Víkurfréttir
OÐ AR jaraöku B k L r I é T UNN lir ssluþátt l a K ið óta VI r nj gre
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
u n okk m uta á j H lyfju af
Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Hringbraut 99 - 577 1150
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
vf.is
F IMMTUDAGUR INN 6. MARS 2 0 14 • 9. TÖ LU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R
Árni leiðir Sjálfstæðisflokkinn í fjórða sinn
Á
rni Sig fúss on, bæjarstjóri síðustu tólf ára í Reykjanesbæ var efstur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fór sl. laugardag. Þrettán þátttakendur buðu sig fram. Í fyrsta skipti fékk bæjarstjórinn framboð á móti sér í oddvitasætið. Gunnar Þórarinsson, 2. maður á lista flokksins fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar, háði harða baráttu við Árna. Hann fékk tæplega þriðjung atkvæða í 1. sætið en endaði að lokum í 5. sæti. Böðvar Jónsson varð í 2. sæti, Magnea Guðmundsdóttir í því þriðja, Baldur Guðmundsson varð fjórði, Björk Þorsteinsddóttir í 6. sæti og Einar Magnússon endaði í 7. sæti. Þátttaka var aðeins lakari en í síðasta prófkjöri flokksins. Nú mættu um 1500 manns en voru 1700 fyrir fjórum árum. - Sjá viðtal við Árna á bls. 2.
SJÓNVARPSFRÉTT
Útikennsla á Miðtúnsróló
Útikennslusvæðið er í Sjónvarpi Víkurfrétta á ÍNN og vf.is í kvöld kl. 21:30
Reykjanesbær hefur afhent Myllubakkaskóla í Keflavík Miðtúnsróló undir útikennslusvæði fyrir skólann. Magnea Guðmundsdóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar afhenti svæðið formlega en Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri, tók við því fyrir hönd Myllubakkaskóla. Í tilefni dagsins fjölmenntu allir nemendur Myllubakkaskóla að Miðtúnsróló í skrúðgöngu og tóku þátt í táknrænni athöfn í tilefni dagsins.
www.lyfja.is
Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ Betri kjör fyrir heldri borgara
SKRAUTLEG BÖRN Á ÖSKUDEGI Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í gær. Börnin klæddu sig upp í skrautlega búninga og fóru í hópum um bæinn og sungu í skiptum fyrir sælgæti. Á meðfylgjandi mynd sem Olga Björt tók í Reykjaneshöllinni í gær má sjá hóp barna horfa á skemmtilegt atriði úr Ávaxtakörfunni sem Leikfélag Keflavíkur frumsýnir á föstudagskvöldið í Frumleikhúsinu í Keflavík. Svipmyndir frá öskudeginum eru á vf.is og verða einnig í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld kl. 21:30 á ÍNN og á vef Víkurfrétta.
Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.
16%afsláttur
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
12% afsláttur
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
FÍTON / SÍA
Við stefnum að vellíðan. einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Lyfja Reykjanesbæ Krossmóa 4 Sími 421 6565
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19 laugard. 10–16 sunnud. 12–16
2
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
TÓNLISTARSKÓLI REYKJANESBÆJAR TVENNIR TÓNLEIKAR LENGRA KOMINNA NEMENDA SKÓLANS
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, ræðir við félaga sína í prófkjöri sjálfstæðismanna þegar fyrstu tölur voru birtar.
Tónleikar lengra kominna nemenda verða haldnir miðvikudaginn 12. mars og fimmtudaginn 13. mars. Báðir tónleikarnir verða í Bíósal Duushúsa og hefjast kl.19.30. Fjölbreyttar og spennandi efnisskrár. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Skólastjóri
LISTASAFN REYKJANESBÆJAR
SÝNINGARLOK
n Árni Sigfússon, bæjarstjóri, fékk 66% í 1. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ:
„Hörkubarátta en mjög sáttur með niðurstöðuna“ Þ
að var hörkubarátta um fyrsta sætið en ég er mjög sáttur við niðurstöðuna úr prófkjörinu, ég fékk 66% atkvæða í fyrsta sætið og það er mjög gott,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri, eftir prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ sl. laugardag.
Sunnudaginn 9. mars lýkur sýningu á verkum Svövu Björnsdóttur KRÍA / KLETTUR / MÝ í sýningarsal Listasafnsins í Duushúsum. Opið 12:00 – 17:00 virka daga og 13:00 – 17:00 um helgar. Aðgangur ókeypis
UPPELDI BARNA MEÐ ADHD / ADD Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar stendur fyrir námskeiði sem ætlað er foreldrum barna með athyglisbrest og/eða ofvirkni (ADHD/ADD) og ekki flóknar fylgiraskanir s.s. einhverfu. Á námskeiðinu fá foreldrar fræðslu um ADHD, hvaða þættir geta styrkt ADHD einkenni í sessi og hvað dregið úr þeim. Foreldrar deila með sér hugmyndum um hvað hefur gagnast þeim í uppeldinu. Umsjón verður í höndum Ingibjargar S. Hjartardóttur og Sigurðar Þ. Þorsteinssonar, sálfræðinga á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar. Námskeiðið fer fram í Holtaskóla og er opið öllum sem búa á þjónustusvæði Fræðsluskrifstofunnar. Tími: Sex skipti, tvo tíma í senn. Hefst 12. mars og lýkur 30. apríl. Tveggja vikna hlé er á milli 5. tíma (9. apríl) og 6. tíma (30. apríl). Skráning fer fram í síma 421-6700, skráningarfrestur er til og með 9. mars. Verð: 3000 kr fyrir einstaklinga / 5000 kr fyrir pör.
Það kom mörgum á óvart að Gunnar Þórarinsson, formaður bæjarráðs, skyldi einnig bjóða sig fram í oddvitasætið en Árni hefur ekki fengið mótframboð með svona skýrum hætti undanfarin tólf ár. „Prófkjör gefur öllum færi á að gefa kost á sér. Það er eðlilegt og lýðræðislegt. Við erum eini flokkurinn hér í bæ sem gerum þetta svona. Núna voru tveir sem buðu sig fram í 1. sætið og það er ekkert við það að athuga, en niðurstaðan var ánægjuleg fyrir mig.“ Geturðu lesið einhver skilaboð úr því að þriðjungur hafi kosið annan en þig í 1. sætið? „Það er alltaf hægt að lesa eitthvað út úr hlutunum. Maður á auðvitað alltaf að hlusta. Það er nokkuð ljóst að eftir mikla baráttu síðustu þrjú kjörtímabil, þar sem oft hefur þurft að taka á erfiðum hlutum þar sem fólk spilar inn í, er ekkert óeðlilegt þótt einhverjir séu óánægðir. Það er aldrei hægt að gera svo öllum líki. Slíkt birtist í svona prófkjöri.“ Gunnar Þórarinsson nefndi fjármálin í sinni prófkjörsbaráttu og vildi auglýsa eftir ópólitískum bæjarstjóra. Kom það þér á óvart? „Ég trúi því ekki að einhver stimpilUm 1500 manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
klukkuembættismaður sé betri en bæjarstjóri sem leiðir hópinn og vinnur öllum stundum að verkefnum fyrir bæinn sinn. Varðandi fjármálin þá hefur sá málaflokkur alltaf verið mikið í umræðunni í sögu þessa bæjarfélags, líka fyrir minn tíma. En það kom mér jú aðeins á óvart að fá þau skilaboð frá formanni bæjarráðs sem stýrir því ráði sem fer með fjármálin. Auðvitað eru fjármálin verkefni sem við þurfum sífellt að vera að vinna að. Það hefur verið erfitt en við höfum verið að taka niður skuldirnar. Það hefur verið okkur þungt en er bara á góðri leið. Andstæðingar flokksins notuðu tækifærið og tóku undir þessi orð Gunnars. Þannig varð til svolítið sérstök stemmning sem birtist einnig í áhlaupi á flokkinn í þessu prófkjöri. Það mátti sjá á samfélagsmiðlum og víðar. En það tókst ekki að berja niður bæjarstjórann sem þeir vildu.“ Hefurðu fundið fyrir vaxandi óánægju Gunnars í ykkar samstarfi í meirihlutanum? „Okkur hefur aldrei orðið sundurorða og þetta kom mér á óvart. Ég legg mikla áherslu á að við vinnum saman, að hópurinn vinni með hugmyndir saman. Það er auðvitað ekkert sem segir að aðrir megi ekki hafa þá skoðun eða aðrar hugmyndir, t.d. að vilja ópólitískan bæjarstjóra. Það þarf þá að rökstyðja málið. Við förum þá yfir málin og ræðum.“ Árni segist aðspurður hafa hugleitt það alvarlega að nú væri komin tími til að hætta eftir tólf ár sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ. En vegna
hvatningar og löngunar til að ljúka málum hafi hann ákveðið að láta slag standa og bjóða sig í eitt kjörtímabil í viðbót. „Það er ekkert launungarmál að þetta er oft búið að vera mjög erfitt en nú er uppskeran er að koma í ljós og nú þarf að færa kornið í hlöðurnar. Ég sé að þessi verkefni eru að klárast. Það er mjög spennandi að vera með í því og óneitanlega er ég með þekkingu til þess.“ Hvernig finnst þér hafa tekist til með röðun á lista ykkar? „Þetta er auðvitað allt úrvalsfólk en þetta er góð niðurstaða og margir á listanum eru með reynslu og mikla þekkingu á málefnum bæjarins og allir vilja vinna öllum árum að því, að gera sitt besta fyrir Reykjanesbæ. Það er markmið allra.“ Það er spennandi að sjá hvað gerist í framboðsmálum annarra flokka. Við buðum eftir síðustu kosningar upp á samstarf við aðra flokka í ýmsum málum. Það var ekki þegið þá en vonandi gæti það orðið núna.“
Prófkjör - niðurstaða: 1. Árni Sigfússon 2. Böðvar Jónsson 3. Magnea Guðmundsdóttir 4. Baldur Guðmundsson 5. Gunnar Þórarinsson 6. Björk Þorsteinsdóttir 7. Einar Magnússon. Í næstu sætum voru samkvæmt heimildum VF Jóhann Sigurðbergsson, Guðmundur Pétursson, Ísak Kristinsson, Una Sigurðardóttir, Alexander Ragnarsson og Birgitta Jónsdóttir.
Markhönnun ehf
Kræsingar & kostakjör
lambafIllE ferskt kílÓVERð Áður 4.595
gRíSamíNúTUSTEIk ferskt kílÓVERð Áður 2.198
3.998,-
kJúklINgaVæNgIR hvitlauksMarineraðir kílÓVERð Áður 698
349,ORgaNIc PIzzUR Mozzarella/salaMi VERð PER PIzza Áður 579
TÓSamR aTEgTUaNDRIR
-32%
ým
3AF0SLÁ% TTUR
1.495,-
-50%
lambalæRI íslandskryddað kílÓVERð Áður 1.794
1.399,-
Margarita VERð PER PIzza Áður 498
498,- 398,-
-25% aqUafRESh tannbursti og tannkreM PakkaVERð Áður 499
399,-
-20%
cO-OPERaTIVE Morgunverðarkökur PakkaVERð Áður 359
269,-
-100kR
OcEaN SPRay trönuberjasafi 1 l líTRaVERð Áður 399
299,Gildistími 6. - 9. mars 2014 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
4
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Suðupottur menningar í Grindavík – í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Runólfur og Ragnheiður Elín við undirritun samningsins. Mynd: Hilmar Bragi.
n Samningur við utanríkisráðuneytið undirritaður:
Efla söguferðaþjónustu á Íslandi R
ögnvaldur Guðmundsson, formaður Samtaka um söguferðaþjónustu (SSF), og Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra ferðamála skrifuðu sl. föstudag undir saming um eflingu söguferðaþjónustu á Íslandi. Ráðuneytið mun styrkja samtökin til þess að vinna að því um 3 milljónir króna á þessu ári og verður árangur metinn í árslok. Undirritunin var liður í dagskrá félagsfundar og málþings Samtaka um söguferðaþjónustu, sem fram fór í Reykjanesbæ um síðastliðna helgi. Samstarfsvettvangur ólíkra aðila Meginmarkmið samstarfsins er að vinna að frekari uppbyggingu og þróun söguferðaþjónustu um land allt þar sem leitast verður við að auka upplifun ferðamanna og afþreyingu sem byggir á menningararfi. Unnið verður að stækkun og eflingu samtakanna, m.a. til að treysta samstarfsvettvang ólíkra aðila, s.s. safna og setra, sem miðla menningararfi til ferða-
manna og til að tryggja aðkomu söguferðaþjónustu að stefnumörkun og þróunarstarfi í ferðaþjónustu. Stuðlað verður að lengingu opnunartíma í samvinnu við „Ísland allt árið“, aukinni fagmennsku og gerð heildstæðra ferðapakka.“ 90 félagar um allt land Samtök um söguferðaþjónustu (www.sagatrail.is) voru stofnuð árið 2006 af 18 aðilum í söguferðaþjónustu og hafa hingað til einbeitt sér að tímabilinu frá landnámi til siðaskiptanna um 1550. Því hafa Víkingaheimar verið með frá byrjun. Nú eru félagar orðnir yfir 90 um allt land. Nýverið var ákveðið að stækka samtökin þannig að allir sem eru að vinna með sögu svæða eða staða geta orðið aðilar, óháð þeim tíma sem unnið er með. Þannig munu t.d. Duushús og Hljómahöllin nú koma inn í samtökin auk víkingahópsins Völundar í Reykjanesbæ. Þá hefur Byggðasafn Garðskaga nú einnig gengið í Samtök um söguferðaþjónustu.
Deiliskipulag Tillögur að breytingum á deiliskipulagi, Sveitarfélaginu Vogum. Með vísan til ákvæða 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga þann 26. febrúar 2014 samþykkt að auglýsa eftirfarandi tillögur að breytingum á deiliskipulagi í Sveitarfélaginu Vogum. Íþróttasvæði, tjaldsvæði og Aragerði Breytingin afmarkast við reit sem er norðan Hafnargötu, austan Marar- og Mýrargötu og vestan Vatnsleysustrandarvegar. Breytingin felst í að: Norðan og vestan megin við fótboltavöll eru settir inn byggingarreitir fyrir áhorfendastúkur án skyggnis eða þaks. Heimilt er að byggja allt að 2,0 m háan skjólvegg ofan á manartoppi aftan við stúkurnar. Hámarksstærðir að norðanverðu: 50 x 9.2 m eða 460 m² að vestanverðu: 50 x 8.3 m eða 415 m². Lóð nr. 19 er færð um 3 m til suðurs til samræmis við lóðarblað. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð, breytingardags. 10.02.2014 og vísast til hennar um nánari upplýsingar. Vogar – Iðndalur. Breytingin afmarkast af reit sem afmarkast af lóðinni við Iðndal 2. Breytingin felst í að innan lóðar Iðndals 2 er tekin út 45 m² lóð fyrir dreifistöð rafveitu, sem er til staðar og hefur ekki verið mörkuð sérstök lóð fram að þessu, og minnkar lóð fyrir Iðndal 2 sem því nemur. Markaður er 30m² byggingarreitur á lóðinni fyrir dreifistöð og sett fram kennisnið, sem heimila nýja dreifistöð, allt að 2,5 m x 3,5 m að grunnfleti og 2,3 m háa, komi til endurnýjunar. Einnig er sett inn kvöð um legu lagna og aðkomu að dreifistöð ásamt göngustíg fyrir almenning. Tillagan er sett fram á uppdrætti og í greinargerð, breytingardags. 11.02.2014 og vísast til hennar um nánari upplýsingar. Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með mánudeginum 3. mars nk. til og með mánudagsins 14. apríl 2014. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingatillögurnar. Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eigi síðar en mánudaginn 14. apríl 2014. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við breytingartillögurnar innan tilskilins frests telst samþykkur þeim. Vogum, 3. mars 2014. F.h. bæjarstjórnar, Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
M
enningar vika Grindavíkur verður dagana 14.23. mars nk. Hún er nú haldin í sjötta sinn og er sérlega glæsileg í ár í tilefni 40 ára kaupstaðarafmælis Grindavíkurbæjar. „Það er frábær stemmning fyrir Menningarvikunni okkar í ár og tilkynningum um viðburði hefur rignt inn. Hér verður suðupottur menningar með tónleikaveislu, ljósmynda- og myndlistasýningum, námskeiðum, skipulögðum gönguferðum og ýmsu fleiru. Hápunkturinn eru svo stórtónleikar í íþróttahúsinu laugardaginn 22. mars þar sem Jónas Sig, Fjallabræður og Lúðrasveitir Vestmannaeyja og Þorlákshafnar stíga á stokk,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar. Á meðal gesta í Menningarvikunni verður tónlistarfólk frá Pite, vinabæ Grindavíkurbæjar í Svíþjóð. Jafnframt verða færeyskir gestir og margt af fremsta tónlistarfólki landsins kemur í heimsókn eins og Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson. Grindvískt
listafólk verður í öndvegi. Þar má nefna glæsilegar ljósmyndasýningar og málverkasýningar, sérstakt Grindavíkurkvöld með grindvísku listafólki og hljómsveitarkvöld með grindvískum hljómsveitum. „Vi ð s e t n i ng u me n n i ng arvikunnar verður í fyrsta skipti útnefndur Bæjarlistamaður Grindavíkur. Eftir setninguna er gestum boðið í safnaðarheimilið í FJÖLMENNINGARLEGT VEISLUHLAÐBORÐ. Grindvískir íbúar frá Filippseyjum, Tælandi, Póllandi og fyrrum Júgóslavíu kynna og bjóða upp á rétti frá sínum heimalöndum,“ segir Þorsteinn. Auk þessa verður námskeið í sushi, saltfiskuppskriftarkeppni, stórmeistari í skák verður með fjöltefli, málþing um ábyrga nýtingu auðlinda, námskeið í menningarlæsi, sýning á traktors- og bílasafni Hermanns Th. Ólafssonar í Stakkavík, svo eitthvað sé nefnt. Dagskráin birtist í heild sinni á heimasíðu bæjarins. www.grindavik.is, á morgun.
Aðalfundur Aðalfundur Rauða krossins á Suðurnesjum verður haldinn miðvikudaginn 12. mars 2014 kl. 20:00 að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ. Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf Kaffiveitingar Önnur mál
Hvetjum alla Rauða kross félaga til að mæta og taka þátt í starfi deildarinnar.
Rauði kross Íslands á Suðurnesjum
FYRIRLESTUR Í TILEFNI MOTTU- MARS Fyrirlestur á vegum Krabbameinsfélags Suðurnesja á Flughóteli fimmtudaginn 6. mars. kl. 19:30 Að loknum almennum fundarstörfum hjá Rótarýklubbi Keflavíkur er almenningi boðið að koma á fyrirlestur í tilefni Mottumars. Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Íslands og klínískur prófessor við Læknadeild HÍ mun flytja fyrirlestur sem hún nefnir
„Getum við komið í veg fyrir krabbamein?“ Allir eru velkomnir
OKKAR SJÚKDÓMATRYGGING XL
Sjúkdómatrygging sem hægt er að endurvekja
NÝJUNG Á ÍSLANDI
OKKAR Sjúkdómatrygging XL er nýjung hér á landi. Trygginguna er hægt að endurvekja eftir að bætur hafa verið greiddar úr henni og þannig geta viðskiptavinir OKKAR tryggt sig aftur gegn sjúkdómum sem kunna að knýja dyra síðar meir.
Fimm bótaflokkar Tryggingunni er skipt upp í fimm bótaflokka eftir eðli sjúkdóma. Sé sótt um nýja tryggingu eftir greiðslu bóta er sá flokkur undanskilinn sem bætur hafa verið greiddar úr. Þannig er aðeins hægt að fá bætur einu sinni úr hverjum flokki. Karlar og konur greiða sama iðgjald af Sjúkdómatryggingu XL, séu þau jafn gömul. Kynntu þér málið á www.okkar.is eða hringdu í síma 540 1400.
OKKAR líftryggingar – með þér alla ævi
www.okkar.is
- til öryggis síðan 1966
6
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-ritstjórnarbréf
Mynd/Texti: Olga Björt Þórðardóttir // olgabjort@vf.is
Olga Björt Þórðardóttir skrifar
Einlæg og smitandi gleði á öskudegi Öskudagur hefur verið verið fastur þáttur í tilveru Íslendinga um langa tíð. Nafnið öskudagur kemur fyrir í íslenskum handritum frá 14. öld og leiða má líkum að því að það sé enn eldra. Kynslóðir muna eftir þessum degi á misjafnan hátt og venjur breytast. Sú séríslenska hefð að hengja öskupoka á fólk tíðkast minna en áður, en margir minnast þeirra tíma með ánægju því hluti af stemningunni við undirbúning var einmitt samveran sem fólst í því að sauma pokana og setja eitthvað leyndardómsfullt í þá. Síðan voru þeir hengdir á yfirhafnir fólks á götum úti og margir höfðu ekki hugmynd um einn eða fleiri poka á baki sínu fyrr en þeir fóru úr flíkunum. Þróunin síðustu áratugi hefur verið meira á þá leið að börn klæðast búningum uppáhalds hetjanna sinna og eru þeir ýmist heimagerðir, leigðir eða keyptir í verslunum. Ímyndunaraflinu og hugmyndafluginu er gefinn laus taumur og ákveðinn spenningur felst í því að fylgjast með útkomunni hjá öðrum og frumsýna eigin búning. Vinnustaðir hafa einnig tekið þetta upp og fullorðið fólk gleymir sér í gleðinni og dregur fram barnið í sér; syngur jafnvel og dansar í vinnunni. Þetta brýtur upp hversdagsleikann á afar jákvæðan hátt. Þrátt fyrir hlýindi og hálfgerða vortíð undanfarið snjóaði og fraus í nótt en börnin létu slíkt ekki stöðva sig. Þau gengu á milli fyrirtækja og stofnana í slyddu og snjókomu til þess að syngja og sníkja sætindi. Einlæg gleði þeirra smitast yfir til eldri kynslóða og þau setja litríkan og skemmtilegan svip á bæjarlífið - og nýjar venjur verða til.
#vikurfrettir
n Bæjarstjórinn í Sandgerði kann vel við sig þar:
„Birtan hérna er geggjuð“ „Við erum núna komin fyrir vind og búin að vinna þannig úr málum og fara í gegnum reksturinn að hann er að gera sig ágætlega. Við erum skuldsett en við ráðum vel við það sem við erum að gera,“ segir Sigrún Árnadóttir, sem hefur verið bæjarstjóri Sandgerðisbæjar síðan sumarið 2010. Samningur hennar rennur út þetta kjörtímabil og framundan er óvissutími hjá henni. Hún segist vera tilbúin að sinna starfinu áfram verði sú staða uppi. „Þetta er mjög skemmtilegt og fjölbreytt starf.“ Erfiðar ákvarðanir en góð samstaða Sigrún segir að þegar hún tók við starfi bæjarstjóra hafi staða sveitarfélagsins verið mjög erfið. „Nýrrar bæjarstjórnar beið erfitt verkefni sem var allsherjarskoðun á öllum rekstri og skuldum bæjarins. Þetta er búið að vera mikil vinna en við höfum náð góðum tökum á flestu í rekstrinum. Einnig hefur samstaða verið góð og engin óeining, þrátt fyrir óvinsælar ákvarðanir eins og gjaldskrárhækkanir og viðbótarálag á fasteignagjöldin. Viðbótarálagið féll niður um áramótin,“ segir Sigrún.
og gott er að ala upp börn hér í fjölskylduvænu umhverfi, með gott skólakerfi; vel haldið utan um börnin.“ Núna sé verið að leggja lokahönd á skólastefnu sem margir hafi komið að. „Svo er það líka þessi áhersla á eldri borgarana og lýðheilsu almennt,“ segir Sigrún. Er líka úr sjávarbæ Eins og með alla bæjarstjóra sem ráðnir eru tímabundið var ýmislegt sem Sigrún varð að setja sig inn í. Sjálf er hún úr sjávarbæ, Eskifirði, og fannst því auðveldara að setja sig inn í margt í Sandgerði. Þó hafi ekki margt komið á óvart. „Kannski helst birtan, sem mér finnst geggjuð. Er alveg heilluð af henni. Öll þessi víðátta á Suðurnesjum sem veldur því. Hún er síbreytileg á hverjum degi og ekkert sem skyggir á. Ég hef lagt mig fram við að horfa í kringum mig og njóta.“
Ég hef lagt mig fram við að horfa í kringum mig og njóta
Ekkert bitnað á grunnþjónustu Sandgerðisbær hefur undanfarin ár haft mjög lítið fjármagn í nýjar framkvæmdir en Sigrún segir að í ár séu til ráðstöfunar um 30 milljónir sem muni meðal annars fara í nauðsynlegar fráveituframkvæmdir. „Þetta er allt á réttri leið. Fjárhagslegir erfiðleikar hafa ekki bitnað á grunnþjónustunni. Hér er veitt góð þjónusta
Flugvöllurinn stærsti vinnustaðurinn Annars segir Sigrún mjög opið samfélag vera í Sandgerði og auðvelt fyrir fólk að nálgast hvert annað. Engar hindranir sem komi í veg fyrir það. „Hér er gott að vinna með fólki og það er í eðli sínu bjartsýnt. Flugstöðin er stærsta fyrirtækið í bænum og um 100 Sandgerðingar starfa á flugvallarsvæðinu. Á þriðja hundrað manns starfa svo við sjávarútveg. Bærinn er einnig stór vinnuveitandi. Hér er ungt samfélag og mikið af fjölskyldufólki. Það er góður grunnur fyrir gott samfélag,“ segir Sigrún að lokum.
Sjónvarp Víkurfrétta Þín auglýsing í þættinum? Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta? Þátturinn er sýndur á ÍNN á fimmtudagskvöldum kl. 21:30 og endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring. Þátturinn er einnig í HD á vef Víkurfrétta. Auglýsingasíminn er 421 0001 eða póstur á fusi@vf.is.
Keflavík #vikurfrettir // Mynd: geinars vf.is
SÍMI 421 0000
Meðal efnis í kvöld ■ Taekwondo í Reykjanesbæ ■ Nettómótið í körfubolta ■ Lífið við Sandgerðishöfn ■ Miðtúnsróló í útikennslu ■ Matargleði í Bláa lóninu ■ Öskudagurinn í Reykjanesbæ
Þátturinn er á dagskrá í kvöld kl. 21:30 á ÍNN og vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Þórgunnur Sigurjónsdóttir, thorgunnur@vf.is Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Markhönnun ehf
Kræsingar & kostakjör
UNITED SJÓNVÖRP FRÁBÆR KYNNINGARVERÐ!
UNITED LED32X16 • Einfalt og gott 32“ sjónvarp • 1366x768 punkta upplausn • Progressive Scan • Stafrænn móttakari DVB-T+C • USB margmiðlunartengi sem styður DivX, MKV, MP3 og JPEG • 3 x HDMI, Scart, CI kortarauf, S-video, Coax, PC, heyrnartóls- og RCA tengi
UNITED LED39X16T2 • Einfalt og gott 39“ sjónvarp • Háskerpu 1920x1080 punkta FHD upplausn • Progressive Scan • Stafrænn DVB-T2+C móttakari • USB margmiðlunartengi sem styður DivX, MKV, MP3 og JPEG • 3 x HDMI, Scart, CI kortarauf, S-video, Coax, PC, heyrnartóls- og RCA tengi
KYNNINGARTILBOÐ
KYNNINGARTILBOÐ
49.990
79.990
FULLT VERÐ 59.990
FULLT VERÐ 89.990
Tilboðið gildir aðeins í Nettó Reykjanesbæ Gildistími 6. - 9. mars 2014 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
8
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent
pósturu vf@vf.is
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Forstjóri HSS klökkur yfir hlýhug FS-inga - Söfnuðu rúmum 400 þúsund krónum fyrir stofnunina
S
érstök styrktarsýning fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, var haldin á söngleiknum Dirty Dancing. Alls söfnuðust 414.000 krónur til styrktar HSS en Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja stóð fyrir sýningunni. Allur aðgangseyrir styrktarsýn-
ingar NFS á Dirty Dancing rann óskiptur til HSS en féð verður notað til tækjakaupa fyrir stofnunina. Halldór Jónsson forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja þakkaði kærlega fyrir hönd stofnunarinnar og virtist hann vera örlítið klökkur yfir hlýhug FS-inga.
Framboðslisti Framsóknarflokksins kynntur
T
illaga uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjanesbæ 31. maí 2014 var kynnt fyrir helgi. Listinn er á þessa leið: 1. Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi og viðskiptafræðingur 2. Halldóra Hreinsdóttir, viðskiptafræðingur 3. Halldór Ármannsson, skipstjóri og formaður Landssambands smábátaeigenda 4. Bjarney Rut Jensdóttir, lögfræðingur 5. Guðmundur Gunnarsson, íþróttakennari og stuðningsfulltrúi 6. Kolbrún Marelsdóttir, þroskaþjálfi og framhaldsskólakennari 7. Baldvin Gunnarsson, framkvæmdastjóri 8. Magnea Lynn Fisher, sálfræðinemi
n Guðný Kristjánsdóttir skrifar:
9. Einar Friðrik Brynjarsson, umhverfisiðnfræðingur og skrúðgarðyrkjumeistari
Dirty Dancing
10. Þóra Lilja Ragnarsdóttir, háskólanemi
– Sýning sem nær til allra
F
östudagskvöldið 21. febrúar skellti ég mér ásamt dætrum mínum á sýningu Nemendafélags Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Dirty dancing í Andrews. Þessi sýning var sérstök að því leyti að aðgangseyrir rann óskertur til tækjakaupa á HSS og söfnuðust 414.000 krónur sem er frábært. Ég tek ofan fyrir nemendafélaginu að ráðast í slíka uppfærslu og vil byrja á að óska þeim til hamingju með framtakið sem að sýningunni stóðu. Það þarf kjark og þor til þess að fara af stað með svo veigamikið verk sem Dirty Dancing er og að mörgu ber að huga. Handritið er einfalt og greinilegt að leikstjórinn hefur stytt það töluvert sem kom þó ekki að sök. Leikarahópurinn stóð sig með mikilli prýði en þar ber af að öðrum ólöstuðum aðalleikarinn Arnar Már Eyfells sem fer með hlutverk Johnny. Arnar bæði leikur vel, syngur sitt lag af mikilli innlifun auk þess að sýna snilldartakta í dansi. Auk Arnars má ég til með að nefna Sölva Elísabetuson sem leikur Njál en hann túlkar sitt hlutverk frábærlega og hótelstýran Katalína er vel leikin af Guðrúnu Elvu Níelsdóttur. Silvía Rut Káradóttir var sannfærandi í sínu hlutverki sem Penny og dans hennar frábær. Eins og nafn verksins gefur til kynna þá er mikið um dansa og ber að hrósa danshópnum öllum sem fyllti sýn-
11. Freyr Sverrisson, knattspyrnuþjálfari inguna lífi með frábærum dönsum og flottum búningum. Ásta Bærings á mikið hrós skilið fyrir sína vinnu sem danshöfundur sýningarinnar. Ekki er ætlunin að rekja það sem betur mátti fara að mínu mati því í heildina var sýningin skemmtileg og náði til allra áhorfenda. Ég vil að lokum nota tækifærið og hrósa NFS fyrir að ráðast í svona verkefni og koma þannig til móts við þá fjölmörgu hæfileikaríku nemendur skólans sem hafa áhuga á að leika, syngja, dansa og bara yfirleitt koma fram og standa að leiksýningum. Okkur bæjarbúum ber skylda til að mæta á viðburði sem þessa og styðja þannig við uppbyggingu leiklistarlífs og menningar hér á svæðinu. Við Suðurnesjamenn erum rík af hæfileikafólki sem skilar sér í svona uppfærslum. Hér er öflugt leikfélag starfandi, Leikfélag Keflavíkur, eitt það öflugasta á öllu landinu sem setur árlega á svið tvær stórar sýningar auk þess að taka virkan þátt í hinum ýmsu uppákomum á vegum sveitarfélaganna. Þann 7. mars mun Leikfélag Keflavíkur frumsýna söngleikinn Ávaxtakörfuna eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur og vil ég hvetja alla Suðurnesjamenn til þess að koma á þá sýningu og styðja enn betur við leiklistina hér á svæðinu, það er okkur öllum til heilla.
Ávaxtakarfan frumsýnd á morgun S
öngleikurinn Ávaxtakarfan verður frumsýndur annað kvöld hjá Leikfélagi Keflavíkur. Nú eru 15 ár síðan höfundurinn Kristlaug María eða Kikka eins og hún er oftast nefnd, samdi þetta skemmtilega verk um ávextina í ávaxtakörfunni sem allir ættu að þekkja. Ávaxtakarfan varð til vegna þess að höfundinn langaði að skrifa leikrit um einelti sem átti að sýna líðan þess sem fyrir eineltinu varð. Hugmyndin vatt uppá sig og varð að leikriti um einelti og fordóma og heimur ávaxtanna varð til með leik og tónlist. Þau 15 ár sem Ávaxtakarfan hefur verið til hefur hún verið sett upp um allt land og í hinum ýmsu útgáfum. Það er sérstaklega ánægjulegt að á afmælisári Ávaxtakörfunnar sé hún sett upp hérna í Frumleikhús-
inu í Reykjanesbæ, heimabæ höfundarins. Í sýningunni er ekkert til sparað og lifandi ávextir, lifandi leikur og lifandi tónlist leiða okkur í heim ávaxtanna. Það er hinn landsþekkti leikari og grínari Gunnar Helgason sem leikstýrir að þessu sinni og gerir það snilldarlega. Þá hefur einnig verið fenginn landsfrægur ljósahönnuður, Egill Ingibergsson til að hanna lýsingu og er hann að skila frábæru verki. Það er einlæg ósk okkar sem stöndum að Leikfélagi Keflavíkur að sem flestir suðurnesjamenn sjá sér fært að mæta á sýningu og styðja við það frábæra starf sem félagið er að sinna. Sjáumst í Frumleikhúsinu. Fh. Leikfélags Keflavíkur, Guðný Kristjánsdóttir.
12. Jóhanna María Kristinsdóttir, söngnemi 13. Eyþór Þórarinsson, búfræðingur og slökkviliðsog sjúkraflutningamaður 14. Magnea Herborg Björnsdóttir, leikskólakennari og frístundabóndi 15. Jón Halldór Sigurðsson, lögreglufulltrúi 16. Ólafía Guðrún Lóa Bragadóttir, sjúkraliði og snyrtifræðingur 17. Birkir Freyr Guðbjörnsson, framhaldsskólanemi 18. Kristrún Jónsdóttir, verkakona 19. Ingvi Þór Hákonarson, slökkviliðsmaður 20. Oddný J B Mattadóttir, leiðsögumaður 21. Hilmar Pétursson, fv. bæjarfulltrúi 22. Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður og varabæjarfulltrúi
Guðný Kristjánsdóttir.
FUNDARBOÐ Aðalfundur Grindavíkurdeildar KSK verður á fimmtudaginn 6. mars kl. 17:00 í Sjómannastofunni Vör.
SÝNT ER Í FRUMLEIKHÚSINU VESTURBRAUT 17
Krossmóa 4 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 421 5409
www.lk.is
www.kia.com
7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum.
Sjö manna Carens H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 3 - 1 2 0 2
Komdu og mátaðu hann við fjölskylduna
7 manna
Kia bílarnir hafa slegið í gegn á Íslandi eins og annars staðar. Kia Carens er rúmgóður, sparneytinn og öruggur sjö manna fjölskyldubíll með framúrskarandi aksturseiginleika, hannaður til að veita þér meira frelsi til að njóta stundanna með þínum nánustu. Komdu í Öskju og kynntu þér Carens og stórfjölskylduna frá Kia. Við tökum vel á móti þér.
Kaupauki með Carens: Tveir iPad og heilsársdekk Nú fylgja heilsársdekk og tvær 16 GB iPad spjaldtölvur með höfuðpúðafestingum hverjum nýjum Kia Carens. Gildir til 1. apríl 2014.
Carens 1,7 dísil, beinskiptur 6 gíra
Verð frá 4.890.777 kr. Aðeins 49.900 kr. á mánuði í 84 mánuði*
*M.v. 1.980.000 kr. útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílasamning ERGO í 84 mánuði. 9,7% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar 11,69%. Nánari upplýsingar á ergo.is.
Holtsgötu 52 · Reykjanesbær · Sími 420 5000 · ksteinarsson.is
Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
10
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
Húsmæðraorlof Gullbringuog Kjósarsýslu 2014 uEins og undanfarin ár gefst konum kostur á að sækja um ferðir á vegum Orlofsnefndar Gullbringu- og Kjósarsýslu, en þessar ferðir njóta ávallt mikilla vinsælda, enda vel að þeim staðið. Í ár verða 3 ferðir í boði og verður fyrsta ferðin í byrjun júní til Ítalíu, þar sem farið verður til Toskana, Pisa og Flórens. Í september verður boðið upp á ferð til Bodensee í Þýskalandi og Lichtenstein og í desember verður farin aðventuferð til Innsbruck í Austurríki. Rétt til að sækja um ferðirnar hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Ferðirnar verða auglýstar nánar á næstunni.
-viðtal
pósturu olgabjort@vf.is
„Minn hluti byrjar þegar þau uppgötva að það er eitthvað að og allt fer í bál og brand og Sandra Bullock kastast út í geim og endar svo þegar George Clooney finnur hana aftur“
Bjarni, lengst til vinstri, ásamt systkinum sínum Bryndísi Ósk og Brynjari Atla.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Steinunn Þórleifsdóttir, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, frá Efri-Hólum, Núpasveit, lést í faðmi fjölskyldu sinnar að morgni sunnudagsins 2. mars á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 11. mars kl. 13:00.
Hulda Bjarnadóttir, Guðjón Þórhallsson, Lárus B Þórhallsson, Magnea Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Jóhann Geirdal, Guðveig Sigurðardóttir, Hrönn Gestsdóttir,
Hefur þú brennandi áhuga á matargerð? Skólamatur auglýsir eftir umsóknum í stöðu starfsmanns í framleiðslueldhúsi, Reykjanesbæ.
Helstu hæfniskröfur: Áhugi og þekking á matargerð Skiplagshæfni og sveigjanleiki Hæfni í mannlegum samskiptum Grunn tölvuþekking Kostur er að hafa menntun sem nýtist í starfi Vinnutími er frá kl.7-15 alla virka daga (100%)
Umsóknir berist fyrir 14.mars á fanny@skolamatur.is
Sími 420 2500
www.skolamatur.is
Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær Hollt, gott og heimilislegt
ATVINNA Þjónn óskast í fullt starf
Óska eftir þjóni í fullt starf á veitingastað í Keflavík. Framtíðarstarf. Umsókn með mynd og ferilskrá sendist á nordic@visir.is
n Var í teymi sem gerði myndbrellur í myndinni The Gravity:
Langar að taka sjálfur við Óskarnum B
jarni Róbert Bragason er Njarðvíkingur og bjó í Reykjanesbæ þar til hann flutti til London í lok ársins 2009. Hann starfar sem myndbrellumeistari (e. compositor) og segir í viðtali við Víkurfréttir frá starfi sínu, reynslu og Óskarsverðlaunum sem hann á hlut í fyrir myndina The Gravity. Lærði grunninn hjá Latabæ „Besta leiðin til að lýsa starfinu mínu er að ég sé til þess að leikarar, sem teknir eru upp í myndveri með ekkert annað en grænt tjald í bakgrunni, virðast hafa verið teknir upp t.d. í öðrum heimi eða öðru landslagi. Einnig búa myndbrellumeistarar til galdra og aðrar brellur, láta Súperman fljúga og annað sem er í eðli sínu ekki hægt að taka upp,“ segir Bjarni. Spurður um hvenær áhugi hans á myndbrellum kviknaði segist Bjarni muna eftir að hafa séð kvikmyndina Dragonheart, frá árinu 1996, þar sem Sean Connery talaði fyrir tölvuteiknaðan dreka. „Flestir duttu í að fá áhuga á svona eftir að hafa seð Jurassic Park eða Terminator 2 en ég hreifst af því hvað það væri hægt að blása miklu lífi og tilfinningu í eitthvað sem er ekki til.“ Boltinn fór að rúlla eftir að Bjarni hafði leikið sér að því að gera þrívíddarmódel og annað í frístundum heima samhliða framhaldsskólanámi. Nítján ára, fyrir 10 árum síðan, hætti hann svo í framhaldsskóla því kunnátta hans kom honum inn um dyrnar hjá Latabæ þegar þar vantaði mannskap í myndbrelludeildinni. „Þeir kenndu mér grunninn að því sem ég geri í dag,“ segir Bjarni.
Ævintýrið í kringum The Gravity Besta við starfið segir Bjarni vera að geta starfað við áhugamál sitt og fengið laun fyrir. „Almennt er mjög skemmtilegt fólk í þessum bransa og það er mjög gaman og verðugt að sjá nafnið sitt í stórmyndunum.
Vinnutíminn er hins vegar mjög langur starfsöryggi oft lítið þannig að þetta á best við fólk sem getur fært sig á milli landa eins og ekkert sé.“ Eftir að Latibær hætti framleiðslu á þáttunum um 2008 komst Bjarni í samband við Daða Einarsson, sem einnig vann að myndinni The Gravity. „Daði hafði þá stofnað útibú Framestores á íslandi (sem kallast RVX í dag) og ég byrjaði að vinna með honum í Reyjavík. Seinna fór ég út til Framestore í London að vinna við Clash of the Titans og eftir nokkrar myndir fór ég inn í teymið sem gerði The Gravity,“ segir Bjarni. Atriði með Söndu Bullock og George Clooney Hann var það sem kallað er „2d sequence Lead“ og sá þá um 5-6 manna teymi sem hélt utan um samsetningu myndbrellna úr hluta af byrjun myndarinnar. Í fyrirtækinu í kringum myndina störfuðu um 400 manns og vinnsla Bjarna hluta af myndinni tók eitt ár, svo að hann eignaðist fjölda vina. „Stór hópur fólks kemur að gerð sömu hluta myndarinnar en hlutinn sem ég var með var um 6 mínútur af myndinni.“ Hann segir tökurnar aðeins hafa verið tvær og því gríðarlega erfitt en spennandi verkefni. Þetta hefði aldrei verið gert áður og þess vegna hefði verið gaman að vera hluti af þessu. „Minn hluti byrjar þegar þau uppgötva að það er eitthvað að og allt
Bjarni, ásamt foreldrum sínum, Önnu Jamison og Braga Sigurðssyni og systkinum.
fer í bál og brand og Sandra Bullock kastast út í geim og endar svo þegar George Clooney finnur hana aftur.“ Bjarni segir vinnsluna hafa verið allt frá því að setja saman margar tökur af Söndru og blanda saman svo úr verði ein löng taka án þess að áhorfandinn taki eftir því, setja andardráttinn á glerið, allar rispur, setja inn sólina og hanna útlit hennar, litaleiðréttingar og fleira. „Okkar verk er að láta þetta líta út fyrir að hafa verið tekið upp í tökuvel með allar sína galla frekar en þetta fullkomna þrívíddarútlit,“ segir Bjarni. Óskarsverðlaun eins og Ólympíugull Spurður um hvernig tilfinningin hafi verið að vera hluti að teymi sem vinnur Óskarsverðlaun, segir Bjarni: „Það náttúrulega bara það stærsta sem getur komið fyrir. Það eru engin meiri viðurkenning en þetta fyrir starfið sitt. Þetta er í raun bara Ólympíugullið okkar.“ Bjarni situr ekki auðum höndum og mikið er í pípunum. „Ég var að klára Edge of Tomorrow með Tom Cruise og er núna byrjaður í Guardians of the Galaxy sem ég verð upptekinn af í sumar. Ég er fastráðinn hjá Framestore svo að í augnablikinu þá held ég bara áfram hjá þeim í London. Stærsti draumurinn er að fá að gera persónulegt stórmyndarverkefni eða taka við Óskarnum sjálfur einn daginn,“ segir Bjarni spenntur að lokum.
11
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. mars 2014
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Starfsmenn dvalarheimila kvaddir F
orráðamenn dvalarheimilanna Garðvangs og Hlévangs buðu starfsfólki þeirra í samsæti í tilefni þess að starfsemi heimilanna fór undir hatt Hrafnistu frá 1. mars sl. Þeir Finnbogi Björnsson, forstöðumaður og Böðvar Jónsson, forstjórnar Dvalarheimila aldraðra á Suður-
nesjum þökkuðu starfsfólkinu fyrir þeirra störf og óskuðu þeim velfarnaðar á nýjum vinnustað. Finnbogi hefur verið við stjórn hjá dvalarheimilunum í 37 ár eða frá byrjun en starfsemin hófst 1976. Meðfylgjandi myndir voru teknar í hófinu sem fór fram í KK-salnum í Keflavík.
Lögbanni Garðmanna vegna Garðvangs hafnað – Hjúkrunarheimilið að Nesvöllum verður opnað 14. mars nk.
B
eiðni Sveitarfélagsins Garðs til Sýslumannsins í Keflavík um að lagt verði lögbann við því að DS flytji hjúkrunarrými hjá hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði að hjúkrunarheimilinu Nesvöllum í Reykjanesbæ var hafnað. Sýslumaður tilkynnti þessa niðurstöðu í síðustu viku. Með þessu er ljóst að ákvörðun meirihluta stjórnar DS stendur, um að halda áfram starfsemi á Hlévangi en um leið að lögð verði niður starfsemi á Garðvangi, enda hefur DS ekki rekstrarheimildir frá ríkinu til þess að reka áfram bæði heimilin, eftir að Nesvellir taka til starfa.
„Það er afar gott að fá niðurstöðu í þessu máli. Þó svo að undirbúningi flutninga af Garðvangi og yfir á Nesvelli hafi verið haldið áfram á meðan á málarekstrinum stóð þá leiðir svona mál alltaf til þess að hlutir dragast eða ganga hægar en annars væri. Það hefur farið mikill kraftur, tími og orka í málareksturinn og gagnaöflun í kringum hann sem annars hefði nýst að fullu í að undirbúa það sem skiptir mestu máli, þ.e. flutningar fólksins yfir í ný og glæsileg húsakynni á Nesvöllum,“ sagði Böðvar Jónsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og stjórnarmaður í DS, Dvalarheimilum aldraðra á Suðurnesjum.
-aðsent
Stefnt er á formlega opnun hjúkrunarheimilisins á Nesvöllum 14. mars nk. og að íbúar muni flytja sömu helgi. Framkvæmdir eru á lokastigi í húsinu. Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs samþykktisamhljóða á fundi sínum í síðustu viku að staðfesta kröfu um að niðurstöðu sýslumanns um lögbannsbeiðni verði vísað til Héraðsdóms Reykjaness. Þá hefur bæjarstjórinn í Garði sent bréf til heilbrigðisráðherra með ósk um að flutningi hjúkrunarrýma frá Garðvangi til Nesvalla verði frestað meðan málið er í dómsmeðferð.
15% * afsmlápatkktniungrum Af öllu
ars
* Gildir í m
pósturu vf@vf.is
n Mikið starf hjá Krabbameinsfélagi Suðurnesja:
Mottumars er mánuður árvekni K
rabbameinsfélag Suðurnesja er eitt af aðildarfélögum Krabbameinsfélags Íslands sem styður og eflir baráttuna gegn krabbameinum með leitarstarfi, rannsóknum, forvörnum og fræðslu. Marsmánuður – Mottumars er mánuður árvekni- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum hjá körlum. Krabbameinsfélag Suðurnesja mun taka virkan þátt í þessu átaki með ýmsu móti. Munir verða boðnir til sölu, s.s. skeggpinnar, armbönd, herðatré o.fl. Allur ágóði af því sem við seljum hér á svæðinu rennur beint til Krabbameinsfélags Suðurnesja. Fimmtudaginn 6. mars verðum við að selja í verslunarmiðstöðinni Krossmóa í Reykjanesbæ eftir kl. 16:00. Milli kl. 16:30 og 17:30 munu tveir ungir tónlistarmenn flytja nokkur létt lög. Fimmtudaginn 13. mars verðum við einnig með sölu í Krossmóa. Kl. 17:00 mun Karlakór Keflavíkur mæta og skemmta okkur með söng og gleði. Fundur hjá Rótarý fimmtudaginn 6. mars. Eftir hefðbundin fundarstörf kl. 19:30 verður fundur opinn almenn-
ingi þar sem Laufey Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Íslands og klínískur prófessor við Læknadeild HÍ flytur erindi sem hún nefnir „Getum við komið í veg fyrir krabbamein?“ Fundurinn er haldinn í fundarsal Flughótels við Hafnargötu. Laugardaginn 8. mars kl. 11:00 verður hittingur á Kaffi knús. Þangað eru allir velkomnir sem greinst hafa
með krabbamein og aðstandendur þeirra. Aðaltilgangur þess að hittast er að eiga notalega stund saman, spjalla um starfsemi félagsins og deila hugmyndum. Einu sinni í mánuði er opið hús á vegum KS og höfum við fengið góða fyrirlesara til liðs við okkur. Næsti fyrirlestur verður þriðjudag-
inn 11. mars. Þá mun Ásdís Ragna Einarsdóttir, grasalæknir BSC, fræða okkur um náttúrulegar leiðir til heilsusamlegrar uppbyggingar. Léttar veitingar í boði í fundarhléi. Þriðjudaginn 1. apríl kl. 19.30 mun Helga Birgisdóttir (Gegga) vera með erindi sem hún kallar „Smiler getur öllu breytt“. Þriðjudaginn 6. maí kl. 19.30 kemur Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi og ræðir um hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem greinast með krabbamein. Allir fundirnir eru haldnir að Smiðjuvöllum 8, Reykjanesbæ og hefjast kl. 19:30. Frá og með fimmtudeginum 6. mars n.k. er þeim sem greinst hafa með krabbamein boðið í fría jógatíma – Jóga með Ágústu í nýjum og flottum húsakynnum Om setursins. Þetta er í boði eigenda Om setursins og Ágústa Hildur Gizurardóttir jógakennari gefur sinn tíma. Tímarnir verða þriðjudaga og fimmtudaga kl 13:00 í Om setrinu við Hafnargötu Einnig bendum við á að stofnaður hefur verið gönguhópur. Gengið er þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00 frá Sundmiðstöðinni í Keflavík.
Sumarstörf Óskum eftir starfsfólki í afgreiðslu í sumar. Viðkomandi þarf að hafa náð 21 árs aldri. Tungumálakunnátta æskileg. Ökuréttindi og hreint sakavottorð skilyrði.
Óskum eftir starfsfólki í bílaþrif í sumar Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Ökuréttindi og hreint sakavottorð skilyrði.
Vinsamlegast sendið umsóknir með ferilskrá til Þórunnar Þorbergsdóttur á netfangið thorunn@bilahotel.is Nánari upplýsingar veittar í síma 421-5566 milli 8:00 og 16:00.
12
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-mannlíf
pósturu vf@eythor.is
Semur raftónlist í frístundum sínum - Vefhönnuðurinn Guðmundur Bjarni er the imminent g
Þ
egar Guðmundur er ekki í vinnu eða að sinna fjölskyldunni er hann the imminent g. Guðmundur Bjarni Sigurðsson annar stofnandi og eigandi vefhönnunarfyrirtækisins Kosmos & Kaos í Reykjanesbæ er ekki við eina fjölina felldur. Guðmundur var á sínum yngri árum lengi vel áberandi í tónlistarlífi Suðurnesja. Hann var m.a. forsprakki í hljómsveitinni Danmodan sem sigraði hljómsveitakeppnina Rokkstokk árið 1997, sælla minninga. Guðmundur hefur alltaf verið virkur að semja og grúska í tónlistinni samhliða vefhönnuninni. Nú er komið nýtt efni frá Guðmundi þar sem hann reynir
RAUNFÆRNIMAT
-
fyrir sér í raftónlistinni með sólóverkefni sem ber nefnið The imminent g. Guðmundur segir að hann hafi verið að vinna að tónlist síðustu 10 árin en vegna anna sé hann loks að koma þessu frá sér fyrst núna. Hann segir að von sé á fleiri lögum en langt sé þó í plötuna. Lögin eru með rafrænu ívafi en oftast spilar hann þó á gítar og syngur líka. Nýja lagið hans Guðmundar má heyra á vf.is en það ber nafnið Land. Þar syngur Guðmundur undir og spilar á gítar á meðan lesið er bréf eftir Indíánahöfðingjann Seattle, sem borgin góða er nefnd eftir.
smáauglýsingar TIL SÖLU
TIL LEIGU Vatnsnesvegur 5 atvinnuhúsnæði til leigu 70m2 atvinnuhúsnæði með innkeyrsludyrum og góðri lofthæð á besta stað í Keflavík. Mjög auðveld aðkoma. Frekari upplýsingar í síma 661 7000. Einbýlishús í Sandgerði. Til leigu 5 herbergja, 190 fm einbýlishús með bílskúr í Sandgerði. Laust 1. maí. Uppl. í síma 823 1154. Einbýlishús Innri-Njarðvík Nýlegt og vandað einbýlishús til leigu; fullbúið að innan sem utan, 204 fm með bílskúr, 4-5 svefnherbergi. Frábært hús hús á góðum stað í nýja hverfinu í Innri-Njarðvík. Gróinn garður. Leiguverð 220.000 kr. á mánuði, laust frá 1. maí eða jafnvel fyrr. Nánari upplýsingar í s: 848 7177.
Hefur þú starfað við húsasmíði í 5 ár eða lengur og vilt ljúka námi í faginu? Þá gæti raunfærnimat verið fyrir þig!
ÓSKAST Leiguskipti Leiguskipti: Reykjanesbær-Hafnarfjörður. Hef 100 fm íbúð í Hf. Leigist frá sumri / hausti í ca 1 ár. Uppl. í 866 2361
Raunfærnimat miðar að því að meta færni og þekkingu sem viðkomandi býr yfir inn í skólakerfið. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast. Inntökuskilyrði í raunfærnimat er 5 ára starfsaldur í greininni og 25 ára lífaldur. Einnig er boðið upp á raunfærnimat í vélvirkjun, rennismíði, stálsmíði, blikksmíði og skrúðgarðyrkju.
-
Á IDAN.IS
Áhugasömum er bent á að hafa samband við IÐUNA fræðslusetur í síma 590 6400 eða með því að senda fyrirspurn á radgjof@idan.is
Skúlatún 2 - 105 Reykjavík idan@idan.is - www.idan.is
Daglegar fréttir á vf.is
DAGSVERK.IS / IDAN0913
Kynningarfundur verður haldinn þriðjuNÁNARI daginn 10. september kl. 17.00 að U P P Skúlatúni 2, 6. hæð, 105 Reykjavík. LÝSINGAR
Rúllugardínur til sölu. Beige rúllugardínur og einnig gráar myrkunargardínur, sem passa fyrir 3ja herbergja íbúð á Súlutjörn. Selst ódýrt. Vinsamlega hafið samband við Soffíu í síma 421 4364.
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
GÆLUDÝR Poodle Vantar poodle rakka helst hvítan, fyrir poodle tík í Reykjanesbæ. Upplýsingar í síma 898 6032 milli 6-8 síðdegis Hundasnyrting. Tek að mér að klippa og snyrta hunda. Löng reynsla. Sjá Hundasnyrting á FB. Uppl. Kristín 897 9002.
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
Þjónustumiðstöðin Nesvöllum Vikan 6. - 12. mars. nk.
Daglegar fréttir á vf.is
• Bingó • Listasmiðja • Handverk • Leikfimi - dans- boltaleikfimi. • Félagsvist • Bridge • Hádegismatur • Síðdegiskaffi Föstudaginn 7 mars nk. á Nesvöllum kl. 14:00. Spilabingó Allir velkomnir Nánari upplýsingar í síma 420 3400 eða á www.nesvellir.is
uppboð
Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 420 2400 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ, sem hér segir: Garðar GK-53 skrnr. 1305, dragnótabátur, þingl. eig. Vestursigling ehf, gerðarbeiðandi Bolungarvíkurkaupstaður, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 08:40. Sýslumaðurinn í Keflavík, 3. mars 2014. Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns. Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 420 2400 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftir-
farandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Beykidalur 2 fnr. 229-8434, Njarðvík 50% eignahl gþ., þingl. eig. Marzena Szewc og Michal Franciszek Sikora, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 10:40. Fitjabraut 1b fnr. 228-9514, Njarðvík, þingl. eig. Fitjar-flutningar ehf, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 10:25. Greniteigur 19 fnr. 208-7776, Keflavík, þingl. eig. Jón Ingi Ingibergsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:25. Greniteigur 38 fnr. 208-7814, Keflavík, þingl. eig. Bergþóra V Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:35. Grímsholt 6, fnr. 228-9621, Garður, þingl. eig. Nesbyggð eignarhaldsfélag ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn í Keflavík, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:55. Hafnargata 65 fnr. 208-8116, Keflavík, þingl. eig. Jón Óskarsson, gerðarbeiðendur HS veitur hf, Íbúðalána-
sjóður og Reykjanesbær, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:05. Heiðargerði 3 fnr. 228-0508, Vogar, þingl. eig. Örvar Már Jónsson, gerðarbeiðandi Heiðargerði 3,húsfélag, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 11:00. Kirkjuvegur 14 fnr. 208-9625, Keflavík, þingl. eig. Alhliða ehf., gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:15. Suðurhóp 10 fnr. 229-0749, Grindavík, þingl. eig. Inga Sigríður Gunndórsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 11:35. Sunnubraut 12 fnr. 209-0834, Keflavík 50% eignahl. gþ., þingl. eig. Sigurður Stefánsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 08:55. Vörðubraut 1 fnr. 230-0178, Garður, þingl. eig. Þb. VH ehf., gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 11. mars 2014 kl. 09:50. Sýslumaðurinn í Keflavík, 6. mars 2014. Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.
13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. mars 2014
-fs-ingur
HEILSUHORNIÐ
Piparmynta – kröftug lækningajurt Piparmynta (mentha piperita) er ein vinsælasta og algengasta lækningajurt sem fyrirfinnst sem er notuð í matargerð eða til lækninga en hún er þykir afar hressandi og frískleg á bragðið. Flestir nota piparmyntu í mat og drekka te af jurtinni en nú til dags eru til margar rannsóknir sem styðja virkni piparmyntu og hefur það færst í aukana að nota hana til lækninga gegn ýmsum einkennum og kvillum. Piparmynta er einstaklega áhrifarík gegn meltingafærakvillum eins og iðrakveisu eða magamígreni eins og það er oft kallað (irritable bowel syndrome), en hún hefur sterka krampastillandi virkni á kviðverki og ristilkrampa. Í þessu tilfelli er gjarnan notuð ÁSDÍS piparmyntuolíu hylki til að ná sem mestum GRASALÆKNIR áhrifum. Piparmyntute er gott gegn meltingarSKRIFAR truflunum og uppþembu og er einnig gagnlegt gegn magakveisu í ungabörnum. Eins getur piparmynta slegið á ógleðiseinkenni, haft mild verkjastillandi áhrif á höfuðverk, dregið úr frjókornaofnæmi og slímmyndun í öndunarfærum og dregið úr andremmu. Piparmynta er oft notuð útvortis í krem og smyrsl á vöðva og liði þar sem hún hefur vöðvaslakandi og mild verkjastillandi áhrif. Til þess að njóta heilsueflandi áhrifa piparmyntu er sniðugt að nota hana sem hluta af mataræðinu og drekka reglulega myntute, nota ferska piparmyntu í boosta og eftirrétti eða út í sósur og mat. Frábær lækningajurt til að bragðbæta matinn okkar og sem skyndilausn til að slá á maga- og höfuðverk. Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir. www.facebook.com/grasalaeknir.is www.pinterest.com/grasalaeknir
vikunnar
pósturu eythor@vf.is
Myndi leyfa böll á föstudögum Elva Dögg Sigurðardóttir er FS-ingur vikunnar að þessu sinni. Hún er 19 ára Keflvíkingur sem gegnir stöðu formanns Nemendafélags skólans. Í sumar ætlar Elva að vinna á Spáni og eftir úrskrift er stefnan tekin á Afríku, annað er óráðið varðandi framtíðina. skólanum og gefa nemendafélaginu eina kennslustofu sem skrifstofu.
Helsti kostur FS? Breiða brosið hennar Hebu á morgnanna. Hjúskaparstaða? Er í allsherjar leit.. Hvað hræðistu mest? Að vera grafin lifandi er minn allra versti ótti! Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Húff, það er aragrúa hæfileikafólks í FS, fyrstur uppí hugann er Sigurður Smári. Hver er fyndnastur í skólanum? Sölvi er alveg óútreiknanlegur og erfitt oft að vita hvort hann er að grínast eða tala af alvöru, mér finnst hann fyndinn. Hvað sástu síðast í bíó? Ætli það hafi ekki verið Lífsleikni Gillz - mynd sem ég ætlaði ekki að sjá. Fór inn með engar væntingar, þess vegna fannst mér hún alveg góð. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Beyglur með rjómaosti. Hver er þinn helsti galli? Fljót að æsa mig og trúi aðeins of mikið á það góða í fólki. Hvað er heitasta parið í skólanum? Pass, sorry krakkar Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Þá myndi ég leyfa böll á föstudögum, leyfa formanni NFS að hafa lykil af
Áttu þér viðurnefni? Ekkert sérstakt, strákarnir í stjórninni kalla mig samt miður fallegu nafni. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Er gjörn á að segja ,,Nei dreptu mig ekki" þegar ég er hneyksluð á einhverju og finnst mér það hrikalega ljótur ávani! Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Ég er mjög ánægð með að fólk er farið að taka aðeins meira þátt en áður, margir komnir með annan fótinn út úr boxinu. Áhugamál? Íþróttir, félagsmál og útlönd. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Sumrinu ætla ég að eyða í vinnu á Spáni svo kem ég heim og útskrifast og ætla þá til Afríku, annað er óráðið. Ertu að vinna með skóla, ef já hvar þá? Er ekki í launaðri vinnu en verkefni nemendafélagsins eru vinna útaf fyrir sig. Hver er best klædd/ur í FS? Hjörtur er flottur og síðan er Sylvía Rut Kára alltaf rosa fín. Hver myndi leika þig ef gerð yrði kvikmynd um líf þitt? Vá erfið spurning, er ennþá að leita af tvífara mínum samt örugglega bara bróðir minn með hárkollu.
EFTIRLÆTIS Kennari: Kolla verður alltaf uppáhaldið mitt Fag: í skólanum Spænskan Sjónvarpsþættir: The Carrie Diaries Kvikmynd: Stikkfrí mun bara alltaf eiga stað í hjarta mínu Hljómsveit/tónlistarmaður: Jón Jónsson Leikari: Liam Neeson er alltaf jafn mikill töffari Vefsíður: þessa stundina er dohop. is minn besti vinur Flíkin: svörtu H&M skórnir sem ég fer í hvern einasta dag Skyndibiti: Er Saffran skyndibiti? Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)? Gömlu lögin hennar Taylor Swift eru góð....
LISTDANSSKÓLI REYKJANESBÆJAR
BRYN BALLETT AKADEMÍAN
DANSBIKAR BRYN 2014 LAUGARD. 8. MARS kl. 14:00 Í BRYN BALLETT AKADEMÍUNNI FLUGVALLARBRAUT 733 ÁSBRÚ, REYKJANESBÆ
Danskeppni nemenda í listdansskóla BRYN Aldursflokkar 9-11 ára, 12-15 ára og 16+ keppa SÍMI: 426 5560
ALLIR VELKOMNIR Miðaverð Kr. 1000*
*Frítt fyrir 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
WWW.BRYN.IS
NETFANG: BRYN@BRYN.IS
14
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
pósturu eythor@vf.is
Skvísukvöld ALLAR AÐALSKVÍSUR NÚ HITTUMST VIÐ AFTUR, FÖSTUDAGINN 14. MARS, SKVÍSUKVÖLD ÁRSINS! ERT ÞÚ BÚIN AÐ TRYGGJA ÞÉR MIÐA? • • • • • • • •
Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk í boði Ölgerðarinnar Gerður Pétursdóttir stjórnar veisluhöldum Bryndís Jóna Magnúsdóttir ræðumaður kvöldsins Sigga Kling tendrar hláturstaugarnar Glæsilegt happdrætti Heiður slær taktinn í mannskapinn Boðið verður uppá ljúffenga smárétti Rautt, hvítt, bjór o.fl. selt á staðnum þar sem allir helstu töffarar bæjarfélagsins verða barþjónar
Miðaverð: kr. 4.500,- Staðsetning: TM-höllin
Skvísur verðið tilbúnar!
ATVINNA Kvöld- og helgarvinna í Reykjanesbæ
Starf við umönnun fatlaðs barns á heimili laust til umsóknar. Gefandi og skemmtileg vinna fyrir rétta aðila. Nánari upplýsingar veita Eysteinn Jónssonn í síma 822 5966 og Rakel Þorsteinsdóttir í síma 693 7160 Netföng: thorsteinsdottir@simnet.is og eysteinn.li@simnet.is
Samúel Kári á skotskónum með landsliðinu u U19 landslið karla í knatt-
spyrnu vann 3-0 sigur á Svíum í gær þar sem Kef lv í k ingurinn hjá Reading, Samúel Kári Fr i ð j ón ss on sk or a ð i fyrsta mark leiksins eftir hornspyrnu. Auk Samúels léku Grindvíkingurinn Daníel Léo Grétarsson og Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson í leiknum.
Njarðvíkingar leika í 1. deild uEftir stórt tap gegn grönnum
sínum frá Keflavík um sl. helgi er ljóst að Njarðvíkurkonur leika í 1. deildinni í körfubolta á næstu leiktíð. Njarðvíkingar hafa verið að glíma við falldrauginn nánast alla leiktíðina en baráttu þeirra lauk endanlega eftir tapið gegn Keflvíkingum. Á sama tíma tryggðu Grindvíkingar veru sína í deildinni með útisigri gegn Hamarskonum. Úrslitakeppnin fer senn að hefjast en Keflvíkingar eru eina Suðurnesjaliðið sem tekur þátt í henni þetta árið.
Ferillinn gæti verið á enda - Ómar Jóhannsson um meiðslin og upphafið á nýjum ferli
M
arkvörðurinn Ómar Jóhannsson var á dögunum ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks Njarðvíkinga í 2. deild karla í knattspyrnu. Ómar sem gert hefur garðinn frægan sem markvörður Keflvíkinga um árabil mun einnig sjá um markmannsþjálfun liðsins. Ómar dró sig í hlé vegna meiðsla á dögunum en hann hefur verið aðal markvörður Keflvíkinga síðan árið 2002 og leikið 198 leiki fyrir félagið. Ferill Ómars er hugsanlega í hættu en hann er ekki tilbúinn að gefa hann upp á bátinn. Ómar sem er nýlega orðinn 33 ára gamall hafði hug á því að þjálfa og hafði verið í sambandi við fyrrum liðsfélaga sinn hjá Keflavík, Guðmund Steinarsson, áður en meiðslin komu upp. „Gummi hafði rætt við mig um að koma og aðstoða við markmannsþjálfunina. Ég hafði ekki tíma þá en þegar að ljóst var að ég myndi ekki spila í bráð þá kom þetta aftur til tals.“ Ómar hafði áætlanir um að fara í þjálfun seinna meir og þá sérstaklega þjálfun markmanna. Þessi atburðarás hefur hrundið þeirri áætlun í gang fyrr en ætlað var. „Þegar Gummi spurði mig svo hvort ég gæti ekki hugsað mér að vera aðstoðarþjálfari hjá Njarðvík þá fannst mér það hljóma nokkuð vel,“ en Ómar telur sig hafa mikið fram að færa á þeim vettvangi enda reynslumikill leikmaður.
Ekki verið 100% heill í lengri tíma Ómar hefur í gegnum tíðina glímt við ýmiss meiðsli og ekki náð nema einu tímabili þar sem hann hefur verið 100% síðan árið 2007, að eigin sögn, en það var tímabilið 2011, en þá lék hann alla leiki í deild og bikar. Nú er það öxlin sem er að angra markmanninn en hún hefur verið til leiðinda síðan árið 2008 að sögn Ómars. Hann var tæpur eftir síðasta tímabil í Pepsideildinni og það var rætt um að hann færi í aðgerð þá. „Mér leið vel í öxlinni eftir sumarið og því virtist engin ástæða til þess að fara
Þetta gæti verið endirinn hjá mér í aðgerð. Hún var bæði áhættusöm og það tekur langan tíma að jafna sig.“ Því var ákveðið að Ómar héldi sig við að styrkja öxlina og gekk það vel. Ómar hóf að æfa með liðinu í janúar og gekk það framan af mjög vel. Svo fer hann úr axlarlið á æfingu þegar hann er að skutla sér eftir bolta. „Það var dálítið áfall. Ef það var eitthvað sem átti að halda þá var það öxlin sem ég var búinn að styrkja vel. Ég fékk svo leyfi til að láta reyna á þetta frekar, það versta sem myndi gerast væri þá að ég myndi bara fara úr lið. Mér fannst það þó ekkert
Aníta Lóa Íslandsmeistari Keflvíkingar sektí flokki fullorðinna aðir vegna framA komu áhorfanda níta L óa Hauksdóttir úr Reykjanesbæ og Pétur Fannar Gunnarsson urðu um helgina Íslandsmeistarar í 10 dönsum í fullorðinsflokki en keppt var í íþróttahúsinu við Austurberg. Með sigrinum unnu þau Pétur og Aníta sér inn rétt til að keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu sem haldið verður í Rica í Lettlandi í október auk þess sem þau keppa á Evrópumeistaramótinu í Úkraínu í næsta mánuði. Sigurður Mar Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir urðu í öðru sæti og þau Birkir Örn Karlsson og Rakel Matthíasdóttir í þriðja sæti.
- Magnús í bann vegna olnbogaskots
Í
gær voru Keflvíkingum birtir tveir úrskurðir agaog úrskurðarnefndar er tengdust félaginu. Annars vegar var Magnús Þór Gunnarsson dæmdur í eins leiks bann fyrir olnbogaskot í leik KR og Keflavíkur í Domino's deildinni. Hins vegar var félagið dæmt til að greiða 25.000 kr. í sekt vegna hegðunar áhorfenda í garð dómara eftir leik Keflavíkur og Hauka í Domino's deild kvenna á dögunum en umræddur áhorfandi sýndi dómurum óvirðingu, m.a. með fúkyrðum og hótunum.
svakalega góður kostur.“ Úr varð að Ómar er á leið í aðgerð í sumar og mun hann ekkert stíga inn á knattspyrnuvöllinn á næstunni. Nema þá bara ef hann laumist aðeins yfir hliðarlínuna þar sem varamenn og þjálfarar halda sig. Ómari líst vel á liðið hjá Njarðvíkingum en hann segir það ungt og spennandi. Það er svo aldrei að vita nema hann fái að stjórna liðinu einn síns liðs ef Guðmundur þjálfari finnur fiðring í tánum og ákveður að spreyta sig í framlínunni. Ömurlegt að vera meiðslapési Er erfitt að vera meiðslapési? „Það er ömurlegt og hundleiðinlegt. Bæði þarf maður að dvelja tímunum saman hjá sjúkraþjálfara og svo er það andlega hliðin. Maður veltir því fyrir sér hvort maður nái næsta leik. Það snýst orðið allt um það og maður nær ekki neinum takti með því að æfa ekki reglulega eins og hinir.“ En hefur Ómar þá velt því fyrir sér að hætta að spila? „Ég hef hugsað um það. Þetta gæti verið endirinn hjá mér. Mig langar þó að spila aftur.“ Ómar mun að öllum líkindum ekki leika næstu tvö sumur eftir aðgerðina og þá verður hann orðinn 35 ára gamall. „Ég sé til eftir aðgerðina en það er bara fyrsta skrefið. Það er ekkert öruggt í þessu,“ segir nýr aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga að lokum.
15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. mars 2014 Myndir: Páll Orri //pop@vf.is
Daglegar fréttir á vf.is 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hjallaveg 3 í Njarðvík Reykjanesbæ. AUÐVELD KAUP. Yfitekin lán frá ÍLS kr. 12.000.000,- greiðslubyrði ca. kr. 66.000,per. mánuð.
Sjá innslag frá Nettó-mótinu í sjónvarpsþætti Víkurfrétta í kvöld
Verð kr. 13.500.000,Magnús Emilsson, löggiltur fasteignasali.
TILKYNNING FRÁ
HEILBRIGÐISSTOFNUN SUÐURNESJA Að undanförnu hefur verið mikið álag á heilsugæslu HSS og bið eftir tímum hjá læknum á dagvinnutíma er afar löng. Þetta er að öllum líkindum tímabundið ástand og biðjumst við velvirðingar á þessu.
Vel heppnað Nettó-mót í körfubolta T
æplega 1300 krakkar tóku þátt í hinu árlega Nettó-móti í körfubolta í Reykjanesbæ um síðustu helgi. Þetta er stærsta körfuboltamót yngri kynslóðarinnar sem haldið er hér á landi. Rúmlega 200 keppnislið mættu til leiks og þegar yfir lauk voru leikirnir rétt tæplega 500. Um eitt þúsund manns gistu í Reykanesbæ á meðan mótið stóð yfir og gestir voru um 2.500 manns.
Að sögn Jóns Ben Einarssonar, eins af starfsmönnum mótsins gekk allt eins og í sögu en hann sagði Nettómótið vera mikilvægt í fjáröflun körfuknattleiksdeildar Keflavíkur og Njarðvíkur en félögin standa saman að mótinu. Jón sagði samvinnuna ganga afar vel en nokkur hundruð manns frá félögunum koma að vinnu við mótið. Auk körfuboltaleikjanna gera krakkarnir ýmislegt fleira á meðan
á dvöl þeirra stendur í Reykjanesbæ. Þau fara í bíó, heimsækja Skessuna í hellinum og leikjagarða. Þá er kvöldvaka á laugardagskvöldinu. Sjónvarp Víkurfrétta leit við á mótinu og sjá má innslag með viðtölum við krakkana og myndir af þeim í leikjum í þætti vikunnar á ÍNN, á vf.is og Kapalvæðingu á fimmtudagskvöldið.
Heilsugæsluvakt fyrir aðkallandi erindi er sem fyrr milli kl. 16:00 og 20:00 alla daga og bráðavakt allan sólarhringinn. Þeir sem eiga pantaðan tíma að deginum til en hyggjast ekki nota hann eru vinsamlegast beðnir um að láta vita svo aðrir geti nýtt hann. Með von um að fólk sýni þessu ástandi skilning. Framkvæmdastjórn HSS
HÓLMSVÖLLUR Í HÁLFA ÖLD GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA 50 ÁRA
ÞANN 4. MARS S.L. NÁÐI GOLFKLÚBBUR SUÐURNESJA ÞEIM MERKA ÁFANGA AÐ VERÐA FIMMTUGUR. AF ÞVÍ TILEFNI VERÐUR OPIÐ AFMÆLISHÓF HALDIÐ Í GOLFSKÁLANUM Á HÓLMSVELLI Í LEIRU SUNNUDAGINN 9. MARS KLUKKAN. 14.00 OG ERU ALLIR VELKOMIR. Í UPPHAFI HÓFS MUN FORMAÐUR GS BJÓÐA GESTI VELKOMNA OG AÐ ÞVÍ LOKNU TEKUR SKIPULÖGÐ DAGSKRÁ VIÐ SEM STENDUR TIL KL. 15.30 – EFTIR ÞAÐ ER OPIÐ HÚS TIL KL. 17.00. VIÐ HVETJUM FÉLAGA Í GS OG AÐRA KYLFINGA TIL AÐ FJÖLMENNA, ÞIGGJA VEITINGAR OG SAMFAGNA ÞESSUM MERKA ÁFANGA Í SÖGU GOLFKLÚBBS SUÐURNESJA, AFMÆLISNEFND GOLFKLÚBBS SUÐURNESJA
vf.is
-mundi FIMMTUDAGURINN 6. MARS 2014 • 9. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
VIKAN Á VEFNUM Logi Pedro, tónlistarmaður úr Retro Stefson Kíkti í alvöru á Sumarstelpuna í Kef City áðan. Hversu f*cked samkoma.
Ég ætla að fresta því að láta flytja mig á Nesvelli
EINSTAKT ÚRVAL AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM
GE BÍLAR ER UMBOÐSAÐILI BL EHF OG BÍLALANDS. KÍKTU Í KAFFI.
Guðrún Lára, nemi "Jói, þú lýgur! Þú ert ekki bróðir minn" léttur gullmoli frá kvöldverðinum í gær #nettomotid Steinunn Ósk, nemi Frábær dagur, HSS að fara á kostum. 3 kls í bið með pirrað og lasið barn. Hver vill eggja húsið memmér??? Helga Jónsdóttir, nemi Að sjálfsögðu setti @sammikara eitt á móti Svíum! Áfram þú elskan! #U19 Ásta Dagmar, nemi Íslenska veðrið er mesta tease sem ég veit um Björgvin Ívar, tónlistarmaður Hugmynd fyrir midi. is. Share takki fyrir helstu samfélagsmiðlana á staðfestingu miðakaupa. Hlynur Thor Valsson, kennari Ef stríð brýst út á milli Úkraínu og Rússa skyldu kanarnir þá vilja Völlinn aftur?
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
Sími: 421 8085
GÓÐIR LÁNAMÖGULEIKAR
NISSAN X-trail
HYUNDAI I30 comfort
HYUNDAI Santa fe diesel VW Beetle design
NISSAN Qashqai le
Verð kr. 2.180.000,-
Verð kr. 1.850.000,-
Verð kr. 3.290.000,-
Verð kr. 2.980.000,-
Verð kr. 2.880.000,-
TOYOTA Yaris
VW Crafter double cab ml SUBARU Forester
NISSAN Note
HYUNDAI Santa fe
Verð kr. 2.350.000,-
Verð kr. 2.950.000,-
Verð kr. 1.390.000,-
Verð kr. 1.290.000,-
Verð kr. 1.280.000,-
HYUNDAI Getz gls
TOYOTA Yaris terra
TOYOTA Yaris
KIA Sorento
SUZUKI Grand vitara lux
Verð kr. 1.260.000,-
Verð kr. 1.120.000,-
Verð kr. 2.350.000,-
Verð kr. 990.000,-
Verð kr. 3.890.000,-
Árgerð 2007, ekinn 96 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Árgerð 2013, ekinn 45 Þ.KM, bensín, 5 gírar.
Árgerð 2008, ekinn 92 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Árgerð 2008, ekinn 133 Þ.KM, dísel, Árgerð 2012, ekinn 23 Þ.KM, sjálfskiptur. bensín, 6 gírar.
Árgerð 2008, ekinn 142 Þ.KM, dísel, Árgerð 2004, ekinn 106 Þ.KM, 5 gírar. bensín, sjálfskiptur.
Árgerð 2007, ekinn 114 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Panoramaþak leður. Árgerð 2008, ekinn 151 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Árgerð 2006, ekinn 140 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
Ólöf Helga Pálsdóttir nemi í L.A Kæri SDG... hver ól þig eiginlega upp? Aðalgeir Jónsson, nemi Þarf ekki að hringja á slökkviliðið?
Árgerð 2008, ekinn 71 Þ.KM, bensín, 5 gírar.
Árgerð 2006, ekinn 149 Þ.KM, bensín, 5 gírar.
Árgerð 2013, ekinn 46 Þ.KM, bensín, 5 gírar.
Árgerð 2005, ekinn 189 Þ.KM, bensín, 5 gírar.
Árgerð 2010, ekinn 54 Þ.KM, bensín, sjálfskiptur.
LÆGRI
AÐEINS
SÖLULA UN
FRÁ KR
. 49.98
0