3 minute read
Joachim Trier
VERÐLAUN FYRIR FRAMÚRSKARANDI LISTFENGI CREATIVE EXCELLENCE AWARD
Joachim Trier fæddist í Osló árið 1974 og ólst þar upp í fjölskyldu kvikmyndagerðarmanna. Sjálfur steig hann í fyrsta sinn á bak við myndavélina á unglingsaldri og tók upp hjólabrettamyndbönd. Síðar stundaði hann kvikmyndagerðarnám í Danmörku og Bretlandi þar sem stuttmyndir hans vöktu strax athygli. Fyrstu tvær kvikmyndir hans í fullri lengd, Reprise (2006) og Ósló 31. ágúst (2011), gerast í höfuðborg Norðmanna og mætti lýsa sem klassískum raunsæissögum af ungu fólki á krossgötum. Báðar nutu mikillar velgengni á kvikmyndahátíðum beggja vegna Atlantshafs. Þeim fylgdi hann eftir með frumraun sinni á enskri tungu, Louder Than Bombs (2015), sem skartaði stjörnum á borð við Isabelle Huppert og Jesse Eisenberg. Í kjölfarið tók hann furðusöguna upp á sína arma í Thelma (2017), þroskasögu unglingsstúlku með undrakrafta. Nýjasta mynd hans, Versta manneskja í heimi (2021), var frumsýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni og er lokamyndin í Óslóar þríleik leikstjórans. Verk hans eru tilfinninganæmar frásagnir af sálarflækjum fólks, þar sem tilvistarleg stef eru aldrei langt undan. Joachim Trier er án nokkurs vafa meðal fremstu núlifandi leikstjóra Norðurlanda. Joachim Trier, born in 1974, grew up in Oslo, Norway in a family of filmmakers. His first foray into filmmaking came as a teenager, making skateboard-montage videos with friends. Later he studied filmmaking in Denmark and the UK, and his short films promptly brought him acclaim. His first two features, Reprise (2006) and Oslo, August 31st (2011), are classic tales of young people on crossroads in the Norwegian capital told in realist fashion. Both earned praise and awards at film festivals on both sides of the Atlantic. His two following features presented different challenges– Louder than Bombs (2015), featured stars such as Isabelle Huppert and Jesse Eisenberg and was his English-language debut, and Thelma (2017), brought Trier into the realm of the fantastic in a coming-of-age tale of a young woman. His newest feature, The Worst Person in the World (2021), premiered at Cannes Film Festival and completes his Oslo Trilogy. His work revolves around character-driven stories with existential themes, commonly told with rich emotional sensitivity. Joachim Trier is one of Scandinavia’s leading modern filmmakers.
Advertisement
OPNUNARMYND / OPENING FILM
NORDIC PREMIERE NORÐURLANDAFRUMSÝNING
Joachim Trier NO, FR 2021 / 127 min THE WORST PERSON IN THE WORLD
30.09 BÍÓ PARADÍS 1 21:15 09.10 BÍÓ PARADÍS 2 17:20 Frásögnin spannar fjögur ár í lífi Júlíu, ungrar konu sem reynir að greiða úr flækjum í ástarlífi sínu en lendir um leið á hraðahindrunum á framabrautinni. Vegferðin veitir henni nýja og raunsærri sýn á sjálfa sig. Approaching the end of her 20s, Julie battles chaotic indecisiveness as she traverses the troubled waters of her love life, and struggles to find her career path on a bumpy voyage to self-discovery that navigates between comedy and pathos.
Joachim Trier NO, DK, US, FR 2015 / 103 min LOUDER THAN BOMBS
HÁVÆRARI EN SPRENGJUR
30.09 BÍÓ PARADÍS 1 17:00 +Q&A 08.10 BÍÓ PARADÍS 3 16:45 RIFF @ HEIMA 30.09-10.10 Eina kvikmynd Triers á ensku. Þremur árum eftir dauða móður sinnar snýr eldri sonurinn aftur heim til föður síns og bróður og saman takast þeir á við bældar tilfinningar, minningar og önnur opin sár. Trier‘s sole English-language feature. The fractious family of a father and his two sons confront their different feelings and memories of their deceased wife and mother, a famed war photographer.
Joachim Trier NO 2011 / 95 min OSLO, AUGUST 31ST
ÓSLÓ, 31. ÁGÚST
30.09 BÍÓ PARADÍS 2 22:45 05.10 BÍÓ PARADÍS 3 18:45 RIFF @ HEIMA 30.09-10.10 Dagur í lífi Anders, fíkils í bata, sem fer í leyfi frá meðferðarstofnuninni. Á meðan hann sinnir ýmsum skyldum veltir hann lífinu fyrir sér, vitandi að því liðna fær hann ekki breytt. A day in the life of Anders, a recovering drug addict, who is granted a brief leave from the rehab centre. While doing errands he contemplates his life, knowing the past cannot be changed.