30
VÍKURFRÉTTIR
fimmtudagur 15. desember 2016
Fjör í skólahreysti undankeppni í Heiðarskóla
■■Skólahreystikeppni Heiðarskóla fór fram í íþróttasal skólans 6. desember síðastliðinn. Það eru nemendur í 8. til 10. bekk sem taka þátt í keppninni og er þetta undirbúningur fyrir skólahreystikeppni grunnskólana sem haldin verður á næsta ári. Eftir mikla keppni þar sem allt var lagt undir voru það fjórir nemendur sem höfðu sigur úr býtum. Það voru þau Ástrós Elísa Eyþórsdóttir sem sigraði í armbeygjum og hreystigreip, Ísak Einar Ágústsson sigraði í upphífingum og dýfum og að lokum þau Eyþór Jónsson og Ingibjörg Birta Jóhannsdóttir sem fóru á bestu tímunum í gegnum hraðaþrautina. Að venju komu gamlar skólahreystikempur skólans til að sinna dómgæslu. Áhorfendur sem voru nemendur úr 5. til 10. bekk skemmtu sér vel og hvöttu keppendur áfram.
Myndir og texti: Óskar Birgisson.
Lögreglumenn Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar stöður lögreglumanna í flugstöðvardeild með starfsstöð í Flugstöð Leifs Eiríkssonars. Ráðið verður í stöðurnar frá 15. febrúar 2017. Helstu verkefni og ábyrgð: Hlutverk lögreglu er að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi; stemma stigu við afbrotum og vinna að uppljóstran brota; greiða götu borgaranna og veita yfirvöldum aðstoð við framkvæmd starfa sinna og að halda uppi almannafriði og allsherjarreglum /Lobster-Hut // s. 772-1709
Hæfnikröfur: Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins. Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er æskileg og góð enskukunnátta skilyrði. Önnur tungumálakunnátta er kostur. Góðir hæfileikar til mannlegra samskipta, skipulagshæfileikar, frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar. Lögreglustjóri mun nýta sér heimild lögreglulaga um að ráða starfsmenn sem hafa ekki lokið prófi frá lögregluskóla ríkisins að því gefnu að ekki fáist tiltækur fjöldi lögreglumanna í laus störf. Frekari upplýsingar um starfið: Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert. Starfið er vaktavinna. Áhugasamir sem áður hafa sótt um eru vinsamlegast beðnir að ítreka umsókn sína. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið með því að fara inná www.starfatorg.is og fylla út starfsumsókn þar. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 6. janúar 2017. Nánari upplýsingar veitir: Jón Pétur Jónsson - jon@logreglan.is - 4442200. Sigurgeir Ómar Sigmundsson - sos@logreglan.is - 4442200.
Gleðileg Jól og farsælt nýtt ár kæru Suðurnesjamenn Takk fyrir frábærar móttökur á þorrablótum og á bestu ljósanótt hingað til. Hittumst hress og svöng 2017. Jólakveðja frá Lobster-Hut
Sendum þér og þínum bestu óskir um
gleðileg jól og farsæld á komandi ári