Reikningar Nótubækur Eyðublöð Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
ÍBÚINN
frétta- og auglýsingablað
32. tbl. 8. árgangur
24. október 2013
Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari, Alexandra Chernyshova söngkona og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona koma fram á næstu tónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar í Borgarneskirkju miðvikudagskvöldið 30. október nk.
Stúlka frá Kænugarði - tónleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar í Borgarneskirkju
Alexandra Chernyshova söngkona, Jónína Erna Arnardóttir píanóleikari og Guðrún Ásmundsdóttir leikkona koma fram á næstu tónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar. Tónleikana, sem bera yfirskriftina Stúlka frá Kænugarði, hafa þær stöllur flutt áður, meðal annars í Hörpu og Selinu á Stokkalæk. Á efnisskrá eru úkraínsk þjóðlög, sum hver frá 16. öld. Þessi lög eru venjulega sungin án undirleiks eða með undirleik á kobza, sem er gamalt þjóðlegt hljóðfæri.
Á tónleikunum verða lögin flutt í útsetningum frægra úkraínskra tónskálda á borð við Lisenko, Ljatoshinskiy, Zaremba, Chisko, Verjevki og Kaufmana. Dagskráin er létt
og skemmtileg og tekur um klukkustund í flutningi. Tónleikarnir verða í Borgarneskirkju miðvikudagskvöldið 30. október næstkomandi og hefjast kl. 20.00.
Íslenskar hetjur Laugardaginn 26. október kl. 20 frumsýnir Einar Kárason Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmanns. Einar er sagnamaður af lífi og sál og hrífur áhorfendur auðveldlega með sér inn í töfraheim sagnalistarinnar. Að þessu sinni fer hann með okkur í gegnum Íslandssöguna í 1000 ár allt frá tímum Grettis Ásmundarsonar til Péturs Hoffmanns. Einar segir okkur sögur af alvöru hetjum, merkilegu og skemmtilegu fólki.
Viðburðadagatal la 26/10-11:00 Íþróttamiðst.Bgn.; Einmenningur í Boccia la 26/10-20:00 Landnámssetur; Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmanns, frumsýning Einars Kárasonar la 26/10-11:00 Íþróttamiðstöð Bgn; Einmenningur í Boccia la 26/10-14:00 Grímsstaðagirðing; Afmælishóf Skógræktarfélags Borgarfj. mi 30/10-20:00 Borgarneskirkja; Stúlka frá Kænugarði, Tónlistarfélagstónleikar fi 31/10-19:15 „Fjósið“ Dominosdeildin Skallagrímur-KFÍ fö 1/11-20:00 Landnámssetur; Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmanns la 2/11-16:00 Landnámssetur; Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmanns la 2/11-20:00 Landnámssetur; Ómar æskunnar mi 6/11-20:00 Edduveröld; Rússakvöld fi 7/11-10:00 Reykholt; Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Vesturlandi fö 8/11-20:00 Landnámssetur; Ómar æskunnar la 9/11-20:00 Landnámssetur; Íslenskar hetjur frá Gretti til Péturs Hoffmanns su 10/11-20:00 Landnámssetur; Íslenskar Annað í gangi: Börn í 100 ár í Safnahúsi 13-17 alla daga Edduveröld o.vd. 10-23 & 10-01 helgar Hamarsvöllur; pútt fyrir eldri borgara fimmtudaga kl. 14.00 Heiðarborg; Vatnsleikfimi opin öllum þri kl. 15 og lau kl. 10 Íþróttamiðst.Bgn. Frjálsíþróttaæfingar þri & fi kl. 17.00-18.30 Íþróttamiðst.Bgn. Boccia lau 11-12 Landbúnaðarsafnið o. eftir samkomulagi Landnámssetur opið daglega 10-21 Laxárbakki opið alla daga 10-22 Nytjamarkaður Brákarey laugd. 12-16 Páll á Húsafelli opið eftir samkomulagi RKÍ fatabúð Bgn o. fö 12-18 & lau 12-15 Safnahús Borgarfjarðar alla daga 13-17 Samgöngusafnið þri 19-22 lau 13-17 s. 862 6223 & 692 5201 Snorrastofa sýningar alla daga Ullarselið opið fi-fö-lau kl. 13-17 Veiðisafnið Ferjukoti eftir samkomulagi Þórisstaðir húsdýragarður opið 10-17 Birting viðburða er án endurgjalds og tímasetningar ekki sannreyndar
BARNAHORNIÐ Geturðu fundið leiðina fyrir fuglinn í gegn?
Getum við aðstoðað þig?
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta
sími: 437 2360
Sjáum um alla þætti útfara á Vesturlandi og víðar. Sími: 898-9253 / 437-1783
ÚTFARARÞJÓNUSTA BORGARFJARÐAR
Stimplar Fjölritunar- og útgáfuþjónustan s: 437 2360
ÍBÚINN frétta- og auglýsingablað
Netfang: olgeirhelgi@islandia.is Útgefandi: Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Ritstj. og áb.: Olgeir Helgi Ragnarsson Íbúanum er dreift með Íslandspósti á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmer 301, 310, 311, 320 & 356. Upplagið er 2.000 eintök. Íbúinn kemur að jafnaði út á fimmtudögum. Auglýsingasími: 437 2360
Leikhúsferð Félag eldri borgara Borgarnesi og nágrenni
Miðvikud. 6. nóvember verður farið í Borgarleikhúsið að sjá “Jeppa á fjalli”. Sýningin hefst kl. 20:00. Miðaverð kr. 3.000 Tekið á móti miðapöntunum hjá Björk 437-1228, Jenný 437-1305 eða Ragnheiði 437-1414 fyrir 25. október nk. Einnig er þátttökulisti í Félagsstarfinu, þar sem miðar verða svo afhentir föstudaginn 1. nóv. milli kl. 14 og 15:30. Farið verður frá “Blokkinni” kl. 18:30
ÍBÚINN fer inn á öll heimili og fyrirtæki í póstnúmerum 301, 310, 311, 320 og 356
Láttu vita af þér! - Auglýsing í Íbúanum kemst til skila Auglýsingasími: 437 2360 Getum við aðstoðað þig?
Fjölritunar- og útgáfuþjónustan sími: 437 2360
Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifibréf - Boðsbréf - Ritgerðir - Skýrslur Nafnspjöld - Merkispjöld - Reikningar - Eyðublöð
Karfan fær aukna styrki Fyrir nágrannaslag Skallagríms og Snæfells fimmtudaginn 17. október s.l. var skrifað undir styrktar- og samstarfssamning á milli körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Loftorku í Borgarnesi. Samningurinn er til þriggja ára. Forystumenn Körfuknattleiksdeildarinnar eru ánægðir með að nú eru heimafyrirtæki í enn ríkara mæli en undanfarin ár að koma að stuðningi við körfuknattleiksdeild Skallagríms. Á undanförnum vikum hafa m.a. verið gerðir samningar við Eðalfisk, LímtréVírnet, Lögfræðistofu Inga Tryggvasonar og fleiri aðila í heimahéraði um stuðning við körfuboltann. Stuðningurinn nær bæði til stuðnings við úrvalsdeildarlið Skallagríms sem og til starfs
Styrktar- og samstarfssamningur undirritaður. Sigursteinn Orri Hálfdánarson Skallagrími, Bergþór Ólason fjármálastjóri Loftorku í Borgarnesi, Eðvar Ólafur Traustason gjaldkeri körfuknattleiksdeildar Skallagríms og Kristján Örn Ómarsson Skallagrími. Ljósmynd: Ómar Örn Ragnarsson
yngri flokka Skallagríms en nú eru um 130 iðkendur sem leggja stund á íþróttina á vegum Skallagríms, 18 ára og yngri.
Samtals eru iðkendur um 160 talsins og eru þeir á aldrinum frá 5 ára og upp í 65 ára.
stúlka frá kænugarði Þjóðlög frá Úkraínu Október 2013 47.starfsár 2.verkefni *
Söngtónleikar í Borgarneskirkju miðvikudaginn 30. október kl. 20 Alexandra Chernyshova, söngkona Jónina Erna Arnardóttir, píanóleikari
Næsta verkefni: Arnaldur Arnarson Gítartónleikar í
Kynnir Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona
Reykholtskirkju þriðjudaginn 12.nóvember
Útsetningar frægra úkraínskra tónskálda á borð við Lisenko, Ljatoshinskiy, Zaremba, Chisko, Verjevki og Kaufmana
Aðgangseyrir kr. 1500,
Létt og skemmtileg dagskrá í um klukkustund
Athugið að ekki er tekið
kl. 20:30
frítt fyrir félaga og börn Eldri borgarar kr. 1000
* við greiðslukortum
Stjórn Tónlistarfélags Borgarfjarðar