bret­ lands­eyjum (hlutfall ungfugla í stofni). Þá hefur WWT staðið fyrir árlegum heildar­talingum á grágæs og heiðagæs á Bretlandseyjum síðan á sjötta áratug síðustu aldar. Frá 1995 hefur einnig verið safnað veiðitölum frá öllum íslensk­ um veiðimönnum á vegum Veiði­stjóraembættisins.

T

alningar WWT bentu til að undan­farinn áratug eða svo hafi fækkað um rúm 20% í grágæsa­stofn­ inum (1. mynd). Séu veiðitölur frá 1995-2000 skoðaðar sem hlutfall af heildar­stofni má álykta að þessi fækk­ un hafi líklega stafað af ofveiði. Sam­­ kvæmt talningum og veiði­tölum hefur grágæsarveiðin á Íslandi numið um og yfir 30% af hauststofni og þá er eftir veiðin á Bretlandseyjum. Af þessum sökum var grágæsin sett á Válista Náttúru­fræði­stofnunar Íslands árið 2000. Þessar ályktanir um veiði­ afföll stemma ekki við þá mynd sem fæst með stofnlíkani fyrir ís­ lensk/bresku grá­­ gæsina. Þetta líkan byggir á lífs­ líkum eins og niðurstöður merkinga sýna þær vera (73% að meðaltali yfir árið hjá full­ orðn­ um fuglum og 47% hjá ungum), og á hlutföllum ungfugla í veiði og í stofni. Einhvers staðar hlýt­ur að vera um verulega skekkju að ræða,

annað hvort í þeim forsendum sem líkanið byggir á, í talningum eða í veiði­­skýrslum

Hvar

liggur skekkjan?

S

éu veiðitölur réttar þá ætti grá­ gæsa­ stofninn samkvæmt stofn­ líkan­inu að vera allt að tvisvar sinnum stærri en hann er áætlaður í taln­ing­um. Á hinn bóginn séu talningar réttar þá ætti veiðin að vera helmingi minni en gefið er upp í veiðiskýrslum. Alm­ennt hafa menn talið að veiðitölur sam­kvæmt veiðiskýrslum séu nokkuð ná­kvæmar og allar vísbendingar um heildar­­veiði sem við höfum eftir öðrum leiðum styðja þá ályktun. Þetta eru t.d. tölur um veidda minka og refi sem greitt hefur verið fyrir, og niður­ stöður skoðanakannana SKOTVÍS um hversu mikið • sé borðað af rjúpu á hverju

29


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

ári, sem ber vel saman við uppgefna veiði samvæmt veiði­skýrsl­um. Varð­andi gæsir hafa menn bent á að þar sé mögulega innbyggð hætta á of­taln­ingu vegna eðlis veið­anna. Gæs­a­veiðar stunda menn gjarnan nokkrir saman í hóp og þegar dæmið er síðan gert upp á veiði­skýrslum til em­bættis veiðistjóra þá er hætta á að hver fyrir sig gefi upp heildar­veiði hópsins en ekki • það sem kom í hans hlut. Á

30

móti má hins­vegar benda á að eflaust eru ekki allar gæsir sem veiðast gefnar upp. Á þessu ári gengst Veiði­ stjóra­ embættið í sam­vinnu við undir­ritaðan fyrir skoðana­ könn­ un meðal veiði­ korthafa um ýmislegt er varðar veiðar og þar á meðal að fá úr því skorið hvernig veiðimenn standa að skráningu afla, hversu nákvæm sú skráning sé og hvort líkur séu á því að gæsaveiði sé ofskráð.

U

m gæsatalningarnar er það að segja að fuglafræðingar hjá WWT telja mjög ólíklegt að þeir séu að missa af þeim fjölda gæsa sem út­reikn­­ ingar gefa til kynna (80.000 fuglar!). Hugsanlegt er að um kerfis­ bundna skekkju sé að ræða í talningum og einnig að eitthvað af grágæsum sé utan hefð­ bundinna talningasvæða, s.s. fuglar séu enn á Íslandi þegar talning fer fram í byrjun nóvember, fuglar séu á vetrar­


Fagrit um skotveiðar og útivist

Hvað

er til ráða?

• Veiði: Ekki var lagt til að dregið yrði úr veiði að svo stöddu en bent vað er hægt að gera til að leysa á að veiði­þungi á grágæsa­stofn­inum þessa gátu? Náttúru­fræði­stofn­ væri mikill og mikilvægt að hann un Íslands í samvinnu við Umhverfis­ ykist ekki frekar. ráðu­neytið og WWT boð­aði til fund­ar gæsa­ sér­ fræðinga á Hvann­ eyri í lok kki hefur enn komið ákvörðun september á síðasta ári. Tilgangur frá íslenskum og breskum fundarins var að ræða hvar skekkjan stjórn­­völdum um framhald gæsa­rann­ lægi og hvað mætti gera til að fá betri sókna og hafa þær verið í lágmarki upplýsingar um ástand grágæsa­ stofn­ síðan merkingar hættu árið 2000. sins. Á fundinn mættu vísinda­menn frá Æskilegt er að tafir á að hrinda til­ Íslandi, Dan­mörku, Kanada og Bret­ lögum fundarins í framkvæmd verði landi. Þá sátu fundinn fulltrúar sem minnstar svo ekki myndist stórt Um­hverfis­­ráðu­neyt­is­­ins og Scottish gap í framkvæmd merkinga og mæl­ Natu­ral Heri­tage, sem er stjórn­sýslu­ inga á ungahlutfalli. Rannsóknir NÍ frá stofnun sem fer m.a. með málefni gæsa 1995 til 2001 voru að stórum hluta í Skot­landi. Á fund­inum var farið yfir fjármagnaðar af veiðikortasjóði og falla þau gögn sem fyrir lágu og þau krufin þessar rannsóknir vel að mark­miðum til mergjar og síðan komið með hans. Það eru hagsmunir skot­ tillögur til stjórnvalda á Íslandi og veiðimanna að þessar rannsóknir haldi Bret­ landi um áframhaldandi rann­ áfram og verði bættar til að svör fáist sóknir og aðgerðir. Þessar tillögur eru um ástand grágæsastofnsins. helstar: meðan óvissa ríkir um raun­ • Talningar: Taka upp talningar á veru­legt ástand grágæsa­stofn­ Ís­landi að vori og hausti (ágúst) og sins verða veiðimenn að sýna hóf. Þó sam­ræma talningar í báðum lönd­ stofninn geti mögulega verið stærri en um, meta hvort bæta megi haust­ hingað til hefur verið talið þá sýna talningar á Bretlandseyjum talningar að hann fer minnkandi (1. • Aldurhlutföll: Staðla aðferðir við mat mynd). Í þessum málum er því rétt að á hlutfalli unga og tryggja betri láta grágæsina njóta vafans. Veiðitölur dreif­ ingu á athugunarsvæðum á benda reyndar til að heldur sé að draga Bretlandi, að auka mælingar á úr grágæsaveiði hér á landi hvort sem aldurs­­ hlutföllum á Íslandi (gert í það stafar af því að veiði­ menn eru ágúst), halda áfram með aldurs­ farnir að sýna meira hóf eða þá vegna grein­ingar úr gæsaveiði á Íslandi og þess að stofninn er að minnka. hefja slíkt starf á Bretlandseyjum. • Merkingar: Halda áfram merking­um Dr. Arnór Þórir Sigfússon á gæsum, bæði á Íslandi og á Bret­­ Heimild: Morten Frederiksen og Arnór Þórir lands­ eyjum, slíkar merkingar eru Sigfússon 2001. mikilvægt eftirlitstæki til að fylgjast með breytingum í stofn­ vist­ fræði Goose Research at Icelandic Institute of Natural History. Summary Report to the Minstry for the bæði grágæsar og heiða­gæsar. Environment. Skýrslur Náttúrufræðistofnunar Íslands • Veiðiskýrslur: Halda áfram að safna 02-001. veiðitölum á Íslandi og að safna upp­lýsingum um veiði á Bretlands­ • eyjum.

H

E

Á

G r á g æ s á v a t n sb a k k a . ( L j ós m y n d J óh a n n Ó l i H i l m a r ss o n )

stöðvum í Noregi, eða dvelji í Færeyjum á farleiðinni til Bretlands­ eyja. Einnig hefur orðið vart breytinga á vetrarútbreiðslu grágæsa í Skotlandi, m.a. hafa gæsir aukist á Orkneyjum og slík breyting gæti valdið skekkju. Að auki dvelur hluti grágæsastofnsins á Írlandi og þar hefur ekki verið staðið jafn vel að talningum og á Bretlandi. En þó allt sé tekið með er ótrúlegt að þessi svæði skili þeim 80.000 gæs­um sem vantar.

31


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

„Gormaðurinn“ „H

reindýraveiðar“. Bara orðið eitt og sér er í huga margra skotveiðimanna ávísun á ævintýri. Þegar ég hóf störf á frystitogaranum Rán HF 42 frá Hafnarfirði í nóvember árið 1996 hafði ég ekki mikið leitt hugann að slíkum veiðum utan að fara eitt skipti sem leyfiseigandi en ekki veiðimaður. Er skemmst frá því að segja að ég ætlaði aldrei aftur á hreindýraveiðar. En jæja, á umræddu skipi reyndust vera nokkrir áhuga­menn um skotveiði sem líkt og ég fóru til rjúpna og stunduðu aðrar fugla­veiðar. Sameinaðist hópurinn í skot­ veiðifélaginu Draumi sem skyldi beita H a n n e s Þ o r s t e i n ss o n , Þ ó r ð u r L á r u ss o n o g L ý ð u r Á s g e i r ss o n “ g o r m a ð u r i n n ” . sér fyrir betri hittni og meiri fjöl­ Búið að skjóta fyrsta dýrið og bera það 1 kílómetra. breytni í veiðum. Í ágúst 2001 var svo farið í fyrstu veiðiferðina á hreindýr. F ö s t u d a g u r i n n r a n n u pp Jónas Bjarki auga á eitt hreindýr á Voru þar á ferð Hans Þorsteinsson, bjartur og fagur löngu færi og sem dæmi sá enginn Hafnarfirði, Reming­ton 7mm-08 með okkar hinna dýrið með öllum okkar tarfaleyfi á svæði 7 og beljuleyfi á svæði östudagurinn rann upp bjartur sjón­aukum fyrr en eftir langa mæðu. 6, Einar Lárusson, Kópavogi, Sako 6,5 og fagur og var farið af stað Þetta dýr skyldi fellt ef færi fengist. X 55, með beljuleyfi á svæði 7, Þórður klukk­an 3:40 og keyrt sem leið lá inn Hans og Jónas Bjarki fóru af stað og Lárusson, Hafnarfirði, Sako 6,5 X 55, Breiðdal yfir Breiðdalsheiði og inn við hinir horfðum á í sjón­aukum okkar. með beljuleyfi á svæði 7, Lýður Öxi, sem er fjallvegur á milli Skriðdals Var spenningurinn orð­ inn mikill að Ásgeirsson, Vestmanneyjum, „gor­ ­ og Berufjarðar. Þar var stoppað og fella fyrsta dýrið. Fylgd­umst við með Mynd Haukur Snorrason maður“ og að lokum undirritaður, farið að kíkja í allar áttir sem og að þeim félögum mjaka sér í færi. En Stefán Höskuldsson, Breiðdalsvík, hleypa úr dekkjum, en þarna eru slóðar eitthvað var þetta skrýtið dýr því færið 7mm Remington Magnum, með 2 ekki fljótfarnir. Engin dýr sáust þarna var komið niður í ca. 30 metra er Hans belju­leyfi á svæði 6 og 7. Allir vorum og var ákveðið að halda áfram inn að skaut og felldi dýrið með hausskoti. við að fara á hreindýraveiðar í fyrsta skála sem nefnist Bjarnarhýði þar sem Reyndist það vera belja sem við nánari skipti. Fimmtu­ daginn 16. ágúst fyrirhugað var að gista í um nóttina ef skoðun reyndist ca. 12-15 vetra og var söfnuðust menn saman á ættaróðali þurfa þætti. Eftir rólega ferð þangað, þar komin skýring á hinu stutta færi, mínu að Gljúfraborg í Breiðdalsvík og þó alltaf verið að stoppa og kíkja en án „amma gamla“ var bæði sjón- og lagt var af stað snemma næsta morgun. árangurs, var beygt í NA og keyrt heyrnarlaus. Leiðsögumaður var Jónas Bjarki meðfram Hornbrynju. Þar sást fyrsta Björnsson frá Breiðdalsvík sem einnig dýrið en það var vetur­ gamall tarfur lagði til færleik í líki Land Cruiser 38” sem lá og sleikti sól­ skinið. Ekki var E f t i r d a u ð a „ ö m m u g ö m l u “ breyttum og var einnig farið á 44” það fengur því ekki má skjóta breyttum Chevrolet bíl mínum. veturgamla tarfa, svo við héldum áfram meðan „amma gam­la“ var skot­ og paufuðumst til enda svæðisins þar in birtist í fjarska hópur hrein­ sem áð var og drukkið kaffi. Með dýra sem færðu sig í áttina til okkar. • einhverjum ótrúlegum hætti kom Amma gamla var sett í kælingu og svo

F

Á

32


Fagrit um skotveiðar og útivist

Hannes

fær sér bita af nýrri lifur.

var lagt af stað á móts við hópinn sem reyndist stækka eftir því sem á leið og virtist þarna nóg fyrir alla. Spenn­ing­ ur­inn magnaðist og maginn fór í hnút við tilhugsunina um fyrsta dýrið. Eftir nokkur hundr­ uð metra göngu, hálf­ bogn­ir og í hvarfi, gengum við í flasið á 7 törfum sem stóðu á bak við hól. Var það glæsileg sýn þar sem þetta voru fallegir tarfar, en einn bar þó af og var hann mjög tignarlegur. Hans var með tarfaleyfi og fóru hann og Jónas Bjarki því á eftir hópnum, dýrin gengu beint að bílunum en tóku síðan á rás svo ekki varð við neitt ráðið. Skemmst er frá því að segja að þau sáust ekki meir. Þegar Hans og Jónas komu til baka sáust um 150 dýr og nú var bara að velja hóp sem gott var að komast að. Ákveðin var röð á skyttum og var Þórður fyrstur, síðan Hans, þá Einar og loks ég. Gerðust nú hlutirnir hratt en u.þ.b. 2 tímum seinna var búið


Landsfélag um skynsamlega skotveiði að skjóta 4 beljur og hlaupa 20 km sem vóg 42 kíló og var færið u.þ.b. 100 áðurnefnda mis­ heppnaða skot var ég

(smá ýkjur kannski). „Adrenalín­kikkið“ eftir svona hasar er ótrúlegt og tekur maður ekki eftir þó að suði fyrir eyrum, blóðbragð sé í munni og staðið sé á öndinni samfleytt í 2 tíma. Öll voru dýrin hausskotin og féllu í fyrsta skoti. Afrakstur og færi voru eftir­ farandi. Þórður 38 kílóa belja, 80 metra færi. Hans 39 kílóa belja, 70 metra færi, Einar 41 kílóa belja, 100 metra færi. Ég hitti ekki en • Jónas Bjarki skaut beljuna

34

metrar. Ástæða þess að ég hitti ekki tel ég vera að eftir öll hlaupin og eftir­ vænt­inguna var ég farinn að skjálfa svo af þreyttu og stressi svo ég gaf mér ekki tíma til að vanda mig. Til gamans má geta að 5 dögum seinna var ég á veiðum upp á svæði 2 og skaut þá mitt fyrsta hrein­dýr, en það var tarfur sem var skotin á 200 metra færi í hausinn. Þá hafði ég nógan tíma og gat vandað mig. Var það nokkuð ánægð­ur náungi sem blóðgaði það dýr því eftir hið

fullur efa­semda um sjálfan mig og mitt vopn!

E

ftir að búið er að skjóta dýrin hefst vinnan fyrir alvöru. Það þarf að gera að dýrunum, taka hausinn af, koma öllu í næsta læk og láta fljóta vel yfir til kælingar og geymslu. Í okkar tilfelli var einnig um að ræða þá skyldu veiðimannsins að smakka á lifr­inni úr fyrsta dýrinu sem hann fellir. Hans hafði afgreitt það fyrr um daginn við


Fagrit um skotveiðar og útivist

Hannes

og

Stefán

með góða veiði,

3

tarfa.

„ömmu gömlu“. Einar skellti í sig bita en þá var Þórði nóg boðið og velti sinni lifur upp úr gorinu og harð­neit­aði að bíta í eftir það. Þar sem ég skaut ekkert dýr í þetta skiptið varð það að bíða betri tíma, en ég skal viðurkenna að ég sveikst um við fyrsta dýrið mitt.

Tjaldað

Þ

v i ð bí l a n a

egar öllu þessu var lokið var komið myrkur og orðið of seint

að fara í skálann Bjarnarhýði, því var brugðið á það ráð að tjalda við bílana. Í hávaða roki sem komið var voru reist tjöld í litlu skjóli af bílunum og kveikt var upp í grilli sem gekk nú ekki allt of vel, en hafðist þó. Var snædd­ur lang­ þráður kvöldverður um mið­nættið og skálað í koníaks­ staupi að af­ lokn­ um kvöld­verði að veiði­manna(ó)sið. Var að því loknu skriðið í pokana og reynt að sofa en gekk það brösuglega vegna roksins, þó var gormaðurinn það skyn­ samur að taka pelann með sér í pok­ann og svaf hann vel þessa nótt. Klukkan 6:00 var farið aftur af stað og átti að athuga með kálfana undan beljun­um. Mér fróðari menn segja að ef belja með kálf er felld fari kálfarnir á mikið víðavangshlaup í leit að móður sinni en leiti svo til baka til þess staðar er þeir sáu hana síðast, finni þá gjarn­an vömbina og eiga þá til að liggja við hana þar til þeir veslast upp og drep­ ast. Því er ætlast til að fella kálf­ ana með beljunum. Veiðimenn sitja því yfir vömbinni og bíða eftir „lille bö“, en í sumum tilfellum geta menn fellt kálfinn um leið og beljuna. Ekki náð­ ust neinir kálfar en einn sást á harða spretti og var það eina lífið þennan morgun. Var þá farið að safna saman skrokkunum sem voru í kæl­ingu. Að því loknu var farið til baka til að leita suðaustan við Hornbrynju. Var stopp­ að í Bjarnarhýði og öfundar­ augum litið á kojurnar sem hefðu verið betri kostur en tjaldið. Hvað um það, á fjöllum gerast ævintýrin og þessi ferð var á góðri leið með að verða mikið ævintýri. Enn voru eftir tvö leyfi og var því haldið áfram. Veður fór versn­ andi, rigndi og stefndi í þoku en við ætluðum að leita meðan færi gæfist. Ekki var heppnin með okkur, við fundum dýr 3 km frá skálanum. Voru það bæði tarfar og beljur, u.þ.b. 15 dýr. Hans átti tarfinn sinn eftir og ég belju. Gerðum við okkur klára og fórum af

stað í mígandi rigningu, eitthvað annað en sólin daginn áður. Komumst við í færi, svolítið í lengra lagi en vel innan marka, eða u.þ.b. 150 metrar. Fallegur tarfur blasti við og gerði Hans sig kláran til að skjóta. Ekki vildi hann detta í fyrsta skoti og varð að eyða tveimur kúlum á hann. Það er stórmerkilegt hvað þessi dýr þola því fyrra skotið var í hausinn sem var eins og grautarpottur á eftir, en seinna skotið var í hálsinn og í mæn­una sem var alveg nóg. Var þetta fall­egur tarfur sem vóg 87 kg. Hlupum ég og Jónas Bjarki af stað á eftir hópnum, en greinilega ekki nógu hratt því þau hurfu út í þokuna og sáust ekki meir.

Heim

á leið

V

eðrið hamlaði nú frekari veiðum svo farið var heim á leið. Beið okkar ærin vinna við að flá og vinna dýrin, en alls vorum við með 5 dýr auk „ömmu gömlu“ sem var farið með í Hreindýraráð. Heim á óðalið var komið á réttum tíma í kvöldmat og var farið í fláningu, vigtun og að ganga frá kjötinu strax eftir matinn. Var öllu lokið um klukkan 2:00 um nóttina. Voru þá tæpir tveir sólahringar farnir í þessa ferð. Að lokum vil ég nefna að þáttur Lýðs „gormanns“ fór fyrir ofan garð og neðan þar sem hann slapp alveg við þá vinnu, en hann fær eitt tækifæri enn og ætlar að koma með næst og verður þá væntanlega kominn með leyfi. Til útskýringar skal nefnt að gormaður er sá sem blóðgar og tekur innan úr dýrunum. Að lokum vil ég segja að þetta er hræðilega erfitt, of­ boðs­ lega mæðandi, agalegar vökur en ógeðslega gaman og í einu orði sagt ÓGLEYMAN­LEGT ÆVINT†RI. S t e f á n H ö s k u l d ss o n

35


Við erum að

Smiðs­höfða 1 ★ Bílaryð­vörn ★ Und­ir­þvott­ur ★ Mót­or­þvott­ur

V ö n d ­u ð v i n n a – s a m a l á g a v e r ð i­ ð

Ryð­vörn Þórð­ar

Smiðs­höfða 1 – 112 Reykja­vík – Sími 567 1020 – Fax 587 2550


Fagrit um skotveiðar og útivist

Skaut kött á flugi Spjallað

við skáldið, veiðimanninn og

s k ó g a r bó n d a n n

Þeir

bræður

H á k o n A ð a l s t e i n ss o n .

Aðalsteinn

og

Hákon

á hreindýraveiðum,

Willys

M

argir hreindýraveiðimenn hafa hitt eða kannast við Hákon Aðalsteinsson hreindýraleiðsögumann. Ritari þessara lína hefur undanfarin ár notið leiðsagnar Hákons við veiðar. Hákon og eiginkona hans Sigrún Vilborg Benediktsdóttir búa á Húsum í Fljótsdal. Enginn er svikinn af því að njóta gestrisni þeirra hjóna og leið­ sagnar Hákons um heið­arnar. Það er

mikil líf­ reynsla að stunda hrein­ dýra­ veiðar með Hákoni því hann þekkir fjöllin eins og buxnavasana sína, og stundum virðist hann meira að segja hugsa eins og hreindýr. Hákon hefur frá mörgu skemmti­legu að segja, sögur af áhuga­verðu fólki, veiði­ferð­um, náttúrunni og svo auðvitað fær maður að heyra svona eins og eina vísu hér og þar. Hákon er fæddur og upp­alinn á

Aðalsteinn. 1955 eða 1956.

bifreiðina átti faðir þeirra

Myndin

er líklega tekin

Vað­ brekku í Hrafnkelsdal. Hann kynnt­ ist því snemma hrein­ dýrum og eins og margir ungir menn til sveita fór hann ungur að árum að stunda veiðar. Gefum Hákoni orðið.

„É

g og Aðalsteinn bróðir minn fórum snemma að ganga til rjúpna. Ég fékk forláta Win­ • chester 22 riffil í

37


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Hákon

fermingargjöf og veiddum við oft æði vel af rjúpunni. Þetta var allt nýtt heima, við seldum aldrei fugl. Það var um að gera að nýta skotin nógu vel, kappkefli var hvað við gátum náð mörgum rjúpum úr 50 skota pakka. Mest náði ég 47 rjúpum. Við höfðum þá aðferð að skjóta alltaf efstu rjúpuna fyrst. Það var ótrúlegt hvað við náðum mörgum með þessu móti. Einu sinni skaut ég rjúpu sem var efst í hópnum. Hún rúllaði í gegnum hópinn og á leiðinni rakst hún á aðra rjúpu. Sú rjúpa brást ókvæða við og hjó í hana um leið og hún rúllaði fram hjá, henni þótti þetta víst vera óþarfa átroðn­ ingur. Þegar ég flutti að heiman varð þessi riffill eftir á Vaðbrekku. Ein­hvern veginn fór það nú svo að hann týndist en mér lék forvitni á að vita hvað í ósköpunum hefði orðið af • honum og var svona af og

38

að gera að hreindýri á hlaðinu á

H ús u m

í

F l j ó t s d a l . ( m y n d Ó l a f u r “ s t e r k i ” S i g u r g e i r ss o n ) .

til að spyrjast fyrir um hann. Fyrir einhverja til­viljun frétti ég af miklum byssu­ safn­ ara á Ólafsfirði. Einhvern tíma þegar ég var staddur þar fór ég í heimsókn til þess ágæta manns. Hann tók mér ljúfmannlega og leyfði mér að skoða safnið sitt. Þarna voru margir rifflar og nokkrir Win­chester 22. Ég kom þó fljótt auga á gamla riffilinn minn því hann hafði ýmis sérkenni, t.d. skrúfu á fram­ skeft­ inu. Ég þorði ekki að biðja byssu­safn­ar­ann um að fá að kaupa riffilinn en eftir að hafa skoðað hann í dágóða stund lagði ég riffilinn frá mér og þakkaði fyrir mig og kvaddi. Þá segir byssu­ safnarinn: „Hvað er þetta, ætlar þú ekki að taka riffilinn með þér?“. „Hvað viltu fá fyrir hann“, spurði ég þá. „Taktu hann bara“, sagði safn­arinn, „ég veit hvernig það er að hafa upp á byssu sem maður er búinn að leita lengi að“. Mér hefur

verið einstaklega hlýtt til þessa manns æ síðan“. En ekki hafið þið skotið hreindýr með þessum riffli?

„S

kömmu eftir að ég eignaðist riffilinn fórum við að kaupa extra long skot og upp úr því fórum við að skjóta hreindýr. En auðvitað varð færið að vera gott og maður varð að gjöra svo vel að hitta vel. Það særðist aldrei dýr hjá mér þrátt fyrir að ég væri með caliber 22. Það má eiginlega segja að hreindýrin hafi verið við bæjardyrnar hjá okkur. Það tíðk­aðist á vorin eða í júní að skjóta eitt hrein­ dýr. Hreindýrakjötið var kær­ komið nýmeti eftir veturinn. Móðir mín sauð hreindýrakjötið niður í glerkrukkur og það var svo notað eftir hendinni, enda mikið lostæti. Við


Fagrit um skotveiðar og útivist

strák­arnir töluðum mikið um hreindýr og hreindýraveiðar. Meðal skemmti­ legra kvista sem komu í heimsókn að Vað­brekku var Guðmundur Þor­steins­ son frá Lundi. Hann var Vopn­ ­ firð­ ingur í húð og hár en kenndi sig við Lund í Lundarreykjadal en hann hafði verið ráðsmaður hjá ekkjunni sem þar bjó. Einhverju sinni var Guðmundur í heimsókn hjá okkur og var þá verið að segja veiðisögur. Aalsteinn bróðir var

að segja frá því hvernig dýrin hefðu verið skotin á löngu færi og steypst steindauð til jarðar. Guð­ mundur hlust­­aði á söguna með athygli en gat svo ekki haldið aftur af sér og greip frammi í fyrir Aðalasteini og sagði: „Ég get sagt þér eitt Aðalsteinn að ég á riffil og hann er bæði hrað­skeyttur, beinskeyttur og lang­ skeytt­ ur“. Eftir þessa yfirlýsingu setti menn hljóða og við hættum að segja veiði­ sögur. Við

höfðum hitt algjöran ofjarl okkar“. Nú er búið að breyta skipulagi hrein­ dýraveiðanna, leyfin eru nú seld á frjálsum markaði. Hver er skoðun þín á þessum breytingum?

„A

ð mér skilst stendur víst til að leggja núverandi Hrein­ dýraráð nið­ ur þannig að við vitum enn ekki hver verður lokaútkoman.


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Ég verð þó að segja að skipulags­ breyt­ ingar­ nar á veiðunum voru til mikilla bóta því gamla fyrir­komulagið var alls ekki gott“. Nú hafa verið töluverðar deilur um arðgreiðslur til bænda vegna tjóns sem hreindýrin valda á gróðri í löndum þeirra?

„Þ

að sem skiptir höfuðmáli í þessum efnum er að regl­ urnar séu skýrar og auðvelt sé að fara eftir þeim. Það má segja að það sé eðlilegt að bændur fái greitt fyrir hverja plöntu sem hreindýrin eyði­ leggja. Sjaldnast er þetta þó mikið tjón sem betur fer. Ég tel því að það sé ekki mikill skaði þó hreindýrahjörð skemmi kannski 100 trjáplöntur af 100.000. Hvað varðar annað tjón af völdum hreindýra þá eyðileggja dýrin t.d. ekki girðingar, það er snjórinn sem sér um það. Annars er þetta tíma­ bundið vandamál á meðan trén eru að vaxa. Þegar þau hafa náð ákveðinni hæð er þetta vandamál úr sögunni“.

Hákon

og eiginkona hans

fyrir og helltu bjórnum niður og tóku Hreindýr vopn sín og fóru á veiðislóð. Þetta Uppi í grónum faðmi fjalla voru menn að mínu skapi“. ferskur blærinn strýkur hjalla. Endurspegla ótal lindir Hvaða caliber telur þú Hákon að sé öræfanna kynjamyndir. heppi­legast að nota við hrein­dýra­ Stoltur hreinninn stendur vörð veiðar? um stóra hjörð.

„M

Hvernig kanntu nú við þessa veiði­ innsta leyfilega caliberið er menn sem þú ert að aðstoða við 243 og er það í sjálfu sér veið­arnar? ágætis stærð. Menn verða að vanda sig og skjóta ekki af of löngu færi. Þá eru etta eru nánast undan­ tekn­ margir með caliber 308. Mestu máli ingar­ laust ljómandi veiði­ skiptir þó að nota réttu kúlurnar. Það menn og mikið til sömu mennirnir er mikilvægt að skjóta ekki í gegnum sem koma til mín. Ég verð að segja dýrið og skemma kjötið óþarflega það að þessir menn taka veiðarnar mikið. 6,5 x 55 er t.d. mjög gott caliber mjög alvarlega og koma þeir iðulega til hreindýraveiða“. vel undirbúnir til leiks. Ég get sagt þér sem dæmi að oft tíðkast að fá sér bjór Kemur andinn ekki iðulega yfir að loknum veiðidegi. Einu sinni var ég skáldið þegar það er á heiðum uppi með veiðimenn uppi á heiði og við og hreindýrahjarðirnar liðast um vorum að búa okkur til heimferðar. hagana? Karl­arnir voru búnir að taka tappana af bjórflöskunum og ætluðu að gæða ú, því get ég ekki neitað. sér á veigunum en þá sáum við allt í Þetta ljóð orti ég t.d. að mig einu hrein­dýra­hjörð. minnir árið 2000“. • Karlarnir gerðu sér lítið

„Þ

„J

40

Sigrún Vilborg Benediktsdóttir.

Við háa kletta, hyldjúp síki heiðarlandsins konungsríki. Reikar frjáls um fjallasali fögur hjörð um eyðidali. Gengur létt um grænan svörð og gróna jörð. Hákon, þú myndir líklegast vera eini Íslendingurinn sem hefur skotið kött á flugi?

„J

á, það er nú aldeilis saga að segja frá því. Þetta hefur lík­ lega verið einhvern tíma upp úr 1968 en ég var í lögreglunni á Egils­stöðum á þessum árum. Starfsfólk Flugfélags Íslands hafði kvartað við okkur um grimman og illvígan kött, nánar tiltekið fress, sem hafði hreiðrað um sig í vörugeymslu flugfélagsins. Ég


Fagrit um skotveiðar og útivist

hafði gert nokkrar tilraunir til að ná í þennan kattarstegg en án árangurs. Eitt skiptið komst ég í sæmilegt færi við fressið en hann hafði komið sér fyrir í röri á gafli hússins. Um leið og ég ætlaði að taka í gikkinn tók hann undir sig mikið stökk og fór á mikilli ferð í boga í loftinu. Ég hæfði hann og hann steindrapst en tvö högl fóru hins vegar í brettið á bílnum“. Nú varst þú Hákon áberandi í bar­ áttunni fyrir verndun Eyjabakka. Hvers vegna var þetta mál þér svo hugleikið?

„Þ

að má segja að ég sé fæddur og uppalinn þarna á öræfun­ um. Ég gat hreinlega ekki hugsað mér að sjá þetta allt saman eyðilagt. Sú hugs­un var mér hreint út sagt óbærileg því ég hef átt svo margar ógleyman­ legar stundir þarna við rætur Snæ­fells“. Hvað viltu segja um Um­hverfis­ráðherra?

úrskurð

„E

„Þ

„É

Þ

ins og mál voru komin tel ég að með úrskurði sínum hafi ráðherrann komið mjög á móts við óskir okkar verndunarsinna, þannig að ég get ekki annað en verið ánægður“.

að er ekkert vandamál, það má bara breyta lögunum, ríkis­stjórnin er vön því. Þeir þurfa hvort sem er að breyta þeim. Ég veit ekki betur en að Kringilsárranninn sé frið­ aður. Það þarf því að aflétta þeirri friðun ef þarna á að byggja raforkuver og í Nú eru hugmyndir uppi um að leiðinni má þá breyta lögunum um stofna þjóðgarð norðan Vatna­ jök­ þjóð­garða og leyfa veiðar í fyrir­hug­uð­ uls. Hvernig líst þér á þær fyrir­ um þjóðgarði norðan Vatna­jökuls“. ætlanir? egar þetta blað var um það bil g er bara nokkuð sáttur við að koma út hófust hrein­ dýra­ þær hugmyndir. Ég get hins veiðar. Við félagar erum á leið austur vegar ómögulega séð hvernig hægt er að hitta Hákon. Við hlökkum óstjórn­ að sameina það að stofna þjóðgarð og lega til því fátt er yndislegra en að hafa risastórar stíflur og raforkuver í stunda hreindýraveiðar á íslenskum honum miðjum. Ég verð að segja það öræfum. Einhvern veginn hefur maður alveg eins og er að mér er það með það á tilfinningunni að maður sé þátt­ öllu óskiljanlegt“. takandi í náttúrunni – ekki áhorfandi. Þá eru það mikil forréttindi að njóta En ef stofnaður verður þjóðgarður leiðsagnar Hákons, fræðast um landið, norðan Vatnajökuls þá verða veiðar söguna og auðvitað hreindýrin. Það er væntanlega bannaðar á því svæði nefnilega þannig að Hákon Aðal­ sem nú er verið að veiða hreindýr á, steinsson er ekki gestur á öræfum eða hvað? Austur­lands – hann er hluti þeirra.


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Úr féla

FÉLAGSLÍF OG STARFSEMI SKOTVÍS HEFUR VERIÐ LÍFLEG AÐ VANDA UNDANFARNA MÁNUÐI. VIÐ GEFUM OKKAR SEM ÞÚ HEFUR NÚ Í HÖNDUNUM LESANDI GÓÐUR. HALDNIR VORU 8 FRÆÐSLUFUNDIR EÐA UPPÁKOMUR VILLIBRÁÐ Á BORÐUM OG SKEMMTU MENN SÉR HIÐ BESTA. E i n a r K r . H a r a l d ss o n

varaformaður

Glaðir

g e s t i r á u pps k e r u h á t í ð ,

Guðni Freyr, Örn

og

Stína.

Meðal

Íslandsmeistari

árið

2002

var

tekur hér við verðlaunum úr

og

S ó l m u n d u r E i n a r ss o n

og formaður

S KOTV Í S S i g m a r B . H a u k ss o n .

Í s l a n d s ­m e i s t a r a m ó t Kjartan Ingi Lorange sem h e n d i f o r m a n n s S KOTV Í S .

þ e ss s e m v a r g e r t á u pps k e r u h á t í ð i n n i v a r

í gæsakalli.

Hjónin Astrid

byggingatæknifræðingur.

Dúi Landmark

k v i k m y n d a g e r ð a r m a ð u r e r a ð v i n n a a ð s j ó n v a r ps ­

þáttum um skotveiðar.

M e ð a l þ á t t t a k e n d a e r u S i g m a r B . H a u k ss o n o g Í v a r E r l e n d ss o n s t j ó r n a r m a ð u r í S KOTV Í S .

Í mars sæmdi

Bjarnason

42

gullmerki félagsins.

F o r m a ð u r S KOTV Í S S i g m a r B . H a u k ss o n , h i n n n ý k j ö r n i v a r a f o r m a ð u r Í v a r P á l ss o n l ö g f r æ ð i n g u r o g f r á f a r a n d i

Siv Friðleifsdóttir

Við það tilefni var einnig dregið úr þátttökuseðlum „L á t t u e k k i þ i t t e f t i r l i g g j a “. Þ e i r h e pp n u v o r u Á r n i T h e o d ó r M a g n úss o n o g f e n g u þ e i r 75.000 h v o r f y r i r a ð

vegna átaksins

Tryggvason

og

Guðmund D r . A r n ó r Þ ó r i S i g f úss o n

umhverfisráðherra þá

fyrrverandi umhverfisráðherra og


Fagrit um skotveiðar og útivist

gslífinu ÚT UM 7 FRÉTTABRÉF Á ÁRI HVERJU OG SVO MÁ EKKI GLEYMA SKRAUTFJÖÐRINNI, BLAÐINU UPPSKERUHÁTÍÐ FÉLAGSINS VAR HALDIN Í ÁSGARÐI 2. MARS Á ÞESSU ÁRI. ÞAR VAR VITASKULD

R.

skila notuðum skothylkjum. f y r r v e r a n d i m a r k a ð ss t j ó r a

Hér eru þeir félagar ásamt Thomasi Möller OLÍS, S i v F r i ð l e i f s d ó t t i r u m h v e r f i s r á ð h e r r a o g S i g m a r B. H a u k ss o n f o r m a ð u r SKOTVÍS.

Í m a í m á n u ð i h e i m só t t u f é l a g s m e n n

Gafst

P á l R e y n i ss o n

og konu hans

Fríðu.

f é l a g s m ö n n u m t æ k i f æ r i t i l a ð sp j a l l a v i ð s t ó r v e i ð i m a n n i n n o g

skoða dýrin hans sem hann hefur veitt í

Afríku

og víðar og handleika

vopn veiðimannsins mikla.

SKOTVÍS e r n ú V í ð i r H a u k ss o n R j úp n a t a l n i n g S KOTV Í S f ó r f r a m í l o k m a í a ð v e n j u o g v a r þ á t t t a k a ágæt. Meðal þeirra sem tóku þátt í talningunni voru feðginin Bjarni J ó n ss o n l í f f r æ ð i n g u r o g V a l g e r ð u r B j a r n a d ó t t i r 1 0 á r a .

að vinna að fræðslumyndbandi um skotveiðar.

Hér

er

Jón Á

k v i k m y n d a t ö k u m a ð u r a ð s t ö r f u m v i ð r j úp n a ­t a l n i n g u n a .

J ó n G a r ð a r Þ ó r a r i n s ­s o n SKOTVÍS, D r . A r n ó r Þ ó r i S i g f úss o n o g K r . H a r a l d ss o n s t j ó r n a r m a n n SKOTVÍS.

myndinni má meðal annarra sjá stjórnarmann í

Einar

43


Tímarit um flugmál

Íslenskt tímarit um flugmál

Áskriftarsími 577 1888 • www.flugid.is


Fagrit um skotveiðar og útivist

Úr eldhúsi meistaranna VEITINGAHÚSIÐ ÞRÍR FRAKKAR ER EINN VINSÆLASTI VEITINGASTAÐUR LANDSINS. ÞAR RÆÐUR RÍKJUM ÚLFAR EYSTEINSSON MATREIÐSLUMEISTARI. ÞRÍR FRAKKAR ER FISKVEITINGAHÚS, HVER K A N N ­A S T E K K I V I Ð P L O K K F I S K I N N , G E L L U ­ R N A R , R A U Ð ­S P R E T T U N A O G Ý M S A A Ð R A L J Ú F F E N G A R É T T I ? EN MEISTURUNUM Í ELDHÚSINU Á ÞREMUR FRÖKKUM ER MARGT ANNAÐ TIL LISTA LAGT EN BARA AÐ MATREIÐA LJÚFFENGA FISKRÉTTI, ÞEIR ERU SNILLINGAR Í VILLIBRÁÐ. VIÐ LEITUÐUM TIL ÚLFARS E Y S T E I N S S O N A R O G H A N S M A N N A O G B Á Ð U M U M G Ó Ð A R V I L L I ­B R Á Ð A R U P P S K R I F T I R . V I Ð K O M U M EKKI AÐ TÓMUM KOFANUM, HÉR KEMUR FYRST UPPSKRIFT AÐ RJÚPU OG MAÐUR ÞARF EKKI ANNAÐ EN AÐ LESA UPPSKRIFTINA TIL AÐ FARA AÐ HLAKKA TIL 15. OKTÓBER.

Bláberjamarineraðar

r j úp u r

m e ð v i l l i b r á ð a r sós u

M

eðal þeirra rétta sem af og til eru á matseðli Þriggja Frakka er svartfugl. Hér kemur uppskrift af lunda sem bæði er ljúffeng og auðveld.

Fyrir 4 12 rjúpnabringur leggir, fóarn, sarpur og hjarta 1 gulrót, fínt söxuð 1 laukur, fínt saxaður 2 teningar af kjúlingakrafti 250 g bláberjasulta timian salt & pipar 2 dl rauðvín 100 g hveiti 75 g smjör 1/2 lauf gráðostur 2 dl rjómi 3 cl brennivín

A B

Blandið saman sultu, rauðvíni og 1 tsk af salti. Leggið rjúpna­bring­urnar í þennan lög og látið liggja í honum í a.m.k. 6 klukkustundir.

Blandið vel saman 100 g af hveiti og 75 g af smjöri.

C

Leggir, fóarn, sapur og hjarta brúnað í potti ásamt lauk og gulrót.

D

Setjið 1 líter af vatni í pottinn ásamt tveim­ ur teningum af kjúklingkrafti, sjóðið við vægan hita í klukkutíma.

E

Síið soðið frá leggjum, fóarni, sarpi og hjarta, setjið soðið aftur í pott­ inn og þykkið með smjör­boll­unni (smjör og hveiti). Einnig má þykkja sósuna með sósu­ jafnara. Bragð­ bætið sósuna með 2 msk af blá­ berja­sultu, brennivíni, gráðosti og rjóma. Kryddið eftir smekk.

F

Bringurnar eru steiktar í smjöri á pönnu í um 1 mínútu á hvorri hlið.

Steiktur Lundi – Þrír Frakkar úrbeinaðar lundabringur salt pipar timian gráðostur rifsberjasulta rjómi

Í

þessari uppskrift verður til­ finn­ ingin að ráða, gætið þess þó að setja lítið af rifsberjasultu og gráðosti saman við sósuna. Lundinn er krydd­ aður með salti og pipar, steiktur í smjöri og síðan kryddaður með timian. Bringurnar teknar af pönn­unni, rjómi settur á pönnuna og sósan bragðbætt með gráðosti og rifsberja­sultu. Sósan er krydduð með salti og pipar ef með þarf. Bringurnar eru settar í sósuna og sósan hituð en þó ekki látin sjóða.


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

ÚLFAR EYSTEINSSON HEFUR VERI‹ GESTUR Á RÁS 2 Á MORGN­ ANA. ÞAR HEFUR HANN MI‹LA‹ ÞJÓ‹INNI AF ÞEKK­ INGU SINNI. EINHVERN TÍMA Í VETUR SEM LEI‹ KOM HANN M E ‹ Þ E S S A U P P ­S K R I F T S E M S L Ó Í G E G N .

R i s t a ð a r s v a r t f u g l sb r i n g u r (að japönskum hætti) Fyrir 3

Ú l f a r E y s t e i n ss o n

matreiðslumeistari

600 g svartfuglsbringur 8 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 2 msk engiferrót, smátt söxuð 1 flaska Kikkoman soyasósa

A •

46

Setjið svartfuglsbringurnar í frysti í um 30 mínútur. Takið þær úr frysti­ hólfinu og skerið í pappírs­þunnar sneiðar á stærð við frímerki. Soyasósan, hvít­ lauknum og engi­

fer­rótinni er blandað sam­an. Kjötið er sett saman við og látið standa í 2 klukkustundir. Á meðan er upplagt að sjóða hrís­grjónin.

B

Takið sneiðarnar úr kryddleginum og snöggsteikið í u.þ.b. 2 mínútur. Þess má geta að einnig má mat­ reiða hreindýra­lifur á þennan hátt.


Fagrit um skotveiðar og útivist

G U N N L A U G U R G U Ð M U N D S S O N M A T ­R E I Ð S L U ­M E I S T A R I S T A R F ­ AR Á ÞREMUR FRÖKKUM. HANN RAK FYRIRTÆKIÐ ÍSLENSKFRANSKT ELDHÚS UM ÁRABIL. HVER MAN EKKI EFTIR LJÚF­ F E N G U V I L L I ­B R Á Ð A R ­P A T É ­U N U M F R Á Í S L E N S K - F R A N S K A E L D ­ H Ú S I­N U ? H É R K E M U R U P S K R I F T A Ð L J Ú F F E N G U H R E I N ­D Ý R A ­ PATÉ.

Hreindýrapaté

Úr

svartfugli má matreiða ljúffenga rétti að

hætti

Ú l f a r s ( m y n d J óh a n n Ó l i H i l m a r ss o n )

225 g svínakjöt 225 g svínafita 175 hreindýralifur 225 g hreindýrakjöt 2 hvítlauksrif 1 laukur, u.þ.b. 80 g 3 egg 2 msk kartöflumjöl 3 msk dökkt púrtvín 4 msk Cointreau 1 msk salt 3/4 tsk pipar 1 tsk múskat 1 tsk timian

A

Hakkið saman hreindýrakjötið, svína­­kjötið, svínafituna, hreindýra­ lifrina, lauk­ inn og hvítlaukinn. Blandið hakkinu vel saman í stóra skál.

B

Hrærið saman eggjunum, kartöflu­ mjöl­ inu, víninu og kryddinu og blandið saman við hakkið.

C

Sett í paté-form og bakað við 90° í vatns­baði eða þar til kjarninn nær 68° hita.


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Í sigtinu Teista

T

eistan Cheppus grylle tiheyrir ætt svartfugla og er hún ein þeirra 5 svartfuglategunda sem nú verpa hér við land. Teistan er svörtust af svartfuglunum, alsvört utan áber­ andi hvítra vængreita og rauðra lappa. Þegar hún opnar gogginn blasir einnig við rauður litur í stíl við lappirnar. Á veturna lýsist hún þó heldur en þá gránar hún í hnakkann og kviðurinn verður hvítur. Líkt og með aðra svart­ fugla þá eru kynin eins að sjá. Teistan er um 400 – 450 g. að þyngd og er minnsti svartfuglinn sem hér verpir. Teistan dregur nafn sitt af hljóðinu sem er hátt og skerandi tíst og nokkuð ólíkt hljóðum hinna svartfugla­teg­und­ anna.

T

eistan er ekki jafnmikil hópsál og hinar svartfuglategundirnar, sem verpa gjarnan í þéttum og stórum byggðum, en hún verpir mun dreifðar og meira innfjarða en þær. Varp­stöðvar teistunnar eru urðir og klettar við sjó og er hreiðrið hulið inni í sprungum eða ofan í grjóturðinni og oft vandfundið. Þá eru dæmi um að teistur hafi orpið í hlaðna garða og veggi og jafnvel í spýtnahrúgum. Teist­an verpir yfirleitt tveimur eggjum sem einnig skilur hana frá hinum svart­­ fugla­ tegundunum sem verpa að­ eins einu eggi. Varptíminn hefst í lok maí og er álegan um 30 dagar þannig að ungar eru að byrja að skríða úr eggi í lok júní. Ungarnir eru svo í hreiður­ holunni þar til í lok júlí, byrjun ágúst er þeir halda til hafs. Ungfuglarnir dreifast víða um höf og • jafnvel til Grænlands eftir

48

að þeir yfirgefa hreiðrið en fullorðnir fuglar halda sig oftast á sjó í námunda við varp­ stöðvarnar yfir veturinn. Stofn­­stærð teistunnar er talin vera um 30 til 50 þúsund pör og yfir vetrar­tím­ ann gætu verið hér 50 til 100 þúsund fuglar og auk þess er talið að eitthvað af norrænum teistum hafi hér vetrarsetu.

F

æða teistunnar eru aðallega smáfiskar eins og sprettfiskur og sandsíli, auk annarra fisktegunda. Þá eru hryggleysingjar ýmisskonar einnig á matseðlinum eins og krabbadýr, burstaormar og skeldýr. Fæðuna sækir teistan með því að kafa eftir henni og líkt og aðrir svartfuglar er hún fær kafari. Í kafi notar hún vængina til að koma sér áfram og fæturna til að stýra og er sem hún fljúgi í vatninu þannig að hún kemst hratt og örugglega áfram. Þessi notkun vængjanna til köfunar kemur aðeins niður á notum þeirra til flugs. Vængir svartfugla eru hlutfallslega litlir miðað við stærð og þyngd fuglanna og þurfa þeir að slá þeim ótt og títt til að haldast á lofti. Má segja að lögun og stærð vængja sé einskonar málamiðlun á milli notk­unar í lofti og í vatni.

T

eistan hefur eflaust verið nýtt til matar hér frá upphafi byggð­ar. Lengi hefur verið hefð fyrir ungatekju og er hún heimil enn þann dag í dag þar sem hún telst til hlunn­ inda. Þá hafa egg teistu einnig verið tekin í gegnum tíðina. Skotveiðar á teistu eru í dag leyfðar frá 1. septem­ber til 10. maí og samkvæmt veiði­ tölum frá

Veiði­s tjóra­e mbættinu hefur árleg veiði verið frá um 3.400 til 4.800 fuglar. Ekki er hægt að sjá út frá veiði­tölum hve mikið af veiðinni er skotveiði og hvað er kofnatekja. All­nokkur fjöldi teista ferst í fiskinetum ár hvert og þá aðallega í grá­sleppu­ netum. Tilkoma mink­ sins er talin hafa haft áhrif á varpútbreiðslu teist­ unnar en fram að land­­námi hans voru teistur­nar nokkuð ör­ugg­­ar á varpstöðvum sínum, ef frá er talin hætta sem teistu­hreið­r­ un­ um getur stafað af rottum þar sem teistan verpir í námunda við mannabyggðir. Dr. Arnór Þórir S i g f úss o n

Heimildir: Ævar Petersen 1998. Íslenskir fuglar. Vatns­ lita­ myndir eftir Jón Baldur Hlíð­ berg. VakaHelgafell, Reykja­vík.


Teista

m e ð sp r e t t f i s k í g o g g i o g m e r k i á f æ t i .

( L j ós m y n d J óh a n n Ó l i H i l m a r ss o n )


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

DANSKI RITHÖFUNDURINN OG PRESTURINN KAJ MUNK ER FYRST OG FREMST ÞEKKTUR HÉR Á LANDI SEM GUÐFRÆÐINGUR OG LEIKRITAHÖFUNDUR OG FYRIR ANDSPYRNU SÍNA VIÐ ÞÝSKA HERNÁMSLIÐIÐ Í DANMÖRKU Á HEIMSSTYRJALDARÁRUNUM SÍÐARI EN ÞJÓÐVERJAR LÉTU TAKA HANN AF LÍFI ÁRIÐ 1944. HITT VITA FÆRRI AÐ MUNK VAR MIKILL VEIÐIMAÐUR OG REIKAÐI OFT UM AKRA OG ENGI TIL AÐ HVÍLA HUGANN FRÁ DAGLEGUM STÖRFUM OG SAFNA ORKU TIL NÝRRA, ANDLEGRA AFREKA. TIL ERU EFTIR HANN AÐ MINNSTA KOSTI TVÆR BÆKUR UM VEIÐIMENNSKU, NATURENS EGNE DRENGE OG LIV OG GLADE DAGE. EFTIRFARANDI SAGA ER ÞÝDD ÚR HINNI SÍÐARI.

Bréf frá veiðimanni til veiðihatara eftir

Kæri

vin!

E

ftir að þú, í síðasta bréfi þínu, sannaðir mér óhrekjanlega að veiðimennska væri glæpur, sem aðeins sjúkt og illa innrætt fólk, heiglar og viðrini stunduðu, á ég ekki annars úr­ kosta til að reyna að snúa þér frá villu þíns vegar en bjóða þér að koma og veiða með mér vikutíma. Veiði­skap­ ur verður nefnilega ekki varinn með rökum heldur verður að iðka hann til að sannfærast. Það er eitt af mörgu sem veiði á sameiginlegt með ást.

É

g vil þó leyfa mér að gera athuga­­ semdir við nokkrar full­ yrðingar þínar. Þú skrifar: "Hefðu nú dýrin gert þér eitthvað!" Þú lætur að því liggja að þú getir sett þig í spor fátæks leiguliða sem tekur sér byssu í hönd og reynir að hindra skolla í að ráðast inn í hænsnabú hans. En getur þú sem guðfræðingur gerst talsmaður hefndarinnar? Manst þú ekki að skrif­ að stendur að þegar einhver • rænir þig skikkjunni skulir

50

Kaj Munk

þú láta kyrtilinn fylgja? Stæði þér ekki nær að predika yfir vopnuðum kotbændum í sókn þinni að steli refurinn hænunum þeirra skuli þeir gefa honum endurnar líka? Eða ertu reiður vegna þess að skolli étur ekki kál? Það væri þér líkt. Þú ert ekki að ófyrirsynju nemandi prófessorsins sem kenndi okkur að gætum við ekki, í þessum syndum spillta heimi, forðast að fremja hið illa ættum við að minnsta kosti að gera það með slæmri samvisku.

T

aktu þér siðfræðina í aðra hönd og flautuna í hina, skundaðu til skógar á tunglskinsnóttu og reyndu að lokka nokkra refi til þín. Það á að vera hægt ef trúa má orðum Bramsgaards. Hann segist sjálfur hafa séð, að kvöldlagi þegar hann stóð og hlustaði á tónlist úr útvarpinu innan frá skógarvarðarhúsinu, ref allt í einu birtast í tunglskininu, reisa sig upp á afturlappirnar og dilla sér í takt við jasstónana. Væri ekki dásamlegt ef þú gætir smalað saman völdum áheyr­

endum, dálitlu úrvali af melrökkum, og brýnt fyrir þeim að næst þegar þeir stælu hænu ættu þeir að gera það með vondri samvisku?

N

ei, minn kæri, þegar ég treð veiðislóð með byssu um öxl ríkir sem betur fer friður í mínu hjarta. Mér er alls ekki illa við litla hérann sem kúrir sig í plógfarinu. Ég felli hann ef ég get og hann hleypur burt ef hann er heppinn. Þá erum við báðir sáttir og finnst að þannig eigi lífið að vera. Þegar hann er kominn úr færi sest hann á afturendann, lyftir framlöppunum og nuddar þeim saman af einskærri vel­ líðan. Komist hann ekki undan deyr hann og ber engan kala til mín fyrir þær sakir. Það skemmtilega er að MÉR þykir innilega vænt um hann. Hvað með þig? Tækjum við okkur staf í hönd og reikuðum út á akurinn og sæjum allt í einu moldarköggul verða loðinn, lifna við og hlaupa af stað fyrir framan okkur þá horfði ég á eftir honum með ást í auga meðan þú létir þér fátt um finnast og héldir áfram að kryfja sálu­ hjálpar­


Fagrit um skotveiðar og útivist

vandann. Í þínum augum hlypi þarna vesæll héri og hvað gæti verið ómerkil­ egra? Fyrir mér gerðist ævintýri. Ég yrði vitni að einu af undrum sköpunar­verksins. Eitthvað verður til af engu. "Guð skapaði þá úr leir og gæddi þá lífsanda."

Þ

ú heldur að hér­arnir kjósi frem­ur af­skipta­leysi þitt en kær­leika minn. Vertu ekki of viss um það. Þú hefur til dæmis aldrei gróð­ur­­sett gull­ sóp fyrir þá og byssan þín trygg­ ir ekki það jafn­ vægi í stofn­inum sem þarf til að koma í veg fyrir far­sóttir vegna of­­fjölg­unar. - Já, það ríkir friður í mínu hjarta þeg­ ar ég fer á veiðar! Stutta en dýr­ mæta, ánægju­lega og hress­andi stund leyfist mér að gleyma Abessi­­ níu­málinu og gyð­i nga­o f­s ók­n­­ un­um nasista og berkla­far­aldr­in­um á Vestur-Jót­landi, sönn­un­um fyrir tilvist Guðs, listinni vegna listar­­inn­ar og öllu hinu. Reyn­ du nú ekki að halda því fram að í þetta ástand mætti líka kom­

G

ast með því að neyta ópíums. Ópí­um amall, æruverðugur kennari og eyði­legg­ur en ferska loftið endur­nærir forsöngvari í kirkjunni, sem þó og hvergi er meira ferskt loft að fá en á hafði aldrei hlotnast verðskuldaður slóðum veiðimanna. heiður, klappaði eitt sinn á gamla byssuhólkinn sinn og sagði. "Án hans


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

og faðirvorsins hefði ég aldrei haldið þetta út." Þetta voru orð að sönnu. Þar sem veiðimaður fer eru Guðs vegir. Hann er nýskapaður og heimurinn ungur og fersk­ ur. Þokan liggur enn yfir dölunum en uppi á hæðinni breiðir orrinn út dökka, hrímgaða vængi og gerir sér dælt við þrjá kven­fugla sem dást að honum. Veiði­ maðurinn fer framhjá skógar­varðar­bústaðnum. Ef til vill er Gréta, hin fagra dóttir skógar­ varð­ arins, að sækja eldivið bak við hlöðuna. Hann spjallar við hana og þótt kossarnir verði margir og langir gengur hann ekki lengra en góðu hófi gegnir. Refurinn í heiðinni skríður með jörðunni svo að erfitt er að koma auga á hann í kjarrinu. Veiðimaðurinn skýlir sér bak við einiberjarunna þar sem torvelt er að greina hann. Síðan hefst baráttan, hundurinn er veiði­ manninum til aðstoðar. Kænska gegn kænsku, þraut­seigja gegn þrautseigju. Fyrir tuttugu öldum hefði ég haft tinnustein í hendi, nú byssu, sá einn er munurinn. Tíminn líður. Ef til vill er komið kvöld þegar meðhjálpari minn getur narrað andstæðinginn í skotfæri og ég geng með sigur af hólmi. Ef til vill sigrar refurinn í það skiptið. Hvernig sem allt veltist stendur tíminn kyrr meðan leikurinn varir og ég hverf upp í eilífðina umvafinn óendan­leikan­ um, skógarmosinn og heiðalyngið bylgjast eins og grænflekkóttar ábreiður fyrir neðan mig, heiðhvolfið breiðir út bláan sængurhimin með hvítum skýjum uppi yfir og vindurinn færir mér áhyggjuleysi og heilbrigði. Þegar frá líður man ég það eitt að alsælan kom við á þessari jörð þar sem heitir Danmörk.

veiðar. Yfir veiðilendur skrifborðsins horfir þú fránum augum gegnum lonní­etturnar. Í birtunni frá raf­magns­ perunni blikar á banvænan odd sjálf­ blekung­ sins. Þú kallar bráðina dokt­ ors­ vörn og það eru einkanlega siðbótar­ kenningar Vaðaljóns dósents sem eru skotspónn þinn. Stuttaraleg fram­ setningin gjamm­ ar eins og haglabyssa gegn orðaflaumi hans. Riffilkúla skarp­skyggn­innar smýgur gegnum hans hola hátíðleik og í hvert sinn sem hann hnígur til jarðar setur þú upphrópunarmerki sem hljómar eins og lúðraþytur. Hann mun gráta tárum, seigum sem síróp, þegar bókina ber fyrir augu hans. Þú hatar fórnar­dýr þitt og særir það en lætur það lifa. Ég elska hérana og akurhænurnar og drep bara svolítið af þeim endrum og sinnum. Hvernig getur þú álasað mér, þú grimma, ofbeldishneigða sál?

S

ama dag og mér barst bann­ færingar­ bréf þitt fékk ég ekki óvægnara skammarbréf frá heldri konu í sókninni. Konur senda prestum stundum bréf sem verða til þess að þeir efast um að þær séu eiginlegar vitsmunaverur, það hvarflar að manni að kvenkynið sé týndi hlekkurinn sem leitað er að; og aldrei hefði átt að kenna konum að skrifa. Þessi fröken krafði mig reikningsskila á því hvernig ég, sem þjónn Guðs, gæti myrt meðbræður mína í sköpunarverkinu. Ég svaraði bréfinu með því að senda henni tvær akurhænur. Hún sagði þá að fyrst búið væri að drepa þær vildi hún ekki forsmá Guðs gjafir með því að borða þær ekki. Þær hefðu reyndar bragðast ágætlega en það sýknaði mig ekki af ódæðinu. Ég skrifaði henni ilfinningavella!“ segir þú og aftur að ég myndi, í Guðs nafni, halda staðhæfir að þú sért laus við áfram að drepa dýr meðan Guð frumhvatir villimannsins. En þú ferð skapaði hræætur. líka á veiðar, gamli minn, • eða réttara sagt situr við

„T

52

O

g segðu mér frómt frá. Hvers vegna beinið þið ekki ókvæðis­ orðum ykkar að dönskum bændum? Þeir stjana við gyltuna, gæla við hana, nota hvert tækifæri til að leiða hana undir göltinn og vaka umhyggjusamir yfir henni með grísunum. Hefur þú nokkurn tíma komið í svínasláturhús? Veiði­maður­inn gefur veiðidýrinu oftast tækifæri en hér er að verki hinn sjálfvirki dauði, snara um afturfót, hrínandi er svínið dregið á loft, hnífnum brugðið á hálsinn, í dauða­ teygjunum er því hryglandi rennt inn í eldhólfið. Næsti, gjörið svo vel! Er þetta ekki dálaglegur endir á vináttu og dekri. Blóðidrifnum höndum greiða danskir bændur prestum laun úr júdasar­veski, prest­arnir hneigja sig og þakka. Er ekki svo?

N

ú verð ég að slá botninn í þetta bréf. En reyndu að sjá þér fært að þiggja boð mitt! Komdu og uppgötvaðu hve bæði þú sjálfur og náttúran lifna við þegar þú tekur þér skotvopn í hönd. Og þegar fyrsti hérinn, sem kemur í færi, hefur leikið á þig máttu vita að þér hverfur öll þreyta. Það kann að líða dágóður tími þar til þér tekst að sanna að þegar tveir takast á í lífsins eldforna leik gæti það eins verið þú sem hefur sigur í þeirri glímu.

M

úhameð gamli spámaður á að hafa sagt að í hans huga væri lífið konur, bænir og reykelsi (það var áður en konur lærðu að skrifa). Bara að hann hefði sagt VEI‹I í staðinn fyrir reykelsi! Þinn einlægi K.M.

veiðifélagi,

Þ ý ð i n g : G y l f i P á l ss o n T e i k n i n g : Þ o r s t e i n n Ú l f a r B j ö r n ss o n


1. alþjóðlega Rjúpnaráðstefnan í Reykjavík 5. október 2002 • Grand Hótel Reykjavík

Skotveiðifélag Íslands efnir til ráðstefnu um rjúpuna 5. október næstkomandi. Ráðstefnan hefst klukkan 14:00 og er öllum opin á meðan húsrúm leyfir. Þátttökugjald er 1.000 krónur fyrir utanfélagsmenn en frítt fyrir félagsmenn SKOTVÍS gegn framvísun félagsskírteinis. Ráðstefnustjóri og stjórnandi pallborðsumræðna verður Dr. Arnór Þórir Sigfússon. Dagskrá

M y n d J óh a n n   Ó l i H i l m a r ss o n

14:00 Setning: Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra Ræðumenn: Áki Ármann Jónsson veiðistjóri Dr. Thomas Willebrand frá Svíþjóð Dr. Ólafur K. Nielsen frá Náttúrufræðistofnun Dr. Hans Christian Pedersen frá Noregi Dr. Peter J. Hudson frá Skotlandi Kaffihlé Pallborðsumræður og fyrirspurnir úr sal 17:00 Ráðstefnuslit: Sigmar B. Hauksson formaður SKOTVÍS Ráðstefnan verður nánar auglýst síðar á heimasíðu SKOTVÍS www.skotvis.is og í fréttabréfi félagsins. Rjúpnaveiðimenn, munið að taka frá laugardaginn 5. október.


Hefð og nútíma hugvit

E

lsta starfandi veiðivopnasmiðja í Þýskalandi er J.P. Sauer & Sohn GmbH, stofnuð árið 1751 í Suhl í Thüringen. Við lok síðari heims­styrj­ aldar var borgin hertekin af Banda­ríkja­ mönnum og lenti síðan á rúss­ neska yfirráðasvæðinu. Flestir stjórn­ enda fyrirtækisins flúðu til Vestur-Þýskalands og eins hundruð starfs­ manna, bæði byssusmiðir, málm­graft­ar­meistarar og almennir starfsmenn. Tvö hundruð árum eftir stofnun J.P. Sauer & Sohn var fyrirtækið endur­ reist í VesturÞýskalandi og er nú í Eckenförde, rétt sunnan við landa­mæri Danmerkur og Þýskalands. Sauer er hluti af svissnesku fyrirtækja­sam­steypunni SIG og systurfyrirtæki þess SIG Blaser, SIG Hämmerli og Sigarms. Þessi samsteypa framleiðir mikið úrval af rifflum og skamm­ byssum fyrir veiðimenn, her, lögreglu og skotíþróttamenn. Framleiðsla þess­ara fyrirtækja er þekkt fyrir gæði og mikla • nákvæmni. Einkunnarorð

54

Í

Sauer verk­smiðj­anna eru ,,að sameina lok 6. áratugar 20. aldar hófst hefð og fremstu tækni". Sauer leggur samstarf Sauer og Roy Weatherby sérs­taka áherslu á gæði allra íhluta, jafnt um smíði riffla, þar á meðal Mark hvað varðar efnisgæði og frágang, og V-riffilisins. Þetta samstarf varði til nákvæmni veiðivopnanna. ársins 1973 og var báðum til góða. Orðstír Sauer barst til Bandaríkjanna og víðar og Weatherby fékk orð fyrir S a m s t a r f v i ð W e a t h e r b y mjög nákvæma riffla og sem þóttu hæfa vel hröðum skothylkjum hans. auer & Sohn einbeitir sér nú að Sauer hafði lengi beitt kaldhömrun við smíði veiðivopna, en hefur í framleiðslu riffilhlaupa og með tímans rás einnig fengist við smíði samstarfinu við Sauer varð Weatherby varnarbúnaðar og hern­aðar­­vopna. fyrsti ameríski riffla­framleiðandinn til Segja má að grunnurinn að nútíma að bjóða skot­ vopn framleidd með veiðibyssum Sauer hafi verið lagður þessari tækni. Nú er kaldhömrun orðin með yfir/undir tvíhleypu sem sýnd var regla fremur en undantekning við á heims­ sýning­ unni 1881. Um leið framleiðslu hágæða riffilhlaupa. þróaði Sauer ásamt Friedrich Krupp Samstarf Sauer við Weatherby hafði sérstaka stál­ blöndu til smíða á einnig áhrif á hönn­ un riffilskefta gæðahlaupum. Sauer hefur síðan Weatherby riffl­anna. Weatherby fann smíðað sín eigin hlaup úr gæðastáli frá markað fyrir riffla sína í Evrópu og Krupp. Þrátt fyrir nútíma véltækni er Weatherby-Sauer Mark V rifflar voru enn beitt hand­ bragði þjálfaðra smíðaðir í mörgum evrópskum hlaupsmiða við smíði og frágang kaliberum, t.d. 6,5x68 og 8x68. hlaupanna hjá Sauer. Rifflarnir sem voru ávöxtur þessa

S


Fagrit um skotveiðar og útivist

samstarfs eru nú eftirsóttir af söfnurum og riffiláhuga­ mönnum. Ganga þeir notaðir á hærra verði en greitt er fyrir nýja riffla af sambærilegum gerðum.

Sauer 202

Í

byrjun 9. áratugar 20. aldar kynnti Sauer nýjan riffil, módel 200, sem þótti mjög byltingarkenndur. Hér var um að ræða boltariffil, en með tvískiptu skefti, líkt og algengt er um haglabyssur. Afturskeftinu var smeygt inn í lásinn og skrúfað þar fast. Þannig var fljótlegt og einfalt að taka það af. Með því var hægt að koma rifflinum fyrir í lítilli tösku og eins kom þetta sér vel vildu menn skipta um skefti. Eins var mjög fljótlegt að skipta um hlaup og þannig auðvelt að breyta um hlaupvídd riffilsins á skömmum tíma. Þessi byssa var byggð á hönnun og einkaleyfi Emmio Mattarelli, ítalsks meistara í trap-skotfimi. Hann hag­ nýtti ýmsar hugmyndir úr sporting yfir/undir haglabyssu frá Perazzi, en hann hafði starfað með því fyrirtæki um árabil og átt þátt í hönnun á sigursælum keppnisbyssum þess, t.d. MX8-haglabyssunnar. Árangurinn af þessu voru eiginleikar eins og skiptanlegar einingar á borð við skefti og hlaup. Sauer keypti einkaleyfi Mattar­ ellis og betrumbætti það við hönnun Sauer 200 riffilsins. Þessi riffill var smíðaður í ýmsum útfærs­lu ­ m, þótt í grunninn væri um sama vopn að ræða.

Á

ratug eftir að Sauer 200 riff­ill­ inn var kynntur kom ný gerð, Sauer 202 sem var að ýmsu leyti breyttur frá upphaflegri gerð, aðallega þó í útliti. Einnig var boðið upp á fleiri skothylki en áður. Tæknilega er þessi riffill frábrugðinn því sem algengast er með boltariffla. Fremst á boltanum eru

sex lásklakkar. Klakkarnir hafa sama þvermál og boltinn sjálfur sem trygg­­ir silkimjúkar og átakalausar hreyf­ ingar boltans. Hlaupið er fest við láshúsið með þremur skrúfum og því ekki skrúfað upp á húsið eins og algengast er. Með því að losa skrúf­urnar er hægt að skipta um hlaup og þar með um kaliber. Skothúsið er í enda hlaupsins og boltinn gengur þar inn í og læsist í sjálft hlaupið. Þessi hönnun tryggir að afhleypingartími er mjög stuttur og á sinn þátt í því hve nákvæmir þessir rifflar eru.

Nákvæmir

S

rifflar

auer-rifflar eru þekktir fyrir ná­kvæmni. Þannig skrifar blaða­ maður norska blaðsins Jakt, hund & våpen, eftir áratugar reynslu af því að skjóta úr margs konar Sauer rifflum kunni hann vel að meta nákvæmni þeirra. Hann segist enn eiga eftir að finna Sauer riffil sem ekki er góður og yfirleitt séu þeir betri en rifflar gerist almennt. Þetta gildi bæði um veiði­ riffla og markriffla fyrirtækisins.

L

áshúsið er smíðað úr stáli og léttmálmsblöndu í léttvigtar­riffl­ um. Boðið er upp á tvær grunn lás­ lengdir og meira en 15 kaliber. Hlaup­ in eru ýmist 60 eða 65 sm löng, nema á stutta heilskefta rifflinum er 51 sm hlaup. Hlaupin eru kaldhömruð úr gæðastáli að Sauer hefð.

R

ifflana er hægt að fá með span­ gikk, þá er gikkátakið létt með því að ýta gikknum fram áður en hleypt er af. Öryggið er aftan á láshúsinu og það sett á með því að þrýsta niður hnappi. Við það gengur niður tittur fyrir framan gikkinn. Þegar öryggið er tekið af er þessum titti þrýst upp. Allt gerist þetta hljóðlaust og tryggir að bráð fælist ekki við smelli í öryggi. Rifflarnir eru með lausum skotgeymi sem tekur þrjú til fimm skot eftir skothylkjastærð. Rifflana er hægt að fá í flestum algengustu kaliberum, allt upp í öfluga Afríkuriffla. Með því að skipta um hlaup og í sumum tilvikum einnig bolta getur sama byssan gagnast í margs konar veiði.

55


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

S

auer 202 rifflarnir eru smíðaðir í ýmsum útfærslum sem allar eru tækni­lega eins byggðar. Um er að ræða riffla til almennra nota, sérstaka veður­ þolna riffla og lúxusútfærslur. Jakt-Match riffillinn er veiðiriffill með þungu hlaupi, sem er sniðinn fyrir veiði­­ rifflakeppnir. Eins hefur hann kom­ið mjög vel út fyrir veiði­ menn sem krefjast hámarks ná­ kvæmni, til dæm­­ is íslenskar tófu­ skyttur. Þá er hægt að panta margs­konar skreyt­ ingar, bæði staðlaðar og eftir séróskum. Eins riffla fyrir örvhentar skyttur.

Sauer 90

Þ

essi riffill hefur verið kallaður ,,ævilangur" riffill. Sígilt útlit gott handbragð einkennir þetta skot­ vopn. Lásinn er einstakur í upp­bygg­ ingu og byggir á þremur hreyfan­legum lásklökkum sem ganga út úr boltanum og læsast í aftasta hluta lássins þegar lásnum er lokað. Ólíkt Mauser-lásnum eru engir hliðar­ klakk­ ar fremst á boltanum þar sem hann gengur inn í skothúsið. Þegar boltinn er tekinn úr rifflinum sést því aðeins ávalur 18 mm sver sívalningur og engir klakkar sem standa út úr honum. Aðeins þrjár grópir á botninum. Hreyfingar boltans eru silkimjúkar og opnunar­ hornið aðeins 65°, sem er heppilegt fyrir • veiðimenn sem þurfa að vera

56

fljótir að hlaða. Riffillinn er með þrívirkt öryggi ofan á skeftis­háls­inum, lausan skotgeymi, út­ búnað sem sýnir hvort skothylki er í skot­ húsi og með stillanlegan gikk. Sauer 90 er smíðaður í þremur lás­ lengd­ um og fáan­ legur í öllum helstu hlaupvíddum allt upp í stærstu Afríku-kaliber. Riff­ilinn er hægt að fá með mis­mun­andi skeftisgerðum, heilskefti eða hálfskefti og ýmsum útfærslum af þeim.

Sauer

þ r íh l e y p u r

S

auer varð líklega fyrst til að fjölda­­framleiða þríhleypur, eða ,,drill­inga”. Sú framleiðsla hófst löngu fyrir fyrri heimsstyrjöld. Lengi voru þrí­ hleypur einfaldlega nefndar ,,Sauer”, heiti þessa fyrirbæris og fyrir­ tækisins voru samnefni.

S

auer 3000 þríhleypurnar eru heimsþekktar, tvö haglahlaup ýmist í númer 12 eða 16 og hægt að velja um margar hlaupvíddir á riffil­ hlaupið. Lásinn er svonefndur Blitz-lás með Greener bolta og Greener öryggi á hlið. Skipt er á riffilhlaupið með sérstökum hnappi og er það með sérstökum útkastara. Þessi skotvopn eru til dæmis um það besta sem hægt er að fá hvað varðar handverk og frá­ gang. Efnið til smíðinnar er sérvalið og lögð áhersla á nákvæmni riffil­

hlaupsins og gott jafnvægi í byssunni.

Sauer Franchi

t v íh l e y p u r

S

auer er í samstarfi við Franchi verk­­ smiðjurnar um smíði yfir/­ undir tvíhleypna. Um er að ræða tvær út­ færsl­ ur á þess­ um viðurkenndu hagla­ byssum.

Þ

essi elsta starfandi skot­ vopna­ verksmiðja Þýskalands sýnir engin ellimerki. Þar fylgjast menn með þróuninni og bjóða sífellt nýjar gerðir. Til marks um það má nefna nýja veðurþolna Sauer 202 riffla með stuttu flútuðu (grópuðu) hlaupi og sérstaka gerð af Sauer 90, sem ber nafnið Sauer 92, og er smíðaður samkvæmt Suður-Evrópskri hefð. Jó­ hann Vilhjálmsson byssusmiður flytur inn Sauer-riffla og hafa þeir fengið góðar viðtökur íslenskra riffil­veiði­manna.

Heimildir: Jakt, hund & våpen, 3-1999. Osló, Noregi. J.P. Sauer. Lebendige Geshichte. 250 Jahre Sauer. Eckenförde 2000. J.P. Sauer. Kunstverke von Meisterhand seit 1751. Eckenförde. Marco E. Nobili. Austrian & German guns and rifles. Milano. Sauer. Traditionswerte Eckenförde.

mit

Zukunft.

Sauer hunting rifles tradition and innovation.


Fagrit um skotveiðar og útivist

Sportbúð Títan á Krókhálsinn

S

portbúð Títan flutti starfsemi sína frá Seljavegi 2 uppá Krók­ háls 5g í október síðast liðnum. Hús­ næðið er mun rýmra og allt aðgengi fyrir viðskiptavini er betra og þægi­ legra. Kajakdeildin hefur vaxið ört hin síðari ár og virðist ekkert lát vera á vin­­­sældum sjókajaksins þrátt fyrir gríðar­ lega mikla sölu. Má ætla að Sport­­­búðin selji á milli 200-300 kajaka ár hvert, vatnabáta, hjólabáta og þar á meðal alls kyns gúmmbáta.

S

kotveiðideildin hefur aukið vöru­­­úrvalið til muna og verður leitast við að hafa vöruflokka sem fjöl­ breyttasta. †msar nýjungar verða í haust, m.a. nýjir byssuskápar frá BO­ VAS Ungverjalandi, tvífætur frá Kengs Fire­arms, gúmmbátar í camo­ litum, Steyr ProHunter ryðfríir rifflar í ca. 30-06, 308, 7MM, haglabyssur frá Brow­ning, Remington, Benelli, Baikal og Germanica. Rifflar frá TOZ, Bai­ kal, Remington, BRNO og Steyr Mannlicher. Skotfæri í miklu úrvali, m.a. haglaskot frá Federal og HULL,

riffil­­ skot í flestum kaliberum, byssu­ tösk­ ur, camofatnaður í úrvali, snjó­ þrúg­ur, legghlífar, rjúpnavesti, sokk­ar, göngu­skór, áttavitar, sjón­aukar, byssu­ lásar á vegg og í gikk­björg, gervigæsir og endur, tálfugla­ pokar, gerviálftir, flautur og margt fleira.

S

portbúð Títan heldur úti öfl­ ugri heimasíðu www.sportbud.is þar sem sagðar eru veiðifréttir og sögur. Tökum við myndum og efni á robert@velar.is.

K

rókháls 5g er á leiðinni út úr bænum og því tilvalið að taka smá krók upp á Krókháls 5g ef veiði­ menn vantar skot eða annan búnað til veiða en við erum í stóra gula húsinu fyrir neðan Stöð 2.

Ö

ll skotvopn sem við seljum eru þjónustuð af J.Vilhjálmssyni byssu­­­smíðameistara á Dun­ • haga í Reykjavík.

57


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Veiðidellan hefur fylgt mér frá barnsaldri

R Æ T T V I Ð H A U K B R Y N J Ó L F S S O N F Y R R ­V E R A N D I S T J Ó R N A R M A N N Í S K O T ­V Í S O G F U L L T R Ú A F É L A G S I N S Í V I L L I ­D Ý R A ­N E F N D . N A U Ð S Y N L E G U S T U M E N N H V E R S F É L A G S E R U H I N I R S V O K Ö L L U Ð U E L D H U G A R . E I N N Þ E I R R A E R H A U K U R B R Y N J Ó L F S S O N S E M H E F U R V E R I Ð V A K I N N O G S O F I N N Í F É L A G S ­S T A R F I SKOTVÍS. ÁVALLT HEFUR VERIÐ HÆGT AÐ LEITA TIL HAUKS HAFI STJÓRN FÉLAGSINS ÞURFT Á EINHVERJU LIЭ SINNI AÐ HALDA. HAUKUR HEFUR VERIÐ SÆMDU ­ R GULLMERKI SKOTVEIÐIFÉLAGS Í S L A N D S . H A N N H E F U R F R Á U P P H A F I V E R I Ð F U L L T­ R Ú I S K O T V Í S Í V I L L I D Ý R A N E F N D E N M U N N Ú L Á T A AF STÖRFUM Í NEFNDINNI. AF ÞVÍ TILEFNI VAR HAUKUR TEKINN TALI OG FYRST SPURÐUR AÐ ÞVÍ HVER HAFI VERIÐ FYRSTU KYNNI HANS AF SKOTVÍS?

58


Fagrit um skotveiðar og útivist að einstaklingar væru þarna að ráð­skast með almenninga, sem ættu að vera öllum opnir til fuglaveiða sam­ kvæmt 5.gr. þágildandi veiðilaga. Hins vegar átti ég engan þátt í undirbúningi að stofnun SKOTVÍS og vissi ekkert um þau mál fyrr en ég heyrði stofn­fundinn auglýstan, mætti þar og var reyndar kosinn í fyrstu stjórn félagsins. Síðan hef ég verið meira og minna viðriðinn félagið og stundum verið í stjórn þess.

eftir því að vitnað var til Stanga­veiði­ félags Reykja­ víkur sem góðrar fyrir­ myndar í þess­ um efnum. Auðvitað munum við í vaxandi mæli þurfa að semja um veiði­rétt, það er ekkert nýtt. Við höfum alltaf þurft að fá leyfi til skot­ veiða á eignarlöndum og höfum aldrei mót­mælt því. En félagið hefur varið almanna­réttinn til skotveiða utan eignar­­landa og staðið þar á grunni sem frábærlega framsýnir menn lögðu með veiðilögunum 1954.

Hvað telur ú að séu merkustu áfangarnir í sögu SKOTVÍS? Þú hefur verið fulltrúi SKOTVÍS í svo­ kallaðri villidýranefnd. Hvað á verður nú fyrst að telja sjálfa viltu segja um þær breytingar sem stofnun félagsins, sem bar upp á orðið hafa? hár­réttum tíma er vaxandi átök voru um rétt manna til skotveiða á afréttum illidýranefndin kom til með víða um land. Sumir landeigendur núgildandi veiðilögum frá 1994. lýstu yfir eignarrétti sínum á víð­lend­ Ég verð nú að játa að mér fannst á um fjallasvæðum og sögðu jafnvel að sínum tíma ekki mikið til þeirra laga fara ætti með réttinn til fuglaveiða eins koma vegna þess að ekkert var tekið á og laxveiðiréttinn; landeigendur ættu ágreiningsmálum um veiðirétt. Það var að selja mönnum aðgang. Reynt var að hinsvegar gert á öðrum vettvangi eins fylgja þessu eftir og svo dæmi sé tekið og menn vita. Ég hef verið fulltrúi þá var lögregla ítrekað send á eftir SKOTVÍS í nefndinni frá upphafi og rjúpnaskyttum á Holtavörðuheiði á allt þar til síðustu mánaðarmóta er ég fyrstu árum SKOTVÍS. Komið var hætti. Það gekk á ýmsu í starfi nefnd­ fram við veiðimenn sem stöðvaðir voru ar­innar fyrstu árin er fulltrúar ólíkra eins og um óumdeilt eignarland væri hags­­muna tókust á, t.d. við samningu að ræða. Þessu linnti ekki fyrr en menn reglu­­ gerða. Ekki voru heldur allir úr stjórn félagsins gengu á fund skot­­veiði­menn hrifnir af framgöngu dómsmálaráðherra og bentu á að sönn­ full­trúa síns á þessum vettvangi. Ég var unarbyrðin hvíldi á þeim sem þætt­ust m.a. sakaður um að standa að óþarfri eiga landið og nú yrði annað­hvort að gjald­ töku af skotveiðimönnum, láta reyna á málin fyrir dóm­stólum eða styttingu veiðitíma og var jafn­ vel að hætta þessari áreitni við kallaður sér­ stakt handbendi land­ skotveiðimenn. Síðan hefur verið litið eigenda. Allt jafn­ aði þetta sig með á Holtavörðuheiðina sem almenning tímanum enda nefndarstarfið auðvitað en að því mun koma að Þjóðlendu­ unnið innan þess ramma sem lögin nefnd úrskurði um svæðið. Það var settu því. Hvað svo sem um mína mikið lán að sú stefna var tekin í upp­ frammi­ stöðu má segja þá er enginn hafi að verja almannarétt til veiða utan vafi á að það að eiga fulltrúa á þessu eignarlanda en þær raddir heyrðust í sviði skiptir miklu fyrir stöðu SKOT­ fyrstu, þótt fáar væru, að félagið ætti VÍS. Engum óbrjáluðum manni sem ekki að standa í deilum um land­ bæri hag félagsins fyrir brjósti gæti réttarmál heldur semja við bændur um komið til hugar að segja • veiðirétt. Ég man að meira að segja félagið úr þessu samstarfi

Þ

V

L j ós m y n d :   H r e i n n H r e i n ss o n

Hver voru þín fyrstu kynni af SKOTVÍS?

Þ

au voru á stofnfundi félagsins sem haldinn var í Árnagarði í september 1978. Ég var þá dálítið að hugsa um stöðu landlausra skotveiði­ manna því um þetta leyti voru stór­ tækar rjúpnaskyttur að taka á leigu og einoka heilu fjöllin fyrir norðan þar sem ég þekkti til. Ég var hræddur um

59


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

við stjórn­völd. Annars stefni ég að því að gera grein fyrir starfinu í nefndinni undan­farin ár í fréttabréfi SKOTVÍS á næstunni. Hvað vilt þú segja um lögin um þjóðlendur og frelsi manna til skotveiða?

M

tímar lengri, þ.e.a.s. rammarnir utan um stjórn­un ráðu­neytis­ins á veið­un­um þyrftu að vera rýmri bæði hvað varða fjölda tegunda og lengd veiðitíma. Svo dæmi sé tekið þá telja sumir að breyta eigi rjúpnaveiði­ tímanum þannig að veiðar hefjist fyrr en nú er, t.d. 1. október. Þetta er ekki hægt að gera án þess að breyta lög­ unum, rammi lag­ anna er eins og menn vita 15/10 – 22/12. Hið jákvæða við lögin var myndun veiðikortasjóðs sem stendur undir rannsóknum á veiði­stofnum og jafnframt veiði­ skýrslurnar sem menn skila inn um leið og veiði­ kort er endurnýjað. Einnig má nefna ákvæði um veiðtæki og veiði­aðferðir sem eru framför frá eldri lögum. Nú er komin 10 ára reynsla á þessi lög og ég held að tímabært sé að endurskoða þau og gera á þeim nokkrar breyt­ ingar. En þessi lög hafa reynst skot­veiði­mönn­um þýðingar­­ mikil. Með þeim er lögfest samráð stjórnvalda við samtök okkar um allt er lýtur að stjórnun veiða. Þá er alveg ljóst að þetta fyrir­komulag að skotveiðimenn mynda rann­sóknarsjóð auk þess sem þeir byggja upp gagna­ safn um fuglastofna með veiði­ skýrsl­ unum, gefur okkur ómetanlegt vægi í samfélaginu.

ér finnst rétt að minnast á Gerðu­bergsfundinn, sem SKOT­­ VÍS boðaði til með fulltrúum allra þingflokka árið 1986. Á þeim fundi var sett fram sú hugmynd að höggvið yrði á deilurnar um mörk eignarlanda og almenninga með laga­ setningu. Þingmenn voru m.a. spurðir hvort hugsanlegt væri að setja mörkin milli svæða við ákveðnar hæðarlínur. Pólitíkusarnir voru auð­vitað sleipir og veittu engin ákveðin svör en það er enginn vafi á því að þessi fundur var mjög gagnlegur, hann fékk menn til að hugsa um rétt þéttbýlisbúa – næstum allrar þjóðarinnar - til landsins og styrkti stöðu félagsins útávið. Nú er verið að leysa úr þessum málum á grundvelli laganna um þjóðlendur og það er stórkostlegt að hugsa til þess að innan fárra ára verði deiluefninu eytt. Þó verður að muna að “veldur hver á heldur”. Forsætisráðherra á hverjum tíma mun fara með forræði þjóðlendna Margir hafa áhyggjur af því að og almannarétti þarf að halda á lofti á veiðarnar verði æ tæknivæddari. öllum tímum. Hefur þú áhyggjur af stöðu mála í þessum efnum? g tel nokkra galla vera á veiði­ lögunum og stærstan það æknin er stórkostleg en það grund­­­­­­vallaratriði að samkvæmt lögun­ geng­­ur ekki að beita henni hugs­ um er allt friðað en umhverfisráðherra unarlaust á náttúruna, dæmi um illar getur aflétt friðun, þ.e.a.s. leyft veiðar afleiðingar þess eru sjálfsagt ótelj­andi. Í innan þröngra ramma. Andi laganna veiðilögunum er kveðið skýrt á um segir því eiginlega að veiðitímar séu hvaða tækjum og veiðiaðferðum má undan­ tekningarástand. Fyrst menn beita við skotveiðar við erum því að vildu setja rammalög þá hefðu átt að mínu mati ekkert að missa tæknina úr vera í þeim heimildir til að aflétta böndunum. En tæknin er ekki bara í friðun á fleiri tegundum en full­komnum byssum og öðrum veiði­ • nú er og mögulegir veiði­ tækjum heldur einnig í farartækjum.

É

60

T

Nú aka menn hiklaust til fjarlægra staða á hálendinu m.a. til að sækja þangað rjúpur. Jafn­framt þessari bættu ferða­tækni hefur fjöldi skotveiðimanna aukist. Álagið á náttúruna fer vaxandi og við eigum þar hlut að máli, en ekki síður ferða­þjón­ustur ýmsar sem bruna með við­skipta­vini sína upp um fjöll og firnindi á öllum árs­tímum. Mestu máli skiptir að skot­ veiðimenn sjálfir hafi þessi mál til stöð­ugrar athugunar, leggi mat á ástandið, hafi frumkvæði að úr­ bótum þegar þeirra er þörf en láti ekki taka sig í bólinu hvað þetta varðar. Nú eru miklar hugmyndir uppi um stofnun þjóðgarða. Hver er skoðun þín á þessum málum?

Æ

tli það sé ekki ljótt að vera á móti þjóðgörðum? Þeir eru svo “gott mál”. En þegar ég skoða gamalt kort Náttúruverndarráðs, sem sýnir friðlönd og þjóðgarða á landinu, þá finnst mér ekki bráðvanta fleiri slík svæði. Verði af hugmyndum um þjóð­ garða á hálendinu munu væntan­ lega skerðast að sama skapi almenningar sem nú eru opnir til skotveiða. Það er alvarlegt mál því allt land í byggð er eignarrétti háð, nema menn hugsi sér að skotveiðar verði heimilar í hálendis­ þjóðgarði. Það gæti verið lausn en eftir er að sjá að samkomulag verði um það. Ég hef ekki gleymt því hve fljótt Náttúruverndarráðið sálaða var að láta setja skilti sem bannaði fuglaveiðar við brúna yfir á Geitlandið, eftir að Hæsti­ réttur hafði dæmt að svæðið væri al­ menn­ ingur. Áður hafði ráðið lagt bless­un sína yfir veiðar “landeigenda” í frið­landinu og fallist á að rjúpnaveiðar þeirra brytu ekki gegn því ákvæði frið­ lýs­ingarinnar að ekki mætti trufla þar fugla­ líf. Ég á ekki von á að viðhorf friðunar­sinna í lykil­stöð­um hafi mikið breyst. Stjórn félagsins á ábyggilega mikið verk fyrir höndum við að gæta


Fagrit um skotveiðar og útivist

L j ós m y n d :   H r e i n n H r e i n ss o n

hags­ muna skotveiðimanna í sambandi við þessar þjóðgarða­hug­myndir. Hver telur þú að ættu að vera helstu baráttumál SKOTVÍS á næstu árum?

Þ

au held ég að verði mikið til þau sömu og verið hafa, réttur al­menn­ings til veiða. Félagið mun auð­ vitað áfram þurfa að fylgjast með og hafa áhrif á löggjöf. Þar koma m.a. þær hug­ myndir um þjóðgarða sem ég nefndi áðan. Sjálfsagt vex þörfin fyrir kynn­ingarstarf með árunum en stjórn félagsins hefur reyndar staðið sig mjög vel í kynningarmálum undanfarin ár. Segðu okkur hvernig stóð á því að þú gerðist skotveiðimaður og hver þín fyrstu kynni voru af skot­ veiðum.

S

tjúpi minn, Andrés Magnússon frá Arnþórsholti í Lunda­ reykja­ dal, skaut endur, rjúpur og fleiri fugla. Sem lítill strákur varð ég óskaplega spenntur fyrir þessum veiðiskap og alveg stað­ ráðinn í að eiga sjálfur marg­ ar og fallegar byssur þegar ég yrði stór. Ég byrj­aði ungur að fylgja karlinum á fugla­ veiðar og við bönuðum líka ansi mörg­ um minkum. Ég fór auðvitað snemma að fara sjálfur til veiða með 22 cal riffil. Svo var legið í öllum fáan­legum veiði­ bókum og dreymdi mig um veiði­ mennsku í óbyggðum Kanada og Alaska. Þótt ég hafi aldrei í raun­veru­leikanum komið til þessara drauma­landa og heldur ekki átt margar byssur, þá hefur veiðidellan fylgt mér frá barns­aldri.

N

ú þykir mér heldur stórt spurt, ég á erfitt með að sjá mig í slík­ um stóli enda löngu sannað að ég hef ekki snefil af flokkspólitískum hæfi­ leik­um. En ef ég reyni að svara þessu af alvöru þá myndi ég sem um­hverfis­ ráðherra beita mér mjög fyrir upp­ græðslu landsins bæði með skógi og öðrum plöntum, og leita sátta um það mál - sátta um gróið land en ekki eyðimerkur. Það er auðvitað nú þegar verið að gera mikið á þessu sviði og veitir ekki af, því jarð­ vegs­ tapið er í heild gríðarlegt. Menn þurfa ekki að fara langt upp á hálendi til að sjá það. Hér ætti auðvitað að vera skógur því landið er í barr­ skóga­­ beltinu. Mig dreym­ir þó ekki um að landið verði þakið 30 m háum barr­ skógi, en við Ef þú sætir í dag í stól um­hverfis­ þurfum skóg til að brjóta vind og ráð­herra hvaða málum myndi þú þá skapa skjól fyrir annan • helst beita þér fyrir? gróður, dýr, fugla og mann­

61


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

fólk. Einmitt það að landið er næstum því skóg­laust felur í sér stór­kostlega mögu­leika til að skipu­leggja og rækta réttar tegundir á rétt­um stöðum. Mín skoðun er sú að við eig­um að þora að breyta umhverfinu til hins betra. Þeir sem halda því fram að við getum lifað í landinu og full­ nægt þeim kröfum sem vestrænt nútíma­fólk virðist telja eðli­legar án breyt­inga, fara með bull. Óhjá­ kvæmi­ lega erum við alltaf að breyta um­hverf­inu. Sumar þær breyt­ ingar eru neikvæðar og við þurfum að bæta úr því þar sem við getum; valda jákvæðum breyt­ingum. Svo er náttúr­ an sjálf auðvitað stöðugt að breyta sér. Þótt menn hafi nú komið sér upp hug­ takinu gróðurhúsaáhrif og þykist vita allt um ástæður þess að e.t.v. eru að verða veðurfarsbreytingar á jörð­ inni, þá er vitað að stórkostlegar breyt­ingar hafa orðið í hitafari norður­hvels jarðar­ þúsundum ára áður en áhrif mannsins komu til og e.t.v. ættu íslenskir plönturasistar að rifja það upp að á landinu má finna stein­­ gerðar leifar plantna sem nú þrífast einungis mun sunnar á hnett­inum.

E

f ég svo hefði kjark til þess að ganga erinda skot­ veiðimanna í ráð­herrasætinu, þá myndi ég beita mér fyrir því að komið yrði upp hrein­dýra­ hjörðum víðar á landinu en nú er þar sem slíkt þætti hent­ugt . Skógarfuglar gætu svo orðið við­fangs­­efni um­hverfis­ ráðherra næstu kynslóðar.

N

ú, ef svo vildi til að ég hefði tíma afgangs frá þessum þarfa­ verkum þá myndi ég kannski rexa svolítið út af aðstöðu almennings á tjaldstæðum á helstu ferða­­manna­­­ stöðum í landinu, sem meira eða minna hafa fælt frá sér innlennt ferðafólk. Þessir staðir eru yfirfullir af erlendum ferðamönnum – • veri þeir velkomnir í

62

hæfilegum skömmtum. En þeir virðast flestir vera í uppmælingu við að horfa á landið og þurfa því að fara snemma að sofa á kvöldin svo að þeir séu vel á sig komnir og sprækir á morgnana er þeir halda enn af stað að horfa á landið. Íslenskt fjölskyldufólk, sem ekki skilur nauðsyn þess að rífa sig upp fyrir allar aldir í sumarfríinu, vill hins­ vegar hafa það skemmtilegt á kvöld­in, spjalla saman og jafnvel syngja, enda ekkert athugavert við það að njóta íslenskra sumarkvölda út í ystu æsar langt fram á nótt. Ég myndi vilja að á þessum fjölsóttu stöð­ um væri einnig kostur á tjald­stæð­um og skálaplássum fyrir fólk sem ekki er kvöldsvæft.

er að fara þangað til veiða um mán­ aðar­ mótin ágúst-september. Nú höf­ um við hins vegar fengið bréf frá Hrein­dýraráði þar sem okkur er tjáð að mikil skerðing verði á veiðisvæðinu þar sem 3 stórir landeigendur hafi ákveðið að banna alveg veiðar á þeirra löndum. Það kann jafn­vel að fara svo að okkur verði endur­greidd leyfin og við beðnir um að sitja heima. Við þessu er víst ekki mikið að gera, land­eig­andi ræður sínu landi, en auð­ vitað vonar maður að þetta verði leyst með sanngirni. Hreindýrin eru jú þjóðar­ eign og ákvörðun um veiðikvóta þarf að taka með lögformlegum hætti.

S t j ó r n S KOTV Í S v i l l þ a k k a Ert þú búinn að skipuleggja ein­ H a u k i f y r i r h i ð m i k l a s t a r f h a n s í þ á g u S KOTV Í S o g hverjar veiðiferðir nú í haust? setuna í villidýranefnd.

J

á, við þrír félagar eigum jafn­ mörg tarfaleyfi á svæði 8. Áætlað


Fagrit um skotveiðar og útivist

Ný skotfimi Nýtt skotsport

N

ú í byrjun ágúst opnar í fyrsta sinn á Íslandi skotvöllur fyrir Nor­disk trap. Skotfimi á þessari gerð skot­valla sem áður var kallað á norður­ löndum Jeger trap (veiði trap) hefur orðið geisivinsæl meðal veiðimanna og byrjenda í skotfimi. Ætla má að vin­ sæld­irnar séu til komnar vegna þess að þar er hægt að nota byssur með öllum þreng­ ingum. Jafnt fullþrengdar sem óþrengdar haglabyssur og einnig cali­ ber 20 jafnt sem caliber 12, tvíhleypur jafnt sem hálfsjálfvirkar byssur eru einnig leyfðar. Einnig er upphafsfærið eða staðurinn þar sem dúfunni er kast­

að nær skotmönnum en í öðrum teg­ und­um af trap, eða aðeins 10 metrar. Einnig fer dúfan ekki eins hratt og í öðrum greinum.

beint, til hægri, til vinstri eða hversu hátt hann fer. Sex skotmenn geta tekið þátt í einu og skýtur hver á tuttugu og fimm dúfur í hring. Nordisk trap skot­ völl­ urinn er staðsettur við hlið eins ðdráttarafl sitt fær skotgreinin besta skotvallar á landinu á svæði Skot­ samt mest vegna þess hve hún íþróttafélagsins í Hafnarfirði. líkist raunverulegri fuglaveiði og þá sér­staklega rjúpnaveiði. Þetta er vegna byrjun geta allir félagsmenn sem þess að dúfunni er skotið upp úr gildru utan­ félagsmenn fengið að skjóta, sem liggur í sömu hæð og staðið er á en í fram­ tíðinni verður völlurinn þannig að svo virðist sem skotið sé á aðeins opinn félagsmönnum á aug­ fugl sem er að fljúga upp beint fyrir lýstum æfinga­tímum. framan skyttuna. Eins og í veiði þá veit skotmaður ekki hvort fuglinn flýgur Í v a r E r l e n d ss o n

A

Í


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Úr siðareglum SKOTVÍS Beittu ekki veiðiaðferðum sem valda bráðinni óþarfa kvölum a) Skot á að deyða bráðina á augabragði. Til þess að komast hjá því að særa dýr skaltu gæta þess að: - skjóta ekki af of löngu færi - ekkert beri milli þín og bráðarinnar - skjóta ekki nema yfirgnæfandi líkur séu á því að hitta vel b) Sært veiðidýr skal aflífa hið skjótasta. Finnist dýrið ekki á skotstað skal einskis látið ófreistað að leita það uppi.

Teldu fjölda dýra ekki mælikvarða á góðan veiðimann, eða vel heppnaðan veiðidag a) Góður veiðimaður stærir sig ekki af feng sínum og keppir ekki við aðra um fjölda veiddra dýra. b) Þá er veiðidagur góður þegar hóflega er veitt, með talsverðri líkamlegri áreynslu, vakandi náttúruskyni og sært dýr liggur ekki eftir að kveldi.

Farðu vel með veiðibráð a) Farðu vel með feng þinn og spilltu honum ekki. b) Vandaðu aðgerð og tilreiðslu bráðar.

Færðu veiðibækur af kostgæfni og taktu virkan þátt í verndun veiðidýra a) Færa ber veiðibækur og halda þeim til haga. Veiðiskýrslur eru þýðingarmikil gögn við rannsóknir á veiðidýrum. b) Veiðimaður ætti að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn brotum á veiði­lög­gjöf­inni.

64


Fjársjóður úr hafinu

Óvenjuhátt kalkhlutfall Vissir þú að í 100 g af sardínum úr dós væru yfir 400 mg af kalki, sem er helmingurinn af ráðlögðum dagskammti fullorðinna?*

Þetta mikla kalk ásamt próteinum, omega-3 fitusýrum og vítamínum gera sardínur að áhugaverðum og æskilegum kosti fyrir unga sem aldna.

Ora-sardínur fást í vatni, salsasósu, tómatsósu eða olíu Ora-sardínur eru lostæti með góðu brauði og harðsoðnu eggi, í eggjaköku, hvers kyns pastarétti, salöt og sem liður í góðum morgunverði eða kvöldsnarli. Niðursuðuaðferðin gerir notkun rotvarnarefna óþarfa.

www.ora.is * Samkvæmt upplýsingum frá Manneldisráði Íslands er ráðlagður dagskammtur af kalki, fyrir 19 ára og eldri, 800 mg. Fyrir unglinga, vanfærar konur og konur með börn á brjósti er ráðlagður dagskammtur 1200 mg.

ABX / SÍA 9021092

í ORA-sardínum kemur beinunum til góða!


Landsfélag um skynsamlega skotveiði

Skotvís þakkar veittan stuðning Lögmannastofa Ólafs Sigurgeirssonar

Bjóðum úrval af sóluðum

Skotveiðimenn göngum varlega um vopnin og komum heil heim

NORDEKK ásamt nýjum dekkjum fyrir alla „veiði“-bíla 10% staðgreiðsluafsláttur til veiðimanna

aviace FYRIR ÞÁ SEM RÁÐA

Hjólbarðaverkstæðið Dekkið ehf. Reykjavíkurvegi 56 • 220 Hafnarfirði • Sími 555 1538

Aviace á Íslandi • Malarhöfða 2 • 110 Reykjavík Sími 577 5222 • www.aviace.is


Afsláttartilboð SKOTVÍS: Hundahótelið Nolli Hundagæsla.......................................................... 10% Hundahótelið Arnarstöðum Hundagæsla.......................................................... 20% Hundahótelið Leirum Hundagæsla.......................................................... 10% Jóhann Vilhjálmsson byssusmiður Viðgerðir............................................................... 10%

Munið að framvísa ávallt félagsskírteini SKOTVÍS!

Seglagerðin Ægir Vörur með greiðslukorti (ekki af tilboðum) ....... 5% Vörur staðgreiddar (ekki af tilboðum) ................ 10% Sportvörugerðin Vörur.................................................................... 10% Vesturröst Vörur.................................................................... 5-15% Veiðivon Gæsa- og rjúpnaskot staðgreidd........................... 10% Veiðislóð Vörur.................................................................... 5-10% VDO Borgardekk Af viðgerðum og vinnu......................................... 32,5% Af dekkjum í umboðssölu .................................... 15% Okkar dekk og slöngur......................................... 20% Aðalskoðun hf. Af skoðun ökutækja.............................................. 10% Hótel Valaskjálf Gisting.................................................................. 15% Hótel KEA Gisting á gæsa- og rjúpnaveiðitíma..................... 20% Gisting á öðrum tímum........................................ 10% Veiðikofinn Egilsstöðum Afsláttur af skotum............................................... 10% Rakara- og hársnyrtistofan Fígaró Vörur - þjónusta................................................... 10% Smurstöðin Klöpp Af smurningu (heildarpakki)................................ 10% Ellingsen Af sportveiðivöru og -fatnaði............................... 10% Bílaleiga Íslands Leiga á 4x4 bílum og jeppum............................... 15% Pólar Vörur og þjónusta með greiðslukorti.................. 5% Vörur og þjónusta staðgreiddar........................... 10% Sportbúð Títan Veiðivörur með greiðslukorti (ekki af tilboðum). 5% Veiðivörur staðgreiddar (ekki af tilboðum).......... 10%



Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.