35 tbl 2014

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001

heilsu & lífsstílsdagar

25%

afSláttur af yfir 1.500 heilSu- og Skoðaðu bæklinginn á netto.iS lífSStílSvörum – fjöldi hugmynda, uppSkrifta og Spennandi tilboða

túrmerik 50g 549kr|25%|412kr

hampfræ 250g 655kr|25%|491kr

vf.is

F IMMTUDAGUR INN 11. SE PTE MBE R 2 0 14 • 3 5 . T ÖLU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R

Litrík Ljósanótt F

FÍTON / SÍA

immtánda Ljósanótt í Reykjanesbæ tókst afar vel og tugþúsundir gesta sóttu hundruð viðburða sem í boði voru að þessu sinni. Eins og alltaf voru nokkrir stærri og nú voru það t.d. uppsetning Stefnumótastaurs, opnun Fjölskylduseturs, ljósmyndasýning frá árunum 1940-1960, árleg árgangaganga og frábær flugeldasýning að ógleymdri söngskemmtuninni Blik í auga. Veðurguðirnir voru í þokkalegu skapi en mættu bæði með sól og bleytu. Ljósmyndarar VF voru á ferðinni alla helgina og þessa flottu Ljósanætur-andlitsmynd tók Eyþór Sæmundsson.

einföld reiknivél á ebox.is

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

Allt um Ljósanótt 2014 í Sjónvarp Víkurfrétta Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is


2

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

STYRKIR Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar auglýsir styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks og reglugerðar nr. 550/1994. Veittir eru styrkir í samræmi við reglur Reykjanesbæjar til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig eru veittir styrkir til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í þjónustuveri á Tjarnargötu 12 og eru einnig aðgengileg á vef Reykjanesbæjar. Nánari upplýsingar veita Sigríður Daníelsdóttir (sigridur.danielsdottir@reykjanesbaer.is) og Hrefna Höskuldsdóttir (hrefna.hoskuldsdottir@reykjanesbaer.is)

VETUR Í REYKJANESBÆ Hvað verður í boði fyrir börn og ungmenni í Reykjanesbæ veturinn 2014 ? Íþrótta- og tómstundasvið mun setja á vef bæjarins vefritið VETUR Í REYKJANESBÆ 2014. Ef þitt félag/klúbbur áformar að bjóða börnum og ungmennum í Reykjanesbæ upp á tómstundanámskeið eða aðra afþreyingu fyrir ungmenni í vetur, biðjum við um að upplýsingar verði sendar til tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar á netfangið: hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is fyrir 15. september nk. Íþrótta- og tómstundasvið

JÓN TÓMASSON Minnum á að hin áhugaverða sýning á ljósmyndum Jóns Tómassonar í Bíósal Duushúsa stendur til 22. október. Duushúsin eru opin virka daga frá 12:00 - 17:00 og um helgar 13:00 - 17:00. Aðgangur ókeypis

BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR

-fréttir

pósturu vf@vf.is Hrafn Sveinbjarnarson kominn til hafnar.

Skemmdi bifreið og stakk af

■■Kominn til heimahafnar í Grindavík:

Nýr og endurbættur Hrafn Sveinbjarnarson E

ftir sumarlanga dvöl í skipasmíðastöð í Stettin í Póllandi er Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 kominn til heimahafnar í Grindavík. Það eru engar ýkjur að segja að Hrafninn sé nánast eins og nýtt skip enda er hann gjörbreyttur eftir lengingu og endurbætur. Sagt var frá þessu á vefsíðu Grindavíkurbæjar. Má í raun segja að nú sé Hrafninn eins og hann hafi alltaf átt að vera. Þegar skipið var smíðað á sínum tíma var búið að teikna það 57 metra að lengd, en fyrri eigendur áttu ekki næga úreldingu eins og það var kallað og því þurfti að stytta hann. Í samtali við kvótinn.is sagði Hilmar Helgason skipstjóri að hann væri í raun búinn að vera að bíða eftir þessum breytingum í 20 ár. Þrátt fyrir styttingu við smíðar hafi ekkert verið bakkað með vélarafl og togkraft og nú sé loksins hægt að nýta það afl sem skipið býr yfir af fullum krafti. Alls var skipið lengt um 15,4 metra og munar um minna. Sú aðgerð fór þannig fram skipið var hlutað í sundur rétt fyrir aftan brúna og svo var 150 tonna forsniðið stálstykki hýft í gatið. Síðan var allt skipið tekið í gegn frá A-Ö. Hreinsað var innan úr millidekki og lest og allt sandblásið og víða gamlir og slitnir partar rifnir burt. Alls fóru um 90 tonn af stáli í skipið til viðbótar, svo að alls var verið að vinna með um 240 tonn af stáli í þessari miklu aðgerð. Plássið í lestinni tvöfaldast við

breytingarnar, fer úr 240 tonnum af flökum í 480 tonn og þá hefur frystigetan verið aukin í samræmi við þessar breytingar. Við þessar miklu breytingar batnar öll aðstaða fyrir áhöfn umtalsvert, bæði til vinnu og hvíldar. Við bætist ný setustofa, tveir klefar og tvær stórar og vel rúmar stakkageymslur, ein fyrir efra dekk og önnur fyrir vinnsluna. Hilmar bætti svo við: „Allt ryð var upprætt í gamla hlutanum svo okkur líður svolítið eins og við séum að koma heim með nýsmíði að mörgu leyti. Skipið er í flokkun hjá Norsk Veritas og þeir sköffuðu eftirlitsmann allan tímann sem var mjög harður og gaf engan afslátt á einu eða neinu." Hrafninn er þó ekki tilbúinn til veiða. Nú tekur við um fimm vikna vinna við að púsla saman vinnslubúnaðinum og koma honum fyrir um borð. Var tekin meðvituð ákvörðun um að sú vinna færi fram hér heima til þess að nýta íslenskt og grindvískt vinnuafl og þekkingu. Hrafninn liggur nú við bryggju við Suðurgarð en þangað flutti Þorbjörn nýlega löndunaraðstöðu sína fyrir frystitogara og í spilunum eru stór áform um glæsta uppbyggingu á reitnum þar sem beinamjölverksmiðjan stóð áður. Af þessum flutningum skapast umtalsverð hagræðing og ófáir kílómetrar í akstri enda öll þjónusta við skipin nú nánast í kallfæri frá bryggjunni.

Í vímu, án réttinda og ótryggður XXLögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af fimm ökumönnum sem ýmist óku sviptir ökuréttindum eða voru grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna. Einn þeirra ók ótryggðum bíl, hafði verið sviptur ökuréttindum og hafði neytt kannabis og amfetamíns, að því er sýnatökur á lögreglustöð staðfestu. Þrír óku undir áhrifum áfengis og reyndist einn þeirra einnig hafa neytt kókaíns. Hinn fimmti ók sviptur ökuréttindum.

Eftirlýstur ökumaður með kannabis XXÖkumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, framvísaði tveimur grömmum af kannabisefnum þegar lögreglumenn ræddu við hann. Viðkomandi var eftirlýstur í kerfum lögreglu vegna annars máls. Þá vakti undarlegt aksturslag annars ökumanns athygli lögreglu. Sá virtist eiga í erfiðleikum með að halda bifreiðinni í gangi og þegar það loks tókst ók ökumaðurinn rakleiðis á og yfir kantstein. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð vegna gruns um ölvun við akstur.

Í blómatínslu í skrúðgarðinum með klút fyrir andlitinu

Ævar vísindamaður kemur á uppskeruhátíð sumarlesturs þriðjudaginn 16. september kl. 17:00. Hann mun bæði kynna bók sína "Umhverfis Ísland í 30 tilraunum" og gera nokkrar tilraunir.

XXSýndi engin merki um að hann ætlaði að stöðva bifreið sína. Ekið var utan í hlið bifreiðar í Keflavík um helgina þannig að töluverðar skemmdir urðu á henni, rispur eftir endilangri hliðinni, auk þess sem hliðarspegill brotnaði. Bifreiðin var á ferð þegar önnur bifreið kom á móti henni með fyrrgreindum afleiðingum. Sá sem valdur var að atvikinu ók í burtu án þess að sýna nein merki um að hann ætlaði að stöðva bifreið sína. Lögreglan hafði skömmu síðar upp á viðkomandi.

Borðsalurinn er nýr að hluta og bættist m.a. við kalt borð fyrir áhöfnina, enda verða menn að hugsa um hollustuna þegar þeir vinna erfiðisvinnu alla daga.

Allar lestrarstjörnur eru velkomnar á uppskeruhátíðina, sem haldin verður á Bókasafninu.

Sigurður Jónsson, 1. stýrimaður, sýndi fulltrúum bæjarins hið ,,nýja" skip og voru þeir félagar kampakátir með breytingarnar. Til stendur að opna skipið fyrir almenningi þegar allri vinnu er lokið.

XXÓvenjuleg tilkynning barst lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni. Hún var þess efnis að einstaklingur með klút fyrir andlitinu væri að rífa upp blóm í skrúðgarðinum við Njarðvíkurkirkju og troða þeim í innkaupapoka. Allt reyndist þetta rétt, þegar lögreglumenn mættu á staðinn. Viðkomandi kvaðst einungis vera að taka upp blóm sem væru hvort eð er að dauða komin. Lögreglumenn báðu um að blómin yrðu sett þar sem þau höfðu verið og gerði blómaunnandinn það fúslega. Lögregla bendir á að óheimilt er að tína blóm í skrúðgörðum þótt þau virðist vera farin að daprast nú á haustdögum.


FRAMKVÆMDASTJÓRI Fríhöfnin óskar eftir að ráða kraftmikinn og áhugasaman framkvæmdastjóra sem hefur hæfileika til að þróa áfram sterkan verslunarrekstur með því hæfa starfsfólki sem félagið hefur á að skipa. Um er að ræða skemmtilegt og spennandi starf í fjölbreytilegu og alþjóðlegu umhverfi.

Starfs- og ábyrgðarsvið:

Menntunar- og hæfniskröfur:

• Yfirumsjón með rekstri Fríhafnarinnar, s.s. samningsgerð við alla birgja á verslunarsviði og mótun söluog vörustefnu

• Háskólamenntun sem nýtist í starfi

• Ábyrgð á innkaupum, birgðahaldi, birgðastýringu og framlegðarbókhaldi félagsins • Fagleg og fjárhagsleg ábyrgð á starfsemi Fríhafnarinnar ásamt áætlanagerð og eftirfylgni • Öll almenn framkvæmdastjórn og yfirumsjón með öllum verkefnum félagsins samkvæmt samþykktum, eigendastefnu og starfsreglum félagsins • Frumkvæði og stefnumótun varðandi þróun og skipulag félagsins • Undirbúningur á verkefnum stjórnar, umfjöllun og úrvinnsla

• Reynsla af stjórnunarstörfum er skilyrði • Reynsla á smásölumarkaði er æskileg • Þekking á fjármálum í rekstri fyrirtækja • Hæfni og reynsla í gerð samninga • Miklir samskiptahæfileikar Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknarfrestur er til og með 17. september nk. Umsókn óskast fyllt út á www.hagvangur.is

Upplýsingar veita: Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is

Fríhöfnin er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera fjölskylduvænt fyrirtæki og besta fríhöfn í Evrópu. Fríhöfnin er dótturfyrirtæki Isavia ohf. og annast rekstur fimm verslana í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Starfsmenn eru um 140 og stærstu vöruflokkarnir í verslunum félagsins eru áfengi, tóbak, snyrtivörur og sælgæti. Fríhöfnin hefur sett sér það markmið að vera ávallt til fyrirmyndar í jafnréttismálum og leggur áherslu á góðan starfsanda.

www.dutyfree.is

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A — 1 4 - 2 0 0 0

Víkurfréttir 236x360


4

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

Starf í eldhúSi Skólamatur ehf. óskar eftir að ráða aðstoðarmann í eldhús, við framleiðslu á sérfæði. Um er að ræða aðstoð við undirbúning, matreiðslu og skipulagningu í sérfæðisdeild Skólamatar. Menntun og reynsla af matreiðslu er kostur en áhugi á matargerð er nauðsynlegur. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á fanny@skolamatur.is

Sími 420 2500 I skolamatur@skolamatur.is skolamatur.is

Hollt, gott og heimilislegt

TIL SÖLU Veitingarstaðurinn Mamma Mía í Grindavík. Einstakt tækifæri og góðir tekjumöguleikar. Rekstur og húsnæði til sölu.

Frekari upplýsingar á mammamia@mammamia.is

+ www.vf.is

83% LESTUR

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Stóru-Vogaskóli fékk landgræðsluverðlaun U

mhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, veitti landgræðsluverðlaunin 2014 við hátíðlega athöfn fyrir helgi. Verðlaunin eru veitt árlega einstaklingum, félagasamtökum og skólum sem unnið hafa að landgræðslu og landbótum. Með þessari viðurkenningu vill Landgræðslan vekja athygli þjóðarinnar á fórnfúsu starfi fjölda þjóðfélagsþegna að landgræðslumálum og jafnframt hvetja aðra til dáða. Eftirtaldir hlutu landgræðsluverðlaunin að þessu sinni: Eiríkur Jónsson í Gýgjarhólskoti, Þorfinnur Þórarinsson, Spóastöðum og Stóru-Vogaskóli í Vogum. Verðlaunagripirnir, Fjöregg Landgræðslunnar, eru unnir af Eik-listiðju, Miðhúsum á Fljótsdalshéraði. Stóru-Vogaskóli Stóru-Vogaskóli í Vogum er vel í sveit settur til umhverfiskennslu. Við húsvegginn er fjara og tjörn sem henta vel til slíkrar fræðslu. Í nágrenni skólans er mólendi, sums staðar með jarðvegssárum sem þörf er á að græða upp. Nemendur og kennarar hafa sinnt uppgræðslu nær samfellt í þrjá áratugi. Á vorin er einum kennsludegi varið til uppgræðslunnar. Þá er grasfræi sáð,

Á myndinni eru f.v. Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Eiríkur Jónsson, Þorfinnur Þórarinsson, Svava Bogadóttir og Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri.

áburði dreift og trjáplöntur gróðursettar. Áhugasamir einstaklingar hafa drifið þetta starf áfram. Stóru-Vogaskóli er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar. Umhverfisnefnd starfar við skólann, skipuð nemendum í 5.-10. bekk ásamt nokkrum kennurum og starfsmönnum. Í umhverfisstefnu skólans segir m.a.: ,,Við græðum upp land og ræktum skóg". „Nemendur í 1 – 4. bekk Stóru–Vogaskóla vinna við landgræðslu einn

dag í lok skólaársins. Á sama tíma vinna 5.-7. bekkur að gróðursetningu trjáplantna frá Yrkju.“ Skólinn vill vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Rusl er flokkað, leitast er við að spara orku, bæta nýtingu matvæla og á vorin fara allir út og hreinsa rusl í þéttbýlinu í Vogum. Svava Bogadóttir, skólastjóri, veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd skólans.

Mokuðu upp makríl fram á síðustu stundu Mikið er af makríl með ströndinni allt frá Garði og a.m.k. inn undir Voga. Sjá má sjóinn krauma þar sem makríllinn veður í yfirborðinu. Veiðar smábáta á makríl voru hins vegar stöðvaðar frá og með síðasta föstudegi. Fram að því mátti sjá mikinn fjölda báta að veiðum alveg upp við landsteinana. Bátarnir komu svo fullir af fiski í land á kvöldin og makríllinn skapaði mikla vinnu í fiskvinnslunni hér suður með sjó. Þingflokkur Samfylkingarinnar skorar á sjávarútvegsog landbúnaðarráðherra, Sigurð Inga Jóhannsson, að endurskoða ákvörðun sína um að stöðva makrílveiðar smábáta sem tók gildi nú í byrjun september. Leyfa á smábátasjómönnum að veiða makríl áfram. Mörg dæmi eru um að þeir hafi nýlega farið út í fjárfestingar vegna veiðanna og kemur þessi ákvörðun þeim hópi sérstaklega illa. Þá er rétt að

hafa í huga að aflaverðmæti makríls sem veiddur er á þessum tíma af smábátum er með því hæsta sem gerist. Engin rök hafa verið sett fram fyrir því að fallið verði frá þeirri ákvörðun að stöðva veiðarnar, segir í ályktuninni.

Frá makrílveiðum á Stakksfirði sl. fimmtudag.

Félagsmenn Eflingar, Hlífar og VSFK

Tökum vel á móti Gallup Þátttakendur lenda strax í happdrættispotti Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur


Fáðu n n e meira Flottir bílaleigubílar komnir í sölu. Frábært tækifæri til að eignast nýlegan bíl í ábyrgð.

Chevrolet Spark Verð frá: 1.390.000 kr. Bíll í verksmiðjuábyrgð

Chevrolet Aveo Verð frá: 1.690.000 kr. Bíll í verksmiðjuábyrgð

Chevrolet Captvia Verð frá: 4.390.000 kr. Bíll í verksmiðjuábyrgð

Chevrolet Cruze Verð frá: 1.990.000 kr. Bíll í verksmiðjuábyrgð

Fjármögnum það sem upp á vantar

Nú getur þú fengið enn meira við kaup á notuðum Chevrolet.Tryggðu þér nýlegan bílaleigubíl frá Sixt sem eru í verksmiðjuábyrgð. Í boði eru árgerðir frá 2012 og 2013 - veldu þann sem hentar þínum þörfum best.

Bílabúð Benna í Reykjanesbæ

Nánari upplýsingar á benni.is

Opið alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 10 til 14 Verið velkomin í reynsluakstur.

Reykjanesbær Njarðarbraut 9 Sími: 420 3330

Reykjavík Tangarhöfða 8 Sími: 590 2000

Akureyri Glerárgötu 36 Sími: 461 3636


6

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-ritstjórnarbréf

-viðtal

pósturu hilmar@vf.is

Eyþór Sæmundsson skrifar

Það eru litlu hlutirnir sem gera Ljósanótt einstaka

Undirritaður var víða á vappi á Ljósanótt. Smellti myndum af hundruðum, jafnvel þúsundum andlita og heilsaði upp á gamla félaga og kunningja á förnum vegi. Það eru nokkrir viðburðir sem standa upp úr á Ljósanótt. Flugeldasýning, blöðrusleppingar, árgangaganga og fjöldi stórtónleika. Sjálfum finnst mér þessir viðburðir ekki þeir sem gera Ljósanótt að þeirri hátíð sem hún er orðin. Það eru litlu hlutirnir. Júlli sonur Rúnna Júll með tónleika í stofunni hjá mömmu sinni á Skólaveginum. Bröns Keflvíkinga á Sunnubraut til þess að koma manni af stað á laugardagmorgni. Þessi sérstaka stemning sem skapast á fimmtudagskvöldum þegar nær eingöngu heimafólk er á ferð um miðbæinn okkar sem sannarlega má muna sinn fífil fegurri. Það kvöld er menning og verslun á svæðinu í algjöru hámarki. Ég get alveg viðurkennt það að mér leið eins og í „gamla daga“ þegar ég leit yfir Hafnargötuna síðasta fimmtudagskvöld. Það var eins og klukkan væri 3:00 á nóttu um helgi og nýbúið að henda öllum út af Strikinu og Kaffi Keflavík. Maður beið bara eftir því að slagsmálin hæfust. Án gríns þá var þetta virkilega skemmtileg upplifun og þörf áminning til okkar um hvað gæti orðið í miðbænum. Það er engin töfralausn á því hvernig við eigum að glæða miðbæ Reykjanesbæjar lífi. Ég tel mig þó vera með ágætis uppástungu. Það þarf einfaldlega að gera hugarfarsbreytingu hjá fólkinu. Bara það að skella sér niður í bæ og versla nokkrar flíkur og fá sér 2-3 drykki, sé í góðu lagi utan Ljósanætur. Það má alveg sko! Jafnvel þó þú sért kominn yfir þrítugt. Við þurfum líka að vera dugleg að brydda upp á nýjungum á hverri hátíð. Þá er ég ekki að tala um að afhjúpa listaverk og stæra okkur af flottum framkvæmdum í bænum. Heldur þurfum við að halda götusölu, opna heimili okkar, bjóða í bröns. Gerum þetta persónulegt. Ég er ekki með góða hugmynd alveg núna, en þær eru þarna úti. Þið eruð með þær. Ljósanótt er orðin rótgróin og mun vafalaust lifa áratugi í viðbót, hver veit? Fjölbreytnin er gífurlega mikil á Ljósanótt, þar er eitthvað fyrir alla. Hátíðin er orðin ein af stærstu bæjarhátíðum landins og stendur nú yfir í fimm daga. Hún hefur sína sérstöðu og skapar bænum miklar tekjur og gott orðspor. Yfir hverju er ég þá að kvarta?

FISKELDI

Stofnfiskur hf óskar eftir starfsmanni við almenn eldisstörf í fiskeldisstöð í Höfnum.

Í boði er spennandi starf hjá framsæknu fyrirtæki sem er í örum vexti og hefur á að skipa metnaðarfullt og samhent starfsfólk. Skrifleg umsókn ásamt ferilskrá skulu berast á netfangið solvi@stofnfiskur.is fyrir 18. september 2014.

vf.is

SÍMI 421 0000

Væri ekki til í vera að byrja í poppinu - Magnús og Jóhann með tónleika í Garðinum um helgina.

Þ

eir Magnús og Jóhann hafa verið að í tónlistinni síðan árið 1972. „Við köstuðum frá okkur rekunum og sögðum upp vinnunni. Við ætluðum að gera plötu.“ Þeir eru enn í fullu fjöri og hafa báðir lifað á tónlistinni í rúmlega 40 ár. Þeir gerðu síðast saman plötu árið 2012 en troða ennþá upp við hin ýmsu tilefni. Þeir slógu strax í gegn árið 72´ en þá var mikið að gera í að spila um allar trissur. Síðar fluttu þeir til Englands þar sem reyndu fyrir sér í tónlistinni. Allt fram til 1985 hafði Keflvíkingurinn Jóhann nóg á sinni könnu í tónlist. „Milli 1990-2000 þá var þetta orðið talsvert hark. Sem betur fer hafði ég vit á því að kaupa mér íbúð og koma undir mig fótunum þegar maður hafði sem mestar tekjur. Ég verð þó að segja það að ég myndi ekki vilja að við Maggi værum að byrja í dag. Plötusalan er alveg skelfileg. Það getur vel verið að þetta eigi eftir að jafna sig, maður veit ekkert um það, en mér finnst leiðinlegt hvernig þetta er orðið,“ segir Jóhann. Hann segist stundum hafa hugsað

um það að hætta en þá hafi jafnan einhver verkefni komið inn á borð til hans. „Maður hefur ekki mikið upp úr þessu en í gegnum tíðina hefur maður lært að lifa á þessu.“ Stolinn Söknuður? Magnús hefur samið ýmis þekkt lög sem hafa lifað með landanum. Eitt að þeim er lagið Söknuður sem Hafnarmaðurinn Vilhjálmur Vilhjálmsson gerði ódauðlegt á sínum tíma. Jóhann og fleiri telja að því lagi hafi verið stolið, en lagið You raise me up, með Josh Groban, er 97% líkt laginu hans Jóhanns. „Það er ennþá í ferli og enn vonarneisti,“ segir Jóhann en hann hefur lögsótt norska höfundinn sem samdi lagið. Sá norski dvaldi víst hér á Íslandi nokkrum sinnum og telur Jóhann allar líkur á því að hann heyrt Söknuð í einni af heimsóknum sínum hérlendis. „Þetta er erfitt mál þar sem stórir aðilar eru þarna á bakvið sem hafa réttinn. Jóhann hefur m.a. fengist við það að semja lög fyrir Umhyggju, félag langveikra barna. Hann segist vera með tilbúna plötu þar sem

hann semur lög við kvæði eftir séra Friðrik Friðriksson, en hann hefur fengist við að semja lög fyrir ljóð og kvæði í gegnum tíðina. Magnús og Jóhann halda nokkuð í ræturnar þrátt fyrir að vera búsettir utan Suðurnesjanna. Þeir spila mikið á svæðinu og troða m.a. upp í Garðinum á Tveimum vitum um helgina „Það eru sterkar þessar rætur í Keflavík. Það var gaman að alast þarna upp sem barn, mikið fjör,“ segir Jóhann sem þar fékk sitt tónlistarlega uppeldi. „Ég held að maður hefði aldrei orðið fyrir eins miklum áhrifum í tónlistinni, ef ekki hefði verið fyrir Kanaútvarpið. Maður hafði ekki efni á að kaupa sér mikið af plötum en þarna hefði hann heyrt alla flóruna. Maður var með þetta í eyrunum allan sólarhringinn. Það var svakaleg gróska hérna sem kannski var ekki til staðar annars staðar. Það er ekki hægt að horfa fram hjá því hvað margir tónlistarmenn komu frá svæðinu á ákveðnu tímabili,“ segir Jóhann.

+ www.vf.is

83% LESTUR

Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.


sKRáðu þIg á netto.Is/gRaenasKoRun

kakónibbur 300g mysuprótein iso 544g baunaprótein 340g fruit&green 283g 5.419kr|25%|4.064kr 1.798kr|25%|1.349kr 4.399kr|25%|3.299kr 1.298kr|25%|974kr

hörfræolía 250Ml 798kr|25%|599kr

hampolía 250Ml 1.498kr|25%|1.124kr

græn áskorun hIldaR &

naturata vanilluduft 529kr|25%|397kr

heilsu & lífsstílsdagar Skoðaðu bæklinginn á netto.iS

– fjöldi hugmynda, uppSkrifta og Spennandi tilboða

túrmerik 50g 549kr|25%|412kr

prófaðu kókosvatn í drykkinn til að gefa honum náttúrulegan ferskleikablæ og gera hann ríkari af steinefnum líf

kókosvatn 200 Ml 269kr|25%|202kr

rÆNT

hörfræ 500g 305kr|25%|229kr

hveitikím 500g

Isola RÍs/MöndluMJÓlK 1l 329kr|25%|247kr 539kr|25%|404kr

www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Hverafold · Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |

hampfræ 250g 655kr|25%|491kr

25%

afSláttur af yfir 1.500 heilSu- og lífSStílSvörum, þ.á.m. öllum vörum frá neðangreindum vörumerkjum:

tilboðin gilda 4. - 19. sept. 2014


8

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

15% * afsmlápatkktniungrum Af öllu

ptember

* Gildir í se

OPNAR ÆFINGAR

hjá Karlakór Keflavíkur 15. og 18. september nk. kl. 19:30 í Karlakórshúsinu á Vesturbraut. Spennandi verkefni framundan. Allir söngglaðir karlar eru velkomnir.

Stjórnin

Karlakór Keflavíkur

Hlaupa með „Loga vonarinnar“ í Belgíu T

Sími: 533 4455 netfang: www.netver.is Reynir Þorsteinsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.

Til leigu Fuglavík 18, Helguvík, Reykjanesbæ Við hliðina á Múrbúðinni

veir lögreglumenn á Suðurnesjum munu halda ti l Belgíu í vikunni til að taka þátt í kyndilhlaupi lögreglumanna á Evrópuleikum Special Olympics 2014, sem þar fara fram. Ísland fékk boð um að senda lögreglumenn í hóp lögreglumanna frá 15 öðrum Evrópulöndum sem munu hlaupa með kyndilinn, „Loga vonarinnar“ dagana 9.-13. september. Hafa þeir Guðmundur Sigurðsson rannsóknarlögreglumaður og Gunnar Schram yfirlögregluþjónn

Markmiðið er ekki að sigra andstæðinginn heldur að taka þátt og gera sitt besta. Lögreglumenn tóku í fyrsta skipti þátt í kyndilhlaupi við setningu Íslandsleika Special Olympics í nóvember í fyrra, sem fóru fram á Suðurnesjum í nóvember í fyrra. Lögreglumenn frá Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu tóku þátt og var lagt upp frá lögreglustöðinni við Hringbraut í Keflavík og hlaupið með kyndilinn inn á leikvöllinn þar sem eldur leikanna var tendraður með kyndlinum.

Lýsing byggingu Um er að ræða verslunar- og lagerhúsnæði við Fuglavík 18 í Helguvík, Reykjanesbæ. Byggingin er á einni hæð og er staðsteypt. Þrír inngangar eru inn í húsnæðið ein á framhlið með 11m2 anddyri, á bakhlið er ein gönguhurð og innkeyrsluhurð, stærð innkeyrsluhurðar er b 3,5m h 3,5m Stærð húsnæðisins er 400m2 17 bílastæði fylgja með húsnæðinu

Til leigu Fuglavík 18 í Reykjanesbæ Húsnæðið er óinnréttað, upphitun er gólfhiti. Allar lagnir eru til staðar ef breytta þarf innraskipulagi.

Um er að ræða verslunar- og lagerhúsnæði við Fuglavík 18 í Helguvík, Reykjanesbæ. Byggingin er á einni hæð og er staðsteypt. Þrír Húsnæðið er laust til leigu eftir samkomulagi. inngangar eru inn í húsnæðið ein á framhlið með Brunaviðvörunarkerfi er í húsnæðinu sem er tengt viðurkenndri vaktstöð. 11m2 anddyri, á bakhlið er ein gönguhurð og Verslunin Múrbúðin er starfrækt í suðurenda innkeyrsluhurð, stærð innkeyrsluhurðar er b 3,5m byggingarinnar. h 3,5m Húsnæðið er byggt árið 2007 Flugstöð Stærð húsnæðisins er 420,4 m2 17 bílastæði fylgja Leifs Eiríkssonar með húsnæðinu Húsnæðið er óinnréttað, upphitun er gólfhiti. Allar lagnir eru til staðar ef breytta þarf innraskipulagi. Teikningar fyrir breyttu innraskipulags er í boði ef þess þarf, skv. samkomulagi leigusala og leigutaka. Húsnæðið er laust til leigu eftir samkomulagi. Brunaviðvörunarkerfi er í húsnæðinu sem er tengt viðurkenndri vaktstöð. Verslunin Múrbúðin er starfrækt í suðurenda byggingarinnar. Húsnæðið er byggt árið 2008. Upplýsingar í síma 660 6470. Fuglavík 18

hjá lögreglunni á Suðurnesjum þegið það boð. Guðmundur er jafnframt formaður Nes, íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum. Þáttakendur á leikum Special Olympics eru einstaklingar með þroskahömlun, engin lágmörk þarf á leikana og allir keppa við sína jafningja. Hugmyndafræðin byggir á gildi umburðarlyndis og jafnræðis. Einnig að skapa einstaklingum með þroskahömlun tækifæri til þátttöku í íþróttastarfi þar sem virðing, vinátta og jafnræði ríkja og allir eru sigurvegarar.

Helguvík

Teikningar fyrir breyttu innraskipulags er í boði ef þess þarf, skv. samkomulagi leigusala og leigutaka.

Minningarsjóður Ölla gaf eina milljón króna til Velferðarsjóðs Suðurnesja

M

inningarsjóður Ölla veitti á laugardaginn var, Velferðarsjóði Suðurnesja styrk að upphæð ein milljón króna. Upphæðin safnaðist að stórum hluta í áheitasöfnun fyrir sjóðinn í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið sem fram fór þann 23. ágúst síðast liðinn en 45 hlauparar hlupu fyrir sjóðinn. Markmið Minningarsjóðs Ölla er að styrkja börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því vegna bágrar fjárhagsstöðu foreldra eða umsjónarmanna. Velferðarsjóður Suðurnesja mun eyrnamerkja upphæðina málefninu og styrkja þau börn á Suðurnesjum til íþróttaiðkunar sem á þurfa að halda. Velferðarsjóður Suðurnesja var stofnaður haustið 2008 en tilefnið var að mæta brýnni þörf á svæðinu fyrir félagslegan stuðning til viðbótar þeim úrræðum sem hið opinbera

veitir ásamt Hjálparstarfi kirkjunnar. Þórunn Íris Þórisdóttir tók á móti styrknum fyrir hönd sjóðsins en að þessu sinni afhentu fjórar glæsilegar íþróttastúlkur úr Reykjanesbæ styrkinn fyrir hönd minningarsjóðsins. Þær tóku allar þátt í áheitasöfnuninni fyrir Minningarsjóð Ölla í Reykjavíkurmaraþoninu. Myndin af hópnum sem fylgir með tilkynningunni er tekin við málverkið Von í kapellu Keflavíkurkirkju sem þótti vel við hæfi. Það er von þeirra sem standa að Minningarsjóði Ölla að styrkupphæðin muni nýtast börnum á svæðinu og gefa ungum hjörtum von sem og tækifæri til hreyfingar. Einnig vill sjóðurinn koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hlupu og söfnuðu áheitum í Reykjavíkurmaraþoninu og til þeirra sem hétu á hlauparana.


www.kia.com

7 ára ábyrgð á öllum nýjum Kia bílum.

Mikill bíll - frábært verð – Kia cee‘d Sportswagon

H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A – 1 4 - 1 7 3 9

ð arka Takm gn ma

Tilboðsverð

3.690.777 kr. Kia cee‘d Sportswagon EX 1,6 bensín, beinskiptur 6 gíra, 135 hestöfl.

Fengum takmarkað magn af ríkulega búnum Kia cee’d Sportswagon EX með öflugri bensínvél á sérstöku tilboðsverði. Dæmi um búnað: • 16” álfelgur • Loftkæling (A/C) • Cruise Control • Bakkskynjarar • Flex stýrisstilling

• Bluetooth • USB tengi • LED ljós • Aksturstölva • Hólf milli sæta

• Kastarar með beygjuskynjara • Hiti í stýri og framsætum • 525 lítra farangursrými og m.fl.

Komdu og reynsluaktu. Eigum bíla til afgreiðslu strax!

Holtsgötu 52 · Reykjanesbær · Sími 420 5000 · ksteinarsson.is

Aðeins 35.990

kr. á mánuði í 84 mánuði.*

* M.v. 1.600 þús. kr. útborgun eða uppítökubíl að sambærilegu verðmæti og bílalán Landsbankans í 84 mánuði. 9,4% óverðtryggðir vextir. Árleg hlutfallstala kostnaðar:11,14%.

Þú finnur „Kia Motors Ísland“ á Facebook

ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.


10

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

FEGURSTU GARÐAR REYKJANESBÆJAR

S

nemma í júní óskaði Umhverfis- og skipulagssvið eftir ábendingum frá bæjarbúum Reykjanesbæjar um góðan árangur í fegrun og hirðingu bæjarins. Fjölmargar ábendingar bárust sem allar voru skoðaðar. Að lokum voru eftirtaldir garðar valdir og þeim veitt viðurkenning við athöfn í Duus-húsum á dögunum.

Gígjuvellir 14 Fallegur garður Eigendur: Eyjólfur Garðarsson og Kristín G. Magnúsdóttir

Norðurgarður 23 Fallegur Fjölskyldugarður Eigendur: Sigurður G Gestsson og Ingveldur H Sigurðardóttir

Heimagisting Hafnargata 56 Viðurkenning fyrir fallega uppgert eldra hús og snyrtilegt umhverfi Eigendur: Renata El-Dursi.

Birkiteigur 33 Vel hirtur og fallegur garður Eigendur: Sveinn Brynjólfsson og Guðrún Þorsteinsdóttir

Smáratún 40 Skemmtilegur Yndisgarður Eigendur: Áslaug Hilmarsdóttir og Trausti Björnsson


www.volkswagen.is

Afmælispakkaður.

SI

ne 1.4 T Comfortli VW Golf tilboði: á afmælis

4.120.000 Þú sparar

kr. r.

615.000 k

Í tilefni af 40 ára afmæli VW Golf bjóðum við sérútbúna Comfortline og Highline bíla á einstöku tilboðsverði. Komdu og tryggðu þér einn pakkaðan af afmælisdóti, tilbúinn á götuna. Golf Comfortline 1.4 TSI sjálfskiptur Aukalega í afmælisútgáfu • 17" Dijon felgur með sportfjöðrun • Skyggðar rúður • Sportsæti • R-Line útlit • Xenon ljós með LED dagljósum • Panoramic sóllúga Afmælisbíll með aukabúnaði Tilboðsverð

3.850.000 kr.

Golf Highline 1.4 TSI sjálfskiptur

4.190.000 kr.

Aukalega í afmælisútgáfu • 17" Dijon felgur með sportfjöðrun • Skyggðar rúður • R-Line útlit • R-Line innrétting • Xenon ljós með LED dagljósum Afmælisbíll með aukabúnaði

4.965.000 kr.

4.735.000 kr.

4.120.000 kr.

Tilboðsverð

HEKLA Reykjanesbæ · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 420 3040 · heklarnb.is

4.360.000 kr.


Var blöðrunum sleppt í síðasta sinn? Margir vilja planta tjám í staðinn. Karla n kórin

Þúsundir gesta á 15. Ljósanæturhátíðinni L

jósanótt fór vel fram að þessu sinni og heimsóttu mörg þúsund gestir Reykjanesbæ. Að venju var fjölbreytt dagskrá í boði þar sem allir fundu eitthvað við sitt hæfi. Veðurguðirnir voru gestum hliðhollir að mestu en talsverð væta var á laugardeginum. Sólskin á fimmtudegi bætti það þó upp. Bæjarbúar skemmtu sér m.a. yfir dægurperlu Magga Kjartans, Skólaball, en sérstakur Stefnumótastaur var afhjúpaður fyrir framan Hljómval á Hafnargötu, en þar má hlusta á lagið góða hvenær sem er. Til þess að fá stemninguna beint í æð mælum við með Sjónvarpsþætti Víkurfrétta sem sýndur verður í kvöld kl. 21:30. Einnig má sjá hundruðir ljósmynda á vefsíðu okkar vf.is. Hér má hins vegar sjá brot af því besta frá liðinni hátíð.

uBrúð l bíl

Súpa


Bæjarstjórinn var í stuði á Ljósanótt

■■Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar skrifar:

Fimmtug og flott

Að lokinni Ljósanótt L

jósanótt í Reykjanesbæ er nú lokið á farsælan hátt og án alvarlegra slysa eða óhappa. Tugþúsundir manna sóttu hundruði viðburða og er talið að Ljósanóttin hafi aldrei verið stærri hvað varðar fjölda viðburða eða gesta. Því er full ástæða til að þakka öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd þessarar 15. Ljósanætur, sem og íbúum og gestum sem tóku virkan þátt í dagskránni. Nú munu starfsmenn og stjórnendur Reykjanesbæjar ásamt sam-

Gálan í stofunni hjá mömmu

Júdas

Árgangaganga

starfsaðilum rýna bæði það sem vel var gert og það sem betur má fara. Allar ábendingar og tillögur þess efnis eru því vel þegnar. Einstaka sýningar standa áfram næstu daga og vikur og því kjörið fyrir íbúa og gesti að skoða það sem þeir komust ekki yfir að skoða um helgina. Þannig teygjum við enn meira á jákvæðri upplifun og áhrifum Ljósanætur. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar


14

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-viðtal

pósturu olgabjort@vf.is

■■Hafa öll gengið í eða kennt við skólann:

NJARÐVÍKURSKÓLI UPPELDISSTÖÐ SKÓLASTJÓRNENDA „Njarðvíkurskóli er uppeldisstöð því ef þau hafa ekki kennt við skólann þá hafa þau gengið í hann,“ segir Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla um þá skemmtilegu staðreynd að allir núverandi skólastjórar grunnskólanna í Reykjanesbæ hafa einhver tengsl við Njarðvíkurskóla. Í skólanum starfa að sögn Ásgerðar einnig mjög margir sem áður voru nemendur þar. „Þá hlýtur þeim að hafa liðið vel í skólanum,“ segir hún og hlær. Olga Björt hitti skólastjórnendur úr Reykjanesbæ og fræðslustjóra bæjarins og gróf upp ýmsar skemmtilegar staðreyndir.

Elsti grunnskólinn Ásgerður segir Njarðvíkurskóla einnig njóta dálítillar sérstöðu vegna þess að grenndarsamfélagið er svo nátengt skólunum. „Njarðvíkurskóli er elsti grunnskólinn í Reykjanesbæ, 72 ára gamall, og fólk hefur svo miklar taugar til skólans. Það er viss eining í skólanum sem tengist út í samfélagið.“ Í Keflavík skiptust skólarnir niður eftir deildum og tengdust nemendur því ekki þeim í eins langan tíma í einu. „Það er enginn Keflavíkurskóli og það getur vel verið að Keflvíkingum finnist erfitt að fara í Njarðvíkurskóla. Einhvern tímann var stungið upp á því að breyta nafni skólans en ég sagði það ekki koma til greina,“ segir Ásgerður með áherslu.

Lengsti starfsaldur fjögur ár Sjálf er Ásgerður með lengsta starfsaldur grunnskólastjórnenda í Reykjanesbæ, en hún stýrir skólanum fjórða skólaárið. Einnig er hún fimmti skólastjórinn í langri sögu skólans. Mikil nýliðun og endurnýjun hefur átt sér stað í grunnskólum í Reykjanesbæ. Eðvarð Þór er á sínu fyrsta skólaári í Holtaskóla, einnig Bryndís í Myllubakkaskóla, Sigurbjörg hefur setið í þrjú ár í Akurskóla, Sóley í eitt ár í Heiðarskóla og Anna Sigríður einnig í Háaleitisskóla. „Stundum er verið að gantast í mér og kalla mig reynsluboltann,“ segir Ásgerður kímin. Konur í meirihluta Konur eru í meirihluta skólastjórnenda og aðstoðarskólastjórnenda á Suðurnesjum. „Á sínum tíma þegar Sigríður Ingibjörnsdóttir var yfirkennari í Njarðvíkurskóla, var hún eini kvenstjórnandinn á Suðurnesjum, á seinni hluta síðustu aldar. Þá voru bara Holtaskóli, Njarðvíkurskóli og Myllubakkaskóli á svæðinu sem nú er Reykjanesbær. Keflavíkurskólarnir skiptu á milli sín yngri deild og unglingadeild. Skólunum hefur fjölgað um þrjá síðan þá. Ásgerður segir að ástæða þess að fleiri konur eru skólastjórar núna sé kannski að fleiri konur eru í kennarastéttinni. „Einnig gæti það verið vegna álags í starfinu því það hefur breyst. Í gamla daga sátu skólastjórar í marga áratugi en ég held að fólk sjái sig ekki svo lengi í svona starfi í dag.“

Voru einfaldlega hæfastar Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, er sonur fyrrum skólastjóra Njarðvíkurskóla, Gylfa Guðmundssonar. Gylfi Jón tók hluta af starfsnámi í skólanum og kenndi þar í forföllum. „Sem sonur fyrrum skólastjóra verð ég að segja að það er áratuga hefð fyrir því að stjórnendur í Njarðvík sáu kröftugir. Það væri skemmtilegra ef þetta væri öðruvísi en þessar konur sem eru stjórnendur núna voru einfaldlega hæfastar umsækjenda þegar störfin voru auglýst. Það er reyndar skemmtileg tilviljum hversu vel þær þekkjast allar, eru í sömu saumaklúbbum, vinahópum og slíku.“ „Þær þola ekki bið“ Gylfi Jón segir að samkvæmt Skólavoginni séu kennarar í Reykjanesbæ mjög ánægðir með sína stjórnendur og ánægðari með sína stjórnendur en gengur og gerist annars staðar. „Þeir upplifa sig einnig fá meiri stuðning frá sínum stjórnendum. Ég hef það bara eftir ráðningaskrifstofunni, sem kom að ráðningu skólastjórnendanna, að skólastjórnendahópurinn í Reykjanesbæ sé með þeim sterkari á landinu.“ Það að konur eru í meirihuta segir Gylfi að endurspegli á einhvern hátt kynjahlutfallið í stéttinni en svo séu konur bara reiðubúnari að axla þessa ábyrgð. „Þetta eru flottar konur sem þora að stíga fram og koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Það eiga þær allar sameiginlegt að vera kappsamar og þær þola ekki bið. Það er ýtt við

Bryndís, Anna Sigríður, Gylfi Jón, Ásgerður, Sóley Halla, Sigurbjörg og Eðvarð Þór.

mér að svara erindum ef það eru liðnir klukkutímar eftir að bréfið var sent. Ég er bara umkringdur konum sem segja mér til. Það er ekki bara heima hjá mér,“ segir Gylfi Jón og hlær.

og höfum séð og upplifað ýmsar breytingar,“ segir Ásgerður. Gylfi Jón bætir inn í umræðuna að fyrsta embættisverk sitt sem fræðslustjóri hafi verið að skrifa undir þegar Ásgerður varð skólastjóri.

Heimaræktaðir skólastjórnendur Af hópnum sem blaðamaður Víkurfrétta hitti á Kaffitári nýverið hefur enginn utanaðkomandi verið ráðinn sem skólastjóri. Öll eru þau heimaræktaðir skólastjórnendur sem búa flest í hverfum skólanna sem þau stjórna og eiga öll eða hafa átt börn í grunnskólunum. Þá hafa þau öll tekið skref upp metorðastigann, verið t.d. deildarstjórar og/eða aðstoðarskólastjórar áður. „Ástríðan kemur vegna þess að við erum skólafólk í heimabyggð

Eins og aðgangsharður bekkur Skólastjórarnir eru sammála um að þau stefni öll að sameiginlegu markmiði, sem er fyrst og fremst velferð og fræðsla til barnanna. Sem hópur standa þau þétt saman og þekkjast vel. „Ég er hringjandi í ykkur öll og fæ mikinn stuðning í mínum fyrstu skrefum sem skólastjóri,“ segir Bryndís. Sóley Halla segir að sambandið sé mjög gott á milli allra í hópnum og Bryndís bætir við að mjög erfitt sé fyrir Gylfa Jón að halda skólastjórnarfundi. „Hann þarf að sýna ákveðni.

Ég heyrði aftur og aftur nöfn sömu kennara. Fólk sem bjargaði mannslífum og framtíð fólks


15

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. september 2014 Við erum dálítið eins og aðgangsharður bekkur.“ Gylfi Jón svarar um hæl: „Mér fellur vel að vera umkringdur fólki sem þolir ekki að bíða.“ Anna Sigríður bætir þá við að öll hafi þau miklar skoðanir á skólamálum og Sigurbjörg segir hlæjandi að lítið annað en skólamál séu rædd í hópum sem hún tengist, hvort sem það er saumaklúbbur eða gönguhópur. Til gamans má geta að Anna Sigríður er fyrsti ófríski starfandi skólastjóri Reykjanesbæ, en hún er komin fimm mánuði á leið.

þá næst árangur. Ef þessi ástríða er ekki til staðar þá þarf að finna annan vettvang,“ segir hún. Sóley Halla bætir við að hún skilji ekki hvers vegna fólk er í þessu starfi ef ástríðan er ekki til staðar. Ekki séu það launin sem sóst er eftir. Kennarar bjarga framtíð margra Gylfi Jón segir að svo séu sumir kennarar þannig að þegar sett eru til þeirra börn með gífurleg vandamál, þá er eins og að vandamálin hverfi. „Það virðist ekkert að þeim

Það er reyndar skemmtileg tilviljum hversu vel þær þekkjast allar, eru í sömu saumaklúbbum, vinahópum og slíku

Ásgerður Þorgeirsdóttir, skólastjóri Njarðvíkurskóla. Hefur einungis kennt við Njarðvíkurskóla frá því hún útskrifaðist fyrir 31 ári.

Ásgerður, Sigurbjörg og Sóley Halla eru í vinkonu-gönguhópi sem spjallar oftast um skólamál.

Bryndís B. Guðmundsdóttir, skólastjóri Myllubakkaskóla. Um tíma í starfsnámi við Njarðvíkurskóla.

á meðan þau eru hjá slíkum kennara. Síðan verður að skipta út kennurum og vandamálin blossa upp aftur. í Danmörku eru þessi börn kölluð fíflabörnin [út frá blóminu fífli]. Börn sem ná sér á strik þrátt fyrir herfilegar uppeldisaðstæður. „Ég á nokkra svona fífla hérna á Suðunesjum sem hafa klárað nám vegna þess að það voru kennarar sem höfðu trú á þeim. Ég heyrði aftur og aftur nöfn sömu kennara. Fólk sem bjargaði mannslífum og framtíð fólks,“ segir Gylfi Jón. Ásgerður bætir við: „Það er þessi trú sem skiptir máli. Að hafa trú á sjálfum sér og börnunum.“ Hópurinn tekur undir það.

Eðvarð Þór Eðvarðsson, skólastjóri Holtaskóla. Gekk og kenndi við Njarðvíkurskóla. Gylfi Jón Gylfason, fræðslustjóri Reykjanesbæjar. Um tíma í starfsnámi og forfallakennslu við Njarðvíkurskóla. Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla. Kenndi og gekk í Njarðvíkurskóla. Sóley Halla Þórhallsdóttir, skólastjóri Heiðarskóla. Kenndi um tíma í Njarðvíkurskóla.

Bryndís og Sigurbjörg eru í sama saumaklúbbi.

PIPAR\TBWA

SÍA

143045

Horfa reglulega inn á við Dálítil umræða verður í kjölfarið um störf skólastjórnenda og kennara. Gylfi Jón segir að skólastjórnandi þurfi í senn að vera með bein í nefinu en samt mjúkur sáttasemjari. Hann rifjar upp endurfund með fyrrum nemendum sem haft höfðu samband við þrjá af sínum uppáhaldskennurum og sögðu við þá að þeir hefðu alltaf gefið sér tíma til að tala við þau. „Kjarninn í kennslu er þessi. Að kenna og gefa þessa nærveru,“ segir Gylfi Jón. Ásgerður bætir við að kennsla sé ástríðustarf. „Það þarf reglulega að horfa inn á við og spyrja sig af hverju maður er í þessu starfi. Það þarf að leggja meira en 100% á sig,

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, skólastjóri Háaleitisskóla. Gekk í Njarðvíkurskóla.

Láttu Rekstrarland létta þér lífið Aðili að rammasamningum við ríki og Reykjavíkurborg

Við bjóðum mikið úrval hreinsiefna og hreinlætisvara fyrir stofnanir og almenn fyrirtæki. Sérsniðnar lausnir sem mæta þörfum hvers og eins hvort sem um er að ræða létt þrif eða sérþrif. Mikið úrval af moppum, klútum, ræstivögnum, hreinlætispappír og almennum ræstingaáhöldum. Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða hjá útibúum Olís um land allt.

Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.

www.rekstrarland.is

Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100


16

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

■■ Ljósmyndasýning Jóns Tómassonar opnuð á Ljósanótt 2014 í bíósal Duus-húsa:

Stórmerkilegt myndasafn úr sögu Keflavíkur 1940-1960 L

jósmyndasýningin „Ljósmyndarinn Jón Tómasson, aldarminning“ var sú sýning sem vakti hvað mesta athygli á Ljósanótt en hún var opnuð á fimmtudag í bíósal Duus-húsa. Þar gefur að líta úrval mannlífsmynda úr Keflavík á árunum 1940-1960 sem Jón tók en á þessum árum var hann nokkurs konar hirðljósmyndari bæjarins þó svo hann væri áhugaljósmyndari og sem símstöðvarstjóri á sama tíma. Myndir Jóns eru mjög skemmtilegar og ljóst var á viðbrögðum gesta að sýningin vakti gríðarlega lukku. Jón var ritstjóri FAXA, blaðs samnefnds málfundafélags í mörg ár. Hann ritaði margar áhugaverðar greinar í blaðið og var úrval nokk-

ura þeirra settar í sérútgáfu af Faxa sem dreift var á sýningunni. Margrét Jónsdóttir, ein af börnum Jóns segir að fjölskyldan hafi fengið lánaða tugi kassa með filmum sem Jón hafði gefið Byggðasafninu. Um var að ræða um átta þúsund myndir á nokkur hundruð filmum en myndirnar tók Jón á árunum 1940-1960 af mannlífi og atvinnulífi Keflavíkur og nágrennis á þeim tíma. Afkomendur Jóns fóru í gegnum allt safnið og voru skannaðar um 700 myndir sem nú eru aðgengilegar almenningi. Hluti þeirra er á sýningunni, bæði uppi á vegg og eins í stafrænu formi sem hægt er að skoða í tölvu. Þar er meira að segja hægt að bæta við upplýsingum við myndirnar.

Nokkrar stórmerkilegar blaðagreinar voru brotnar upp í afmælisútgáfu af Faxa og dreift á sýningunni. Til hliðar við dömurnar má sjá eina af merkilegustu ljósmyndum Jóns af olíuskipinu Clam, sem strandaði við Reykjanes.

JÓN TÓMASSON var lengst af stöðvarstjóri Pósts og Síma í Keflavík en hann gegndi því starfi frá 1940 til 1977 en þá stofnaði hann umboðsskrifstofu Jóns Tómassonar í Keflavík og rak hana í áratug. Þá flutti hann til Reykjavíkur. Jón stóð að stofnun nokkurra fyrirtækja á hans tíma í Keflavík og var m.a. í hreppsnefnd og síðan í fyrstu bæjarstjórn Keflavíkur 1946-1954. Hann sat í nokkrum nefndum á þeim tíma. Hann stóð eða tók þátt í stofnun nokkurra félaga í bænum, m.a. Karlakórs Keflavíkur, Tónlistarfélags Keflavíkur og Björgunarsveitarinnar Stakks. Hann var endurskoðandi Kaupfélags Suðurnesja í fjóra áratugi og ritari Krabbameinsfélags Suðurnesja í aldarfjórðung og tveimur árum skemur í Skátafélaginu Heiðarbúum. Jóni voru veittar ýmsar viðurkenningar fyrir fjölbreytt störf sín. Hann fékk m.a.a Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1990.

Guðlaugur Tómassson, eitt tveggja systkina Jóns á lífi er hér með dætrum sínum og frændfólki, f.v. Kristínu og Álfhildi og hjónunum Jórunni Tómasdóttur og Skúli Thoroddsen.

Hæg er að skoða fleiri myndir í stafrænu formi á skjá og í tölvum á sýningunni.

Skráning er hafin á ný námskeið hjá Gargandi snilld Byrjum miðvikudaginn 17. september Byrjendur-framhald-unglingar

Leikur, söngur glens og gleði Kennt verður á miðvikudögum, klukkutíma í senn í 8 vikur

Takmarkaður fjöldi í hvern hóp

Afkomendur Jóns Tómassonar sem komu að vinnslu ljósmyndasýningarinnar voru við formlega opnun hennar. Bjarni Jónsson er hér í ræðupúlti.

Allar nánari upplýsingar í síma 869 1006 - Guðný Kristjánsdóttir

Skráning á www.gargandisnilld.is

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 Ljósmyndirnar vöktu mikla athygli.


17

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. september 2014

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

Fyrsta fjölskyldusetur á landinu -gamla barnaskólahúsið í Keflavík fær nýtt hlutverk

Grunar að myglusveppur herji á Hæfingarstöðina XXGrunur er um að myglusveppur herji á húsnæði Hæfingarstöðvarinnar við Hafnargötu í Keflavík. Ráðist var í yfirgripsmiklar framkvæmdir síðasta sumar og haust til að útrýma honum, en svo virðist sem það hafi ekki tekist. Í ljósi eðlis starfsemi Hæfingarstöðvarinnar er mikilvægt að brugðist sé fljótt við og notendur og starfsmenn látnir njóta vafans. Málið var tekið fyrir á fundi fjölskyldu- og félagsmálaráðs Reykjanesbæjar [FFR] í gær. Þar kom fram að framkvæmdastjóri FFR hafi þegar gert öllum sem málinu tengjast grein fyrir stöðunni. Fjölskyldu- og félagsmálaráð telur mikilvægt að strax verði settur á laggirnar starfshópur um lausn á húsnæðismálum Hæfingarstöðvarinnar.

Vilja bogfimiaðstöðu í Vogum

F

jöldi fólks tók þátt í opnun Fjölskylduseturs Reykjanesbæjar um helgina, en það var formlega opnað sl. föstudag. Í setrinu eru eru fjórir þættir sem skipa stærstan sess í starfsmei þess; almenn foreldrafræðsla, sértæk námskeið, forvarnarmál og rannsóknir. Árni Sigfússon fráfarandi bæjarstjóri kynnti hugmyndafræði verkefnisins og tilurð þess. Að því loknu opnaði Anna Lóa Ólafsdóttir forseti bæjarstjórnar setrið formlega og ræddi um mikilvægi þess að samfélagið stæði saman í málefnum fjölskyldunnar og að Fjölskyldusetur væri góð viðbót við þau úrræði sem þegar standa fjölskyldum til boða í bæjarfélaginu. Anna Lóa Ólafsdóttir forseti

bæjarstjórnar afhenti einnig Kristínu Lind Steingrímsdóttur markaðsstjóra IKEA þakklætisvott fyrir rausnarlegan stuðning við verkefnið, en fyrirtækið sá um að innrétta húsið. Á laugardaginn var síðan opnunarhátíð í Fjölskyldusetrinu þar sem leikskólabörn í Reykjanesbæ voru sérstakir boðsgestir. Fjöldi fólks heimsótti setrið á opnuninni og lét vel af nýju hlutverki húsnæðisins að Skólavegi 1. Unga fólkið var ekki síður ánægt með daginn en sérstök barnadagskrá var fyrir yngstu kynslóðina. Að sögn Sigurðar Þorsteinssonar, yfirsálfræðings á fræðslusviði Reykjanesbæjar, og Maríu Gunnardóttur, forstöðumanns barnaverndar Reykjanesbæjar, er

Sigurður Þorsteinsson yfirsálfræðingur á fræðslusviði Reykjanesbæjar. Anna Hulda Einarsdóttir starfsmaður á Fjölskyldusetrinu og María Gunnardóttir, forstöðumaður barnaverndar Reykjanesbæjar.

hið sögufræga hús á Skólaveginum, tilvalið fyrir starfssemi að þessu tagi. Þar hafi alla tíð verið innanhús fræðsla af einhverju tagi. „Með fjölskyldusetrinu erum við að sameina allt það góða sem er í boði í Reykjanesbæ. Þetta er fyrsta fræðasetur fyrir fjölskyldur á landinu og við erum ægilega stolt af því að þetta skuli vera hér í Reykjanesbæ,“ segir María. „Við fæðumst ekki sem fullkomnir foreldrar. Við þurfum fræðslu og þess vegna er svo mikilvægt að samfélagið vilji þiggja þessa þjónustu. Sigurður segir að foreldrafræðsla byggist á því að gera foreldra betri í sínu hlutverki og styrkja þá. Að fólk sé öruggt og líði vel með það sem að er að gera. Notagildi hússins á að vera margþætt að sögn Sigurðar

Við fæðumst ekki sem fullkomnir foreldrar „Við erum að bjóða húsnæðið til annara stofnanna og félaga líka. Við viljum búa til sterka heild fyrir fjölskyldurnar hérna í bænum. Við viljum að allri þeir sem hafa eitthvað fram að færa hafi aðstöðu til þess að koma því áleiðis.

Langbest undir eitt þak XXVeitingastaðurinn Langbest á Hafnargötu hefur verið starfræktur í tæp 30 ár. Þrír eigendur hafa komið að rekstri á þessu tímabili og ávallt gengið vel. Árið 2000 tók staðurinn miklum breytingum eftir stórbruna sem varð þann 17. júní það ár. Allt húsnæðið var endurnýjað og öll afkastageta aukin til muna. Viðskiptavinum fjölgaði töluvert og staðurinn náði að festa sig í sessi hjá íbúum Reykjanesbæjar. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að árið 2008 opnaði nýr og stærri veitingastaður Langbest á Ásbrú. Öll aðstaða þar var til fyrirmyndar og staðurinn gat þjónað mun fleiri viðskiptavinum en á Hafnargötu. Báðir staðir Langbest hafa verið opnir frá árinu 2008 en langflestir viðskiptavina sækja staðinn á Ásbrú. Því tilkynnist það hér með að Langbest hefur flutt starfsemi sína frá Hafnargötu og sameinað allan rekstur undir einu þaki á Langbest Ásbrú. Eigendur og starfsfólk Langbest eru þakklát öllum þeim tryggu viðskiptavinum sem sóttu staðinn á Hafnargötu síðastliðin 17 ár. Hlökkum til að taka vel á móti ykkur á Ásbrú, segir í tilkynningunni.

www.lyfja.is www.lyfja.is - Lifi› heil

20% afsláttur

Gildir út september.

Nicorette

Fruitmint, forðaplástrar og innsogslyf. Allar pakkningar og styrkleikar.

Lægra Fyrir þig í verð í Lyfju Lyfju

ÍSLENSKA / SIA.IS / LYF 70355 08/14

Fjölmenni var við vígslu fjölskyldusetursins. Bæjarstjórinn og frú voru þar á meðal.

XXBæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur tekið fyrir bréf þeirra Sigurbjargar Erlu og Guðbjargar Viðju Pétursdætra. Þar leggja þær fram beiðni um aðstöðu til iðkunar bogfimi í sveitarfélaginu. Bæjarráð beinir erindinu til Frístunda- og menningarnefndar með ósk um að málið verði tekið til skoðunar.


18

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-mannlíf

pósturu vf@vf.is

MAGNÚS OG BÓ TÓKU LAGIÐ VIÐ STEFNUMÓTASTAURINN Fjölmenni var við vígslu staursins.

T

ónlistarmaðurinn Magnús Kjartansson, einn af „sonum“ Keflavíkur, kveikti á Stefnumótastaurnum á horni Hafnargötu og Tjarnargötu í Keflavík síðdegis á föstudag á Ljósanótt. Hugmyndin að staurnum á rætur að rekja til lags Magnúsar Kjartanssonar, Skólaball, sem hljómsveitin Brimkló flutti svo eftirminnilega á sínum tíma. Björgvin Halldórsson söng lagið og segir það eitt af vinsælustu lögum sem hann hafi sungið í gegnum tíðina. Við þetta skemmtilega tilefni tók Sönghópur Suðurnesja, sem Magnús stýrir, lagið og að lokum var það Björgvin Halldórsson sjálfur sem söng Skólaball með Magnúsi og Finnboga Kjartans-

syni. Fjölmenni var við athöfnina og stemmningin frábær. Tréstaur frá þessum tíma stendur nú á þessu þekkta götuhorni við Tjarnargötu og Hafnargötu og á örugglega eftir að draga að sér margt fólk. Á honum er platti þar sem lesa má um tilurð lagsins og einnig texti þess. Svo er hnappur sem kveikir á bút úr laginu sem hljómar úr hátalara á straurnum. Sagan segir að Magnús og vinur hans hafi verið skotnir í sömu stelpunni á skólaárum sínum eins og gengur og gerist. Á skólaballi sá Magnús á eftir vininum og stúlkunni læðast í burtu en sjálfur gekk hann særður út í nóttina. Hann kom sér síðan fyrir í skoti nálægt heimili hennar og beið átekta.

Stúlkan birtist loks en var snöktandi og hallaði sér upp að ljósastaurnum umrædda. Magnús tók þá á sig rögg, fór til stúlkunnar og huggaði og til að gera langa sögu stutta þá eru þau Magnús hjón enn þann dag í dag. Aðspurður segist Magnús hafa gaman af uppátækinu og hann vonist jafnvel til að þetta verði staður þar sem fólk fari á skeljarnar og beri upp bónorðið. Ljósanótt hefur gjarnan verið hvati fyrir íbúa og sveitarfélagið til að hrinda í framkvæmd skemmtilegum hugmyndum eða verkefnum sem eru til hagsbóta fyrir bæinn eða jafnvel krydda bara upp á tilveruna.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra úr Keflavík var fyrsta konan til að hitta Magga við nýja staurinn.

Magnús ýtir á hnappinn og lagbútur úr Skólaballi fór í gang við fögnuð viðstaddra.

STÖRF HJÁ ÍAV Í REYKJANESBÆ ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins sem byggir á áratuga reynslu í mannvirkjagerð.

Vegna aukinna verkefna óskar ÍAV eftir að ráða í eftirtalin störf á verkstæði félagsins í Reykjanesbæ.

Verkefni ÍAV eru á öllum sviðum byggingariðnaðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar eða aðra mann-virkjagerð sem og jarðgangagerð og jarðvinnuframkvæmdir bæði hérlendis og erlendis.

Bifvélavirki / vélvirki Mikilvægt er að viðkomandi hafi réttindi og reynslu af viðgerðum á stórum vinnuvélum. Nánari upplýsingar veitir Þórmar Viggósson í s. 660-6225.

Við leggjum mikla áherslu á að ráða til okkar kraftmikla og framsækna einstaklinga, með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og erum stolt af starfsandanum og þeim metnaði sem hjá okkur ríkir. ÍAV er eina verktakafyrirtækið á Íslandi sem hefur bæði ISO 9001 gæðavottun og OSHAS 18001 öryggisvottun.

Járniðnaðarmaður Mikilvægt er að viðkomandi hafi réttindi og reynslu af járnsmíðavinnu. Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Hauksson í s. 660-8134. Iðnnemar Einnig er óskað eftir umsóknum frá iðnnemum sem vilja komast á samning. Umsóknir má finna á heimasíðu ÍAV, www.iav.is.

Við breytum vilja í verk ISO 9001

OHSAS 18001

FM 512106

OHS 606809

Quality Management

ÍAV hf. | Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | s. 530 4200 | www.iav.is

Occupational Health and Safety Management

Eldur í bíl á Miðnesheiði XXEldur kom upp í bíl á veginum milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Sandgerðis á ellefta tímanum. Fulltrúar frá Brunavörnum Suðurnesja voru á staðnum ásamt lögreglu sem lokaði veginum tímabundið. Bílstjórinn var einn í bílnum þegar hann drap skyndilega á sér og vart var við reyk. Bílstjórinn fór þá út úr bílnum og opnaði vélarhlífina. Þá var eldur kominn upp undir mælaborðinu sem breiddist ekki mikið út vegna þess að bílhurðir og gluggar voru lokuð. Bíllinn er talsvert skemmdur eins og meðfylgjandi myndir sýnir.


19

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. september 2014

-fréttir

pósturu vf@vf.is

Garðskagaviti fagnar 70 ára afmæli

Garðskagaviti er 28,6 m að hæð með ljóshúsi. Vitinn er 70 ára um þessar mundir.

Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,

Þórir Magnússon, Ásabraut 3, Keflavík,

lést á Heilbrigðisstofnum Suðurnesja þriðjudaginn 2. september. Jarðarförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 15. september kl. 13:00. Aðstandendur vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til starfsfólks sjúkrahússins í Keflavík. Jensía Michala Leo, Gilbert Leo Þórisson, Steinunn J. Leo Þórisdóttir, barnabörn.

Sjöfn Anna Halldórsdóttir, Jóhann Sigurðsson,

–afmælishátíð í Garði 14. september nk.

Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa

Guðmundur Jóhannsson, Vallarbraut 6, Reykjanesbæ.

G

arðskagaviti fagnar 70 ára afmæli um þessar mundir. Vitinn var formlega vígður þann 10. september lýðveldisárið 1944 en hann var byggður á þremur mánuðum af 10-15 manna vinnuflokki, undir stjórn Sigurðar Péturssonar frá Sauðárkróki. Hinn reisulegi Garðskagaviti, sem hannaður er af Axel Sveinssyni verkfræðingi, kom í stað eldri Garðskagavita sem þótti of lágur og einnig í hættu vegna landbrots. Hinn sívali kóníski steinsteyputurn er 28,6 m að hæð með ljóshúsi sem er ensk smíð. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en var kústaður með hvítu viðgerðar- og þéttiefni árið 1986. Í fyrstu voru notuð ljóstækin úr eldri Garðskagavitanum en árið 1946 var vitinn rafvæddur. Árið 1960 var skipt um linsu og í stað linsunnar frá 1897 var sett fjórföld snúiningslinsa.

Sérstakar þakkir fær starfsfólk D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og heimahjúkrun, fyrir alúð og umhyggju.

Garðskagi var einn þeirra vitastaða þar sem vitavörður hafði fasta búsetu og stóð svo fram til 1979. Vitavarðarhús stendur enn en það var byggt árið 1933 eftir teikningum Einars Erlendssonar arkitekts. Garðskagaviti var vígður sunnudaginn 10. september 1944, með mikilli viðhöfn. Fór vígslan fram með útiguðsþjónustu. Séra Eiríkur Brynjólfsson, sóknarprestur predikaði, kirkjukórar Útskála- og Keflavíkursókna sungu, en Emil Jónsson, vitamálastjóri flutti vígsluræðuna. þakkaði hann sóknarprestinum, séra Eiríki Brynjólfssyni á Útskálum, sem hafði undirbúið hátíðarhaldið, en það væri í fyrsta sinn sem tekið væri á móti nýjum vita í héraði af slíkum myndarskap, segir í samantekt á vef Sveitarfélagsins Garðs. „Minnir það mig á,“ sagði Emil í ræðu sinni, „að fyrstu sagnir um leiðarljós fyrir sjómenn á Íslandi,

-aðsent

eru tengdar við kirkjuna. Mér hefir verið á það bent, að verið hafi hér til forna, um 1200 og jafnvel fyrr ákvæði um að ljós skyldi loga í ákveðnum kirkjum, allar nætur tiltekin tímabil. Þegar þessi ákvæði voru rannsökuð nánar kom í ljós, að flestar þær kirkjur, sem hér var um að ræða, voru nálægt sjó, og á þeim stöðum þar sem ætla má að sjófarendur hafi getað notið þeirra.“ Á fundi ferða-, safna- og menningarnefndar Sveitarfélagsins Garðs í júlí lagði Guðmundur Magnússon fram nokkrar hugmyndir um menningartengda viðburði í Garði og m.a. að haldið verði viðburður í tilefni af 70 ára afmæli Garðskagavita. Sunnudaginn 14. september verður sérstök afmælishátíð í Garði þar sem tímamótanna verður minnst með formlegum hætti.

pósturu vf@vf.is

Elísabet Vigfúsdóttir, Vignir Guðmundsson, Jadvyga Usvaltiene, Ásthildur Guðmundsdóttir, Hafsteinn Benediktsson, Ingvar Guðmundsson, Sólveig Þorsteinsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og afi,

Markús Karl Valsson, Heiðartúni 4 Garði,

lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Útskálakirkju þriðjudaginn 16. september. Guðrún Sonja Hreinsdóttir, Jóhanna Andrea Markúsdóttir, Guðmundur Hreinn Markússon, Valur Ingi Markússon, Þorvaldur Markússon, Jóhanna Andrea Markúsdóttir, Þórunn Ólöf Valsdóttir, Kristinn Ingi Valsson, Daníel Þór Valsson, Markús Hreinn Jóhönnuson.

Valur Kristinsson,

■■Skúli Skúlason Formaður Kaupfélags Suðurnesja skrifar:

Vangaveltur um nýjar leiðir Hvernig ætli samfélag okkar hér á Suðurnesjum komi til með að líta út árið 2034? Eftir tuttugu ár. Þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör. Viðfangsefnin virðast fjölþætt og flókin og erfitt fyrir einstakling, einn hóp og jafnvel okkur öll sem myndum þetta litla samfélag að ná greinargóðri sýn á málið. Stóra spurningin er þó í raun sú hvort við viljum sem heild takast á við viðfangsefnið og leggja línur um það hvernig við viljum að samfélagið hér suður með sjó verði 2034. Hvað þarf til að framtíðin verði skýr? Svarið liggur í vilja okkar til samstarfs.

Að brúa bil

Við höfum treyst um of á stjórnmálin sem hreyfiafl framfara. Stuðningur atvinnulífs, vísindasamfélags og stjórnsýslu er vannýttur þegar setja skal samfélagi markmið sem standa eiga ofar þröngum sérhagsmunum. Breiður samráðsvettvangur ólíkra aðila sem mætast á jafnréttisgrundvelli og vinna samkvæmt ákveðinni forskrift myndi lyfta slíkri vinnu upp fyrir þröng skammtímasjónarmið. Þverpólitísk og þverfagleg nálgun er líkleg til að stuðla að heildstæðri og

uppbyggilegri umræðu sem stuðlað getur að aukinni hagsæld íbúa, stöðugleika og trúverðugleika okkar Suðurnesjamanna. Ég tel að það væri okkur gagnlegt ef við settum okkur það sameiginlega markmið að skilgreina hvernig við viljum að samfélagið okkar hér á Suðurnesjum skuli líta út árið 2034.

Vernd gegn pólitískum áhrifum

Eðli stjórnmála er því miður oft þannig háttað að hagsmunagæsla til skamms tíma ræður of oft för. Sveitarfélag er hins vegar samfélag sem er mun stærra í eðli sínu, samanstendur af öllum sem þar búa og öllu sem þar gerist. Traust var lykilorð eftir hrun og þjóðin þráði að hægt væri að endurvekja þetta mikilvæga gildi. Traust er ekki byggt upp með sérhagsmunagæslu. Allir þeir sem hafa áhrif á ímynd samfélagsins bera ábyrgð á því og hvaða augum gestir sjá okkur. Í sumum löndum hafa t.d. verið sett lög sem vernda stjórnsýslu fyrir áhrifum pólitískra sérhagsmuna. Ástæðan er sú að það er of nærtæk freisting fyrir marga að beita óæskilegum áhrifum á starfsmenn og millistjórnendur til að ná ákveðnum skammtímamarkmiðum, en slíkt dregur að sjálfsögðu úr trúverðugleika stjórnsýslunnar. Starfsfólk stjórnsýslunnar er oft sett í óþægi-

lega stöðu þegar stjórnmálamenn fara fram á þátttöku í verkefnum eða vinnu við tiltekin markmið sem ekki tilheyra vinnuréttarsambandi starfsfólksins og vinnuveitanda. Stjórnsýsla hvers samfélags þarf að gæta að reisn sinni og kannski þarf hún frekari vernd gegn pólitískum þrýstingi.

Vettvangur um sameiginlega framtíðarsýn

Hagvöxtur er grundvöllur góðra lífskjara. Þrátt fyrir að endanleg markmið séu jafnframt önnur og fleiri, t.a.m. um hærra menntunarstig, góða heilbrigðisþjónustu, öflugt velferðarkerfi og skilvirkt húsnæðiskerfi þá myndar hagvöxtur mikilvægan grunn til að tryggja þá þætti. Samráðsvettvangur um aukna hagsæld á Suðurnesjum er eftirsóknarvert viðfangsefni. Þar gerðu íbúar tillögur um sameiginlega framtíðarsýn varðandi t.d. sameiningu sveitarfélaga, opinbera þjónustu, almennt þjónustustig við íbúa, skipulagsmál, auðlindir svæðisins og umhverfismál, atvinnuuppbyggingu, alþjóðaflugvöllinn, ferðaþjónustuna, sjávarútveginn, menntamál, velferðarmál og fjármál. Fyrirmyndir eru víða til og samanburður við það besta sjálfsagt einnig. Skúli Skúlason Formaður Kaupfélags Suðurnesja

KVENNAKVÖLD GS FÖSTUDAGINN 26. SEPTEMBER 2014 Í GOLFSKÁLANUM Í LEIRU KL. 19:00 - 01:00. HÚSIÐ OPNAR KL. 19:00. SMÁRÉTTIR FRÁ GUNNA PALLA BOÐIÐ UPP Á GEYSIGÓÐAN FORDRYKK GLÆSILEGT HAPPDRÆTTI DAGSKRÁIN HEFST KL. 20:00. VEISLUSTJÓRI: ANNA LÓA RÆÐUMAÐUR KVÖLDSINS: RAGNHEIÐUR ELÍN ÁRNADÓTTIR HELGA BRAGA MEÐ UPPISTAND VIGNIR OG JÓGVAN SPILA MIÐAVERÐ KR. 4.500. MIÐASALA FER FRAM Á TANNLÆKNASTOFU KRISTÍNAR HAFNARGÖTU 45 KEFLAVÍK


20

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-uppboð Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Bjarkartún 5 fnr. 229-1733, Garður, þingl. eig. Kristrún Birgitta Hreinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 08:45. Brekkustígur 6 fnr. 209-4677, Sandgerði, þingl. eig. Ármann Helgason, gerðarbeiðendur Gildi - lífeyrissjóður og Sandgerðisbær, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 09:25. Heiðarholt 13 fnr. 229-1744, Garður, þingl. eig. Gunnar Traustason og Guðný Margrét Guðnadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn á Blönduósi, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 08:55. Holtsgata 1 fnr. 209-3605, Njarðvík, þingl. eig. Jóhannes Helgi Einarsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 11:05. Holtsgata 44, fnr. 209-4899, Sandgerði, þingl. eig. Stefán Jóhann Heiðarsson og Soffía Jóhannsdóttir Hauth, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær, Sjóvá-Almennar tryggingar hf og SjóváAlmennar tryggingar hf., þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 10:35. Lækjamót 2 fnr. 229-0169, Sandgerði, þingl. eig. Kjartan Jónsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Sandgerðisbær og Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 09:45. Lækjamót 67 fnr. 229-0724, Sandgerði, þingl. eig. Guðbjörg Sigríður Óskarsdóttir og Hans Ómar Borgarsson, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær og Vörður tryggingar hf., þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 09:55. Lækjamót 97 fnr. 230-9027, Sandgerði, þingl. eig. Lilja Dögg Karlsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 10:05. Nátthagi 15 fnr. 227-0580, Sandgerði, þingl. eig. Nátthagi 15 ehf., gerðarbeiðandi Steinþór Jónsson, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 09:10. Norðurgata 11A fnr. 209-4921, Sandgerði, þingl. eig. N.G. matvæli ehf, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær og Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 09:35. Steinás 31 fnr. 227-4310, Njarðvík þingl. eig. Elísabet Gallagher og Trausti Már Traustason, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Sýslumaðurinn í Keflavík, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 10:55. Suðurgata 9 fnr. 209-5070, Sandgerði, þingl. eig. Jóhann Pétur Leifsson og Ingibjörg Oddný Karlsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandsbanki hf, Nova ehf og Vátryggingafélag Íslands hf, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 10:25. Túngata 1 fnr. 209-5150, Sandgerði , þingl. eig. Helgi Karl Hafdal, gerðar-

pósturu vf@vf.is beiðandi Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 16. september 2014 kl. 10:15. Sýslumaðurinn í Keflavík, 9. september 2014. Ásgeir Eikríksson, sýslumannsfulltrúi. Sýslumaðurinn í Keflavík Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Ásabraut 3 fnr. 208-6837, Keflavík, þingl. eig. Sumarliði Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 11:00. Bergvegur 14 fnr. 209-1380, Keflavík, þingl. eig. Ásdís Fjóla Gunnarsdóttir, gerðarbeiðendur HS veitur hf og Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 10:40. Flugvellir 6 fnr. 231-1304, Keflavík, þingl. eig. þb. SÞ1956 ehf., gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 09:30. Greniteigur 19 fnr. 208-7776, Keflavík, þingl. eig. Jón Ingi Ingibergsson, gerðarbeiðendur Fjarskipti hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 10:20. Heiðarholt 4 fnr. 208-8717, Keflavík, þingl. eig. Grétar Þór Hafþórsson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 09:55. Heiðarholt 8 fnr. 208-8738, Keflavík, þingl. eig. Rakel Guðbjörg Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 10:10. Kirkjuvegur 52 fnr. 208-9688, Keflavík 33,33% eh. gþ., þingl. eig. Rafal Sobczak, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Blönduósi og Sýslumaðurinn í Keflavík, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 10:30. Mávabraut 9 fnr. 208-9946, Keflavík, þingl. eig. Börkur Birgisson, gerðarbeiðendur Mávabraut 7-9,húsfélag og Reykjanesbær, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 09:05. Nesvegur 5 fnr. 209-4342, Hafnir, þingl. eig. Hafrún Erla Jarlsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 11:30. Suðurgata 24, fnr. 209-0706, Keflavík, þingl. eig. Svanfríður Aradóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 10:50. Þverholt 14 fnr. 209-1341, Keflavík, þingl. eig. Gunnólfur Árnason og Fanney Bjarnadóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 17. september 2014 kl. 09:20. Sýslumaðurinn í Keflavík, 9. september 2014. Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Vatnsnesvegi 33, 230 Keflavík, s: 4202400 UPPBOÐ Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Akurbraut 21 fnr. 209-4282, Njarðvík 50% eignahl. gþ., þingl. eig. Kristján Friðrik Olgeirsson, gerðarbeiðandi Samskip hf., fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 09:00. Akurgerði 15 fnr. 209-6304, Vogar, þingl. eig. Anna Lára Steingrímsdóttir og Þórólfur Gunnarsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 10:20. Beykidalur 10 fnr. 230-3175, Njarðvík, þingl. eig. Björk Bjarnadóttir og Guðjón Hauksson, gerðarbeiðandi Nesbyggð eignarhaldsfélag ehf., fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 09:30. Brekadalur 12 fnr. 229-4381, Njarðvík, þingl. eig. Sigfús Pétursson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 09:20. Furudalur 6 fnr. 230-0967, Njarðvík, þingl. eig. Karólína S Sigurðardóttir og Jón Sigurðsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjanesbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 09:40. Hafnargata 30 fnr. 209-6412 Vogar, þingl. eig. Selma Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf, Sveitarfélagið Vogar og Vátryggingafélag Íslands hf, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 10:00. Njarðvíkurbraut 12 fnr. 209-3978, Njarðvík, þingl. eig. Sigríður Kristín Eysteinsdóttir og Guðmundur R Lúðvíksson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 09:10. Skólatún 1 fnr. 209-6686, Vogar, þingl. eig. Erla Bryndís Valdemarsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 10:35. Túngata 19 fnr. 209-2436, Grindavík, þingl. eig. Garðar Páll Vignisson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 11:25. Víkurbraut 38 fnr. 209-2541, Grindavík, þingl. eig. Sigurður Þór Jónsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 11:15. Víkurbraut 54 fnr 209-2564, Grindavík, þingl. eig. Jóhann Helgi Aðalgeirsson, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær, Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 11:05. Vogagerði 31, 0201, fnr. 209-6599, Vogum, þingl. eig. Tatiya Tohmudbamrung og Gestur Þ Þórhallsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi, fimmtudaginn 18. september 2014 kl. 10:10. Sýslumaðurinn í Keflavík, 9. september 2014. Ásgeir Eiríksson, sýslumannsfulltrúi.

Sýslumaðurinn í Keflavík

Sjónvarp Víkurfrétta Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001

-fs-ingur

vikunnar

Vill stúdentaafslátt í Ríkinu

Björn Elvar Þ orle hefur talsverð ifsson er 19 ára strákur úr an áhuga á tó Keflavík. Han nl n hana fyrir sig í framtíðinni. ist og vonast til þess að le H gg vera þann að an ja n se gi r si nn helsta galla ha skólameistar nn vaknar helst ekki við ne i FS, þá myndi itt. Ef Björn væ hann halda bö redda stúden taafslætti í R ll á föstudög ri um og íkinu. Á hvaða braut ertu? Ég er alltaf á einhverju flakki varðandi það en á þessari önn er ég á viðskipta- og hagfræðibraut.

Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Gott hingað til, en ég held að þetta skólaár verði á öðru leveli.

Hvaðan ertu og aldur? Straight outta Keflavík, 19.

Áhugamál? Hef rosalega gaman að kynna mér allt í tónlist.

Helsti kostur FS? Æðislegt fólk og að það sé nálægt býlinu mínu. Hjúskaparstaða? Ég er bara í frábæru sambandi! Hvað hræðistu mest? Geitunga. Very spooky.

Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Vonandi eitthvað sem varðar tónlist. Ertu að vinna með skóla? Ég er ekki svona duglegur. Hver er best klædd/ur í FS? Hjörtur Már Atlason.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Við eigum nokkrar íþróttarstjörnur, en ef ég ætti að nefna einhvern þá væri það Ólafur Ingvi Hansson.

Eftirlætis:

Hver er fyndnastur í skólanum? Arnór Grétars, það sem kemur upp úr honum er það mikilvægt að við stofnuðum twitter sem pósta quote frá honum.

Fag í skólanum Enska.

Kennari Ég þarf eiginlega að segja Rósa út af pabba mínum.

Hvað sástu síðast í bíó? Let's Be Cops, hún stóðst alveg væntingar.

Sjónvarpsþættir Masterchef, Breaking Bad, Nathan For You og 30 Rock.

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Blátt Powerade og kleinuhringi sem kosta ekki á þér hægra eistað.

Kvikmynd Mean Girls, Space Jam, Black Dynamite, Friday og Pootie Tang.

Hver er þinn helsti galli? Svefninn, ég vakna ekki við neitt. Hvað er heitasta parið í skólanum? Ég get ekki einu sinni gert djóksvar hérna, ég er það týndur í þessu öllu. Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Böll á föstudögum, redda stúdentaafslætti í Ríkinu. Áttu þér viðurnefni? Bjösmaskínen. Vélin. Bjössi Beatz. Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Ég er nú bara í því að nota adlibs frá Young Thug og Migos. Svo bara basic sjomla/fótbolta tal, alltaf granít.

Hljómsveit/tónlistarmaður Boards of Canada, J Dilla, Migos, DJ Screw, Young Thug, Kanye West, Death Grips, Gucci Mane, UGK og Three 6 Mafia. Leikari Christoph Waltz. Vefsíður reddit.com/r/hiphopheads, rateyourmusic og twitter. Flíkin Hellaða Adidas húfan sem ég keypti á fimm evrur og græni jakkinn. Skyndibiti Hamborgari, klárlega. Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi (guilty pleasure)? R. Kelly. Útaf atvikinu, já, það atvik.

póstur u eythor@vf.is


21

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. september 2014

-instagramleikur

pósturu vf@vf.is

Íslensk útilegutónlist klikkar aldrei

Birgitta Ína Unnarsdóttir sigurvegari Instagramleik Ljósanætur 2014.

Fjölbreytt flóra mynda - Sigurmyndirnar í Instagram leik VF og RNB

i t æ s . 1

Gríðarlega góð þátttaka var í Instagram leik Víkurfrétta og Reykjanesbæjar þetta árið og reyndist erfitt að velja einungis þrjár myndir sem þóttu bera af. Sigurvegari var Birgitta Ína Unnarsdóttir sem tók þessa glæsilegu mynd af setningu Ljósanætur við Myllubakkaskóla. Dómnefnd þótti myndin frumleg, falleg og nokkuð lýsandi fyrir Ljósanótt. Birgitta hlýtur að launum sex mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 49.990 kr, ásamt IdeaTab A7600 spjaldtölvu frá Lenovo frá Nýherja að verðmæti 35 þúsund. Spræk og skemmtileg spjaldtölva sem hentar vel í alla afspilun og leiki.

Dómnefnd skipuðu þau Óli Haukur Mýrdal ljósmyndari, Guðrún Þorsteinsdóttir hjá Reykjanesbæ og Eyþór Sæmundsson blaðamaður Víkurfrétta.

i t æ s . 2

-afþreying

Arndís Ingvarsdóttir er 20 ára nýstúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá því í vor. Arndís vinnur hjá IGS í augnablikinu en byrjar í september að vinna á leikskólanum Garðaseli. Hún er einnig á fullu í fótboltanum með Keflvíkingum í 1. deild en þar er hún iðin við markaskorun. Arndís hefur gaman af skáldsögum, hlustar á kósý tónlist og vill helst glápa á drama og glæpaþætti í sjónvarpinu. Bókin Síðasta bók sem ég las var The Fault in Our Stars. Bókin er um unglingana Hazel og Augustus en þau eru bæði krabbameinssjúklingar. Bókin fjallar um samband þeirra og erfiðleikana í kringum krabbameinið. Ég var búin að bíða rosalega spennt eftir að lesa þessa bók og ég varð heldur betur ekki fyrir vonbrigðum! Ég hef mjög gaman af skáldsögum en næsta bók sem ég væri til í að lesa er „Ég er á lífi, pabbi,“ frásögn Siri og nokkurra annarra sem upplifðu árásina á Útey í Noregi árið 2011. Tónlistin Ég get hlustað á nánast alla tónlist en uppáhalds tónlistin mín er þessi rólega kósý tónlist. Uppáhalds hljómsveitin mín er Coldplay og svo eru tónlistarmennirnir Ed Sheeran og Sam Smith virkilega góðir en ef það er eitthvað sem klikkar aldrei þá er það íslensk útilegutónlist og lögin með hljómsveitinni Queen. Sjónvarpsþátturinn Í augnablikinu er ég að horfa á Grey´s Anatomy og Criminal Minds en ég er oft að flakka á milli þátta og horfi mikið á Gossip Girl, One Tree Hill, Law & Order og eiginlega bara þá þætti sem mér dettur í hug á því augnabliki. Ég er mikið fyrir drama og glæpaþætti en ef ég ætti að velja einn uppáhalds þátt þá er það án efa Friends.

i t æ s . 3

póstur u eythor@vf.is

LÍFSSTÍLL

VIÐ FRAMLENGJUM LJÓSANÆTUR TILBOÐIÐ VEGNA FJÖLDA ÁSKORANNA Til 13. Sept ;0)

LJÓSANÆTUR TILBOÐ

Æfðu FRÍTT í 1 mánuð, ef þú gengur í Lífsstíls Klúbbinn þá bjóðum við þér fyrsta mánuðinn FRÍAN. 4.400.- kr á mánuði, 3.800.- kr fyrir skólafólk Árskort á kr. 39.900.- eingreiðsla 4 Mánuðir á kr. 19.300.1 Mánuður á kr. 6.900.VIÐ FRAMLENGJUM TILBOÐIÐ Til 13. Sept ;0)

Lífssíll býður þér uppá: Í öðru sæti var þessi skemmtilega mynd frá Berglindi Ásgeirsdóttur. Hún hlýtur að launum Þriggja mánaða kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 29.990 kr. Árskort í Sundmiðstöð/Vatnaveröld Sunnubraut að verðmæti 22. þús.

Í þriðja sæti var þessi frábæra mynd þar frá sem nýju bæjarstjórahjónin horfa yfir tómt hátíðarsvæðið. Frábært augnablik. Guðrún Ösp Theodórsdóttir tók myndina en hún hlýtur að launum 15 þúsund kr. inneign í Nettó Krossmóa og eins mánaðar kort í Sporthúsið á Ásbrú að verðmæti 13.990 kr.

….Fjölbreytta Tímatöflu Opinna tíma, ....fagmannleg Námskeið við ALLRA hæfi ….Einkaþjálfara sem hjálpa þér að ná settu marki ….Fullbúinn og hlýlegann Tækjasal ….SÓL ALLA DAGA, 420 7001 Lífsstíll, Heimilisleg Líkamsrækt fyrir ÞIG í 17 ár


22

fimmtudagurinn 11. september 2014 • VÍKURFRÉTTIR

-íþróttir

pósturu eythor@vf.is

Sigursælar golfstelpur úr GS

Aníta Lóa og Pétur Fannar

G

Kristófer Haukur og Sara Dögg

olfsysturnar Kinga og Zuzanna Korpak voru sigursælar á Íslandsbankamótaröð unglinga í golfi. Þær unnu saman fimm af sex mótum sumarsins. Zuzanna sigraði á síðasta mótinu sem fram fór á Korpu sl. helgi og vann tvö mót en yngri systir hennar vann þrjú mót. Kinga varð stigameistari með 8670 stig en Zuzanna varð önnur með 8047 stig. Sannarlega frábær árangur hjá þeim í sumar. Þær systur hafa æft golf í nokkur ár en Zuzanna hætti þó um tíma en byrjaði aftur fyrir ári síðan. Hún verður 14 ára í nóvember en Kinga er 10 ára og verður 11 ára í desember.

Kristófer og Aníta fara á hvert stórmótið á fætur öðru K

á heimsmeistaramót ungmenna í standard dönsum sem haldið er í Moldavíu þann 11.október. Einungis tvö pör frá hverju landi fá að fara á svona mót og er það því afar skemmtilegt að það séu systkini sem fari á þessi mót fyrir Íslands hönd.

ristófer Haukur og Aníta Lóa, systkini úr Njarðvík, ásamt dansfélögum sínum Söru Dögg og Pétri Fannari hafa verið valin til að fara á Evrópumót ungmenna í standard dönsum sem haldið er í Rúmeníu þann 21. september. Einnig fara þau

Fleiri unglingar í GS hafa staðið sig vel í sumar. Birkir Orri Viðarsson varð í 5. sæti í heildarstigakeppninni í flokki 14 ára og yngri drengja. Hann vann eitt mót og varð annar í Íslandsmótinu í holukeppni. Þá varað Róbert Smári Jónsson í 9. sæti í stigakeppninni hjá 15-16 ára piltum og Laufey Jóna Jónsdóttir varð í 10. sæti í stigakeppninni í sama aldursflokki hjá stúlkum. Ungir kylfingar í GS hafa því verið áberandi í verðlaunum í sumar að ógleymdri Karen Guðnadóttur í meistaraflokki kvenna en hún varð stigameistari á Eimskipsmótaröðinni sem er frábær árangur hjá henni.

Korpak systurnar eru bestu golfstelpur á Íslandi.

Aníta Lóa og dansfélagi hennar Pétur Fannar eru einnig að fara á heimsmeistaramót fullorðinna í latin dönsum sem haldið er í Tékklandi þann 5. október og svo á heimsmeistaramót ungmenna í 10 dönsum sem haldið er í Lettlandi þann 31. október.

Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001 SPARAÐU 80% MEÐ LEDLJÓSUM Götulýsing - Íþróttahús - Mannvirki - Verslanir - Heimili - Skólar - Gróðurhús

Nesarar á Evrópuleikum Special Olympics XXÁ þriðjudaginn var hélt 40 manna hópur af stað áleiðis til Antwerpen í Belgíu þar sem Evrópuleikar Special Olympics munu fara fram. Ísland sendir 29 íþróttamenn á mótið sem keppa munu í sex íþróttagreinum. Íþróttafélagið NES á sjö einstaklinga í þessum hópi. Sigurður Guðmundsson, Halldór Finnsson og Ragnar Ólafsson keppa í fótbolta. Ari Ægisson og Thelma Rut Gunnlaugsdóttir keppa í frjálsum. Eðvarð Sigurjónsson í boccia og Ingibjörg Margeirsdóttir í sundi. Eins er einn þjálfari frá Nes, en það er Elísabet Rósa Elíasdóttir.

Verðdæmi: 3w Led pera kr. 495.-

Örninn á flugi í Ljósanæturmóti Hótels Keflavíkur

Okkar verð á 10w Led kösturum: 2.160.-

Okkar verð: 5w Led pera 647.-kr Gerið verðsamanburð.

Ludviksson ehf - Ledljós Njarðarbraut 3i Innri Njarðvík Reykjanesbæ S; 8678911 - 5658911

www.ledljos.com

Ö

Okkar verð á 5m RGB ljósaborðum: 5.418.-

rn Ævar Hjartarson lék flott golf á Ljósanæturgolfmóti Golfklúbbs Suðurnesja sl. sunnudag. Örn lék 18 holurnar á 6 undir pari, 66 höggum og sigraði bæði án forgjafar og í punktakeppni. Örninn hefur verið í „lágflugi“ í sumar ef svo má segja og ekki leikið vel en náði sér vel á strik á Ljósanótt. Hann fékk hvorki fleiri né færri en 8 fugla og tvo skolla á þessum verðlaunahring.

Hótel Keflavík gaf glæsileg verðlaun. Fyrir efsta sætið í hvorum

flokki var gisting á nýrri glæsilegri svítu á efstu hæð hótelsins, kvöldverður á KEF veitingastaðnum og risa gjafakörfu frá Nóa og Síríusi. Örn fékk því tvo skammta af þessum glæsilegu vinningum. Ari Gylfason úr Sandgerði og Magnús K. Jónsson úr GKG urðu í 2. og 3. sæti í punktakeppninni. Helgi Dan Steinsson úr Golfklúbbi Grindavíkur varð annar í höggleik á parinu, 72 höggm og þriðji varð Magnús Kári Jónsson GKG. Þeir fjórmenningar hlutu einnig glæsileg verðlaun.


23

VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 11. september 2014

-

Arnór og Elías léku í jafntefli gegn Frökkum XXKeflvíkingarnir Arnór Ingvi Traustason og Elías Már Ómarsson léku báðir í 1-1 jafntefli íslenska U21 liðsins í knattspyrnu gegn Frökkum sem fram fór í Auxerre á mánudag. Arnór, sem leikur með Norrköping í Svíþjóð, var í byrjunarliðinu, en varamaðurinn Elías leysti hann af hólmi þegar um 15 mínútur voru til leiksloka. Um var að ræða fyrsta leik hins 19 ára gamla Elíasar, en Arnór á að baki 10 leiki með liðinu.

smáauglýsingar TIL LEIGU

ÓSKAST TIL LEIGU

Stúdíó íbúiðir og bílskúrar til leigu að Vatnsnesvegi 5, Keflavík. Frá 50 fm. að stærð. Íbúðir á kr. 70.000 pr. mánuð en bílskúrar frá kr. 50.000. Studio apartments and garage for rent. Size from 50 sam. Price from 70.000 for apartment and 50.000 for garage. Fyrirspurnir/requests: vatnsnesvegur@outlook.com

Óska eftir herbergi til leigu í Reykjanesbæ,reglusemi heitið.Uppl,Sími 6918269.

Tveggja herbergja íbúð til leigu í Keflavík. Gæludýr ekki leyft. Greiðslan eingöngu í gegnum bankaþjónustu. Uppl. 6934412 eftir hádegi.

Miðaldra hjón óska eftir húsi/ íbúð á jarðhæð með garði til leigu. Öruggar greiðslur. s: 847-8849 og 865-3043

www.vf.is

+ www.vf.is

83% LESTUR

Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja Þórhallur Guðmundsson verður með skyggnilýsingarfund sunnudaginn 14 sept. í húsi félagsins að Víkurbraut 13 í Keflavík kl. 20:30 húsið opnar kl. 20:00.

Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ

sími 421 7979 www.bilarogpartar.is

Ástrós á HM í annað sinn í ár XXÁstrós Brynjarsdóttir, íþróttamaður Reykjanesbæjar 2013 og taekwondo kona Íslands síðustu tvö ár, er á leiðinni á heimsmeistaramótið í tækni (k. poomsae) sem verður haldið í Mexikó 31. október n.k. Tækni er önnur aðalkeppnisgreinin í taekwondo, en hin er bardagi. Ástrós keppti fyrr á árinu á heimsmeistaramótinu í hinni greininni sem er ólympískur bardagi (k. kyorugi). Í fyrra var Ástrós fyrsti íslenski keppandinn til að keppa bæði á Evrópumóti í bardaga og tækni og í ár verður hún sú fyrsta til að hafa tekið þátt í heimsmeistaramóti í báðum greinum. Greinarnar tvær eru í raun mjög ólíkar þótt þær deili að hluta til sumum af sömu einkennunum, líkt og ólíkar greinar í frjálsum íþróttum.

Störf í hlaðdeild Vegna aukinna umsvifa leitar fyrirtækið að jákvæðum og metnaðarfullum liðsmönnum til starfa í hlaðdeild fyrirtækisins. Um fullt starf er að ræða og unnið á dag- og næturvöktum. Helstu hæfniskröfur: • Almenn ökuréttindi skilyrði • Góð enskukunnátta • Vinnuvélaréttindi æskileg og mikill kostur • Lágmarksaldur 19 ár Starfsemi Airport Associates tekur til allrar þjónustu við farþega- og fraktflugvélar svo sem hleðslu flugvéla sem og annarar þjónustu á flughlaði, farþegainnritunar, hleðslueftirlits og alls þess er lítur að flugvélaafgreiðslu. Meðal viðskiptavina okkar eru: British Airways, Cargolux, Delta Airlines, UPS, Air Berlin, Germanwings, Bluebird Cargo, Fly Niki, First Choice Airways, WOW air, Primera Air, easyJet, Norwegian, Baseops Europe, Avcon, Transavia, Corendon, MNG Airlines, Volga Dnepr, Airbridge, ABX air og fleiri félög.

Magnús

& Jóhann

spila og spjalla yfir þriggja rétta kvöldverði laugardaginn 13. september nk. kl. 19:30 á Tveimur vitum, Garðskaga. Óli Torfa, trúbador, klárar síðan kvöldið. Verð kr. 9.500.Upplýsingar og borðapantanir í síma 422 7214.

Mikilvægt er að umsækjendur séu stundvísir, reglusamir og agaðir í starfi en jafnframt sveigjanlegir. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Sótt er um störfin rafrænt á airportassociates.com Umsóknarfrestur er til 21. september 2014.


vf.is

FIMMTUDAGINN 11. SEPTEMBER 2014 • 35. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR

-mundi Fá bæjarbúar næst að bragða á skuldasúpunni?

VIKAN Á VEFNUM Ásdís Ragna Einarsdóttir: Með blik í auga showið....váhá!! Maður er í sæluvímu eftir þvílíka tónlistarveislu, svakalega var þetta flott hjá þeim;) — feeling fabulous.

Una Sigurðardótitr: Fyrsta keppnishlaupið hans Hafþórs sæta englabossa. Hann vildi ólmur taka þátt og hljóp 3.5 km með mér í gær. Hann er ákveðinn í því að hlaupa maraþon þegar hann verður stór #hlaupahjartaðtókkipp mömmudrengur Úrsúla María Systir mín er bara að taka á móti Gerald Butler og ég fór bara á fkn Ljósanótt. Valdimar Guðmundsson Það eru fáir jafn tignarlegir á velli og Gylfi Sigurðsson. #fotbolti Arnór Ingvi Trausta Erum bara á leiðinni í umspil!!

Tómas Orri Miller Fólk sem sendir snöpp sem er öskrað í má vinsamlegast deyja. Sveinbjörg Ólafsdóttir: Gaman á Ljósanótt með risastóran sykurpúða

■■ Metdagur hjá Skólamat þegar 14500 máltíðir voru afgreiddar:

Fimm þúsund kjötsúpur og 8500 matarskammtar sama daginn F östudagur á Ljósanótt var stærsti dagur í sögu Skólamatar en auk fimm þúsund kjötsúpuskammta ofan í hátíðargesti voru afgreiddir 9500 matarskammtar til skólabarna þennan dag. „Þetta er einn skemmtilegasti dagur ársins hjá okkur þegar við gefum kjötsúpuna. Það var síðan skemmtilegt að við skyldum vera með stærsta framleiðsludag hjá okkur í fyrir-

tækinu sama daginn,“ sagði Axel Jónsson í Skólamat. Gestir Ljósanætur kunnu vel að meta ljúffenga kjötsúpuna á föstudagskvöldi. Ungir sem aldnir fengu súpuskál og sumir fóru jafnvel þrisvar sinnum. Það var því líklega eitthvað minna um grillmat á föstudagskvöldinu. Meðfylgjandi mynd var tekin í súpufjörinu á Ljósanótt.

Þökkum viðskiptin síðastliðin 17 ár, hlökkum til að taka á móti ykkur á Ásbrú


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.