Einingar á einstaka síðum

Page 1

EININGAR Á EINSTAKA SÍÐUM Það er þekkt vandamál með WordPress að ekki er hægt að tilgreina á hvaða síðum einingar skulu birtast heldur einungis á hvaða svæðum. Hér kemur Widget logic viðbótin til sögunnar, en leyfir þér að ákvarða á hvaða síðu, eða síðum, hver einstök eining (e. widget) í WordPress birtist.

1)

Fyrst er viðbótin “Widget logic” sótt og sett upp í WordPress. Til þess er smellt á [Plugins>Add New]. Í leitarreitinn er skráð “Widget logic”.

Widget Logic viðbótin kemur væntanlega upp sem fyrsta leitarniðurstaða. Smellt er

á [Details] til að fá frekari upplýsingar en [Install Now] til að sækja og setja upp. Smelltu á [Install Now] til að sækja og setja upp Widget Logic. Þegar uppsetningu er lokið er komið að því að virkja viðbótina.

Smelltu á [Activate Plugin] til að virkja viðbótina sem þá verður tilbúin til notkunar.

2)

Þegar Widget Logic viðbótin hefur verið virkjuð er Widgets síðan í WordPress opnuð [Appearance>Widgets]. Taktu eftir því að hver einasta viðbót hefur nú öðlast nýjan eiginleika sem auðkenndur er með Widget Logic reitnum. Í þennan reit eru sett skilyrði fyrir birtingu einingarinnar, s.s. á hvaða síðum hún á að birtast.


Skilyrðin eru skráð í reitinn með þar til gerðum kóðum og geta verið mjög fjölbreytt.

3)

Hér eru nokkur sýnishorn af skilyrðum sem virka í Widget logic: is_front_page() Einingin er einungis birt á forsíðu vefsins. is_page(‘nafn-sidu’) Einingin birtist einungis á þeirri síðu sem tilgreind er innan gæsalappanna. !is_page(‘nafn-sidu’) Einingin birtist á öllum síðum nema síðunni sem tilgreind er innan gæsalappanna. is_page( array( 42, ‘sida-eitt’, ‘sida-tvo’ ) ) Einingin birtist á þeim síðum sem tilgreindar eru innan sviganna. Talan fremst í sviganum er auðkennitala fyrir síðu.

S.Fjalar 2011

B l s |2


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.