5 minute read

Sigrar Stúdentaráðs í 100 ár

GREIN Katla Ársælsdóttir

MYNDIR Úr myndasafni SHÍ og HÍ

Advertisement

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur tekið að sér verkefni af ýmsum toga síðastliðin hundrað ár. Baráttumál stúdenta hafa verið mörg og mismunandi í gegnum árin og ótrúlegt að sjá hvað Stúdentaráð hefur gert margt fyrir háskólasamfélagið. Þegar litið er á þau fjölmörgu verkefni sem ráðið hefur tekið sér fyrir hendur, liggur það í augum uppi að baráttuandinn í stúdentum hefur alltaf verið til staðar. Hér er stiklað á stóru yfir þá sigra sem Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur unnið síðustu 100 ár.

Frekari upplýsingar má finna á nýrri vefsíðu Stúdentaráðs, student.is.

1920 Stúdentaráð stofnað: Þann 11. desember árið 1920 fóru fram fyrstu kosningar til Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

1924 Fyrsta tölublað Stúdentablaðsins kom út.

1928 Félag háskólakvenna og kvenstúdenta stofnað.

1933 Hlutbundnar og leynilegar kosningar til Stúdentaráðs teknar upp. Sérstakir listar voru boðnir fram í kosningum til ráðsins og þá fóru að myndast pólitísk samtök sem sáu um slík framboð. Fyrstu samtökin, Félag róttækra háskólastúdenta, voru stofnuð sama ár.

1934 Fyrstu Stúdentagarðar teknir í notkun. Í fyrstu Stúdentagörðunum var pláss fyrir 37 nemendur sem og garðprófast. Þar var einnig lestrarsalur, bókaherbergi og íþróttasalur í kjallara.

1934 Fyrstu Stúdentagarðar teknir í notkun

1940 Stúdentar mótmæla hernámsliði á Stúdentagörðum. Breskir hernámsliðar lögðu undir sig Stúdentagarða. Stúdentar mótmæltu því harðlega enda áttu margir stúdentar við húsnæðisvanda að stríða.

1943 Nýi-Garður tekin til notkunar og stúdentar flytja inn. Garðurinn var fullbúinn í september 1943, tæplega hálfu öðru ári eftir að byggingaframkvæmdir hófust. Í Nýja-Garði voru 63 herbergi og fyrsta veturinn fengu 90 stúdentar þar inni, en tveir bjuggu í mörgum einbýlisherbergjum vegna húsnæðisvandræða stúdenta.

1956 Stúdentaráð samþykkir tillögu að ráðast í byggingu Hjónagarða.

1957 Stúdentar fá fulltrúa í háskólaráð. Með lögum settum þetta ár fengu stúdentar einn fulltrúa í háskólaráði. Frá árinu 1978 fjölgaði síðan fulltrúum stúdenta í fjóra en auk þeirra áttu sæti í ráðinu háskólarektor, deildarforsetar og tveir fulltrúar Félags háskólakennara. Með breyttum lögum um Háskóla Íslands frá 1999 fækkaði aftur í ráðinu en fengu þá stúdentar tvo fulltrúa sem kosnir voru beint af stúdentum.

1959 Fjármagn til Stúdentaráðs. Fjármagnið gerði Stúdentaráði kleift að ráða fastan starfsmann.

1968 Félagsstofnun Stúdenta stofnuð. Háskólaráð og Stúdentaráð stóðu að stofnun FS sem tók við rekstri Stúdentagarðanna, kaffistofu stúdenta í Aðalbyggingunni, Bóksölu Stúdenta, Ferðaþjónustu stúdenta og barnaheimilisins Efri-Hlíðar.

1969 Stúdentar taka fyrst þátt í kosningum til rektors.

1940 Stúdentar mótmæla hernámsliði á Stúdentagörðum. Breskir hernámsliðar lögðu undir sig Stúdentagarða.

1972 Stúdentar mótmæla komu William Rogers. Stúdentar stóðu fyrir mótmælum í Árnagarði vegna heimsóknar William Rogers, þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Mótmælendum tókst jafnframt að koma í veg fyrir heimsókn ráðherrans.

1974 Fyrsti kvenkyns formaður Stúdentaráðs kjörin. Arnlín Ólafsdóttir læknanemi var kjörin formaður Stúdentaráðs í mars 1974. Hún var fyrsta konan til að sinna því starfi og gerði hún kvenréttindi að baráttumáli stúdenta.

1975 Verkfall stúdenta. Stúdentar fóru í tveggja daga verkfall í október árið 1975 til að mótmæla skerðingu námslána.

1972 Stúdentar mótmæla komu William Rogers. Students protest the visit of William Rogers.

1975 Stúdentakjallarinn tekur til starfa á vegum Félagsstofnunar stúdenta. Stúdentakjallarinn var mjög vinsæll samkomustaður stúdenta og er það enn í öðrum húsakynnum.

1975 Stúdentakjallarinn tekur til starfa á vegum Félagsstofnunar stúdenta.

1976 Stúdentar mótmæla. Þann 15. nóvember mótmæltu stúdentar nýrri tilhögun og reglum um námslán með því að safnast saman í menntamálaráðuneytinu. Meðal þeirra var Össur Skarphéðinsson, sem síðar varð alþingismaður og ráðherra.

1987 Fleiri konur en karlar í háskólanum. Þetta ár urðu konur í fyrsta sinn fleiri en karlar á meðal stúdenta og hafa síðan verið í meirihluta. Konur voru í miklum minnihluta á meðal stúdenta Háskóla Íslands fyrstu árin en á 20 ára afmæli skólans voru aðeins 8 konur skráðar til náms eða um 5% stúdenta. Fjöldi kvenstúdenta jókst hægt en í kringum 1970 fjölgaði þeim hraðar og fór úr 25 í 39% af heildarfjölda nemenda.

1994 Stúdentaráð aflar fjár til ritakaupa í Þjóðarbókhlöðu. Stúdentaráð hóf þjóðarátak til söfnunar fjár til ritakaupa í Þjóðarbókhlöðu. Þáverandi forseti Íslands, Vigdís Finnbogadóttir, var verndari átaksins sem gaf af sér 22,5 milljónir króna.

1998 Nám á nýrri öld. Stúdentar sem og Hollvinir Háskóla Íslands réðust í söfnunarátak fyrir bættum tölvukosti innan háskólans. Yfirskrift söfnunarinnar var Nám á nýrri öld og voru vonir bundnar við að safna um 20 milljónum í fjárframlögum og vél- og hugbúnaði.

1987 Fleiri konur en karlar í háskólanum.

2004 Mótmæla skólagjöldum. Í marsmánuði 2004 söfnuðust nemendur Háskóla Íslands fyrir utan Aðalbyggingu skólans til að mótmæla að skólagjöld yrðu sett á. Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsti yfir andstöðu við þessar hugmyndir og töldu að hægt væri að finna aðrar lausnir á fjárhagsvanda skólans. Stúdentaráð hóf undirskriftarsöfnun meðal nemenda skólans en þar söfnuðust yfir 3000 undirskriftir.

2007 Félagsstofnun stúdenta flytur á Háskólatorg. FS flytur alla starfsemi sína í Háskólatorg og opnar þar Bóksölu stúdenta og Hámu.

2012 Stúdentakjallarinn endurreistur. Stúdentakjallarinn opnar á ný og verður aftur einn helsti veitinga- og samkomustaður nemenda við skólann.

2013 Stúdentaráð stefnir íslenska ríkinu vegna LÍN. Stúdentaráð stefndi Lánasjóði Íslenskra Stúdenta sumarið 2013 vegna breytinga á útlánareglum sjóðsins. Breytingarnar földu í sér að auka lágmarkskröfu námsframvindu úr 18 einingum í 22 á önn. Stúdentaráð hafði betur þegar dæmt var í málinu í lok ágústmánaðar sama ár. Þetta var í fyrsta skipti sem Stúdentaráð hefur stefnt íslenska ríkinu.

2019 Stúdentar hefja loftslagsverkföll. Í febrúar 2019 hóf Stúdentaráð, í samstarfi við Landssamtök íslenskra stúdenta og Samband íslenskra framhaldsskóla, loftslagsverkföll á hverjum föstudegi. Krafa verkfallanna er sú að stjórnvöld lýsi yfir neyðarástandi vegna loftslagsmála og að þau ásamt fyrirtækjum grípi til aðgerða til að stemma stigu við loftslagsvánni. Verkföllin voru innblásin af verkföllum Gretu Thunberg, Fridays for future.

Loftslagsverkfallið hlaut viðurkenningu frá Reykjavíkurborg og var valin maður ársins hjá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.

Sama ár tók alþjóðafulltrúi stúdenta til starfa í fyrsta sinn á skrifstofu Stúdentaráðs.

2020 Stúdentaráð Háskóla Íslands fagnar aldarafmæli. Stúdentaráð fagnar aldarafmæli, öflugra en aldrei fyrr. Meðal mála á borði ráðsins voru nýtt frumvarp um Menntasjóð námsmanna, áframhaldandi barátta fyrir aðgerðum í loftslagsmálum, afleiðingar og áhrif kórónuveirufaraldursins m.a. á stöðu stúdenta í námi sem og á vinnumarkaðnum. Á starfsárinu náðust ýmsir sigrar. Uppbygging stúdentagarða við Gamla Garð hófst eftir langa baráttu, og tanngreiningum á börnum og ungmennum á flótta var hætt innan veggja háskólans.

2019 Stúdentar hefja loftslagsverkföll.

This article is from: