2 minute read

Hrannar frá Flugumýri

Hrannar frá Flugumýri II

IS2006158620

F Y R I R A F K V Æ M I

Litur: Brúnn/milli- einlitt (2500). Ræktandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Páll Bjarki Pálsson Eigandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Júlía Kristín Pálsdóttir, Þórdís Inga Pálsdóttir

Upplýsingar:

Hrannar hefur bæði sannað sig sem frábær keppnis og kynbótahestur. Íslandsmeistari í fimmgang og tvöfaldur Landsmótssigurvegari. Einnig hlaut hann 1.verðlaun fyrir afkvæmi á síðasta Landsmóti.

Upplýsingar um notkun veitir Eyrún Ýr Pálsdóttir í síma: 849-412 og netfang: eyrunyr88@hotmail.com

Kraftur frá Bringu (8.55)

Hending frá Flugumýri (8.08) Gáski frá Hofsstöðum (8.32)

Mynd: aðsend

Gustur frá Hóli (8.57) Abba frá Gili (8.03) Sólon frá Hóli v/Dalvík (8.31)

Salka frá Kvíabekk (7.88) Fluga frá Miklabæ (7.59) Gustur frá Sauðárkróki (7.91)

Kveikur frá Miðsitju (8.25) Perla frá Reykjum (8.07) Freyr frá Flugumýri (8.07)

Harpa frá Flugumýri (7.85) Iða frá Flugumýri

Umsögn úr afkvæmadómi:

Hrannar gefur hross í meðallagi að stærð með gróft höfuð en svipgott. Hálsinn er langur og reistur við skásetta bóga en mætti vera fínlegri upp í kverk. Bakið er afar burðarmikið og vel vöðvafyllt og lendin öflug. Afkvæmin eru fótahá og létt á bolinn. Fætur eru þurrir á sinar en grannir. Hófar eru efnisgóðir og vel formaðir en prúðleiki er afar slakur. Hrannar gefur hreingeng og skrefmikil hross með fjaðrandi hreyfingar. Tölt og brokk er takthreint og lyftingargott og skeiðið takthreint sé það fyrir hendi. Stökkið er létt og teygjugott og takthreint á hægu og fetgangur góður. Hrannar gefur lofthá og lyftingarmikil hross með þjálan og góðan vilja sem fara fallega í reið Hæsti dómur (2012) og kynbótamat (BLUP) Knapi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Hæð á herðakamb: 144 cm. Höfuð 7.5 Slök eyrnastaða 94 Háls, herðar og bógar 8.5 Reistur, Skásettir bógar, Háar herðar 103 Bak og lend 8 Beint bak 119 Samræmi 9 Léttbyggt, Fótahátt 114 Fótagerð 8 Mikil sinaskil, Öflugar sinar 98 Réttleiki 8 113 Hófar 9 Efnisþykkir, Þykkir hælar, Hvelfdur botn 108 Prúðleiki 7 80 Sköpulag 8.39 113 Tölt 9.5 Taktgott, Há fótlyfta, Skrefmikið, Mjúkt 115 Brokk 9.5 Rúmt, Taktgott, Skrefmikið, Svifmikið 117 Skeið 9 Takthreint, Öruggt, Mikil fótahreyfing, Skrefmikið 114 Stökk 8.5 Teygjugott, Hátt 117 Vilji og geðslag 9.5 Ásækni, Þjálni, Vakandi 121 Fegurð í reið 9 Mikið fas, Góður höfuðb., Mikill fótaburður 116 Fet 8 Taktgott 108 Hægt tölt 9 117 Hægt stökk 8.5 Hæfileikar 9.16 123 Aðaleinkunn 8.85 125 Hæfileikar án skeiðs 121 Aðaleinkunn án skeiðs 122 Fj. skráðra afkv. þegar kynbótaútr. var gerður: 314. Fjöldi dæmdra afkvæma: 32.

This article is from: