Menn almennt nokkuð sáttir með ný afstaðna loðnuvertíð > 24-25
m a r s
2 0 1 5
2 .
t ö l u b l a ð
2 .
á r g a n g u r
Hugmyndir um stofnun sjávarklasa í Portlandi
>8
Góð kæling og gott flutningsnet eru forsendur útflutnings á ferskfiski. Framfarir á þessum sviðum hafa lengt geymslutímann mikið. > 16-18
Gleðilega páska! Jói Ragg, kokkur á Kap VE: „ Sama hvað gerist , lífið heldur samt alltaf áfram .“ > 24-25
Staðan í afla einstakra tegunda innan kvótans: 30,9%
Þorskur n Aflamark: n Afli
69,1
170.875
t/ aflamarks: 118.122
39,2%
Ýsa n Aflamark: n Afli
60,8
27.470
t/ aflamarks: 16.690
57%
Ufsi n Aflamark: n Afli
43%
49.931
t/ aflamarks: 21.483
47,1%
Karfi n Aflamark:
52,9%
n Afli
46.408
t/ aflamarks: 24.547
Útgefandi: Sjávarafl ehf. Grandagarði 16, 101 Rvk Sími: 8461783/8999964 Ritstjóri: Sædís Eva Birgisdóttir, seva@sjavarafl.is Ábyrgðarmaður: Hildur Sif Kristborgardóttir, hildur@sjavarafl.is Vefsíða: www.sjavarafl.is Tölvupóstur: hallo@sjavarafl.is Umbrot og hönnun: J&Co ehf. Forsíðumynd: Elvar Páll Sævarsson Prentun: Prentmet ehf.
Fiskaðu fréttirnar
V
ið hjá Sjávarafli erum að vinna að stóru verkefni þessa dagana. Um miðjan apríl mun vefsíðan fishingthenews.com vera sett á laggirnar, sem er frétta-og upplýsingasíða um íslenskan sjávarútveg á ensku. Heimasíðan er hugsuð sem samstarfsvettvangur íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja til þess að koma sínum fyrirtækjum, þjónustu og fréttum á framfæri á erlendri grundu. Inni á síðunni verður hægt að nálgast skrá um íslensk fyrirtæki sem tengjast sjávarútvegnum beint eða óbeint og þau fyrirtæki verða sett í þá flokka sem við eiga. Hægt verður að sjá lista yfir öll sölufyrirtækin og hvaða afurðir hvert fyrirtæki selur, öll þau flutningsfyrirtæki sem hér starfa, tæknifyrirtæki, fiskeldisfyrirtæki, útgerðir og svo framvegis. Segja má að fishingthenews verði eins konar miðja íslensk sjávarútvegs á erlendri grundu þar sem hægt verður að nálgast upplýsingar og fréttir um allt það sem er að gerast hér á landi. Meðfram frétta- og upplýsingaveitunni munum við birta viðtöl við aðila innan sjávarútvegsins og tengdum greinum á fishingthenewsTv. Vikulega mun svo vera sýndur matreiðsluþáttur á fishingthenewsTv, þar sem íslenskar sjávarafurðir eru eldaðar á skemmtilegan og nýjan máta af hinum bráðefnilega matreiðslumanni, Sigurði Karli Guðgeirssyni. Siggi Kalli eins og hann er yfirleitt kallaður, hefur sérhæft sig í sushi og fiskiafurðum. Í þáttunum mun Siggi Kalli koma með hina ýmsu fróðleiksmolar um afurðina sem við íslendingar höfum upp á að bjóða og meðhöndlun hennar. Allar upplýsingar, efni og myndbönd á síðunni mun vera opið öllum. Starfsfólk fishingthenews.com mun halda til Brussel þann 21.apríl næstkomandi á Seafoodexpo, sem er ein stærsta sjávarútegssýningin sem haldin er í Evrópu, til þess að kynna síðuna fyrir erlendum aðilum, en nú þegar erum við með rúmlega 5000 erlenda aðila á póstlistanum sem munu koma til með að fylgjast með gangi mála á síðunni. Með tilkomu síðunnar sjáum við tækifæri til þess að taka ákveðið skref í markaðssetningu á íslenskum sjávarútvegi, þar sem efnið á síðunni á að höfða til kaupenda erlendis, seljenda og þjónustuaðila hérlendis og neytenda um allan heim. Fishingthenews.com mun leggja mikla áherslu á að vera virkt á samfélagsmiðlum þar sem þeir fara ört stækkandi og þá sérstaklega erlendis. Þrátt fyrir mikinn lægðargang og kulda á landinu síðastliðna mánuði eru við hjá Sjávarafli spennt fyrir komandi mánuðum og erum virkilega bjartsýn á betri tíð hérlendis og tökum því fagnandi á móti hækkandi sól. Sædís Eva Birgisdóttir Ritstjóri Sjávarafls
Á GRÆNNI LEIÐ MILLI HEIMSÁLFA Með grænu leiðinni eykur Eimskip tíðni siglinga milli Norður-Ameríku, Kanada, Nýfundnalands og Evrópu. Með nýju og breyttu siglingakerfi tryggir Eimskip enn frekar áreiðanleika þjónustunnar og kemur til móts við óskir viðskiptavina sinna um óslitna flutningskeðju. Með nýju siglingakerfi eykst tíðni ferða milli Evrópu og Norður-Ameríku um allt að fimm ferðir á ári. Nuuk Grænland
Ísafjörður
St. Anthony
Ísland
NL, Kanada
Grundartangi
Akureyri Ísland
Ísland
Reyðarfjörður
REYKJAVÍK
Ísland
Ísland
Portland Maine, Bandaríkin
Halifax NS, Kanada
Argentia NL, Kanada
Boston
Vestmannaeyjar
Sortland
Ísland
Noregur
Klaksvík
MA, Bandaríkin
Tromsø
Hammerfest
Noregur
Noregur
Båtsfjord Noregur
Færeyjar
TÓRSHAVN
Kirkenes Noregur
Færeyjar
Tvøroyri
Sandnessjoen
Færeyjar
Noregur
Murmansk
Ålesund
Scrabster
Rússland
Noregur
Skotland
Måloy Noregur
Bergen
Aberdeen
Noregur
Skotland
Stavanger Noregur
Fredrikstad Noregur
Grimsby England
Immingham
Helsinki
Halmstad
England
Århus
Finnland
Svíþjóð
Danmörk
Swinoujscie
ROTTERDAM Holland
Vigo Spánn
Porto
Portúgal
Lisbon Portúgal
Korngarðar 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | www.eimskip.is
Velsen
Pólland
Riga
Holland
Hamburg Þýskaland
Lettland
Szczecin Pólland
Gdynia
Klaipeda
Pólland
Litháen
St. Petersburg Rússland
4
útvegsblaðið
ágúst 2013
Velta tækniIngi Björn Sigurðsson, framkvæmdarstjóri Point Zero fyrirtækja í sjávarútvegi vex um 13% n Velta tæknifyrirtækja Sjór sækir tengdum sjávarútvegi jókst hart að árið 2012 um 13% frá árinu undan og nam veltan tæpum Kolbeinsey 66 milljörðum. Gert hafði iðskiptalífið er að breyt-
Skoðun
Nýtt mastersnám um virðiskeðju sjávar- og eldisafurða
Miklar breytingar í viðskiptalífinu
V
verið ráð fyrir 5-10% vexti. n Kolbeinsey, ast ányrsti ógnarhraða. Ný Tæknifyrirtækin hanna, punktur Íslands, er nú orðin tegund fyrirtækja eru þróa og framleiða veiðarfæri, tvískipt og hefur látið mjög að taka í dreifingu kör, umbúðir, vélbúnað eða undan ágangi sjávar,yfir hafíss hugbúað fyrir sjávarútveg og veðra. Áhöfn varðskipsins á gæðum. Sem dæmi um þessa og selja vörurnar undir eigin Þórs nýveriðfyrirtækja í land og má nefna nýjufór tegund nafni og eru þetta um 70 fyrmældu eyjuna. Vestari hluti Uber – stærsta leigubílafyrirtæki irtæki. Á þessu sama tímabili Kolbeinseyjar er nú 28,4m x í heimi þó engan leigubíl. varð lítill vöxtur í fiskveiðum 12,4m og sem hæstiápunkturinn og ífiskeldi. Hefur vöxtur 3,8m. Austarierhluti hennar Facebook stærsti fjölmiðill tæknifyrirtækjanna líka er 21,6men x 14,6m. Skarðiðekkert efni, heimi framleiðir verið meiri en í þjóðarframmilli eyjahlutanna er 4,1 m Alibaba er verðmætasti smásali leiðsluí og fiskvinnslu. Kemur að breidd. Miðað var við Kolheimi en á engan lager og svo máfram í niðurstöðum þetta beinsey þegar fiskveiðilögnefnavar AirBnb stærstinýrrar gisti-rannsóknar Íslenska sagan færð útsem í 200er mílur sjávarklasans. og mörkuð var miðlína milli náttaveitandi í heimi en á enga Grænlands og Íslands og fasteign. hefur hún því mikið sögulegt Það sem þau eiga öll sammerkt gildi. Hafa varðskip og fluger aðLandhelgisgæslunnar þau eru ný tegund fyrirtækja vélar fylgst með þróun sem einu nafnihennar kallast „Platforms“ gegnum tíðina.
lendar rannsóknir sýna að aðeins 16% af heildarverðmæti matvæla endar í vasa framleiðanda sem sýnir glöggt hvers vegna þetta Gunnar Stefánsson, prófessor í iðnaðarverkfræði og Guðrún Ólafsdóttir, verkefnistjóri AQFood námsins. nýja form fyrirtækja er að breiðast jafn hratt út og raun ber vitni. Það eru gríðarleg tækifæri fyrir íslenskan sjávarútveg í þessum breytingum og þróun. Hægt er að ímynda sér þjónustur á borð við Amazon Fresh og Instacart sem gætu komið ferskum fisk inn á borð hjá fólki, jafnvel erlendis, innan nokkurra tíma löndun. Þáogværi sem eru fyrirtæki sem byggjast Íslendingar. Forkrafan er að nem- unnar ogfrá tryggja öryggi gæði Sigrún Erna Geirsdóttir hægt aðeldistvinna saman vörumerká því að framleiðendur og neytendur hafi BS gráðu í verkfræði og sjávarafurða. eða raunvísindum þar sem námið Mikil áhersla verður lögð á að endur geti haft bein og milliliðainu Íslandi og uppruna vörunnar. ýtt, norrænt meistara- byggir á þeim grunni. Nemendur nemendur vinni í nánum tengslum Undirritaður stendur fyrir ráðlaus samskipti. Þessi fyrirtæki TMP báta og hafnarkranar nám, AQFood, hefur munu dvelja eitt ár í senn við mis- við fyrirtæki í sjávarútvegi og að eru að breyta því hvernig gæðum heitir PointaðZero, þann með sem verkefnin beinist vandamálum nýlega verið innleitt munandi skóla og útskrifaststefnu er dreift og áhrif þeirra á milliliði næstkomandi. Ráðstefnan boði sem upp koma í virðiskeðju sjávarvið Háskóla Íslands en meistaragráðu frá þeim. Í 22.apríl námið er samstarfsverkefni fimm eru þrjár námsleiðir: Frumframafurða. Þá sébreytingar tenging á millií viðþeirra gríðarleg ekki einungis út frá viðfjallar um þessar fram og verkefnamiðlunar norrænna háskóla og munu nem- leiðsla, veiðar og eldi sem ferskiptalífinu, skiptalegum forsendum heldur sem eins ogSjávarklasans. áður segendur útskrifast með meistara- hjá UMB í Noregi fyrsta árið, Nátt- Dr. Guðrún Ólafsdóttir, umsjónareinnig út frá breytingum á völdir mun hafa mikil áhrif um allanséu gráður frá tveimur þeirra. Náminu úrulegar auðlindir sem fer fram hjá maður námsins, segir að þegar heim á góð komandi misserum. Okkur um. Í gegnum tíðina hafa þeir sem er ætlað að veita nemendum inn- NTNU í Noregi fyrsta árið og Iðnaðtengsl milli kennara hjá HÍ og DTU tekist sýn í virðisstjórnun í sjávarútvegi. arframleiðsla sem fer fram hjáhefur helstuað tækni-, fá tilframleiðslu landsinsog þjónstýrt hafa dreifingu gæða einmitt árið ustu fyrirtækja í greininni þeirri Undirbúningur að náminu var í Danmörku fyrsta árið. Seinnaheimsklassa fyrirlesara semog munu verið þeir sem hafa náð að safna Bjóðum gott úrval af styrktur af Norrænu ráðherra- er svo sérhæfing hjá HÍ samkvæmt góðu samvinnu verði haldið áfram þessar breytingar auð og völdum. sem um þarna. Guðrún segir mikla út þörffrá fyrir nefndinn, en Norræna nýsköp- skilgreindum námsleiðum fjalla vökvakrönum frá viðskiptum, tækni og upplýsingamati undirritaðs boðið er mun uppá í iðnaðarverkfræði, að bæta menntun á öllum sviðum unarmiðstöðin hefur Að síðan styrkt TMP hydraulic A/S. líffræði, og efnafræði /lífefnafræði og ogÞetta gildi það fyrir Norðurlöndin frekari þróun í tengslum við áverkdreifing sjávarfangi öðrum miðlun. verður fyrsta ráð-öll. www.tmphydraulik.dk matvælafræði. ,,Í verkefninu verið að nýta er þá efnið InTerAct. Markmiðið er að matvælum breytast mikið á næstu stefna Point Zero, enerfyrirhugað Erlendar rannsóknir sýna að aðeins 16% af efla samstarf háskóla við fyrirHérlendis er AQFood vistað hjá þekkingu sem er þegar til staðar misserum. Framleiðendur og neytað gera hana að árlegum viðburði tæki á sviði sjávartengdrar starf- Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði í hverju landi og þarna fáum við heildarverðmæti matvæla endar í vasa framleiðanda semerverður jafnmilli mikilvægur endur munu færast nær hvorum HÍ og samstarf skóla, landafyrir á milli, semi og bæta ímynd sjávarútvegs og tölvunarfræðideild sem sýnir glöggt hvers vegna2 þetta nýja form sem spennandi starfsvettvangur þekking nýtist enn betur. áherslaþeirra lögð á og umhverfisauð- svo þessiog Hjallahraun Iceland Airwaves, öðrum og samskipti við- ogviðskiptalífið 220 Hafnarfjörður ÞaðHönnunarMars er svo framtíðardraumurinn fyrir ungt menntað fólk. munu Heildar-fara lindafræði og þynnra tengingu viðSónar mat- og eru fyrirað skipti í gegnum fyrirtækja er að breiðast jafn hratt út og raun ber vitni. s. 562 3833 fjöldi nemenda í haust verður milli vælafræði. Er þetta gert til að efla skólakerfið í heild vinni betur samwww.Asaa.is - Asaa@Asaa.is menningarlífið. ekkert) af milliliðum. Er- virðiskeðjfimm og tíu og eru (eða í hópnum tveirlagþverfræðilegan an en það gerir núna,“ segir Guðrún. grunn
Norrænt samstarfsverkefni fimm háskóla
N
Hlerar til allra togveiða
Júpíter hw
Júpíter t5
Herkúles t4
Neptúnus t4
www.polardoors.com 4
s j áva r a f l
mars 2015
Merkúr t4
Júpíter t4
Við óskum Sjávarklasanum til hamingju Ný viðbót við hús Sjávarklasans og fjölgun fyrirtækja þar eru ánægjuleg merki um aukinn veg nýsköpunar í sjávarútvegi. Landsbankinn tekur virkan þátt í þessari uppbyggingu greinarinnar og er þar traustur bakhjarl og samstarfsaðili.
Landsbankinn
landsbankinn.is
410 4000
Frá vinstri: Heimir Guðbjörnsson, skipstjóri á Helgu Maríu frá HB Granda, Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, Jakob Jóhannsson, formaður Krabbameinsfélagsins, Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra, Haukur Þór Hauksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Sigurgeir Freyr Pálmason, háseti á Helgu Maríu, og Loftur Gíslason, útgerðarstjóri ísfisksskipa HB Granda, afhjúpa fyrstu mottur marsmánaðar.
Mottan í áttunda sinn
SFS aðalstyrkaraðili Mottumars
M
ottumars var haldinn í áttunda sinn nú í mars og söfnuðust rúmar tuttugu milljónir. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi er aðalstyrkartaðili átaksins. Slagorðið að þessu sinni var „Hugsaðu um eigin rass“.
Góður árangur Átakinu Mottumars lauk formlegri áheitasöfnun þann 20.mars og höfðu þá safnast 20.007.327 kr. Þúsund einstaklingar og sextíu lið söfnuðu áheitum til stuðnings Krabbameinsfélaginu en átakið er árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum. Sigurvegari í einstaklingskeppni var Bjarki Hvannberg, hann safnaði 1.132.000 kr. Í liðakeppni var það lið Druida sem safnaði mest eða 705.000 kr. Einn af liðsmönnum Druida var Trausti Ingólfsson, fyrrum yfirvélstjóri á Arnarfellinu.Fegurstu mottunni að mati Meistarafélags hárskera, skartaði Hjörleifur Jónsson.Verðlaunaafhendingin fór fram í Egilshöll og kepptu þá slökkviliðið, lögreglan, landhelgis-
gæslan, tollverðir og fangaverðir í íshokkí. Það var Jakob Jóhannsson formaður stjórnar Krabbameinsfélagins og Kolbeinn Árnason framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem veittu sigurvegurum í hokkíinu verðlaun en SFS eru aðalstyrktaraðili Mottumars í ár og næstu tvö árin. Þúsund einstaklingar og sextíu lið söfnuðu áheitum á síðunni mottumars.is til stuðnings Krabbameinsfélaginu. Rétt er að geta þess að þótt formlegri söfnun áheita í Mottumars 2015 sé nú lokið verður hægt að leggja átakinu lið fram að mánaðarmótum í gegnum vefsíðu mottumars.is og ýmsa samstarfaðila. Fólki er líka bent á að senda sms í númerið 908 1001, 908 1003 og 908 1005 og gefa 1.000, 3.000 eða 5.000 kr. til styrktar Krabbameinsfélaginu. Flottar áhafnir Nokkrar áhafnir og fyrirtæki í sjávarútvegi lögðu málefninu lið og má nefna áhöfnina á Aðalsteini Jónssyni frá Eskifirði sem safnaði rúmum 188 þúsundum, áhöfnina á Jóhönnu frá Þorlákshöfn sem safnaði 168 þúsund, áhöfnina á Júlíusi
Geirmundssyni frá Ísafirði sem safnaði 44 þúsundum og áhöfnina á Jóni Kjartanssyni frá Eskifirði sem safnaði 122 þúsundum. Þess fyrir utan tóku SFS, Fiskistofa og HB Grandi þátt í átakinu líka. Ýmsir aðilar lögðu verkefninu lið og með margvíslegum hætti. Sigrún Edda Eðvarsdóttir, verkefnastjóri tískufyrirtæksins Eyland, kom t.d færandi hendi á skrifstofu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi með ljómandi fallega boli sem eru til sölu hjá Krabbameinsfélaginu ásamt alls kyns öðrum varningi sem átakinu tengist, svo sem skegghring, skeggvaxi, lyklakippu og fleira. Bolinn hannaði Jón Gnarr, fyrrverandi borgar stjóri, fyrir Eyland og sýnir myndin á honum verkið „Drengurinn með tárið,“ eftir Bruno Ama dio, með yfirvararskegg Salvardors Dalís.Rannsóknir sýna að karlmennskan getur verið dýrkeypt því karlar leita yfirleitt seinna til læknis en konur. Því fyrr sem sjúkdómurinn greinist – því meiri líkur á lækningu. Í mottumars er hins vegar reynt að nota karlmannlegt yfirvaraskeggið til að minna karlmenn á að gefa heilsu sinni gaum.
Vökvakerfislausnir Vökvadælur, vökvamótorar og stjórnbúnaður Stjórnbúnaður skipa. Tæknibúnaður sem ætlaður er til notkunar á sjó mætir erfiðustu hugsanlegu skilyrðum. Álag óblíðrar náttúru, miklar hitabreytingar og stöðugur ágangur af söltum sjó, eykur þörf viðskiptavina fyrir áreiðanlegan og skilvirkan búnað. Danfoss hf. Skútuvogi 6, 104 Reykjavík, Sími: 510 4100
6
sj áva r a f l
mars 2015
FleXicut
Næsta skref í átt að nýrri kynslóð vinnslulína
Háupplausnar röntgenskynjari
Vatnsskurður
Bitaskurður og afurðadreifing
Sjálfvirkur beingarðsskurður fyrir hvítfisk er nú orðinn að veruleika · · ·
Minni afskurður - aukið hávirðishlutfall Bætt hráefnismeðhöndlun Nýjar afurðir: Hnakkar með roði og bakflök marel.com/flexicut • flexicut@marel.com
Velkomin á bás 4-6223/6227 í Brussel
Hugmyndir um stofnun sjávarklasa í Portland vekja athygli
Sjávarklasi í Portland?
B
orgaryfirvöld í Portland í Maine hafa undanfarin misseri átt í viðræðum við þarlenda fjárfesta og Íslenska sjávarklasann um stofnun formlegs sjávarklasa í Portland. Klasinn hefur fengið nafnið New England Ocean Cluster en viðræður standa einnig yfir um leigu á gamalli vöruskemmu sem stendur við Portlandhöfn og er í eigu borgarinnar. Fjárfestarnir vilja leigja húsið af borgaryfirvöldum og gera það að höfuðstöðvum klasans. Húsið yrði því í nokkurs konar systurhús Húss sjávarklasans í Reykjavík, þar sem saman yrðu komin undir einu þaki fjölmargir frumkvöðlar og nýsköpunarfyrirtæki í sjávarútvegi og öðrum haftengdum greinum, svo sem tæknifyrirtækjum sem framleiða tæki og hugbúnað, líftæknifyrirtækjum og matvælaframleiðendur. Portland og nærliggjandi borgir á austurströnd Bandaríkjanna eru á margan hátt kjörlendi fyrir nýja hugsun í sjávarútvegi og öðrum haftengdum greinum enda á slík atvinnustarfsemi sér djúpar rætur þar, en þarfnast nýsköpunar og nýrrar hugsunar til að mæta breyttum tímum. Hugmyndin er að New England Ocean Cluster teygi anga sinna til fyrirtækja og háskóla utan Maine, meðal annars New Bedford og Boston í Massachusetts þar sem má finna öfluga háskóla og mikinn fjölda hátækni- og líftæknifyrirtækja. Við þetta myndu skapast mikil tækifæri til samstarfs fyrir íslenska fjárfesta, frumkvöðla og vísindamenn. Á síðasta ári flutti Eimskip starfsemi sína í Bandaríkjunum til Portland og hefur það eitt opnað á fleiri möguleika til samstarfs milli ýmissa aðila á Íslandi og ýmissa fyrirtækja í Maine. Háskólinn í Reykjavík (HR) er meðal þeirra sem sýnt hafa auknu samstarfi við frumkvöðla, fyrirtæki og háskóla á New England svæðinu aukinn áhuga að undanförnu. Í mars síðastliðnum, meðan Sjávarútvegssýningin í Boston fór fram, ferðaðist meðal annars hópur nemenda úr HR
„Á síðasta ári flutti Eimskip starfsemi sína í Bandaríkjunum til Portland og hefur það eitt opnað á fleiri möguleika til samstarfs milli ýmissa aðila á Íslandi og ýmissa fyrirtækja í Maine.“ Mynd: eimskip
ásamt rektor skólans til Boston, en nemendahópurinn fékk ferðina í verðlaun fyrir sigur í svokallaðri Hnakkaþon keppni skólans og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Í Boston var einnig nýskipaður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Geir Haarde, og nýskipaður sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, Rob Barber. Sendiherrarnir og föruneyti þeirra,
ásamt Þór Sigfússyni framkvæmdastjóra Íslenska sjávarklasans, funduðu meðal annars borgarstjórunum í New Bedford og Portland og með frumkvöðlum sem vinna að stofnun New England Ocean Cluster. Vonir standa til að klasinn verði formlega stofnaður síðar á þessu ári og að hafist verði handa við að gera upp húsnæðið snemma á næsta ári.
Hús sjávarklasans stækkar n Þann 1. apríl verður formlega tekinn í notkun þriðji áfangi Húss sjávarklasans en framkvæmdir við stækkun hússins hafa staðið yfir frá því síðsumars í fyrra. Nú bætast við nokkur ný fyrirtæki í hóp þeirra ríflega 40 fyrirtækja sem fyrir voru með skrifstofuaðstöðu í húsinu. Meðal nýrra leigjenda eru Ægir Seafood sem framleiðir niðusoðna þorsklifur í tveimur verksmiðjum í Grindavík og Ólafsvík. Þá eru einnig flutt í húsið skrifstofa Loyd´s Register á Íslandi, Blámar, Instafish og Omnom. Þá mun Skaginn/3X technology vera með sölustarfsemi sína í húsinu bráðlega, nýtt frumkvöðlasetur
8
sj áva r a f l
mars 2015
hefur verið tekið í notkun og Dýrfiskur hefur breitt úr sér og fengið stærra rými. Eftir stækkunina er öll efri hæð hússins, sem stendur við Grandagarð í Reykjavík, fullnýtt og alls eru þar um 50 fyrirtæki og frumkvöðlar með aðstöðu. Með stækkuninni nú mun einnig opna lítill veitingastaður í öðrum enda hússins en Þórir Bergsson, veitingamaður á Bergson Mathús mun sjá um rekstur staðarins. Útsýni er yfir Reykjavíkurhöfn og Slippinn af staðnum. Veitingastaðurinn verður opinn almenningi jafnt sem öllum starfsmönnum og gestum hússins. Stefnt er að opnun síðar í aprílmánuði.
Lífið heldur alltaf áfram
Ætlaði mér aldrei á sjóinn Mynd: Sigurgeir
ir rjúka upp til handa og fóta. Það getur auðvitað verið erfitt líka, það er ekki gaman að elda í mikilli brælu og standa á dekkinu inn á milli en þetta er vinna sem maður kaus sér sjálfur og maður veltir þessu því yfirleitt ekki mikið fyrir sér.“ Sjórinn hafi mikla kosti, tekjurnar séu góðar um þessar mundir og fríin á milli túra séu góð. „Þá nýtur maður þess að vera með barnabörnunum.“
Sigrún Erna Geirsdóttir
É
g er ekki mikill sjómaður í mér en ég er ágætur í eldhúsinu,“ segir Jóhann Freyr Ragnarsson, eða Jói Ragg eins og hann er kallaður, kokkur á Kap VE frá Vestmannaeyjum. Ólíkt mörgum sjómönnum hafði Jói engan áhuga á sjómennsku sem krakki og sá aldrei fyrir sér að fara á sjóinn. Það var ekki fyrr en hann var orðinn 35 ára að honum datt í hug að taka einn túr til að ná sér í meiri tekjur og fór þá sem háseti á Gullberginu eina vertíð. Sama skipi og hann starfar á núna, en undir nýju nafni. Honum til mikillar undrunar líkaði honum veran á sjónum vel. „Mér hefði aldrei dottið í hug að ég myndi finna mig í þessu,“ segir hann og hlær. Á þeim tíma vann hann sem bifvélavirki í Áhaldahúsi Vestmannaeyja en fékk ársfrí til að prófa sjóinn. Áður hafði hann bæði unnið sem leigubílstjóri í Eyjum í átta ár og í billiard sjoppu. Eftir að hafa verið ellefu mánuði á sjó veiktist svo konan hans, Júlía Bergmannsdóttir, af krabbameini og fór hann þá í land. Eftir að Júlía dó, árið 2006, ákvað Jói að fara aftur á sjóinn. Jói kann vel við sig í eldhúsinu og segist hafa byrjað að grilla og gera sunnudagssteikurnar um tvítugt, eins og strákar gera. Svo hafi þetta bara þróast. „Mér hefur aldrei fundist neitt mál að elda fyrir mannskapinn. Mamma spurði mig einhvern tímann: Hvernig gerirðu þetta eiginlega? Skipuleggurðu alveg hvað þú ætlar að hafa í matinn allan þennan tíma og ferð svo með langan lista í búðina? En svarið er nei, ég kaupi bara helling af alls kyns mat og ákveð svo á kvöldin hvað ég ætla að elda daginn eftir miðað við það sem til er.“ Jói býður áhöfninni upp á venjulegan heimilismat en þegar farið er á nótaveiðar hefur hann gjarnan samlokur sem fólk getur gripið í eftir þörfum því oft geta menn ekki sest niður til þess að borða.
Það besta við sjóinn Engin tengsl við sjóinn voru í fjölskyldu Jóa en nú er hann með syni sínum á sjó. „Hann vildi alltaf fara á sjó og gerði það strax eftir skóla, 15 ára gamall, svo hann hefur verið lengur á sjó en ég!“ segir Jói. „Það er voða fínt að hafa hann um borð hjá mér og við erum í raun frekar vinir en feðgar.“ Fyrir utan soninn Ragnar Þór sem fæddist 1988 átti Jói dótturina Berglindi, fædda 1986, með Júlíu. Síðari kona Jóa, Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir, átti síðan tvö börn þegar þau kynnast: Brynjar Smára, fæddan 1984, og Gunnar Inga, fæddan 1990. „Hennar strákar eru mínir strákar og allir peyjarnir eru sjómenn í dag, einn lýkur vélstjóranámi í vor, annar er stýrimaður á Suðurey og sá þriðji er háseti með mér á Kap.“ Hann segir strákana alla hafa brennandi áhuga á sjónum og frá þeim fái hann allar bátafréttir og aflatölur. „Hvað minn strák varðar þá talaði hann alltaf um að fara á sjóinn og ég studdi hann í því. Nú til dags vilja allir að krakkarnir þeirra fari í háskólann og margir sjómenn eru sömu skoðunar en ég vissi að þetta var það sem hann
Það er æðislegt og það er ákveðin rómantík yfir því líka, sérstaklega á nótaveiðum þegar það er kannski ekkert að gerast og svo kemur allt í einu mokveiði og allir rjúka upp til handa og fóta. vildi.“ Fólk geti líka menntað sig þótt það fari á sjó og vélstjóranám sé t.d einstaklega nytsamt og gagnist manni hvar sem er, á sjó og á landi. Fyrri maður Ingibjargar, Unnar, hafi líka verið sjóari og hún hafi því alltaf verið sjómannskona. Fjölskyldan sé sannkölluð sjóarafjölskylda í dag, nokkuð sem hann hefði aldrei getað ímyndað sér. Æðislegt að vera á sjó Jói segir að sjóveikin plagi sig aldrei, sama þótt hann taki sér stundum frí frá sjónum. „Í fyrsta túrnum sem ég tók var ég sjóveikur í 16 klukkutíma, en þá var það búið og ég hef ekki fundið fyrir þessu síðan. Sumir verða sjóveikir aftur og aftur ef þeir eru eitthvað í landi en sem betur fer hef ég sloppið við það,“ segir hann. Hann njóti þess yfirleitt að vera á sjó. „Það er æðislegt og það er ákveðin rómantík yfir því líka, sérstaklega á nótaveiðum þegar það er kannski ekkert að gerast og svo kemur allt í einu mokveiði og all-
Dýrmætur tími með afastelpunum Jói á tvö barnabörn, Júlíu 4 ára og Aðalbjörgu 5 ára. „Júlía býr í Reykjavík en kemur oft í heimsókn til okkar. Þetta er svo þægilegt eftir að Landeyjarhöfn kom, þá kemur dóttirin með þá stuttu þangað og ég bíð þar eftir henni og fer með hana á eyjuna. Maður lætur ekkert aftra sér frá þessum heimsóknum.“ Aðalbjörg gistir líka oft hjá afa og ömmu og fær þá stundum að sleppa leikskólanum ef gist er á virkum degi. „Það er erfitt að standast það þegar hún segir: Afi, má ég vera hérna heima hjá þér í dag? Hún fær þá stundum frí og við dúllum hérna saman í staðinn. Ég er svo heppinn, ég má hafa þær þegar ég vil og þær vilja báðar vera hjá okkur. Þetta er besta starf í heimi, að vera afi.“ Júlía flutti til Reykjavíkur fyrir ári, frá Noregi, þar sem hún var í eitt ár með foreldrum sínum. Jói heimsótti hana að sjálfsögðu í Osló og tók Aðalbjörgu t.d með sér í fimm daga heimsókn. „Þessi tími er svo dýrmætur, hann líður svo hratt og allt í einu eru þau orðin fullorðin.“ Sjálfur eigi hann góðar minningar um ömmu sína og afa en það sé svo mismunandi hvað börn fái að upplifa og það sé sér einkar mikilvægt að vera sem mest með barnabörnunum. Þótt stelpurnar séu ekki háar í loftinu hefur sú eldri farið með afa sínum á sjó. ,,Hún fór með mér í þriggja daga túr í fyrra, við vorum þá vestan við Eyjar á makríl og þetta var yndislegt. Hún var svo dugleg að hjálpa afa að leggja á borðið, setja í vélina og fleira. Þær bíða núna báðar spenntar eftir sumrinu og því að fá að fara á sjóinn.“ Áður en barnabörnin komu til sögunnar fór systurdóttir Jóa oft á sjó með honum og var þá kannski fimm til tíu daga. „Hún er við nám núna í Brussell og þótt það tengist sjónum ekki á nokkurn hátt er hún enn áhugasöm og ég sendi henni oft myndir og segi henni frá vertíðinni. Það eru forréttindi ef krakkar fá að kynnast þessu og þetta lifir alltaf með þeim.“ Fótboltaaðdáandi með ljósmyndadellu Þegar Jói er í landi er hann yfirleitt að dytta að heimilinu, bæði sínu eigin og hjá börnunum fjórum. Um þessar mundir sé hann t.d að dúlla sér við að parketleggja allt og mála. Þau hjónin séu líka með hjólhýsi uppi á Hellishólum sem gaman sé að dvelja í. Það skemmtilegasta sem hann geri þó sé að vera með afastelpunum. Á sjónum séu áhugamálin önnur, þá tekur hann alltaf með sér flakkarann, stútfullan af þáttum og bíómyndum, og er Jói að eigin sögn óttalegur sjónvarpsglápari. „Við feðgarnir kíkjum gjarnan saman á þetta á kvöldin, þetta er mín mesta afslöppun. Ég tók þetta saman í vetur hvað ég væri að fylgjast með mörgum þáttaröðum og þær voru ríflega þrjátíu!“ Jói tekur líka sj áva r a f l
mars 2015
11
„Ég set alltaf símann í vasann áður en ég fer út á dekk og tek nokkrar myndir í hvert sinn svo myndirnar eru orðnar töluvert margar! Maður þarf ekki fína myndavél í dag, myndavélin í símanum er orðin svo góð.“ Mynd: Sigurgeir
mikið af myndum á símann sinn og deilir þannig reynslunni af sjónum með vinum og vandamönnum. „Ég set alltaf símann í vasann áður en ég fer út á dekk og tek nokkrar myndir í hvert sinn svo myndirnar eru orðnar töluvert margar! Maður þarf ekki fína myndavél í dag, myndavélin í símanum er orðin svo góð.“ Annað áhugamál Jóa er fótbolti og er hann eitilharður aðdáandi Arsenal. „Áður en ég fór á sjóinn var ég varaformaður Arsenal klúbbsins og hafði það að aukastarfi að redda fólki miðum og fara með því á leiki. Ætli ég sé ekki búinn að fara á eina fimmtíu, sextíu leiki með liðinu.“ Hann segist vera nokkuð sáttur við gengið seinni hluta vetrar, 3.sætið sé ásættanlegt og þeir séu ekki nema stigi á eftir City og sjö stigum á eftir Chelsea sem eigi eftir að vinna deildina. „Við erum fimm Arsenal menn um borð og horfum oft á leiki saman. Svo eru hérna Púlarar og United menn líka.“ Jói er að sjálfsögðu búinn að koma ástinni á Arsenal inn hjá afastelpunum þrátt fyrir að feðurnir aðhyllis Leeds og Man. Utd. „Ástina á sjónum og Arsenal fá þær frá mér og því er ekki hægt að breyta! Feðurnir eru svo sem ekkert ósátt-
12
sj áva r a f l
mars 2015
ir, sérstaklega ekki Leedsarinn, en ég varð að lofa United-manninum því að ef strákur kæmi seinna skyldi ég ekki gera Arsenalmann úr honum.“ Verðum að lifa í núinu Eins og fram hefur komið er Jói tvígiftur og missti hann fyrri konu sína, Júlíu, úr krabbameini eftir átta ára erfiða baráttu. Var hún 35 ára þegar hún veikist og ekki nema 42 ára þegar hún deyr. Meðan Júlía var veik hélt hún úti bloggsíðu þar sem hún talaði opinskátt um veikindi sín og var þetta talsvert áður en fleiri fóru að gera slíkt hið sama. Sýndi hún alltaf mikinn baráttuvilja og tók veikindum sínum af miklu æðruleysi. Jói segir að ekki hafi verið í boði að vera á sjónum síðari ár veikindanna og fór hann alltaf með henni í meðferðir. Á þeim tíma vann hann hjá Áhaldahúsinu og var afar heppinn með yfirmenn sem höfðu fullan skilning á erfiðum aðstæðum og því að hann vildi styðja við konu sína eins mikið og unnt var. „Eitt árið fórum við 55 ferðir til Reykjavíkur í meðferðir,“ segir hann. „Þetta eru bara verkefni sem okkur eru gefin og maður á ekki að vorkenna sjálfum sér
Það er erfitt að standast það þegar hún segir: Afi, má ég vera hérna heima hjá þér í dag? Hún fær þá stundum frí og við dúllum hérna saman í staðinn. Ég er svo heppinn, ég má hafa þær þegar ég vil og þær vilja báðar vera hjá okkur. Þetta er besta starf í heimi, að vera afi.
gerir hlutina erfiðari ef börnin eru ósátt þegar fólk finnur sér nýja maka. Konan mín vissi lengi að hún myndi deyja og hún var búin að tala um það við börnin að ef ég finndi aðra konu vildi hún að þau tækju henni vel. Þau voru því undirbúin og það hjálpaði mikið.“ Ári eftir að þau hittust ákváðu þau svo að gifta sig. „Ég vildi hafa hlutina alveg á hreinu, ég er sjómaður, og við vildum gera þetta almennilega. Það er því búið að gera erfðaskrár og ganga frá öllum okkar málum, það er svo mikilvægt þar sem við eigum bæði börn.“ Veikindin voru þó ekki búin að segja skilið við þau hjónin því Ingibjörg greinist með krabbamein í júlí 2014 og fór í meðferð í vetur. Jói tók sér aftur frí frá sjónum til að styðja konu sína í meðferðinni og að henni lokinni fóru þau til Danmerkur í jáeindaskanna, þar sem kom í ljós að krabbinn var horfinn. „Þetta er allt búið núna og krabbinn er farinn. Það var líka kominn tími á að vinna þá baráttu því við vissum auðvitað bæði að hverju hún gekk. Þetta er bara svona, við fengum þetta verkefni og spiluðum úr þeim spilum sem okkur voru gefin.“ Þarna hefði allt getað farið á versta veg en blessunarlega gerðist það ekki. „Sama hvað kemur upp, lífið heldur samt alltaf áfram, fólk á börn og barnabörn og þýðir ekki að dveljast við veikindi eða slys. Maður gerir bara eins og maður getur.“
heldur gera eins gott úr lífinu og hægt er. Svona er þetta bara. Lífið er of stutt til þess að lifa í fortíðinni, við verðum að lifa í núinu og hugsa um framtíðina.“ Hann segist vera feginn því að geta gert það í stað þess að velta endalaust fyrir sér því sem hefði getað verið, það sé alls ekki sjálfgefið. „Ég átti góð ár með Júlíu og ég á fallegar minningar um hana. Sumir geta ekki sleppt sorginni en það hef ég getað gert. Fyrir þremur árum kom til mín kona og bauð mér að vera í hópi fyrir þá sem hafa misst maka en ég sagði nei takk, þetta er ekki fyrir mig. Ég á mínar góðu minningar um fyrri konuna og ég þarf ekkert að velta mér meira upp úr þessu. Ef maður gerir það eru hlutirnir bara erfiðari. Sumir komast aldrei út úr sorginni og það er ekki gott. Þetta er ákveðið ferli og það er mismunandi hvernig fólk vinnur úr hlutunum.“ Jói segir að þau Júlía hafi vitað það í mörg ár að hún myndi deyja úr krabbanum. „Þannig að þegar hún deyr vorum við búin að segja allt sem þurfti að segja og gera allt sem þurfti að gera. Það er erfiðara þegar andlátið ber snöggt að þótt konan mín hafi stundum öfundað þá sem fengu að fara skyndilega úr hjartaáfalli.“ Fyrri maður núverandi konu Jóa, Unnar, hafi t.d ekki verið veikur af krabbanum nema í hálft annað ár áður en hann lést, þremur mánuðum á undan Júlíu, og því hafi missirinn verið öðruvísi fyrir Ingibjörgu. Lífið heldur áfram Jói segist vera lánsamur, hann hafi misst konuna sína í janúar og í desember sama ár kynnist hann annarri konu. „Það bara gerðist og það er jákvætt. Við vorum bæði á gangi niðri í bæ þegar við förum fyrir horn og rekumst hvort á annað. Ég þekkti hana ekkert áður þótt ég vissi auðvitað hver hún var og að hún hafði misst manninn sinn á svipuðum tíma og ég missti mína konu.“ Þarna hafi þau kynnst og mjög fljótlega byrjað að fella hugi saman. „Við Ingibjörg erum svo heppin að börnin okkar sem voru unglingar þá voru jákvæð, það
Kap VE.
sj áva r a f l
mars 2015
13
Hærra þjónustustig frá Íslandi en Noregi
Góð samvinna skilar árangri fyrir alla 14
s j áva r a f l
mars 2015
Ef fiskurinn fer með skipi er þetta svipaður tími frá Noregi og okkur en ef fiskurinn fer flugleiðina tekur flutningurinn mun skemmri tíma frá okkur.
Flutningur & Kæling
H
B Grandi nýtir sér bæði sjóflutninga og flutning með flugi við að flytja afurðir fyrirtækisins á markaði erlendis. Vaxtarbroddurinn liggur í sjóflutningum. „Við fyllum nánast alltaf það flugpláss sem við fáum í þeim fragtvélum sem fljúga frá landinu og nýtum okkur svo eins og við getum farmrýmið í farþegaflugvélunum. Sem betur fer eru mörg flug frá landinu í dag og því getum við á ársgrundvelli aukið það magn sem við sendum flugleiðina á markað,“ segir Sólveig Arna Jóhannesdóttir, sölustjóri fersks fisks hjá HB Granda. Fraktpláss vanti þó enn á ákveðna markaði og það takmarki hversu mikið fyrirtækið sendi á þá. „Það er t.d ekki mikið pláss í boði til Ameríku. Maður vinnur sér inn flugplássin hægt og rólega með því að senda jafnt og þétt og ná stöðugleika í magni.“ Hún segir að veturinn hafi verið sérlega erfiður flutningalega séð. Flugsamgöngur hafi verið brösóttar á köflum og gengið á ýmsu. Hún segir að samvinnan við flugfélögin hafi verið góð og ótrúlega vel hafi gengið að vinna úr málum í erfiðum aðstæðum. „Mín reynsla er sú að allir í þessum bransa vinna af dugnaði með sama lausnarmiðaða hugarfarinu, sem er auðvitað ómetanlegt.“ Sveigjanleikinn er mikilvægur Sólveig segir að fyrirtækið nýti sér vel sjóleiðina líka, sé meira pláss í boði og flutningar þá leið hafi aukist jafnt og þétt undanfarin ár. „Við sendum frá okkur á þriðjudagskvöldum í Norrænu, á miðvikudögum með Eimskip og á fimmtudögum með Samskip . Oft eltum við líka Samskip til Vestmannaeyja og setjum vörur þar um borð á föstudögum.“ Sólveig segir að heilmikið utanumhald fylgi því að skipuleggja sendingar og velja flutningsleiðir með tilliti til brottfarartíma og daga frá landinu, sem og því fraktplássi sem þau hafa úr að moða. „Það að geta notað blandaða leið, þ.e.a.s. bæði sjó og flugflutninga, gerir okkur fært að vaxa og mæta mismunandi þörfum markaðarins hvað varðar magn, verð og gæði. Við erum því mjög sveigjanleg gagnvart viðskiptavinunum og þjónustustigið frá Íslandi tel ég t.d vera hærra en frá Noregi.“ Sólveig segir að um þessar mundir haldi þau reyndar svolítið að sér höndunum í þorskvinnslu. „Loðnuvertíðin er á fullu núna og svo eru Norðmenn venjulega að setja svo mikið inn á markaði um þetta leyti að verð lækka,“ segir hún.
Sólveig Arna Jóhannesdóttir, sölustjóri fersks fisks hjá HB Granda.
Hörð samkeppni við Norðmenn Íslendingar eru í harðri samkeppni við Norðmenn á flestum mörkuðum með ferskar þorskafurðir og staðsetning landsins er erfiðari með tilliti til flutningsleiða. „Ef fiskurinn fer með skipi er þetta svipaður tími frá Noregi og okkur en ef fiskurinn fer flugleiðina tekur flutningurinn mun skemmri tíma frá okkur. Við löndum allajafna snemma morguns og sá hluti aflans sem unninn er fram að hádegi fer í flug seinni partinn og er þá kominn til neytandans daginn eftir. Það gerist ekki mikið betra en það,“ segir Sólveig. Hún segir að þetta hafi mikið að segja fyrir ákveðna markaði en í lokin snúist þetta þó alltaf um verðið. Flutningur flugleiðina séu mun dýrari og þótt fólk sé tilbúið til að borga eitthvað meira fyrir ferskari vöru þá séu takmörk fyrir því hversu miklu hærra og hversu mikið magn sé hægt að selja á hærri verðum en markaðinum býðst annars staðar frá . „Auðvitað reynum við alltaf að sækja hæstu verð og Íslendingar hafa þar oft vinninginn miðað við Norðmenn. Við höfum líka vinninginn þjónustulega séð, við höfum þorsk allt árið en Norðmenn koma með mikið magn inn frá áramótum fram á vor en draga þá verulega úr þorskveiðum og vinnslu, bæði vegna göngu stofna við Noreg og eins skipulags veiða og vinnslu.“
Stöðug þróun Fiskur er afar viðkvæm vara og því er mikilvægt fyrir fyrirtæki að hafa stöðugt auga á gæðamálum og leiðum til þess að bæta gæði. Mikil þróun hefur orðið hvað kælingu og flutninga varðar og hefur hún m.a gert fyrirtækjum eins og HB Granda mögulegt að senda ferskan fisk sjóleiðis á markað í Evrópu. „Markmið okkar eru stöðugleiki í gæðum og gott framboð af afburðavörum. Við vinnum því sleitulaust með okkar sjómönnum og gæðafólki að því að gera okkur kleyft að nota líka sjóleiðina fyrir ferskvörur. Fiskurinn þarf að standast það að vera fimm daga í hafi og kannski einn í landflutningi áður en hann kemur í verslanir eða veitingahús í Evrópu,“ segir Sólveig. Þá vinni fyrirtækið mikið með Matís, Tempra Promens og fleiri fyrirtækjum í sama tilgangi. „Það stefna allir að sama marki: Að koma vörunni sem ferskastri til neytenda.“ Hún segir að stöðugt sé verið fylgjast með hitastigi í öllu ferlinu og miklum árangri hafi þegar verið náð í að bæta kælikeðjuna. Óháður aðili taki svo t.d út vöruna þegar hún fer á Frakklandsmarkað og sendi þeim gæðaskýrslur sem vel sé farið yfir. Þá sendi stórmarkaðskeðjurnar sem kaupa af þeim fisk gæðaskýrslur líka. „Þetta gæðaeftirlit er mjög mikilvægt því fiskurinn er jú svo viðkvæm vara.“ Hún segir að líka sé vel fylgst með öllum nýjungum sem gætu bætt gæði vörunnar og í því sambandi megi nefna að um þessar mundir sé HB Grandi að vinna tilraunaverkefni. Það gangi út á að kanna hvort BluWrap tækni í flutningum gæti hjálpað við að koma ferskum fiski enn ferskari til neytenda en tæknin gengur út á að fjarlægja súrefni í kringum vöruna og hægja þannig á oxun. „Það er verið að nota þessa aðferð við að pakka laxi í Chile fyrir Bandaríkjamarkað og okkur langaði til að prófa þetta fyrir okkur vörur líka. Hvort þetta á eftir að muna miklu á eftir að koma í ljós en við erum alltaf opin fyrir því að skoða nýja möguleika og prófa nýja hluti. Það er alltaf einhver þróun í gangi.“ Sólveig segir að eftirspurn eftir ferskum fiski aukist stöðugt og það sé þróun sem muni halda áfram. Markaðurinn sé þó mjög verðmeðvitaður. „Við erum í harðri samkeppni úti á markaðnum og til að standast þá samkeppni þurfum við stanslaust að halda vöku okkar og vanda til verka eins og kostur er. Maður þarf að leggja sig allan fram við að sinna viðskiptavininum og reyna af fremsta megni að uppfylla þarfir hans. Þetta krefst mikils en maður fær það líka til baka. Ánægður viðskiptavinur er tryggur viðskiptavinur,“ segir Sólveig Arna að lokum. s j áva r a f l
mars 2015
15
Þurfum betri vöktun og meiri rekjanleika
„Kæling á fiski verður að eiga sér stað um leið og hann kemur úr sjó og oft er hann kældur áður en hann fer í kerin. Það er svo mikilvægt að halda þeirri kælingu allt að vinnslu,“ segir Sigurjón Arason.
Mikil þróun á skömmum tíma Flutningur & Kæling Sigrún Erna Geirsdóttir
G
óð kæling er lykilþáttur í flutningsferli fisks þar sem fiskur er viðkvæm vara. Miklar framfarir hafa orðið á þessu sviði og hefur geymsluþol fersks fisks t.d. aukist verulega undanfarin ár. Horft á heildarferlið Sigurjón Arason, yfirverkfræðingur hjá Matís og prófessor við HÍ, er sá sem hefur unnið hvað ötulast að góðri aflameðferð hérlendis og því fengist mikið við framþróun á kælitækni. „Við erum alltaf að skila betra og ferskara hráefni enda hefur meðferð aflans tekið miklum framförum undanfarin ár,“ segir hann. Sjávarútvegurinn hafi þroskast mikið hvað þetta varðar og hafi hann verið að svara kalli markaðar sem vilji gæðavöru. Útgerðir skipuleggi t.d. veiðar sínar þannig að hver tegund hafi farið í gegnum dauðastirðnun þegar komið er að landi en mis-
16
sj áva r a f l
mars 2015
munandi er eftir tegundum hvað sá tími er langur, karfi þarf t.a.m. lengri tíma en þorskur sem þarf skamman tíma (um 2 daga). Sumar útgerðir byrja að veiða karfa í upphafi veiðiferða en enda ferðina á þorski. Það sé síðan mikilvægt að sjómennirnir sjálfir kunni réttu handtökin. „Til að skila gæðavöru til neytandans er lykilatriði að horfa á heildarferlið, allt frá því að fiskurinn er dreginn upp úr sjó og þar til hann fer á disk neytandans,“ segir Sigurjón. Það sé því mikilvægt að menn blóðgi fiskinn strax og slægi og láti hann blæða vel, og þá ekki síður að kæla fiskinn strax niður enda sé mikilvægt að hann fari sem allra fyrst í núll gráður. Sigurjón segir að aflameðferð hafi tekið miklum framförum og menn vandi sig meira í dag en áður. „Menn eru að átta sig á að maður breytir aldrei lélegri vöru í lúxusvöru. Það má þó auðvitað alltaf gera betur og það má aldrei sofna á verðinum, t.d. ef fiskur hefur óvart hitnað í tíu gráður í veiðiferð þá er of seint að bjarga honum. Kæling á fiski verður að eiga sér stað um leið og hann kemur úr sjó og oft er hann kældur áður en hann fer í kerin. Það er svo mikilvægt að halda þeirri kælingu allt að vinnslu. Það hefur því miður örlað á því upp á
síðkastið að verið sé að nota óeinangruð ál- eða stálker eða jafnvel mjölpoka fyrir afla um borð. Slíkt er afar óæskilegt þar sem aflinn verður fyrir of miklu álagi.“ Fiskurinn unninn hratt Eftir að afli er kominn að landi fer hann í vinnsluna þar sem hann er flokkaður, flakaður og snyrtur. Tíminn sem fiskurinn er í vinnslunni hefur styst mikið enda mikil áhersla lögð á að vinnsla gangi sem hraðast fyrir sig svo fiskurinn haldist kaldur. Í vinnslunni er fiskurinn skorinn í stykki, eins og hnakka og stirtlur, og fara hnakkarnir í forkælingu áður en þeim er pakkað. Kæling á fiski verður að eiga sér stað áður en hann fer í kassann. Fiskurinn verður aldrei kaldari en hann er þegar hann fer ofan í, einangrunin virkar á tvo vegu. „Við komumst varla nær neytandanum en þetta. Þarna er búið að snyrta fiskinn og gera hann tilbúinn til þess að fara í ofninn hjá neytandanum,“ segir Sigurjón. Þessi þróun, að gera fiskinn að tilbúinni neytendavöru, gerðist hratt segir hann og að mikill skriður sé á henni ennþá. Nýlegar vatnsskurðarvélar frá Völku
Kældur fiskur
og heildarkerfi frá Marel séu gott dæmi um það. Þegar búið er vinna fiskinn fer hann svo í frauðkassa og fer um 60-70% í slíka kassa sem framleiddir eru af Promens og voru þróaður fyrir fáeinum árum í nánu samstarfi við Matís og sjávarútvegsfyrirtæki. Fiskurinn er svo fluttur með trukkum, skipum og flugi og er þá í sérstökum innsigluðum kæligámum sem eru oft stilltir á mínus eina gráðu ef um ferskan fisk er að ræða. Ef verið er að flytja út frystan fisk er hitastigið vitaskuld lægra. Sigurjón segir að skipafélögin leggi sig fram um að velja góða og vandaða gáma sem sé mjög mikilvægt því
gámar séu mjög misjafnir að gerð og gæðum. Icelandair Cargo vandi sig líka við að stýra flutningaferlinu hjá sér, en það ferli er mjög ólíkt því sem er hjá skipafélögunum. Eftir að fiskur er kominn á leiðarenda með skipi eða flugi er lykilatriði að afferming gangi hratt fyrir sig og að varan stoppi sem styst á flugvellinum eða á hafnarsvæðinu. Ferming og afferming er sennilega viðkvæmasti hlekkur flutningskeðjunnar því meðan gámur er í skipi er hann í sambandi en meðan afferming á sér stað er hann tekinn úr sambandi og síðan settur aftur í gang þegar gámur er kominn í bílinn.
Tæknideild útgerðarinnar Sigurjón segir Matís vera eins konar tæknideild fyrir fiskvinnslufyrirtæki og að þeir geri sitt besta til að sjá eins og fimm ár fram í tímann hvað varðar mögulegar tækninýjungar. Mikið sé unnið að rannsóknum á fiski og kælingu og áhrifum hennar á fiskinn. „Þannig höfum við t.d séð að fyrstu ískristallarnir byrja að myndast í þorski við -0,9 gráður. Við höfum því getað stillt nákvæmlega hversu mikið á að kæla þorskinn niður án þess að hann frjósi heldur hafi bara örlítið af ískristöllum. Þetta er mismunandi milli tegunda, t.d þarf laxinn sj áva r a f l
mars 2015
17
-1,4 gráður og makríllinn um -2 gráður þegar hann er feitastur, enda eru þetta feitari fiskar.“ Þessarar þekkingar hafi Matís aflað í samstarfi við fyrirtæki og háskóla og síðan farið með hana til fyrirtækja sem nýti hana í dag. „Á þessu sviði höfum við unnið mikið með Eimskip og Icelandair Cargo, Samherja, ÚA, HB Granda og fjölmörgum öðrum fyrirtækjum, enda hefur þessi árangur náðst með breiðu samstarfi fyrirtækja í sjávarútvegi,“ segir Sigurjón. Afrakstur rannsóknanna er sá að tekist hefur að auka geymsluþol á ferskum fiskflökum úr sex dögum í tólf daga og haldast gæði hans óbreytt í sex til átta daga áður en þau fara að minnka. Svo hægt væri að rannsaka fyllilega kælingu og áhrif hennar þá hannaði og smíðaði Matís kæliherma sem auðvelda alla þróunarvinnu fyrir fersk flök og líkja eftir flutningum í flugi og skipi. Þannig er hægt að sjá áhrifin sem hitasveiflur hafa á vöruna. „Hermarnir eru notaðir bæði fyrir ferskan og frosinn fisk og þeir eru nánast alltaf fullbókaðir. Allt flutningaferlið er kortlagt og við komum fyrir hitanemum í fiskinum þannig að við getum mælt nákvæmlega öll áhrif sem hiti og sveiflur í honum hafa á fiskinn og geymsluþol hans. Við eigum orðið mikið af mælingum og þær eru vel nýttar til rannsókna og ferlaþróunar,“ segir Sigurjón. Þá séu oft settir nemar í fisk sem verið sé að flytja frá landinu í samstarfi við fiskvinnslufyrirtækin og flutningafyrirtækjunum svo greint frá niðurstöðum þeirra mælinga. Fyrirtækin sjálf fylgjast síðan vel með sínum eigin skipum og flugvélum. Allt þetta sé hluti af því að draga úr hitasveiflum á meðan á flutningi stendur og hefur þetta skilað þeim árangri að lítið sé orðið um sveiflur. Hvað þorsk varðar er t.d. stillt á mínus eina gráðu og þar helst hitinn í skipum alla leið. Þegar fiskfarmur fer með farþegaflugi er þetta ekki eins nákvæmt en
öllum kassanum undir hitaálagi þannig að fiskurinn hefur sama geymsluþol hvar sem hann er staðsettur í kassanum.“ Það eru margir sem nota þennan kassa í dag enda þola þeir líka meira hnjask. Árið 2010 voru 3-7 kg kassar endurhannaðir með rúnnuð horn og árið 2014 var hugmyndin yfirfærð á nýja 60x40 cm vörulínu 10-15 kg flakakassa Promens Tempru.
Þegar búið er vinna fiskinn fer hann svo í frauðkassa og fer um 60-70% í slíka kassa sem framleiddir eru af Promens og voru þróaður fyrir fáeinum árum í nánu samstarfi við Matís og sjávarútvegsfyrirtæki. hann fari þó nánast aldrei yfir sett mörk og að auki er hann ekki það lengi á leiðinni. Kassi sem breytir miklu Einn lykilþátturinn í bættu geymsluþoli er frauðplastkassi sem kom á markað um 2011 og var þróaður af Matís, í samstarfi við Promens Tempra. „Það voru tveir nemendur hérna sem komust að því að hitinn í hefðbundnum kassa var ekki jafn í honum öllum heldur var hærri hiti í hornum hans undir umhverfishitaálagi og fiskurinn skemmdist fyrr þar. Hornin voru því rúnnuð og helst nú mun jafnara hitastig í
Þurfum að gera enn betur Aðspurður um hvað sé framundan í meðferð og kælingu segir Sigurjón að nú þurfi að fínpússa ferilinn og setja markið á að hægt sé að flytja fersk flök til Norður Ameríku með skipum. Nú þegar liggur fyrir hvernig best er að meðhöndla aflann þá þarf að tryggja að það sé gert. Þá er þörf á því að tryggja rekjanleika. „Kaupandinn á geta séð nákvæmlega hvar fiskur er veiddur, af hverjum og hvenær,“ segir Sigurjón. Þá væri ekki verra ef hægt væri að setja upp umbunarkerfi þannig að ef skip meðhöndlar afla vel og tryggir þannig gott verð fyrir útgerðina væri hægt að verðlauna skipið fyrir það. „Sjómenn eru margir hverjir að gera frábæra hluti og mega vera stoltir af. Við eigum að bera virðingu fyrir sjómönnum og tala um gæði og hitastig afla af sömu virðingu og magn. Ef sjómenn fengju umbun fyrir að gera vel þá væri það hvetjandi fyrir áhöfnina og enn fleiri myndu leggja sig fram um að skila gæðahráefni.“ Hann segir að vinnslan hafi verið að bæta sig mikið en enn skorti nokkuð á að hráefnismeðferð í bátunum sé eins góð og hún gæti verið. Þess vegna væri gott ef hægt væri að taka upp umbunarkerfi. Það komi því miður enn fyrir að fiskur sé ekki rétt blóðgaður og kældur eins og ætti að vera. ,,Í dag náum við vel utan um kerfið. Til þess að við náum að skapa hámarksverðmæti þurfum við öll að stefna að sama marki og átta okkur á því að við erum í sama liðinu. Við erum að gera vel en það má alltaf gera betur.“
FRAMÚRSKARANDI lausnir fyrir fiskframleiðendur
Samvals- og pökkunarflokkari » Fyrir flök eða bita
» Sjálfvirk kassamötun
» Allt að 80 stk á mín. » Möguleiki á millileggi » Lágmarks yfirvigt
18
sj áva r a f l
mars 2015
» Frábær hráefnismeðh.
Víkurhvarfi 8 | 203 Kópavogur | S: 519 2300 | valka@valka.is | www.valka.is
Áhersla lögð á gæði í 30 ár
30 ára Frá 1984 hafa hönnuðir okkar og verkfræðingar lagt hart að sér við að gera Sæplastkerin þannig úr garði að þau þoli allt það mikla álag sem viðskiptavinir okkar ætlast til af þeim. Þeir eru jafnframt stöðugt að þróa nýjar hugmyndir, leita leiða til að létta líf þeirra sem vinna með kerin og ekki síst til að hámarka megi aflaverðmæti.
Ein af nýjustu afurðum okkar er lúgulokið á 460 og 660 lítra kerin. Þetta lok gerir gæfumuninn þegar halda þarf matvælum, svo sem eins og lifur og hrognum, sem lengst undir loki til að viðhalda fersleika sem lengst.
www.promens.com/saeplast PROMENS DALVÍK <JCC6GH7G6JI &' +'% 96AKÏ@ HÏB> )+% *%%%
Meira fraktrými í náinni framtíð
„Leggjum höfuðáherslu á góða vörumeðferð“ Flutningur & Kæling
Á
rlega eru flutt út í kringum 27 þúsund tonn af ferskfiski og fer eftirspurn eftir honum stöðugt vaxandi. Icelandair Cargo flýgur með stóran hluta af ferskfiskinum og notar til þess bæði fraktvélar félagsins og farþegarvélar Icelandair. Tvær vélar munu bætast við flota Icelandair næsta ár.
Leiðarkerfið er lykillinn Tvær fraktvélar frá Icelandair Cargo fljúga að öllu jöfnu á degi hverjum til helstu markaða Íslendinga í Bandaríkjunum og Evrópu. Fraktvélarnar taka hvor um sig 37 tonn af farmi og er bróðurhluti farmsins ferskur fiskur. Þess fyrir utan flýgur út daglega 21 farþegavél með allt að níu tonna burðargetu og má segja að í nánast öllum farþegavélum sé einhver fiskur um borð. Mikil eftirspurn er eftir plássinu; sérstaklega til Boston, New York og Toronto. Farþegaflug er alltaf að verða viðameira og sífellt er verið að bæta við áfangastöðum. Segir Gunnar að undanfarin ár hafi verið að bætast við 1-2 staðir í Norður-Ameríku árlega og Edmonton sé t.d nýleg viðbót. Þetta gengur þannig fyrir sig að Icelandair opnar nýja leið og við fylgjum í kjölfarið. Sölufyrirtækin prófa síðan staðina og þarna geta opnast nýir markaðir fyrir fiskinn. Fjölgun ferða lykilatriði Flest ef ekki öll sölufyrirtækin nýta alla flugfrakt sem er í boði og myndu gjarnan vilja að hún væri meiri. Gunnar segir að það sé rétt að ekki hafi tekist að anna allri eftirspurn eftir flutningum þótt yfirleitt takist að flytja allt sem beðið sé um. Fjölgun áætlunarferða til Ameríku hafi þótt létt eitthvað á fraktarvandanum. Það sem hefur staðið aukningu á fraktflugi nokkuð fyrir þrifum er hins vegar að innflutningur minnkaði mikið í kjölfar hrunsins 2008 og hefur ekki náð sömu hæðum. Við verðum að hafa frakt í báðar áttir í fraktflugvélunum því annars þyrfti að hækka verð fyrir frakt út sem væri ekki réttlætanlegt því þá yrði íslenski fiskurinn ekki lengur samkeppnishæfur í útsöluverði. Innflutningur er hins vegar á góðri uppleið núna og í kjölfar mikillar lækkunar á eldsneytisverði erum við hins vegar ekki eins háðir innflutningi þannig að svigrúm hefur myndast til þess að fjölga ferðum,“ segir Gunnar. Hóf Icelandair Cargo t.d fraktflug til Boston nú í janúar og mun halda því áfram fram að páskum.
20
sj áva r a f l
mars 2015
„Breiðþoturnar eru talsvert stærri og bera þrisvar sinnum meira en 757 vélarnar.“
Er félagið jafnframt fyrsta fraktflugfélagið frá Evrópu sem hefur reglulegt áætlunarflug þangað. Meira farmrými á næsta ári Gunnar segir að fraktrými muni aukast mjög í mars á næsta ári en þá bætast við flugvélaflota Icelandair tvær Boeing 767 300 breiðþotur. Það er töluverður munur á 767 annars vegar og 757 hins vegar. Breiðþoturnar eru talsvert stærri og bera þrisvar sinnum meira en 757 vélarnar. Ef við tökum vél til Boston sem dæmi þá má reikna með að fullhlaðin vél af farþegum og frakt beri núna að hámarki fjögur tonn en nýja vélin mun geta borið allt að fjórtán tonn fullbókuð. Ef hún er ekki fullbókuð kemst svo vitaskuld meira af frakt. Stefnt er að því að nota vélarnar aðallega í flug til Boston og New York þannig að dagleg frakt til Ameríku mun verða þreföld á við það sem nú er. Breiðþoturnar eru þannig gerðar að þær eru með gámahleðslu líkt og fraktvélarnar þannig að þá verður hægt að keyra vörurnar út í gámum og koma þeim fyrir í farmrýminu. Nú verður hins vegar að handhlaða inn í farþegavélarnar. Þetta kemur til með að bæta alla vörumeðferð og áreiðanleika til muna. Við munum geta hlaðið gámana inni í vöruhúsinu við bestu aðstæður og keyrt þá svo beint út í flugvél. Allur hleðslutími verður því styttri og tíminn sem varan stendur úti á hlaði styttist verulega; nokkuð
sem skiptir miklu máli fyrir viðkvæma vöru eins og fisk. Önnur skilyrði hafa líka batnað mikið því síðustu áramót stækkaði vöruhús Icelandair Cargo um 20% þegar við bættust 1000m2 af kældu rými. Aðalmunurinn er sá að þetta rými er allt kælt þannig að nú getum við forunnið fraktina inni við bestu aðstæður, segir Gunnar. Þetta muni bæta vörumeðferð verulega en áður hafi varan verið undirbúin til flutnings í ókældu rými og kæliklefar svo notaðir til að halda henni kaldri. Þá segir hann að nú sé verið að vinna að þróun á rauntíma skynjurum sem verða settir með farminum. Þeir eiga að virka þannig að ef eitthvað fer úrskeiðis, t.d ef kælivara fer óvart ekki í kælt rými eða ef eitthvað fer úrskeiðis við afhendingu, myndu skynjarar láta vita af því og við gætum þá gripið strax inn í ferlið. Gunnar segir að vörumeðferð sé alltaf það sem lögð sé mest áherslu á en markmiðið sé líka alltaf að hafa tímann sem varan sé í þeirra umsjó sem stystan.“Afhendingarhraði fyrirtækisins er mikill í dag og oft líða ekki nema 36 og í hæsta lagi 48 tímar frá því að fiskurinn er veiddur og þar til hann getur verið kominn á diskinn hjá neytandanum erlendis. Það er enginn annar en íslenskur fiskur sem nýtir sér leiðarkerfið okkar sem getur státað af hinu sama.“ Góð þjónusta við fyrirtæki sé lykilatriði hjá félaginu og stöðug endurskoðun og aðferðir til þess að bæta þjónustu séu starfsfólki alltaf ofarlega í huga.
Samsung Galaxy S5 Active er sรญmi sem er hannaรฐur fyrir รญslenskar aรฐstรฆรฐur. Meรฐ IP67 vรถrn og harรฐgerรฐa skel Dร YRSQL WHNVW 6 $FWLYH ยฝ YLร QยฝWWXUXร ฦญ RJ NUHIMDQGL Dร VWร ร XU ยฝ KYHUMXP GHJL (NNL Qร J PHร Dร YHUD HLQQ Vยฝ VWHUNDVWL ร EUDQVDQXP ร ยฝ HU KDQQ HLQQLJ PHร ร HLP ร ฦญXJXVWX
Vatns - og Rykvarinn 16MP myndavรฉl Fjรถgurra kjarna รถrgjรถrvi
Samsung Galaxy S5 Active STร RIKERFI $QGURLG .LW.DW 0Hร ร VOHQVND YDOP\QG RJ O\NODERUร TENGIMร GULEIKAR * 4XDG %DQG * ODQJGUร JW * /7( :L )L D E J Q DF GXDO EDQG
$ *36 */21$66 %HLGRX '1/$ :L )L 'LUHFW :L )L KRWVSRW 1)& 0LFUR 86% SKJร R q +' 6XSHU $02/(' PHร *RULOOD *ODVV [ SL[OD XSSODXVQ SSL VINNSLUMINNI *% 5$0 ร RGJร RVI *+] IMร JXUUD NMDUQD .UDLW 4XDOFRPP 6QDSGUDJRQ MINNI *% LQQE\JJW PLQQL RJ VW\ร XU DOOW Dร *% minniskort MYNDAVร L 03 [ SL[HO PHร # ISV P\QGEDQGVXSSWร NX 8+' N# ISV 'XDO YLGHR XSSWDND 0\QGDYร O Dร IUDPDQ 03 # ISV RAFHLร ร UENDING %Lร Wร PL DOOW Dร NOVW * RJ WDOWร PL DOOW Dร NOVW * P$K
„Stærstur hluti af okkar útflutningi er fiskur, það er fiskur í hverju skipi sem siglir út frá okkur,“ segir Guðmundur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri millilandasviðs Samskipa.
Fiskur fluttur út allt árið
Vel fylgst með öllum gámum Flutningur & Kæling
B
róðurpartur farms Samskipa er fiskur og er hann fluttur út allt árið. Fyrirtækið lætur sérsmíða fyrir sig gáma og leggur áherslu á gott eftirlit með þeim.
Fiskur í hverju skipi „Stærstur hluti af okkar útflutningi er fiskur, „Fyrir hverja ferð fer rafvirki yfir hvern gám fyrir sig það er fiskur í hverju skipi sem siglir út frá okk- og keyrir hann upp í 20 stiga hita og 20 stiga frost til að sjá hvort hann sé ekki 100% í lagi.“ ur,“ segir Guðmundur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri millilandasviðs Samskipa. „Það eyjum áður en það fer til Bretlands og Hollands. má svo skipta honum í fjóra Nokkur munur er á burðargetu skipanna, Fellin flokka: Frystur fiskur sem er eru 900 gámaeiningar en leiguskipið er 700. Alfyrirferðarmestur hjá okkur, gengt er að hver gámur taki um 25 tonn af fiski. ferskur, saltfiskur og skreið.“ Fiskurinn er fluttur út allt Sérsmíðaðir gámar árið og segir Guðmundur að Guðmundur segir að viðskiptavinir eða starfsfólk makríllinn hafi breytt miklu Samskipa sjái um að ferma gámana og koma um hvað það varðar. Samskip borð í skipin en erlendis sjái verktakar um þetta afhenda fisk á fimm stöðum: og afgreiði skipið líka. Mikið sé hugsað um gæðaGuðmundur Þór Rotterdam, Immingham , mál enda mikilvægt að fiskurinn haldi gæðum Gunnarsson. Cuxhaven, Árósum og Var- sínum á meðan á flutningi stendur. „Við leggjum berg. Samskip hafa yfir að ráða þremur skipum áherslu á að hafa góða gáma og látum sérsmíða til millilandaflutninga: Arnarfelli, Helgafelli og þá fyrir okkur. Fiskurinn er bæði fluttur í þeim leiguskipi. Fellin sigla vikulega frá Reykjavík og og eins gámum frá stóru skipafélögunum sem Vestmannaeyjum til Bretlandseyja, meginlands- sigla milli Evrópu og Asíu ef t.d. fiskurinn er að ins og Skandinavíu með viðkomu í Færeyjum á fara áfram á Asíumarkað.“ Hann segir að gámheimleiðinni en leiguskipið siglir hálfsmánað- arnir sjálfir hafi þó í raun lítið breyst í gegnum arlega frá Reykjavík til Ísafjarðar, Sauðárkróks, tíðina, þetta séu frystikistur sem hafi lengi byggt Akureyrar, Reyðarfjarðar og Kollafjarðar í Fær- á sömu grunntækninni. Efnið sem notað er í þá
22
sj áva r a f l
mars 2015
hafi þó breyst og nú séu gámarnir áreiðanlegri og þoli meira. Í hverjum gámi er kælibúnaður sem heldur hitastigi gámsins stöðugu og er tölva sem stýrir og sýnir hitastig hluti af þeim búnaði. „Fyrir hverja ferð fer rafvirki yfir hvern gám fyrir sig og keyrir hann upp í 20 stiga hita og 20 stiga frost til að sjá hvort hann sé ekki 100% í lagi. Ef eitthvað er athugavert er gert við hann hjá okkur,“ segir Guðmundur. Eftir að farmurinn er svo kominn í gáminn fylgjast starfsmenn með hitastiginu með reglulegu millibili, bæði á sjó og í landi. Fátítt sé að búnaður bili þótt slíkt geti auðvitað komið fyrir, sérstaklega ef skipið lendir í slæmum sjógangi. Út með fisk og heim með morgunkorn Útflutningur með skipi er tengdur innflutningi á neysluvörum. „Við flytjum út þorsk og komum heim með Cheerios,“ segir Guðmundur. Reynt sé að nýta skipin sem allra best. „Þegar hrunið varð kom það hart niður á skipafélögunum og urðum við að fækka úr fjórum skipum í eitt og skerða þjónustuna talsvert, því miður,“ segir hann. Hrunið hafi þó ekki verið með öllu slæmt. „Ég tel reyndar að mikið ójafnvægi hafi verið í innflutningi og þegar til lengri tíma er litið er þetta heilbrigðara í dag og jafnvægið er betra. Við önnum allri eftirspurn eftir frakt og reksturinn er í lagi.“ Aðspurður um hvort eitthvað sé á döfinni varðandi breytingar á flota og þjónustu segir Guðmundur ótímabært að tilkynna eitthvað um það. „Við erum að sjálfsögðu alltaf að leita leiða til að bæta okkur og erum því alltaf að skoða og hugsa málin.“
Góðar flugsamgöngur skipta okkur öllu
Sjávarútvegurinn er mikill þekkingariðnaður Flutningur & Kæling
G
óðar flugsamgöngur hafa komið sér einstaklega vel vegna flutninga á ferskfiski og er sífellt flogið með meira frá landinu á ársgrundvelli. Rysjótt veðurfar í vetur hefur ollið auknu álagi hjá söluaðilum en líka stuðlað að betra afurðaverði. Há flugtíðni er lykilatriði Iceland Seafood selur nánast allt sem upp úr hafinu kemur þótt mest sé selt af þorski og svo ýsu. Líkt og hjá flestum sölufyrirtækjum eru báðar flutningaleiðirnar frá landinu nýttar vel. „Við sendum meira með skipi, ætli það séu ekki um 60% af okkar ferskfiski sem fer þá leiðina,“ segir Guðmundur Jónasson, sölustjóri ferskfisks hjá fyrirtækinu. „Ástæðan fyrir því er fyrst og fremst samkeppnin við Norðmenn. Fraktin er ódýrari með skipinu og fyrir Guðmundur vikið verðum við að nota þann „Við sendum meira með skipi, ætli það séu ekki um 60% af okkar ferskfiski sem fer þá leiðina,“ segir GuðmundJónasson. máta til að vera samkeppnis- ur Jónasson, sölustjóri ferskfisks hjá Iceland Seafood. hæfir. Viðskiptavinurinn nýtur þess síðan að fá fiskinn á lægra verði af þessum ástæðum.“ Guð- Nauðsynlegt að hugsa hratt menn sem og tæknistjóri. Þeir fari í heimsóknir mundur segir að ferskfiskgeirinn á Íslandi væri ISI kaupir fiskinn annað hvort við skipshlið eða á í vinnslur og fyrirtæki og taki stikkprufur við ekki jafn blómlegur og hann er ef ekki væri fyr- flugvelli og frystivörur eru keyptar við frystihúsið. skipshlið og á flugvelli. „Við vinnum líka mikið Fyrirtækið skipuleggur því ekki innanlandsflutn- með framleiðendum og það er gagnkvæmur ir þá geysilega háu flugtíðni sem hér er. „Það eru margir sem ekki gera sér grein fyrir því að inga sjálft í fersku. „Við sjáum auðvitað um alla skilningur á því hvaða gæðakröfur eru í gangi. við erum t.d með hærri flugtíðni en Noregur og pappírsvinnu og skipuleggjum flutning eftir að út Þá sé inntökueftirlit hjá sumum kaupendum Svíþjóð samtals! Menn hafa verið að standa sig er komið, oft upp að dyrum viðskiptavinar.“ Hann enda séu þeir misjafnlega strangir hvað skilyrði frábærlega vel á þessu sviði sem hefur hjálpað segir líka að þrátt fyrir að innanlandsflutningar varðar og fari það yfirleitt eftir stærð fyrirtækja. okkur gríðarlega.“ Hann tekur líka fram að þótt séu skipulagðir af seljandanum séu þeir sjálfir oft í „Þeir skoða þá fiskinn og við fáum endurgjöf frá þeim. Þeir láta líka vita ef eitthvað er ekki í flugum fækki í janúar og febrúar sé framboð af miklu sambandi við flutningsaðilana. „Þegar það flugfrakt mjög gott á ársgrundvelli. „Þeir hafa er mikil ófærð og rysjótt veður eins og hefur verið lagi og við komum því áleiðis til framleiðenda.“ líka verið duglegir að bæta við nýjum stöðum í vetur erum við í miklu sambandi við þá því það Hann segir líka að mikil þróun á kælikeðju hafi sem kemur sér mjög vel fyrir okkur. Frakklands- er mikilvægt að koma fiskinum frá vinnslunni út á skipt afar miklu og vöruhús á flugvöllum séu líka markaður er auðvitað okkar aðalmarkaður og flugvöll eða höfn á réttum tíma. Það er t.d slæmt að orðin afar fullkomin. „Mesta áskorunin hefur fiskurinn þangað fer t.d í gegnum Bretland þar missa af flugi vegna ófærða á vegum innanlands. verið að auka geymsluþolið án aukaefna. Ef við sem nokkrir áfangastaðir eru í boði. Fiskurinn Það er því oft mikill hamagangur í þessu og stund- bætum efnum við í fiskinn verður hann einfalder svo fluttur með trukkum gegnum göngin. Það um taka málin allan sólarhringinn. Með ferskvör- lega ekki jafn góður og ábatinn af því að flytja kemur sér því mjög vel að nýlega var Birming- una þarf að hugsa hratt og leysa málin. Þetta hefur hann ferskan tapast. Menn hafa því verið að ham bætt við.“ Bretlandsmarkaður sjálfur er að auðvitað verið mikil áskorun í vetur.“ Það sem sé velta kælingu mikið fyrir sér og hvernig er hægt mestu skipamarkaður. „Sá markaður er reynd- jákvætt við þetta sé að lægðirnar hafi verið að fara að kæla jafnvel enn betur. Þessi undirkæling, ar nokkurt áhyggjuefni því verslunarkeðjurnar til Noregs líka og þeir hafi veitt minna en venjulega þar sem keyrt er á mínu einni gráðu, er t.d freksjálfar eru að miklu leyti farnar að kaupa upp- á þessum árstíma. „Verðið hefur því haldið betur ar nýfengin vitneskja og hefur skipt miklu máli, ásamt nýju kössunum. Ferskfiskbransinn hefur þíddan norskan fisk sem síðan er seldur sem en undanfarin tvö ár, þökk sé veðrinu!“ líka þróast sérstaklega hratt þar sem hann er svo ferskur. ungur.“ Þetta og fleira séu skýr dæmi um það hve Það borgar sig því um leið og fiskur þarf að Mikill tækniiðnaður fara í aðra vél til að fara lengra deyr salan vegna Guðmundur segir að gæðamál séu fyrirtækinu sjávarútvegurinn sé orðinn að miklum þekkingaukins kostnaðar,“ segir Guðmundur. mikilvæg og að fyrir það starfi tveir eftirlits- ar- og tækniiðnaði. sj áva r a f l
mars 2015
23
L
oðnuvertíðinni sem nú er nýlega lokið er gjarnan lýst sem góðri en óvenjulegri og erfiðri. Útgefinn kvóti var tiltölulega mikill, markaðsverð á sumum afurðum hátt en markaðsástand hvað varðar aðrar afurðir erfitt. Loðnan hélt sig óvenju lengi fyrir norðan land og göngumynstur hennar var ekki hefðbundið . Þá þétti hún sig lengi vel illa og veðurfar á vertíðinni var ekki til að hrópa húrra fyrir; vetrarlægðirnar komu að vestan hver á fætur annarri með tilheyrandi brælum og vandræðum. Vestanganga kom undir lok vertíðar eins og oft áður og reið hún baggamuninn og lyfti brúnum þeirra sem höfðu verið hvað svartsýnastir varðandi vertíðarniðurstöðuna. Reikna má með að verðmæti loðnunnar sem íslensk skip veiddu á vertíðinni hafi numið um 25 milljörðum króna og munar um minna fyrir íslenskt þjóðarbú. Á nýliðinni vertíð var 390 þúsund tonnum úthlutað til íslenskra loðnuskipa og er það mikil breyting frá síðasta ári þegar úthlutaður kvóti til þeirra nam einungis tæplega 130 þúsund tonnum. Á vertíðinni sem var að ljúka tókst ekki að veiða allan þann kvóta sem úthlutaður var en gera má ráð fyrir að um 50 þúsund tonn hafi verið óveidd. Staðreyndin er sú að heilmikil spenna byggist upp í tengslum við loðnuvertíð hverju sinni. Hver verður útgefinn upphafskvóti? Verður bætt við upphafskvótann? Mun loðnan hegða sér með hefðbundnum hætti eða taka upp á einhverju nýju og óvæntu? Hvernig mun viðra til veiða? Hvernig eru aðstæður á mörkuðum fyrir loðnuafurðir? Eru há eða lág verð á mjöli og lýsi? Er markaðurinn fyrir frysta loðnu í lagi? Hver er eftirspurnin eftir loðnuhrognum? Allt eru þetta spurningar sem skipta miklu máli fyrir afkomu fyrirtækja og þjóðarbús. Uppsjávarfyrirtækin
Loðnuvertíð 2015 skipting verðmæta
6000
mynd 1
Milljónir
5000
4000
3000
2000
1000
0
24
6175
5775
4654
3370
2055
986
891
752
Fyrirtæki, hluthafar og fjárfestingar
Ríkissjóður og sveitarfélög
Launþegar
Útgerðar- og vinnslukostnaður (birgjar)
Olía
Afskriftir
Fjármálastofnanir
Lífeyrissjóðir og stéttarfélög
sj áva r a f l
mars 2015
a
Frá loðnumiðunum. Mynd: Örn Rósmann Kristjánsson.
Verðmæti loðnunar sem íslensk skip veiddu, í kringum 25 milljarðar
Góð loðnuvertíð en óvenjuleg og erfið Loðnuvertíð 2015 skipting verðmæta mynd 2
4%
4% 3%
8%
25%
14% 19%
23%
n Fyrirtæki, hluthafar og fjárfestingar 25% n Ríkissjóður og sveitarfélög 23% n Launþegar 19% n Útgerðar- og vinnslukostnaður (birgjar) 14% n Olía 8% n Afskriftir 4% n Fjármálastofnanir 4% n Lífeyrissjóðir og stéttarfélög 3%
svonefndu byggja mikið á loðnunni og niðurstaða loðnuvertíðar ræður miklu um árlega afkomu þeirra. Þá hefur loðnuvertíðin á hverju ári mikil áhrif á hag þeirra sveitarfélaga sem tengjast loðnuveiðum og vinnslu svo ekki sé minnst á ríkissjóð. Sérkennileg hegðun Margir loðnusjómenn töluðu um það framan af vertíðinni að loðnan hegðaði sér sérkennilega. Mörgum þótti það býsna skrýtið í febrúarmánuði að vera að veiða loðnu út af Húnaflóa og Skagafirði þegar gera hefði mátt ráð fyrir að loðnan væri að ganga upp á grunnið við suðaustanvert landið í þéttum og fallegum torfum. Það mátti heyra áhyggjutón þegar loðnusjómennirnir ræddu þessa stöðu og þeir spurðu gjarnan; hvað er að gerast og hvað veldur þessu? Að því kom þó seint og um síðir að loðnan skilaði sér upp á grunnið úti fyrir Suðausturlandi en þá var það veðrið sem truflaði veiðarnar í óþægilega ríkum mæli.
Hálfdan Hálfdanarson skipstjóri á Beiti NK lýsir vertíðinni með svofelldum orðum: „Hægt er að segja að vertíðin hafi verið góð en sérkennileg. Trollveiðin í upphafi vertíðar fór fram fyrir norðan land og það var enginn kraftur í henni. Loðnan gekk upp á grunnið þarna fyrir norðan og þar mátti ekki veiða með trolli. Það er alveg nýtt fyrir okkur að vera að veiða loðnu úti fyrir Norðurlandi í febrúarmánuði og það kom verulega á óvart. Þegar komið var fram yfir miðjan febrúar fannst loðna loksins upp á grunninu fyrir suðaustan landið. Eftir það varð vertíðin með hefðbundnari sniði. Skipin tóku grunnnæturnar og vel gekk að veiða þegar viðraði til þess –töluvert um góðar torfur og stór köst. Veðrið á vertíðinni var kapítuli út af fyrir sig. Hver lægðin kom á fætur annarri og segja má að það hafi verið daglegt brauð að vera á miðunum í 30-40 metra vindi. Oft var útilokað að veiða vegna veðurs en veðurfarið leiddi líka til þess að kastað var við mjög erfiðar aðstæður. Afleiðing þessa var óvenju mikið slit á veiðars j áva r a f l
mars 2015
25
Frá loðnumiðunum.
Hrognavinnsla í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar.
Mynd: Ísak Fannar Sigurðsson.
Mynd: Smári Geirsson
færum og stundum urðu menn fyrir stórtjóni. Vestangangan undir lok vertíðar bjargaði miklu þó flotinn næði ekki að veiða úthlutaðan kvóta. Segja má að vertíðinni hafi lokið á hefðbundnum tíma. Yfirleitt má gera ráð fyrir að loðnuvertíð ljúki um eða upp úr miðjum mars. Niðurstaðan er sú að vertíðin var ágæt en óvenjuleg og erfið,“ sagði Hálfdan að lokum. Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði. Mynd: Jón Hilmar Jónsson.
Markaðsaðstæður hagstæðar Segja má að markaðsaðstæður fyrir loðnuafurðir hafi verið hagstæðar á nýliðinni vertíð. Í upphafi vertíðar voru verð á mjöli og lýsi há en þau lækkuðu heldur þegar ljóst var hve mikið yrði veitt. Sama má segja um verð á heilfrystri loðnu sem framleidd var á Japan og Austur-Evrópu; gott verð fékkst fyrir framleiðsluna þó svo að átökin í Úkraínu og neikvæð efnahagsþróun í Rússlandi hefðu áhrif á eftirspurnina. Verð á loðnuhrognum verða sennilega ekki eins hagstæð og í fyrra enda mun meira framleitt á vertíðinni sem var að ljúka. Enn er verið að semja um sölu á hrognum og því ekki fullkomlega ljóst hvað markaðurinn er tilbúinn að greiða fyrir þau. Hins vegar má ætla að ágætt verð fáist fyrir hrognin þar sem markaðurinn í Japan er tómur eftir litla framleiðslu á vertíðinni 2014. Ef nýliðin vertíð er borin saman við fyrri loðnuvertíðir má halda því fram að hún hafi verið góð í markaðslegu tilliti, ekki síst vegna þess að gott verð mun sennilega fást fyrir allar tegundir afurða.
bæjarstjóri á Seyðisfirði segir eftirfarandi um þetta: „Loðnuvertíð skiptir miklu máli fyrir alla loðnubæi en Seyðisfjörður er sérstaklega háður því hve miklum kvóta er úthlutað hverju sinni. Ef kvótinn er lítill fer allur afli í manneldisvinnslu og þá kemur engin loðna til Seyðisfjarðar. Fyrir sveitarfélagið okkar skiptir því úthlutunin einstaklega miklu máli hvað afkomu varðar. Loðnan hefur mikil áhrif á tekjur hafnarsjóðs, hún er eðlilega mikilvæg fyrir starfsfólk fiskimjölsverksmiðjunnar og eins skiptir þjónusta við loðnuskipin töluverðu máli þó svo að skipunum hafi fækkað og þau stækkað. Hafnarsjóðurinn hér byggir á þremur megintekjustoðum; tekjum af ferjusiglingum, tekjum af botnfiski og tekjum af uppsjávarfiski. Þegar enginn loðnuafli berst á land eins og á vertíðinni 2014 er meginþáttur uppsjávarteknanna horfinn og það er grafalvarlegt mál fyrir hafnarsjóðinn og sveitarfélagið. Nýliðin loðnuvertíð var hins vegar hagstæð fyrir okkur og við fögnum því.“
Stærð kvótans skiptir miklu máli Þegar bornar eru saman loðnuvertíðirnar 2014 og 2015 þá eru þær ólíkar. Mikill munur var á útgefnum heildarkvóta á vertíðunum en stærð kvótans hefur afgerandi áhrif á nýtingu aflans. Sú litla veiði sem heimiluð var árið 2014 leiddi til þess að öll áhersla var lögð á manneldisvinnslu en í ár var kvótinn meiri og þá fór verulegur hluti aflans til framleiðslu á fiskimjöli og lýsi. Fyrir byggðarlag eins og Seyðisfjörð skipti þetta sköpum en á Seyðisfirði er rekin fiskimjölsverksmiðja en ekki manneldisvinnsla. Á árinu 2014 kom engin loðna á land á Seyðisfirði en á nýliðinni vertíð tók fiskimjölsverksmiðjan þar á móti rúmlega 36 þúsund tonnum. Stærð vertíðarkvótans er lykilatriði fyrir Seyðfirðinga og fyrir þá skiptir öllu að kvótinn sé það mikill að hluti aflans fari til mjöl- og lýsisvinnslu. Vilhjálmur Jónsson
Hið opinbera hefur miklar tekjur af loðnunni Stundum er engu líkara en fólk átti sig ekki á því hve veiðar og vinnsla á loðnu skiptir miklu máli fyrir hið opinbera. Hver loðnuvertíð hefur afgerandi áhrif á afkomu loðnubæjanna eins og að framan getur. Hafnarsjóðir þeirra hafa tekjur af loðnunni, útsvarsgreiðslur loðnusjómanna og starfsfólks í vinnslunni vega þungt fyrir sveitarfélögin og umsvif þjónustufyrirtækja skila umtalsverðum tekjum. Ríkið hefur einnig sínar tekjur af loðnuumsvifum og þær eru meiri en margur gerir ráð fyrir. Hér á eftir verður gerð tilraun til að greina tekjur hins opinbera af nýliðinni loðnuvertíð og leggja mat á hve hátt hlutfall þeirra tekna sem vertíðin skapaði rann til sveitarfélaga og ríkis. Um leið verður lagt mat á hlutdeild sjávarútvegsfyrirtækja í tekjunum og á útlagðan kostnað þeirra við að sækja og vinna loðnuna.
26
sj áva r a f l
mars 2015
Heilfryst loðna kemur út úr frystitækjunum í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Mynd: Hákon Ernuson.
Matið er byggt á upplýsingum frá Hagstofu Íslands, gögnum frá sjávarútvegsfyrirtækjum og þeim lögum og reglum sem gilda um veiðigjöld, tryggingagjöld, kolefnisgjald, hafnargjöld, tekjuskatt, staðgreiðslu og lífeyrissjóðs- og stéttarfélagsgjöld. Þá skal ítrekað að gert er ráð fyrir að verðmæti þeirrar loðnu sem íslensk skip veiddu á vertíðinni sé um 25 milljarðar. Niðurstaða matsins birtist á meðfylgjandi skýringarmyndum. Á mynd 1 sést hvernig verðmætin sem til urðu á vertíðinni skiptast. Fram kemur að í hlut fyrirækjanna koma 6,2 milljarðar króna á meðan ríkissjóður og sveitarfélög fá 5,8 milljarða í sinn hlut (sveitarfélögin fá tæpan milljarð í sinn hlut í formi útsvars og hafnargjalda á meðan ríkið fær 4,8 milljarða í sinn hlut í formi skatta launþega og fyrirtækja, veiðigjalda, tryggingagjalda og kolefnisskatts). Launþegar fá í sinn hlut 4,7 milljarða (nettó laun) og kostnaður vegna vinnslu og veiða að olíukostnaði meðtöldum nemur 5,5 milljörðum. Afskriftir eru metnar tæplega 1 milljarður og í hlut fjármálastofnan koma 900 milljónir. Þá nema greiðslur til lífeyrissjóða og stéttarfélaga um 750 milljónum. Á mynd 2 má sjá hvernig verðmætin skiptast hlutfallslega á milli áðurgreindra þátta. Fram kemur þar að 25% verðmætanna koma í hlut fyrirtækjanna en 23% í hlut ríkissjóðs og sveitarfélaga. Nettó laun nema 19% en aðrir þættir fá minna í sinn hlut. Mikilvægt er að þeir sem fjalla um loðnuvertíðina og þau verðmæti sem hún skapar hafi þá yfirsýn sem birtist með ljósum hætti í þessum skýringarmyndum. Til að upplýst umræða geti átt sér stað um veiðar og vinnslu á loðnu og reyndar einnig um aðra þætti sjávarútvegs þarf heildarmyndin um sköpun verðmæta og skiptingu þeirra að liggja fyrir.
Graskerskonfekt með steiktum fiski Góð kona sagði mér frá því hvernig henni þætti best að elda sér grasker og ég ákvað að hafa þetta fínerí með fiski. Svona bragðgott grænmeti eða grænmetisréttur getur staðið nánast eitt og sér og því vel ég að hafa tiltölulega hlutlaust meðlæti með því en hér er fiskurinn meðlæti.
Hráefni: »» 700 gr grasker (butternut eða Hokkiado) skorið í teninga »» 1 poki spínat, gróft skorið »» 1/2 laukur, í sneiðum »» 3 hvítlauksrif, marin »» 2-3 þorskflök »» Heilhveiti/gróft spelt/möndlumjöl »» Salt, turmerik og svartur pipar »» Best á allt frá Pottagöldrum »» Kotasæla »» Fetaostur
Aðferð:
Um höfundinn: Hrönn er sjálfstætt starfandi heilsumarkþjálfi sem hefur einlægan áhuga á matargerð þar sem hollusta og einfaldleiki er í fyrirrúmi. Hrönn er með heimasíðuna www.hronn-hjalmars.wordpress.com þar sem hún setur inn uppskriftir og ýmsan fróðleik sem tengist hollustu og heilsufari, ásamt því að bjóða upp á einstaklingsráðgjöf, námskeið og fyrirlestra.
Graskerið er sett í eldfast mót og nuddað með ólífuolíu. Turmerik er stráð yfir, svo er saltað og piprað. Þetta er síðan bakað í ca 45 mínútur á 180 °C. Fisknum er velt uppúr heilhveiti (eða öðru sem fólk vill nota), síðan er hann steiktur í smjöri og ólífuolíu og svo kryddaður með salti, pipar og Best á allt. Munum að taka fiskinn alltaf af pönnunni rétt áður en við höldum að hann sé tilbúinn! Takið graskersbitana úr ofninum, setjið fiskinn á fat og skellið spínati, lauk og hvítlauk á heita pönnuna þar sem það er mýkt vel. Blandið nú grænmetinu saman (spínatinu og graskerinu) og áður en það er borið fram er agalega gott að mylja fetaost yfir. Ég valdi að hafa eingöngu kotasælu með því graskerskonfektið er svo gott.
sj áva r a f l
mars 2015
27
Þúsundir fylgdust með harmleiknum
Kútter Ingvar ferst við Sigrún Erna Geirsdóttir
S
jaldan hefur eins mörgum fundist þeir vera eins hjálparvana og þegar þúsundir Reykvíkinga fylgdust skelfingu lostnir með því þegar skipverjar á kútter Ingvari drukknuðu í særótinu við skerin í Viðey í apríl 1906. Tuttugu fórust en samtals fórust sextíu og átta menn af fimm skipum þennan dag. Enginn björgunarbúnaður var til og ekkert var til bjargar. Mikill veðurofsi í apríl Árið 1906 var ár mikils veðurofsa sem olli miklu tjóni til sjós og lands. Talið er að sextán íslensk skip hafi farist og tuttugu og þrjú erlend, auk nokkra ára- og vélbáta. Drukknuðu um 130 Íslendingar en mun minna manntjón varð á erlendu skipunum. Marsmánuður einkenndist reyndar af fádæma veðurblíðu en í apríl breyttist veður skarplega til hins verra og rak hvert óveðrið annað. Keyrði um þverbak aðfararnótt 7.apríl og áttu mörg skip í erfiðleikum með að ná til hafnar. Daginn eftir varð veðurofsinn enn verri og gekk á með suðvestan dimmviðri. Í þá daga voru menn á þilskipum afar kappsfullir og voru það í raun aðeins eldri og reynslumeiri menn sem biðu meðan veður gengu yfir. Mörg skip höfðu því verið úti. Þrjú reykvísk þilskip náðu ekki til hafnar og svo einkennilega vill til að þau báru einkennisstafina RE 25, RE 50 og RE 100. Tvö skipanna fórust við Mýrar án þess að nokkur vitni væru þar að: Emilie sem fórst við Akra og Sophie Wheatley við Knarrarnes. Fjörutíu og átta manns voru um borð í þessum skipum. Þúsundir manna urðu hins vegar vitni að því þegar Ingvar, sem var í eigu Duus verslunar, fórst við Viðey. Löng sorgarsaga Ófarir Ingvars byrjuðu áður en skipið kom að Reykjavík. Sést hafði til skipsins suður í Garðasjó og var þá með brotinn gaffal á stórsegli og seglið sjálft farið fyrir borð. Nokkra skipverja hefur sennilega tekið út af skipinu þegar þetta gerðist. Laust fyrir hádegi þann 7.apríl sést til skipsins á siglingu utan við eyjar og átti það greinilega í erfiðleikum. Menn tóku eftir skemmdum á seglbúnaði og hafði skipið einungis uppi aftursegl og stagfokku. Í fyrstu ætlaði skipið að sigla venjulega leið milli Örfiriseyjar og Engeyjar inn á Reykjavíkurhöfn en vegna þess hve seglbúnaður var lélegur sá skipstjórinn sennilega fram á að það myndi ekki takast. Hrakti skipið nokkuð norður með Engey en reynir svo að sigla inn sundið milli Engeyjar og Viðeyjar, sennilega til að ná lægi milli Viðeyjar og lands eða inni við Klepp. Um hádegið gerist veður hins vegar sunnstæðara og til móts við Eiðið á Viðey er hætt við, sennilega af ótta við að skipið myndi stranda. Suðvestur af eiðinu eru skerjaflák-
28
s j áva r a f l
mars 2015
Kútter Ingvar fórst við skerin í Viðey í apríl 1906.
ar sem ekki sjást í stilltum sjó en brýtur á þeim í brimi, eins og þá var. Tyrfingur skipstjóri tekur þá á það ráð að draga niður segl og varpa akkeri sem virðist ná festu. Veðurofsinn magnast hins vegar enn frekar og höfðu menn sjaldan eða aldrei séð viðlíka brim við Reykjavík. Ingvar hverfur hreinlega í særokið en þegar grillir í skipið aftur sjá menn sér til skelfingar að svo virðist sem akkerið hafi losnað og skipið snúið sér. Rekur það nú undan veðri í átt að skerjunum við Viðey uns það steytir við Hjallasker, á móts við Viðeyjartún. Þótt ekkert liggi fyrir er talið að skipverjar hafi gripið til þess örþrifaráðs að kasta út akkeri aftur. Verður það þó eingöngu til þess að halda skipinu föstu á skerinu og heggur það stöðugt. Er miður að akkerið fór út því verið gæti að skipið hefði losnað af skerinu og hrakið upp í Viðey þar sem ekki er útilokað að einhverjir hefðu bjargast á land. Þúsundir manna við sjóinn Geir Sigurðsson skipstjóri er við annan mann vestur í slipp þegar hann sér Ingvar sigla vestan Engeyjar. Hann gengur þá niður eftir til að kanna hvernig skipinu reiddi af. Er hann kemur að verslun Geirs Zoëga á Vesturgötunni sé hann
að Ingvar liggur beint upp í vindinn við Hjallasker og í næsta vetfangi að skipið er komið upp á skerið og liggur flatt fyrir vindi meðan sjór brýtur yfir það. „Mennirnir voru farnir að tínast upp í reiðann. Þetta var átakanleg sjón.“ Fréttin um strand Ingvars barst fljótt um bæinn og fólk þusti þúsundum saman niður að sjó. Var nær óslitin röð fólks á öllum aldri frá sjónum og inn fyrir Klöpp. Meðal áhorfenda við höfnina voru sumir af helstu ráðamönnum þjóðarinnar; t.d Hannes Hafstein ráðherra og Thomsen kaupmaður, sem var einn af brautryðjendum slysavarnastarfs á Íslandi. Ráðamenn skora á menn að freista þess að ná út í eitthvert gufuskipanna sex sem lágu á Reykjavíkurhöfn og biðja menn að fara á vettvang og reyna að bjarga áhöfn Ingvars. Skammt var á milli skipanna og strandstaðarins en sökum þess að Engeyjartaglið skyggði á sást ekki frá gufuskipunum á standstaðinn og vissu menn þar því ekki af strandinu, sumir hverjir ekki fyrr en daginn eftir. Erfitt var að komast út í gufuskipin og ekki fyrir hvern sem er að reyna. Segir Thomsen kaupmaður þá að sexmannafar sitt sé frjálst hverjum þeim sem reyna vill og sjóföt fyrir þá í geymsluhúsi verslunarinnar.
Reykjavík Þegar Ingvar strandaði laust fyrir klukkan hálf eitt sást það vel bæði frá Viðey enda var skipið ekki nema 250 metra frá landi. Var skipið tjóðrað fast við skerið. Fólk stóð í flæðarmálinu og fylgdist með skipinu þar sem það barðist á skerinu. Björgun var ómöguleg Geir skipstjóri réttir þá upp hönd og segir: „Ég er tilbúinn, ef einhver vill koma með mér.“ Enginn bauð sig fram. Geir tekur þá við bréfi úr hendi Hannesar þar sem fram kemur að tekin er ábyrgð á greiðslu úr Landssjóði fyrir það tjón sem kunni að verða á skipi og mönnum við tilraun til björgunar. Fer Geir þá niður í Thomsens-pakkhús, þar sem hann vissi af félögum sem reyndust allir fúsir til fararinnar. Fyrst liggur leiðin í Flóabátinn Reykjavík en skipstjórinn þar segist ekkert geta gert og prísar sig sælan ef keðjurnar haldi eigin skipi. Seagull reynist vera bilaður og Súlan og enskur togari treysta sér ekki af stað. Síðast er farið að norsku fisktökuskipi; Gambetta, og eftir að skipstjórinn les bréf Hannesar Hafstein segist hann vera reiðubúinn til að reyna björgun. Fór Geir þá um borð með einum öðrum. Þegar til átti að taka lét skipið ekki að stjórn og þegar skipstjóri taldi fullreynt sagði skipstjórinn að því miður gæti hann ekki lagt út. Þar með hvarf síðasta von skipverjanna á Ingvari og fer þá Geir fyrir neðan þiljur. ,,Ég þoldi ekki að horfa á mennina sem stóðu bjargþrota í reiðanum á Ingvari. Ég sá tíu eða ellefu menn í reiðanum, og var þetta átakanlegra en orð fá lýst.“ Í heimildum er þess að auki getið að eitt skip í viðbót, Njáll, hafi verið á staðnum og hefði skipstjóri þess verið viljugur til að reyna að fara út að strandstað ef til hans hefði verið leitað. Það var þó ekki gert og ekki er vitað hvers vegna, mögulega álitu menn það þýðingarlaust úr því sem orðið var. Engir komust í land Þegar Ingvar strandaði laust fyrir klukkan hálf eitt sást það vel bæði frá Viðey enda var skipið ekki nema 250 metra frá landi. Var skipið tjóðrað fast við skerið. Fólk stóð í flæðarmálinu og fylgdist með skipinu þar sem það barðist á skerinu. Bátur var dreginn langa leið eftir ströndinni að strandstað en svo hrikalegt var brimrótið að ekki var hægt að setja bátinn út. Var þá farið niður í fjöru með kaðla, teppi og heitt kaffi til að gefa skipbrotsmönnum ef einhverjum skolaði lifandi á land. Fullir hryllings horfðu Viðeyjarbúar á mennina slitna úr reiðanum og hverfa í sjóinn einn á fætur öðrum. Brimið bar þá að eynni og óðu menn út í til þess að bjarga þeim á land, fullir vonar um að einhverjir yrðu á lífi. Ægir skilaði þó engum lifandi að landi og var ellefu líkum bjargað þann daginn. Voru þau fyrst borin inn í helli
þar sem þau voru þvegin og veitt nábjargir og síðan voru þau borin upp í Viðeyjarkirkju. Í Lesbók Morgunblaðsins hefur Árni Óla það eftir Jónasi Magnússyni, sem þá var vinnumaður í Viðey, að húsbóndinn í eynni, Eggert Briem, hafi tekið slysið ákaflega nærri sér og hafi hann ekki verið sami maður lengi á eftir. Hafi hann látið þau orð falla að heldur hefði hann viljað missa Viðey en að þetta hefði komið fyrir. „Meðan skipið stóð á skerinu var hann nærri hamslaus út af því að geta ekkert gert. Skipaði hann okkur t.d. að setja fram fjögurra manna farið og fara út að skipinu og ætlaði auðvitað sjálfur með. Magnús Einarsson, sem var orðlagður sjómaður, sýndi honum þó fram á að slíkt væri óðs manns æði þar sem holskeflubrim væri alla leið frá skipinu heim að túni. Bátur var í svonefndri Brekkuvör sem er sunnan við Virkið. Þangað fór Eggert einn, hratt bátnum fram og ætlaði að leggja út. Aðrir tóku þó eftir þessu í tæka tíð og var báturinn tekinn af honum. Batt sig í reiðann Mennirnir í reiðanum misstu takið einn á fætur öðrum í brotsjónum sem reið stöðugt á því. Í þrjár klukkustundir börðust þeir fyrir lífi sínu en að lokum var aðeins einn maður eftir við siglutréð og hafði hann líklega bundið sig fastan. Hékk hann þar lengi með höfuð niður, annað hvort meðvitundarlaus eða látinn, áður en skipið liðaðist endanlega í sundur klukkan þrjú. Er vart hægt að ímynda sér líðan þeirra sem í skipinu voru, að sjá land skammt undan til beggja handa og nóg af skipum og bátum. Lengi hafa þeir sjálfsagt vonast eftir því að sjá einhverja tilraun gerða til björgunar. Ekki hefur ættingjum og vinum mannanna liðið mikið betur þar sem þeir stóðu í landi og horfðu hjálparvana á skipverja hverfa í hafið einn á fætur öðrum. Ótrúlegt fjölmenni vegna jarðarfarar Daginn eftir var komið mun skaplegra veður og fór uppskipunarbátur frá Reykjavík til Viðeyjar sem var enn símalaus, til að athuga hvort einhver hefði komist lífs af og til þess að sækja lík ef þau hefðu borist á land. Skipin þrjú sem fórust 7.apríl voru öll frá Reykjavík en ekki voru einvörðungu Reykvíkingar um borð. Af þeim 68 sem fórust voru 24 úr Reykjavík en hinir komu frá ýmsum stöðum. Akranes varð fyrir mestu manntjóni, fimmtán menn höfðu komið þaðan og um haustið á undan höfðu farist tíu menn frá staðnum.
Meðal áhorfenda við höfnina voru sumir af helstu ráðamönnum þjóðarinnar; t.d Hannes Hafstein ráðherra og Thomsen kaupmaður, sem var einn af brautryðjendum slysavarnastarfs á Íslandi.
Akranes var þá lítið þorp en hafði misst tuttugu og fimm menn á skömmum tíma. Tíu skipverjar frá Reykjavík voru jarðsettir þann 20.apríl. Dómkirkjan var tjölduð svörtu og öllum verslunum í borginni lokað og vinnu hætt á meðan jarðarförin fór fram. Var líkfylgdin svo fjölmenn að aldrei hafði annað eins sést. Blöðin birtu eftirmæli um skipverjanna og orti Guðmundur Guðmundsson skáld ljóð af þessu tilefni sem nefndist Kveðja við gröfina. Eftir slysið voru flestir sammála um að of lítið hefði verið gert til að reyna að bjarga skipverjum. Þá voru menn sammála um að það gengi ekki lengur að hafa engan björgunarbúnað í Reykjavík en á þessum tíma lifði bærinn nánast eingöngu á útgerð og hér var miðstöð allra siglinga við landið. Menn voru þó ekki sammála um hvernig standa ætti að málum. Efnt var til samskota fyrir fjölskyldur hinna látnu og til þess að kaupa björgunarbát. Nam upphæðin 32 þúsundum og kom nær þriðjungur frá Vestur-Íslendingum. Þá var efnt til hlutaveltu og fór hluti ágóða til samskotanna og hluti í björgunarbátasjóðinn. Vel safnaðist í samskotasjóðinn en minna í björgunarsjóðinn og var sá síðarnefndi á endanum látinn renna inn í hinn. Varð því hvorki af kaupum á björgunarbáti né fluglínutækjum. Á sama tíma og á þessu stóð fór af stað önnur fjársöfnun fyrir styttu af Kristjáni IX fyrir framan Stjórnarráðið og var gert ráð fyrir að styttan myndi kosta 20-25.000 krónur. Mæltist söfnunin illa fyrir en þó fór svo að styttan var komin upp áður en Slysavarnarfélagið var stofnað og áður en björgunarbáturinn kom. Það var ekki fyrr en 22 árum síðar sem SVFÍ Íslands var stofnað og um hálf öld leið áður en fyrsti björgunarbáturinn kom. Slysið var þó hvati að stofnun Slysavarnafélags Íslands sem seinna aðstoðaði Viðeyingafélagið við að reisa minnismerki á slysstað og er það akkeri sem talið er vera úr Ingvari. Heimildir: Steinar Lúðvíksson: Þrautgóðir á raunastund og Lesbók Morgunblaðsins sj áva r a f l
mars 2015
29
Hin hliðin Fullt nafn? Óli Björn Björgvinsson
Hvað var draumastarfið þitt sem lítill strákur? Ekki sjómaður
Fæðingardagur og staður? 11,11,1967. Grindavík
Skemmtilegasti árstíminn á sjó? Vorið
Fjölskylduhagir? Giftur Guðrúnu Jónu Magnúsdóttur og eigum við 4 börn
Hvað finnst þér erfiðast við sjómennskuna? Veðrið
Draumabíllinn? Toyota Rav Besti og versti matur? Góð nautalund er best en súrmatur er ekki góður
Ef þú ættir að velja eina íþrótt til þess að keppa með áhöfninni þinni í hvaða íþrótt yrði fyrir valinu? Krulla
Starf? Skipstjórnarmaður
Stolt siglir fleygið mitt með Gylfa Ægis eða Ship-o-hoj? Stolt siglir fleygið mitt
Hvað er það sem heillar þig mest við sjóinn? Sjórinn heillar bara!
Siginn fiskur eða gellur? Get ekki gert upp á milli, bæði frábært.
Eftirminnilegasti samstarfmaðurinn á sjó og hvað er það sem gerir hann eftirminnilegri en aðra? Ölver Skúlason. Hann var frábær kennari og klár karl.
Smúla eða spúla? Smúla
Ef þú myndir smíða þér skip/bát hvað myndir þú láta það heita? Geirfugl
sj áva r a f l
Hvaða lið verður Englandsmeistari í ár? Því miður held ég að Chelsea verði meistarar
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Grímsey
Stundar þú einhverja líkamsrækt á sjónum? Að vera sjómaður er líkamsrækt
30
Eftirminnilegasta atvikið á sjónum? Var á humartrolli og fékk lík í trollið.
mars 2015
Ef þú mætir breyta einhverju á Íslandi í dag, hvað væri það? Úff! Hef ekki nóg pláss til að skrifa allt sem ég vil breyta. Eitthvað að lokum? Klix og ekkert ves!
tm.is/afhverju
Ánægja
TM
Ánægjan er okkar aðalsmerki Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru ánægðustu viðskiptavinir tryggingafélaga hjá TM, í 14. sinn. Ekkert fyrirtæki á Íslandi hefur jafn oft hlotið þennan heiður. Við þökkum kærlega fyrir okkur.
Tryggingamiðstöðin
tm@tm.is
tm.is