Listahátíð í Reykjavík 2009

Page 1

DEBORAH VOIGT á hátindi ferilsins HJALTALÍN undir stjórn DANÍELS BJARNASONAR Stærstu tónleikar Hjaltalín frá upphafi, sem nú koma fram með kammersveit, sem meðal annars skipa Melkorka Ólafsdóttir, flauta, Matthías Nardeau, óbó, Hrafnkell Orri Egilsson, selló, Una Sveinbjarnardóttir, fiðla og Borgar Þór Magnason, kontrabassi. Stjórnandi er Daníel Bjarnason. Hjaltalín fær frábæra dóma í Financial Times, þar sem þeim er m.a. líkt við Sigur Rós og Electric Light Orchestra.

og STÓRSVEIT REYKJAVÍKUR Frumflutningur á níu stórum útsetningum Mintzers sem byggja á fornum íslenskum þjóðlögum og gerðar voru fyrir Stórsveit Reykjavíkur. Mintzer er ein skærasta stjarna stórsveitaheimsins og mun hann á tónleikunum stjórna Stórsveitinni og leika á saxófóninn.

Bandaríska sópransöngkonan Deborah Voigt er stórbrotin söngkona sem hlotið hefur lof gagnrýnenda fyrir blæbrigðaríka og fallega túlkun ópera eftir Wagner, Strauss og Verdi. Á efnisskránni á Listahátíð eru sönglög eftir Amy Beach, Giuseppi Verdi, Richard Strauss, Ottorino Respighi og ameríska samtímatónskáldið Ben Moore, auk laga úr söngleikjum Leonard Bernsteins. Meðleikari er Brian Zeger.

„Hljómur hennar er í senn jarðneskur og leiftrandi …blátt áfram dýrðlegur.” The New York Times

Háskólabíó, 31. maí kl. 20.00 Miðaverð: 6.900 / 6.400

Íslenska óperan, 27. maí kl. 21.00 Miðaverð: 2.500

ÍSLENSK GRAFÍK 40 ára Félagsmenn Íslenskrar grafíkur fagna 40 ára afmæli með því að vinna myndlist hver með sínum hætti; rista, teikna, þrykkja, mála, sýna, selja og fremja gjörning. Lækjartorg 23. maí kl. 15.00 Aðgangur ókeypis

Lækjartorg, Laugavegur, Þvottalaugar 23. maí kl. 13.00 Gjörningur tileinkaður konunum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal, á vegum Listamannahússins START ART og með þátttöku fjölda listamanna og almennings. Gengið frá Lækjartorgi, upp Laugaveginn og endað við gömlu Þvottalaugarnar. Meðal listamanna sem taka þátt í gjörningnum eru: Magnús Pálsson, Rúrí, Ólöf Nordal, Daníel Magnússon, Aðalheiður Eysteinsdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Jón Laxdal, Birna Guðjónsdóttir og Níels Hafstein.

LAUGAVEGURINN - gengið á vit sögunnar

„...spilamennskan var himnesk. Er hægt að biðja um meira ?“ Jónas Sen, Morgunblaðið

HEL

- ný íslensk ópera

Byggð á samnefndri sögu Sigurðar Nordal. Sviðslistahópurinn Hr. Níels setur upp óperuna í samstarfi við Íslensku óperuna. Tónlist: Sigurður Sævarsson. Söngvarar: Ágúst Ólafsson, barítón, Jóhann Smári Sævarsson, bassi, Hulda Björk Garðarsdóttir, sópran, og kór. Hljóðfæraleikur: Caput.

FRÁ UNUHÚSI TIL ÁTTUNDA STRÆTIS LÍFIÐ ER EKKI BARA LEIKUR - það er líka dans á rósum

HÁRÓMANTÍSK efnisskrá TRIO NORDICA Trio Nordica kemur í fyrsta sinn fram á Listahátíð í vor og kynnir meðal annars nýja norræna tónlist; þar á meðal nýtt verk eftir Þórð Magnússon. Að auki eru píanótríó nr. 1 í d-moll eftir Felix Mendelssohn og hárómantískt verk Toivo Kuula, Píanótríó op. 7, á efnisskránni. Trio Nordica skipa Auður Hafsteinsdóttir, fiðla, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, og Mona Kontra, píanó.

Sýningin er samstarfsverkefni Ljósmyndasafns Reykjavíkur og hönnunar- og arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands. Ljósmyndasafn Reykjavíkur, 16. maí kl. 15.00 Aðgangur ókeypis

HRAFNKELL Sigurðsson og KRISTJÁN Guðmundsson Tvenndarsýning einhverra framsæknustu listamanna Íslands, sem báðir hafa haslað sér völl innanlands og utan. Listasafn Íslands, 15. maí kl. 21.00 Aðgangur ókeypis

Fríkirkjan, Reykjavík, 30. maí kl. 21.00 Ketilhúsinu, Akureyri, 31. maí, kl. 17.00 Miðaverð: 2.900

Myndlist í fjórum vitum, einum í hverjum landshluta Ásdís Sif Gunnarsdóttir í Kópaskersvita, Curver Thoroddsen í Bjargtangavita, Gjörningaklúbburinn í Garðskagavita og Unnar Örn sýnir í Dalatangavita. Sýningarstjórar eru Markús Þór Andrésson og Dorothée Kirch. Sýningin er í samstarfi við Siglingastofnun Íslands og menningarfulltrúa sveitarfélaganna. Opnun í vitunum 17. maí kl. 15.00 Sýningarnar standa til 3. ágúst 2009 Aðgangur ókeypis

HÚSLESTRAR

heima hjá höfundunum Húslestrarnir eru sögulegt tækifæri til að kynnast ólíkum höfundum og verkum þeirra í návígi. Ljóð, sögur, brot úr stærri verkum, barnaefni, smáprósi, útgefið og óbirt – allt í senn!

Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir, 15. maí kl. 19.00 Aðgangur ókeypis

ROSDESTVENSKIJ

Breska tríóið

TIGER LILLIES Hljómur Tiger Lillies er einn sá sérstæðasti og ferskasti sem heyrst hefur. Þetta einstaka anarkíska óperutríó í anda Brecht leikur ekki tónlist sem inniheldur „fallegar, ljóshærðar stúlkur á hlaupum undan strákum á engjum,“ svo vitnað sé beint í höfuðpaur tríósins, Martyn Jaques. Aðrir meðlimir tríósins eru Adrian Stout og Adrian Huge. Tiger Lillies fengu hin virtu Olivier verðlaun fyrir „cult“ söngleikinn ‘Shockheaded Peter’ og Grammy-tilnefningu fyrir ‘The Gorey End’. Íslenska óperan, 29. maí kl. 21.00 Miðaverð: 3.500

list&ást&list Fjögurra daga listþing með þátttöku hátt í 20 þekktra norrænna listamanna úr ólíkum listgreinum. Meðal þeirra: Egill Sæbjörnsson, Einar Már Guðmundsson, Hess is more, Hulda Hákon, Jógvan Sverrason Biskopstø, Vebjörg Hagene Thoe og Petri Ala-Maunus. Gestgjafar: Benedikt Erlingsson og Charlotte Böving.

„Það er alltaf einstök ánægja að heyra Rosdestvenskij stjórna. Hann er bráðsnjall og hreyfingar hans hitta beint í mark.“ The Times Háskólabíó, 28. maí kl. 19.30 Miðaverð: 3.500 / 3.100

Einn fremsti hljómsveitarstjóri Rússlands stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Listahátíð. Rosdestvenskij var um árabil aðalstjórnandi Bolshoi-óperunnar og náinn samstarfsmaður Sjostakovitsj og Prokofieffs, sem tileinkuðu honum verk sín. Hann heldur fáa tónleika á hverju ári og því er það stórviðburður í hvert sinn sem hann stígur á stjórnandapallinn. Á efnisskrá eru: W.A. Mozart: Píanókonsert í c-moll, K. 491 og Dímítríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 7 (Leníngradsinfónían). Píanóleikari: Viktoría Postnikova.

OLGA BERGMANN – Í húsi sársaukans Hér er skyggnst bak við það sem skapast við sáran missi, áföll eða umbyltingu aðstæðna. Listasafn Reykjanesbæjar 16. maí kl. 17.00 Aðgangur ókeypis

Norræna húsið 21. maí kl. 15.00, 22. og 23. maí kl. 12.00 -17.00, 24. maí kl. 10.00- 20.00 Aðgangur ókeypis

Hrafnhildur Arnardóttir Hefur vakið verðskuldaða athygli í heimaborg sinni, New York. Myndlist hennar endurspeglar íslenskan og alþjóðlegan bakgrunn þar sem hún blandar saman hefðbundnu, þjóðlegu handverki eins og hárskreyti og gjörningum, myndbandslist, skúlptúrum og ljósmyndaverkum. Gallerí i8, 16. maí kl. 16.00 / Aðgangur ókeypis

Miðaverð: 1.000 Leiðarstef sýningarinnar er ferill Louisu Matthíasdóttur og Nínu Tryggvadóttur og tengsl þeirra við aðra listamenn, skáld og rithöfunda á Íslandi og í New York, þar sem þær voru nemendur Hans Hofmanns, eins helsta boðbera módernismans.

Gennadij

og SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS

BRENNIÐ ÞIÐ, VITAR!

Íslenska óperan 23. og 24. maí kl. 20.00 Miðaverð: 3.900

Listasafn Íslands, 26. maí kl. 20.00 Miðaverð: 2.500

Bob MINTZER

„Þið fáið aldrei að heyra jafn siðspillta og ruglaða en um leið áleitna og sorgmædda tónlist.” Marc Almond

Nánar um stað og tíma á www.listahatid.is

Laugardagur 30. maí Frá kl. 13.00

• Kristín Helga Gunnarsdóttir • Linda Vilhjálmsdóttir • Þórarinn Eldjárn • Guðrún Eva Mínervudóttir • Bragi Ólafsson

Sunnudagur 31. maí Frá kl. 12.00

• Einar Már Guðmundsson • Gerður Kristný • Þorsteinn frá Hamri • Sigurbjörg Þrastardóttir • Sigurður Pálsson • Þórunn Erlu Valdimarsdóttir

Klaas Kloosterboer - Pulp Machineries Sýning í samvinnu við Galerie van Gelder (Amsterdam) á verkum hollenska listamannsins Kloosterboer, sem notar hefðbundin efni svo sem málningu og striga í listsköpun sinni, en hlutgerir efniviðinn með því að rífa í sundur og endurbyggja málverksskúlptúra. Suðsuðvestur, Reykjanesbæ, 16. maí kl. 16.00 / Aðgangur ókeypis


FORBOÐNIR ÁVEXTIR – ástralskir götulistamenn Hrefna Haraldsdóttir Listrænn stjórnandi

KONUR ÚR AUSTURVEGI

„Áleitið verk, hlaðið fegurð og frumleika.” The Times

Heimstónlist í hæsta klassa:

LHASA DE SELA

Kammersveit Reykjavíkur flytur verk eftir fjögur þekktustu kventónskáld austursins. Stjórnandi er Vladimir Stoupel en túlkun hans á sígildri tónlist þykir í senn vera næm og kraftmikil. Tónskáldin eru Sofia Gubaidulina frá Tatar lýðveldinu, Frangis Ali-Sade frá Azerbajan og Lera Auerbach frá Úralfjöllum. Einleikarar; Rut Ingólfsdóttir, fiðla, Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló, Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, Frank Aarnink, slagverk, Sigurgeir Agnarsson, selló og Hrólfur Vagnsson, sem leikur á rússnesku harmónikkuna bayan.

„Lhasa De Sela holdgervðist í senn í alheimsstjörnuna Edith Piaf og kvenkynsútgáfuna af Tom Waits á stórkostlegum tónleikum.” The Guardian

Langholtskirkja 21. maí kl. 20.00 / Miðaverð: 3.000

Listahátíð í Reykjavík hefur frá upphafi haft það meginhlutverk að tefla fram framúrskarandi erlendu listafólki í bland við það besta í listmenningu okkar. Listahátíð í ár er fjölbreytileg og spannar allt litróf listarinnar. Á dagskrá eru um sjötíu viðburðir með þátttöku fimm hundruð listamanna, innlendra og erlendra. Viðburðirnir fara víða fram; á götum Reykjavíkur, út um landið, heima í stofum listamanna og í helstu listastofnunum okkar. Miðaverði er stillt í hóf og jafnframt er ókeypis aðgangur að mörgum viðburðum. Eftir átakavetur er mikilvægara en oft áður fyrir okkur öll að halda kraftmikla Listahátíð sem auðgar og eflir andann, styrkir okkur sem menningarþjóð, hreyfir við og skemmtir.

Þessir litríku og hrífandi götulistamenn munu setja svip sinn á miðborg Reykjavíkur laugardaginn 16. maí. Hópurinn leikur listir sínar í mikilli nálægð við áhorfendur, á rúmlega fjögurra metra háum sveigjanlegum stöngum sem sveiflast fram og aftur með miklum tilþrifum.

Austurvöllur, 16. maí, kl. 14.00 og 16.00 / Aðgangur ókeypis Austurvöllur 16. maí, kl. 14.00 og 16.00 og víðsvegar um Reykjavík til 31. maí. Aðgangur ókeypis

Verið velkomin á Listahátíð 2009!

Verndari: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands Heiðursforseti: Vladimir Ashkenazy Formaður fulltrúaráðs: Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri Varaformaður: Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra Stjórn Listahátíðar: Inga Jóna Þórðardóttir, formaður Ingimundur Sigfússon, varaformaður Margrét Bóasdóttir, stjórnarmaður.

Hjálmar Sveinsson stýrir málþingi og á meðal fyrirlesara eru Árni Matthíasson, Eiríkur Örn Norðdahl, María Kristjánsdóttir og Ragna Sigurðardóttir.

ARFTAKAR GUÐMUNDU – framlag íslenskra listakvenna samtímans

Norskar HJÓLHÝSAKONUR

Listrænn stjórnandi: Hrefna Haraldsdóttir Framkvæmdastjóri: Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir Kynningarstjóri: Guðrún Kristjánsdóttir Verkefnastjórar: Gréta María Bergsdóttir og Guðrún Norðfjörð Miðasölustjóri: Edda Hrönn Gunnarsdóttir

LISTIN BREYTIR HEIMINUM, listin viðheldur óbreyttu ástandi

Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir 21. maí kl. 12.00 Aðgangur ókeypis

Forsíðumyndin er hluti veggspjalds Listahátíðar í Reykjavík 2009 eftir Katrínu Ólínu

LISTAHÁTÍ Ð Í R EYK J AVÍ K

Færeyska óperan Í ÓÐAMANSGARÐI

Í samstarfi við ástralska sendiráðið í Danmörku.

Fimm stórir skúlptúrar á hjólum eftir listakonuna Marit Benthe Norheim. Hjólhýsið er lifandi tjaldferðalag, ferðalangur, færanlegt heimili, minningar hinnar þröngbýlu fjölskyldu – huggulegheit og sumarfrí eða sprengikrafturinn í öllum þessum þáttum. Í samstarfi við norska sendiráðið á Íslandi.

NÁTTÚRUGÆSLUSTÖÐIN: Reykjavík Veröldin stendur á krossgötum nú þegar listamaðurinn, vísindamaðurinn og baráttukonan Natalie Jeremijenko opnar Náttúrugæslustöðina, í miðri hringiðu efnahagskreppu og loftslagsbreytinga. Reykjavíkurtjörn og víðar kl. 11.00-14.00 Gallerí 100° kl. 15.00–17.00, 16. maí / Aðgangur ókeypis

Sýningin gefur mynd af framlagi íslenskra myndlistarkvenna síðastliðin 12 ár. Þátttakendur eru listakonur sem hafa hlotið viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur; m.a. Ólöf Nordal, Katrín Sigurðardóttir, Gabríela Friðriksdóttir, Sara Björnsdóttir, Guðrún Vera Hjartardóttir og Hekla Dögg Jónsdóttir. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús 28. maí kl. 20.00 / Aðgangur ókeypis

ÍSLENSK HÖNNUN - húsgögn, arkitektúr og vöruhönnun Markmið sýningarinnar er að kynna á skýran og upplýsandi hátt íslenska hönnun eins og hún gerist best hvað varðar fagurfræði, formskilning, framleiðslu og heildarhönnun. Verk um 20 hönnuða verða á sýningunni. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir 15. maí kl. 19.00 Aðgangur ókeypis

Ný sviðssetning á Listahátíð í samvinnu Þjóðleikhússins og Tjóðpallsins í Færeyjum. Óperan er eftir færeyska tónskáldið Sunleif Rasmussen sem hlaut tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2002. Í óðamansgarði byggir á samnefndri smásögu Williams Heinesens úr smásagnasafninu Fjandinn hleypur í Gamalíel. Söngvarar: Eyjólfur Eyjólfsson, tenór, Þóra Einarsdóttir, sópran og Bjarni Thor Kristinsson, bassi. Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir. Leikstjóri: Ria Tórgard. Tónlistarflutningur: Aldubáran. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson. Þjóðleikhúsið, 22. og 23. maí kl. 20.00 Miðaverð: 3.400

Amerísk-kanadíska söngkonan, lagahöfundurinn og sagnaskáldið sem syngur á ensku, frönsku og spænsku hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna, m.a. heimstónlistarverðlaun BBC sem besti tónlistarmaður Ameríkuríkjanna árið 2005. Lhasa de Sela hefur gefið út tvo geisladiska; La Llorona 1998 og Living Road 2004. Þriðji geisladiskur hennar, sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu, kom út núna í apríl og heitir hann einfaldlega Lhasa. Listahátíðartónleikarnir eru hennar fyrstu tónleikar um langt skeið. Nasa við Austurvöll, 23. maí kl. 21.00 Miðaverð: 3.500

Píanósnillingurinn VÍKINGUR HEIÐAR

Orbis Terræ – ORA Í dögun nýs lýðveldis! Flóttamannabúðir fyrir utan Þjóðmenningarhúsið eru táknmynd þess hvernig komið er fyrir sjálfstæði Íslands á tímum efnahagskreppu. Margrét Vilhjálmsdóttir, leikkona og listrænn stjórnandi sýningarinnar, fer fyrir hópi 50 listamanna og leiða þeir gesti um gjörning landamæra og skrifræðis; leiksýninguna Orbis Terræ-ORA. Leikritið inni í leikritinu fjallar um konur sem hittast eftir langvarandi stríð og er höfundur þess Hrund Gunnsteinsdóttir. Þjóðmenningarhúsið, 16. maí kl. 20.00. Frumsýning. Aðrar sýningar, 17., 20., 24. og 27. maí kl. 20.00. 23. maí kl. 17.00 Miðaverð: 3.450

TVEIR MENN, EIN KONA og SÆSKRÍMSLI VÖLUSPÁ - sköpun – ragnarök – ný fæðing Tónlistin er drifkraftur Völuspár. Hljóðheimur radda, hryns, takta, frumkrafta og seiðs. Höfundar og flytjendur: Sten Sandell og Sverrir Guðjónsson. Landnámssetur Íslands, Borgarnesi 23. maí kl. 17.00 Miðaverð: 2.800

STOFUTÓNLEIKAR Listahátíðar

Sýning Huldu Hákon veitir einstaka innsýn í skrautlegan hugmyndaheim hennar undanfarna tvo áratugi þar sem hún hendir gaman að heimóttarlegum veruleika okkar, snýr upp á hann og kitlar ímyndunaraflið. Listasafnið á Akureyri¸ 16. maí kl. 14.00 / Aðgangur ókeypis

Þrátt fyrir ungan aldur er hann þegar orðinn stórstjarna í tónlistarheiminum og er stemningin á tónleikum hans jafnan eins og á rokktónleikum. Á einleikstónleikunum á Listahátíð flytur Víkingur Heiðar Ólafsson eigin sönglagaumskrifanir eftir þjóðþekkt íslensk tónskáld eins og Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson og Emil Thoroddsen í bland við verk eftir Bach, Debussy, Ligeti, Bartok og Chopin. Háskólabíó 17. maí kl. 20.00 / Miðaverð: 2.900

www.listahatid.is og www.midi.is Lækjargötu 3b, 101 Reykjavík (Skólastrætismegin) Sími: 552 8588, midasala@artfest.is Opið 10 –14 virka daga. Miðasala flyst á sýningarstað klukkustund fyrir viðburð.

Á www.listahatid.is má finna ítarlegar upplýsingar um alla viðburði Listahátíðar og skoða fjölda ljósmynda og myndbrota. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar. SAMSTARFSAÐILAR LISTAHÁTÍÐAR 2009:

Helgina 22. til 24. maí verða tuttugu og fimm stofutónleikar á jafn mörgum heimilum í Reykjavík Föstudagur 22. maí Frá kl. 16.00 Benda slagverkshópur, Ólöf Arnalds, Vicky, Bloodgroup, Retro Stefson, FM Belfast og MC Plútó, Weirdcore og Reykjavík!. Laugardagur 23. maí Frá kl. 13.00 Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley, Benóný Ægisson, Hulda Björk Garðarsdóttir og Ólafur Egill Slozenwald, Spilmenn Ríkínís, Ásgerður Júníusdóttir,

Melchior, Jón Ólafsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir og Stofukvartettinn, amiina. Sunnudagur 24. maí Frá kl. 12.00 Melakvartettinn, Dvorákhópurinn, Bergþór Pálsson, Signý og Þóra Fríða Sæmundsdætur, Felix Bergsson og Jón Ólafsson, Valgerður Andrésdóttir og Ingibjörg Guðjónsdóttir, Nordic Affect, Kristjana Stefáns og Agnar Már Magnússon, Tómas R. Einarsson og Duo Landon.

Stofutónleikar úti á landi Húsið, Eyrarbakka: Ásgerður Júníusdóttir, Áshildur Haraldsdóttir og Katie Elizabeth Buckley. Edinborgarhúsið, Ísafirði: Felix Bergsson og Jón Ólafsson, Ólöf Arnalds. Stríðsárasafnið, Reyðarfirði: Duo Landon. Randólfssjóhúsið, Eskifirði: Benda –slagverkshópur. Safnahúsið, Neskaupstað: Ólöf Arnalds Nánar um stað og tíma á www.listahatid.is Miðaverð: 1.500

Iceland Express styrkir Listahátíð í Reykjavík

Með ánægju


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.