1 minute read
Tíu atriði sem breyttu Háskóla
GREIN ARTICLE Jóhannes Bjarki Bjarkason
Í tilefni af 100 ára afmæli Stúdentaráðs Háskóla Íslands er hér birtur listi yfir tíu atriði sem gerðu Háskóla Íslands að því sem hann er í dag. Listinn var unnin að hluta til upp úr vefsíðu aldarafmælis Háskóla Íslands.
Advertisement
1911 Þann 17. júní var Háskóli Íslands stofnaður. Við það sameinuðust Prestaskólinn, Læknaskólinn og Lagaskólinn.
1917 Kristín Ólafsdóttir, fyrsti kvenkyns kandídat HÍ, útskrifast. Kristín útskrifaðist með embættispróf í læknisfræði.
1933 Happdrætti Háskóla Íslands stofnað. Tilgangur happdrættisins er að afla fjár til húsabygginga, viðhalds og tækjakaupa. Yfir 20 háskólabyggingar hafa verið fjármagnaðar með happdrættisfé til dagsins í dag.
1935 Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, er stofnað. Félagið var stofnað sem svar við öðrum hreyfingum, t.d. Félagi róttækra háskólastúdenta og Félagi þjóðernissinnaðra stúdenta.
1940 HÍ tekur til starfa í Aðalbyggingu, þann 17. júní. Fram að þessu hafði HÍ starfað á neðri hæð Alþingishússins. Guðjón Samúelsson teiknaði bygginguna.
1952 Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir, er ráðin sem kennari við HÍ, fyrst kvenna. Ragnheiður kenndi lífeðlisfræði til ársins 1961.
1971 Fornhandrit Íslendinga færð til Árnastofnunar. Fornritin Flateyjarbók og Konungsbók Eddukvæða voru flutt úr vörslu Danmerkur til Íslands.
1988 Stúdentahreyfingin Röskva stofnuð. Félagið var stofnað með sameiningu stúdentahreyfinganna Félag vinstri manna og Umbótasinna.
2003 Uglan opnuð í fyrsta sinn. Uglan okkar kæra var opnuð sem innra vefsvæði fyrir starfsfólk, nemendur og kennara.
2005 Kristín Ingólfsdóttir, fyrsti kvenkyns rektor HÍ, tekur til starfa. Kristín starfaði sem prófessor við lyfjafræðideild háskólans.