3 minute read

Síauknar vinsældir hlaðvarpsþátta Hlöðunnar

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna og hafa talað um bjór í áratug að minnsta kosti, hvor um sig. Hér er Höskuldur að lýsa einhverjum öndvegis bjórnum fyrir hlustendum. Mynd / Stefán Pálsson

Hlaðan – Hlaðvarp Bændablaðsins:

Advertisement

Erla Gunnarsdóttir og Tjörvi Bjarnason Nú hefur Hlaðan, hlaðvarp Bændablaðsins, verið starfrækt í rúmt ár og fá þættir þar góða hlustun. Sífellt bætast nýir þættir í hópinn þannig að fjölbreytni og áhugaverð málefni eru sett á oddinn.

Meðal þess sem hlustendur geta hlýtt á í Hlöðunni, en það er nafn hlaðvarpsins, eru þættir um efni og auglýsingar Bændablaðsins, nýsköpun og þróun í landbúnaði, garðrækt, landgræðslu, mat, skógrækt og lífrænan landbúnað. Fleiri þættir eru í burðarliðnum en með tíð og tíma er ætlunin að byggja upp flóru hlaðvarpsþátta um fjölbreyttar hliðar landbúnaðarins.

Hlaðvörp, sem á ensku nefnast podcast, hafa notið mikilla vinsælda á síðustu misserum og æ fleiri kjósa að hlusta á hlaðsvarpsþætti við leik og störf.

Stefán Pálsson með vaska sveit manna í bjórumfjöllun í BruggVarpinu.

Hlaðvarp er í raun útvarpsþættir sem geymdir eru á netinu á svokölluðum hlaðvarpsveitum. Hægt er að sækja þætti og hlaða þeim niður í símann sinn eða í tölvuna. Kosturinn við hlaðvörp er að hlustendur hafa úr miklu úrvali að velja og geta ákveðið hvar og hvenær þeir hlusta á sína uppáhalds hlaðvarpsþætti. Hlustendur geta nálgast efni Hlöðunnar á streymisveitunum Spotify, Apple Podcasts SoundCloud, Anchor, Breaker, Google Podcasts, Overcast, Pocket Casts, Stitcher, Castbox og RadioPublic. Þættina er að auki að finna á vef Bændablaðsins, www.bbl.is.

Vilt þú gera hlaðvarpsþátt?

Stúdíó Hlöðunnar er í Bændahöllinni á skrifstofum BÍ. Þar er viðeigandi tæknibúnaður og býður Bændablaðið þáttastjórnendum þjónustu við frágang og klippingu hlaðvarpsþáttanna.

Ef þú hefur áhuga á því að gera hlaðvarpsþátt og birta undir merkjum Hlöðunnar, þá máttu gjarnan hafa samband í netfangið tb@bondi.is.

Fylgist með Hlöðunni

Fleiri hlaðvarpsþættir munu birtast í Hlöðunni á næstu mánuðum.

Sveitahljómur

Þáttur um kántrítónlist í umsjón Drífu Viðarsdóttur og Erlu Gunnarsdóttur. Í þáttunum ætla þær stöllur að beina spjótum sínum að rótum kántrítónlistar, upphafinu og rekja slóðina til dagsins í dag.

Lífrænt Ísland

Berglind Häsler, verkefnastjóri og eigandi Havarí í Berufirði, fær til sín góða gesti og ræðir um lífrænan landbúnað út frá ýmsum sjónarhornum.

Konur í nýsköpun

Alma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, jöfn tækifæri, fjölbreytni og valdeflingu kvenna til nýsköpunar.

Kaupfélagið með Jóni Gnarr

Fyrrverandi borgarstjóri, rithöfundur og hinn landskunni skemmtikraftur Jón Gnarr ræðir um efni Bændablaðsins og gefur auglýsingunum sérstakan gaum.

Viltu auglýsa í Hlöðunni?

Hlaðvarpið er enn fremur nýr auglýsingavettvangur. Fyrirtæki og þjónustuaðilar geta náð á áhugaverðan hátt til væntanlegra viðskiptavina með talsettum útvarpsauglýsingum. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Hulda Pálsdóttir auglýsingastjóri gegnum netfangið gudrunhulda@bondi.is.

Flóran

Vilmundur Hansen og Guðrún Hulda Pálsdóttir eiga það sameiginlegt að vera nokkuð upptekin af ætiplöntum. Uppistaða þáttanna eru fræðslugreinar Vilmundar um nytjaplöntur heimsins en stefnan er að taka fyrir eina nytjaplöntu í hverjum þætti.

Máltíð

Í hlaðvarpsþættinum Máltíð er fjallað um mat og matarmenningu á Íslandi. Hafliði Halldórsson matreiðslumeistari hittir áhugaverða kokka og annað fagfólk úr matvælageiranum.

Í fréttum er þetta helst

Erla Gunnarsdóttir og Vilmundur Hansen fletta gegnum nýjasta tölublað Bændablaðsins eftir útkomu hvers blaðs með kaffi og neftóbak við hönd.

Fæðuöryggi

Guðrún Hulda Pálsdóttir blaðamaður fjallar um málefni fæðuöryggis í fræðandi þáttaröð. Þar skoðar hún þetta marglaga hugtak út frá forsendum einstaklinga, framleiðenda sem og stjórnenda.

Ræktaðu garðinn þinn

Samvinnuverkefni Facebook-síðunnar Ræktaðu garðinn þinn og Hlöðunnar. Í þættinum fjallar Vilmundur Hansen, blaða- og garðyrkjumaður, um plöntur og valin fyrirbæri í garðinum á einfaldan og aðgengilegan hátt.

This article is from: