hugmyndasamkeppni.is
Hugmynda samkeppni um rammaskipulag Elliðaárvogs/ Ártúnshöfða Reykjavíkurborg auglýsir eftir þátttakendum í forval fyrir lokaða hugmyndasamkeppni um rammaskipu lag Elliðaárvogs – Ártúnshöfða. Samkeppnin er haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Hugmyndasamkeppnin gengur út á að útfæra hug myndir og tillögur um skipulag svæðisins í samræmi við markmið í samþykktu Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010–2030 en svæðið hefur þjónað hlutverki sínu í núverandi mynd um áratuga skeið og er nú kominn tími til að gefa því endurnýjað hlutverk í takt við
stefnu borgaryfirvalda um góða nýtingu lands og þéttingu byggðar. Leiðarljós, markmið og tilhögun samkeppninar ásamt öllum nánari upplýsingum um lágmarkskröfur og hæfni þátttakenda koma fram í drögum að forsögn samkeppnislýsingar sem er aðgengileg á www.hugmyndasamkeppni.is Áhugasamir skulu fylla út skjal sem er aðgengilegt á ofangreindu vefsvæði og senda nafn/nöfn þátt takenda ásamt samantekt á þátttöku og árangri í samkeppnum og öðrum sambærilegum verk efnum til Umhverfis og skipulagssviðs Reykja víkurborgar, skipulagsfulltrúi, Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík merkt „Elliðaárvogur – Ártúnshöfði hugmyndasamkeppni, forvalsnefnd“ fyrir lok dags 8. desember 2014.