9. bekkur Skipulag skólastarfs Í 9. árgangi eru 3 bekkir, hver með sinn umsjónarkennara. Faggreinakennsla einkennir skipulagið í 9. bekk auk valgreina, hver kennari hefur sína stofu og nemendur fara á milli. Umsjónarkennari í unglingadeild kennir lífsleikni auk sinnar greinar eða greina. Lögð er áhersla á að umsjónarkennari kenni mikið í sínum bekk. Ennfremur er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, samvinnu nemenda og samvinnu kennara. Í 4-10. bekk er unnið eftir kennsluaðferð sem nefnist Orð af orði - lestur til náms. Reynt er að tengja aðferðina við flestar námsgreinar. Markmiðið er að auka lesskilning nemenda og að þeir efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasöfn á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning. Nemendur læra að beita ákveðnum aðferðum til að læra orð og efla orðaforða, s.s. gagnvirkan lestur, notkun hugtakakorta og yndislestur og þeim er kennt að tengja á milli þess sem þeir þekkja og vita fyrir og þess nýja sem þeir eru að fást við. Meðal verkefna eru orð dagsins, rím, krossglíma, orðaleit, orðtök og málshættir. Lesskilningspróf verða lögð fyrir þrisvar á skólaárinu í september, desember og maí til þess að mæla árangur. Kennsla hefst alla daga kl. 8:10. Nemendur borða morgunnesti í frímínútum kl. 9.309.50 og mælt er með því að að þeir komi með ávexti eða grænmeti og vatn í brúsa. Það verður þó að gera ráð fyrir að þessir nemendur þurfi meira en það þar sem hádegismatur fyrir þá er afgreiddur í mötuneyti kl. 12.40. Í 9. bekk eru kjarnagreinar 30 stundir en valgreinar 7 stundir. Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra og forráðamenn, kennara og námsráðgjafa. Valgreinar eru kenndar eftir hádegið og reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast. Í sumum greinum er 9. og 10. bekk blandað saman í námshópa. Heimanám Hver kennari setur upplýsingar um heimanám inn í Mentor upplýsingakerfið þar sem það er aðgengilegt nemendum og foreldrum.
Íslenska Yfirmarkmið Áhersla er lögð á skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi íslenskrar tungu og bókmennta. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir margbrotnu hlutverki móðurmálsins í daglegu lífi og notkun þess við ólíkar aðstæður og nái á þessu skólastigi valdi á þeim þáttum móðurmálsins sem aðalnámskrá grunnskóla kveður á um.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -1-
Lestur og bókmenntir Markmið Að nemendur: geti lesið og skilið mismunandi texta geti lagt mat á mismunandi túlkun atburða geti tekið þátt í umræðum um lesna texta geti lesið og túlkað töflur og myndrit þjálfist í notkun orðabóka noti margmiðlunarefni til að dýpka skilning sinn Leiðir að markmiðum Nemendur: Lesa eina Íslendingasögu. Lesa eina nútímaskáldsögu. Lesa úrval ljóða. Lesa nokkrar þjóðsögur. Lesa tvær kjörbækur eftir íslenska höfunda og skrifa umsögn um þær. Lesa valda texta úr blöðum og tímaritum. Skrá í reglubók (hugtakakort, orðskýringar). Námsgögn Hrafnkelssaga, Ragnar Ingi Aðalsteinsson bjó til prentunar. Djöflaeyjan eftir Einar Kárason. Skáldsögur að eigin vali. Ljóðabækur. Valdar þjóðsögur úr ýmsum áttum. Blaða- og tímaritsgreinargreinar. Reglubók. Námsmat Vinnubækur nemenda eru metnar m.t.t. vinnubragða og að farið sé að fyrirmælum. Skrifleg próf eru með reglulegu millibili. Þátttaka í hópvinnu metin. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Talað mál og framsögn - Hlustun og áhorf Markmið Að nemendur geti tjáð sig á góðu máli í umræðum og frammi fyrir hópi geti gert grein fyrir skoðunum sínum og rökstutt þær þjálfist í framsögn og öðlist öryggi geti talað blaðalaust um eitthvert ákveðið efni geti farið að fyrirmælum tileinki sér viðeigandi framkomu þegar hlustað er á upplestur og/eða umræður Leiðir að markmiðum Kennari les fyrir og með nemendum í bókmenntatímum. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -2-
Nemendur tjá sig um ýmis málefni í pontu. Nemendur fjalla munnlega um persónur og atriði úr bókmenntatextum. Nemendur horfa á íslenskar kvikmyndir. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Blaða- og tímaritsgreinar. Efni úr fréttum. Íslenskar kvikmyndir. Reglubók. Námsmat Sjálfsmat. Jafningjamat. Kennaramat. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Ritun Markmið Að nemendur: þekki helstu stafsetningarreglur og kunni að nota þær þekki helstu reglur í greinamerkjasetningu þjálfist í að nota stafsetningarorðabækur þjálfist í uppsetningu og réttum frágangi eigin texta æfist í að skrifa útdrætti og ritgerðir geti tekið glósur í námi sínu tileinki sér læsilega rithönd vandi mál sitt geti notað tölvur í ritvinnslu geti sent tölvupóst skrifi tvær kjörbókarritgerðir Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Ritgerðaskrif. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Skriffinnur. Réttritunarorðabók. Handbækur. Ljósreituð verkefni. Reglubók. Gagnvirkt efni af netinu. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -3-
Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Mat á ritunarverkefnum. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Málfræði og málnotkun Markmið Að nemendur: þekki alla orðflokka geti fullgreint fallorð þekki öll beygingaratriði sagna geti greint orðtök frá málsháttum kunni hugtök í orðmyndunarfræði hafi algeng hugtök í merkingarfræði á valdi sínu Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Vinna með ýmis orð, orðhluta og hugtök (hugtakakort). Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Málfinnur. Ljósrituð verkefni og leiðbeiningar. Orðabækur. Handbækur um málfræði. Textar úr ýmsum áttum. Reglubók.
Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Þátttaka í tímum, þ.m.t. skráning í reglubók. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10.
Stærðfræði Markmið (þrep 17 í Mentor) Að nemandi: hafi náð tökum á formerkjareglum um reikninga með neikvæðum tölum þekki skilgreiningu á tölugildi og helstu reiknireglum um það Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -4-
hafi náð tökum á algengum prósentureikningi og getur nýtt sér breytiþátt til að reikna út breytingar í prósentum. þekki veldareglur um heiltöluveldi og hefur náð tökum á margföldun og deilingu velda með sömu stofna geti ritað tölur á staðalformi og hefur náð tökum á margföldun og deilingu talna á staðalformi þekki og getur skilgreint hugtökin radíus, strengur, þvermál, hringgeiri og bogi úr hring geti reiknað ummál og flatarmál hrings og kann skil á því að p er hlutfallið milli ummáls og þvermáls hrings geti reiknað flatarmál hringgeira og lengd boga geti notað hringfara til að finna miðju striks, teikna horn og skipta horni þekki hugtökin úrtak, tíðni, hlutfallstíðni, tíðnidreifing, meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi og getur reiknað þau út hafi náð tökum á öflun, flokkun og myndrænni framsetningu gagna og getur greint villur eða villandi upplýsingar í framsetningu tölulegra gagna geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni
Markmið (þrep 17 í Mentor) Að nemandi: kunni skil á samlagningarandhverfum, margföldunarandhverfum og þekkir hlutleysu í samlagningu og margföldun hafi náð fullu valdi á forgangsröð aðgerða og getur reiknað samsett dæmi af ýmsu tagi hafi náð færni í að nota algebru til að tákna samband stærða með formúlum hafi náð tökum á að einfalda og leysa fyrsta stigs jöfnu með einni óþekktri stærð geti leyst orðadæmi með því að setja upp og leysa fyrsta stigs jöfnur með einni óþekktri stærð hafi náð tökum á að nota þáttun og liðun til að einfalda stæður og jöfnur geti skipt stærðum í margvíslegum hlutföllum og hefur náð tökum á vinnu með mælikvarða og hlutföll þekki hugtakið einslögun og þekkir og getur notað reglur sem gilda um einslaga marghyrninga geti fundið og skráð hnit punkta, getur fundið fjarlægðir milli punkta með gefin hnit og fundið hnit miðpunkts striks í rétthyrndu hnitakerfi geti sýnt línulegt samband milli stærða með því að gera gildistöflu og teiknað viðeigandi graf í hnitakerfi
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -5-
geti sett jöfnu beinnar línu fram í hnitakerfi og kann að lesa úr jöfnunni hallatölu og skurðpunkt við y-ás og getur skráð jöfnu beinnar línu með því að lesa út úr grafi í hnitakerfi geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni Leiðir að markmiðum Nemendur fá fimm kennslust. á viku. Auka kennari kemur inn í árganginn tvo tíma á viku. Lögð er áhersla á innlögn þar sem nemendur taka þátt með umræðum og skrái niður allar reglur, hugtök og útskýringar á þeim ásamt sýnidæmum í reglubók. Í kennslustundum er einstaklingsvinna með aðstoð kennara en sjálfstæð vinnubrögð, umræður og samvinna nemenda er einnig stór þáttur. Þjálfun er mikilvægur hluti stærðfræðináms og því mikil áhersla á að nemendur reikni heima daglega. Námsgögn Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla II, e. Lars-Eric Björk o.fl. Ýtarefni: Átta-tíu, e. Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir. Heimadæmi og annað þjálfunarefni. Námsmat Í janúar fá nemendur eina einkunn, skólaeinkunn sem byggir á: - kaflaprófum - stöðuprófi - skyndiprófum - heimadæmum - reglubók Í lok skólaárs fá nemendur tvær einkunnir Skólaeinkunn sem byggir á: - kaflaprófum - stöðuprófum - skyndiprófum - heimadæmum - reglubók og prófseinkunn úr lokaprófi sem tekið er í maí.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -6-
Erlend tungumál Enska Áfangamarkmið Að nemendur hafi tileinkað sér: Í hlustun: að hlusta á mismunandi hátt eftir upplýsingum í töluðu máli að skilja leiðbeiningar og fyrirmæli að skilja þegar nokkrir tala saman Í lestri: að geta lesið bókmenntir, fræðsluefni, blaða- og tímaritsefni að geta lesið í mismunandi tilgangi Í töluðu máli: að geta tjáð sig skýrt og áheyrilega að geta gefið upplýsingar um sjálfan sig, íslenska menningu og umhverfi að geta tekið þátt í samskiptum við enskumælandi fólk á eðlilegan hátt að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður Í ritun: að geta tjáð sig skipulega, skiljanlega og á viðeigandi hátt að kunna helstu málfræðireglur Þrepamarkmið Að nemendur: Í hlustun: geti skilið fyrirhafnarlítið þegar talað er um málefni sem þeir þekkja geti skilið leiðbeiningar og nákvæm fyrirmæli þjálfist í að hlusta markvisst eftir ákveðnum orðaforða Í lestri: geti leitað ákveðinna upplýsinga í texta geti lesið bókmenntaefni og blaðagreinar við hæfi sér til ánægju þjálfist í að vinna með orðaforða í tengslum við texta Í töluðu máli: geti notað ensku á lipran hátt í persónulegum samskiptum. þekki og geti beitt helstu málfræðiatriðum í ensku Í ritun: geti skrifað skiljanlega, skipulega og viðeigandi samfellda texta á nokkuð réttu máli kunni nokkur skil á hvernig skrifað er í mismunandi tilgangi þjálfist í stafsetningu og orðaforða þjálfist í að beita málnotkunarreglum í ritun Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -7-
Leiðir að markmiðum Nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði. Nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur. Nemendur fá þjálfun í málfræðiatriðum. Valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings. Nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil. Æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinamerki o.fl. Umræður um ýmis málefni á ensku. Unnið með myndbönd og tónlistartexta . Námsgögn Spotlight 9, lesbók og vinnubók e. Anette Engström o.fl. Málfræði, margs konar þjálfunarverkefni. Skáldsögur sem hlustunarefni í tímum með verkefnum og skáldsögur til heimalestrar sem nemendur skila verkefnum úr. Ítarefni s.s. tölvuforrit, uppflettirit, fjöldi ljósritaðra verkefna úr ýmsum áttum, myndbönd og frjálslestrarbækur. Námsmat Kaflapróf í lok hvers kafla: hlustunar-, lesskilnings-, málfræði og ritunarverkefnum. Skil á verkefnaheftum Sagnapróf Próf úr stuttum skáldsögum Hópvinna nemenda er metin með jafningja- og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutning. Lokapróf að vori
Danska Markmið Að nemendur: Hlustun:
Skilur aðalatriði venjulegs talmáls í samtölum tveggja og frásögnum þegar fjallað er um málefni tengd öðrum þáttum dönskunámsins. Skilur þegar talað er beint við hann um málefni sem hann þekkir og hefur fengist við.
Þekkingaratriði:
Kann að nota boðhátt sagna. Hefur náð fullu valdi á notkun óákveðins eintölu greinis og þekkir undantekningar varðandi notkun hans. Getur notað ákveðinn greini nafnorða bæði í eintölu og fleirtölu. Getur myndað reglulega fleirtölu nafnorða, óreglulega fleirtölu algengra orða. Hefur náð valdi á notkun lýsingarorða í frumstigi, bæði í ákveðnum og óákveðum hætti (frummynd, t-mynd og e-mynd). Geta notað rétt lýsingarorðinn lille og små. Þekkir og getur notað helstu forsetningar. Kann skil á og getur notað persónu- og eignarfornöfn í 1. 2. og 3. persónu, eintölu og fleirtölu. Hefur náð fullu valdi á notkun spurnarorða. Hefur náð fullu valdi á heitum og notkun allra frumtalna. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -8-
Þekkir og getur notað helstu samtengingar.
Lestur:
Getur lesið stuttar greinar á lettu máli og léttar smásögur sér til skilnings. Skilur fyrirmæli, leiðbeiningar og valda stutta texta þar sem nákvæmnisskilnings er þörf. Skilur megininntak lengri texta með því að geta sér til um merkingu orða út frá samhengi, t.d léttlestrarbækur.
Ritun:
Getur skrifað ritunaræfingar þar sem notaður er ákveðinn orðaforði og orðasambönd t.d. út frá myndum eða fyrirmælum. Getur skrifað stutta frásögn um þekkt efni í nútíð og þátíð og notað algengustu samtengingar.
Tal:
Getur beðið viðmælanda að endurtaka, útskýra eða umorða. Getur átt í einföldum orðaskiptum við aðra t.d. í þar til gerðum samtalsæfingum. Getur flutt stutta, undirbúna kynningu á þekktu viðfangsefni.
Aukamarkmið:
Hefur fengið innsýn í danskt samfélag, menningu, þekkta staði og helstu staðhætti. Hefur tileinkað sér allan orðaforða námsefnisins.
Leiðir að markmiðum Nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði. Nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur. Innlögn á málfræðiatriðum sem nemandi skráir í reglubók- þjálfað með verkefnaheftum. Valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings. Nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil. Æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinarmerki o.fl. Umræður um ýmis málefni á ensku. Unnið með myndbönd og tónlistartexta . Viðfangsefni Skólinn, námsgreinar, námsleiðir, störf, eyðsla, afþreying, kvikmyndir, átrúnaðargoð, áhugamál, hljómsveitir, útlit, persónulýsingar, fatnaður, ferðalög, útilega, ferða-og gistimáti, samgöngur og farartæki, heimaslóðir,sveit/borg, mismunandi tegundir verslana, sakamál, Kaupmannahöfn og merkir staðir í Danmörku, dönsk menning, íþróttir, mataræði, vinátta og líkaminn. Námsgögn Lokið við Tænk frá fyrra ári.(sjá 8.bekkur) Dejlige Danmark eftir Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur og Ernu Jessen. Grammatik, málfræðibók með verkefnum. Smásögur og ýmis verkefni sem unnin eru heima og/eða í tímum. Danskar kvikmyndir og tónlist. Ekko, eftir Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur og Ernu Jessen ásamt vinnubók Námsmat Símat. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur -9-
Lagt er mat á kunnáttu og framfarir nemenda reglulega yfir veturinn. Leitast er við að meta alla færniþætti námsins eftir markmiðum námskrár og sem flest atriði í vinnu nemenda til skólaeinkunnar. Kannanir og kaflapróf miðast við þann orðaforða og málfræðiatriði sem unnið er með í tímum og æfð heima. Í námsmati skal einnig horft til vinnusemi og virkni nemenda. Skólaeinkunn: Kaflapróf úr námsefni eftir hverja lotu samkv.námsáætlun. Stuttar kannanir úr ákveðnum efnisþáttum. Ritunar- hlustunar- og munnleg próf. Vinnubækur og önnur skil, vinnusemi og virkni. Skólaeinkunn á haustönn gildir 50% ámóti skólaeinkunn á vorönn. Prófseinkunn: Vorpróf gildir 50% á móti skólaeinkunn. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Samfélagsgreinar Nemendur í 9. bekk fá þrjár kennslustundir á viku í samfélagsgreinum. Samfélagsgreinar skiptast í landafræð og sögu. Í upphafi fá allir nemendur námsáætlun þar sem tiltekin er yfirferð, námstilhögun og námsmat.
Saga Markmið Að nemendur: varpa ljósi á íslenskt samfélag frá aldamótum til okkar tíma geri sér grein fyrir þróun íslensks samfélags í réttri tímaröð fái tilfinningu fyrir framvindu sögunnar og samhengi tiltekinna samfélagsþátta fái skýra innsýn í samfélag tímabilsins og átti sig á lífsskilyrðum almennings og ólíku hlutskipti landsmanna hvað varðar auð og völd Leiðir að markmiðum Nemendur lesa kennslubókina og vinna með textann bæði í umræðuformi og skriflega. Hópverkefni þar sem nemendur verða að afla sér upplýsinga og kynna verkefnið sitt fyrir samnemendum sínum. Myndbönd. Námsgögn Sögueyjan 3. heftið 1900-2010 eftir Leif Reynisson. Nemendur lesa alla bókina og vinna fyrirfram ákveðnar glósur úr öllum köflunum. Einnig vinna þau tímalínuverkefni sem tilheyrir ártölum bókarinnar. Annað efni s.s. kortabækur, Söguatlas, sagnfræðibækur, blaða- og tímaritsgreinar, netið og myndbönd. Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10. Hún byggir á eftirfarandi þáttum: Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 10 -
Vinnubækur nemenda eru metnar út frá vinnubrögðum og að farið sé að fyrirmælum. Tvö skrifleg lokapróf þar sem nemendur skrifa 1-3 ritgerðir (stuttar) og fá að hafa kennslubókina og glósurnar með sér í prófið. Hópvinna nemenda er metin með jafningjamati og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings.
Landafræði Markmið Að nemendur geri sér grein fyrir hvernig jörðin varð til og hvernig hún hefur mótast. hvernig jörðin hefur mótað mennina og mennirnir umhverfi sitt. tilurð náttúruauðlinda og mismunandi umgengni og nýting jarðarbúa á þeim. Leiðir að markmiðum Nemendur lesa kennslubókina og vinna með textann bæði í umræðuformi og skriflega. Kortavinna. Hópverkefni þar sem nemendur verða að afla sér upplýsinga og kynna verkefnið sitt fyrir samnemendum sínum. Myndbönd. Viðfangsefni Fjallað verður um landafræði sem fræðigrein, lestur korta og kortagerð, sögu jarðar, eldstöðvar og jarðskjálfta, tímabelti jarðar, veður og loftslag, vötn, heimshöfin, eyðimerkur, ósonlagið, gróðurhúsaáhrif og ýmsar orkulindir. Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10. Hún byggir á eftirfarandi þáttum: Vinnubækur nemenda eru metnar út frá vinnubrögðum og að farið sé að fyrirmælum. Þrjú skrifleg lokapróf. Hópvinna nemenda er metin með jafningjamati og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings.
Náttúrufræði og umhverfismennt Lífvísindi Markmið Að nemendur þekki, skilji, geri sér grein fyrir vinni og fjalli um : að allar lífverur séu gerðar úr líffærakerfum. að vita hvað sé matnum sem þau láta ofan í sig. að vita hvert sé hlutverk hinna ýmsu næringarefna. að blóðið flytji næringarefni og sérefni um líkamann að blóðið flytji koltvíoxíð og úrgangsefni um líkamann. að ónæmiskerfið verndi okkur gegn sjúkdómum. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 11 -
hvernig líkaminn stjórni líkamshitanum. þekki beinagrindina og störf mismunandi vöðva. hvaða áhrif þjálfun hafi á vöðva. að taugafrumur senda boð um líkamann. hvernig skynfæri starfa. að hormón beri boð milli líffæra. getnaðarvarnir og kynsjúkdóma. hvernig við fjölgum okkur. að kynhneigð sé mismunandi. hvernig vímuefni verka á líkamann. hvað vímuefni séu.
Leiðir að markmiðum. Námið fer fram í formi einstaklings – og hópvinnu, teymisvinnu, samþættingu námsgreina o.fl. Námsgögn. Mannslíkaminn, Einkenni lífvera, Lifandi veröld, Æxlun mannsins o.fl. Námsmat. 50 % kaflapróf, 30 % virkni og vinnusemi í tímum og 20 % heimavinnuskil. Einkunnir eru á skalanum 1 – 10.
Eðlisvísindi Markmið Að nemendur: geti lýst eðli og orsökum hreyfinga og notað hugtökin ferð, hraði, hröðun og kraftur þekkji þyngdarlögmálið og vita að þyngdarkraftur verkar á milli allra hluta skilji muninn á massa og þyngd geti notað hugtök eins og þrýsting og eðlismassa og tengt þau fyrirbærum í daglegu lífi geti beitt hugtökunum vinna, orka og afl og lýst tengslum á milli þeirra kynnist hugmyndum manna um uppbyggingu alheimsins þekkji gerð og eiginleika sóla og reikistjarna þekkji sólkerfið okkar og nokkur einkenni þess þekkji til geimferða mannsins, geimrannsókna og notkun gervihnatta geti unnið sjálfstætt og með öðrum að verklegum og skriflegum verkefnum geti skráð upplýsingar og niðurstöður verkefna á skipulegan hátt
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 12 -
Leiðir að markmiðum Nemendur í 9. bekk eru í tveimur samfelldum kennslustundum í eðlisfræði á viku allan veturinn. Námsefnið verður sett fram með fjölbreyttum hætti með innlögn, verklegum verkefnum, skriflegum verkefnum og fræðslumyndböndum. Lögð er áhersla á umræður og samvinnu nemenda, ásamt einstaklingsvinnu. Námsgögn Kraftur og Hreyfing e. Dean Hurd, Edward Benjamin Snyder o.fl. Sól, tungl og stjörnur e. Dean Hurd, Edward Benjamin Snyder o.fl. Ítarefni: myndbönd og verkefni m.a. af netinu Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn sem samanstendur af: - kaflaprófum - skýrslum - vinnubók - verkefnum
Lífsleikni Markmið Að byggja upp alhliða þroska nemandans til þess að hann geti betur tekist á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Að nemendur: styrkist í að vernda persónuleg og tilfinningaleg mörk sín öðlist færni í samskiptum læri að íhuga á gagnrýninn hátt langanir sínar væntingar og sérstöðu til að öðlast aukna sjálfsþekkingu skynji félagslegar aðstæður til að geta metið hvort og hvernig þeir gerast þátttakendur í þeim. geti metið hvaða skyldur og ábyrgð þeir bera gagnvart samborgurum sínum
Leiðir að markmiðum Kennari leiðir umræðu í bekknum og tengir við viðfangsefnin, sjálfsþekkingu, samskipti, sköpun og lífsstíll annars vegar og samfélagið, umhverfið, náttúruna og menninguna hins vegar. Námsgögn Kennari nýtir fjölbreytt efni við kennsluna, m.a. er notað efnið Vertu reyklaus frjáls, Vertu með, félagsmálafræðsla 1. hefti, myndbönd og ýmislegt efni sem kennari ljósritar. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 13 -
Námsmat Metin er frammistaða í tímum og undirbúningsvinna heima. Umsögn er gefin að vori.
Íþróttir - líkams- og heilsurækt Markmið Að nemendur: þjálfist í samsettum hreyfingum þjálfist í nýjum og lærðum hóp –og einstaklingsíþróttum sem stundaðar eru hér á landi efli líkamsþol, kraft, hraða, viðbragð og liðleika þjálfist í samvinnu og að sýna tillitssemi við aðra nemendur fari eftir fyrirmælum Leiðir að markmiðum fjölbreyttir íþróttatímar sem innihalda m.a. leikfimiæfingar, þolæfingar, styrktaræfingar, boltaleiki sem og aðra leiki styrkjandi æfingar með áherslu á aukið þol og styrk. endurteknar útfærslur á flóknum æfingum þannig að þær verði sjálfvirkari auknar tækniæfingar í íþróttagreinum sem nemendur velja að hluta til sjálfir Námsgögn: Stór og smá áhöld til íþróttaiðkunar. Námsmat: Þol, styrkur, liðleiki og hraði eru mæld tvisvar á vetri. Virkni í tímum, samskipti við aðra nemendur og hvort farið er eftir fyrirmælum er í símati. Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10.
Sund Sundkennsla fer fram í sundlaug Ölduselsskóla. Sundið er í námsskeiðsformi, nemendur eru því aðeins í sundi hluta af vetri. Seljaskóli fær aðgang að sundlaug Ölduselsskóla eftir kl. 14 á daginn og eru námskeiðin því skipulögð eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Markmið Að nemendur auki þol bæti tækni/stílsund auki hraða geti synt í fötum fari eftir fyrirmælum Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 14 -
9. markmiðsstig 500m sund frjáls aðferð 100m bringusund tímataka 50m skriðsund tímataka Stílsund: - bringusund - skriðsund - kafsund - baksund Leiðir að markmiðum Sundið er brotið niður í einstök tök og þau æfð sér og síðan saman með og án hjálpatækja. Námsgögn Korkar. Námsmat Í lok námsskeiðs er prófað í 9. markmiðsstigi. Standist nemandi prófið fær hann umsögnina "9. stigi lokið" , annars "þarfnast frekari þjálfunar" og er á næsta námskeiði veitt meiri tilsögn. Einnig er gefin skólaeinkunn á skalanum 1-10 sem byggir á hraða (tímatöku) og sundstíl. Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að ljúka 10. stigi í sundi ef mæting þeirra er 80% eða meiri og hæfni þeirra og ástundun gefa tilefni til.
Valgreinar Blak Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Námið er að mestu leyti verklegt en með stuttum hagnýtum og/eða fræðilegum innlögnum. Lögð verður áhersla á tækniatriði og leikskilning. Mögulega verður farið á blakleik í 1.deild og hann leikgreindur. Markmið Að nemendur bæti fíntækni í blaki Að nemendur auki leikskilning sinn í blaki Að nemendur geti spilað gott blak Að nemendur læri leikreglur í blaki Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 15 -
Námsmat Um símat verður að ræða. Frammistaða í tímum, áhugi, virkni og hegðun.
Bókfærsla Kennslustundir á viku: 2 Tvær annir Áfangalýsing Í áfanganum er fjallað um grundvallaratriði bókhalds og nemendum kennt að færa einfaldar dagbókarfærslur. Rifjaðir verða upp vaxtareikningar. Leitast verður við að rauntengja námsefnið og skoðaðar verða t.d. skattaskýrslur, debet-og kreditkort, reikningsyfirlit, heimilisbókhald og annað úr daglegu lífi tengt bókhaldi. Undir lok áfangans, þegar nemendur hafa náð tökum á grundvallaratriðunum, verður tölvubókhald skoðað. Þetta er ekki framhaldsskólaáfangi en góður undirbúningur fyrir bókfærslunám á framhaldsskólastigi (t.d. á viðskiptabrautum eða í Verzlunarskóla Íslands). Mikilvægt er að nemandi sem sækir þennan áfanga standi ekki höllum fæti í stærðfræði. Markmið • að kynnast grundvallarhugtökum tvíhliða bókahalds • að geta fært einfaldar dagbókarfærslur • að skoða margvíslegar hliðar bókhalds • að fá innsýn í færslu tölvubókhalds Verkefnalýsing – leiðir að markmiðunum Aðalnámsefnið er: Kennslubók í bókhaldi fyrir grunnskóla eftir Sigurjón Gunnarsson. Aðallega verða dagbókarverkefni unnin í dagbók eða á blöðum og ýmis reiknings tengd verkefni. Lögð verður mikil áhersla á vönduð vinnubrögð, nákvæmni og frágang. Mest er um að ræða einstaklingsvinnu undir leiðsögn kennara en einnig umræður og stutta fyrirlestra. Námsgögn Kennslubók í bókhaldi fyrir grunnskóla e. Sigurjón Gunnarsson og verkefni úr meðfylgjandi verkefnabók. Námsmat Heimavinna verður metin (vönduð vinnubrögð, nákvæmni og frágangur). Skriflegar kannanir verða með jöfnu millibili allan áfangann. Einkunn er gefin í tölustöfum á kvarðanum 1 – 10.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 16 -
Bókmenntir Kennslustundir á viku Ein eða tvær annir Áfangalýsing Áfanginn er fyrir þá sem hafa áhuga á bókmenntum og kvikmyndum sem hafa verið gerðar eftir skáldsögum. Áfanginn er ekki eingöngu fyrir lestrarhesta heldur einnig þá sem hafa áhuga á bókmenntum og því hvernig bækur/sögur hafa orðið kveikjan að stórkostlegum meistaraverkum kvikmyndanna. Áfanginn er nk. leshringur þar sem nemendur og kennarar skiptast á skoðunum um bókmenntaverk/kvikmyndaverk, tilurð þeirra, boðskap, skemmtanagildi o.s.frv. Markmið • að opna augu unglinga fyrir heimi skáldsögunnar • að stuðla að tjáskiptum um skoðanir og tilfinningar • að þjálfa nemendur í að setja sig í spor annarra og virða skoðanir þeirra, tilfinningar og hugmyndir • að virkja nemendur í tjáskiptum og skoðanamyndun Leiðir Lesnar verða bækur sem kennari leggur fyrir ( 1 – 2 á önn) og bækur sem nemendahópurinn, ásamt kennara, kemur sér saman um. Í kennslustundum verður skipst á skoðunum um þá bók sem hópurinn fæst við hverju sinni og hugmyndir um nálgun höfundar ræddar. Hafi kvikmynd verið gerð eftir bókinni kemur hópurinn sér saman um hvort hún skuli skoðuð til samanburðar. Námsmat Námsmat byggir á virkni og þátttöku í þeim verkefnum sem tekin eru fyrir. Matið er hvorttveggja í senn kennaramat og sjálfsmat. Ekki er gefin einkunn heldur er áfanganum annað hvort lokið eða ólokið.
Danska-talmál Kennslustundir á viku:1 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í talaðri dönsku þannig að þeir geti hlustað á texta á dönsku og tjáð sig um þá. Geti bjargað sér erlendis við raunverulegar aðstæður eins og t.d. að spyrja til vegar, versla og koma sér á milli áfangastaða. Einnig verða nemendur þjálfaðir þannig að þeir geti tekið þátt í almennum umræðum um ýmis málefni. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 17 -
Markmið að þjálfa og auka öryggi í dönsku talmáli að auka sjálfstraust í samskiptum á dönsku að bæta framburð að auka virkan orðaforða á dönsku Leiðir að markmiðunum Unnið verður með texta og verkefni lögð fyrir til undirbúnings heimafyrir. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna í umræðuhópum eða tveir og tveir saman og einnig verða þeir látnir tjá sig einstaklingslega um ákveðin mál. Námsgögn Lesefni og verkefni útbúin af kennara.
Námsmat Mat á frammistöðu í tímum sem byggir á virkni í tímum og undirbúningsvinnu heima. Munnleg próf tekin tvisvar í áfanganum þar sem árangur nemandans er metinn út frá framburði, orðaforða og framsetningu. Lokaeinkunn er í formi umsagnar.
Enska - orð af orði Kennslustundir á viku: 1 Tvær annir Áfangalýsing: Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í ensku þannig að þeir geti hlustað á texta á ensku, ákveðin orð tekin fyrir í framburði og skilningi og geti aukið færni sína í stafsetningu ákveðinna orða. Einnig verða þeir þjálfaðir þannig að þeir geti tjáð sig um einfalda hluti á ensku. Markmið: að þjálfa og auka orðaforða í ensku að auka sjálfstraust í samskiptum á ensku að bæta framburð Leiðir að markmiðunum. Unnið verður með texta af ýmsu tagi eins og sögur, fréttir og málefni líðandi stundar. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna gagnvirkar æfingar, fara í orðaleiki tveir og tveir eða vinna saman í stærri hópum. Námsgögn Kennsluforrit, efni af netinu og ljósritað efni frá kennara. Námsmat: Umsögn er gefin sem byggir á frammistöðu og virkni í tímum. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 18 -
Förðun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Að hugsa vel um húðina skiptir miklu máli og er það grunnur að heilbrigðu og fallegu útliti. Að kunna að farða sig og aðra er bæði skemmtilegt og gagnlegt. Markmið Að nemendur: læri um heilbrigt útlit læri litablöndun kynnist undirstöðu mismunandi farðanna læri að nota förðunarvörur læri vandvirkni geti nýtt sér förðun við ýmis tækifæri eins og árshátíð og fl hafi gaman af
Leiðir að markmiðum Námskeiðið skiptist í eftirfarandi þætti: Tölvur. Heilbrigð húð, fallegt útlit. Litablöndun. Náttúrulegförðun. Dagförðun. Skyggingar. Kvöldförðun. Ljósmynda og tískuförðun. Ýmis „fake“. Í byrjun verður sýnikennsla þar sem farið verður yfir helstu þætti námskeiðsins og farðanir. Eftir það verður stór hluti námskeiðsins verklegur þar sem nemendur fá að prófa sig áfram. Námskeiðið byggist á mikilli samvinnu þar sem nemendur eru einnig módel til að æfa sig á. Námsgögn Bók til að punkta hjá sér hugmyndir og teikna í. Plastmappa, förðunarvörur, tölvur,vídeó, tískublöð og bækur. Námsmat Ástundun, frumkvæði, sköpunarkraftur og vandvirkni metið. Þá verður vinnubók metin ásamt skriflegu og verklegu prófi.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 19 -
Heimilisfræði Kennslustundir á viku: 3 Ein önn Áfangalýsing Áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga og vilja til að auka við færni í matreiðslu og bakstri. Í áfanganum verður lögð áhersla á matreiðsluhefðir mismunandi landa og heimshluta. Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi heilbrigðis, réttrar næringar og hreinlætis. Markmið að nemendur nái að tileinka sér réttar vinnuaðferðir að nemendur læri að vinna sjálfstætt eftir uppskrift að nemendur læri að tileinka sér matarmenningu annarra landa að nemendur læri að þroska bragðskyn og leggja áherslu á útlit matar að nemendur læri um gildi hreinlætis Leiðir að markmiðunum Verkefni: Bakstur og matreiðsla frá mismunandi löndum. Hvernig er áfanginn unninn: Sýnikennsla, innlögn verkþátta. Kennsluaðferðir: Einstaklingsvinna, hópvinna og vettvangsferðir ef tækifæri gefast. Námsgögn: Gögn gefin út af Námsgagnastofnun auk annarra verkefna af Netinu eða annarsstaðar frá. Námsmat Símat í lok hvers tíma, þar sem áhugi, vinnusemi og snyrtimennska eru lögð til grundvallar. Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.
Hönnun og hugmyndavinna Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Þessi áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga á að læra um hönnun og hvernig þróa á hugmyndir. Áhersla verður lögð á skissu- og hugmyndavinnu og fá nemendur innsýn inn í heim hönnuðarins og hvernig hann starfar. Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir þá nemendur sem hyggja á frekara nám á hönnunar eða listabraut. Nemandi þarf ekki að vera snillingur í að teikna til að sitja þennan áfanga, hægt er að notast við úrklippur, prent af neti eða orð til að lýsa hugmyndum. Nemendur geta gert hugarkort í stað teikninga til að lýsa hugmyndinni. Aðalatriðið er að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín og reyna nýja hluti. Þetta er mikil vinna sem nemendur þurfa að vinna á námskeiðinu, en skemmtileg og gefandi. Nemendur nota skissubók yfir veturinn, sem er gott að eiga, ef nemandi hyggur á frekara nám í greininni. Einnig er heimilt að notast við rafrænt form ef nemandi kýs, en Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 20 -
þá í samráði við kennara. Nemendur fá einnig innsýn í heim hönnunar með fyrirlestrum frá kennara til stuðnings því sem þeir eru að fást við í námskeiðinu. Unnið verður í öllum helstu forritum tengt hönnunarvinnu, s.s. Illustrator, Photoshop, Flash, After effects og ProDesktop (þrívídd). Markmið að nemendur læri að nýta sér ýmiskonar hugmyndavinnu og hvernig þróa á hugmynd frá upphafi til enda að nemendur noti tímann vel og skissi allar hugmyndir niður á blað (skissa er teikning, hugarkort, úrklippur o.fl.) að nemendur nái að búa til kynningu á hugmyndinni í hugbúnaði sem er sambærilegt því sem hönnuðir nota að nemendur læri að gagnrýna verk hver annars á uppbyggilegan hátt að nemendur séu opnir fyrir gagnrýni sem þætti í að bæta verkefnið sem þeir eru að vinna Leiðir að markmiðum Verkefnalýsing Ýmis verkefni verða lögð fyrir og fer það eftir vinnuhraða hvers og eins hversu mörg verkefni hver nemandi kemst yfir en m.a. verður farið í merkjagerð (logo), hönnun smíðagripa, hönnun út frá þekktri persónu eða þema, þróun teiknimyndapersónu, vöruhönnun, auglýsingagerð, vefborðar/teiknimynd, hönnun stóls eða hluta sem falla undir iðnhönnun o.fl. Námsgögn Skissubók, ritföng og tölvuforrit sem henta því verkefni sem nemandi er að vinna. Námsmat Verkefni nemenda eru metin til einkunnar jafnóðum en einnig er áhugi, frumkvæði og vinnusemi í kennslustundum metin jafnharðan. Nemendur eiga að skila skissubók í lok námskeiðs, hún er hluti af námsmati og gildir 20%.
Hönnun og smíði Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Öll vinna í þessum áfanga bæði í 9. og 10. bekk er einstaklingsmiðuð. Nemendum stendur til boða að vinna með öll efni og öll verkfæri sem smíðastofan hefur uppá að bjóða, að svo miklu leyti sem kostnaður og öryggissjónarmið leyfa. Nemendum er gert að vinna út frá hugmyndum sem þeir koma sjálfir með og hanna út frá eigin þörfum og áhuga. Ef eigin hugmyndir skortir mun kennari leggja fyrir nemandann verkefni sem innihalda meðferð verkfæra eða smíðaefna sem tiltekinn nemandi hefur ekki kynnst áður og er þá stuðst við fyrirliggjandi ferilskrá. Markmið að virkja vilja og áhuga til að koma verki í framkvæmd Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 21 -
að tengja þekkingu, sem nemandi býr yfir, við það verk sem hann ætlar að framkvæma að afla sjálfur nýrrar þekkingar til að geta komið hugmynd í framkvæmd að bæta við þá verkþekkingu sem fyrir er undir leiðsögn kennara Leiðir að markmiðunum Kennsla í þessum áfanga miðar fyrst og fremst að því að fara yfir leiðir til að nýta áhuga og þekkingu hvers og eins til að skapa og framkvæma. Farið er yfir notkun tölvu til að afla hugmynda bæði verkefnabanka skólans og netleitaraðferðir. Dæmi um verkefni sem hægt er að vinna eru t.d. smærri húsgögn úr mismunandi plötuefnum, renndir hlutir, smáhlutir úr tré, smærri hlutir úr járni, góðmálmum og skartgripir úr silfri sem og hlutir formaðir úr plasti, horni o.fl. Námsgögn Verkefnabanki sem byggir á myndum af smíðaverkefnum nemenda. Handbækur með smíðahugmyndum. Flettispjöld sem sýna smíðaaðferðir o.fl. Öll verkfæri sem nemandinn hefur aðgang að miðað við aldur Námsmat Námsmatið er framkvæmt með símati og er nemandanum gerð grein fyrir því jafnóðum eftir því sem kostur er. Matsþættir eru þrír: 1. Vinnusemi og frumkvæði, þar sem metið er hve vel nemandi heldur sig að verki og hvernig hann bregst við erfiðleikum. Metið er eftir hvern tíma. Gildir 70 % 2. Vandvirkni, þar sem metin er þrautseigja við að ná sem bestum árangri. Verkefni skoðuð og metin. Gildir 15 % 3. Frumleiki, þar sem metið er hvort nemandi leggur vinnu í að koma sjálfur með hugmyndir um gerð og útlit hluta. Gildir 15 % Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.
Íþróttafræði Kennslustundir á viku: 1 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Námið er að verulegu leyti verklegt og ætlað fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á íþróttum. Utanaðkomandi fræðsla verður fengin ásamt því að farið verður í vettvangsferðir. Bóklegir tímar verða 2 - 3. Markmið að nemendur geti gert kennsluáætlun fyrir 60 mínútna tímaeiningu að nemendur kynnist mismunandi íþróttagreinum Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 22 -
að nemendur geti stjórnað tímum sem leiðbeinendur að nemendur kunni að búa til skammtíma og langtíma áætlanir Leiðir að markmiðum Verklegar kennslustundir í Íþróttahúsi Seljaskóla. Farið verður í ýmsar greinar íþrótta. Námsgögn Verkefni útbúin af kennara. Námsmat Símat, þar sem metin eru verkefni nemenda og virkni í tímum. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Knattspyrna Kennslustundir á viku: 2 Tvær annir Áfangalýsing Námið er að mestu leyti verklegt (knattspyrna iðkuð) en með stuttum hagnýtum og/eða fræðilegum innlögnum. Nemendur fá að kynnast hvernig afreksmenn í knattspyrnu æfa og reynt verður að líkja eftir þeim allra bestu. Æfingar verða í takt við það besta sem þekkist hér á landi. Töluverð áhersla verður lögð á spil en alltaf með þeim áherslum að leikmenn séu að bæta sig. Markmið að leikmenn bæti fíntækni og snerpu að leikmenn bæti sendingar og móttöku að leikmenn auki leikskilning að Seljaskóli geti teflt fram góðu skólaliði
Leiðir að markmiðum Knattspyrna verður iðkuð í íþróttahúsi Seljaskóla og utanhúss ef færi gefst. Áfanganum er skipt upp í mislangar lotur. Fíntækni, sendingar, varnarleikur (markvarsla), sóknarleikur og leikskilningur verða tekin fyrir og unnið að því að bæta þessa þætti hjá leikmönnum. Námsgögn Bolti, vesti og keilur. Viðeigandi íþróttafatnaður Námsmat Nemendur er metnir samkvæmt mætingu, frammistöðu og áhuga í tímum. Umsögn er gefin í lok áfanga.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 23 -
Myndmennt Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Farið er í alla grunnþætti myndlistar. Teikningu, málun, þrykk og mótun. Listasagan er lauslega skoðuð og helstu listastefnur kynntar. Á vorönn er það áhugasvið nemandans sem stjórnar því hvað er gert hjá þeim sem eru allan veturinn. Markmið að nemendur öðlist þekkingu á helstu aðferðum myndlistar að nemendur öðlist færni til að beita þeim aðferðum að nemendur þjálfi skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að ljúka. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Teikniblýantar, túss ,acrylmálning, gouachemálning, mismunandi gerðir lita, listaverkabækur og internetið.
Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir möppu nemandans og skoðað hvort hann hefur lokið skylduverkefnum sínum og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Tæknimennt – tölvur Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Í þessum áfanga verður kafað nokkuð djúpt í notkun tölva með margvíslegum forritum og nemendur þjálfaðir í að nýta sér upplýsingatæknina í leik og skólastarfi. Markmið að nemendur læri að nota Netið til upplýsingaöflunar og kunni að nota helstu leitarvélarnar sér til aðstoðar að nemendur nái færni í ritvinnslu að nemendur læri umbrot í Publisher forritinu að nemendur geti búið til Power Point (glæru-) sýningar að nemendur læri myndvinnslu í Photoshop forritinu Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 24 -
að nemendur öðlist færni og þekkingu í tölvu- og myndvinnslu og að eftir önnina hafi þeir aukið sjálfstraust til að vinna sjálfstætt að sköpun og hafi haldgóða tækniþekkingu í farteskinu Leiðir að markmiðunum Farið verður í leturgerð, uppsetningu og samhengið milli leturgerðar og innihalds texta skoðað. Nemendur vinna verkefni tengt upplýsingaöflun á Netinu. Nemendur vinna dagatal, bækling, fréttablað og auglýsingar í Publisher forritinu. Teknar verða stafrænar ljósmyndir, hlaðið inn í tölvu og unnið með þær á margan hátt í Photoshop forritinu. Einnig verður hreyfiborði unninn til að setja sem haus á heimasíðu. Í áfanganum verður bæði einstaklingsvinna og hópvinna. Námsgögn Tölvur, skanni, myndavél og kennslubækur. Námsmat Námsmat verður annars vegar símat þar sem sjálfstæði í vinnubrögðum, skapandi og frumleg hugsun, efnistök, frágangur, frammistaða í tímum og framfarir verða metin. Lokaverkefni verður metið út frá efnistökum, skapandi og frumlegri hugsun, frágangi og framförum. Einkunn gefin á skalanum 1-10.
Þrívíð hönnun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Áfangalýsing Nemendur fá tækifæri til að vinna skúlptúra úr mismunandi efnum s.s. leir, pappír, timbri, gifsi og hvað sem okkur dettur í hug. Markmið að öðlast þekkingu á helstu aðferðum þrívíðrar hönnunar að öðlast færni til að beita þeim að þjálfa skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að klára. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Timbur ,leir, gifs, pappír, málning og allskonar endurvinnsla. Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 25 -
Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir verk nemandans og skoðað hvort nemandi hefur klárað skylduverkefni sín og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Skólanámskrá Seljaskóla 2012-2013 9. bekkur - 26 -