Áfangastaðaáætlun DMP á Norðurlandi
Forgangsröðun verkefna á Norðurhjarasvæði (svæði 4 ) 20. október 2017 – 9:30 - 15:00 – Félagsheimilið Raufarhöfn Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að gerð áfangastaðaáætlunar fyrir Norðurland. Verkefnið snýst um að skipuleggja og samhæfa þróun og stýringu á öllum þeim þáttum sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna á viðkomandi svæði/áfangastað, þ.m.t. þarfir gesta, heimamanna, fyrirtækja og umhverfis. Markmið fundarins er að fara yfir nokkur atriði sem tengjast þessari vinnu. Á fundinum verður ákveðið hver forgangsverkefni hagsmunaaðila á svæðinu verða og farið verður yfir markaðsáherslur svæðisins. Því er mikilvægt fyrir alla að mæta sem vilja taka þátt í að þróa ábyrga ferðaþjónustu á sínu svæði. Fundurinn er opinn öllum og boðið verður upp á léttar veitingar. Til að geta tekið þátt þá þarf að skrá sig á fundinn inná www.nordurland.is/dmp. Nánari upplýsingar veita Björn H. Reynisson bjorn@nordurland.is og Silja Jóhannesdóttir silja@atthing.is eða í síma 462 3300.
Ábyrg þróun ferðamála