3 minute read
Mismunandi pizzur fyrir mismunandi smekk
Föstudagar eru pizzudagar á mörgum heimilum og tilvalið tækifæri fyrir fjölskylduna að eiga góða stund saman. Margir mikla fyrir sér að útbúa sitt eigið pizzudeig en það er í raun eitt af því einfaldasta sem hægt er að gera í eldhúsinu.
Í venjulegt gómsætt pizzudeig þarf einungis 5 hráefni og þú færð margfalt betra deig heldur en það sem þú færð út í búð. Það er því tilvalið að henda saman deigi og leyfa því að hefast á meðan fjölskyldan undirbýr saman það sem á að fara ofan á hana. Hver og einn getur svo raðað á sína pizzu því sem hann elskar.
Á mínu heimili eru alltaf gerðir tveir mismunandi pizzubotnar svo allir fái það sem þeir elska, hinn klassíska heilhveiti-pizzubotn og svo spínat-pizzubotn. Hvorn tveggja er einfalt að gera og tekur enga stund. Ofan á þessa botna er svo hægt að setja allt milli himins og jarðar. Gott er að byrja eldamennskuna á að gera heilhveiti-pizzubotninn og leyfa honum svo að hefast á meðan þú græjar restina.
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að þessum tveim botnum ásamt mildri pizzusósu, sem er eins og þær sem maður fær á Ítalíu. Það sem er svo frábært við að útbúa þetta tvennt sjálfur, sósu og botn, er að við sleppum við alls kyns efni sem annars eru sett út í bæði sósur og botna sem fást út í búð til þess að láta þá endast lengi og líta vel út. Við vitum nákvæmlega hvað er í því sem við útbúum sjálf og með því að nota hágæða lífræn hráefni erum við að næra kroppinn okkar eins vel og við mögulega getum.
Ég prufa oft að bæta einhverju nýju við á mínar pizzur en það sem er alltaf á þeim í grunninn er sósan, sem er uppskrift að hér fyrir neðan; rifinn ostur, rjómaostur, mjúkar döðlur frá Himneskri Hollustu, kirsuberjatómatar og svo ruccola, sem ég set á eftir að pizzan hefur verið bökuð. Svo finnst mér guðdómlegt að setja muldar wasabihnetur, pekan-hnetur og fleira. Þetta er svo toppað með hvítlauksolíunni.
Heilhveiti-Pizzubotn
– Einn stór botn
2 ½ dl volgt vatn
2 tsk þurrger
2 msk ólífuolía frá Himneskri Hollustu
400 gr speltmjöl frá Himneskri Hollustu
Setjið volgt vatn í skál og hellið þurrgerinu út í. Hrærið í og leyfið gerinu að leysast upp. Setjið speltmjöl og ólífuolíu í skál og bætið vatninu með þurrgerinu hægt og rólega í og hrærið á milli. Þú gætir þurft aðeins minna eða aðeins meira vatn eftir því hvernig deigið er. Við viljum ekki hafa það of klístrað og ekki of þurrt. Þegar þetta hefur allt verið hnoðað saman er gott að setja rakan klút yfir skálina og leyfa deiginu að standa á meðan þú undirbýrð það sem á að fara ofan á. Þegar búið er að raða á pizzuna því sem á að fara á hana er hún bökuð við 230 gráður í 8 – 10 mín.
Spínat-Pizzubotn
– Botn sem hentar fyrir einn
60 gr spínat
2 egg
1 dl ostur
1 msk möndlumjöl
Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél, blandara eða skál, ef þið viljið nota töfrasprota. Blandið saman þar til úr verður mjúkur vökvi. Ég nota alltaf blandara en hægt er að nota hinar aðferðirnar líka. Hafið ofninn á 235 gráðum og takið til bökunarpappír. Setjið hann á heita bökunarplötu og hellið deiginu á bökunarpappírinn og dreifið út í hring. Setjið þetta ofarlega í ofninn og bakið í sirka 6 mínútur. Passið að fylgjast vel með þar sem ofnar geta verið mismunandi. Það munu koma loftbólur í botninn, sem er einmitt eins og hann á að vera. Við viljum baka hann þannig að hann sé rétt farinn að brúnast hér og þar. Þá tökum við hann út og setjum sósu og það sem við elskum ofan á hann og bökum svo aftur þar til osturinn er létt farinn að brúnast. Þá er spínatpizzan þín orðin tilbúin og fullkomin.
Pizzusósa
1 askja litlir tómatar
1 krukka tómatpúrra frá Himneskri Hollustu
Salt og pipar
Setjið allt saman í blandara, matvinnsluvél eða notið töfrasprota til að fá þetta mjúkt og kekkjalaust, eins og við viljum hafa góða sósu.
Hvítlauksolía
2 hvítlauksrif
½ dl ólífuolía frá Himneskri Hollustu
¼ tsk salt
Kreistið hvítlauksrifin og setjið svo öll hráefnin saman í litla skál. Þessu er skvett yfir pizzuna eftir að hún er tekin úr ofninum.