2 minute read

Votlendi

Votlendi Alls voru 161 úttektarreitir flokkaðir sem votlendi. Af þeim voru 13 skráðir sem blanda tveggja eða fleiri landgerða, eða 8% reitanna. Allir reitirnir voru neðan 700 m h.y.s. Flatarmál votlendis á landinu er áætlað um 3.594-3.807 km2 eftir því hvaða nálgun er beitt (sjá kafla 3.1). Gróðurþekjan í úttektarreitum var að jafnaði 96,8%. Í langflestum reitum var gróðurþekjan >90% og 82% reita með 100% gróðurþekju. Önnur þekja en gróður var metin í reitum teknir 2012 og síðar. Klappir voru í 1% reita, grjót í 3%, melur í 1% og mold í 2%, en sandur kom ekki fyrir sem yfirborðsþekja í neinum reit innan votlendis. Þekja rofdíla í reitum er að meðaltali 0,1%, og 3% sé aðeins horft til þeirra fjögurra votlendisreita sem höfðu rofdíla. Stærð og virkni rofdíla var ekki metin í þeim reitum. Aðrar rofmyndir voru skráðar á tvo reiti (1%) í votlendi. Í gróðurrömmunum í votlendi var heildarþekjan metin 95,4% og þekja grasa og hálfgrasa mest eða 77,5%, næst mest er þekja mosa 57,0%, svo lyngs og fjalldrapa 8,6% að meðaltali. Þekja sinu í römmunum var metin 48,7% að meðaltali í reitum í votlendi teknum 2012 og síðar. Blaðhæð var að jafnaði 21,2 cm í þeim römmum sem hún var metin í og sinuhæðin 8,2 cm. Meðalþekja kjarrs var 3,7% og kjarrhæðin að meðaltali 15,0 cm ef allir reitir með einhverja kjarrþekju eru teknir með. Kjarrhæð yfir 100 cm var ekki í neinum votlendisreit. Af eftirsóttum beitarplöntum var gulvíðir algengastur og fannst í 42% reita, síðan grávíðir 26% og lyfjagras í 13% reita. Af síður bitnum plöntum þá var bláberjalyng algengast eða í 56% reita, næst kom krækilyng í 48% reita og grasvíðir í 18% reita. Þúfur voru skráðar í 56% reita í votlendi, þar af 24% smáþýft, þýft 27% og stórþýft í 5% reita. Torfur voru ekki skráðar í neinn reit í votlendi. Af þeim reitum sem skráðir voru í votlendi var 1 (<1%) skráður sem uppgræðsla sem eru 1% allra reita þar sem uppgræðsla er skráð. Beit var ekki merkjanleg í 51% reita, lítil beit í 25%, miðlungs beit í 16% og mikil beit var skráð í 6% reita í votlendi.

Beitarmerki á gróðri voru ekki merkjanleg í 88% reita, lítilsháttar í 6% ogrjóðurbitið í 6% reita. Mat á beit er heldur hærra í reit og næsta nágrenni en ummerki á gróðri segja til um. Ummerki beitardýra voru í og við 71% reita sem flokkaðir voru sem votlendi. Algengast var að sauðfé væri til staðar eða hjá 66% reita. Traðk var til staðar í 26% tilfella og skítur í 24%. Þessar þrjár vísitölur um beit gefa ekki allar sömu niðurstöðu. Ummerki beitardýra eru í og við um 70% reita, beit merkjanleg í 47% reita og beitarmerki á gróðri greinanleg í um 12% reita. Meðal jarðvegsdýpt í votlendisreitum var metin 139 cm. Jarðvegur var >100 cm djúpur í 87% reita. Án þeirra reita var dýptin 64 cm að meðaltali.

This article is from: