3 minute read

Jólin snúast um samveru

Next Article
Notalegt um jólin

Notalegt um jólin

María Krista Hreiðarsdóttir, hönnuður og matgæðingur, rifjar upp jólaminningar úr æsku, segir frá sínum jólahefðum og deilir með okkur girnilegri uppskrift að íshring.

„Ég er mikið „jólabarn“, eða jólamamma og -amma núna. Ég elska að skreyta og setja jólaljós sem víðast,“ segir María Krista Hreiðarsdóttir. Hún framleiðir gjafavöru ásamt eiginmanni sínum, Berki Jónssyni, undir merkinu kristadesign.is og heldur úti matarblogginu mariakrista.com, með áherslu á kolvetnissnauðar uppskriftir. Krista tók allan sykur út úr sínu mataræði fyrir átta árum síðan og líkar ketó-lífsstíllinn vel.

„Ég baka ekki mikið af smákökum en ég geri mínar sykurlausu sörur nokkuð tímanlega og á í frysti. Ég reyni svo að vera búin að skreyta allt mjög snemma því ég hef yfirleitt haldið jólasaumaklúbbinn í vinkonuhópnum mínum,“ útskýrir Krista þegar hún er spurð út í jólaundirbúninginn. „Það má alls ekki vanta jólatré og ég mun eflaust alltaf hafa það þó börnin séu flest flutt að heiman. Aðventukransinn skreyti ég fyrir hver jól, jafnvel fleiri en einn. Jólaljós og stjörnur í gluggum eru svo eiginlega nauðsyn.“

Það sem skiptir Kristu mestu máli á þessum árstíma er samvera með fjölskyldunni. „Laufabrauðsgerðin er ómissandi en þrátt fyrir að ég borði ekki laufabrauð þá er alltaf gaman að hitta föðurfólkið. Dagurinn snýst jú um að skera og steikja laufabrauð en ekki síður að borða saman og allir koma með eitthvað spennandi á drekkhlaðið Pálínu-hlaðborð. Ekki má gleyma jólakvöldi Fríkirkjunnar sem við systur og frænkur höfum mætt reglulega á en það kveikir ekkert meira á jólaandanum en þessi jólastund.“

Krista hlakkar til þess að halda jólin heima hjá dóttur sinni í fyrsta skipti. Aðspurð um matarhefðir á aðfangadag, segir hún: „Ég borðaði alltaf hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi en síðustu árin höfum við valið að elda kalkúnaskip sem hentar öllum. Ég útbý ægilega góða graskersmús, sykurlaust brúnað rauðkál, rósakál með beikoni og geggjaða sveppasósu sem allir elska.“ Hún hvetur fólk sem vill prófa lágkolvetnamataræði um jólin að prófa sig áfram með girnilegar uppskriftir. „Á blogginu mínu er ég t.d. með uppskrift að kolvetnasnauðri Wellingston-steik, kalkúni og allskonar meðlæti. Þar má líka finna hangikjöt og uppstúf án kolvetna og margt fleira sem kemur fyllilega í staðinn fyrir gömlu uppskriftirnar.“

Íshringur með piparkökum og karamellum

Piparkökumylsna:

50 g smjör 90 g möndlumjöl 40 g Sukrin Gold 1/2 tsk. negull 1 tsk. kanill 1/2 tsk. engifer 1/4 tsk. múskat 1/2 tsk. gróft salt 1 tsk. kakó

Bræðið smjör og sætu saman, blandið síðan þurrefnum saman við og hitið allt innihaldið í potti. Dreifið úr því á sílikonmottu eða í formi og bakið í 10 mínútur á 180°C til að gera mylsnuna stökka.

Takið úr ofninum og látið kólna og stífna. Brjótið niður í bita og geymið þar til ísinn er settur saman. Gott er að nota u.þ.b. helminginn af mylsnunni í einn skammt af ís.

Hitið smjör, sætu og síróp saman í potti þar til fer að bulla, bætið þá rjómanum við ásamt vanillu, sítrónu og salti. Látið sjóða í 30 mínútur á vægum hita.

Þegar karamellan festist á teskeið og hægt er að dýfa henni í kalt vatn án þess að hún leysist upp þá er hún fullelduð. Ef ekki þá hitið þið áfram og látið hana þykkna meira.

Karamella:

100 g sykurlaust Sukrin Gold síróp 75 g Sukrin Gold 40 g smjör 140 g rjómi, laktósafrír 1 tsk. vanilludropar 1/2 tsk. sítrónusafi 1/3 tsk. salt

Hellið næst karamellunni í form (gott er að nota sílikonform) og kælið. Skerið í smáa bita og notið um 1/2-1 dl í ísinn ykkar.

Íshringur:

40 g Sukrin Gold síróp 40 g Sukrin Gold sæta eða Nicks 1:1 sæta sem er blanda af Xylitol og Erythritol. Það kemur vel út og frýs ekki eins mikið. 4 eggjarauður (1 dl), fást í brúsa frá Nesbú 1 tsk. vanilludropar 250 ml laktósafrír rjómi

Þeytið sætu, eggjarauður, vanillu og síróp í dágóða stund eða þar til blandan er létt og ljós. Leitist við að hafa eggjakremið þykkt.

Léttþeytið rjómann í sér skál og blandið síðan varlega við eggjakremið. Bætið piparkökumylsnu og karamellukurlinu varlega saman við. Ágætt er að nota um helming af mylsnunni í einn skammt af ís.

Hellið blöndunni í sílikonhringform og frystið í nokkra klukkutíma.

Fallegt er að skilja eftir hluta af piparkökumylsnu og karamellum til skreyta ísinn þegar hann er borinn fram.

This article is from: