FLUG&FJÖR
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Vöxturinn í flugstöðinni og heimatónleikar í Keflavík
Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN í kvöld kl. 21:30
Auglýsingasíminn er 421 0001
Þátturinn er endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring og aftur um helgina.
vf.is
F IMMTUDAGUR 17. SE PTE MBE R 2 0 15 • 3 6. TÖLU BLA Ð • 36. Á RGA NGU R
XÞó X svo komið sé fram í miðjan september er ferðamannastraumur um Flugstöð Leifs Eiríkssonar enn mjög mikill. Þar standa yfir miklar framkvæmdir til að bregðast við aukningu í farþegaflutningum. Í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld verður púlsinn tekinn á lífinu í flugstöðinni. Það er ekki bara líf við flugstöðina því á öðrum svæðum flugvallarins blómstrar einnig starfsemi. Hervélar hafa verið tíðir gestir að undanförnu. Um er að ræða bandarískar flugsveitir á leið yfir Atlantshafið. Sveitirnar eru skipaðar fjölda A10 árásarvéla sem njóta stuðnings eldsneytis- og birgðaflutningavéla. Þá hafa hervélar í loftrýmisgæslu einnig verið áberandi. Innan um allt þetta hernaðarbrölt blómstrar svo friðsöm starfsemi Flugakademíu Keilis. Myndin er tekin á dögunum þar sem sjá má vélar flugskólans í forgrunni og bandarískar hervélar þar á bakvið.
Ys og þys á Keflavíkurflugvelli Vinsæll ferðamannavegur á Reykjanesi er gjörónýtur:
Fæddi barn eftir að hafa hossast að Reykjanesvita
V
FÍTON / SÍA
egurinn að Reykjanesvita er svo slæmur að verðandi mæður eru farnar að nota veginn í fæðingarhjálp. Þeir sem aka veginn, sem er slæmur malarvegur, mega eiga von á að hossast og hristast á grjóthörðum og holóttum veginum. Kristín Guðmundsdóttir Hammer er nýbökuð móðir í Grindavík. Hún gerði sér ferð að Reykjanesvita um hádegi síðasta laugardag með fjölskyldu sína, komin á steypirinn. „Það er nú ekki hægt að neita því að það tók vel í bumbuna að fara þennan holótta veg og fékk ég einhverja samdrætti. Fyrstu alvöru verkirnir komu svo rúmlega 17 og drengurinn var fæddur rúmlega 22 á laugardagskvöld,“ segir Kristín í samtali við Víkurfréttir. Drengurinn fædd-
einföld reiknivél á ebox.is
ist jafnframt í belgnum og það er víst talið gæfumerki, þó svo vegurinn að Reykjanesvita sé ekki gæfulegur. Drengurinn vóg 3355 gr. og var 50 sentimetrar en hann fæddist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bæði móður og barni heilsast vel en þau eru nú komin í faðm fjölskyldunnar í Grindavík. Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar hefur átt nokkra fundi með Vegagerðinni um ástand vegarins. Hann var lagaður að hluta með veghefli í sumar en keyra þarf fyllingu í veginn til að gera hann ásættanlegan. Í næstu viku mun Vegagerðin fara í verðkönnun og gera kostnaðarmat á því hvað kostar að leggja klæðningu á veginn að Reykjanesvita. Gert er ráð fyrir að fyllingarefni verði ekið í veginn nú í haust og að hann verði lagður klæðningu næsta sumar.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
Eins og sjá má er ástand vegarins mjög bágborið. VF-mynd: Hilmar Bragi.
Drengurinn nýfæddur eftir að móðirin hafði hossast í bíl að Reykjanesvita.
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Sjónvarp Víkurfrétta
Alla fimmtudaga kl. 21:30 á ÍNN
2
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
LEIKSKÓLAFULLTRÚI ÓSKAST
-fréttir
pósturu vf@vf.is
Reykjanesbær óskar eftir að ráða leikskólafulltrúa í afleysingar til eins árs. Leikskólafulltrúi starfar í teymi fagfólks á fræðslusviði sem sinnir margvíslegri sérfræðiþjónustu við nemendur í leik- og grunnskólum. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. október nk. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.reykjanesbaer. is/stjornkerfi/laus-storf, þar sem einnig er að finna ítarlegar upplýsingar um meginverkefni, menntunarog hæfniskröfur. Umsóknarfrestur er til og með 24. september nk. Nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Arnarson sviðsstjóri fræðslusviðs helgi.arnarson@reykjanesbaer.is.
ÚTSVAR Reykjanesbær mætir Seltjarnarnesi í Útsvari á morgun kl. 20:00. Áfram Baldur, Grétar og Guðrún!
HEILSU- OG FORVARNARVIKA Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ verður haldin í áttunda sinn dagana 28. september til 4. október nk. Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sem vilja taka þátt eru vinsamlega beðin um senda viðburðinn sinn à netfangið heilsuvika@reykjanesbaer.is eigi síðar en 21. september nk.
STYRKIR Velferðarsvið Reykjanesbæjar auglýsir styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa skv. 27. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks og reglugerðar nr. 550/1994. Veittir eru styrkir í samræmi við reglur Reykjanesbæjar til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig eru veittir styrkir til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing. Umsóknarfrestur er til 10. október nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi í þjónustuveri á Tjarnargötu 12 og eru einnig aðgengileg á vef Reykjanesbæjar. Nánari upplýsingar veita Sigríður Daníelsdóttir (sigridur.danielsdottir@reykjanesbaer.is) og Hrefna Höskuldsdóttir (hrefna.hoskuldsdottir@reykjanesbaer.is).
SÚLAN
TILNEFNINGAR ÓSKAST Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverðlauna Reykjanesbæjar, Súlunnar. Tilnefna skal einstakling, hóp og/eða fyrirtæki sem unnið hafa vel að menningarmálum í bænum. Tilnefningum skal skilað í Ráðhúsið Tjarnargötu 12 eða á netfangið: sulan@reykjanesbaer.is fyrir 1. október næstkomandi. Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna á vef Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is.
Thorsil úthlutað starfsleyfi í Helguvík:
700 millj. kr. árlega til Reykjanesbæjar „Stórt skref í framfaraátt fyrir atvinnusvæðið,“ segir stjórnarformaður Thorsil
U
mhverfisstofnun gaf út þann 11. september síðastliðinn, starfsleyfi sem heimilar Thorsil ehf. rekstur kísilmálmverksmiðju í Helguvík í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Thorsil. „Veiting starfsleyfisins er mikilvægur áfangi á þeirri leið að gera verksmiðjuna að veruleika. Við hönnun verksmiðjunnar og við val á tækjabúnaði hefur þess verið gætt að nota bestu fáanlega tækni. Nú hafa tvær opinberar stofnanir farið yfir áætlanir okkar varðandi framleiðslutæki og mengunarvarnarbúnað en þessi búnaður uppfyllir ströngustu kröfur sem lög og reglur gera ráð fyrir. Þar af leiðandi hafa þessir sömu opinberu aðilar staðfest að umhverfisáhrif verða vel innan allra æskilegra og leyfilegra marka,“ segir John Fenger, stjórnarformaður Thorsil í tilkynningunni. „Með útgáfu Umhverfisstofnunar á starfsleyfi fyrir Thorsil var stigið stórt skref í framfaraátt fyrir atvinnu-
svæðið og tilkoma verksmiðjunnar mun fjölga atvinnutækifærum á svæðinu til muna. Starfsemin mun og færa Reykjanesbæ og Helguvíkurhöfn árstekjur sem nema rúmum 700 mkr.“ Í upphafi rekstrarins, sem gert er ráð fyrir að hefjist í byrjun árs 2018, verða framleidd um 54 þúsund tonn af kísilmálmi á ári í tveimur ofnum. Þegar hefur verið samið um sölu á 82% árlegrar framleiðslu til átta og tíu ára. Um 130 manns munu starfa í verksmiðjunni þegar starfsemin hefst árið 2018. Auk fastra starfa í verksmiðju Thorsil mun starfsemin kalla á ýmis afleidd þjónustustörf, svo sem við flutninga, viðhald, verkfræðiþjónustu og fleira. Gert er ráð fyrir á fjórða hundrað ársstörfum á byggingartíma verksmiðjunnar. Áætlað er að framkæmdir við verksmiðjuna hefjist í ársbyrjun 2016.
Þjóðarsáttmáli til að tryggja jafnan rétt barna:
Ráðherra segir horft til árangurs í læsi á Suðurnesjum „Þjóðarsáttmáli um læsi snýst um að tryggja jafnan rétt barna,“ sagði Illugi Gunnarsson menntaog menningarmálaráðherra við undirritun sáttmálans í Bókasafni Reykjanesbæjar á þriðjudag. Illugi sagði jafnframt að mjög væri horft til þess árangurs sem orðið hefur á læsi á Suðurnesjum á skömmum tíma og væri til fyrirmyndar. 30% drengja á Íslandi og 12% stúlkna geta ekki að lesa sér til gagns við lok grunnskóla. Við það væri ekki unað, þar sem sú niðurstaða byggi til stéttaskiptingu. Gylfi Jón Gylfason, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjanesbæ er í dag verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun og hafa hann og Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra farið
Frá undirritun þjóðasáttmála í læsi á bókasafni Reykjanesbæjar. Vf-myndir: Hilmar Bragi
um suðvesturhorn landsins á síðustu vikum til þess að undirrita þjóðarsáttmálann. Auk menntamálaráðherra skrifar bæjarstjóri hvers sveitarfélags og fulltrúi frá
landssamtökunum Heimili og skóli undir sáttmálann. Lítil útgáfa sáttmálans er einnig undirrituð, henni rúllað upp og stungið í Íslandslíkan. Á bókasafninu í Reykjanesbæ undirrituðu Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í Reykjanesbæ, Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri í Sandgerði og Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Garði sáttmálann. Fulltrúi Heimilis og skóla var Anna Sigríður Jóhannesdóttir. Ráðherra og föruneyti fóru einnig til Grindavíkur og þar undirrituðu þeir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkur og Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Vogum Þjóðarsáttmálann.
Rafmagnaður í alla staði.
Nýr rafdrifinn e-Golf
4.590.000 kr. Led-framljós spara orku.
Frí heimahleðslustöð.
8 ára ábyrgð á rafhlöðu.
x!
ingar stra
Ný hugsun. Nýr rafdrifinn e-Golf.
Til afhend
Með e-Golf stígur Volkswagen skrefinu lengra með vinsælu Golf fjölskylduna. Þetta er fyrsti fjölskyldu rafbíllinn sem byggir á áratuga reynslu og býður upp á öll þægindin sem þú finnur í venjulegum Golf. Skiptu yfir í framtíðina með nýjum e-Golf.
Think Blue. www.volkswagen.is
HEKLA · Njarðarbraut 13 · Reykjanesbæ · Sími 590 5090 · heklarnb.is
4
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-fréttir
pósturu vf@vf.is
„Framtíð í atvinnumálum á Reykjanesi.“ S
ATVINNA / JOBS Herbergisþrif Northern Light Inn leitar að fólki í herbergisþrif. Framtíðarstarf. Unnið á 2-2-3 vöktum. Nánari upplýsingar hjá fridrik@nli.is House keeping Northern Light Inn is looking for people in the cleaning team. Permanent jobs. 2-2-3 shift system. More info at fridrik@nli.is www.nli.is
Northern Light Inn hotel • restaurant • conferences • Iceland
-Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi halda hádegisfundi í öllum sveitarfélögum á Reykjanesi
amtök atvinnurekenda á Reykjanesi (SAR) eru 5 ára um þessar mundir og efna til fundarherferðar undir heitinu „Framtíð í atvinnumálum á Reykjanesi“ í haust og fram eftir næsta ári. Félagið var stofnað í maí 2010. Stofnfélagar voru 31 en í dag eru 220 fyrirtæki og stofnanir aðilar að SAR. Á fundunum verður SAR kynnt stuttlega og skýrt frá verkefnum sem eru fyrirhuguð á Reykjanesi næstu 15–20 árin. „Við ætlum að veita upplýsingar og fá upplýsingar á hverjum stað fyrir sig. Þessi hringur verður svo endurtekinn en það eru um það bil 6 vikur á milli funda,“ segir Guðmundur Pétursson, formaður félagsins. Fyrirkomulag fundanna verður þannig að mæting er 11:45 þar sem fundargestum stendur til boða léttur hádegisverður/súpa en fundi verður svo slitið á slaginu kl. 13.
„Við viljum hvetja alla til að mæta sem vilja ræða atvinnumál og hafa áhrif á mótun framtíðar í atvinnumálum á Reykjanesi. Ætlunin er að vera með 10 mínútna kynningar á fyrirtækjum sem vilja koma með okkur í þessa vegferð á hverjum stað. SAR verður fyrst með 10 mínútur eða svo til að kynna verkefni en svo verða umræður eftir fyrirtækjakynningar.“
Minjastofnun segir Brautarnesti hafa sögulegt gildi
AÐ LOKINNI LJÓSANÓTT
Bæjarstjórar hittast og ræða málefni aldraðra
Um leið og menningarráð þakkar fyrir vel heppnaða Ljósanótt kallar ráðið eftir hugmyndum, tillögum og ábendingum um viðburði og framkvæmd hátíðarinnar á netfangið ljosanott@ljosanott.is. Tillögurnar verða ræddar á sérstökum fundi um Ljósanótt sem ráðið mun boða til á nýju ári.
Dagskrá funda: 1. Fundur Grindavík 8. október 2015. 2. Fundur Sandgerði 19. nóvember 2015. 3. Fundur Garði 14. janúar 2016. 4. Fundur Reykjanesbæ 25. febrúar 2016. 5. Fundur Vogum 7. apríl 2016.
A
ðalfundur Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) verður haldinn í upphafi næsta mánaðar. Stefnt er að því að hafa sérstaka umfjöllun um málefni aldraðra á fundinum, segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í vikulegu fréttabréfi sínu. „Bæjarstjórar sveitarfélaganna hafa undanfarið hist til skrafs og ráðagerða, sem leitt hefur til tillögu hópsins til stjórnar SSS um að málið verði tekið á dagskrá fundarins. Hópurinn telur mikilvægt að fjalla heildstætt um málaflokkinn, en einskorða t.d. ekki
umræðuna við hjúkrunarþjónustu og heilbrigðismál. Staðreyndin er að á næstu árum mun mjög fjölga í þessum aldurshópi, og jafnframt má gera ráð fyrir að innan þessa hóps verði fólk almennt betur á sig komið og það virkara í en t.d. sami hópur var fyrir örfáum árum eða áratugum,“ segir Ásgeir. Allir sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum eiga seturétt á fundinum hjá SSS. Vonast er til að niðurstaða þessarar umfjöllunar skili sér í heildstæðri og markvissri stefnumótun og aðgerðaáætlun fyrir málaflokkinn.
XXBílamenning og sjoppur eftirstríðsáranna er hluti af sögu þjóðarinnar á 20. öld. Þetta segir Minjastofnun Íslands við fyrirspurn vegna húsnæðis Brautarnestis í Keflavík. Lög um menningarminjar ná ekki yfir húsnæði Brautarnestis sem nú stendur til að rífa en Reykjanesbær hefur fest kaup á húsnæðinu og ætlar að útbúa bílastæði fyrir leikskólann Tjarnarsel á lóðinni. Minjastofnun segir lítið hafi verið hugað að minjum sem tengjast þessari menningu, þær eru flestar horfnar eða eru að hverfa. Húsnæði Brautarnestis hefur mikið sögulegt gildi fyrir Keflavík og væri eftirsjá ef hún hyrfi, segir stofnunin. Minjastofnun Íslands segist styðja eindregið að a.m.k. framhluti hússins verði varðveittur og honum fundið nýtt hlutverk og staður.
Um 40% íbúða Íbúðalánasjóðs eða leigufélags á Suðurnesjum:
ÍBÚAÞING UM SKIPULAGSMÁL HLJÓMAHÖLL - MERKINES
Laugardaginn 19. september mun Umhverfissvið standa fyrir íbúaþingi um skipulags- og samgöngumál í Merkinesi sal Hljómahallar og mun þingið standa milli 14:00 til 16:00. Farið verður yfir gildandi aðalskipulag og íbúum gefinn kostur að hafa áhrif á breytingar á því sem stendur til að fara í.
Á fimmta hundrað íbúðir í söluferli
U
m 40% íbúða Íbúðalánasjóðs eða Leigufélagsins Kletts sem er í eigu sjóðsins, voru á Suðurnesjum um síðustu áramót. Á Suðurnesjum voru það 781 íbúð, 418 voru í sölumeðferð og 347 í leigu. Sextán aðrar voru í undirbúningi fyrir sölu eða leigu. Þetta kemur fram í svari Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra vegna fyrirspurnar Steinunnar Þ. Árnadóttur á Alþingi. Næsta stærsta svæðið hvað varðar fjölda íbúða
í eigu sjóðsins eða leigufélags hans var höfuðborgarsvæðið, 341 eign sem er rúmlega helmingi lægri tala en á Suðurnesjum. Alls voru 450 eignir færðar frá Íbúðalánasjóði yfir í leigufélagið Klett, dótturfélag hans. Á Suðurnesjum eru 75 íbúðir hans í útleigu en flestar eru í leigu á höfuðborgarsvæðinu eða 157. Þriðja stærsta s v æ ð i ð m e ð í bú ð i r Kletts er Suðurland en þar eru 67 íbúðir í útleigu.
Sjóvá
440 2000
Ef þú skrifar skilaboð undir stýri lítur þú af veginum í allt að 5 sekúndur. Á 70 kílómetra hraða keyrir þú því blindandi næstum 100 metra meðan þú skrifar.
sjova.is
6
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR RITSTJÓRNARPISTILL PÁLL KETILSSON
vf.is
Vaxtaverkirnir ÚTGEFANDI: AFGREIÐSLA OG RITSTJÓRN: RITSTJÓRI OG ÁBM.: FRÉTTASTJÓRI: BLAÐAMENN:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Friðrik K. Jónsson, frikki@vf.is Dagný Gísladóttir, dagny@vf.is Sigurður Friðrik Gunnarsson, siddi@vf.is AUGLÝSINGASTJÓRI: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is UMBROT OG HÖNNUN: Víkurfréttir ehf. Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
AFGREIÐSLA: Dóróthea Jónsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is PRENTVINNSLA: Landsprent UPPLAG: 9000 eintök. DREIFING: Íslandspóstur DAGLEG STAFRÆN ÚTGÁFA: www.vf.is og kylfingur.is Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001
Það eru ýmsir vaxtaverkir sem fylgja ferðaþjónustunni og við höfum fjallað um nokkra á undanförnum vikum. Margir þessara vaxaverkja eru jákvæðir ef svo má segja, þ.e. vöntun á starfsfólki sem þýðir minna atvinnuleysi og áframhaldandi þróun á þeirri leið. Sjónvarp Víkurfrétta tók góðan rúnt í flugstöðinni í vikunni og hægt er að sjá afraksturinn í þætti vikunnar. Það var alveg sama hvar við komum, rekstraraðilar eru mjög ánægðir eftir stærsta ferðamannasumar sögunnar og heyrst hafa tölur um þrefalt meiri sölu en í fyrra sem þó var gott. Um stöðina fara oft vel yfir tuttugu þúsund manns á hverjum degi. Fullur Laugardalsvöllur tekur tíu þúsund manns. Við erum að tala um tvo „fulla“ landsleiki sem rúlla í gegn flugstöðina á sólarhring. Flugtök og lendingar eru vel á annað hundrað. Í heimsókn okkar skoðum við stækkun stöðvarinnar, förum í rútu sem flytur flugfarþega frá flugstæðum inn í byggingu og smökkum þorskhnakka á nýjum veitingastað. En vissulega hefur ekki allt verið eins og dans á rósum í flugstöðinni í sumar. Ferðamannaukningin varð enn meiri en spár gerðu ráð fyrir og við það mynduðust vaxtaverkir og biðraðir urðu á tímum illþolandi langar. En það er það sem gerist í
-viðskipti-
þennslu. Forsvarsmenn Isavia segjast vera tilbúnir í aðra eins aukningu á næsta ári, vel gangi að ráða fólk og nú í haust verða á milli 50 og 100 manns fastráðnir eftir að hafa verið með sumarráðningu. Svo berast fréttir úr Helguvík. Þar eru vaxtaverkir undanfarinna ára að linast. Kísilver Thorsil er komið með starfsleyfi og eigendur þess segja að Reykjanesbær/Helguvíkurhöfn muni fá um 700 milljónir í tekjur á ári. Skuldir hafnarinnar eru á milli 6 og 7 milljarðar. Bæjarfélagið og höfnin munu fá tekjur af öðru kísilveri og annarri starfsemi sem er að aukast í Helguvík. Erum við að sjá fyrir okkur að þessar skuldir verði greiddar upp á næstu 1-2 áratugum? Ef svo mun gerast sem er ekki draumsýn miðað við þessar nýjustu fréttir er ljóst að bæjarstjórinn árið 2030 mun brosa mun breiðar en kollegi hans getur núna.
og atvinnulíf
pósturu vf@vf.is
Húsasmiðjan í Reykjanesbæ í færri fermetra:
Auka úrval byggingavöru þrátt fyrir minna pláss
Soho café í „reynsluakstri“ Ö
– frábært útsýni yfir Keflavík og Bergið
rn Garðarsson matreiðslumeistari opnar um þessar mundir nýtt kaffihús, Soho café, að Hrannargötu 6 í Keflavík. Segja má að kaffihúsið sé í „reynsluakstri“ þessa dagana en verður svo opnað formlega síðar í mánuðinum. Soho café býður í dag upp á súpu og samlokur í hádeginu sem og smurt braut, bakkelsi, tertur o.fl. Örn segir að Soho café eigi fyrst og fremst að vera kaffihús en virka daga verða í boði tveir heitir réttir
í hádeginu en inni á staðnum eru sæti fyrir 35 manns. Framkvæmdir við nýja kaffihúsið hafa staðið yfir undanfarna mánuði. Það stendur efst á Hrannargötunni og þaðan er gott útsýni yfir Keflavík, Bergið og út á Faxaflóa. Opnunartímar eru enn til skoðunar og þá er verið að bíða eftir síðustu leyfum í hús, t.a.m. vínveitingaleyfi. Til að byrja með verður opið frá kl. 11 að morgni og fram eftir degi virka daga. Ekki verður opið á kvöldin.
RAFVIRKJAR Óskum eftir rafvirkjum vegna aukinna verkefna, þurfa að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar gefa: Hjörleifur S: 8939065, hjolli@nesraf.is Jón Ragnar S: 8979592, jon@nesraf.is
F
rá því Húsasmiðjan kom fyrst til Suðurnesja í nóvember 1996 þá hefur verslunin verið flutt tvisvar sinnum. Hún flutti frá Smiðjuvöllum á Fitjar í apríl 2008. Fyrr í þessum mánuði flutti svo verslunin undir sama þaki í það rými sem Blómaval var áður. Inngangur er nú er vinstra megin við gamla aðalinnganginn við hliðina á bakaríinu. Timbursalan er óbreytt á sínum stað og sami inngangur og áður. Einar L. Ragnarsson rekstrarstjóri Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ segir í samtali við Víkurfréttir að nú sé Húsasmiðjan hér suður með sjó að fara aftur til upprunans áður en Blómaval kom til leiks. Nú er sagt skilið við blóm, gjafavöru og búsáhöld að mestu leyti en áherslan er lögð á allar vörur til framkvæmda og einblínt á að verslunin verði áfram góð byggingavöruverslun. Þegar hrunið varð árið 2008 varð heilmikil breyting á sölu á svokallaðri grófvöru til byggingarframkvæmda og dróst sala t.d. á steypustyrktarjárni saman um 98% og á timbri um 80% og því var farin sú leið að aðlaga verslunina að breyttum aðstæðum á markaði. Nú er að lifna aftur yfir byggingaframkvæmdum og áhersla Húsasmiðjunnar í Reykjanesbæ sett á það. „Við erum með allt frá grunni að góðu heimili og við hér í Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ erum
Einar L. Ragnarsson rekstrarstjóri.
að snúa til baka í það umhverfi að vera byggingavöruverslun fyrir fólk í framkvæmdum. Við hugsum verslunina þannig bæði fyrir fagmenn og alla þá sem standa í framkvæmdum og leggjum mikla áherslu á að þjónusta þá sem allra best og vera með vörur sem henta fyrir fagmenn og iðnaðarmenn,“ segir Einar rekstrarstjóri. Um aðrar breytingar í vöruframboði segir Einar að sagt hafi verið skilið við t.d. bílavörur en í Húsasmiðjunni í Reykjanesbæ var m.a. hægt að kaupa olíur, bílaperur og þurrkur. Árstíðarvörur margar hverjar eins og tjöld, plastrennibrautir og barnasundlaugar hverfa úr vöruúrvalinu en reiðhjól verða t.a.m. áfram í boði á sumrin svo og eitthvað af garðhúsgögnum. Þá verða grill og grillvörur áfram
í boði. Þó svo Blómaval sé farið, þá verða áfram í boði vörur eins og áburður og mold og ákveðnar plöntur. Áfram verða svo í boði þvottavélar, þurrkarar, ísskápar, ofnar, helluborð, örbylgjuofnar, ryksugur og önnur smáraftæki. Einnig verða jólaseríur og eitthvað af jólavörum fyrir jólin. Rými timbursölunnar er áfram það sama og áður en verslunarplássið sjálft minnkar umtalsvert en það rými sem losnar hefur verið endurleigt til Krónunnar sem opnar þar stóra matvöruverslun síðar í haust. Í timbursölunni verður sett upp gólfefnadeild, flísar og parket og einnig hurðir, loftaþiljur og sólbekkir. Þá er pípulagnadeildin komin í nýtt rými. Einar segir að þrátt fyrir færri fermetra þá ætli Húsasmiðjan í Reykjanesbæ að auka við sig í úrvali byggingarvöru og hann horfi björtum augum á framtíðina enda verslun með byggingarvörur aftur á uppleið á Suðurnesjum og margar stórar framkvæmdir í gangi um þessar mundir og ýmislegt í pípunum. Þá verði hann einnig var við að fjölmargir einstaklingar standa í framkvæmdum þar sem unnið sé að endurnýjun og viðhaldi fasteigna.
Opel Corsa 5 dyra Verð frá: 2.390.000 kr. Útborgun frá aðeins: 239.000 kr.
Bíll á mynd er Corsa Enjoy fimm dyra. Bílabúð Benna áskilur sér rétt til breytinga á verði og búnaði. Birt með fyrirvara um texta og myndabrengl.
Opel Corsa 5 dyra, sjálfskiptur – 2.690.000 kr.
Ný Corsa Sigurvegarinn fæst líka sjálfskiptur Nýr Opel Corsa er stöðugt í sviðsljósinu. Við afhendingu á „AUTOBEST 2015“ verðlaununum sæmdi dómnefnd, skipuð bílasérfræðingum frá 15 Evrópuríkjum, Opel Corsa titlinum „Best Buy Car of Europe 2015“. Samkeppnin var hörð en hann stóð uppi sem sigurvegari. Nú fæst þessi frábæri bíll líka sjálfskiptur. Kynntu þér Opel Corsa á opel.is eða á benni.is. Verið velkomin í reynsluakstur. Reykjavík Tangarhöfða 8 590 2000
Reykjanesbær Njarðarbraut 9 420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 12 til 16 í Reykjavík Laugardaga frá 10 til 14 í Reykjanesbæ
Bílabúð Benna og Lykill gera þér kleift að eignast nýjan Opel á þægilegan máta. Útborgun er að lágmarki 10% af verði bílsins og Lykill lánar þér afganginn til allt að sjö ára. Þú velur þér nýjan bíl hjá Bílabúð Benna og sölumenn sjá um að ganga frá láninu. Lánshlutfall ræðst af lánshæfis- og/eða greiðslumati hvers umsækjanda og getur hæst orðið 90%. Skylt er að kaskótryggja bifreiðina á lánstímanum.
8
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðskipti-
og atvinnulíf
pósturu pket@vf.is
Rammagerðin er ein elsta verslunin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
ÍSLENSK GJAFAVARA GRÍÐARLEGA VINSÆL Rammagerðin og 66°Norður verslanir heilla útlendinga og Íslendinga
E
itt elsta fyrirtækið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er Rammagerðin sem rekur sögu sína þar til ársins 1970. Verslunin er afar vinsæl, bæði meðal útlendinga og Íslendinga en hún opnaði ásamt 66°Norður verslun í flugstöðinni í sumar í nýju 440 fermetra rými. Íslenskar handunnar vörur eru mjög vinsælar, allt frá lyklakippum og lopapeysum til hins þekkta og vinsæla 66°Norður fatnaðar. Frá árinu 2012 hafa verslunar- fermetrar verslananna tvölfaldast. Rammagerðin var hluti af verslun Íslensks Markaðar sem var við lýði í langan tíma í flugstöðinni. „Áherslan er lögð á íslenskt handverk og hönnun og afurðir frá Íslendingum, alls staðar af landinu, og er handverk frá Suðurnesjum þar í hávegum haft,“ segir Lovísa Óladóttir, framkvæmdastjóri og Keflavíkurmærin Ólöf Kristín Sveinsdóttir, verslunarstjóri, tekur undir það. Í verslununum tveimur sem eru saman í þessu stóra rými starfa um 25 manns, nær allir frá Suðurnesjum, á vöktum, enda er opnunartíminn langur.“ Mikið lagt upp úr fjölbreytileika Lovísa segir að mikið sé lagt upp úr fjölbreyttu vöruúvali í Rammagerðinni. Íslenska lopavaran er mjög vinsæl. „Gærur, peysur, teppi og ýmsar smávörur,“ segir hún með áherslu og bendir á að samfara aukningu ferðamanna gefist aukin tækifæri fyrir handverksfólkið, tálgarann og bílskúrs-
manninn. Með meiri viðskiptum geta þessir framleiðendur gert vöruna sína verðmætari, merkt hana betur, pakkað henni betur og þannig í heildina gert hana að betri markaðsvöru. Við hjálpum oft til við þetta þróunarferli, eigum samstarf við hönnuðina og handverksfólkið,“ segir Lovísa. Útlendingar eru áhugasamir um íslenska sögu og menningu. „Allar vörur sem við seljum hafa einhverja íslenska tengingu þó þær séu ekki allar framleiddar hér á landi en ullin er okkar sérstaða í Rammagerðinni. Fyrirtækið er stofnað 1940 og það hefur alltaf lagt áherslu á íslenku ullina og íslenskar ullarafurðir. Hér á árum áður voru tískusýningar á fatnaði úr íslensku ullinni. Við höldum mikið í þessa sögu. Hún er rík og við höldum henni til haga. Mikil þróun á undanförnum árum í hönnunarvöru á Íslandi endurspeglast einnig í vöruvalinu.“ Klassísk gjafavara Íslendingar eru líka góðir viðskiptavinir í Rammagerðinni. „Þeir vita að við erum með lægra verð vegna þess að það er ekki virðisauki á vörum í flugstöðinni. Sum vara sem við erum að selja t.d. íslensku ullarteppin eru klassísk gjafavara. Okkur hefur vaxið fiskur um hrygg með keramikið og ýmis konar listhandverk og eftir því sem fleiri eru tilbúnir að selja vöruna sína hér hjá okkur þá myndast meiri breidd. Varðandi útlendinginn þá er lopapeysan gríðarlega vinsæl, sem og vettlingar og húfur. Þetta „flýgur
Lovísa og Ólöf Kristín með hluta starfsmanna sinna.
út“ í orðsins fyllstu merkingu. Bolir með merkingu frá Íslandi seljast líka vel. Vörur tengdar gosinu í Eyjafjallajökli eru mjög vinsælar. Það er magnað hvað þetta eldgos gerði.“ Tenging við íslenska hönnuði Hvernig gengur ykkur að tengja ykkur við hönnuði hér heima? „Við gerum það með ýmsum hætti. Við fylgjumst vel með, skoðum öll handverkshús sem við komumst í og svo erum við með nefnd í því að velja inn vörur. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, fallegar framstillingar og gott samstarf við alla okkar birgja. Við fáum fyrirspurnir frá mörgum framleiðendum og handverksfólki vegna þess að þegar fólk kemur inn í búðirnar okkar
og skoðar úrvalið kveikir það í þeim. Við berum mikla virðingu fyrir vörunni sem við seljum, þetta sér fólk. Allar verslanir okkar eru vel staðsettar og eru nýuppgerðar, líka á Akureyri og í Reykjavík. Svo sækjum við auðvitað handverkshátíðir í Reykjavík og á Akureyri, grípum hugmyndir þar og tengjum okkur við handverksfólk.“ Rætur í sjávarútveg Fyrirtækið Miðnesheiði rekur verslanir Rammagerðarinnar og 66°Norður. „Við þessa stækkun í sumarbyrjun jukum við úrvalið af 66°Norður vörum í versluninni og bjóðum nú uppá mikla breidd af þessari vinsælu vöru, virðisaukanum ódýrari en í öðrum 66°Norður verslunum. Vöru-
þróun er stór þáttur í starfsemi 66°Norður. Þetta er allt íslensk hönnun, hver einasta flík og ber hróður íslenskrar hönnunar út um allan heim. Hönnun 66°Norður hluta verslunarinnar ber merki þess að fyrirtækið á rætur að rekja í sjávarútveginn. Borðin vísa til frystihúsa þar sem fiskurinn var snyrtur og veðramerkin vísa til íslenska veðurfarsins sem fatnaður 66°Norður ver okkur fyrir“. Hefur þetta ekki verið magnað sumar í flugstöðinni? „Jú, reyndar á öllum stöðum hjá okkur, á Akureyri, Reykjavík og í flugstöðinni. Sumarið er búið að vera mjög gott,“ segir Lovísa að lokum.
1 5 - 1 9 7 4 - H V Í TA H Ú S I Ð / S Í A
Við leitum að fluggáfuðu fólki Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum til starfa hjá Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Óskað er eftir skipulögðum og hugmyndaríkum einstaklingum með háskólapróf sem nýtist í starfi. Í boði eru spennandi framtíðarstörf hjá fyrirtæki í miklum vexti. Viðskiptafulltrúi í viðskiptadeild
Viðkomandi þarf að búa yfir þekkingu á tölfræði og úrvinnslu gagna, góðri þjónustulund og reynslu af gerð viðskiptaáætlana. Starfið felst meðal annars í úrvinnslu og miðlun upplýsinga til starfsfólks, rekstraraðila og farþega á leið um flugstöðina, þjónustu- og gæðaeftirliti með rekstraraðilum og greiningu sem og innleiðingu á nýjum tekjutækifærum.
Viðskiptafulltrúi í bílastæðaþjónustu KEF parking
Viðkomandi þarf að búa yfir aðlögunarhæfni og vera fljótur að tileinka sér tækninýjungar auk þess sem hæfni við gerð markaðs- og tekjugreiningar og viðskiptaáætlana kemur sér vel í starfinu. Helstu verkefni eru val og innleiðing á fyrirframbókunarkerfi, markaðsgreiningar á vörum tengdum bílageymslu, vöruþróun og samskipti við viðskiptavini.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð á www.isavia.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2015
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 1040 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbyggingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
Markhönnun ehf
kræsingar&kostakjör
LAMBALÆRI
LAMBAHRYGGUR
1.487
1.846
ÁÐUR 1.690 KR/KG
ÁÐUR 2.098 KR/KG
FERSKT, KJÖTSEL
FERSKUR, KJÖTSEL
Nýslátrað!
LAMBAHJÖRTU - LAMBANÝRU FERSK, GOÐI, VACUMPAKKAÐ
358 ÁÐUR 398 KR/KG LIFRARPYLSA,ÓSOÐIN
-30%
FROSIN,2 STK,GOÐI
762
-35%
ÁÐUR 1.088 KR/KG
-50%
BLÓÐMÖR ÓSOÐIN FROSIN,2 STK,GOÐI
757
-35%
LAMBAINNRALÆRI FERSKT
2.893 ÁÐUR 4.450 KR/KG
ÁÐUR 1.164 KR/KG
KJÚKLINGALUNDIR
GRÍSABÓGSSNEIÐAR
-44%
GRILL, KJÖTSEL
779 ÁÐUR 1.558 KR/KG
DANSKAR,700 GR
991 ÁÐUR 1.769 KR/PK
! ti jö k sa os hr á ð r ve rt æ Fráb PEPSI MAX 4 X 2L
699 KR/PK
-40%
HROSSABJÚGU TAÐREYKT
719
ÁÐUR 1.198 KR/KG
-40%
HROSSAKJÖT
SALTAÐ, SALTAÐ+REYKT
539 ÁÐUR 898 KR/KG
! mm na mi am N EMMESS SKAFÍS 3 TEG, 1 L
398 ÁÐUR 498 KR/STK
OREO KEX
NABISCO, 66 GR
99
-50%
ÁÐUR 129 KR/PK
Tilboðin gilda 17. sept – 20. sept 2015 Tilboðin gilda meðan birgðir endast. | Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. | Vöruúrval getur verið breytilegt milli verslana.
PIZZASTYKKI
OSTUR, SALAMI
190 ÁÐUR 379 KR/STK
Verðsprengja!
RI
-50%
G
K
BAYONNESKINKA KJÖTSEL
999
ÁÐUR 1.998 KR/KG
KJÚKLINGABRINGA
ANDABRINGUR
1.883
2.986
ÁÐUR 2.384 KR/KG
ÁÐUR 3.598 KR/KG
FRANSKAR
MIÐJ.H.MARINERING
Haustmarkaður - mikið úrval af íslensku grænmeti!
-30%
-32%
PIZZUR
SIMPLE SOAP BERRY
299
2.398
ÁÐUR 439 KR/PK
ÁÐUR 2.998 KR/PK
NICE N’EASY, 4 TEG
946 ML, 128 ÞV
SOFT QUILT 9 RL
-38%
www.netto.is | Mjódd · Salavegur · Búðakór· Grandi · Akureyri · Höfn · Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss |
KLÓSETTPAPPÍR
489 ÁÐUR 788 KR/PK
12
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-viðtal
pósturu frikki@vf.is Sveinn um borð í víkingaskipinu Íslending, höfuðdjásni Víkingaheima.
„Víkingaskipið Íslendingur hefur mikil áhrif á safngesti“ -segir Sveinn V. Björgvinsson, framkvæmdastjóri Víkingaheima
„Það er alveg ótrúlega gaman að sjá hversu mikil og djúp áhrif víkingaskipið Íslendingur hefur á safngesti, alveg sama hvort þeir eru innlendir eða erlendir. Enda fullyrði ég hiklaust að Íslendingur, skipið hans Gunnars Marels, er einhver fegursti hlutur á Íslandi, segir Sveinn V. Björgvinsson framkvæmdastjóri Víkingaheima á Fitjum í Njarðvík. Eins og fram kom í Víkurfréttum fyrir stuttu, tóku nýir rekstraraðilar við safninu Víkingaheimar þann 17. júní sl. Eigendur að félaginu Víkingaheimar ehf., eru þeir sömu og eiga útgáfufélagið Guðrúnu en það fyrirtæki sérhæfir sig í útgáfu íslenskra miðaldabókmennta á erlendum tungumálum. Útgáfufélagið Guðrún var stofnað árið 1992 og hefur m.a. gefið út Hávamál, bækur um rúnir, SnorraEddu og margt fleira á fjölmörgum tungumálum. Bækur frá útgáfufélaginu eru til sölu í öllum helstu þjóðminjasöfnum í Norður-Evrópu og á öllum víkingasöfnum í Skandinavíu og Bretlandseyjum. Árið 2003 stofnaði fyrirtækið Gudrun Publishing Ltd. í London en það sér um sölu og dreifingu á bókum fyrirtækisins innan ESB. Af þessum sökum er útgáfufélagið Guðrún í góðum samskiptum við öll helstu söfn á Norðurlöndum og Bretlandi sem nýtist fyrirtækinu vel í rekstri Víkingaheima. Hvað fær fólk til að taka við rekstri eins og Víkingaheimum, rekstri sem hefur ekkert gengið neitt sérstaklega vel fram að þessu? „Já það er góð spurning. Það er fyrst og fremst áhugi á viðfangsefninu. Það er oft hægt að gera miklu betur en gert hefur verið áður. Þessir nýju rekstraraðilar sem tóku við í sumar, hafa mikinn áhuga á þessu safni og öllu því sem það tengist og þegar Reykjanesbær auglýsti eftir nýjum
rekstraraðilum að safninu þá var ekkert annað að gera en að slá til og prófa að spreyta sig á þessum rekstri,“ sagði Sveinn Munum við sjá einhverjar áherslubreytingar á safninu frá því sem fyrir var? „Bæði já og nei. Höfuðáherslan er auðvitað að ná að snúa rekstrinum við fyrst og fremst. Hvað varðar safnið sjálft og innanstokksmuni eru kannski ekki miklar breytingar í vændum, alla vega ekki í fyrstu. Helsta djásn safnsins er auðvitað þetta stórglæsilega skip hans Gunnars Marels, Íslendingur. Þetta skip er auðvitað bara stórkostlegur gripur og sennilega einhver flottasti safngripur á Íslandi. Þetta er ekki bara gullfallegt skip heldur er það líka mjög merkur gripur. Það má ekki gleyma því að það er búið að sigla Íslendingi alla leið til Ameríku þar sem hann fékk mikla kynningu ásamt landi og þjóð á aldamótaárinu 2000. Við munum því áfram gera skipinu mjög hátt undir höfði í okkar sýningum sem og í öllu kynningarstarfi. Gunnar Marel er auðvitað sá sem startaði þessu öllu í byrjun með því að smíða Íslending og sigla honum til Ameríku og það er margt í því sem við getum nýtt okkur. Þessi tengsl Íslands við Ameríku og eins Grænland, þannig að möguleikarnir liggja víða. Hvað sýningar almennt varðar þá stefnum við auðvitað að því að halda áfram góðu starfi og reyna að bæta okkur og safnið á öllum sviðum og kannski fyrst og fremst að færa sýningar yfir í nútímann. Þá er ég aðallega að tala um að nýta okkur nútímatækni við sýningar á hina ýmsu vegu en það á svona eftir að gerast smátt og smátt.“ Gunnar Marel Eggertsson hóf smíði skipsins Íslendings árið 1994 og smíði þess stóð, með smá hlé-
um, til ársins 1996 þegar það var fullklárað. Íslendingur telst vera langskip en langskip voru herskip, útskýrir Sveinn og voru þau lengri en hin gerðin af skipum víkinga sem voru Knerrir. Knerrirnir voru styttri, breiðari og dýpri enda voru þau fyrst og fremst flutningaskip þess tíma. Langskipin voru með yfirbyggðu dekki yfir allt skipið og ekkert var geymt neðan þilja en knerrirnir voru aðeins með mjóum göngupalli allan hringinn að innanverðu og svo opið alveg niður í kjöl þar sem vörur voru geymdar. Knörr sem var svipað á stærð og skipið Íslendingur gat borið allt að sextíu tonnum. „Ég yrði mjög hamingjusamur ef hægt yrði með einhverju móti að fá Gunnar Marel til að smíða eins og eitt stykki knörr fyrir safnið okkar,“ sagði Sveinn hlægjandi. Eigum við von á því, í samhengi við góð tengsl rekstraraðila við söfn erlendis, að hingað verði jafnvel fluttar inn sýningar erlendis frá? „Við getum í sjálfu sér ekki sagt neitt ákveðið um það. Fyrsta markmið okkar og það sem við munum einbeita okkur að í byrjun er að snúa taprekstri safnsins við og gera betur úr því sem við höfum. Samvinna við erlend söfn er auðvitað alltaf af hinu góða og hver veit hvað gerist í framtíðinni en þetta tekur bara allt sinn tíma. Við munum einbeita okkur í byrjun að bæta reksturinn og reyna að fá inn einhverja fjárfesta með okkur.“ Eigið þið von á því að geta fengið fjárfesta í lið með ykkur? „Já já við bindum miklar vonir við það, en það er þó ekkert sem er tímabært að tala um enn sem komið er. Það kemur bara allt í ljós síðar.“ Hvað eru margir starfsmenn í Víkingasafninu?
„Það eru tveir fastir starfsmenn en við erum fjögur í það heila. Það er óbreytt frá því sem var en vonandi tekst okkur að vaxa og dafna þannig að við getum bætt við okkur starfsfólki,“ sagði Sveinn. Sveinn sagði rekstraraðilana vera núna að vinna á fullu í sölu- og markaðsstarfi. „Markaðsstarf hefur verið í lágmarki fram að þessu en við erum að leggja áherslu á þau mál núna, bæði hér heima og erlendis. Við viljum einnig fara út í nánara samstarf við ferðaþjónustuna, það starf var svo sem hafið en við ætlum að efla það enn frekar. Þetta safn hefur ákveðna sérstöðu á landinu. Það er ekkert annað safn til sem er með sömu áherslur og þetta safn, víkingatímann fyrst og fremst og landafundina í Ameríku sem og víkingaskipið hans Gunnars, þannig að við höfum ákveðna sérstöðu sem við viljum nýta okkur,“ sagði Sveinn. Nú eruð þið með sýningu í gangi sem heitir landnám Íslands. Munið þið gera Suðurnesjunum einhver sérstök skil á þeirri sýningu? „Já í sýningunni Landnám Íslands eru fornminjar frá Höfnum, frá Vogi úti í Höfnum þar sem hann Bjarni fornleifafræðingur er búinn að vera að vinna að uppgreftri. Hér hefur verið undanfarin fjögur til fimm ár verið óbeint samstarf við það verkefni og hér í Víkingaheimum eru munir til sýningar frá þeim uppgreftri, að sjálfsögð í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands. Við höfum mikinn áhuga á því að efla það eins og aðrar þær sýningar sem við erum með í gangi. Svo erum við með sérstaka sýningu um norrænu goðafræðina sem er á efri hæðinni hjá okkur. Allt tengist þetta auðvitað sögu lands og þjóðar og við viljum gera þessu áfram hátt undir höfði.“
Sveinn sagði að stefnan hjá þeim sé að reyna að fá í safnið sem flesta erlenda ferðamenn og helst að fá þá til að heimsækja safnið áður en þeir halda áfram inn í landið á ferðalögum sínum. Ferðamenn gætu þá komið og fengið góða fræðslu um sögu Íslands og Íslendinga áður en ferðalag þeirra hefst fyrir alvöru. „Það er auðvitað staðreynd að ferðamönnum hefur fjölgað gríðarlega á Íslandi á undanförnum árum og það er líka staðreynd að það er fullt af ferðamönnum hér á svæðinu. Það er fullt af góðri þjónustu við ferðamenn hér á Suðurnesjum og við viljum sækja í þann markað. Það er mikið af ferðaþjónustuaðilum hérna á svæðinu sem eru að vinna mikla og góða vinnu og okkur langar að efla samstarfið á milli þjónustuaðila hérna á svæðinu. Markmiðið er að fjölga gestum hjá okkur og gera þetta að einum þeirra merku stoppistaða sem ferðamenn á Íslandi koma á, á ferðalögum sínum til landsins. Við erum að vinna í þessu markmiði okkar en það auðvitað tekur sinn tíma. Þetta er stór hluti af því markaðsstarfi sem við þurfum að sinna til að efla okkur út á við ásamt því að styrkja okkur inn á við. Hver er framtíðarsýn hinna nýju rekstraraðila Víkingaheima? „Ef okkar markmið nást varðandi markaðsstarf, aukningu gesta og aðkomu fjárfesta, þá er markmiðið hiklaust að stækka safnið. Það mundi þá einnig gera okkur kleift að fá til okkar erlendar sýningar eins og þú minntist á í byrjun, í samstarfi við erlend aðila og erlend söfn. Síðan stefnum við að því með tíð og tíma að efla verslunina í sjálfu safninu og að hér sé hægt að bjóða gestum uppá veitingar eftir að þeir hafa lokið við að skoða sig um í safninu,“ sagði Sveinn að lokum.
Helgi, starfsmaður Víkingaheima er auðvitað klæddur í anda víkinga við störf sín.
Erlendir ferðamenn notfæra sér nýjustu tækni í Víkingaheimum.
Safngestir skoða sig um í Víkingaheimum.
Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN í kvöld kl. 21:30
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. september 2015
13
R Ö J F G U L F & Þátturinn er endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring og aftur um helgina.
Vöxturinn í flugstöðinni og heimatónleikar Á dagskrá Sjónvarps Víkurfrétta í haust:
ATVINNULÍFIÐ blómstrar á Suðurnesjum og Sjónvarp Víkurfrétta tekur púlsinn á fyrirtækjum á öllum sviðum atvinnulífsins.
SJÓNVARP VÍKURFÉTTA – í háskerpu á vf.is Viltu auglýsa í þættinum? Hafðu samband við markaðsdeild í síma 421 0001
14
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-sjávarútvegur
pósturu vf@vf.is
Fiskþurrkun Haustaks á Reykjanesi:
Næringarríkir þurrkaðir þorskhausar í súpur og stöppur Í
auðlindagarðinum á Reykjanesi eru tvö fyrirtæki sem starfa við fiskþurrkun. Annað þessara fyrirtækja er Haustak sem er staðsett í grennd jarðvarmavers HS Orku á Reykjanesi. Fyrirtækið þurrkar dálka og fiskhausa í fersku lofti hituðu með jarðgufu og eru afurðirnar fluttar út til Afríku. Nær öll framleiðsla á þurrkuðum sjávarafurðum er seld til Nígeríu, þar sem Íslendingar eru með um 70% markaðshlutdeild í þurrkuðum fiskafurðum. F y r i r ut a n h au s a þu r r ku n stundar Haustak eftirtektarvert þróunarstarf. Til þessa hefur fiskslóg verið urðað með tilheyrandi kostnaði. Fyrirtækið hefur þróað aðferð til að vinna verðmæta olíu úr slógi og stofnað hefur verið fyrirtækið Codland í Grindavík, sem þróar líftækniaðferðir til að vinna lífvirk efni úr slógi. Til viðbótar þessu stundar fyrirtækið fjölbreytta vöruþróun. Hjá fyrirtækinu starfa 35 manns á Reykjanesi og rúmlega 20 manns í starfsstöð fyrirtækisins á Egilsstöðum. „Við fáum mest af okkar hráefni frá Vísi hf. og Þorbirni hf. í Grindavík en einnig frá öðrum fiskvinnslustöðvum. HB Grandi sá þurrkuninni fyrir hráefni til vinnslu í sumar. Þá eru fjölmargir minni aðilar af Suður-
Úr vinnslu Haukstaks á Reykjanesi.
nesjum og úr Reykjavík í viðskiptum við okkur,“ segir Halldór Smári Ólafsson framleiðslustjóri Haustaks. Halldór Smári segir að núorðið sé nær allt þurrkað innandyra. „Frá því hráefnið kemur í hús þá tekur það okkur tvær og hálfa til þrjár vikur að þurrka. Fyrst fer fram forþurrkun, þá eftirþurrkun og svo geymsla“. Hjá Haustaki er hægt að þurrka nær allan fisk. „Einu takmarkanir eru að fiskurinn sé of feitur til þurrkunar. Í dag eru það þorskur, ýsa, ufsi, keila og langa sem eru þurrkuð hjá fyrirtækinu,“ segir Halldór Smári. Nær allar afurðirnar fara til Nígeríu. Ein afurð, þurrkuð lönguflök, fara á Skandinavíu. „Þurrkaðir þorskhausar eru stærsta einstaka framleiðsla okkar en öll bein sem falla til við fiskvinnslu eru jafnframt þurrkuð hjá fyrirtækinu. Afurðir okkar eru í háum gæðaflokki og njóta vinsælda í Nígeríu þar sem þær enda í súpum og stöppum,“ segir Halldór Smári. Afurðirnar eru ríkar af næringarefnum. „Það eru 76% af próteini eru í þorskhaus, og það er það sem heimamenn eru að leita eftir, að fá prótein og vítamín,“ segir Halldór Smári Ólafsson framleiðslustjóri Haustaks í samtali við Víkurfréttir.
EINBÝLLISHÚS TIL LEIGU
Stórglæsilegt einbýlishús að Guðnýjarbraut í Njarðvík til leigu. Húsið er 215m2. 3 svefnherbergi. Allt fyrsta flokks að innan sem utan. LEIGUVERÐ KR. 230.000,- Á MÁNUÐI Upplýsingar veitir Sverrir í síma 896 4266.
2vi0lda% r-
börn
Verð: 2.599.-
- allar sögurnar
Verð: 4.299.-
Verð: 3.999.-
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. september 2015
-fs-ingur
Eftirlætis Eftirlætiskennari:
Með mikla frestunaráráttu
Svo margir kennarar sem eru í uppáhaldi! En Kolla og Íris standa uppúr! Fag í skólanum:
Lovísa er Keflavíkurmær og stefnir á stúdentinn en ætlar svo í heimsreisu. Hún er með mikla frestunaráráttu og myndi vilja leyfa böll á föstudagskvöldum.
Sálfræði hjá Elísabetu
Stundarfró
[buzz] & [geim] - saman í pakka Hvaðan ertu og aldur? Ég er frá Keflavík og verð 19 ára núna í nóvember
Verð: 3.299.-
Helsti kostur FS? Fullt af frábæru fólki og félagslífið Áhugamál? Áhugamálin mín eru að ferðast, kynnast fólki og bara gera það lætur mig líða vel og mér finnst skemmtilegt Hvað hræðistu mest? Geitungar! Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Úff þessi er erfið, svo mikið af flottu og hæfileikaríku fólki í FS. Hver er fyndnastur í skólanum? Það er ekki spurning en það er Sigurður Smár. Hann fær mann alltaf til að hlægja
Sjónvarpsþættir:
Mistresses, Grey's anatomy og auðvitað Bold and the Beautiful
Vildarverð:Kvikmynd: 4.799.Intouchables finnst mér flott mynd Verð áður: 5.999.Hljómsveit/tónlistarmaður:
Hvað sástu síðast í bíó? Straight outta compton! Mæli mjög mikið með henni Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Mér finnst það mjög fínt eins og það er en væri alveg til í meiri fjölbreytni. Verð alveg soldið þreytt að fá mér alltaf það sama í 10-kaffinu
Hver er þinn helsti galli? Ég er með mjög mikla frestunaráráttu sem hjálpar ekki alveg þegar það er mikið að gera. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Ég nota mest Snapchat, Instagram og Facebook Hverju myndirðu breyta ef þú værir skólameistari FS? Fleiri veikindadaga og leyfa böll á föstudögum Hvaða frasa eða orð notar þú oftast? Ég er með svakalegan ávana sem er mjög mikið gert grín af en það er að
T PA
afsláttur
vikunnar
Á hvaða braut ertu? Ég er á Félagsfræðibraut
15
ég segi soldið mikið HA í setningum sem allir taka eftir nema ég sem er bara fyndið Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Mér finnst það bara frábært! Það er allt á uppleið og þetta skólaár er búið að fara ýkt skemmtilega af stað og ég get ekki beðið eftir komandi tímum því fólkið sem er með mér í stjórn eru algjörir snillingar. Við ætlum við að gera okkar allra besta að gera félagslífið sem best. Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Útskrifast sem stúdent. Svo er planið að fara í heimsreisu og svo sé ég hvert leiðin liggur Hver er best klædd/ur í FS? Sylvía Rut er alltaf mjög fín
Queen Beyonce! Leikari:
Channing Tatum eftir Magic Mike
Bifreiðar skemmdar
XXSex bifreiðir í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarvörgum á undanförnum dögum. Síðastliðið föstudagskvöld var tilkynnt um þrjár skemmdar bifreiðir og aðrar þrjár um helgina. Rúður voru brotnar í þeim öllum og margt þykir benda til þess að grjóthnullungar hafi verið notaðir í þeim tilgangi. Lögregla rannsakar málið og leikur grunur á að þarna hafi sami aðili eða aðilar verið að verki í öllum tilvikum. Eru þeir sem hafa orðið varir við umrædd skemmdarverk á bifreiðum sem staðsettar voru við Bolafót nr. 11 og 15 í Njarðvík um helgina að hafa samband í síma 444 2200.
Á 162 kílómetra hraða
Vefsíður:
Þegar ég er í tölvunni eyði ég mesta tímanum á Facebook svo finnst mér mjög gaman að skoða skemmtileg blogg Flíkin:
Þórsmörk úlpan mín frá 66 Norður bjargar mér alveg á veturna Skyndibiti:
Lemon! Loksins kominn hollur skyndibitastaður í þennan bæ Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi (gulity pleasure)?
Skaraðu fram úr
Frozen er alveg lúmskt gott lag Fuglaþrugl og Naflakrafl
Verð: 3.999.-
Verð: 3.499.-
XXEinn nokkurra ökumanna, sem kærðir voru fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina ók á 162 kílómetra hraða eftir Reykjanesbraut, þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Ökumaðurinn, sem er vel innan við tvítugt þarf að greiða 150 þúsund krónur í sekt. Að auki kemur til svipting bráðabirgðaskírteinis hans og fær hann ökuskírteinið ekki aftur fyrr en hann hefur sótt sérstakt námskeið og tekið ökuprófið að nýju. Þá hafði lögregla afskipti af fáeinum til viðbótar sem ýmist óku undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða sviptir ökuréttindum.
[buzz] & [geim] - saman í pakka Verð: 3.299.-
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
PENNAVINUR ÓSKAST Í LEIFSSTÖÐ Hjá Pennanum Eymundsson starfar frábær hópur fjölhæfra og skemmtilegra einstaklinga – en okkur vantar fleiri. Við óskum eftir harðduglegum og brosmildum starfsmanni í afgreiðslustarf í verslun okkar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
HÆFNISKRÖFUR
Um framtíðarstarf er að ræða og er unnið eftir vaktaskipulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
•
Góð tungumálakunnátta
•
Góð almenn tölvukunnátta, þekking á Navision er kostur
•
Rík þjónustulund og jákvæðni
•
Hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af afgreiðslustörfum æskileg Út í vitann
Skrímslakisi
Verð: 3.499.-
Verð: 3.499.heimasíðu Eymundsson og er umsóknar-
- Hafnarstræti Surtsey2 í
sjónmáli
annaeyjum Faxastíg 36 Verð: -7.499.-
Áhugasömum er bent á að sækja um á frestur til 23. september nk.
Manndómsár
Út í vitann
Verð: 3.299.-
Verð: 3.499.-
öð ð Leifs Eiríkssonar Austurstræti 18
540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Álfabakka 14b, Mjódd
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Kringlunni norður Skólavörðustíg 11 12. Keflavík -birtar Sólvallagötu 2 - Faxastíg 36 Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Upplýsingar með fyrirvara umVestmannaeyjum villurog ogmyndabrengl. myndabrengl. r frá 9. október, til og með október. Upplýsingar erueru birtar með fyrirvara um villur Laugavegi 77
Kringlunni suður
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Hallarmúla 4
Smáralind
Akranesi - Dalbraut 1
LeifsstöðLeifs Eiríkssonar Flugstöð
540 2000
Vöruúrval eftiroktóber. verslunu Vöruúrval mismunandi eftir verslunum. Gildistími tilboða er frá 9. október,mismunandi til og með 12.
16
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-aðsent
pósturu vf@vf.is
■■Eysteinn Eyjólfsson skrifar:
Íbúaþing um skipulagsmál 19. september TIL SÖLU EÐA LEIGU
STEINÁS 33, REYKJANESBÆ er til sölu eða leigu, sjá myndir fasteignasalan Brú. Húsið er á fallega gróinni lóð og gott útsýni af svölum.
5 stór svefnherbergi, 2 baðherbergi, 2 stofur, eldhús, þvottahús, forstofa, hol og 40m2 bílskúr. Stórt bílaplan, breið gata, göngu og hjólastígar eru í hverfinu. Stutt í þjónustukjarna og strætóstöð við hverfi. Upplýsingar um sölu hjá Helgu í síma 822 2123 og fyrir leigu hjá Hjalta í síma 696 5335
N
úgildandi aðalskipulag Re ykjanesbæjar er barn síns tíma þótt það hafi tekið gildi árið 2010 og þarfnast endurskoðunar við, um það er Umhverfisog skipulagsráð sammála um. Aðalskipulagið gerir t.d. ráð fyrir um 3,5% fólksfjölgun í bænum en reyndin er öll önnur því hún er um 1.8% og kallar sú staðreynd ein og sér á endurskoðun. Þá gerir skipulagið núgildandi t.d. ráð fyrir að öllu atvinnuhúsnæði verði komið út úr byggð og yfir í jaðarsvæði en færa má rök fyrir því að meiri sveigjanleiki innan skipulagsins á ákveðnum svæðum sé skynsamari nálgun. Þegar USK skoðaði hvort endurskoða þyrfti aðalskipulagið byrjuðum við á að líta til íbúaþróunar og áhrif hennar á íbúðahúsnæði og atvinnuhúsnæði. Spurðum svo í kjölfarið nokkurra grunnspurn-
inga eins og: Er framtíðarsýn og markmið aðalskipulags enn í gildi? Þarf að bregðast við þróun síðustu ára? Er staðan og þróun í takt við aðalskipulagið? Eru komnar fram nýjar áskoranir? Er skipulagið í samræmi við svæðisskipulag og aðrar áætlanir? Umhverfis- og skipulagsráð ákvað eftir umræðu útfrá spurningunum hér að ofan að leggja til við bæjarstjórn að farið yrði í endurskoðun aðalskipulagsins og bæjarstjórn samþykkti það. Áður höfðum við leitað til Skipulagsstofnunar sem tók undir þau sjónarmið USK að aðalskipulagið þarfnist endurskoðunar. Mótum bæinn okkar saman Vinna við endurskoðun skipulagsins er að hefjast og ef áætlanir standast gæti nýtt aðalskipulag Reykjanesbæjar legið fyrir haustið 2016. Aðkoma íbúa Reykjanesbæjar verður tryggð m.a. með íbúaþingi um skipulagsmál laugardaginn 19. september sem haldið verður í
Merkinesi sal Hljómahallar. Þingið hefst kl. 14 og lýkur kl. 16. Á þinginu verður farið nánar yfir forsendur breytinga á aðalskipulagi Reykjanesbæjar og íbúum bæjarins gefinn kostur á að koma á framfæri hugmyndum sínum og tillögum. Aukinn áhugi hefur verið á skipulagsmálum í bænum okkar síðustu misserin og er það vel því mikilvægt er að sem flestir bæjarbúar komi að því að móta umhverfi okkar og hafi áhrif á hvernig bærinn þróast. Bæjarbúum gefast tækifæri til þess að vera virkir og móta samfélag sitt í haust með því að taka þátt í íbúakosningum í nóvember um deiliskipulagsbreytinguna í Helguvík og mæta á íbúaþingið á laugardaginn og leggja fram hugmyndir sínar og tillögur um það hvernig bærinn okkar eigi að þróast til framtíðar. Sjáumst sem flest í Hljómahöllinni á laugardaginn. Eysteinn Eyjólfsson Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar
■■Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir skrifar:
Keflavíkurkirkja 100 ára V
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
onandi hefur það ekki f a r i ð f r a m hj á neinum að Keflavíkurkirkja fagnar 100 ára afmæli á árinu. Margvíslegt hefur verið gert til að fagna þessum tímamótum en einnig hafa tímamótaatburðir orðið án þess að tilheyra beinlínis hátíðarhöldunum. Þar ber fyrst að geta þess að nú er kirkjan búin að fá kvenkyns sóknarprest í fyrsta sinn, Erlu Guðmundsdóttur og nú hefur einnig verið skipaður annar kvenprestur til starfa í kirkjunni, en það er Eva Björk Valdimarsdóttir. Umsækjendur um embættið voru 6, en einn þeirra, séra Þórhallur Heimisson dró umsókn sína til baka. Rekstrarstjóri kirkjunnar er einnig kona, vel kynnt í því starfi sl. tvö ár, Þórunn Íris Þórisdóttir. Það eru því konur í stafni á nýju árhundraði í Keflavíkurkirkju og kannski er það tímanna tákn og vel við hæfi á 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Því er ekki að neita að í þessu felst talsverð áskorun og mikilvægt að styðja vel við bakið á þessum ungu konum, sem halda
María Sigurðardóttir,
áður til heimilis að Hlíðarvegi 50, lést að hjúkrunarheimilinu Hrafnistu Njarðvík, 12. september sl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 22. september kl. 13:00. Haukur Gígja, Jón Rósmann Ólafsson, Bjarney Ásgeirsdóttir, Helga Hauksdóttir, Hulda Hauksdóttir, Hildur Hauksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Magnea María Ívarsdóttir, Friðjón Axfjörð, Skúli Magnússon, Einar Jón Pálsson,
-
munu um stjórntaumana næstu árin. Óþarfi er að kynna séra Erlu fyrir sóknarbörnum en hún hefur starfað í sókninni sl. 9 ár og í 6 sem safnaðarráðinn prestur. Nú tekur hún við forystuhlutverki í söfnuðinum og mikilli ábyrgð. Hins vegar langar mig til að kynna fyrir ykkur Evu Björk Valdimarsdóttur, sem mun koma til starfa 15. september. Eva er guðfræðingur að mennt, en hún hefur einnig BA gráðu í sálfræði og hefur sérmenntað sig í sálgæslu. Hún útskrifaðist árið 2013 og hefur síðan verið framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar. Eva er 37 ára gömul, gift Ólafi Elínarsyni og eiga þau tvö börn. Hún mun búsetja sig hér í Reykjanesbæ strax og húsnæði fæst. Prestvígsla Evu fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 20. september nk. kl. 11. Öllum er velkomið að vera viðstaddir. Þá verða þær séra Erla og Eva settar inn í embætti sunnudaginn 4. október nk. kl. 14. Það væri ánægjulegt að sem flestir sæju sér fært að vera viðstaddir athöfnina. Sóknarnefnd mun bjóða til kaffisamsætis að lokinni athöfn. Sóknarnefndin þakkar ábendingar um lélegt hljóðkerfi í sal Kirkju-
lundar í blaðagrein í VF nýlega. Unnið er að endurbótum á hljóðkerfinu og vonandi leysist það mál farsællega sem fyrst. Þó má geta þess að þetta vandamál er erfitt úrlausnar og dýrt, en eins og segir í greininni og sóknarnefnd tekur fyllilega undir, þá þarf hljóðkerfið að vera í góðu lagi. Boðið er upp á sögusýningu í Bíósal Duushúsa um Keflavíkurkirkju og mun opin kóræfing verða haldin þar fljótlega. Einnig er í bígerð að bjóða upp á fræðslukvöld um sögu kirkjunnar á meðan á sýningunni stendur, en hún verður opin út septembermánuð. Keflavíkurkirkja hefur notið góðvilja margra sjálfboðaliða, sem hafa innt af hendi margvísleg störf fyrir kirkjuna öll 100 starfsárin. Enn er þörf fúsra handa og þeir sem geta séð af nokkrum stundum í mánuði fyrir kirkjuna sína eru velkomnir. Að lokum þakkar sóknarnefnd sóknarbörnum og öðrum bæjarbúum fyrir góða þátttöku í atburðum afmælisársins en kirkjan hefur oftar en ekki verið fullsetin. Fh. sóknarnefndar Keflavíkurkirkju Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir formaður
smáauglýsingar TIL LEIGU
LÍTIÐ HÚS leigist í Keflavik aðeins til reglusömu, reyklausu pari eða einstaklings með Fastavinnu og góð meðmæli. Tala íslensku eða ensku. Milli 16 - 20. 8546797.
Verið velkomin
á samkomu alla sunnudaga kl. 11.00 Hvítasunnukirkjan í Keflavík, Hafnargötu 84
Bílaviðgerðir Partasala Kaupum bilaða og tjónaða bíla
5 herb. íbúð í tvíbýli í keflavík. 160þ. rafm og hiti innifalið. Laus 1.okt. Uppl. S: 8476131 Árni
+ www.vf.is
83% LESTUR
Til leigu raðhús á Faxabraut (við Fjölbrautaskólan). Tilbúið til leigu 1. Okt. 170.000 kr + hiti og rafm. Miklar kröfur um meðmæli og aðrar uppl. Sendið email mystuffalways@ gmail.com eða hr 8982265.
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979 www.bilarogpartar.is
17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. september 2015
-uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Brautarsel 39 fnr. 233-2503, Njarðvík , þingl. eig. Ökugerði eignarhaldsfélag ehf., gerðarbeiðandi Reykjanesbær, þriðjudaginn 22. september kl. 10:10. Búðir 129135 fnr. 209-2644, Grindavík , þingl. eig. Sigurjóna Haraldsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Grindavíkurbær, þriðjudaginn 22. september kl. 12:20. Efstahraun 5 fnr. 209-1622, Grindavík , þingl. eig. Sigurbjörg K Róbertsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 22. september kl. 11:30. Grænás 1a fnr. 209-3325, Njarðvík , þingl. eig. Sara Lind Guðmundsdóttir og Rafal Modzelewski, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Íslandsbanki hf. og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 08:55. Hafnargata 26 fnr. 209-1775, Grindavík , þingl. eig. Eldhamar ehf, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Tækniþjónusta SÁ ehf og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, þriðjudaginn 22. september kl. 12:10. Heiðargerði 5 fnr. 228-4642, Vogar , þingl. eig. Þuríður Davíðsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 10:30. Hvammsdalur 14 fnr. 225-6465, Vogar , þingl. eig. Elenora Ósk Þórðardóttir og Pétur Jóhann Kolbrúnarson, gerðarbeiðendur Sveitarfélagið Vogar og Sýslumaðurinn á Blönduósi, þriðjudaginn 22. september kl. 10:50. Lágseyla 14 fnr. 228-6689, Njarðvík , þingl. eig. Hannes Einarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn 22. september kl. 09:20. Lómatjörn 40 fnr. 228-1269, Njarðvík , þingl. eig. Gréta Rósný Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Fjarskipti hf. og Valitor hf. og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 09:30. Marargata 5 fnr. 209-2141, Grindavík 15% eignahl gþ. , þingl. eig. Reynir Bragi Bragason, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 22. september kl. 12:00. Suðurhóp 8 fnr. 229-0747, Grindavík , þingl. eig. Inga Sigríður Gunndórsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Grindavíkurbær, þriðjudaginn 22. september kl. 11:20. Svölutjörn 59 fnr. 228-7431, Njarðvík , þingl. eig. Vilhjálmur Kristinn Eyjólfsson, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og SjóváAlmennar tryggingar hf. og HS Veitur hf. og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 09:40. Tjarnabraut 8b fnr. 228-8308, Njarðvík , þingl. eig. Hjalti Guðmundsson ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 09:10. Urðarbraut 1 fnr. 229-1666, Njarðvík , þingl. eig. Halldóra Halldórsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjanesbær
og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 22. september kl. 09:50. Víkurbraut 42, Grindavík, fnr. 209-2548 , þingl. eig. Ólafur Ragnar Elísson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 11:40. Víkurbraut 54 fnr. 209-2564, Grindavík , þingl. eig. Jóhann Helgi Aðalgeirsson, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 22. september kl. 11:50. Þórkötlustaðir Miðbær fnr. 209-2856, Grindavík , þingl. eig. Helgi Theódór Andersen, gerðarbeiðendur Grindavíkurbær og Tryggingamiðstöðin hf, þriðjudaginn 22. september kl. 12:30. Þórustígur 8 fnr. 221-6386, Njarðvík , þingl. eig. Ríkharður Pescia, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og N1 hf. og Festa lífeyrissjóður og Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn 22. september kl. 08:45. Djúpivogur 1, Hafnahreppur, fnr. 209-4326 , þingl. eig. Dorothy Lillian Ellison, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., miðvikudaginn 23. september kl. 11:20. Eyjaholt 2, Garður, fnr. 209-5347 , þingl. eig. Alda Jocelyn Ereno, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. september kl. 08:45. Holtsgata 31 fnr. 209-4880, Sandgerði , þingl. eig. Guðrún Jóna Árnadóttir og Pálmi Sigurður Pétursson, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær og Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 23. september kl. 10:10. Holtsgata 48, Sandgerði, fnr. 227-0147 , þingl. eig. Erla Kaja Emilsdóttir og Arnar Helgason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Íslandsbanki hf., miðvikudaginn 23. september kl. 10:20. Klapparstígur 4 fnr. 209-4910, Sandgerði , þingl. eig. Smári Valtýr Sæbjörnsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Íbúðalánasjóður og Sandgerðisbær og Vátryggingafélag Íslands hf., miðvikudaginn 23. september kl. 09:15. Lyngbraut 8 fnr. 209-5619, Garður , þingl. eig. Ingveldur Ásdís Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 23. september kl. 08:55. Lækjamót 16 fnr. 229-5689, Sandgerði , þingl. eig. Guðmundur Skúlason og Lóa Björg Gestsdóttir, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. september kl. 09:35. Norðurgarður 8 fnr. 224-4107, Sandgerði , þingl. eig. Vogabúar ehf, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær og Landsbankinn hf., miðvikudaginn 23. september kl. 09:45. Suðurgata 14, Sandgerði, fnr. 209-5079 , þingl. eig. Sigurpáll Árnason, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn 23. september kl. 10:30.
Grófin 17b fnr. 228-5113, Keflavík , þingl. eig. Sunrise ehf, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Suðurnesjum og Landsbankinn hf., fimmtudaginn 24. september kl. 09:55. Háteigur 12, Keflavík, fnr. 208-8286 , þingl. eig. Ólafur Már Kristjánsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 24. september kl. 10:35. Háteigur 2 fnr. 208-8253, Keflavík , þingl. eig. Kristín Amonrat Traustadóttir, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Háteigur 2,húsfélag, fimmtudaginn 24. september kl. 10:25. Heiðargarður 22, Keflavík, fnr. 208-8692 , þingl. eig. Sigríður Sigurðardóttir og Ragnar Örn Pétursson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fimmtudaginn 24. september kl. 10:55. Heiðarvegur 25 fnr. 208-9052, Keflavík , þingl. eig. Davíð Eldur Baldursson, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Reykjanesbær, fimmtudaginn 24. september kl. 08:55. Hringbraut 46 fnr. 226-2300, Keflavík , þingl. eig. Dagbjört Þórunn Þráinsdóttir, gerðarbeiðendur Tryggingamiðstöðin hf. og Íbúðalánasjóður og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 24. september kl. 10:15. Selvík 1 fnr. 228-9342, Keflavík , þingl. eig. Halldor Seafood ehf., gerðarbeiðandi Reykjanesbær, fimmtudaginn 24. september kl. 10:05. Sólvallagata 24 fnr. 209-0534, Keflavík , þingl. eig. Margrét Kolbeinsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjanesbær, fimmtudaginn 24. september kl. 08:45. Suðurgata 24, fnr. 209-0706, Keflavík , þingl. eig. Svanfríður Aradóttir, gerðarbeiðendur Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja og Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf. og Landsbankinn hf, Keflavík og Reykjanesbær og Sýslumaðurinn á Blönduósi, fimmtudaginn 24. september kl. 09:05. Vesturgata 13a fnr. 224-8291, Keflavík , þingl. eig. Guðmundur Hjaltason, gerðarbeiðendur Vátryggingafélag Íslands hf. og Festa - lífeyrissjóður og Landsbankinn hf., fimmtudaginn 24. september kl. 09:45. Víkurbraut 3 fnr. 209-1279, Keflavík , þingl. eig. Hjalti Guðmundsson ehf., gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 24. september kl. 09:35. Sýslumaðurinn á Suðurnesjum 15 september 2015 Ásgeir Eiríksson, staðgengill sýslumanns.
TILBOÐ Í HRINGBRAUT 93B BRAUTARNESTI
með Lindu Maríu inn fyrsti pistill á nýjum vettvangi. Hugmyndin virtist auðveld, ætlaði að tækla þetta á sama hátt og alla aðra pistla, setjast bara niður og leyfa flæðinu að byrja. Allt kom fyrir ekki, ég var farin að rífa mig niður áður en hugsunin náði að setjast, hafði sett dæmið upp margsinnis og alltaf fengið sömu niðurstöðu.. Þetta myndi aldrei ganga, ég er ekki nógu góð til að skrifa í bæjarblaðið.. Með því sögðu rifjaði ég upp allt það sem ég hef lagt af mörkum, öll hughreystingarorðin sem ég hef fengið frá mínum nánustu nú og áður, peppið frá vinkonum mínum fyrir framlag mitt til betri breytinga í þeirra lífi aftur og aftur. Smám saman kom litla stúlkan úr felum, fann sólina skína í andlitið og mundi hvers hún er megnug. Verkefnið er aldrei erfiðara en við sjáum það fyrir okkur, okkar allra versti óvinur erum við sjálf. Ég trúi því og stend við þá fullyrðingu að með jákvæðu hugarfari færum við fjöll, við sjáum þetta góða í öllu og við þökkum
Baldursgata 12, fnr. 208-6992, Keflavík , þingl. eig. Guðbjörg Þóra Snorradóttir, gerðarbeiðendur Reykjanesbær og Íbúðalánasjóður, fimmtudaginn 24. september kl. 09:25.
Suðurgata 38, Sandgerði, fnr. 209-5127 , þingl. eig. Magdalena Zembrzuska og Robert Zembrzuski, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vörður tryggingar hf., miðvikudaginn 23. september kl. 10:40.
Lífið M
Suðurgata 40 fnr. 209-5129, Sandgerði , þingl. eig. Níels Friðbjarnarson, gerðarbeiðendur Sandgerðisbær og Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 23. september kl. 10:50.
fyrir það sem við eigum. Við hættum að meta okkur í samanburði við aðra, ef við lifum lífinu í stöðugum samanburði þá líður lífið og við gleymum að njóta. Lífið gerist á meðan við erum að undirbúa okkur og bíða eftir einhverju allt öðru. Lífið er núið, það snýst um þessar stundir sem við vissum ekki að við ættum, þessar stundir sem í byrjun þóttu lítilvægar en eftir á eru þetta stundirnar sem færðu okkur okkar allra mestu hamingju, stundarkornin sem við yljum okkur við þegar dregur fyrir sólu og okkur vantar að sækja styrkinn einhvers staðar. Góðir hlutir gerast hjá góðu fólki, alla daga, alltaf. Þetta snýst um að sjá þetta góða, draga inn andann, skilja við hugarfarið sem svo oft er hugfangið af erfiðleikum, blása frá okkur með bros á vör. Höldum út í daginn sterkari, jákvæðari og meðvitaðri um að tækifærin liggja hjá okkur sjálfum, ekki bara í dag heldur alla daga. Ást og friður Linda María
Umhverfissvið Reykjanesbæjar auglýsir hér með eftir tilboði í Hringbraut 93b (Brautarnesti). Skilyrði er að eignin verði fjarlægð og gengið frá lóð. Eignin selst í því ástandi sem hún er og með þeim búnaði sem er nothæfur. Skoðunarferð um eignina verður mánudaginn 21.09 2015 kl. 16:00. Sama dag má nálgast sölu-útboðsgögn í Ráðhúsi Reykjanesbæjar gegn 2000 kr. gjaldi. Nánari upplýsingar gefur Sviðsstjóri Umhverfissviðs gudlaugur.h.sigurjonsson@reykjanesbaer.is eða í síma 4216700.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
18
fimmtudagur 17. september 2015 • VÍKURFRÉTTIR
-íþróttir
KEFLVÍKINGAR FALLNIR
Logi í stuði á Eurobasket. VF-mynd/SkúliSig.
Undirbúning fyrir 1. deildina næsta sumar hafinn
Logi spilaði fantavel í Berlín Ótrúleg leikgleði og barátta íslenska liðsins vakti mikla athygli
Í
slenska landsliðið í körfubolta vann hug og hjörtu körfuboltaáhugamanna á Eurobasket sem að nú stendur yfir. Þrátt fyrir að íslenska liðið hafi tapað öllum leikjum sínum og er úr leik í mótinu er óhætt að segja að strákarnir hafi staðist prófið og sýnt að það eigi heima á meðal bestu liða í álfunni. Riðillinn sem að liðið lék í var firnasterkur og hefði Ísland lent í lakari riðli er aldrei að vita hvað hefði getað gerst ef miðað er við hvernig liðið stóð uppi í hárinu á mörgum af bestu liðum heims. Njarðvíkingurinn Logi Gunnarsson lék stóra rullu í íslenska liðinu og var oftar en ekki fyrsti maður inn af varamannabekknum og kom með mikla baráttu í vörnina og ógn fyrir utan þriggja stiga línuna í sóknina. Blaðamaður Víkurfrétta náði tali af Loga í vikunni og var ekki að heyra annað á kappanum en að minningin um mótið sé hlý. Veðbankar höfðu enga trú á okkur „Þetta var náttúrulega bara draumi líkast, að fá að keppa við þá bestu í Evrópu og að eiga í raun heilmikinn séns að vinna þrjá þeirra. Hinir tveir sem töpuðust með meiri mun voru góðir líka, þar sem við vorum yfir á einhverjum tímapunkti í fyrri hálfleik. Til að mynda létum við Serbana tapa 15 boltum í fyrri hálfleik og Spánverjarnir þurftu að taka tvö leikhlé til að stoppa áhlaupið okkar. Veðbankar í Evrópu spáðu okkur alltaf verulega stórum töpum og að vera fúll með að tapa á móti Þjóðverjum, Ítölum og Tyrkum segir alla söguna. Öll þessi lið eru á topp 10 listanum í álfunni.“ Á meðal efstu manna í skotnýtingu á öllu mótinu Logi nýtti sinn spilatíma mjög vel en hann lék að meðaltali rúmlega 17 mínútur í leik og gerði í þeim 9,4 stig og tók tæp 2 fráköst. Logi var með frábæra skotnýtingu en hann var með rúmlega 47% nýtingu í þriggja stiga skotum og 45% nýtingu innan þriggja stiga línunnar. Sjálfur segist hann mjög sáttur með eigin frammistöðu. „Já ég held að ég hafi bara ekki getað hugsað mér þetta eitthvað betra. Ég hitti mjög vel í mótinu og það gekk í rauninni allt upp hjá mér
persónulega. Ég er stoltur af skotnýtingunni sem var mjög ofarlega á lista yfir alla leikmenn mótsins. Maður hugsar oft fyrir svona stóra leiki hvort að maður muni hitta eins og maður myndi helst kjósa sjálfur, sérstaklega á stóra sviðinu og það er gott að vita til þess að þetta gekk allt eins og maður vildi. Varnarlega fannst mér ég eiga gott mót og fannst mér ég finna mig vel á þeim enda vallarins líka.“ Fann það um leið og ég sleppti boltanum að hann var á leiðinni niður Logi átti eflaust stærsta skot mótsins fyrir íslenska liðið þegar hann jafnaði leikinn gegn Tyrkjum á lokasekúndum leiksins með rándýrri þriggja stiga körfu sem setti leikinn í framlengingu. Logi segist ekki í neinum vafa um að þetta hafi verið eitt af hans stærstu augnablikum á ferlinum hingað til. „Skotið á móti Tyrkjunum er náttúrulega eitthvað sem mann dreymir um alla ævi. Maður hefur hitt mörgum stórum skotum á ferlinum en að gera það á stóra sviðinu á Eurobasket, sem er sjónvarpað um allan heim, er eitthvað sérstakt og ég tala nú ekki um á móti toppliði eins og Tyrkjum. Ég fann það um leið og ég sleppti boltanum að hann var á leiðinni niður, ég hafði hitt vel í leiknum og ég held það hafi hjálpað í lokin þegar ég fékk skotið. Þessu gleymir maður aldrei.“ Sterkasti riðill í sögu keppninnar Nú þegar Íslendingar hafa fengið smjörþefinn af því að leika á stórmóti í körfubolta er eðlilegt að leiða hugann að því hvort að raunhæft sé að gera væntingar um að komast aftur á stórmót á næstu árum og jafnvel fara skrefinu lengra og vinna eins og 1-2 leiki? „Ég held að við séum bara í ágætis séns að komast aftur á Eurobasket, það þarf samt alltaf að stóla á smá heppni með dráttinn í undankeppninni. Við verðum settir í hærri styrkleikaflokk næst þegar dregið verður þar sem við vorum með á Eurobasket í ár. Ef við náum aftur inn á mótið tel ég okkur eiga góða möguleika að ná í sigra eftir þessa reynslu í þessum dauðariðli sem er sterkasti riðill í sögu keppninnar.“
„Það er gífurlega sárt og svekkjandi að Keflavík skuli ekki lengur vera með lið á meðal þeirra bestu en þetta er búið að vera yfirvofandi í svolítinn tíma og eftir tapið í síðustu umferð á móti ÍBV var þetta orðið rosalega erfitt,“ sagði Haukur Ingi Guðnason, annar þjálfara Keflavíkur í samtali eftir 3-2 tap gegn Valsmönnum á sunnudaginn. Tapið var síðasti naglinn í líkkistu Keflvíkinga sem að féllu fyrir vikið þrátt fyrir að þrjár umferðir séu enn eftir af Íslandsmótinu. „Það er búið að vera þungt og erfitt yfir þessu í undanförnum leikjum. Við þurfum að skora 4 mörk í leik til að eiga möguleika á að vinna og það er alltof mikið í fótbolta að þurfa alltaf að skora 3-4 mörk til að ná í sigur. Það hefur verið talað um að við þurfum að horfa til framtíðar og finna léttleikann. Ef þú ert ekki með gleði og framlag í fyrirrúmi er erfitt að ætlast til þess að maður nái einhverju útúr leiknum,“ sagði Haukur um mögulegar ástæður þess hvernig farið sé fyrir liðinu. Haukur gat lítið sagt um áframhaldið hjá sér og Jóhanni Birni
Guðmundssyni varðandi þjálfun liðsins nema að þeir félagar séu með samning við félagið út þetta tímabil og að þeir ætli sér að klára það sem eftir er af tímabilinu með það í huga að byrja undirbúning fyrir næsta tímabil og að koma ungum leikmönnum inn í liðið sem munu fá stærra hlutverk næsta sumar. „Við höfum sest niður með stjórn knattspyrnudeildarinnar og gefið
Njarðvíkingar leika uppá líf og dauða Síðasti leikur tímabilsins á laugardag og allt undir XXÁ laugardag fer fram síðasta umferð 2. deildar karla og er óhætt að segja að botnbaráttan sé óbærilega spennandi. Njarðvíkingar gerðu vel um síðustu helgi og komu sér í kjörstöðu með því að leggja Sindra á heimavelli sínum 3-2. Þar með eru Njarðvíkingar skrefi á undan Tindastóli og Ægi en Njarðvíkingar leika einmitt gegn Ægi í Þorlákshöfn á laugardag og geta tryggt sæti sitt með jafntefli. Tapi Njarðvíkingar og Tindastóll vinnur Aftureldingu er ljóst að Njarðvíkingar falla niður í 3. deild og yrðu þá fjórða Suðurnesjaliðið í þeirri deild. Njarðvíkingar eru ekki óvanir því að vera að berjast fyrir lífi sínu í 2. deildinni en á síðasta tímabili var liðið í sömu sporum og tókst þá að forða sér frá falldraugnum.
það út að við séum farnir að horfa til framtíðar og að huga að því að undirbúa liðið fyrir 1. deildina næsta sumar. Það er aldrei óskastaða að fara niður en þetta er raunin. Við þurfum að þétta raðirnar, horfa til framtíðar og skoða hvernig við getum komið liðinu eins vel undirbúnu til leiks næsta sumar og þar af leiðandi vonandi sem fyrst aftur upp í Pepsí deildina.“
Þróttur í 3. deild næsta sumar Tap fyrir Vængjum Júpíters í úrslitaleik 4. deildar skipti ekki máli XXÞróttur Vogum vann sér inn sæti í 3. deild karla næsta sumar með því að leggja ÍH að velli í síðari leik liðanna í undanúrslitum umspils 4. deildar. Með sigrinum tryggði Þróttur sæti sitt í 3. deild en liðið lék svo hreinan úrslitaleik gegn Vængjum Júpíters á Vogabæjarvelli s.l. laugardag þar sem að úrslit réðust ekki fyrr en í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið 1-1 að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu. Þróttur hefur þurft að bíta í eplið súra síðustu ár og misst af því að vinna sér inn sæti í 3. deild þrátt fyrir að ná langt í umspilinu. Það er því kátt á hjalla í Vogunum og ástæða til. Liðið tapaði aðeins tveimur leikjum í sumar og fór sannfærandi í gegnum Íslandsmótið. Þar með er orðið ljóst að það verða að minnsta kosti þrjú Suðurnesjalið í 3. deild karla næsta sumar en fyrir eru Víðir og Reynir Sandgerði. Njarðvíkingar gætu fallið úr 2. deild og gert landslagið í 3. deildinni ansi heimilislegt.
Ragnheiður Sara sigraði á Granítleikunum
XCrossfitkonan X Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir gerði sér lítið fyrir og sigraði á Granítleikunum svokölluðu sem fram fóru í Minnesotafylki í Bandaríkjunum síðustu helgi. Sara, eins og hún er oftar en ekki kölluð, lauk keppni með 1095 stig, eða 99 stigum meira en næsta kona á eftir henni og náði þeim frábæra árangri að lenda aldrei neðar en í 7. sæti í einstakri grein sem er magnaður árangur. Fyrir sigurinn hlaut Sara 25.000 dollara verðlaunafé, eða 3 milljónir íslenskra króna. Sara varð Evrópumeistari í greininni fyrr á árinu og hafnaði svo í þriðja sæti á Heimsleikunum í júlí í Kaliforníu og er því óhætt að segja að árið 2015 verði eftirminnilegt fyrir þessa ungu Njarðvíkurmær sem stefnir á sigur á Íslandsmótinu sem fram fer í næsta mánuði.
19
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. september 2015
Sigurður Friðrik Gunnarsson skrifar um íþróttir pósturu siddi@vf.is
Sigvaldi búinn að afhenda söfnunarfé - Heldur áfram að styrkja fjölskyldur veikra barna á Suðurnesjum
S
Taekwondo deild Keflavíkur:
Bjóða Krílatíma fyrir 3-5 ára börn
T
aekwondo deild Keflavíkur er með krílatíma fyrir börn á aldrinum 3-5 ára. Æfingarnar eru til að efla hreyfiþroska barna með hinum ýmsu æfingum ásamt því að vera kynning á íþróttinni. Íþróttafræðingarnir Helgi Rafn Guðmundsson og Rut Sigurðardóttir sjá um tímana en í tímunum eru börn og foreldrar látin æfa og leika saman og styrkja þannig sam-
band þeirra með heilbrigðum hætti. Æfingar eru einu sinni í viku á fimmtudögum kl 17:15. Skráning og upplýsingar eru á keflavik.is/ taekwondo. Þá má segja frá því að æfingar eru hafnar fyrir alla hópa hjá taekwondo deildinni og vel sóttar. Æfingar eru líka hafnar í Sandgerði og Grindavík.
igvaldi Arnar Lárusson, lögreglumaður og göngugarpur, afhenti nýlega söfnunarfé sem safnaðist í sumar þegar Sigvaldi gekk frá Keflavík til Hofsóss til styrktar Umhyggju, sem er stuðnigsfélag langveikra barna. „Á göngu minni þvert yfir landið tókst mér að safna talsvert mikið af peningum til handa Umhyggju. Einnig bætti ég alveg heilum helling í reynslubankann minn sem mun nýtast mér um ókomna tíð. Mér finnst gaman að segja frá því að ég afhenti Umhyggju 2.017.000.krónur í dag en þó er verkefnið enn í gangi. Á vegi mínum í sumar varð nefnilega góðhjartaður aðili sem hefur verið að bæta í söfnunina. Aðili þessi hefur sett það sem „skilyrði“ að þeir fjármunir sem hann leggur til verði afhentir fjölskyldum sem eru með veik börn, á Suðurnesjum. Þessi aðili er búinn að bæta ofan á þessa tölu sem ég nefndi hér að ofan nokkur hundruð þúsundköllum og er það mér sannur heiður að fá að taka þátt í því að koma þessu fjármagni hér út í samfélagið okkar suður með sjó,“ segir Sigvaldi Arnar á fésbókarsíðu Umhyggju-göngunnar í vikunni.
Á myndinni hér að ofan sjá þegar Sigvaldi og Tinna Rut dóttir hans afhenda Guðmundi Björgvini, formanni stjórnar Umhyggju, afrakstur göngunnar.
Fyrir nokkru síðan afhenti Sigvaldi fjölskyldu í Njarðvík 150.000 kr. sem kom frá þessum aðila og nú er kominn nýr styrkur frá þessum einstaklingi fyrir unga stúlku sem býr í Keflavík og mun Sigvaldi af-
henda henni styrkinn síðar í vikunni. „Þetta verkefni er búið að gefa mér alveg helling og hver veit nema ég splæsi í fleiri svona verkefni í framtíðinni,“ segir Sigvaldi Arnar Lárusson að endingu.
ÚTSÖLU LÝKUR
UM HELGINA 30% 25% 35% 25% AFSLÁTTUR BLACK & DECKER
VERKFÆRI
AFSLÁTTUR
INNI OG ÚTIMÁLNING FRÁ HÖRPU SJÖFN
Afslættir á útsölu gilda ekki af vörum merktum „lægsta lága verð Húsasmiðjunnar“ og tilboðsvörum • Birt með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl. Úrval getur verið misjafnt milli verslana.
AFSLÁTTUR ALLAR VERKFÆRATÖSKUR
AFSLÁTTUR EMMEVI BLÖNDUNARTÆKI
vf.is
-mundi Húsmæðurnar láta ekki taka sig í bólinu í Vogunum.
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER • 36. TÖLUBLAÐ • 36. ÁRGANGUR
Vogamenn hvattir til dáða í bólinu XXVogamenn og meyjar tóku vel í hvatningu bæjarstjóra síns fyrir ári síðan þegar þeir voru hvattir til dáða í bólinu með hugmyndum um ástarviku svipaðri þeirri sem Bolvíkingar efna til árlega. Nú eru tíu börn á fyrsta aldursári í Vogum en voru aðeins sex um svipað leyti í fyrra. „Við erum ef til vill að sjá árangurinn,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, í vikulegum pistli sem hann sendir þeim bæjarbúum er þess óska. Bæjarstjórinn fylgist vel með íbúatölum í Vogum og hefur íbúum fjölgað um þrjá á viku undanfarnar þrjár vikur. Vogamenn eru í dag 1130 talsins.
Græjaðu þig í Omnis Reykjanesbæ LENOVO B50
Verð 59.990 kr. Örgjörvi Intel Celeron N2840 2,16-2,58GHz dual core 1MB Minni 4GB (8GB mest) Skjár 15,6” HD m. myndavél Upplausn: 1366x768 punkta Diskur 500 GB Skjákort Intel HD
Ekki kom króna í ríkiskassann XXL ö g re g lum enn á Su ðurnesjum voru með umferðareftirlit við Flugstöð Leifs-Eiríkssonar á þriðjudagskvöld. Lögð var áhersla á kanna með réttindi sem og ástand ökumanna. Á milli 80 og 90 bifreiðar voru stöðvaðar og rætt við ökumenn þeirra. Á fésbókarsíðu lögreglunnar segir: „Gaman er að segja frá því að allir ökumenn sem við ræddum við í kvöld [þriðjudagskvöld] voru með sitt á hreinu og kom ekki króna í ríkiskassann“.
Tónlistarskólinn seldur
HP
DELL
LENOVO
ProBook 455
Inspiron 15
Yoga3
Verð 119.900 kr.
Verð 149.900 kr.
Verð 179.900 kr.
Örgjörvi AMD Quad Core A8-7100 1.8 GHz, Turbo Speed: 3.0 GHz Minni 8GB (DDR3) 1600MHz Skjár 15,6” LED HD Anti-glare skjár Diskur 500GB Smart SATA
Örgjörvi Intel Core i7-5500U 5Gen (4M, allt að 3.30GHz) Minni 8GB 1600MHz DDR3L Skjár 15.6” HD WLED True-Life skjár Diskur 1TB harður diskur
Fartölva og spjaldtölva í sömu græjunni, Intel Core 5 örgjörvi, 500 GB diskur og með Windows 10 stýrikerfi
XXRe ykjanesbær hefur selt húsnæði sem áður hýsti Tónlistarskóla Reykjanesbæjar við Austurgötu. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í síðustu viku gagntilboð upp á 33 milljónir og tuttugu þúsund krónur og hefur falið bæjarstjóra að ganga frá sölunni. Bærinn hafði áður selt húsnæði sem hýsti tónlistarskólann við Þórustíg í Njarðvík. Þar er nú rekið gistiheimili.
XXBifreið sem lagt hafði verið í bifreiðastæði í Keflavík lagði óvænt af stað og rann aftur á bak út úr stæðinu, norður Hafnargötu þar sem hún fór þversum á götunni og hafnaði á annarri bifreið sem var kyrrstæð og mannlaus í nokkurri fjarlægð. Lítilsháttar skemmdir urðu á báðum bifreiðunum en ekki urðu aðrar afleiðingar af ferðalagi þeirrar fyrrnefndu.
Macbook
LEN Z51
Air 13”
Verð 159.900 kr.
Verð 209.990 kr.
Örgjörvi Intel Core i5 5200u 2,2GHz dual core 3MB HT TB Minni 8GB 1600MHz DDR3L Skjár 15,6” FHD m. myndavél Diskur 1TB SSHD með 8GB flýtiminni
HAFNARGATA 40 - S. 422 2200
Örgjörvi Dual-core Intel Core i5 Minni 4 GB vinnsluminni Skjár 13” LED-baklýstur breiðtjaldsskjár (háglans) Diskur 128GB flash. Innbyggð 720 p FaceTime HD myndavél
Úrvalið af tölvu og fylgihlutum eru í Omnis
CANON PIXMA MG5650 Verð 16.900 kr. Háþróaður fjölnota prentari með WiFi. Prentun, ljósritun og skönnun. Litur: Svartur eða hvítur
REYKJANESBÆ
Birt með fyrirvara um prentvillur og vöruframboð
Fór mannlaus á rúntinn
LENOVO