9. bekkur Skipulag skólastarfs Í 9. árgangi eru 3 bekkir, hver með sinn umsjónarkennara. Faggreinakennsla einkennir skipulagið í 9. bekk auk valgreina, hver kennari hefur sína stofu og nemendur fara á milli. Umsjónarkennari í unglingadeild kennir lífsleikni auk sinnar greinar eða greina. Lögð er áhersla á að umsjónarkennari kenni mikið í sínum bekk. Ennfremur er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, samvinnu nemenda og samvinnu kennara. Skólaárið 2011-2012 munu kennarar innleiða kennsluaðferð sem nefnist Orð af orði lestur til náms í 4.-10. bekk. Markmiðið er að auka lesskilning nemenda og að þeir efli orðaforða og hæfni til að ráða í merkingu orða, nýti orðasöfn á fjölbreyttan hátt og efli þannig skilning. Ýmsar leiðir verða farnar til að vinna með orð og texta, t.d. hugtakakort, upplýsingatækni og yndislestur. Nemendum verða kenndar aðferðir til að læra orð og efla orðaforða, s.s. með aðferðum gagnvirks lestrar og kennt að tengja á milli þess sem þeir þekkja og vita fyrir og þess nýja sem þeir eru að fást við. Meðal verkefna verða orð dagsins, rím, krossglíma, orðaleit, orðtök og málshættir, yndislestur, hugtakakort og gagnvirkur lestur. Á haustönn verður markvisst unnið með orðaforða í 10 vikur a.m.k. þrisvar í viku í tveimur fögum. Á vorönn verður síðan lögð áhersla á markvissa vinnu í notkun hugtakakorta. Lesskilningspróf verða lögð fyrir þrisvar á skólaárinu í september, desember og maí til þess að mæla árangur.
Kennsla hefst alla daga kl. 8:10. Nemendur borða morgunnesti í frímínútum kl. 9.309.50 og mælt er með því að að þeir komi með ávexti eða grænmeti og vatn í brúsa. Það verður þó að gera ráð fyrir að þessir nemendur þurfi meira en það þar sem hádegismatur fyrir þá er afgreiddur í mötuneyti kl. 12.40. Í 9. bekk eru kjarnagreinar 30 stundir en valgreinar 7 stundir. Valgreinar eru hluti af skyldunámi. Tilgangurinn með auknu valfrelsi nemenda er að laga námið sem mest að þörfum einstaklingsins og gera hverjum og einum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað við áhugasvið og framtíðaráform í samvinnu við foreldra og forráðamenn, kennara og námsráðgjafa. Valgreinar eru kenndar eftir hádegið og reynt er að hafa valið sem fjölbreyttast. Í sumum greinum er 9. og 10. bekk blandað saman í námshópa. Heimanám Hver kennari setur upplýsingar um heimanám inn í Mentor upplýsingakerfið þar sem það er aðgengilegt nemendum og foreldrum.
Íslenska Yfirmarkmið Áhersla er lögð á skilning á sögulegu, menningarlegu og félagslegu gildi íslenskrar tungu og bókmennta. Markmiðið er að nemendur geri sér grein fyrir margbrotnu Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -1-
hlutverki móðurmálsins í daglegu lífi og notkun þess við ólíkar aðstæður og nái á þessu skólastigi valdi á þeim þáttum móðurmálsins sem aðalnámskrá grunnskóla kveður á um. Lestur og bókmenntir Markmið Að nemendur: geti lesið og skilið mismunandi texta geti lagt mat á mismunandi túlkun atburða geti tekið þátt í umræðum um lesna texta geti lesið og túlkað töflur og myndrit þjálfist í notkun orðabóka noti margmiðlunarefni til að dýpka skilning sinn Leiðir að markmiðum Nemendur: Lesa eina Íslendingasögu. Lesa eina nútímaskáldsögu. Lesa úrval ljóða. Lesa nokkrar þjóðsögur. Lesa tvær kjörbækur eftir íslenska höfunda og skrifa umsögn um þær. Lesa valda texta úr blöðum og tímaritum. Skrá í reglubók (hugtakakort, orðskýringar). Námsgögn Hrafnkelssaga, Ragnar Ingi Aðalsteinsson bjó til prentunar. Djöflaeyjan eftir Einar Kárason. Skáldsögur að eigin vali. Ljóðabækur. Valdar þjóðsögur úr ýmsum áttum. Blaða- og tímaritsgreinargreinar. Reglubók. Námsmat Vinnubækur nemenda eru metnar m.t.t. vinnubragða og að farið sé að fyrirmælum. Skrifleg próf eru með reglulegu millibili. Þátttaka í hópvinnu metin. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Talað mál og framsögn - Hlustun og áhorf Markmið Að nemendur geti tjáð sig á góðu máli í umræðum og frammi fyrir hópi geti gert grein fyrir skoðunum sínum og rökstutt þær þjálfist í framsögn og öðlist öryggi geti talað blaðalaust um eitthvert ákveðið efni geti farið að fyrirmælum Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -2-
tileinki sér viðeigandi framkomu þegar hlustað er á upplestur og/eða umræður Leiðir að markmiðum Kennari les fyrir og með nemendum í bókmenntatímum. Nemendur tjá sig um ýmis málefni í pontu. Nemendur fjalla munnlega um persónur og atriði úr bókmenntatextum. Nemendur horfa á íslenskar kvikmyndir. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Blaða- og tímaritsgreinar. Efni úr fréttum. Íslenskar kvikmyndir. Reglubók. Námsmat Sjálfsmat. Jafningjamat. Kennaramat. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Ritun Markmið Að nemendur: þekki helstu stafsetningarreglur og kunni að nota þær þekki helstu reglur í greinamerkjasetningu þjálfist í að nota stafsetningarorðabækur þjálfist í uppsetningu og réttum frágangi eigin texta æfist í að skrifa útdrætti og ritgerðir geti tekið glósur í námi sínu tileinki sér læsilega rithönd vandi mál sitt geti notað tölvur í ritvinnslu geti sent tölvupóst skrifi tvær kjörbókarritgerðir Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Ritgerðaskrif. Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Skriffinnur. Réttritunarorðabók. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -3-
Handbækur. Ljósreituð verkefni. Reglubók. Gagnvirkt efni af netinu. Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Mat á ritunarverkefnum. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10. Málfræði og málnotkun Markmið Að nemendur: þekki alla orðflokka geti fullgreint fallorð þekki öll beygingaratriði sagna geti greint orðtök frá málsháttum kunni hugtök í orðmyndunarfræði hafi algeng hugtök í merkingarfræði á valdi sínu Leiðir að markmiðum Innlögn kennara – bein kennsla. Skriflegar æfingar. Vinna með ýmis orð, orðhluta og hugtök (hugtakakort). Skráning í reglubók. Námsgögn Skerpa 2. Málfinnur. Ljósrituð verkefni og leiðbeiningar. Orðabækur. Handbækur um málfræði. Textar úr ýmsum áttum. Reglubók.
Námsmat Skrifleg próf. Mat á vinnubókum. Þátttaka í tímum, þ.m.t. skráning í reglubók. Vægi hvers þáttar fer eftir umfangi hans hverju sinni. Einkunn gefin á skalanum 1 – 10.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -4-
Stærðfræði Markmið (þrep 17 í Mentor) Að nemandi: hafi náð tökum á formerkjareglum um reikninga með neikvæðum tölum þekki skilgreiningu á tölugildi og helstu reiknireglum um það hafi náð tökum á algengum prósentureikningi og getur nýtt sér breytiþátt til að reikna út breytingar í prósentum. þekki veldareglur um heiltöluveldi og hefur náð tökum á margföldun og deilingu velda með sömu stofna geti ritað tölur á staðalformi og hefur náð tökum á margföldun og deilingu talna á staðalformi þekki og getur skilgreint hugtökin radíus, strengur, þvermál, hringgeiri og bogi úr hring geti reiknað ummál og flatarmál hrings og kann skil á því að p er hlutfallið milli ummáls og þvermáls hrings geti reiknað flatarmál hringgeira og lengd boga geti notað hringfara til að finna miðju striks, teikna horn og skipta horni þekki hugtökin úrtak, tíðni, hlutfallstíðni, tíðnidreifing, meðaltal, miðgildi og tíðasta gildi og getur reiknað þau út hafi náð tökum á öflun, flokkun og myndrænni framsetningu gagna og getur greint villur eða villandi upplýsingar í framsetningu tölulegra gagna geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni
Markmið (þrep 17 í Mentor) Að nemandi: kunni skil á samlagningarandhverfum, margföldunarandhverfum og þekkir hlutleysu í samlagningu og margföldun hafi náð fullu valdi á forgangsröð aðgerða og getur reiknað samsett dæmi af ýmsu tagi hafi náð færni í að nota algebru til að tákna samband stærða með formúlum hafi náð tökum á að einfalda og leysa fyrsta stigs jöfnu með einni óþekktri stærð geti leyst orðadæmi með því að setja upp og leysa fyrsta stigs jöfnur með einni óþekktri stærð hafi náð tökum á að nota þáttun og liðun til að einfalda stæður og jöfnur geti skipt stærðum í margvíslegum hlutföllum og hefur náð tökum á vinnu með mælikvarða og hlutföll þekki hugtakið einslögun og þekkir og getur notað reglur sem gilda um einslaga marghyrninga Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -5-
geti fundið og skráð hnit punkta, getur fundið fjarlægðir milli punkta með gefin hnit og fundið hnit miðpunkts striks í rétthyrndu hnitakerfi geti sýnt línulegt samband milli stærða með því að gera gildistöflu og teiknað viðeigandi graf í hnitakerfi geti sett jöfnu beinnar línu fram í hnitakerfi og kann að lesa úr jöfnunni hallatölu og skurðpunkt við y-ás og getur skráð jöfnu beinnar línu með því að lesa út úr grafi í hnitakerfi geti tjáð sig skilmerkilega um stærðfræðileg efni og skipst á skoðunum um þau við aðra hafi tamið sér að skrifa skipulega skilgreiningar á hugtökum og aðferðum ásamt sýnidæmum og skýringarmyndum um stærðfræðileg efni Leiðir að markmiðum Nemendur fá fimm kennslust. á viku. Auka kennari kemur inn í árganginn tvo tíma á viku. Lögð er áhersla á innlögn þar sem nemendur taka þátt með umræðum og skrái niður allar reglur, hugtök og útskýringar á þeim ásamt sýnidæmum í reglubók. Í kennslustundum er einstaklingsvinna með aðstoð kennara en sjálfstæð vinnubrögð, umræður og samvinna nemenda er einnig stór þáttur. Þjálfun er mikilvægur hluti stærðfræðináms og því mikil áhersla á að nemendur reikni heima daglega. Námsgögn Almenn stærðfræði fyrir grunnskóla II, e. Lars-Eric Björk o.fl. Ýtarefni: Átta-tíu, e. Guðbjörg Pálsdóttir og Guðný Helga Gunnarsdóttir. Heimadæmi og annað þjálfunarefni. Námsmat Í janúar fá nemendur eina einkunn, skólaeinkunn sem byggir á: - kaflaprófum - stöðuprófi - skyndiprófum - heimadæmum - reglubók Í lok skólaárs fá nemendur tvær einkunnir Skólaeinkunn sem byggir á: - kaflaprófum - stöðuprófum - skyndiprófum - heimadæmum - reglubók og prófseinkunn úr lokaprófi sem tekið er í maí.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -6-
Erlend tungumál Enska Áfangamarkmið Að nemendur hafi tileinkað sér: Í hlustun: að hlusta á mismunandi hátt eftir upplýsingum í töluðu máli að skilja leiðbeiningar og fyrirmæli að skilja þegar nokkrir tala saman Í lestri: að geta lesið bókmenntir, fræðsluefni, blaða- og tímaritsefni að geta lesið í mismunandi tilgangi Í töluðu máli: að geta tjáð sig skýrt og áheyrilega að geta gefið upplýsingar um sjálfan sig, íslenska menningu og umhverfi að geta tekið þátt í samskiptum við enskumælandi fólk á eðlilegan hátt að geta bjargað sér við óvæntar aðstæður Í ritun: að geta tjáð sig skipulega, skiljanlega og á viðeigandi hátt að kunna helstu málfræðireglur Þrepamarkmið
Að nemendur:
Í hlustun: geti skilið fyrirhafnarlítið þegar talað er um málefni sem þeir þekkja geti skilið leiðbeiningar og nákvæm fyrirmæli þjálfist í að hlusta markvisst eftir ákveðnum orðaforða Í lestri: geti leitað ákveðinna upplýsinga í texta geti lesið bókmenntaefni og blaðagreinar við hæfi sér til ánægju þjálfist í að vinna með orðaforða í tengslum við texta Í töluðu máli: geti notað ensku á lipran hátt í persónulegum samskiptum. þekki og geti beitt helstu málfræðiatriðum í ensku Í ritun: geti skrifað skiljanlega, skipulega og viðeigandi samfellda texta á nokkuð réttu máli kunni nokkur skil á hvernig skrifað er í mismunandi tilgangi þjálfist í stafsetningu og orðaforða þjálfist í að beita málnotkunarreglum í ritun Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -7-
Leiðir að markmiðum Nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði. Nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur. Innlögn á málfræðiatriðum sem nemandi skráir í reglubók- þjálfað með verkefnaheftum. Valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings. Nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil. Æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinamerki o.fl. Umræður um ýmis málefni á ensku. Unnið með myndbönd og tónlistartexta . Viðfangsefni Nemendur læra stafsetningu, ritun og helstu málfræðiatriði s.s. tíðir sagna, fornöfn, stigbreytingu lýsingarorða, fleirtölu nafnorða, forsetningar, atviksorð, samtengingar og neitanir, skilyrðissetningar, beina- og óbeina ræðu. Helstu þemu eru; listir, samskipti, frásagnir, spennusögur, líkaminn, daglegt líf, tæknimál og plánetan jörð. Kennslustundir eru 4 á viku. Námsgögn Move on ásamt vinnuhefti eftir Arnbjörgu Eiðsdóttur og Ester Auði Elíasdóttur. Matrix 2 vinnubók eftir Jayne Wildman. Málfræði, margs konar þjálfunarverkefni. Skáldsögur sem hlustunarefni í tímum með verkefnum og skáldsögur til heimalestrar sem nemendur skila verkefnum úr. Ítarefni s.s. tölvuforrit, snældur, dagblöð, uppflettirit, fjöldi ljósritaðra verkefna úr ýmsum áttum, kennsluspólur, myndbönd og frjálslestrarbækur. Námsmat Þrjú skrifleg próf yfir veturinn sem samanstanda af: hlustunar-, lesskilnings-, málfræði og ritunarverkefnum. Skil á verkefnaheftum Glósupróf Sagnapróf Próf úr stuttum skáldsögum Hópvinna nemenda er metin með jafningja- og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings
Danska Markmið Að nemendur: skilji talað mál um daglegt líf geti lesið einfalt mál í blöðum og bókum og lesið léttlestrarbækur geti leitað að upplýsingum og skilið einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli geti tjáð sig á einföldu máli og spurst til vegar geti skrifað stuttar frásagnir og endursagnir út frá lestri eða hlustun Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -8-
Leiðir að markmiðum Nemendur vinna með texta út frá lesskilningi, orðskýringum og framburði. Nemendur æfa nákvæmis-, leitar- og skemmtilestur. Innlögn á málfræðiatriðum sem nemandi skráir í reglubók- þjálfað með verkefnaheftum. Valdir bókmenntatextar til hlustunar, með æfingum til skilnings. Nemendur vinna hópverkefni út frá mismunandi þemum, læra að afla sér upplýsinga á netinu og öðrum miðlum, æfður framburður og flutningur við skil. Æfðar helstu reglur varðandi ritsmíð og frágang, stafsetningu, greinamerki o.fl. Umræður um ýmis málefni á ensku. Unnið með myndbönd og tónlistartexta . Viðfangsefni Skólinn, námsgreinar, námsleiðir, störf, eyðsla, afþreying, kvikmyndir, átrúnaðargoð, áhugamál, hljómsveitir, útlit, persónulýsingar, fatnaður, ferðalög, útilega, ferða-og gistimáti, samgöngur og farartæki, heimaslóðir,sveit/borg, mismunandi tegundir verslana, sakamál, Kaupmannahöfn og merkir staðir í Danmörku, dönsk menning, íþróttir, mataræði, vinátta og líkaminn. Námsgögn Lokið við Tænk frá fyrra ári.(sjá 8.bekkur) Dejlige Danmark eftir Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur og Ernu Jessen. Sådan eftir Annelise Larsen Kaasgaard og Guðlaugu Ósk Gunnarsdóttur. Hlustunarefni, Hvad siger du? C - hefti, eftir Ásu Kristínu Jóhannsdóttur og Þórunni Ernu Jessen. Myndbandsverkefni úr verkefnasafninu Og det er Danmark, eftir Elísabetu Valtýsdóttur, Ernu Jessen og Hlín Helgu Pálsdóttur. Grammatik, málfræðibók með verkefnum. Smásögur og ýmis verkefni sem unnin eru heima og/eða í tímum. Danskar kvikmyndir og tónlist. Ekko, eftir Ásdísi Lovísu Grétarsdóttur og Ernu Jessen ásamt vinnubók Námsmat Lagt er mat á kunnáttu og framfarir nemenda reglulega yfir veturinn. Leitast er við að meta alla færniþætti námsins eftir markmiðum námskrár og sem flest atriði í vinnu nemenda til skólaeinkunnar. Kannanir og kaflapróf miðast við þann orðaforða og málfræðiatriði sem unnið er með í tímum og æfð heima. Í námsmati skal einnig horft til vinnusemi og virkni nemenda. Skólaeinkunn Kaflapróf úr námsefni eftir hverja lotu samkv.námsáætlun (50%) Stuttar kannanir úr ákveðnum efnisþáttum (15%) Ritunar- hlustunar- og munnleg próf (15%) Vinnubækur og önnur skil, vinnusemi og virkni (20%) Skólaeinkunn á haustönn gildir 50% ámóti skólaeinkunn á vorönn. Prófseinkunn Vorpróf gildir 50% á móti skólaeinkun Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur -9-
Samfélagsgreinar Nemendur í 9. bekk fá þrjár kennslustundir á viku í samfélagsgreinum. Samfélagsgreinar skiptast í Landafræð og sögu. Í upphafi fá allir nemendur námsáætlun þar sem tiltekin er yfirferð, námstilhögun og námsmat.
Saga Markmið Að nemendur: fái yfirlit yfir sögu Íslands frá byrjun 20. aldar fram á seinni hluta hennar með mikilli tengingu við sögu annarra heimshluta kynnist gangi seinni heimsstyrjaldar frá ýmsum sjónarhornum og því hvaða áhrif styrjöldin hafði hér á landi þekki atburðarrás stríðsáranna í stórum dráttum geri sér grein fyrir tilurð unglingamenningar á eftirstríðsárunum (á Íslandi og erlendis) Leiðir að markmiðum Nemendur lesa kennslubókina og vinna með textann bæði í umræðuformi og skriflega. Hópverkefni þar sem nemendur verða að afla sér upplýsinga og kynna verkefnið sitt fyrir samnemendum sínum. Myndbönd. Námsgögn Sögueyjan 3. heftið eftir Leif Reynisson Úr í sveit í borg: Þættir úr sögu 20. aldar eftir Guðmund J. Guðmundsson, Þemahefti Árið 1918 eftir Helga Grímsson, Vesturfarar eftir Helga S. Kjartansson. Annað efni s.s. kortabækur, Söguatlas, sagnfræðibækur, blaða- og tímaritsgreinar, netið og myndbönd. Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10. Hún byggir á eftirfarandi þáttum: Vinnubækur nemenda eru metnar út frá vinnubrögðum og að farið sé að fyrirmælum. Tvö skrifleg lokapróf. Hópvinna nemenda er metin með jafningjamati og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings.
Landafræði Markmið Að nemendur geri sér grein fyrir hvernig jörðin varð til og hvernig hún hefur mótast. hvernig jörðin hefur mótað mennina og mennirnir umhverfi sitt. tilurð náttúruauðlinda og mismunandi umgengni og nýting jarðarbúa á þeim. Leiðir að markmiðum Nemendur lesa kennslubókina og vinna með textann bæði í umræðuformi og skriflega. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 10 -
Kortavinna. Hópverkefni þar sem nemendur verða að afla sér upplýsinga og kynna verkefnið sitt fyrir samnemendum sínum. Myndbönd. Viðfangsefni Fjallað verður um landafræði sem fræðigrein, lestur korta og kortagerð, sögu jarðar, eldstöðvar og jarðskjálfta, tímabelti jarðar, veður og loftslag, vötn, heimshöfin, eyðimerkur, ósonlagið, gróðurhúsaáhrif og ýmsar orkulindir. Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10. Hún byggir á eftirfarandi þáttum: Vinnubækur nemenda eru metnar út frá vinnubrögðum og að farið sé að fyrirmælum. Þrjú skrifleg lokapróf. Hópvinna nemenda er metin með jafningjamati og kennaramati þar sem tillit er tekið til efnistaka og flutnings.
Náttúrufræði og umhverfismennt Lífvísindi Markmið Að nemendur þekki, skilji, geri sér grein fyrir vinni og fjalli um : að allar lífverur séu gerðar úr líffærakerfum. að vita hvað sé matnum sem þau láta ofan í sig. að vita hvert sé hlutverk hinna ýmsu næringarefna. að blóðið flytji næringarefni og sérefni um líkamann að blóðið flytji koltvíoxíð og úrgangsefni um líkamann. að ónæmiskerfið verndi okkur gegn sjúkdómum. hvernig líkaminn stjórni líkamshitanum. þekki beinagrindina og störf mismunandi vöðva. hvaða áhrif þjálfun hafi á vöðva. að taugafrumur senda boð um líkamann. hvernig skynfæri starfa. að hormón beri boð milli líffæra. getnaðarvarnir og kynsjúkdóma. hvernig við fjölgum okkur. að kynhneigð sé mismunandi. hvernig vímuefni verka á líkamann. hvað vímuefni séu. Leiðir að markmiðum. Námið fer fram í formi einstaklings – og hópvinnu, teymisvinnu, samþættingu námsgreina o.fl. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 11 -
Námsgögn. Mannslíkaminn, Einkenni lífvera, Lifandi veröld, Æxlun mannsins o.fl. Námsmat. 50 % kaflapróf, 30 % virkni og vinnusemi í tímum og 20 % heimavinnuskil. Einkunnir eru á skalanum 1 – 10.
Eðlisvísindi Markmið Að nemendur: geti lýst eðli og orsökum hreyfinga og notað hugtökin ferð, hraði, hröðun og kraftur þekkji þyngdarlögmálið og vita að þyngdarkraftur verkar á milli allra hluta skilji muninn á massa og þyngd geti notað hugtök eins og þrýsting og eðlismassa og tengt þau fyrirbærum í daglegu lífi geti beitt hugtökunum vinna, orka og afl og lýst tengslum á milli þeirra kynnist hugmyndum manna um uppbyggingu alheimsins þekkji gerð og eiginleika sóla og reikistjarna þekkji sólkerfið okkar og nokkur einkenni þess þekkji til geimferða mannsins, geimrannsókna og notkun gervihnatta geti unnið sjálfstætt og með öðrum að verklegum og skriflegum verkefnum geti skráð upplýsingar og niðurstöður verkefna á skipulegan hátt Leiðir að markmiðum Nemendur í 9. bekk eru í tveimur samfelldum kennslustundum í eðlisfræði á viku allan veturinn. Námsefnið verður sett fram með fjölbreyttum hætti með innlögn, verklegum verkefnum, skriflegum verkefnum og fræðslumyndböndum. Lögð er áhersla á umræður og samvinnu nemenda, ásamt einstaklingsvinnu. Námsgögn Kraftur og Hreyfing e. Dean Hurd, Edward Benjamin Snyder o.fl. Sól, tungl og stjörnur e. Dean Hurd, Edward Benjamin Snyder o.fl. Ítarefni: myndbönd og verkefni m.a. af netinu Námsmat Nemendur fá skólaeinkunn sem samanstendur af: - kaflaprófum - skýrslum - vinnubók - verkefnum
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 12 -
Lífsleikni Markmið Að byggja upp alhliða þroska nemandans til þess að hann geti betur tekist á við kröfur og áskoranir daglegs lífs. Að nemendur: styrkist í að vernda persónuleg og tilfinningaleg mörk sín öðlist færni í samskiptum læri að íhuga á gagnrýninn hátt langanir sínar væntingar og sérstöðu til að öðlast aukna sjálfsþekkingu skynji félagslegar aðstæður til að geta metið hvort og hvernig þeir gerast þátttakendur í þeim. geti metið hvaða skyldur og ábyrgð þeir bera gagnvart samborgurum sínum
Leiðir að markmiðum Kennari leiðir umræðu í bekknum og tengir við viðfangsefnin, sjálfsþekkingu, samskipti, sköpun og lífsstíll annars vegar og samfélagið, umhverfið, náttúruna og menninguna hins vegar. Námsgögn Kennari nýtir fjölbreytt efni við kennsluna, m.a. er notað efnið Vertu reyklaus frjáls, Vertu með, félagsmálafræðsla 1. hefti, myndbönd og ýmislegt efni sem kennari ljósritar. Námsmat Metin er frammistaða í tímum og undirbúningsvinna heima. Umsögn er gefin að vori.
Íþróttir - líkams- og heilsurækt Markmið Að nemendur: þjálfist í samsettum hreyfingum þjálfist í nýjum og lærðum hóp –og einstaklingsíþróttum sem stundaðar eru hér á landi efli líkamsþol, kraft, hraða, viðbragð og liðleika þjálfist í samvinnu og að sýna tillitssemi við aðra nemendur fari eftir fyrirmælum Leiðir að markmiðum fjölbreyttir íþróttatímar sem innihalda m.a. leikfimiæfingar, þolæfingar, styrktaræfingar, boltaleiki sem og aðra leiki styrkjandi æfingar með áherslu á aukið þol og styrk. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 13 -
endurteknar útfærslur á flóknum æfingum þannig að þær verði sjálfvirkari auknar tækniæfingar í íþróttagreinum sem nemendur velja að hluta til sjálfir
Námsgögn: Stór og smá áhöld til íþróttaiðkunar. Námsmat: Þol, styrkur, liðleiki og hraði eru mæld tvisvar á vetri. Virkni í tímum, samskipti við aðra nemendur og hvort farið er eftir fyrirmælum er í símati. Nemendur fá skólaeinkunn á skalanum 1-10.
Sund Sundkennsla fer fram í sundlaug Ölduselsskóla. Sundið er í námsskeiðsformi, nemendur eru því aðeins í sundi hluta af vetri. Seljaskóli fær aðgang að sundlaug Ölduselsskóla eftir kl. 14 á daginn og eru námskeiðin því skipulögð eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Markmið Að nemendur auki þol bæti tækni/stílsund auki hraða geti synt í fötum fari eftir fyrirmælum 9. markmiðsstig 500m sund frjáls aðferð 100m bringusund tímataka 50m skriðsund tímataka Stílsund: - bringusund - skriðsund - kafsund - baksund Leiðir að markmiðum Sundið er brotið niður í einstök tök og þau æfð sér og síðan saman með og án hjálpatækja. Námsgögn Korkar. Námsmat Í lok námsskeiðs er prófað í 9. markmiðsstigi. Standist nemandi prófið fær hann umsögnina "9. stigi lokið" , annars "þarfnast frekari þjálfunar" og er á næsta námskeiði veitt meiri tilsögn. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 14 -
Einnig er gefin skólaeinkunn á skalanum 1-10 sem byggir á hraða (tímatöku) og sundstíl. Nemendum í 9. bekk gefst kostur á að ljúka 10. stigi í sundi ef mæting þeirra er 80% eða meiri og hæfni þeirra og ástundun gefa tilefni til.
Valgreinar
Danska-talmál Kennslustundir á viku:1 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í talaðri dönsku þannig að þeir geti hlustað á texta á dönsku og tjáð sig um þá. Geti bjargað sér erlendis við raunverulegar aðstæður eins og t.d. að spyrja til vegar, versla og koma sér á milli áfangastaða. Einnig verða nemendur þjálfaðir þannig að þeir geti tekið þátt í almennum umræðum um ýmis málefni.
Markmið að þjálfa og auka öryggi í dönsku talmáli að auka sjálfstraust í samskiptum á dönsku að bæta framburð að auka virkan orðaforða á dönsku Leiðir að markmiðunum Unnið verður með texta og verkefni lögð fyrir til undirbúnings heimafyrir. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna í umræðuhópum eða tveir og tveir saman og einnig verða þeir látnir tjá sig einstaklingslega um ákveðin mál. Námsgögn Lesefni og verkefni útbúin af kennara. Námsmat Mat á frammistöðu í tímum sem byggir á virkni í tímum og undirbúningsvinnu heima. Munnleg próf tekin tvisvar í áfanganum þar sem árangur nemandans er metinn út frá framburði, orðaforða og framsetningu. Lokaeinkunn er í formi umsagnar.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 15 -
Enska - orð af orði Kennslustundir á viku: 1 Tvær annir Áfangalýsing: Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í ensku þannig að þeir geti hlustað á texta á ensku, ákveðin orð tekin fyrir í framburði og skilningi og geti aukið færni sína í stafsetningu ákveðinna orða. Einnig verða þeir þjálfaðir þannig að þeir geti tjáð sig um einfalda hluti á ensku. Markmið: að þjálfa og auka orðaforða í ensku að auka sjálfstraust í samskiptum á ensku að bæta framburð Leiðir að markmiðunum. Unnið verður með texta af ýmsu tagi eins og sögur, fréttir og málefni líðandi stundar. Námsefni verður sniðið að þörfum hvers og eins. Nemendur vinna gagnvirkar æfingar, fara í orðaleiki tveir og tveir eða vinna saman í stærri hópum. Námsgögn Kennsluforrit, efni af netinu og ljósritað efni frá kennara. Námsmat: Umsögn er gefin sem byggir á frammistöðu og virkni í tímum.
Förðun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Að hugsa vel um húðina skiptir miklu máli og er það grunnur að heilbrigðu og fallegu útliti. Að kunna að farða sig og aðra er bæði skemmtilegt og gagnlegt. Markmið Að nemendur: læri um heilbrigt útlit læri litablöndun kynnist undirstöðu mismunandi farðanna læri að nota förðunarvörur læri vandvirkni geti nýtt sér förðun við ýmis tækifæri eins og árshátíð og fl hafi gaman af
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 16 -
Leiðir að markmiðum Námskeiðið skiptist í eftirfarandi þætti: Tölvur. Heilbrigð húð, fallegt útlit. Litablöndun. Náttúrulegförðun. Dagförðun. Skyggingar. Kvöldförðun. Ljósmynda og tískuförðun. Ýmis „fake“. Í byrjun verður sýnikennsla þar sem farið verður yfir helstu þætti námskeiðsins og farðanir. Eftir það verður stór hluti námskeiðsins verklegur þar sem nemendur fá að prófa sig áfram. Námskeiðið byggist á mikilli samvinnu þar sem nemendur eru einnig módel til að æfa sig á. Námsgögn Bók til að punkta hjá sér hugmyndir og teikna í. Plastmappa, förðunarvörur, tölvur,vídeó, tískublöð og bækur. Námsmat Ástundun, frumkvæði, sköpunarkraftur og vandvirkni metið. Þá verður vinnubók metin ásamt skriflegu og verklegu prófi.
Heimilisfræði Kennslustundir á viku: 3 Ein önn Áfangalýsing Áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga og vilja til að auka við færni í matreiðslu og bakstri. Í áfanganum verður lögð áhersla á matreiðsluhefðir mismunandi landa og heimshluta. Einnig verður lögð áhersla á mikilvægi heilbrigðis, réttrar næringar og hreinlætis. Markmið að nemendur nái að tileinka sér réttar vinnuaðferðir að nemendur læri að vinna sjálfstætt eftir uppskrift að nemendur læri að tileinka sér matarmenningu annarra landa að nemendur læri að þroska bragðskyn og leggja áherslu á útlit matar að nemendur læri um gildi hreinlætis Leiðir að markmiðunum Verkefni: Bakstur og matreiðsla frá mismunandi löndum. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 17 -
Hvernig er áfanginn unninn: Sýnikennsla, innlögn verkþátta. Kennsluaðferðir: Einstaklingsvinna, hópvinna og vettvangsferðir ef tækifæri gefast. Námsgögn: Gögn gefin út af Námsgagnastofnun auk annarra verkefna af Netinu eða annarsstaðar frá. Námsmat Símat í lok hvers tíma, þar sem áhugi, vinnusemi og snyrtimennska eru lögð til grundvallar. Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.
Hönnun og hugmyndavinna Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Þessi áfangi er ætlaður þeim nemendum sem hafa áhuga á að læra um hönnun og hvernig þróa á hugmyndir. Áhersla verður lögð á skissu- og hugmyndavinnu og fá nemendur innsýn inn í heim hönnuðarins og hvernig hann starfar. Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir þá nemendur sem hyggja á frekara nám á hönnunar eða listabraut. Nemandi þarf ekki að vera snillingur í að teikna til að sitja þennan áfanga, hægt er að notast við úrklippur, prent af neti eða orð til að lýsa hugmyndum. Nemendur geta gert hugarkort í stað teikninga til að lýsa hugmyndinni. Aðalatriðið er að leyfa sköpunargáfunni að njóta sín og reyna nýja hluti. Þetta er mikil vinna sem nemendur þurfa að vinna á námskeiðinu, en skemmtileg og gefandi. Nemendur nota skissubók yfir veturinn, sem er gott að eiga, ef nemandi hyggur á frekara nám í greininni. Einnig er heimilt að notast við rafrænt form ef nemandi kýs, en þá í samráði við kennara. Nemendur fá einnig innsýn í heim hönnunar með fyrirlestrum frá kennara til stuðnings því sem þeir eru að fást við í námskeiðinu. Unnið verður í öllum helstu forritum tengt hönnunarvinnu, s.s. Illustrator, Photoshop, Flash, After effects og ProDesktop (þrívídd). Markmið að nemendur læri að nýta sér ýmiskonar hugmyndavinnu og hvernig þróa á hugmynd frá upphafi til enda að nemendur noti tímann vel og skissi allar hugmyndir niður á blað (skissa er teikning, hugarkort, úrklippur o.fl.) að nemendur nái að búa til kynningu á hugmyndinni í hugbúnaði sem er sambærilegt því sem hönnuðir nota að nemendur læri að gagnrýna verk hver annars á uppbyggilegan hátt að nemendur séu opnir fyrir gagnrýni sem þætti í að bæta verkefnið sem þeir eru að vinna Leiðir að markmiðum Verkefnalýsing Ýmis verkefni verða lögð fyrir og fer það eftir vinnuhraða hvers og eins hversu mörg verkefni hver nemandi kemst yfir en m.a. verður farið í merkjagerð (logo), hönnun smíðagripa, hönnun út frá þekktri persónu eða þema, þróun teiknimyndapersónu, Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 18 -
vöruhönnun, auglýsingagerð, vefborðar/teiknimynd, hönnun stóls eða hluta sem falla undir iðnhönnun o.fl. Námsgögn Skissubók, ritföng og tölvuforrit sem henta því verkefni sem nemandi er að vinna. Námsmat Verkefni nemenda eru metin til einkunnar jafnóðum en einnig er áhugi, frumkvæði og vinnusemi í kennslustundum metin jafnharðan. Nemendur eiga að skila skissubók í lok námskeiðs, hún er hluti af námsmati og gildir 20%.
Hönnun og smíði Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Öll vinna í þessum áfanga bæði í 9. og 10. bekk er einstaklingsmiðuð. Nemendum stendur til boða að vinna með öll efni og öll verkfæri sem smíðastofan hefur uppá að bjóða, að svo miklu leyti sem kostnaður og öryggissjónarmið leyfa. Nemendum er gert að vinna út frá hugmyndum sem þeir koma sjálfir með og hanna út frá eigin þörfum og áhuga. Ef eigin hugmyndir skortir mun kennari leggja fyrir nemandann verkefni sem innihalda meðferð verkfæra eða smíðaefna sem tiltekinn nemandi hefur ekki kynnst áður og er þá stuðst við fyrirliggjandi ferilskrá. Markmið að virkja vilja og áhuga til að koma verki í framkvæmd að tengja þekkingu, sem nemandi býr yfir, við það verk sem hann ætlar að framkvæma að afla sjálfur nýrrar þekkingar til að geta komið hugmynd í framkvæmd að bæta við þá verkþekkingu sem fyrir er undir leiðsögn kennara Leiðir að markmiðunum Kennsla í þessum áfanga miðar fyrst og fremst að því að fara yfir leiðir til að nýta áhuga og þekkingu hvers og eins til að skapa og framkvæma. Farið er yfir notkun tölvu til að afla hugmynda bæði verkefnabanka skólans og netleitaraðferðir. Dæmi um verkefni sem hægt er að vinna eru t.d. smærri húsgögn úr mismunandi plötuefnum, renndir hlutir, smáhlutir úr tré, smærri hlutir úr járni, góðmálmum og skartgripir úr silfri sem og hlutir formaðir úr plasti, horni o.fl. Námsgögn Verkefnabanki sem byggir á myndum af smíðaverkefnum nemenda. Handbækur með smíðahugmyndum. Flettispjöld sem sýna smíðaaðferðir o.fl. Öll verkfæri sem nemandinn hefur aðgang að miðað við aldur Námsmat Námsmatið er framkvæmt með símati og er nemandanum gerð grein fyrir því jafnóðum eftir því sem kostur er. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 19 -
Matsþættir eru þrír: 1. Vinnusemi og frumkvæði, þar sem metið er hve vel nemandi heldur sig að verki og hvernig hann bregst við erfiðleikum. Metið er eftir hvern tíma. Gildir 70 % 2. Vandvirkni, þar sem metin er þrautseigja við að ná sem bestum árangri. Verkefni skoðuð og metin. Gildir 15 % 3. Frumleiki, þar sem metið er hvort nemandi leggur vinnu í að koma sjálfur með hugmyndir um gerð og útlit hluta. Gildir 15 % Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.
Íþróttafræði Kennslustundir á viku: 1 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Námið er að verulegu leyti verklegt og ætlað fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á íþróttum. Utanaðkomandi fræðsla verður fengin ásamt því að farið verður í vettvangsferðir. Bóklegir tímar verða 2 - 3. Markmið að nemendur geti gert kennsluáætlun fyrir 60 mínútna tímaeiningu að nemendur kynnist mismunandi íþróttagreinum að nemendur geti stjórnað tímum sem leiðbeinendur að nemendur kunni að búa til skammtíma og langtíma áætlanir Leiðir að markmiðum Verklegar kennslustundir í Íþróttahúsi Seljaskóla. Farið verður í ýmsar greinar íþrótta. Námsgögn Verkefni útbúin af kennara. Námsmat Símat, þar sem metin eru verkefni nemenda og virkni í tímum. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Knattspyrna Kennslustundir á viku: 2 Tvær annir Áfangalýsing Námið er að mestu leyti verklegt (knattspyrna iðkuð) en með stuttum hagnýtum og/eða fræðilegum innlögnum. Nemendur fá að kynnast hvernig afreksmenn í knattspyrnu æfa og reynt verður að líkja eftir þeim allra bestu. Æfingar verða í takt við það besta sem Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 20 -
þekkist hér á landi. Töluverð áhersla verður lögð á spil en alltaf með þeim áherslum að leikmenn séu að bæta sig. Markmið að leikmenn bæti fíntækni og snerpu að leikmenn bæti sendingar og móttöku að leikmenn auki leikskilning að Seljaskóli geti teflt fram góðu skólaliði
Leiðir að markmiðum Knattspyrna verður iðkuð í íþróttahúsi Seljaskóla og utanhúss ef færi gefst. Áfanganum er skipt upp í mislangar lotur. Fíntækni, sendingar, varnarleikur (markvarsla), sóknarleikur og leikskilningur verða tekin fyrir og unnið að því að bæta þessa þætti hjá leikmönnum. Námsgögn Bolti, vesti og keilur. Viðeigandi íþróttafatnaður Námsmat Nemendur er metnir samkvæmt mætingu, frammistöðu og áhuga í tímum. Umsögn er gefin í lok áfanga.
Myndmennt Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Farið er í alla grunnþætti myndlistar. Teikningu, málun, þrykk og mótun. Listasagan er lauslega skoðuð og helstu listastefnur kynntar. Á vorönn er það áhugasvið nemandans sem stjórnar því hvað er gert hjá þeim sem eru allan veturinn. Markmið að nemendur öðlist þekkingu á helstu aðferðum myndlistar að nemendur öðlist færni til að beita þeim aðferðum að nemendur þjálfi skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að ljúka. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Teikniblýantar, túss ,acrylmálning, gouachemálning, mismunandi gerðir lita, listaverkabækur og internetið. Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 21 -
Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir möppu nemandans og skoðað hvort hann hefur lokið skylduverkefnum sínum og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Þrívíð hönnun Kennslustundir á viku: 2 Ein önn Áfangalýsing Nemendur fá tækifæri til að vinna skúlptúra úr mismunandi efnum s.s. leir, pappír, timbri, gifsi og hvað sem okkur dettur í hug. Markmið að öðlast þekkingu á helstu aðferðum þrívíðrar hönnunar að öðlast færni til að beita þeim að þjálfa skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð
Leiðir að markmiðunum Það eru nokkur skylduverkefni sem nemendur þurfa að klára. Þar er verið að þjálfa færni í vinnubrögðum. Námið er einstaklingsmiðað og vinnur hver og einn á sínum hraða. Reynt er að ýta undir allt frumkvæði hjá nemendum og þeir hvattir til að framkvæma þær hugmyndir sem þeir fá, innan ákveðins ramma. Námsgögn Timbur ,leir, gifs, pappír, málning og allskonar endurvinnsla. Námsmat Námsmat fer fram að hluta sem símat en þá er verið að meta frumkvæði og vinnugleði. Að lokinni önn er farið yfir verk nemandans og skoðað hvort nemandi hefur klárað skylduverkefni sín og hvað hann gerði í frjálsu vali. Þá er bæði verið að meta færni, vandvirkni og afköst. Einkunn er gefin á skalanum 1-10.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 22 -
Leiklist Veturinn 2010 – 2011 eru tónlist og leiklist samþætt. Ein önn Kennslustundir á viku: 2 Áfangalýsing Áhersla er lögð á grunnaðferðir og grunntækni leiklistar. Unnið verður með fjölbreytta gerð hlutverkaleikja, innlifun, látbragð og líkamstjáningu. Markmið Að nemandi: verði fær um að taka virkan þátt í skapandi ferli í samvinnu við aðra geti sett sig í spor annarra, skapað persónu og túlkað viðhorf hennar bæði munnlega og skriflega taki sjálfstæðar ákvarðanir og skilji frekar viðhorf og skoðanir annarra. Leiðir að markmiðum Unnið verður með fjölbreytt skapandi ferli þar sem nemendur verða settir í mismunandi aðstæður þar sem þeir verða að byggja á eigin reynslu við ákvarðanatöku. Aðstæðum sem skapast í ferlinu er ætlað að vera eins konar vörn til að nemendur geti deilt eigin viðhorfum og hugmyndum með félögum sínum. Nemendur frumsemja örleikrit þar sem fjallað er um kynslóðabilið, tísku, málfar o.fl. Námsgögn Búningar, hljóðfæri, tölvur o.fl.
Námsmat Matið er innbyggt í vinnuferlið. Kennari semur gátlista, þar sem hann merkir jafnóðum við einstaka þætti. Hann metur einnig verkefni nemenda og flutning á þeim. Námsmat er í formi umsagnar.
Tónlist Veturinn 2010 – 2011 eru tónlist og leiklist samþætt. Áfangalýsing Námið er að miklu leyti verklegt og er ætlað þeim sem hafa mikinn áhuga á tónlist. Leitað verður svara við spurningunni: Hvað er tónlist og úr hverju er hún búin til ? Skoðaðir eru grunnþættir tónlistar, taktur, laglína, hljómar, form o.fl. með hlustunarverkefnum og umræðum. Markmið að nemendur öðlist þekkingu á grunnþáttum tónlistar Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 23 -
að nemendur öðlist færni í notkun tónlistarforrita og/eða hljóðfæra að nemendur þjálfi skapandi hugsun og sjálfstæð vinnubrögð að nemendur þjálfist í því að vinna, spila og syngja með öðrum Leiðir að markmiðum. Hlustunarverkefni og umræður. Kynnt verða: Hljóðbútar og upptökuforrit, t.d. garageband, logic og fl. studio. Kvikmyndaforritið imovie, með það að markmiði að búa til tónlistarmyndband Undirstöðuatriði í hljóðfæraleik (hljómborð, gítar, trommusett og bassi) og söng. Námið byggist á hópvinnu, annarsvegar skylduverkefni með öllum hópnum og hinsvegar tölvuvinna og/eða samspil í 3-6 manna hópum. Námsgögn Hljóðspor, þróum rytmískar tónlistar og hlustunarefni . Tölvur, tónlistarforritið garageband, Logic og sibelius, kvikmyndaforritið iMovie. Fjölbreytt úrval hljóðfæra. Námsmat Fer fram að hluta sem símat þá er verið að meta áhuga, samstarfsvilja, virkni og frumkvæði. Að lokinni önn eru verkefni nemenda skoðuð og þá er metið færni, vandvirkni og afköst. Námsmat er í formi umsagnar.
Textílmennt Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir Áfangalýsing Farið er í helstu grunnþætti í textílmennt. Höfuðáhersla er lögð á prjón. Einnig er kennt að hekla. Unnið með þæfingu, tauþrykk og útsaum. Markmið að nemandi öðlist þekkingu í helstu aðferðum í textílmennt að nemandi nái færni í að beita þeim aðferðum að nemandi þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og skapandi hugsun við eigin útfærslur á viðfangsefnum Leiðir að markmiðum Námið er einstaklingsmiðað og hver og einn vinnur á sínum hraða en nokkur skylduverkefni eru lögð fyrir til að þjálfa færni í vinnubrögðum. Reynt er að ýta undir frumkvæði hjá nemendum og þeir eru hvattir til að útfæra eigin hugmyndir innan ákveðins ramma. Námsgögn Garn, prjónar, heklunálar, nálar, skæri og fleiri verkfæri tengd greininni. Ýmsar handbækur.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 24 -
Námsmat Námsmat er að hluta til símat. Mat er lagt á vinnugleði, færni, vandvirkni, frumkvæði og afköst. Í lokin er ferilmappa nemandans skoðuð og metin. Einkunn er gefin á skalanum 1 – 10.
Tæknimennt – tölvur Kennslustundir á viku: 2 Ein eða tvær annir. Áfangalýsing Í þessum áfanga verður kafað nokkuð djúpt í notkun tölva með margvíslegum forritum og nemendur þjálfaðir í að nýta sér upplýsingatæknina í leik og skólastarfi. Markmið að nemendur læri að nota Netið til upplýsingaöflunar og kunni að nota helstu leitarvélarnar sér til aðstoðar að nemendur nái færni í ritvinnslu að nemendur læri umbrot í Publisher forritinu að nemendur geti búið til Power Point (glæru-) sýningar að nemendur læri myndvinnslu í Photoshop forritinu að nemendur öðlist færni og þekkingu í tölvu- og myndvinnslu og að eftir önnina hafi þeir aukið sjálfstraust til að vinna sjálfstætt að sköpun og hafi haldgóða tækniþekkingu í farteskinu Leiðir að markmiðunum Farið verður í leturgerð, uppsetningu og samhengið milli leturgerðar og innihalds texta skoðað. Nemendur vinna verkefni tengt upplýsingaöflun á Netinu. Nemendur vinna dagatal, bækling, fréttablað og auglýsingar í Publisher forritinu. Teknar verða stafrænar ljósmyndir, hlaðið inn í tölvu og unnið með þær á margan hátt í Photoshop forritinu. Einnig verður hreyfiborði unninn til að setja sem haus á heimasíðu. Í áfanganum verður bæði einstaklingsvinna og hópvinna. Námsgögn Tölvur, skanni, myndavél og kennslubækur. Námsmat Námsmat verður annars vegar símat þar sem sjálfstæði í vinnubrögðum, skapandi og frumleg hugsun, efnistök, frágangur, frammistaða í tímum og framfarir verða metin. Lokaverkefni verður metið út frá efnistökum, skapandi og frumlegri hugsun, frágangi og framförum. Einkunn gefin á skalanum 1-10.
Skólanámskrá Seljaskóla 2011-2012 9. bekkur - 25 -