2 minute read

Lítt gróið land

Next Article
Hálfdeigja

Hálfdeigja

Lítt gróið land Alls voru 444 úttektarreitir flokkaðir sem hálfgróið land. Af þeim voru 20 skráðir sem blanda tveggja eða fleiri landgerða, eða um 4,5% reitanna. Þessi yfirborðsflokkur kom fyrir í öllum hæðarbilum (Tafla 8). Flatarmál lítt gróins lands á landinu er áætlað á bilinu 23.061-23.861 km2 eftir því hvaða nálgun er beitt (sjá kafla 3.1). Gróðurþekjan í úttektarreitum var að jafnaði 6,4%. Þessi yfirborðsflokkur er skilgreindur með 0-20% gróðurþekju og skiptast úttektarreitir á þekjubil innan þeirra marka. Önnur þekja en gróður var metin í reitum teknir 2012 og síðar. Klappir voru í 21% reita, grjót í 79%, melur í 62%, mold í 22% og sandur í 64% reita. Þekja rofdíla í reitum er að meðaltali 2,8%, og um 27% í þeim reitum, sem eru með rofdílum. Í lítt grónu landi voru rofdílar í 10% reita, og eða 46 reitum. Stærð og virkni rofdíla var metin í reitum sem skoðaðir voru 2012 og síðar, og var stærð díla metin í 4 reitum virkni skráð í 3 reitum. Í þessum reitum var meðalþvermál rofdíla metið 114 cm og var virkt rof í öllum reitum sem það var skráð. Aðrar rofmyndir voru skráðar í og við 63% reita sem flokkaðir voru sem lítt gróið land. Í gróðurrömmunum var heildarþekjan metin 3,1% og þekja mosa og blóma og birkninga mest eða 1,9%. Næst komu grös og hálfgrös með 1,8% þekju að meðaltali. Þekja sinu í römmunum var metin 1,3% að meðaltali í reitum í lítt grónu landi 2012 og síðar. Blaðhæð var að jafnaði 2,0 cm í þeim römmum sem hún var metin í og sinuhæðin 1,1 cm. Meðalþekja kjarrs var 0,9% og kjarrhæðin að meðaltali 11,6 cm í reitum með kjarri í og engir reitir með kjarrhæð >100 cm. Af eftirsóttum beitarplöntum sem skráðar voru var gulvíðir algengastur og fannst í 7% reita, túnsúra í 6% og grávíðir í 4% reita. Af síður bitnum plöntum þá var blóðberg algengast eða í 39% reita, þursaskegg í 29% og grasvíðir í 24% reita. Þúfur voru skráðar í 3 reiti í lítt grónu landi, þar af 2 með smáþýft og 1 í þýft. Torfur voru skráðar í 27% reit af þeim voru 18 (11%) skráðar með stöðuga jaðra og 25 (15%) með virkt rof í jöðrum. Af þeim reitum sem skráðir voru í lítt gróið land voru 43 (10%) skráðir með uppgræðslur sem eru 35% allra reita þar sem uppgræðsla er skráð til staðar. Þ.e.a.s. 35% reita sem í er skráð uppgræðsla flokkast sem lítt gróið land. Beit var ekki merkjanleg í 81% reita, lítil beit í 13%, miðlungs beit í 3%, mikil beit í 2% og 1% reita innan lítt gróins lands var skráð sem þungbeitt land. Beitarmerki á gróðri voru ekki merkjanleg í 96% reita, lítilsháttar í 1%, jafnbeitt í 1% og rótnagað í 1% reita. Mat á beit er ívið hærra í reit og umhverfi en ummerki á gróðri segja til um. Ummerki beitardýra voru í og við 34% reita, sem flokkaðir voru sem lítt gróið land. Algengast var að traðk væri til staðar eða við 31% reita. Sauðfé var við 24% reita og skítur í og við 19%. Þessar þrjár vísitölur um beit gefa ekki allar sömu niðurstöðu. Ummerki beitardýra eru í og við rúm 30% reita, beit merkjanleg í rúmlega 20% reita og beitarmerki á gróðri greinanleg í um 4% reita.

Meðal jarðvegsdýpt í reitum innan hálfgróins lands var metin 38 cm. Jarðvegur var >100 cm í tæpum 11% reita. Án þeirra reita var dýptin 21 cm að meðaltali.

This article is from: