2 minute read
Vika6 í Reykjanesbæ
Vikuna 6.–10. febrúar fengu nemendur í 7., 8. og 10. bekk í Reykjanesbæ fræðslu um m.a. kynímynd, kynvitund, kynheilbrigði, samskipti kynja, mörk og kynferðislegt ofbeldi. Nýtt teymi (forvarnarteymi)
Erna Marsibil Sveinbjarnardóttir - minning
Í Garðinum hvílir lítið timburhús sem ber nafnið Sjólyst. Húsið stendur á sjávarbakka við Gerðavörina, byggt 1890. Húsið hefur því séð tímana tvenna. Una Guðmundsdóttir, stundum nefnd Völva Suðurnesja, bjó þar í liðlega hálfa öld. Fjölmargir hafa velvilja til Sjólystar, bæði vegna Unu og svo er húsið sjálft verðugur fulltrúi húsagerðar fyrri tíma. Svo var komið að húsið stóð höllum fæti, þurfti endursmíði. Hópur fólks tók saman höndum og myndaði Hollvinafélag um Unu og Sjólyst. Bæjarfélagið studdi vel við verkefnið, sem tók góðan áratug. Nú stendur húsið Sjólyst endurgert og þar er minning um Unu varðveitt og húsið sjálft sýningargripur. Erna Marsibil var formaður Hollvina 2013–2021 sem var endurgerðartími hússins. Þar naut verkefnið einstakrar handleiðslu. Erna þaulvön stjórnun sem skólastjóri og kunni á kerfi regluverks og fjármögnunar. Hún var þolinmóð, ráðagóð og fylgin sér frá upphafi verks til loka. Eftir að framkvæmdum lauk og Hollvinir tóku við rekstri hússins hefur verið efld þar menningarstarfsemi, sem Erna leiddi á veg. Endurgerð hússins og endurvakning menningarstarfs í Sjólyst er því jafnframt minnisvarði um velvilja og dugnað Ernu Marsibil Sveinbjarnardóttur. tók til starfa á síðasta ári í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Teymin starfa samkvæmt þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025. Markmið teymanna er að tryggja að öll börn á grunnskólaaldri fái fræðslu. Teymin hafa verið að kortleggja og skipuleggja þá fræðslu í vetur í samræmi við alþjóðleg markmið UNESCO um kynfræðslu og kennslu á kynheilbrigði. Afraksturinn birtast í bekkjarnámskrám skólanna á næsta skólaári.
Hollvinir áforma að hafa svolítinn minningarstað í húsinu um Ernu sem þakklæti fyrir að menningarhúsið Sjólyst er nú ferðafært til minnis um svo margt sem þar var.
Megi Erna Marsibil í friði fara, minning um starf hennar lifir í menningarlífi Sjólystar.
Stjórn Hollvina Unu Guðmundsdóttur í Sjólyst.
Undanfarin þrjú ár hefur Reykjavíkurborg í samstarfi við nemendur og sérfræðinga útbúið flott efni fyrir unglinga sem er í takt við þetta. Árlegt átak er í sjöttu viku hvers almanaksárs. Fleiri skólar og sveitarfélög hafa slegist í hópinn og tekið þetta efni sérstaklega fyrir í Viku6.
Allir skólarnir í Reykjanesbæ tóku þátt í Viku6 í ár. Tímarnir voru að einhverju leyti samræmdir milli
Sumarstarf
skóla. Nemendur flestir spenntir og ánægðir með kennsluna og kennurum sem tóku þátt finnst almennt vel hafa tekist til. Skólarnir fengu veglegan styrk frá Reykjanesapóteki sem lagði til smokka fyrir alla nemendur á unglingastigi. Einnig fengum við banana frá Nettó og auka smokka frá Blush til að prófa í tíma að setja smokk á. Við þökkum þessum fyrirtækjum kærlega fyrir að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með okkur.
Að lokum viljum við hvetja forráðamenn til þess að nýta tækifærið og taka umræðuna heima fyrir og spyrja út í fræðsluna og ræða kynferðismál almennt. Forvarnarteymi grunnskólanna í Reykjanesbæ