Fyrir foreldra
Leikskólinn Vesturkot ágúst 2016
Hvað er SMT? SMT (school management training) er kerfi til að draga úr og fyrirbyggja neikvæða hegðun og hegðunarfrávik í leik- og grunnskólum, kerfið byggir á PMTO sem er heildstæð stefna sem snýr að foreldrum og uppalendum. Aðferðir sem notaðar eru hafa verið raunprófar og niðurstöður sína árangur. Tilgangurinn er að skapa jákvætt andrúmsloft innan leikskólans. Aðferðin er innleidd í skólasamfélög til að fyrirbyggja, draga úr og stöðva hegðunarfrávik. Nemendum er mætt með samræmdum viðbrögðum alls starfsfólks þar sem áhersla er á að gefa jákvæðri hegðun gaum og almennt nálgast nemendur með jákvæðum hætti. Verkfæri aðferðarinnar eru skýr fyrirmæli, hvatning, mörk, tilfinningastjórn, eftirlit og samvinna milli heimilis og skóla. Í Vesturkoti notum við tákn sem við köllum "Bros" og fá börnin brosspjald frá starfsmönnum þegar þau eru að fara eftir fyrirmælum eða eru að bæta sig í einhverri ákveðinni hegðun. Brosunum söfnum við á sólir inni á hverri deild og þegar geislar sólarinnar eru fullur höldum við Sólarveislu. Þessar Sólarveislur geta verið t.d. saltstangir, púðaveisla, vasaljósadagur, gönguferð, bíó í salnum, náttfatadagur o.fl. Með brosunum gefa starfsmenn barninu hrós og beina athyglinni á jákvæðan hátt að því að barnið var að fara eftir fyrirmælum. Við tökum skráningarvikur nokkrum sinnum yfir árið og þá skráum við þau hegðunarfrávik sem börnin sýna en tilgangurinn með því er að finna út lausnir á þeim hegðunarvanda sem börnin glíma við. Við skoðum þá líka hvort að það sé eitthvað sem við getum breytt í umhverfi barnanna eða okkar sem getur hjálpað barninu að draga úr óæskilegri hegðun. Við leggjum upp með skýrar reglur sem við kennum nemendum okkar og leggjum áherslu á að starfsmönnum verði tamt að nota reglurnar í samskiptum sínum við nemendurna.
Einkunnarorð okkar í SMT eru Við erum snillingar að: Þar sem nemendur okkar eru snillingar að fara eftir SMT reglunum okkar
Í Vesturkoti eru 13 reglur Þær eru: Að fara eftir fyrirmælum Hugsa um sjálfa/n sig Tengjast Nota inniröddina Hafa hendur og fætur hjá sér Hlusta á þann sem er að tala Vera á sínu svæði/plássi Sturta niður, þvo og þurrka hendur Aðstoða hvert annað Ganga í kórstöðu Klæða sig í og úr á sínu svæði Hugsa vel um steinana Ganga frá í hólfið sitt
Aðalreglurnar okkar eru:
Aðalreglurnar okkar eiga við á öllum svæðum innan leikskólans
Aukareglur okkar eru:
Aukareglurnar eiga við á ákveðnum svæðum í leikskólanum en ekki öllum
Aukareglur sem tengjast fataklefanum og útisvæði eru:
Á eldri einingu er Sólarveislan kosin með lýðræðislegum hætti áður en byrjað er að safna brosum. Á yngri einingu velja kennarar veislu fyrir börnin. Full sól af brosum
Þegar snillingarnir okkar eru búnir að fylla sólina af brosum þá er haldin Sólarveisla
Dรฆmi um Sรณlarveislur
Við erum snillingar
Leikskólinn Vesturkot Sara Tosti ágúst 2016