2 minute read
Opnir stúdentagarðar
Opnir stúdentagarðar
GREIN ARTICLE Katla Ársælsdóttir
Advertisement
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft margvísleg áhrif á samfélagið líkt og flestir kannast við. Þá er starfsemi Félagsstofnunnar Stúdenta ekki undanskilin. Í ljósi faraldursins eru færri erlendir nemendur að koma til landsins til að stunda nám við HÍ en ætlast var til og því færri að sækjast í leiguhúsnæði á vegum Félagsstofnunarinnar. Einnig sækjast þeir nemendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins minna í flutninga til Reykjavíkur um þessar mundir þegar mikið af kennslu fer fram í gegnum netið. Af þeim sökum standa mörg herbergi sem opin eru fyrir útleigu auð.
Mýrargarður, sem tekinn var í notkun í janúar 2020, er stærsti stúdentagarður landsins og getur kjarninn hýst um það bil 300 einstaklinga. Eftir opnun Mýrargarðs hafa biðlistar fyrir húsnæði á vegum FS minnkað sem eru afar góðar fréttir. Hins vegar vegna breyttra aðstæðna í samfélaginu eru færri sem sækjast eftir húsnæði á Stúdentagörðum en áætlað var. Vegna þessa hefur Félagsstofnun Stúdenta ákveðið að hagræða úthlutunarreglum sínum þannig að í fyrsta sinn geta einstaklingar sem stunda ekki nám við Háskóla Íslands leigt húsnæði á vegum Félagsstofnunnar.
Þau rými sem um er að ræða eru einstaklingsherbergi með sér sturtu- og klósettaðstöðu og sameiginlegu eldhús- og stofurými. Slík rými er að finna bæði í Oddagörðum á Sæmundargötu sem og áðurnefnda Mýrargarði.
Í samtali við blaðamann Stúdentablaðsins segir Isabel Alejandra Díaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, að þau taki öllum sem kunna að nýta sér opnun stúdentagarðanna fagnandi. „Stúdentagarðarnir hafa ávallt verið hugsaðir fyrir stúdenta við Háskóla Íslands, eins og gefur að skilja. Hins vegar hefur hér skapast tækifæri til að bjóða öðru námsfólki húsnæði á góðum kjörum, og að sjálfsögðu tökum við vel á móti þeim einstaklingum. Námsfólk er því miður oftar en ekki vanmáttugur hópur á leigumarkaði því þau eru ekki með öruggar tekjur og geta m.a. þess vegna oft ekki búið lengi á sama stað. Félagsstofnun stúdenta var stofnuð af stúdentum fyrir stúdenta og hefur markmiðið því alltaf verið að bjóða góða þjónustu, þannig að það er frábært að geta boðið fleirum upp á það, sérstaklega í ljósi aðstæðna,“ segir Isabel.
Stúdentar við Háskóla Íslands munu enn hafa forgang að úthlutun herbergja en forgangsröðunin er eftirfarandi:
A Núverandi íbúar sem upp fylla almenn skil yrði um úthlutun
B Erlendir stúdentar sem njóta for gangs (Tiltekinn fjöldi styrk þega á vegum mennta mála ráðuneytis, Háskóla Íslands eða Fulbrightstofnunar. Njóta for gangs við úthlutun tvíbýla og herbergja á Gamla Garði.)
C Nemar í HÍ – lögheimili utan höfuðborgarsvæðis
D Nemar í HÍ – lögheimili innan höfuðborgar svæðis
E Nemar í öðrum háskóla
EE Nemar í fram halds- eða iðnskóla
E3 Ekki í námi
Þetta fyrirkomulag mun einnig vera í gildi fyrir komandi haust en allar upplýsingar um úthlutunarreglur, skilyrði og umsóknarferli fyrir íbúð á vegum Félagstofnunnar er að finna á heimasíðu þeirra, studentagardar.is.