10bekkur2011_2012

Page 1

10. bekkur Skipulag skólastarfs Í 10. árgangi eru 3 bekkir, hver með sinn umsjónarkennara. Faggreinakennsla einkennir skipulagið í 10. bekk auk valgreina, hver kennari hefur sína stofu og nemendur fara á milli. Umsjónarkennari í unglingadeild kennir lífsleikni auk sinnar greinar eða greina. Lögð er áhersla á að umsjónarkennari kenni mikið í sínum bekk. Ennfremur er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, samvinnu nemenda og samvinnu kennara.

Skólaárið 2011-2012 munu kennarar innleiða kennsluaðferð sem nefnist Orð af orði - lestur til náms í 4.-10. bekk. Markmiðið er að auka lesskilning nemenda og að þeir efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasöfn á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning. Ýmsar leiðir verða farnar til að vinna með orð og texta, t.d. hugtakakort, upplýsingatækni og yndislestur. Nemendum verða kenndar aðferðir til að læra orð og efla orðaforða, s.s. með aðferðum gagnvirks lestrar og kennt að tengja á milli þess sem þeir þekkja og vita fyrir og þess nýja sem þeir eru að fást við. Meðal verkefna verða orð dagsins, rím, krossglíma, orðaleit, orðtök og málshættir, yndislestur, hugtakakort og gagnvirkur lestur. Á haustönn verður markvisst unnið með orðaforða í 10 vikur a.m.k. þrisvar í viku í tveimur fögum. Á vorönn verður síðan lögð áhersla á markvissa vinnu í notkun hugtakakorta. Lesskilningspróf verða lögð fyrir þrisvar á skólaárinu í september, desember og maí til þess að mæla árangur. Kennsla hefst alla daga kl. 8:10. Nemendur borða morgunnesti í frímínútum kl. 9.30-9.50 og mælt er með því að að þeir komi með ávexti eða grænmeti og vatn í brúsa. Það verður þó að gera ráð fyrir að þessir nemendur þurfi meira en það þar sem hádegismatur fyrir þá er afgreiddur í mötuneyti kl. 12.40.

Í 10. bekk eru kjarnagreinar 30 stundir en valgreinar 7 stundir. Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra og forráðamenn, kennara og námsráðgjafa. Valgreinar eru kenndar eftir hádegið og reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast. Í sumum greinum er 9. og 10. bekk blandað saman í námshópa. Heimanám Hver kennari setur upplýsingar um heimanám inn í Mentor upplýsingakerfið þar sem það er aðgengilegt nemendum og foreldrum.

Íslenska Yfirmarkmið Áhersla er lögð á skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi íslenskrar tungu og bókmennta. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir margbrotnu hlutverki móðurmálsins í daglegu lífi og notkun þess við ólíkar aðstæður og nái á þessu skólastigi valdi á þeim þáttum móðurmálsins sem aðalnámskrá grunnskóla kveður á um. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -1-


Lestur og bókmenntir Markmið Að nemendur:  geti lesið og skilið fremur þunga texta  geti lesið áheyrilega upphátt fyrir hlustendur  geti lagt mat á mismunandi túlkun atburða  geti tekið þátt í umræðum um lesna texta  geti lesið og túlkað töflur og myndrit  þjálfist í notkun orðabóka  kunni hugtök í bókmenntum  geti lesið fagurbókmenntir sér til ánægju  kunni algengustu bragarhætti  verði færir um að túlka myndmál  þekki mun á mismunandi bókmenntaformum  noti margmiðlunarefni til að dýpka skilning sinn Leiðir að markmiðum Nemendur: Lesa eina Íslendingasögu og skrifa útdrætti úr hverjum kafla. Lesa eina nútímaskáldsögu sem fjallað er um munnlega. Lesa úrval ljóða. Lesa nokkrar þjóðsögur. Lesa tvær kjörbækur að eigin vali og skrifa umsögn og ritgerð um þær. Lesa valda texta úr blöðum og tímaritum. Skrá í reglubók (hugtakakort, orðskýringar). Námsgögn Gísla saga Súrssonar. Englar alheimsins eftir Einar Má Guðmundsson. Ljóðspeglar. Ljóð í tíunda. Hugtakarolla. Ljósrituð verkefni. Blöð og tímarit. Tvær kjörbækur. Reglubók. Námsmat Vinnubækur nemenda eru metnar m.t.t. vinnubragða og að farið sé að fyrirmælum. Skrifleg próf eru með reglulegu millibili. Þátttaka í hópvinnu og framganga í tímum metin. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10.

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -2-


Talað mál og framsögn - Hlustun, áhorf og lesskilningur Markmið Að nemendur:  geti tjáð sig á góðu máli í umræðum og frammi fyrir bekkjarfélögum  geti gert grein fyrir skoðunum sínum og rökstutt þær  tileinki sér viðeigandi framkomu þegar hlustað er á upplestur og/eða umræður  þjálfist í að flytja stutt ávörp  þjálfist í að hlusta á texta af snældu og svara spurningum  þjálfist í að lesa margvíslega texta og svara spurningum úr þeim Leiðir að markmiðum Kennari les fyrir og með nemendum í bókmenntatímum. Nemendur tjá sig um ýmis málefni í pontu. Nemendur fjalla munnlega um persónur og atriði úr bókmenntatextum. Nemendur horfa á íslenskar kvikmyndir. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 3. Bókmenntatextar. Blaða- og tímaritsgreinar. Efni úr fréttum. Íslenskar kvikmyndir. Reglubók. Námsmat Sjálfsmat. Jafningjamat. Kennaramat.

Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Ritun Markmið Að nemendur:  kunni helstu stafsetningarreglur  öðlist góða færni í greinarmerkjasetningu  noti stafsetningarorðabækur  þjálfist í uppsetningu og réttum frágangi eigin texta  geti skrifað góða útdrætti og ritgerðir  geti tekið glósur í almennu námi  tileinki sér læsilega rithönd  geti gengið frá efni á tölvutæku formi  vandi mál sitt  hafi öðlast leikni í heimildavinnu  skrifi tvær kjörbókarritgerðir  skrifi að meðaltali eina stutta ritgerð í mánuði Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -3-


Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Ritgerðaskrif. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 3. Gullvör 3. Skriffinnur. Réttritunarorðabók. Handbækur – orðabækur. Ljósrituð verkefni. Reglubók. Gagnvirkt efni af netinu. Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Mat á ritunarverkefnum. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Málfræði og málnotkun Markmið Að nemendur:  þekki alla orðflokka  kunni allar beygingarmyndir og orðflokkana  kunni helstu hljóðbreytingar og þekki staðbundinn framburð eftir landshlutum  kunni skil á orðmyndunarfræði  hafi setningarfræði á valdi sínu  nemendur þekki vefslóð Námsmatsstofnunar namsmat.is og geti notfært sér hana Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Vinna með ýmis orð, orðhluta og hugtök (hugtakakort). Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 3. Gullvör 3. Málfinnur. Ljósrituð verkefni og leiðbeiningar. Orðabækur. Handbækur um málfræði. Textar úr ýmsum áttum. Reglubók. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -4-


Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Þátttaka í tímum, þ.m.t. skráning í reglubók. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10.

Stærðfræði Markmið (þrep 19 í Mentor) Að nemendur:  hafi náð færni í að reikna samsett dæmi af ýmsu tagi þar sem reikniaðgerðum er blandað saman við veldi og sviga og getur einfaldað margvíslegar táknasamstæður  hafi náð færni í að margfalda upp úr svigum og þátta fyrsta og annars stigs margliður  geti notað veldareglur um heiltöluveldi í margvíslegu samhengi  hafi náð góðu valdi á einföldun og lausn fyrsta stigs jöfnu með einni óþekktri stærð  hafi náð færni í aðferðum til að leysa saman tvær fyrsta stigs jöfnur með tveimur óþekktum stærðum  geti leyst einföld orðadæmi með því að setja upp og leysa saman tvær fyrsta stigs jöfnur  geti leyst einfaldar annars stigs jöfnur með þáttun og þekkir feril annars stigs falls, þ.e. fleygboga  hafi náð góðum tökum á því að sína línulegt samband tveggja þátta, getur fundið hvort línur  skerast og reiknað skurðpunkta þeirra  hafi náð góðum tökum á því að sína línulegt samband tveggja þátta, getur sett jöfnu beinnar línu fram í hnitakerfi og kann að reikna út skurðpunkt við y-ás og hallatölu beinnar línu.  geti reiknað einfaldan líkindareikning  geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra  hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni Markmið (þrep 20 í Mentor) Að nemendur:  þekki hugtökin ferningsrót og ferningstala og kann skil á útreikningum með þeim  geti notað reglu Pýþagórasar til að kanna hvort þríhyrningar eru rétthyrndir og getur beitt reglu Pýþagórasar við útreikninga á hliðarlengdum í rétthyrndum þríhyrningum  geti reiknað rúmmál mismunandi þrívíðra forma  geti reiknað yfirborðsflatarmál mismunandi þrívíðra forma  kunni skil á lengdar-, flatar- og rúmmálseiningum í metrakerfi og þekkir samband þeirra innbyrðis og getur breitt milli eininga Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -5-


 þekki mengi heilla talna, náttúrlegra talna, ræðra talna og rauntalna og táknheiti þeirra, N, Z, Q og R og kann góð skil á náttúrlegum, heilum og ræðum tölum og hefur kynnst óræðum tölum  kunni skil á hugtökunum mengi, stak, hlutmengi, sammengi og sniðmengi  hafi náð góðum tökum á reikningi með almennum brotum, og blöndnum tölum og getur einfaldað brotabrot  kunni skil á prósentuhugtakinu og er fær í prósentureikningi sem algengur er í þjóðfélaginu  sýni þekkingu og skilning á hugtökunum tíðni, hlutfallstíðni, tíðnidreifing, meðaltal, vegið meðaltal, úrtak, tíðasta gildi og miðgildi og þekkir algengar aðferðir til að setja fram töluleg gögn  geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra  hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni Leiðir að markmiðum Nemendur fá sex kennslust. á viku. Lögð er áhersla á innlögn þar sem nemendur taka þátt með umræðum og skrái niður allar reglur, hugtök og útskýringar á þeim ásamt sýnidæmum í reglubók. Í kennslustundum er einstaklingsvinna með aðstoð kennara en sjálfstæð vinnubrögð, umræður og samvinna nemenda er einnig stór þáttur. Þjálfun er mikilvægur hluti stærðfræðináms og því mikil áhersla á að nemendur reikni heima daglega. Námsgögn Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla III, e. Lars-Eric Björk o.fl. Ýtarefni: Átta-tíu, e. Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir. Heimadæmi og annað þjálfunarefni. Námsmat Í janúar fá nemendur eina einkunn, skólaeinkunn sem byggir á: - kaflaprófum - stöðuprófi - skyndiprófum - heimadæmum - reglubók Í lok skólaárs fá nemendur tvær einkunnir Skólaeinkunn sem byggir á: - Kaflaprófum - Stöðuprófum - Skyndiprófum - Heimadæmum - Reglubók og prófseinkunn úr lokaprófi sem tekið er í maí. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -6-


Erlend tungumál Enska Áfangamarkmið: Að nemendur hafi tileinkað sér: Í hlustun:  að hlusta á mismunandi hátt eftir upplýsingum í töluðu máli  að skilja leiðbeiningar og fyrirmæli  að skilja þegar nokkrir tala saman Í lestri:  að geta lesið bókmenntir, fræðsluefni, blaða- og tímaritsefni  að geta lesið í mismunandi tilgangi Í töluðu máli:  að geta tjáð sig skýrt og áheyrilega  að geta gefið upplýsingar um sjálfan sig, íslenska menningu og umhverfi  að geta tekið þátt í samskiptum við enskumælandi fólk á eðlilegan hátt  að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður Í ritun:  að geta tjáð sig skipulega, skiljanlega og á viðeigandi hátt.  að kunna helstu málfræðireglur Þrepamarkmið Í hlustun: Að nemendur  geti skilið fyrirhafnarlítið þegar talað er um málefni sem þeir þekkja  geti skilið meginþráð í fréttaefni og umræðum um efni sem þeir þekkja  geti skilið þegar talað mál og myndefni fara saman Í lestri:  geti lesið og skilið aðgengileg bókmenntaverk, blaða- og tímaritsefni.  geti nýtt sér orðabækur  geti beitt mismunandi lestrarlagi Í töluðu máli:  geti notað ensku til samskipta í kennslustofunni og hafi náð liprum tökum á framburði, ítónun, áherslum og hrynjandi  geti bjargað sér við óvæntar aðstæður  geti beitt helstu málfræðiatriðum í rituðu og töluðu máli Í ritun:  geti skrifað samfelldan, viðeigandi og skipulegan texta  geti tjáð sig um óskir sínar, þarfir, tilfinningar og skoðanir Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -7-


 geti beitt almennum og sértækum orðaforða í ritun  geti beitt reglum um orðaröð  geti beitt helstu málnotkunarreglum um ritmál Leiðir að markmiðum  unnið er með tölvur, myndbönd, snældur, dagblöð, skáldsögur og fjölda ljósritaðra lestexta og verkefni tengd þeim. Nemendur eru þjálfaðir í að tala ensku. nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði  nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur  innlögn á málfræðiatriðum sem nemandi skráir í reglubók- þjálfað með verkefnaheftum  valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings  nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil  æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinamerki o.fl.  umræður um ýmis málefni á ensku  unnið með myndbönd og tónlistartexta Námsgögn Matrix 3 vinnubók eftir Jayne Wildman. Texts & Tasks eftir Höllu Thorlacius, Helgu Jensdóttur og Kristínu Guðmundsdóttur, safn greina úr dagblöðum og tímaritum. Nemendur hlusta á valdar sögur og gera verkefni úr þeim. Mikil áhersla er lögð á lestur bóka og nemendur lesa þrjár til fjórar valdar skáldsögur heima og skila verkefnum eða ritgerð úr þeim. Ennfremur margs konar verkefni sem kennari leggur fyrir til að þjálfa málfræði, lesskilning, hlustun og ritun.

Námsmat Þrjú skrifleg próf yfir veturinn sem samanstanda af: hlustunar-, lesskilnings-, málfræði og ritunarverkefnum. Skil á verkefnaheftum. Glósupróf. Sagnapróf. Próf úr skáldsögum. Hópvinna nemenda er metin með jafningja- og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings. Munnleg próf.

Danska Þrepamarkmið Að nemendur:  geti skilið fyrirhafnarlaust venjuleg fyrirmæli og leiðbeiningar í daglegu lífi  geti fylgt atburðarás í frásögn (3-5 mín) sem tengjast orðaforða efnisflokka sem unnið er með  geti beitt fyrirhafnarlaust leitarlestri þar sem þeir leita eftir ákveðnum upplýsingum Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -8-


 geti skilið megininntak lengri texta t.d. blaðagreina, smásagna eða skáldsagna og haldið þræði án þess að skilja hvert einasta orð  geti beðið um leyfi eða aðstoð á dönsku og rætt um ákveðið efni sem fjallað hefur verið um  geti haldið ræðu í 2 - 3 mín. um undirbúið efni út frá lykilorðum Leiðir að markmiðum Unnið er með tölvur, myndbönd, snældur, dagblöð, skáldsögur og fjölda ljósritaðra lestexta og verkefni tengd þeim. Nemendur eru þjálfaðir í að tala dönsku. nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði. Nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur. Innlögn á málfræðiatriðum sem nemandi skráir í reglubók- þjálfað með verkefnaheftum Valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings. Nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil. Æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinamerki o.fl. Umræður um ýmis málefni á dönsku. Unnið með myndbönd og tónlistartexta. Viðfangsefni Ást og vinátta, fjölskylda og ættingjar, tilfinningar og líðan, persónulýsingar, samskipti fólks og daglegt líf í Danmörku, fjölmiðlar, algeng störf og starfsheiti, lífstíll, líkamsrækt og lífsvenjur, íþróttir, skólar og menntastofnanir, spennuefni, framtíðardraumar og tækninýjungar. Matur og máltíðir, eldamennska. Námsgögn Ekko, textabók og vinnubók, Sådan eftir Annelise Larsen Kaasgaard og Guðlaugu Ósk Gunnarsdóttur. Dönsk hlustunarefni og ítarefni, gömul samræmd próf ,blaða- og tímaritsgreinar. Myndbandsverkefni úr verkefnasafninu Og det er Danmark, eftir Elísabetu Valtýsdóttur, Ernu Jessen og Hlín Helgu Pálsdóttur. Smásögur til lestrar heima og í skóla. Danskar kvikmyndir og tónlist. Grammatik, málfræðihefti með verkefnum e. Arnbjörgu Eiðsdóttur og Kristínu Jóhannesdóttur. Námsmat Lagt er mat á kunnáttu og framfarir nemenda reglulega yfir veturinn. Leitast er við að meta alla færniþætti námsins eftir markmiðum námskrár og sem flest atriði í vinnu nemenda til skólaeinkunnar. Kannanir og kaflapróf miðast við þann orðaforða og málfræðiatriði sem unnið er með í tímum og æfð heima. Í námsmati skal einnig horft til vinnusemi og virkni nemenda. Skólaeinkunn  Kaflapróf úr námsefni eftir hverja lotu samkv.námsáætlun (50%)  Stuttar kannanir úr ákveðnum efnisþáttum (15%)  Ritunar- hlustunar- og munnleg próf (15%)  Vinnubækur og önnur skil, vinnusemi og virkni (20%) Skólaeinkunn á haustönn gildir 50% ámóti skólaeinkunn á vorönn. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur -9-


Prófseinkunn:  Vorpróf gildir 50% á móti skólaeinkunn Vægi einstakra námsþátta prófsins í heild er eftirfarandi: Skilningur á mæltu máli 25% Skilningur á rituðu máli 40% Málnotkun 25% Munnleg færni 10%

Samfélagsgreinar Í 10. bekk fá nemendur tvo tíma á viku í þjóðfélagsfræði. Markmið Að nemendur:  öðlist skilning á uppbyggingu samfélagsins og hvernig samfélagið mótar manninn og maðurinn samfélagið  tileinki sér helstu hugtök á sviði stjórnmála, kynnist íslenska flokkakerfinu og læri að þekkja helstu stofnanir íslenska stjórnkerfisins  kynnist því alþjóðasamstarfi sem Ísland er aðili að, t.d. Sameinuðu þjóðunum og Atlantshafsbandalaginu  geri sér grein fyrir mikilvægi aðþjóðasamstarfs fyrir litla þjóð Leiðir að markmiðum Nemendur lesa kennslubókina og vinna með textann bæði í umræðuformi og skriflega. Hópverkefni þar sem nemendur verða að afla sér upplýsinga og kynna verkefnið sitt fyrir samnemendum sínum. Myndbönd. Viðfangefni Sjálfsmynd, réttindi og skyldur, samfélag, lýðræði, vald og stjórnmál, stjórnskipan Íslands, Ísland og alheimssamfélagið. Námsgögn Þjóðfélagsfræði fyrir 10. bekk eftir Garðar Gíslason, blaðagreinar, netið og myndbönd. Námsmat  Vinnubækur nemenda eru metnar út frá vinnubrögðum og að farið sé að fyrirmælum  Fjögur skrifleg lokapróf  Hópvinna nemenda er metin með jafningjamati og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og fluttnings

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 10 -


Náttúrufræði og umhverfismennt

Lífvísindi Markmið Að nemendur:  kynnist völdum þáttum úr þróunarsögunni á jörðinni  þekki öll líffærakerfi mannslíkamans til hlítar og geri sér grein fyrir að lífið og líkaminn er stöðugum breytingum undirorpinn  skilji að allir meðfæddir eiginleikar erfast frá foreldrum  þekki gerð og byggingu fruma m.t.t. erfða  Þekki tækninýjungar í erfðafræði og þar með talið nýjungar tengar læknisfræði og erfðasjúkdómum  geri einfaldar athuganir á eigin líkama  Þekki heilbrigði og hollust  kunni skil á næringarfræði  þekki flokkanir lífvera  þekki þróunarkenningar, náttúruval og aðlögun lífvera á jörðinni m.a. Ísland ( rjúpan )  þekki Íslenska lífríkið og breytingar sem orðið hafa á því og kunna auk þess að verða  þekki framleiðslu á ýmsum mikilvægum efnum m.a. ensímum, örverum, sveppum o.fl.  vinni vistfæðiverkefni er tengist landi og þjóð  þekki DNA og RNA  geti gert reitatöflur og fundið út úr erfðum – og erfðasjúkdómum  þekki sögu mannsins á jörðinni  þekki skyldleika á milli lífvera  þekki notkun á fósturfræði, eðlislíkum þáttum og steingervingur  þekki blóðflokka og erfðir þeirra manna í millum  þekki kenningar Mendels og annarra erfðafræðinga  Leiðir að markmiðum Námið fer fram í formi hóp- og einstaklingskennslu, teymisvinnu, samþættingu námsgreina o.fl. Námsgögn Erfðir og þróun, Heilsubót o.fl. Námsmat Kaflapróf 50 %, virkni og vinnusemi í tímum 30 % og heimavinnuskil 20 %. Einkunnir eru á skalanum 1 – 10.

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 11 -


Eðlisvísindi Markmið Að nemendur:  skilji hvernig orka getur breyst úr einu formi í annað: hreyfi-, stöðu-, varma-, efna-, rafsegul-, geisla- og kjarnorku  skilji að orka hvorki eyðist né myndast  geri sér grein fyrir skynjanlegum eiginleikum ljóss, svo sem speglun, ljósbroti og litrófi  þekkji helstu gerðir rafsegulbylgna og áhrif þeirra á lífverur og hluti  geti útskýrt hljóð með vísun til bylgjueiginleika og með vísun til frumeindakenningarinnar  geti skýrt helstu hugtök tengd rafmagni og seglum, svo sem rafspennu, rafstraum, viðnám rafhleðslu, raf- og segulsvið, raf- og segulkraft, raforku og rafal  þekkji uppbyggingu nokkurra nútímarafmagnstækja  gera sér grein fyrir því að orkan nýtist misvel eftir mismunandi orkugjöfum og orkuformum  geti unnið sjálfstætt og með öðrum að verklegum og skriflegum verkefnum  geti skráð upplýsingar og niðurstöður verkefna á skipulegan hátt Leiðir að markmiðum Nemendur í 10. bekk eru í tveimur samfelldum kennslustundum í eðlisfræði á viku allan veturinn. Námsefnið verður sett fram með fjölbreyttum hætti með innlögn, verklegum verkefnum, skriflegum verkefnum og fræðslumyndböndum. Lögð er áhersla á umræður og samvinnu nemenda, ásamt einstaklingsvinnu. Námsgögn Orka e. Dean Hurd, Edward Benjamin Snyder o.fl. Ítarefni: myndbönd og verkefni m.a. af netinu Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn sem samanstendur af:  Kaflaprófum  Skýrslum  Vinnubók  Verkefnum

Lífsleikni Markmið Að byggja upp alhliða þroska nemandans til þess að hann geti betur tekist á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Að nemendur:  geti sett sér raunhæf markmið til að stefna að í lífinu  meti á sjálfstæðan hátt eigin lífsgildi og lífsstíl óháð fyrirmyndum og samfélagsins

staðalmyndum

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 12 -


     

sé meðvitaður um jafnréttishugsjónina sem leiðarljós í samskiptum geti nýtt sér þekkingu á náms- og starfsleiðum öðlist skilning á atvinnulífinu í samhengi við námsleiðir og starfsval þekki hættur samfara misnotkun ávana- og fíkniefna geti nýtt sér helstu fjölmiðla og lagt mat á fréttaflutning hafi tileinkað sér ábyrg sjónarmið og umgengni við nánasta umhverfi sitt og náttúru landsins

Leiðir að markmiðum Kennari leiðir umræðu í bekknum og tengir við viðfangsefnin, sjálfsþekkingu, samskipti, sköpun og lífsstíll annars vegar og samfélagið, umhverfið, náttúruna og menninguna hins vegar. Námsefni Kennari nýtir fjölbreytt efni við kennsluna, m.a. ljósrit, myndbönd, efnið Vertu reyklaus frjálsfyrir 10. bekk, Vertu með, félagsmálafræðsla 2. hefti svo eitthvað sé nefnt. Utanaðkomandi fræðsla m.a.. frá starfsmönnum Rauða kross Íslands, fjármálastofnunum o.fl. Námsmat Metin er frammistaða í tímum og undirbúningsvinna heima. Umsögn er gefin að vori.

Íþróttir - líkams- og heilsurækt Markmið Að nemendur:  þjálfist í samsettum hreyfingum  þjálfist í nýjum og lærðum hóp –og einstaklingsíþróttum sem stundaðar eru hér á landi  efli líkamsþol, kraft, hraða, viðbragð og liðleika  þjálfist í samvinnu og að sýna tillitssemi við aðra nemendur  fari eftir fyrirmælum Leiðir að markmiðum Fjölbreyttir íþróttatímar sem innihalda m.a. leikfimiæfingar, þolæfingar, styrktaræfingar, boltaleiki sem og aðra leiki. Styrkjandi æfingar með áherslu á aukið þol og styrk. Endurteknar útfærslur á flóknum æfingum þannig að þær verði sjálfvirkari. Auknar tækniæfingar í íþróttagreinum sem nemendur velja að hluta til sjálfir. Námsgögn Stór og smá áhöld til íþróttaiðkunar.

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 13 -


Námsmat Þol, styrkur, liðleiki og hraði eru mæld tvisvar á vetri. Virkni í tímum, samskipti við aðra nemendur og hvort farið er eftir fyrirmælum er í símati. Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10.

Sund Sundkennsla fer fram í sundlaug Ölduselsskóla. Sundið er í námsskeiðsformi, nemendur eru því aðeins í sundi hluta af vetri. Seljaskóli fær aðgang að sundlaug Ölduselsskóla eftir kl. 14 á daginn og eru námskeiðin því skipulögð eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Markmið Að nemendur:  auki þol  bæti tækni/stílsund  auki hraða  æfi björgunarsund með jafningja  fari eftir fyrirmælum Leiðir að markmiðum Sundið er brotið niður í einstök tök og þau æfð sér og síðan saman með og án hjálpatækja. 10. markmiðsstig  600m sund frjáls aðferð  100m bringusund tímataka  50m skriðsund tímataka  Stílsund: -

bringusund skriðsund kafsund baksund

Leiðir að markmiðum Sundkennsla fer fram í sundlaug Ölduselsskóla. Sundið er í námsskeiðsformi, nemendur eru því aðeins í sundi hluta af vetri. Sundið er brotið niður í einstök tök og þau æfð sér og síðan saman með og án hjálpatækja. Námsgögn Korkar. Námsmat Í lok námsskeiðs er prófað í 10. markmiðsstigi og umsögn gefin um árangur nemanda. Einnig er gefin skólaeinkunn á skalanum 1-10 sem byggir á hraða (tímatöku) og sundstíl. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 14 -


Valgreinar Danska-talmál Kennslustundir á viku:1 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í talaðri dönsku þannig að þeir geti hlustað á texta á dönsku og tjáð sig um þá. Geti bjargað sér erlendis við raunverulegar aðstæður eins og t.d. að spyrja til vegar, versla og koma sér á milli áfangastaða. Einnig verða nemendur þjálfaðir þannig að þeir geti tekið þátt í almennum umræðum um ýmis málefni. Markmið  að þjálfa og auka öryggi í dönsku talmáli  að auka sjálfstraust í samskiptum á dönsku  að bæta framburð  að auka virkan orðaforða á dönsku Leiðir að markmiðunum Unnið verður með texta og verkefni lögð fyrir til undirbúnings heimafyrir. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna í umræðuhópum eða tveir og tveir saman og einnig verða þeir látnir tjá sig einstaklingslega um ákveðin mál. Námsgögn Lesefni og verkefni útbúin af kennara. Námsmat Mat á frammistöðu í tímum sem byggir á virkni í tímum og undirbúningsvinnu heima. Munnleg próf tekin tvisvar í áfanganum þar sem árangur nemandans er metinn út frá framburði, orðaforða og framsetningu.

Enska - orð af orði Kennslustundir á viku: 1 Tvær annir Áfangalýsing: Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í ensku þannig að þeir geti hlustað á texta á ensku, ákveðin orð tekin fyrir í framburði og skilningi og geti aukið færni sína í stafsetningu ákveðinna orða. Einnig verða þeir þjálfaðir þannig að þeir geti tjáð sig um einfalda hluti á ensku. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 15 -


Markmið:  að þjálfa og auka orðaforða í ensku  að auka sjálfstraust í samskiptum á ensku  að bæta framburð Leiðir að markmiðunum. Unnið verður með texta af ýmsu tagi eins og sögur, fréttir og málefni líðandi stundar. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna gagnvirkar æfingar, fara í orðaleiki tveir og tveir eða vinna saman í stærri hópum. Námsgögn Kennsluforrit, efni af netinu og ljósritað efni frá kennara. Námsmat: Umsögn er gefin sem byggir á frammistöðu og virkni í tímum.

Fornám ökunáms Kennslustundir á viku: 1 Tvær annir Áfangalýsing Nemendur fræðast um þætti sem tengjast ökunámi og akstri að því loknu. Þeir kynnast viðhorfum sem tengjast umferð og umferðarmenningu. Farið verður í vettvangsferðir og aðfengnir fyrirlesarar koma í skólann með fræðslu. Markmið  að nemendur kynnist búnaði ökutækis  að nemendur kynnist og læri að þekkja umferðarmerkingar  að nemendur kynnist orsökum umferðarslysa og áhættuþáttum í umferð  að nemendur fá heilstæða mynd af ökunámi Leiðir að markmiðum Ýmis verkefni eru unnin sem tengjast námsmarkmiðum. Vinnan er einstaklings – og hópvinna. Notast er við mynd- og fræðsluefni af Netinu, myndböndum og –diskum o.fl. Námsgögn Verkefni útbúin af kennara. Námsmat Símat þar sem verkefni nemenda og virkni í tímum eru metin. Einkunn er á skalanum 1 – 10. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 16 -


Förðun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Að hugsa vel um húðina skiptir miklu máli og er það grunnur að heilbrigðu og fallegu útliti. Að kunna að farða sig og aðra er bæði skemmtilegt og gagnlegt. Markmið Að nemendur:  læri um heilbrigt útlit  læri litablöndun  kynnist undirstöðu mismunandi farðanna  læri að nota förðunarvörur  læri vandvirkni  geti nýtt sér förðun við ýmis tækifæri eins og árshátíð og fl  hafi gaman af

Leiðir að markmiðum Námskeiðið skiptist í eftirfarandi þætti: Tölvur Heilbrigð húð, fallegt útlit. Litablöndun. Náttúrulegförðun. Dagförðun. Skyggingar. Kvöldförðun. Ljósmynda og tískuförðun. Ýmis „fake“. Í byrjun verður sýnikennsla þar sem farið verður yfir helstu þætti námskeiðsins og farðanir. Eftir það verður stór hluti námskeiðsins verklegur þar sem nemendur fá að prófa sig áfram. Námskeiðið byggist á mikilli samvinnu þar sem nemendur eru einnig módel til að æfa sig á. Námsgögn Bók til að punkta hjá sér hugmyndir og teikna í. Plastmappa, förðunarvörur, tölvur,vídeó, tískublöð og bækur. Námsmat Ástundun, frumkvæði, sköpunarkraftur og vandvirkni metið. Þá verður vinnubók metin ásamt skriflegu og verklegu prófi.

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 17 -


Hönnun og hugmyndavinna Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Þessi áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga á að læra um hönnun og hvernig þróa á hugmyndir. Áhersla verður lögð á skissu- og hugmyndavinnu og fá nemendur innsýn inn í heim hönnuðarins og hvernig hann starfar. Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir þá nemendur sem hyggja á frekara nám á hönnunar eða listabraut. Nemandi þarf ekki að vera snillingur í að teikna til að sitja þennan áfanga, hægt er að notast við úrklippur, prent af neti eða orð til að lýsa hugmyndum. Nemendur geta gert hugarkort í stað teikninga til að lýsa hugmyndinni. Aðalatriðið er að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín og reyna nýja hluti. Þetta er mikil vinna sem nemendur þurfa að vinna á námskeiðinu, en skemmtileg og gefandi. Nemendur nota skissubók yfir veturinn, sem er gott að eiga, ef nemandi hyggur á frekara nám í greininni. Einnig er heimilt að notast við rafrænt form ef nemandi kýs, en þá í samráði við kennara. Nemendur fá einnig innsýn í heim hönnunar með fyrirlestrum frá kennara til stuðnings því sem þeir eru að fást við í námskeiðinu. Unnið verður í öllum helstu forritum tengt hönnunarvinnu, s.s. Illustrator, Photoshop, Flash, After effects og ProDesktop (þrívídd). Markmið  að nemendur læri að nýta sér ýmiskonar hugmyndavinnu og hvernig þróa á hugmynd frá upphafi til enda  að nemendur noti tímann vel og skissi allar hugmyndir niður á blað (skissa er teikning, hugarkort, úrklippur o.fl.)  að nemendur nái að búa til kynningu á hugmyndinni í hugbúnaði sem er sambærilegt því sem hönnuðir nota  að nemendur læri að gagnrýna verk hver annars á uppbyggilegan hátt  að nemendur séu opnir fyrir gagnrýni sem þætti í að bæta verkefnið sem þeir eru að vinna Leiðir að markmiðum Verkefnalýsing Ýmis verkefni verða lögð fyrir og fer það eftir vinnuhraða hvers og eins hversu mörg verkefni hver nemandi kemst yfir en m.a. verður farið í merkjagerð (logo), hönnun smíðagripa, hönnun út frá þekktri persónu eða þema, þróun teiknimyndapersónu, vöruhönnun, auglýsingagerð, vefborðar/teiknimynd, hönnun stóls eða hluta sem falla undir iðnhönnun o.fl.

Námsgögn Skissubók, ritföng og tölvuforrit sem henta því verkefni sem nemandi er að vinna. Námsmat Verkefni nemenda eru metin til einkunnar jafnóðum en einnig er áhugi, frumkvæði og vinnusemi í kennslustundum metin jafnharðan. Nemendur eiga að skila skissubók í lok námskeiðs, hún er hluti af námsmati og gildir 20%. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 18 -


Hönnun og smíði Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Öll vinna í þessum áfanga bæði í 9. og 10. bekk er einstaklingsmiðuð. Nemendum stendur til boða að vinna með öll efni og öll verkfæri sem smíðastofan hefur uppá að bjóða, að svo miklu leyti sem kostnaður og öryggissjónarmið leyfa. Nemendum er gert að vinna út frá hugmyndum sem þeir koma sjálfir með og hanna út frá eigin þörfum og áhuga. Ef eigin hugmyndir skortir mun kennari leggja fyrir nemandann verkefni sem innihalda meðferð verkfæra eða smíðaefna sem tiltekinn nemandi hefur ekki kynnst áður og er þá stuðst við fyrirliggjandi ferilskrá. Markmið  að virkja vilja og áhuga til að koma verki í framkvæmd  að tengja þekkingu, sem nemandi býr yfir, við það verk sem hann ætlar að framkvæma  að afla sjálfur nýrrar þekkingar til að geta komið hugmynd í framkvæmd  að bæta við þá verkþekkingu sem fyrir er undir leiðsögn kennara Leiðir að markmiðunum Kennsla í þessum áfanga miðar fyrst og fremst að því að fara yfir leiðir til að nýta áhuga og þekkingu hvers og eins til að skapa og framkvæma. Farið er yfir notkun tölvu til að afla hugmynda bæði verkefnabanka skólans og netleitaraðferðir. Dæmi um verkefni sem hægt er að vinna eru t.d. smærri húsgögn úr mismunandi plötuefnum, renndir hlutir, smáhlutir úr tré, smærri hlutir úr járni, góðmálmum og skartgripir úr silfri sem og hlutir formaðir úr plasti, horni o.fl. Námsgögn Verkefnabanki sem byggir á myndum af smíðaverkefnum nemenda. Handbækur með smíðahugmyndum. Flettispjöld sem sýna smíðaaðferðir o.fl. Öll verkfæri sem nemandinn hefur aðgang að miðað við aldur Námsmat Námsmatið er framkvæmt með símati og er nemandanum gerð grein fyrir því jafnóðum eftir því sem kostur er. Matsþættir eru þrír: 1. Vinnusemi og frumkvæði, þar sem metið er hve vel nemandi heldur sig að verki og hvernig hann bregst við erfiðleikum. Metið er eftir hvern tíma. Gildir 70 % 2. Vandvirkni, þar sem metin er þrautseigja við að ná sem bestum árangri. Verkefni skoðuð og metin. Gildir 15 % 3. Frumleiki, þar sem metið er hvort nemandi leggur vinnu í að koma sjálfur með hugmyndir um gerð og útlit hluta. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 19 -


Gildir 15 % Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.

Íþróttafræði Kennslustundir á viku: 1 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Námið er að verulegu leyti verklegt og ætlað fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á íþróttum. Utanaðkomandi fræðsla verður fengin ásamt því að farið verður í vettvangsferðir. Bóklegir tímar verða 2 - 3. Markmið  að nemendur geti gert kennsluáætlun fyrir 60 mínútna tímaeiningu  að nemendur kynnist mismunandi íþróttagreinum  að nemendur geti stjórnað tímum sem leiðbeinendur  að nemendur kunni að búa til skammtíma og langtíma áætlanir Leiðir að markmiðum Verklegar kennslustundir í Íþróttahúsi Seljaskóla. Farið verður í ýmsar greinar íþrótta. Námsgögn Verkefni útbúin af kennara.

Námsmat Símat, þar sem metin eru verkefni nemenda og virkni í tímum. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.

Knattspyrna Kennslustundir á viku: 2 Tvær annir Áfangalýsing Námið er að mestu leyti verklegt (knattspyrna iðkuð) en með stuttum hagnýtum og/eða fræðilegum innlögnum. Nemendur fá að kynnast hvernig afreksmenn í knattspyrnu æfa og reynt verður að líkja eftir þeim allra bestu. Æfingar verða í takt við það besta sem þekkist hér á landi. Töluverð áhersla verður lögð á spil en alltaf með þeim áherslum að leikmenn séu að bæta sig. Markmið  að leikmenn bæti fíntækni og snerpu  að leikmenn bæti sendingar og móttöku  að leikmenn auki leikskilning Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 20 -


 að Seljaskóli geti teflt fram góðu skólaliði Leiðir að markmiðum Knattspyrna verður iðkuð í íþróttahúsi Seljaskóla og utanhúss ef færi gefst. Áfanganum er skipt upp í mislangar lotur. Fíntækni, sendingar, varnarleikur (markvarsla), sóknarleikur og leikskilningur verða tekin fyrir og unnið að því að bæta þessa þætti hjá leikmönnum. Námsgögn Bolti, vesti og keilur. Viðeigandi íþróttafatnaður Námsmat Nemendur er metnir samkvæmt mætingu, frammistöðu og áhuga í tímum. Umsögn er gefin í lok áfanga.

Myndmennt Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Farið er í alla grunnþætti myndlistar. Teikningu, málun, þrykk og mótun. Listasagan er lauslega skoðuð og helstu listastefnur kynntar. Á vorönn er það áhugasvið nemandans sem stjórnar því hvað er gert hjá þeim sem eru allan veturinn. Markmið  að nemendur öðlist þekkingu á helstu aðferðum myndlistar  að nemendur öðlist færni til að beita þeim aðferðum  að nemendur þjálfi skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að ljúka. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Teikniblýantar, túss ,acrylmálning, gouachemálning, mismunandi gerðir lita, listaverkabækur og internetið. Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir möppu nemandans og skoðað hvort hann hefur lokið skylduverkefnum sínum og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 21 -


Þrívíð hönnun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Áfangalýsing Nemendur fá tækifæri til að vinna skúlptúra úr mismunandi efnum s.s. leir, pappír, timbri, gifsi og hvað sem okkur dettur í hug. Markmið  að öðlast þekkingu á helstu aðferðum þrívíðrar hönnunar  að öðlast færni til að beita þeim  að þjálfa skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að klára. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Timbur ,leir, gifs, pappír, málning og allskonar endurvinnsla.

Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir verk nemandans og skoðað hvort nemandi hefur klárað skylduverkefni sín og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.

Leiklist Veturinn 2011 – 2012 eru tónlist og leiklist samþætt. Ein önn Kennslustundir á viku: 2 Áfangalýsing Áhersla er lögð á grunnaðferðir og grunntækni leiklistar. Unnið verður með fjölbreytta gerð hlutverkaleikja, innlifun, látbragð og líkamstjáningu.

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 22 -


Markmið Að nemandi:  verði fær um að taka virkan þátt í skapandi ferli í samvinnu við aðra  geti sett sig í spor annarra, skapað persónu og túlkað viðhorf hennar bæði munnlega og skriflega  taki sjálfstæðar ákvarðanir og skilji frekar viðhorf og skoðanir annarra. Leiðir að markmiðum Unnið verður með fjölbreytt skapandi ferli þar sem nemendur verða settir í mismunandi aðstæður þar sem þeir verða að byggja á eigin reynslu við ákvarðanatöku. Aðstæðum sem skapast í ferlinu er ætlað að vera eins konar vörn til að nemendur geti deilt eigin viðhorfum og hugmyndum með félögum sínum. Nemendur frumsemja örleikrit þar sem fjallað er um kynslóðabilið, tísku, málfar o.fl. Námsgögn Búningar, hljóðfæri, tölvur o.fl. Námsmat Matið er innbyggt í vinnuferlið. Kennari semur gátlista, þar sem hann merkir jafnóðum við einstaka þætti. Hann metur einnig verkefni nemenda og flutning á þeim.

Tónlist Veturinn 2010 – 2011 eru tínlist og leiklist samþætt. Áfangalýsing Námið er að miklu leyti verklegt og er ætlað þeim sem hafa mikinn áhuga á tónlist. Leitað verður svara við spurningunni: Hvað er tónlist og úr hverju er hún búin til ? Skoðaðir eru grunnþættir tónlistar, taktur, laglína, hljómar, form o.fl. með hlustunarverkefnum og umræðum. Markmið  að nemendur öðlist þekkingu á grunnþáttum tónlistar  að nemendur öðlist færni í notkun tónlistarforrita og/eða hljóðfæra  að nemendur þjálfi skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð  að nemendur þjálfist í því að vinna, spila og syngja með öðrum Leiðir að markmiðum. Hlustunarverkefni og umræður. Kynnt verða: Hljóðbútar og upptökuforrit, t.d. garageband, logic og fl. studio. Kvikmyndaforritið imovie, með það að markmiði að búa til tónlistarmyndband Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 23 -


Undirstöðuatriði í hljóðfæraleik (hljómborð, gítar, trommusett og bassi) og söng. Námið byggist á hópvinnu, annarsvegar skylduverkefni með öllum hópnum og hinsvegar tölvuvinna og/eða samspil í 3-6 manna hópum. Námsgögn Hljóðspor, þróum rytmískar tónlistar og hlustunarefni . Tölvur, tónlistarforritið garageband, Logic og sibelius, kvikmyndaforritið iMovie. Fjölbreytt úrval hljóðfæra. Námsmat Fer fram að hluta sem símat þá er verið að meta áhuga, samstarfsvilja, virkni og frumkvæði. Að lokinni önn eru verkefni nemenda skoðuð og þá er metið færni, vandvirkni og afköst.

Skólavinir Kennslustundir á viku: 1eða 2 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Nemandinn fær að taka þátt í starfi yngstu bekkja skólans undir stjórn umsjónarkennara viðkomandi bekkja. Nemandinn fær að aðstoða börnin við ýmis verkefni sem þau þurfa að inna af hendi í skólanum. Engin bókleg fræðsla fylgir þessum áfanga en nemandinn fær leiðsögn og handleiðslu frá umsjónarkennurum og öðru starfsfólki sem hann kann að þurfa að vinna með. Markmið  að veita nemendum 10. bekkjar innsýn í störf uppeldisstétta  að auðvelda þeim að velja nám eða störf á slíkum vettvangi að loknu grunnskólanámi  að gefa þeim tækifæri til að taka þátt í skapandi starfi og skapa tilbreytingu frá hefðbundnu bóknámi  að þjálfa nemendur í mannlegum samskiptum Námsmat Símat/frammistöðumat. Umsjónarkennari metur frammistöðu nemandans í starfi þar sem viðvera, samstarfshæfni, áhugi og framtakssemi verða lögð til grundvallar. Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.

Textílmennt Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Farið er í helstu grunnþætti í textílmennt. Höfuðáhersla er lögð á prjón. Einnig er kennt að hekla. Unnið með þæfingu, tauþrykk og útsaum. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 24 -


Markmið  að nemandi öðlist þekkingu í helstu aðferðum í textílmennt  að nemandi nái færni í að beita þeim aðferðum  að nemandi þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og skapandi hugsun við eigin útfærslur á viðfangsefnum Leiðir að markmiðum Námið er einstaklingsmiðað og hver og einn vinnur á sínum hraða en nokkur skyldu-verkefni eru lögð fyrir til að þjálfa færni í vinnubrögðum. Reynt er að ýta undir frumkvæði hjá nemendum og þeir eru hvattir til að útfæra eigin hugmyndir innan ákveðins ramma. Námsgögn Garn, prjónar, heklunálar, nálar, skæri og fleiri verkfæri tengd greininni. Ýmsar handbækur. Námsmat Námsmat er að hluta til símat. Mat er lagt á vinnugleði, færni, vandvirkni, frumkvæði og afköst. Í lokin er ferilmappa nemandans skoðuð og metin. Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.

Tæknimennt – tölvur Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Í þessum áfanga verður kafað nokkuð djúpt í notkun tölva með margvíslegum forritum og nemendur þjálfaðir í að nýta sér upplýsingatæknina í leik og skólastarfi. Markmið  að nemendur læri að nota Netið til upplýsingaöflunar og kunni að nota helstu leitarvélarnar sér til aðstoðar  að nemendur nái færni í ritvinnslu  að nemendur læri umbrot í Publisher forritinu  að nemendur geti búið til Power Point (glæru-) sýningar  að nemendur læri myndvinnslu í Photoshop forritinu  að nemendur öðlist færni og þekkingu í tölvu- og myndvinnslu og að eftir önnina hafi þeir aukið sjálfstraust til að vinna sjálfstætt að sköpun og hafi haldgóða tækniþekkingu í farteskinu Leiðir að markmiðunum Farið verður í leturgerð, uppsetningu og samhengið milli leturgerðar og innihalds texta skoðað. Nemendur vinna verkefni tengt upplýsingaöflun á Netinu. Nemendur vinna dagatal, bækling, fréttablað og auglýsingar í Publisher forritinu. Teknar verða stafrænar ljósmyndir, hlaðið inn í tölvu og unnið með þær á margan hátt í Photoshop forritinu. Einnig verður hreyfiborði unninn til að setja sem haus á heimasíðu. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 25 -


Í áfanganum verður bæði einstaklingsvinna og hópvinna. Námsgögn Tölvur, skanni, myndavél og kennslubækur. Námsmat Námsmat verður annars vegar símat þar sem sjálfstæði í vinnubrögðum, skapandi og frumleg hugsun, efnistök, frágangur, frammistaða í tímum og framfarir verða metin. Lokaverkefni verður metið út frá efnistökum, skapandi og frumlegri hugsun, frágangi og framförum. Einkunn gefin á skalanum 1-10.

Námsgögn Fast Track to FCE (Coursebook) (Kaflar 1-6) Rauða bókin Ný ensk málfræði fyrir framhaldsskóla (Mál og menning) 20th Century English short Stories (Longman) Lois Duncan: Gallows Hill (Penguin Plus) Kjörbók: Morton Rhue: The Wave (Penguin Books Ltd.) Nigel Hinton: Buddy (Penguin Plus) EÐA Deborah Ellis: The Breadwinners (GroundworkBooks) Námsmat Kjörbók 10% Smásögur 10% Málfræðipróf 10% Lokapróf 70 % (lágmarkseinkunn 5,0)

Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 10. bekkur - 26 -


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.