Systkinaerjur Kládíu og Rökkva byrja sem sakleysislegur hrekkur í matsal skólans en þegar átökin hafa stigmagnast í allsherjarstyrjöld (á plánetunni Amigo í tölvuleiknum FrumVeldi) þurfa systkinin að gera upp við sig hvort sigur sé virkilega fórnanna virði.
Sagan er sett fram eins og munnleg frásögn tvíburanna og vina þeirra. Heimildir eru m.a. ljósmyndir, skjámyndir, spjallsamræður og sms-skilaboð milli foreldra þeirra.
Tvíburarnir Rökkvi og Kládía eru aðalpersónur glænýs bókaflokks eftir Geoff Rodkey. Rodkey er þekktastur fyrir að hafa samið handrit að nokkrum þekktum gamanmyndum en þetta er fyrsta bókin sem er þýdd eftir hann á íslensku.
Þýðandi Hilmar Örn Óskarsson