Spennandi tækifæri á Raufarhöfn Tvö störf í boði fyrir öfluga einstaklinga Verkefnastjóri atvinnu – og samfélagsþróunar Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga (AÞ) í samvinnu við Norðurþing auglýsir ofangreinda stöðu lausa til umsóknar. Starfið er fjölþætt og krefst sjálfstæðis og frumkvæðis. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og er starfsstöð viðkomandi í stjórnsýsluhúsi Norðurþings á Raufarhöfn. Helstu verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Dagleg eftirfylgni verkefna Raufarhafnar og framtíðar svo og annarra verkefna sem starfinu fylgja.
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, viðskipta- og/eða aðra tengda menntun. Reynsla sem nýtist í starfi, svo sem af atvinnuþróun, verkefnastjórnun og almennum rekstri.
Sinnir faglegri ráðgjöf við styrkjaumsóknir og atvinnu- og byggðaþróun á svæðinu frá Raufarhöfn til Bakkafjarðar. Heldur reglulegum samskiptum við Hverfisráð Raufarhafna, fylgir verkefnum eftir og er tengiliður Norðurþings á svæðinu. Aðstoðar íbúa á Raufarhöfn með stjórnsýsluerindi, veitir upplýsingar eftir getu og þörfum og fylgir eftir málum. Sinnir upplýsingamiðlun á svæðinu, samfélagsmiðlum og vefsíðu.
Aðrar hæfniskröfur Reynsla eða þekking á íslensku styrkjaumhverfi góður kostur. Þekking á íslensku stjórnkerfi og opinberri stjórnsýslu æskileg. Góð færni í íslensku, bæði í tali og riti. Góð tölvuhæfni og geta til að nota samfélagsmiðla í starfi. Viðkomandi þarf að vera sveigjanlegur og fær í samskiptum.
Raufarhöfn hefur undanfarin ár verið þátttakandi í byggðaeflingarverkefninu Raufarhöfn og framtíðin og hafa mörg skref verið stigin í uppbyggingu á svæðinu. Vegna þessarar uppbyggingar eru nú meðal annars tvö störf í boði fyrir áhugasama um uppbyggingu þorpsins á sviði atvinnu- og samfélagsþróunar og í tengslum við náttúrurannsóknir. Í þorpinu er nægjanlegt framboð af húsnæði, heilbrigðisþjónusta, leik- og grunnskóli, dagvöruverslun, banki og pósthús.
Forstöðumaður Rannsóknastöðvarinnar Rifs Vilt þú vinna að spennandi uppbyggingarstarfi í tengslum við náttúruvísindi, alþjóðlegt samstarf og málefni norðurslóða í einstöku umhverfi? Rannsóknastöðin Rif á Raufarhöfn auglýsir laust til umsóknar tímabundið starf staðgengils forstöðumanns stofnunarinnar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1. maí 2018 og starfað að lágmarki fram til loka desember 2018, með möguleika á áframhaldandi ráðningu í ýmis verkefni. Helstu verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Daglegur rekstur, fjármál og reikningsskil í umboði stjórnar Rifs.
Umsækjendur skulu hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði náttúru- og/eða umhverfisfræði. Reynsla sem nýtist í starfi, svo sem af rannsóknum, verkefnastjórnun og almennum rekstri, er kostur.
Framgangur stefnumála stofnunarinnar og annarra verkefna sem stjórn ákvarðar hverju sinni. Skipulagning og umsýsla varðandi dvöl vísindamanna á staðnum. Samskipti við vísindamenn. Kynningarmál, fræðsla, samskipti við samstarfsaðila og framkvæmd einstakra verkefna.
Hlutverk AÞ er að kynna kosti, möguleika og tækifæri til atvinnustarfsemi á svæðinu auk þess að standa vörð um og stuðla að eflingu atvinnulífsins með stuðningi, ráðgjöf og upplýsingagjöf.
Rannsóknastöðin vinnur að uppbyggingu og eflingu rannsókna á Melrakkasléttu og tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi um rannsóknir á norðurslóðum.
Nánari upplýsingar um AÞ má finna hér www.atthing.is og um Norðurþing hér www.nordurthing.is
Mikilvægt er að gera vel grein fyrir hæfni í starfið í kynningarbréfi og að skilmerkileg ferilskrá fylgi með.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni ferilskrá með upplýsingum um náms- og starfsferil ásamt nöfnum, símanúmerum og netföngum tveggja umsagnaraðila. Umsóknir skulu berast á netfangið rif@rifresearch.is
Umsóknarfrestur 25. febrúar 2018
Nánari upplýsingar veita: Reinhard Reynisson, framkvæmdastjóri AÞ, reinhard@atthing.is / 464-0415 Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, kristjanthor@nordurthing.is / 464-6100
Önnur tilfallandi verkefni tengd markmiðum starfsins í samráði við yfirmann.
Allir áhugasamir hvattir til að sækja um
Umsókn um starfið skal skila í tölvupósti til Reinhards Reynissonar, framkvæmdastjóra AÞ. reinhard@atthing.is.
Aðrar hæfniskröfur Góð almenn tölvukunnátta og reynsla af upplýsingamiðlun. Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti. Sjálfstæði, frumkvæði og agi í vinnubrögðum. Lipurð í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar um starfsemi Rannsóknastöðvarinnar Rifs má finna á
www.rifresearch.is
Nánari upplýsingar veita: Jónína Sigríður Þorláksdóttir, forstöðumaður j o n i n a @ r i f r e s e a r c h . i s / s: 856 9500 Þorkell Lindberg Þórarinsson, stjórnarformaður l i n d i @ n n a . i s / s: 464 5110
Umsóknarfrestur 25. febrúar 2018
Allir áhugasamir hvattir til að sækja um