2013
FORÚTHLUTUN LAXOG SILUNGSVEIÐI
stangaveiðifélag reykjavíkur
[ s í m i 5 6 8 6 0 5 0 | netfang svfr @ svfr . is | w w w . svfr . is ]
Efnisyfirlit
Hítará . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 4 Hítará . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 6 Langá á Mýrum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8 Langá á Mýrum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 10 Laxá í Dölum . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 12 Straumar í Borgarfirði . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavíkur, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, sími 568 6050. Skrifstofa SVFR er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13-17 og á föstudögum 13-16. Ritstjóri: Ásmundur Helgason Mynd á forsíðu: Jóhann T. Steinsson Útlit og umbrot: Skissa Dagsetningar, stangafjöldi og aðrar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um villur.
Norðurá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 16
Höfundar ljósmynda: Golli, Jóhann T. Steinsson, Óskar Páll Sveinsson, FFI, Mats Wibe Lund, Þorsteinn Ólafs, Bjarni Höskuldsson, Viðar Jónasson, Klaus Frimor og Henry Gilbey.
Norðurá II . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18
Stangaveiðifélag Reykjavíkur kann höfundum ljósmynda sérstakar þakkir fyrir afnot af myndum þeirra í skránni.
Laxá í Aðaldal – Nesveiðar . . . . . . . . . . . . . . . . . 20 Laxá í Mývatnssveit . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22 og Laxárdal . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 22 Leirvogsá . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 24
2
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
Kæri veiðimaður, Hér er komin rafræn söluskrá vegna forúthlutunar veiðileyfa hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur. Markmiðið er að kynna þau ársvæði og tímabil sem í boði eru á besta tíma 2013 og fyrirkomulag á sölu veiðileyfanna. Það hefur ekki farið framhjá veiðimönnum að veiðin á nýliðnu sumri var undir væntingum. Sem betur fer eru veiðimenn bjartsýnismenn að eðlisfari og því horfum við björtum augum til sumarsins 2013 og vonum og trúum að veiðigyðjan verði okkur hliðholl sem aldrei fyrr.
10 svæði í forúthlutun Í fyrstu atrennu sölunnar fyrir næsta veiðitímabil eru í boði dagar á frábærum ársvæðum, s.s. aðalsvæði Hítarár á Mýrum, Norðurá í Borgarfirði, Langá á Mýrum, Laxá í Dölum, Nesveiðar í Aðaldal, veiðisvæði Strauma og Leirvogsá. Þau tímabil sem í boði eru má sjá á yfirlitinu hér til hliðar en auk laxveiðileyfa gefst kostur á að bóka veiðileyfi í urriðaveiði í Laxárdal og Mývatnssveit líkt og undanfarin tvö ár. Þar er fjöldi daga sem í boði er sá sami og fyrir sumarið 2011, en eftirspurn eftir leyfum á urriðasvæðunum
fyrir norðan hefur farið vaxandi enda algjörlega einstök á heimsvísu. Á meðan laxveiðin stóð ekki undir væntinum sl. sumar var urriðaveiðin góð og betri en oft áður.
Sækið um tímanlega Hægt er að sækja um leyfi í forúthlutun SVFR fram til 15. október. Allir geta sótt um veiðileyfi í forúthlutun en úrvinnsla umsókna fer fram í október og liggja niðurstöður fyrir ekki síðar en 1. nóvember. Rétt er að ítreka að í forúthlutun er einungis hægt að sækja um þau ársvæði og tímabil sem eru tilgreind á yfirlitinu hér til hliðar. Önnur tímabil Ársvæði og tímabil forúthlutunar SVFR 2013 Leirvogsá Norðurá I Norðurá II Hítará I Langá Laxá í Aðaldal Nes Laxá - Mývatnssveit Laxá - Laxárdal Straumar Laxá í Dölum
8/7 – 11/8 18/6 – 20/8 28/6 – 20/8 4/7 – 20/8. 24/6 – 29/8 1/7 – 20/9 29/5 – 31/8 29/5 – 31/8 23/6 – 10/8 24/7 – 10/9
og ársvæði sem SVFR er með á sínum snærum fara í almenna úthlutun til félagsmanna SVFR líkt og tíðkast hefur. Forúthlutun veiðileyfa hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur á sér langa sögu, og hefur fyrirkomulagið gefist vel. Veiðileyfi sem ekki seljast í forúthlutun fara síðan í almenna úthlutun til félagsmanna SVFR sem hafa forgang að leyfunum. Þegar sótt er um í forúthlutun gilda þær reglur að þeir sem voru við veiðar sumarið 2012 hafa yfirleitt forgang að sínum veiðidögum 2013. Hins vegar ber að hafa í huga að mikill meirihluti þeirra sem sækja um fá úrlausn sinna mála því framboðið er mikið. Það er von Stangaveiðifélags Reykjavíkur að með þessari söluskrá geti sem flestir fundið eitthvað við sitt hæfi. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag umsókna og verðlagningu, má nálgast á skrifstofu SVFR. Hægt er að senda fyrirspurnir og umsóknir á Harald Eiríksson á netfangið halli@svfr.is. Mikilvægt er að taka skýrt fram hvaða svæði er verið að sækja um, hvaða daga og hversu margar stangir. Vinsamlegast takið fram nafn og kennitölu þess sem sækir um.
Góða skemmtun á bakkanum 2013!
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
3
Laxveiði
Hítará Undraheimur á Mýrum Hítará er meðal vinsælustu laxveiðiáa hérlendis. Undanfarin sumur hefur heildarveiði verið yfir 800 laxar, að síðasta sumri undanskildu. Þó svo að veiðin hafi dalað sumarið 2012 var lokatalan engu að síður góð – sérstaklega í samanburði við aðrar ár. Því er óhætt að fullyrða að Hítará hafi skilað jafnri og góðri veiði síðastliðinn áratug. Áin er tiltölulega vatnsmikil bergvatnsá sem á upptök í Hítarvatni og fellur til sjávar við Akraós um 30 km neðar. Á leið sinni niður Hítardal fellur hún um hraunlendi en neðan til skiptast á klappir og malareyrar.
4
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
5
Laxveiði
Hítará Undraheimur á Mýrum Veiðihúsið Lundur er líklega eitt þekktasta veiðihús landsins. Það var reist af glímukappanum Jóhannesi á Borg sem leigði veiðiréttinn um árabil, og úr gluggum hússins er útsýni yfir nokkra af bestu veiðistöðum árinnar. Þar má finna eitt stærsta safn uppstoppaðra fugla á Íslandi, auk þess sem að ýmsa muni Jóhannesar má enn finna í veiðihúsinu. Umgjörð veiðiskaparins við Hítará er því einstök, og hentar áin vel fyrir smærri veiðihópa. Sökum þessa hefur verið nær útilokað að nálgast veiðileyfi í ánni nema að allar sex dagsstangirnar séu teknar saman.
6
Veiðimönnum er skylt að gista í veiðihúsinu á meðan veiði stendur og rétt er að taka fram að eingöngu er veitt á flugu í Hítará. Veitt er í tvo daga frá hádegi til hádegis.
Í forúthlutun fyrir sumarið 2013 er til ráðstöfunar tímabilið frá 4. júlí til 20. ágúst.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
6
stangir
Eingöngu fluguveiði
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
7
Laxveiði
Langá á Mýrum Ein gjöfulasta laxveiðiá landsins Langá á Mýrum er ein af helstu laxveiðiám landsins og á sér fjölmarga aðdáendur. Langá er fjölbreytt veiðiá með um eitt hundrað skráða veiðistaði en áin á upptök sín í Langavatni 36 km frá sjó.
8
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
9
Laxveiði
Langá á Mýrum Ein gjöfulasta laxveiðiá landsins
10
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
12
stangir
Fluga og maðkur er Leyfilegt agn
Meðalveiði síðustu fimm ára í Langá er um 2.100 laxar en áratugum saman hafa landeigendur og leigutakar nostrað við ána til að tryggja að dvöl veiðimanna við Langá verði sem ánægjulegust. Vatnsmiðlun í Langavatni tryggir veiðimönnum t.d. aukabirgðir af súrefnisríku vatni og heita má að hægt sé að aka að öllum merktum veiðistöðum Langár á 26 km löngum veiðibakka. Það væsir ekki um veiðimenn í veiðihúsinu Langárbyrgi en þar er þjónusta við veiðimenn eins og best verður á kosið. Húsið er nýlegt með tólf tveggja manna herbergjum með baðherbergi og dýrindis rúmum. Í gufubaðinu er kjörið að fara yfir helstu afrek dagsins á bakkanum og í setustofunni geta menn horft dreymnir á svip yfir Hvítsstaðahyljina og lagt upp veiði næsta dags eða bara slakað á við árnið Langár eftir ljúffengar veitingar. Aðstaða fyrir vöðlur, skó og tilheyrandi er jafnframt mjög góð. Langá er meðalstór á og blátær. Átta til níu feta einhenda með línu 6-8 er kjörið veiðitæki og eru
litlar flugur alla jafnan gjöfulastar. Í Langá er fjöldi hylja þar sem kjörið er að gára vatnsyfirborðið til að egna laxinn til töku. Það er til marks um góða veiði í Langá að kvóti veiðimanna á hverri vakt er ríflegur eða 5 laxar á stöng. Það eru vinsamleg tilmæli til veiðimanna að sleppa 70 cm laxi og stærri í ána aftur í samræmi við tilmæli Veiðimálastofnunar og SVFR. Fram til 20. ágúst er veitt á flugu í ánni en frá hádegi 20. ágúst og út veiðitímann er einnig leyfilegt að veiða með maðki.
Í forúthlutun fyrir sumarið 2013 er til ráðstöfunar tímabilið frá 24. júní til 29. ágúst.
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
11
Laxveiði
Laxá í Dölum Skemmtileg veiði á söguslóðum í Dölum Laxá í Dölum hefur verið ein af fengsælustu laxveiðiám hérlendis undanfarna áratugi og verið mjög eftirsótt á meðal veiðimanna. Stærstu laxar hvers sumars eru hátt í 20 pundin.
12
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
6
stangir
Eingöngu fluguveiði
Í Laxá er veitt á sex dagstangir og er meðalveiði síðustu tíu ára um 1400 laxar. Óvíða er því að finna meiri meðalveiði á hverja dagstöng. Fluguveiði hefur aukist undanfarin ár enda hentar áin slíku agni vel. Laxá er þekkt fyrir miklar aflahrotur í vætutíð en þegar þurrkar eru getur reynt á veiðimanninn. Aðkoma að veiðistöðum er góð og er áin einstaklega þægileg til veiða á þeim 25 km kafla sem hún er laxgeng. Við Þrándargil er fallegt og mjög rúmgott veiðihús með sex tveggja manna herbergjum fyrir veiðimenn með salerni og sturtu. Í húsinu eru öll helstu þægindi, meðal annars gott gufubað. Áin hentar mjög vel samheldnum veiðihópum.
Veitt er frá hádegi til hádegis, í tvo eða þrjá daga í senn, með sex stöngum og er kvóti átta laxar á dag, fjórir laxar á hverja stöng á vakt. Óheimilt er að færa kvóta á milli dagsparta nema á heilum dögum þegar kvóti er átta laxar á dag. Á forúthlutunartímanum fram til 17.ágúst er veitt eingöngu með flugu en frá hádegi 17.ágúst er veitt með flugu og maðki.
Í forúthlutun fyrir sumarið 2013 eru dagarnir frá 24. júlí til 10. september. Heil holl ganga fyrir eins og annarsstaðar en félagsmenn eru þó hvattir til að sækja óhikað um stakar stangir.
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
13
Laxveiði
Straumar í Borgarfirði Frábær laxveiði og auðvelt aðgengi Þar sem Norðurá í Borgarfirði sameinast Hvítá er fornfrægt veiðisvæði Strauma. Svæðið er stangaveiðimönnum að góðu kunnugt og þá helst vegna þess að þar geta veiðimenn lent í eftirminnilegum ævintýrum þegar laxinn er á göngu upp í bergvatnsárnar.
14
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
2
stangir
Allt löglegt agn leyfilegt
Í Straumum veiðist lax sem gengur upp í Norðurá, Gljúfurá og Þverá auk þess sem eitthvað af laxi heldur alltaf til á svæðinu fram á haustið. Sjóbirtingur bætist í veiðina strax upp úr miðjum júlí. Frábær veiði hefur verið í Straumunum undanfarin ár og er meðalveiði síðustu ára um 350 laxar. Í Straumunum er veitt með tveimur stöngum allt tímabilið og er svæðið frábær kostur fyrir veiðimenn sem vilja vera út af fyrir sig. Því fylgir notalegt veiðihús sem geymir mikla sögu en það var byggt af enskum veiðimönnum um 1930. Í húsinu eru tvö tveggja manna herbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Við hlið þess er einnig
mjög gott nýlegt svefnhús með tveimur svefnherbergjum og snyrtingu og eru húsin aðeins steinsnar frá veiðisvæðinu. Straumarnir eru kjörið svæði fyrir samhenta hópa eða fjölskyldur þar sem nóg pláss er fyrir alla. Umhverfi Straumanna er einstakt og fjallasýnin mögnuð sem lætur engan ósnortinn.
Í Straumum er leyfður maðkur, fluga og spónn allt tímabilið. Í forúthlutun fyrir sumarið 2013 er til ráðstöfunar tímabilið frá 23. júní til 10. ágúst, einn eða tveir dagar í senn frá hádegi til hádegis.
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
15
Laxveiði
Norðurá Fegurst áa Norðurá í Borgarfirði er ein albesta laxveiðiá landsins, fjölbreytt og gjöful. Sumarið 2010 veiddust þar 2.279 laxar, 2011 var veiðin 2.134 laxar en veiðin 2012 var nærri 1.000 laxar. Sumarið 2008 var metveiði í Norðurá þegar 3.308 laxar veiddust.
16
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
12
stangir
Eingöngu fluguveiði
Undanfarin ár hefur sífellt meira borið á tveggja ára laxi og vonandi er stutt í að 20 punda laxar verði algengir á ný í Norðurá. Veiðimenn við ánna hafa sjálfir hjálpað til við þessa þróun með því að sleppa öllum laxi sem er yfir 70 sentimetrana. Veiðihúsið við Norðurá stendur á Rjúpnaási, á glæsilegum stað með útsýni að Laxfossi. Aðstaða öll og aðbúnaður er til fyrirmyndar og með því besta sem þekkist á landinu. Eldhúsið er rómað fyrir afburða góðan mat og það væsir ekki um veiðimenn við arineldinn á kvöldin. Í húsinu eru 12 tveggja manna herbergi, öll með sér baðherbergi. Þá eru í húsinu gufubað, vöðlugeymsla og mjög góð laxageymsla, bæði með frysti og kæli.
Eingöngu er heimilt að veiða á flugu og beita hefðbundnum fluguveiðistöngum. Í ánni eru 12 stangir en ekki er nauðsynlegt að sækja um heilt holl í forúthlutun.
Í forúthlutun eru þriggja daga holl á tímabilinu 18. júní til 20. ágúst.
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
17
Laxveiði Norðurá II er kjörið svæði fyrir smærri hópa sem vilja heimsækja eina albestu laxveiðiá landsins og vera í litlum hópi út af fyrir sig í góðu veiðihúsi. Um er að ræða efri hluta árinnar, eða frá Símastreng og upp undir Leitisfossa. Þarna eru fallegir og afar fjölbreyttír veiðistaðir í gríðarlega fallegu umhverfi. Veiðin undanfarin ár hefur verið um eða yfir 300 laxa á þessu svæði. Veiðin 2012 var þó undir meðallagi eins og víðast hvar annars staðar.
Norðurá II Dalurinn og Fjallið
18
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
3
stangir
Eingöngu fluguveiði
Veiðihúsið stendur við Skógarnef skammt norðan Hvamms. Útsýni frá húsinu er magnað yfir Norðurárdalinn. Húsið er með þremur tveggja manna herbergjum, eldhúskrók, stofu, borðstofu og baðherbergi með sturtu. Rafmagn er í húsinu.
Einnig eru svefnloft, gasgrill, útigeymsla og ágæt sólverönd. Veiðimenn leggja sjálfir til mat, sængurfatnað og hreinlætisvörur. Unnt er að fá þjónustu í húsið, mat og þrif, ef óskað er eftir og greiða sérstaklega fyrir.
Eingöngu er leyft að veiða á flugu á forúthlutunartímanum. Til forúthlutunar nú eru dagarnir frá 28. júní til 20. ágúst. Veitt er í tveggja daga hollum og eru stangirnar þrjár seldar saman. svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
19
Laxveiði
Laxá í Aðaldal – Nesveiðar Einstakt í sinni röð
Veiðisvæðin í Laxá í Aðaldal, sem eru fyrir landi Nesbæjanna, Hólmavaðs og Knútsstaða, njóta sívaxandi vinsælda meðal íslenskra veiðimanna. Það skal engan undra því hvergi á landinu hafa á undanförnum árum veiðst fleiri laxar, tuttugu pund og stærri, en á þessu gríðarfallega veiðisvæði. Svæðið er ekki síst sérsakt á íslenska vísu fyrir það að á mörgum veiðistöðum er veitt úr bátum. Það er sannarlega sérstök lífsreynsla að setja í stórlax úr bát!
20
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
8
stangir
Eingöngu fluguveiði
Að veiða í Laxá í Aðaldal lætur engan ósnortinn og fullyrða fjölmargir veiðimenn að þeir verði aldrei samir eftir að hafa notið hins stórbrotna umhverfis og jafnvel sett í og landað (og sleppt) einum yfir 20 pundin. Í veiðhúsinu í Árnesi fer afar vel um veiðimenn. Í setustofunni snarkar í arninum og þá fer vel um veiðimenn að loknum löngum degi í heita pottinum. Í húsinu eru sjö tveggja manna herbergi með baði, auk tveggja eins manns herbergja.
Húsið er staðsett stutt frá ánni við Nesbæina og sálin í húsinu gerir dvölina afar ánægjulega. Seldar eru 8 stangir í hverju holli en ekki er nauðsynlegt að sækja um allt hollið. Aðeins er leyfð fluguveiði og skal öllum laxi sleppt eftir viðureign.
Fyrir sumarið 2013 er allt tímabilið í boði í forúthlutun, eða frá hádegi 1. júlí til 20. september og eru seldir þrír dagar í senn. Einnig geta menn stækkað svæðið og tekið 3 stangir til viðbótar í Árbót og Tjörn. Þó ber að hafa í huga að húsið rúmar aðeins 16 veiðimenn og -konur í gistingu, en sé Árbótar og Tjarnarsvæðið tekið með, gætu 6 – 8 veiðimenn gist í veiðihúsinu Lynghól ef svo bæri undir. svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
21
silungsveiði
Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal Það er óumdeilt að veiðisvæðið í Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal er eitt fallegasta urriðasvæði á Íslandi og þó víðar væri leitað. Veiðin sumarið 2012 var mjög góð en á þessum svæðum veiðast þúsundir urriða á hverju sumri og geta menn verið að fá allt að 8 punda urriða. Þetta er draumasvæði þurrfluguveiðimanna og þeirra sem kjósa að veiða andstreymis. Um er að ræða tvö veiðisvæði, efra svæðið sem í daglegu tali nefnist Laxá í Mývatnssveit og neðra svæðið sem gengur undir nafninu Laxá í Laxárdal. Laxárdalssvæðið nær yfir meiri hluta Laxárdals eða frá veiðimörkum neðst á veiðisvæði Laxár í Mývatnssveit og niður undir Laxárvirkjun. Á svæðið eru seldar 10 dagstangir. Veiðimenn gista í veiðihúsinu að Rauðhólum þar sem í boði eru uppábúin rúm og fullt fæði. Efra svæðið nær yfir þann hluta árinnar er tilheyrir Mývatnssveit og efsta hluta Laxárdals. Á svæðið eru seldar 14 dagstangir. Veiðimenn
gista í veiðihúsinu Hofi þar sem þeir fá uppábúin rúm og fullt fæði. Einungis er heimilt að veiða á flugu og samkvæmt reglum Veiðifélags Laxár og Krákár er einungis heimilt að veiða á einkrækju og tvíkrækju. Skylt er að sleppa öllum silungi sem er undir 35 sm lengd. Einnig er mælst til þess að sleppt sé silungi sem kominn er nálægt hrygningu seint á veiðitíma. Veiðimönnum er heimilt að hirða fjóra silunga á dag eða tvo á hálfum degi.
Til forúthlutunar nú er allt tímabilið 2013 eða frá morgni 29. maí til og með kvöldi 31. ágúst. Hægt er að sækja um einn dag eða fleiri.
22
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
24
stangir
Eingöngu fluguveiði
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
23
Laxveiði
Leirvogsá er frábær laxveiðiá í fögru umhverfi rétt utan við borgarmörkin. Hún hefur sannað sig rækilega síðustu ár með hárri meðalveiði á dagstöng, þó að veiðin sumarið 2012 hafi verið undir meðallagi eins og svo víða annars staðar. Í Leirvogsá er rúmt um veiðimenn enda aðeins veitt á tvær stangir hverju sinni. Góð veiði hefur verið undanfarin ár, sumarið 2009 veiddust 877 laxar og sumarið 2010 veiddust 559 laxar í Leirvogsá. Í fyrra var lokatalan 383 en sumarið 2012 um 200 laxar.
Leirvogsá Perla í nágrenni Reyjavíkur Margir fjölbreyttir veiðistaðir prýða þessa fallegu á. Fram á síðustu ár var mest veitt á maðk í Leirvogsá en áin geymir einnig fjölda frábærra fluguveiðistaða. Leirvogsá er dragá með lindarvatnsáhrifum og er vatnasvið hennar um
það bil 85 ferkílómetrar. Hún rennur úr Leirvogsvatni og er um það bil 12 km löng, en fiskgengi hlutinn er um átta km og endar undir Tröllafossi. Fyrir utan laxinn er mikið af vænum sjóbirtingi í Leirvogsá.
Veitt er með maðki og flugu allt tímabilið. Til forúthlutunar sumarið 2013 er tímabilið 8. júlí til 11. ágúst, einn dagur í senn frá morgni til kvölds.
24
Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013 svfr.is
2
stangir
Fluga og maðkur er Leyfilegt agn
svfr.is Stangaveiðifélag Reykjavíkur // Söluskrá 2013
25
w w w . svfr . is