Dagskrá Föstudagur 9. febrúar
Laugardagur 10. febrúar
17:30 Brottför frá Holtavegi 28 18:30 Komið sér fyrir 19:00 Mótsetning og kvöldmatur 19:30 Frjáls tími 20:30 Kvöldvaka 21:45 Kvöldkaffi 22:00 Frjáls tími -Brennómót -Rabbabari -Spil -Heitir pottar 23:30 Kapellustund 01:00 Ró
08:30 Hanagal 09:00 Morgunmatur 09:30 Morgunstund 10:30 Workshop 12:30 Hádegismatur 13:30 Landsþing unga fólksins 15:00 Kaffi 15:30 MIP 17:00 Frjáls tími 18:30 Hátíðarkvöldverður 19:30 Kvöldvaka 21:30 Ball með Dj Ljóma og JóaPé og Króla 23:30 Kyrrð í Birkiskála -Snarl í mataskála -Draugahús 00:30 Kapellustund 01:00 Ró Sunnudagur 11. febrúar 10:00 Leiðtogagól 10:30 Brunch 11:00 Pökkun og þrif 11:40 Mótslit 12:00 Heimferð
JóiPé og Króli munu skemmta á ballinu á laugardagskvöldinu!
Æskulýðsmótið
Friðrik 150 ára afmæli stofnanda KFUM og KFUK
Fyrir 8.-10. bekk Vatnaskógi 9.-11. febrúar 2018
Íþróttir, leikir, söngvar, ball og endalaus skemmtun!
Æskulýðsmótið Friðrik er mót þar sem unglingadeildir KFUM og KFUK eiga frábærar stundir saman. Þar kynnumst við öðru ungu fólki og tökum þátt í skemmtilegri dagskrá með boðskap Jesú Krist að leiðarljósi. Á laugardeginum verður haldið Landsþing unga fólksins. Þar gefst ungu fólki kostur á því að koma sínum hugmyndum um starf KFUM og KFUK á framfæri. Mótið, sem haldið verður í Vatnaskógi 9.–11. febrúar er árlegur viðburður í starfi KFUM og KFUK.
Hvað verður gert? Dagskráin er stútfull af allskonar fjöri og það er nóg í boði fyrir alla. Má þar nefna kvöldvökur, workshop, Landsþing unga fólksins, hátíðarkvöldverð, ball með Dj Ljóma og JóaPé og Króla, brennómót og margt, margt fleira.
Aldur? Mótið er fyrir unglinga í 8.–10. bekk grunnskóla.
Verð og skráning Verð á mótið er 16.900 kr. Innifalið er gisting, matur, rútuferðir og mótshúfa. Skráning og greiðslur fyrir mótið fer alfarið fram á netinu, á bókunarvef KFUM og KFUK www.sumarfjor.is. Skráning opnar mánudaginn 8. janúar 2018. Allra síðasti skráningardagur er sunnudaginn 4. febrúar. Ekki verður hægt að skrá fleiri á mótið eftir það.
Hvað þarf að taka með? Svefnpoka eða sæng og kodda, lak, snyrtivörur, hlý föt og útiföt, íþróttaföt, sundföt, handklæði, góða skó og auðvitað GÓÐA SKAPIÐ!
Nánari upplýsingar Allar nánari upplýsingar um mótið má fá hjá leiðtogum hverrar deildar, en einnig er hægt að hafa samband við Gunnar Hrafn æskulýðsfulltrúa KFUM og KFUK, í síma 862-0611 eða á netfanginu: gunnar@kfum.is
Hvenær? Lagt verður af stað frá KFUM og KFUK húsinu Holtavegi 28 föstudaginn 9. febrúar kl. 17.30. Komið verður heim á sunnudeginum kl. 13:00. Brottför frá öðrum stöðum verður auglýst þegar nær dregur móti.
Hlökkum til að sjá ykkur! Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
Snapchat: kfumkfukiceland Facebook: @fridriksmot Instagram: #fridrik18